30.11.00

Hvort viltu frekar vera hommi eða Dvergur?
Ég held að þetta svari spurningunni.
::KÍB skeit klukkan 11:45 30.11.00 ::

Sjúkdómurinn breiðist út
Dr. Kári ég hef fundið annan sjúkling handa þér:

En sem betur fer þá hef ég líka fundið lækningu:
::KÍB skeit klukkan 11:28 ::

Djókur
Tékkiði á þessu
::Hívatha litli skeit klukkan 08:58 ::

29.11.00

Loksins...
Mælir einhver af viti hér á dissvefnum (e. da dissweb). Persónulega er ég mjög hrifinn af því að pófa gömlu viðarsnjóþrúgurnar mínar sem ég hef aldrei notað, drekka bjór, fara í sund, grilla lambalæri (ath. snúa oftar en á 15 mín fresti) og jafnvel hleypa af einu tveimur skotum í kjarrlendinu fyrir vestan. Helgina 8. til 10. eigum við pleisið. Skundum á Kretinshops and let us have good fun. Forward, forward, never back down - forward, forward, both men and biach.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:00 29.11.00 ::

Vonlaus veiðiferð

Að öllu dissi slepptu þá varpa ég þeirri spurningu til virkra félagsmanna Vonlausa Veiðifjelagsins (e. Hopless Huntingclub) hvort ekki sé kominn tími á að huga að næstu ferð. Mín tillaga er sú að við tökum frá aðra og/eða þriðju helgina í desember fyrir byssur & bjór. Kollabúðir (e. Kretinshops) eru eðlilega fýsilegasti kosturinn en annars er ég til í að fara hvert á land sem er. Svo lengi sem ég fæ að skjóta e-ð.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:01 ::

28.11.00

Kári / veiðiferðir

Annars finnst mér að hér ætti að koma upp umræða um næstu veiðiferð eins og ég hef minnst á fyrr í dag. Einnig vil ég benda mönnum á alveg hreint frábæra mynd af Britney og skonsunni hennar sem Renis smellti inn. Og hver vildi ekki smella í hana?
::Hívatha litli skeit klukkan 17:42 28.11.00 ::

Eiturtúnga
Svo að við ræðum aðeins um eiturtúngur...ég veit ekki til þess að ég hafi beitt minni í allar áttir eins og haldið hefur verið fram heldur einvörðungu að Sviðriki. Téður Sviðrik lætur sér hins vegar ekki muna um að dissa með einum eða öðrum hætti hvern einn og einasta meðlim umræðunnar. Annað, þið þurfið engar áhyggjur að hafa af því að ég stæri mig af einu eða neinu nema hugsanlega því að vera vonlausastur veiðimaður ykkar allra sem er einmitt það sem stóð í opnunarblogginu mínu á þessari umræðu.
Fact 1: Skalli er hlutur sem kemur fyrir marga karlmenn með aldrinum og lítið er hægt að gera við honum.
Fact 2: Myglulitur í hárið fæst með tvennum hætti. Fullkominni vanhirðu og þvottaleysi eða þá að borga stórfé til þess að láta líkja eftir áhrifunum!!!
ps. Hver fokkaði í lúkkinu á umræðuvefnum? -það er fokkíng ljótt.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 16:14 ::

Veiðiferðir og breytingar
Ég er aðeins búinn að vera að fokka í bloggvefnum og heimasíðunni. Dissvefur vonlausa er kominn á forsíðu. Sindri, þú mátt laga fontana ef þú fattar hvað er málið.

Tillaga: Förum í veiðiferð svo við getum farið að tala um eitthvað annað...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:59 ::

Gaman
Mér datt í hug að þið hefðuð gaman að þessu:
::KÍB skeit klukkan 15:02 ::

Kokkurinn á svölunum
Mér líst vel á þetta fyrirkomulag. Ég og Sissi og allir aðrir alvörukarlmenn mætum með bjórinn til Skabba áður en við förum á leikinn. Um miðjan seinni hálfleik fer Skabbs og kveikir á grillinu þ.a. þegar ég og Siss komum, í sigurvímu, verður grillið heitt og bjórinn kaldur.
::KÍB skeit klukkan 13:25 ::

Svenni, ég veit vel að svalirnar eru traustbyggðar en ég held að þær þoli samt ekki Valdísi. Hún verður bara að fara á völlinn með ykkur Sindra. Kannski getið þið tvö fengið magnafslátt ef þið kaupið saman 6 sæti undir rassfituna á ykkur.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:15 ::

Ómálefnalegt
Sko mér finnst allt í læ að djóka hérna á vefnum en spara kjaftinn samt...
Nokkur tilsvör:
-Kári: Sú staðreynd að við Kolli höfum verið að hjálpa bróður þínum en þú ekki talar fyrir sig sjálf. Þú færð traust bróður þíns ekki aftur með því að týna til einhver smáviðvik og dissa vini hans. Fyrir utan það veistu ekki hvernig verkaskiptingu var háttað. Þá tel ég ekki eftir mér að hrósa þeim sem gera vel. Heimboð voru ekki glæpur síðast þegar ég vissi. Skrifa skemmtilegt eða ekki. 2) Hár eða ekki hár - það er spuringin. 3) Ekki dissa Kolla, hann er vinur minn. Ég má bara dissa hann og ljótu heimsuna hans. Ég vorkenni þér álíka mikið með ískápinn og mér að keyra hann.
-Skabbo; ég hélt að við hefðum dílað fyrir næsta sumar um helgina - ef ekki þá er það náttúrulega þitt mál. Ætli ég neyðist þá ekki bara til þess að sitja með Renis prinsipp kalli niðri á velli og hlusta á hann dissa ykkur og ræða um garðyrkju. Þú vandar okkur nú ekki kveðjurnar. Ég veit ekki hvort ég þori að hjálpa þér aftur ef viðbrögðin eru alltaf svona ofsafengin reiði. Ætlar Valdís að horfa á leikina hjá þér?
-Sindri; sé þig á vellinum. Skabbi er í einhverri fýlu út í mig. Áfram KR!


::Hívatha litli skeit klukkan 12:29 ::

Tímarnir breytast og mennirnir með
Mér finnst alveg ótrúlegt að maður eins og Skarphéðinn skuli kominn á þá glapstigu sem raun ber vitni. Hann hefur verið einna duglegastur, af öllum ykkur sem kallið ykkur KR-inga, að fara á völlinn með mér. Oftar en ekki hefur hann líka tekið yngsta bróður sinn með sér. KR-leikirnir hafa því verið tækifæri til að koma saman og fagna sigri eða gráta tap. En nú hyggst hann slíta öllum tengslum við alvöru KR-ingana og sitja upp á svölum. Það er kannski auðveldara að taka ósigri þaðan. Hinsvegar verður aldrei jafn gaman að fagna sigri upp á svölum og á KR-vellinum sjálfum.
Ég ætla ekki að ræða þetta leiðindamál frekar. Í framtíðinni munu aspirnar tala sínu máli.
::KÍB skeit klukkan 11:55 ::

Ég verð nú bara að segja að þó að þið hafið hjálpað örlítið til við að klína smá málningu á veggina hjá mér þá er það langt því frá að vera næg ástæða til þess að geta pantað eilífðarmiða í heiðursstúkuna mína. Frekar hefði ég nú bara borgað ykkur tíkall á tímann eins og vinna ykkar er virði en að gefa eftir stúkusætin sem eiga eftir að gera mig ríkann. Heiðarlegt fólk er tilbúið að borga ríkulega fyrir annað eins dýrðarútsýni, auk þess sem ég vil síður að allur vesturbærinn sjái að ég hangi með öðru eins riffraff liði og ykkur. NEI TAKK! Stúkan er frátekin fyrir ríka og fræga fólkið, Fjölni, Óla grís og Dorrrrít, Móu loggs for legs o.s.frv......allavega þangað til Sindri treður þessum fokkíng öspum upp í rassgatið á sér aftur þar sem þær eiga heima!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:27 ::

Sko...

1. Sveinsson getur bara bitið í feita analinn á sér ef hann ætlar eitthvað að vera að dissa mig fyrir framtaksleysi í málningunni. Ég veit svosem ekki hvað hann gerði en að ætla að kleima shotgun á svalirnar á þeim forsendum að hann hafi hrósað Kolla fyrir að vera ofurhjálpari hefur bara eitt nafn í mínum huga...SUCK-UP!!! Og að fara síðan fram á að eftir-málningar-öllari sé tekinn annarsstaðar en nákvæmlega þar sem verið var að mála bara vegna þess að hann nennir ekki að hreyfa á sér fokkíng rassgatið...what the fuck is up with that?
2. Talandi um harðar áttir...láttu vera að tala um hárið á fólki Spring Fairy!
3. Og Kolli, vissulega ert þú búinn að leggja meira en allir af mörkum en ég vil minna á að hæðirnar 4 sem þú þarft að ganga upp til Skarphéðins hljóp ég upp með ísskáp á herðunum til þess eins að þú getir drukkið kaldan bjór á sólríkum KR-degi. Ég vil fá þetta skráð í captains-log.
En að öllu gamni slepptu...Darth Maul rúlar!!!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 10:38 ::

27.11.00

Að þrífa upp skítinn eftir aðra
Jæja, þá er ég búinn að þrífa upp skítinn eftir þig Sissi! Þ.a. nú er ekki úr vegi að fræða hina fáfróðu.

Regla 1: Þegar þið eruð búnir að blogga þá verðið þið að fara á síðuna og gá hvort ekki sé allt í lagi með það sem þið voruð að skrifa.

Regla 2: Ef þið setjið linka í textan og klúðrið því einhvern veginn (eins og Sissi var að gera) þá verðið þið að smella á takka í bloggernum sem heitir enter safe mode. Þá getið þið farið tilbaka og lagað klúðrið. EF það gengur ekki, látið þá mig vita og ég skal þrífa skítinn eftir ykkur.

PS. Addi: Ef þetta er ekki nógu málefnalegt, þá verður þú bara að leggja eitthvað til málanna og halda uppi standard-inum á síðunni.
::KÍB skeit klukkan 15:16 27.11.00 ::

Kolli hommi
Sko,
-Þetta kemur nú úr hörðustu átt. Ég er nýbúinn að vera að hrósa þér hérna á vefnum!
-Þetta er lygi.
-Þú varðst ofurölvi af einni spætu, pullaðir Bigga á okkur og beilaðir.
-Sammála með Kaur. Hann er bara ANS núna eins og í endanum á Skata dauðANS. Nema bara meira ANDskotans lydda að svíkja bróður sinn svona þó hann sé ljótur með ekkert hár.
-Og þessi mynd afsannar totally rassapælinguna hans Kaur, þetta er flottur rass hjá mér þarna í thonginu.
-Ég hitti Adda Pu í fyrradag og hann var að dissa okkur fyrir hvað þessi vefur væri mikið bull. Við þurfum að fara að dissa hann. Og Kolli sleppur of vel líka, sérstaklega miðað við hvað heimasíðan hans er ljót.
-Svo gelymir þú aðalatriðinu; Punk-ass-spíttuðu hálfvitar Reykjavíkur, behold: Ekki fokka í vonlausa!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:24 ::

Um atburði helgarinnar
Helgin se leið var mjög viðburðarík og draga má mikinn lærdóm af henni. Í fyrsta lagi er Kári hér með sviptur nafnbótinn skeitari dauðans og hér eftir blóðlausi ræfillinn. Hann sveik sinn eigin bróður fyrir finnskar teiknimyndir og á ekkert annað en háð og spott skilið.
En annars þá þarf aðeins að segja frá föstudagskvöldinu. Kretín 1 og the Spunge ætluðu að draga the Kike út á lífið en auðvitað beilaði sá haugur. Í staðinn fóru þeir á 22 þar sem þeir hittu Schweppes, Ásu(pjásu) og Skírni, en það sem enginn vissi að það var leynilegur ljósmyndari vonlausa veiðifélagsins á staðnum. Meðfylgjandi mynd sýnir Svenna í góðum gír á 22.


::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:55 ::

Könnun
Ég er aðeins ósammála Renis. Málið er að Boba Fett var svo dívíus gaur. Mér finnst svona svik og þannig alltaf heillandi í vondum köllum. Hann er svona eins og myglað epli sem er í lagi þangað til þú bítur í það en Maul er bara roadkill sem þú myndir aldrei vilja. Þannig að Boba Fett fær mitt atkvæði. Plús að nýja myndin var ekki það sem ég vonaðist til og ég veit ekki hvort ég leyfi henni að vera með í Starwars seríunni.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:11 ::

Talandi um Shotgun
Fyrst það er verið að tala um shotgun. Tékkið á þessu.
SHOTGUN!!
::KÍB skeit klukkan 11:21 ::

Liðhlaupar og aumingjar
Til hamingju með nýju íbúðina Skabbi! Sorrý að ég kom ekkert að hjálpa til, ég reyndar vissi ekkert af þessu.
Þið eruð hinsvegar algerir aumingjar ef að þið ætlið að sitja á svölunum heima hjá Skabba og horfa á KR leikina þaðan, í stað þess að mæta á völlinn eins og sönnum karlmönnum sæmir. Ég er reyndar löngu búin að sjá þetta fyrir. Aspirnar sem ég gróðursetti fryrir u.þ.b. 10 árum fara að verða nógu stórar til að skyggja á völlinn. Þ.a. þið neyðist til að koma með mér. Síðan getum við farið í hammara og bjór.
::KÍB skeit klukkan 11:07 ::

Tilkynning
Kolli er búinn að vera þvílíkt duglegur að hjálpa Fabhéðni um helgina og ég er búinn að kíkja aðeins líka. Því lýsum við hér með yfir shotgun á sæti á svölunum fyrir deildarleiki, bikarleiki, flugeldasýninguna og annað sem gæti komið upp. Og pöntum að grilla ekki. Allir ættu að hafa þetta í huga nema Sindri sem er svo mikil steik að hann vill frekar sitja innan um feita kalla (tipparana úr auglýsingunum) og 300 öskrandi krakka. Meðan við erum að éta hammarana okkar. Lifi skotastúkan á íbúðinni hans Spunge!
::Hívatha litli skeit klukkan 10:56 ::

Ný könnun
Nú er kominn ný könnun á síðuna mína. Ég vil hvetja ykkur til að kjósa, þrátt fyrir að Sissi hafi ekki verið sáttur við síðustu úrslit (ég er reyndar sammála honum, JL er flottari en CD).
Hérna er smá bónus!
::KÍB skeit klukkan 10:53 ::

26.11.00

Breyting á síðunni
Þar sem þið eruð svo duglegir að skrifa (skjóta á hvern annan) þá hef ég breytt síðunni þ.a. núna koma bara síðustu 10 blogg. Hinsvegar er hægt að skoða gömul blogg með því að fara neðst á síðuna og smella á Gamalt.

Vitið þið afhverju konur eiga ekki að vera vélvirkjar?

::KÍB skeit klukkan 14:07 26.11.00 ::

24.11.00

Sveppir
Nú skammast ég mín fyrir að vera vinur ykkar. Að þið skulið taka hina illa-þefjandi, asnalegu Cameron framyfir latin-beibið Jenny í könnuninni er gjörsamlega ofar mínum skilningi. Dísus mar!

Ég er með stóra-bróður fóbíu Sindri.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:51 24.11.00 ::

Mynd dagsins
Mynd dagsins verður tekinn til rækilegrar endurskoðunnar við fyrsta tækifæri. Hún er búinn að vera full af myndum af einhverju skóladjammi en vonandi breytsist það bráðum. Hérna er smá sárabót.



PS: Ertu adminsjúkur Sveinn?
::KÍB skeit klukkan 14:53 ::

Rikki Morthens og nördahræðsla Kára
Ég vil byrja á því að segja að mér finnst Kári fullsmeykur við þennan gaur þarna með hjálminn... Hvað ætli hann geti svosem gert við Skötu dauðans? (e. Stingray) Kári; Öxlana út og svo berja.

Þá finnst mér að Sindri sé orðinn það sem hann segist hata á "ég hata" vefnum hans. Þ.e. hann er búinn að fá þvílíkt stóru-systur, blogger-stýru, valdatripp bara á því að vera með hakað við admin á þessari síðu.

Svo er hér skemmtilegur póstur frá Rikka. Ég spurði hvort ég mætti fá lánað GPS tæki, talstöðvar, bílinn hans, íbúðina og kellingu (ef hann fær sér þannig) til óskilgreinds tíma. Hér er svarið: "Konuna, já já. Bílinn, aaaaj, kannski. Sleðann, ALDREY!" ´Rikki - ef þú lest þetta: Spurning um hvað þetta gefur til kynna um kynhegðun munksins??

Já og mynd dagsins er orðin þvílíkt súr hjá Renis. Hvet hann til að sturta bunka af klámmyndum í grunninn sinn. Eða allavega eitthvað skemmtilegt.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:40 ::

Stóri bróðir fylgist með ykkur!
::KÍB skeit klukkan 11:03 ::

OK - Kaur, skil blog pælinguna. En nú er nýtt aðkallandi vandamál - Sindri er farinn að breyta bloggonum okkar til að þau passi við hans sjúku hagsmuni! ATTICA, ATTICA!!!
::Hívatha litli skeit klukkan 09:19 ::

23.11.00

Jæja Sveinn, tvennt
1) Ég var ekki að dissa blogg, ég var að dissa þetta netnörda blogg cult sem er í gangi bæði meðal gaura hérna í skólanum og liðs ofan úr háskóla. Þetta er bara svipað og irc-fíklar ( þá á ég ekki við að irc-ið sé af hinu illa heldur bara að þetta verða svona hálfgerðir sértrúarsöfnuðir, og svoleiðis lið fíla ég ekki ).
2) Ertu viss um að stærðin á myndinni sé ástæðan fyrir því að þú viljir fá hana minnkaða en ekki bara stærðin á rassinum á þér???
  Kaur
ps. ég ritskoðaði síðustu grein frá mér ekki vegna þess að ég hafi skipt um skoðun eða sé að taka neitt til baka. Ég bara nenni ekki að standa í rifrildi við Geir Ágústsson því það er vonlaust keis.
pps. ég skal minnka eða taka út myndina um leið og þú viðurkennir af hverju þú vilt það í alvörunni sveinn. híhí.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 20:05 23.11.00 ::

Hmmmm - Svenni sterki vs Sindri aumingi
Sko, ég býst við að flestir skoði þennan vef í gegnum skati.is/vonlausa og fari svo á umræðuvef. Þar erum við Kolli klárlega vefstjórar. (Sjáið ljótu heimasíðuna hans Kolla á háskólavefnum. Hinsvegar er það rétt að þú ert admin yfir þessu bloggi. Það er hinsvegar nauðaómerkilegt embætti og ekki ýkja krefjandi. Því mátt þú kalla þig blogg-stýru í mesta lagi. Hakaðu svo við mig í admin, ég vil breyta lúkkinu á þessu.
::Hívatha litli skeit klukkan 19:37 ::

Heyrðu kall þetta kann ég ekki við
Ég er vefstjóri ekki þú! En ég er sammála þessu og því máttu vera aðstoðarvefstjóri.
::KÍB skeit klukkan 18:03 ::

Myndir
Spurning um að minnka myndir sem eru stærri en 20 K - ef það verða margar eins og þessi sem dauða skatan setti inn (123K) verður umræðuvefurinn allt of þungur. Skata, nennirðu að minnka hana?

Webmaster
::Hívatha litli skeit klukkan 17:11 ::

Kobbabúðir
Ég er hættur við enda ekki göngufær. Í stað þess ætlum við Sírnir að klæða okkur sem drag-drottningar og mæta á frumsýningu með fríum veitingum annað kveld. Síðan í fertugs-afmæli Ingó Einarsdóttur Óhapps Ólsen. Svo skilst mér að eitthvað sé í gangi á laugardagskveld. Svo verð ég vinna þunnur á sunnudaginn. Líst ekki vel á 1-3 des en er þvílíkt til í mauv eftir það.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:09 ::

Enn af Kára
Hversu steiktur þarf einn maður að vera til þess að dissa blogg með því að skrifa níð um það á bloggi sjálfur...? (maður=kári)
::Hívatha litli skeit klukkan 17:06 ::

Spam
Þetta er ágætis gaur. Hann er með mér í bekk. Þetta er bara smá grín. Heimasíðan er líka bara nokkuð góð.
Það er farið að nálgast próf "ískyggilega" mikið þ.a. ég reikna ekki með frekari veiðum af minni hálfu.
::KÍB skeit klukkan 14:58 ::

Svennson hefur e-ð verið að spurja út í kollabúðir um helgina. Satt best að segja líst mér bölvanlega á næstu helgi, enda kemst ég ekki með þá. Hvað segja menn um helgina 1. - 3. des eða helgina þar á eftir?
Sindri, hvernig væri að fá aðeins meiri upplýsingar um þennan kretíndverg, bara svona til að vita hvað er í gangi.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:57 ::

(cencored)
ps. hann er búinn að setja sams konar link á þig á heimasíðunni sinni: http://geirag.homepage.com
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 14:25 ::

Spam
Nenniði að spama þennan gaur fyrir mig:

Við eigum í smá ritdeilum þ.a. endilega látið eitthvað stórt fylgja með.
::KÍB skeit klukkan 12:48 ::

Fréttir - Óútskýrð aukning rassfitu í matvælum
Getgátur eru uppi um að loftegundir séu ríkjandi á afmörkuðu svæði við kvisthagann í vesturbænum sem valdi áberandi aukningu á magni rassfitu í matvælum.
Gölturinn hefur undanfarin ár orðið var við gríðarlega aukningu á eigin rassfitu. "Ég stunda mikla líkamsrækt og hef byggt upp mikinn vöðvamassa" segir Gölturinn en afneitun er tíð meðal fórnarlamba þessa sjúkdóms.



  -Hér má sjá Göltinn ( t.h. ) ásamt sjúkraþjálfaranum sínum undirbúa sig undir meðferð. Hún felst í því að menn eru bundnir við fjöl og slegnir þéttingsfast í sitjandann með þar til gerðum spaða til að reyna að dreifa massanum. Þjálfarinn sýnir hér hvernig gott er að slaka á eftir meðferð. Greinilega sést á myndinni hver áhrif sjúkdómurinn er farinn að hafa.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 09:55 ::

22.11.00

Hvenær ætlum við að fara í Kobbabúðir?

Og eitt Schweppes, þú ert lydda og dusilmenni. Þú ert ennþá að stæra þig af því að skabbi varð þreyttur og fór að sofa á undan þér. BIG DEAL hvenær hefur Skappi verið sá sem vakir lengst, hann fer alltaf að sofa á undan öllum öðrum (nema mér kannski eftir nokkra bjóra) og þar að auki gerðist þetta fyrir mörgun mánuðum síðan. Við vorkennum þér allir ef þetta er það eina sem þú getur stært þig af, að vaka lengur en Skabbi og litli bróðir hans. Fyrir þessa sök ertu lydda. En þú ert dusilmenni vegna þess að þú viðurkennir ekki veðmál sem þú áttir upptökin af. Hvers konar ósómi er það segi ég nú bara. Borgaðu bjórinn og við drekkum hann allir saman (þ.e. ég, Skabbi og Sirri)

Og annað , Sírnir þú ert þorskur og þú getur bara étið.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 18:43 22.11.00 ::

Smá klúður, slóðin er www.hi.is/~sindri. Athugið að hann er að reyna að plata okkur með dökku skoli => Loga Bergmann Eiðssonarlúkki, en hann ku vera idolið hans Renis
::Hívatha litli skeit klukkan 18:11 ::

Á Sindri launson?
Tékkiði á heimasíðunni hans,

SAMMÁLA, til dæmis er saumakellingaklúbburinn hjá Rúnk Spúnk nokkuð sniðugur. Þeir hittast á þriðjudagskvöldum og gera yfirleitt eitthvað. Í gær gengu þeir á Esjuna og fóru svo í bjór á feita dvergnum (eða hommanum). Væri til í eitthvað svona.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:23 ::

Saumaklúbbur
Ég legg til að við stofnum saumaklúbb eða smíðaklúbb, þ.a. við getum hist reglulega og skipulagt komandi veiðiferðir. Þær verða að vísu ekki mikið fleiri hjá mér enda fer að nálgast próf.
::KÍB skeit klukkan 13:06 ::

Lygavefurinn

Skabbi er leiðinlegur. Sannleikurinn er sá að hann reyndi að veðja við mig um þetta en ég tók að sjálfsögðu ekki í mál að eiga aðild að svoleiðis ósóma!
::Hívatha litli skeit klukkan 12:11 ::

Ég vil ennfremur biðja þá sem kunnu því ílla að ég notaði ZuZu Man að bíta sig í olnbogan, því aldrei hefur verið lýst yfir helgun ZuZuMennsku og því ekki um ZuZu-Mannlast. En vegna virðingar minnar fyrir Dr. Jhonn þá læt ég af nafninu af sjálfstáðum.
::The Satan of Death skeit klukkan 11:34 ::

Nú er mér öllum lokið! ég er hreinlega gáttaður á drengleysu ykkar, Í fyrsta lagi finnst mér ég svikinn um bjór. Sé verið að verðja um knetgetu einhvers er grundvallarskilyrði að hann viti af pressunni og njóti góðs af arðinum. Auk þess þakka ég Hreina Sveini rýting í bak trausts míns og finnst geðveikt gott á hann að hann sé svo heimskur að veðja um orðinn hlut.-Speni!
Og skabbi ég kysi, minn kæri frére að þú notaðir annað orðalag en að narra. -Finna sátt um samlegu- þykir mér hæfa betur

Þorskkur ER villibráð, hann lifir villtur og þarmeð ekki alinn. Þorskur er góður þú bara kannt ekki að elda mannleysan þín. ástæða þess að þú fílar ekki að veiða þorsk er að það þarf engar spes-kevlar og rassahárahúðaðar veiðistangir með svif-hjóli og teygjulínu. Tækjaveiðimaður! og Speni!
Veiddu skíthóran þín.
Hins vegar tek ég rökum um að ég var einn vonlaus veiðimaður á ferð þannnig að ekki var um löglega Vonlausuferð að ræða, Þó að svoleiðis hafi líka staðið á þegar ég kom færandi hendi og hélt 14 silunga veislu. Ég dreg til baka kröfu mína um hálfan þorsk.
En vil á hinn bóginn fá á hreint, því mig brestur minni. Veiðimaður ársins í vonlausa veiðifélaginu; er það sá sem er vonlausastur, aflar minnstra eða ömurlegastra fanga. Eða hinn fengsælasti. Mig minnir að upphaflega hafi það verið hinn vonlausasti.
::The Satan of Death skeit klukkan 11:20 ::

Þú lýgur eins og þú ert ljótur til. Ég kannast ekki við neitt slíkt veðmál enda væri það á skjön við siðferði mitt að standa að slíku. Og hvaða skuldaða öl tjáði ég mig um til að verðskulda þessar skammir? Bendi einnig á að fjárhættuspil og veðmál eru bönnuð með lögum.
::Hívatha litli skeit klukkan 09:47 ::

20.11.00

Sviðrik, ég myndi nú ekki vera haf hátt um skuldaðan bjór kallinn minn. Ég veit ekki betur en að þú hafir þvílíkt böttað sjálfan þig með veðmálinu um að sírnir gæti aldrei narrað ástu sólilju til galtroðs, veðmáls sem þú stofnaðir sjálfur til, EFTIR AÐ HANN VAR BYRJAÐUR KNETA!! Tvær kippur af bjóri á ÉG inni hjá ÞÉR. How d'you like THEM apples, bitch!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:07 20.11.00 ::

Fréttir - Kári finnur dauðagenið

Kári fann í dag dauðagenið í einum starfsmanna sinna, Skabba pabba. Eftir að hafa gert ítarlega rannsókn á honum og bræðrum hans - Skötu dauðans og Kretíndverginum Kolla dauða fannst genið. Það lítur út eins og Sindri Páll Reynisson.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:41 ::

Re: Dauð Skata
Sko - til að leiðrétta allan misskilning þá drapst Skabbi bæði á undan þér og líka miklu meira. Það var samt fyndið þegar ég reisti þig á lappirnar og dró út á mitt gólf til að hjálpa mér að henda Skabbs út að þú sleist þig alltaf lausan og hljópst aftur upp í sófa.

Keppnin var auglýst lögformlega og það var alltaf ætlunin að 1) klára ölið 2) vera síðastur að drepast. Reyndar minnir mig að ég eigi inni einhver verðlaun, líklega bjór.

Ég tek svo fram að það er viðurkennt að slaka á eftir keppni þó að Khári sé úti að leika sér.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:14 ::

19.11.00

HEY! Ég vil bara ítreka það að það var ekki ég sem þurfti að draga niður í fjöru til að klára bjórinn og það var ekki ÉG sem sofnaði í sófanum heima hjá Frissa. Ég vil vera dæmdur á einstaklingsbasis en ekki dreginn niður í eitthvert fjölskyldumeðaltal. Og Sveinn, ef þú vilt endilega hafa þetta einhverja keppni þá geturðu drullast til að segja það fyrirfram en ekki bara montað þig daginn eftir af einhverju sem þú getur logið upp af því að enginn man eftir því.

f.h. áhugamannafélags um drykkju-, ælu-, og dauðakeppni,
Kári Halldórsson.

ps. sviðrik, ég veit ekki betur en að ég hafi verið úti að renna mér á hjólabretti þegar þú hefur líklega verið steindauður í kjallaranumðínum.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 09:57 19.11.00 ::

17.11.00

Sko

Ef Skabbi ætlar að vera með kjaft bendi ég á reglu #3

Sko, veislan stóra á lLeirubakka - ef þið eru að spyrja um hana, verður hugsanlega milli jóla og nýárs eða seinna. Nú eru að koma próf þannig að hún verður ekki á næstunni. Ef þið eruð að pæla í veiðiferð þá líst mér betur á Kollabúðir eins og ég hef áður sagt. Einnig veit ég ekki hvernig löppin verður um þarnæstu helgi þannig að það er ótímabært að spá í þessu alveg strax. Hinsvaegar langar mig auðvitað...

Skabbi og Kári - það má mikið gerast til að ég drepist á undan ykkur. Hinsvegar gef ég ykkur mikið kredit fyrir að lifa hálfum sólarhringi lengur en kretíndvergarnir vinir okkar. Þið rétt helltust úr lestinni á endasprettinum + voruð með í að klára bjórinn. Virðingarvert. Hver drepst líka ekki eftir að hafa þambað ölið í 14 tíma streit? Æjá..... ÉG!

Biggi væri skemmtileg nýbreytni í veiðiferð, en eins og þú segir - ARS IFF.

Ég mun svo reyna að einbeita mér að því í framtíðinni að skjóta bara dýr, ekki menn.
::Hívatha litli skeit klukkan 18:38 17.11.00 ::

Jú kol ðe sjotts beibí. Haltu partí og gefðu okkur brennivín. Ég og skeiðarinn eigum harma að hefna frá síðustu útskriftarveislu. Við ætlum að launa þér lambið gráa með því að drekkja þér í pottinum. AHAHAHAHAHAHAAAAaa.....!!! áhm. Annars er kominn tími á að vonlausa fari í e-ð mauv, sérstaklega ef Sindarinn á að komast e-ð með. Svo vill Biggí að við hann sé talað....AS IF að hann hreyfi boruna á sér!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:16 ::

Hvað með Leirubakka?
Sissi hættu nú að skjóta á menn og svaraðu því, hvenær ætlum við á Leirubakka?
::KÍB skeit klukkan 12:32 ::

Hmmm
Eru menn annars að spá í að gefast upp og fara á vertíð vegna veiðileysis? Þorskur....
::Hívatha litli skeit klukkan 08:58 ::

16.11.00

Jæja faggar - ógnvaldurinn stimplar sig inn! Nokkur mál:

  1. Ég hefi skellt síðunni inn á vef vonlausa skáti.is/vonlausa. Þetta heitir "umræðuvefur" í leiðarkerfinu.

  2. Sírnir faggi: Þú getur troðið þessum hálfa þorski upp í rassgatið á þér skíthóran þín! Þorskur er ekki villibráð. Hann er ekki silungur né lax. Hann er bara ljótur. Eigum við kannski að fara að hleypa einhverjum sjóurum inn í klúbbinn bara af því að þeir veiða fullt af þorski eða ýsu? Ég held ekki. Svo er þorskur vondur. Og þú gafst ketti hann en í lögum félagsins er skýrt tekið fram að það eigi að éta allan afla. Því er helvítis þorskurinn þinn ekki tekinn með. Hvar eru líka sannanirnar: "Ég gaf ketti fiskinn..." Ég veiddi 1000 rjúpur og gaf Hreinsa þær - hann át þær hráar. Ég lít svo á að þetta mál sé útrætt. Sissi has spoken.

  3. Kári - það er ekki seinna vænna fyrir þig að byrja að drepa.

  4. Leirubakki - let me think about it. Er eiginlega spenntari fyrir kjarrveiðum á Kollabúðum. Er reyndar með fótinn í buffi þessa dagana.

  5. Er Skarphéðinn ekki með stórum staf?

  6. Kolli - ég frétti að þú mættir ekki koma í þitt eigið afmæli - hversu leim er það?

  7. Hver er klámúlfur?

  8. Að endingu: Sindri, þessi commando mynd er ekkert lík þér og þú ert langt í frá commando á henni... Er þetta Linda á "villtu árunum" sínum?
::Hívatha litli skeit klukkan 17:16 16.11.00 ::

Viltu fá klámmyndir í ammælisgjöf. Hvernig væri nú ef þú værir uppfærður úr því að vera klámhundur í klámúlf? Eða kannski úlfaperri.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:51 ::

15.11.00

Hressandi að vera boðið að taka þátt í umræðu veiðifélags svona gjörsamlega laus við drápseðlið eins og ég er. En þetta er væntalega rétta félagið fyrir vonlausan veiðimann. Vonlausa lifi...og megi öll dýrin í skóginum vera vinir!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 17:15 15.11.00 ::

Ég vil bara ítreka athugasemd mína varðandi veiðitölur ársins. Ég og Daniel, sonur minn veiddum vænan Þorsk á bryggjunni á Stöðvarfirði í sumar.
Eru þorskar ekki líka fiskar? Ég krefst þess að þessum igtho-rasisma linni, ennfremur að ég verði skráður fyrir hálfum þorski í aflatölunum.
því miður verður ekki boðið upp á soðinn þorsk með kartöflum á árshátíðinni því við gáfum kettinum hans Rikka Valtingojer aflann.
::The Satan of Death skeit klukkan 16:41 ::

Förum á Leirubakka þarnæstu helgi. Schweppes verður að standa við orð sín, annars getur hann bara étið. Ég hlakka alveg rosalega til að vera með heitapottslæti.
Og síðan ætla ég að tilkynna afmælisveisluna mína sem verður haldin 18.nóv á gauknum (það er einhver Ása sem heldur að hún eigi afmæli en það er bara rugl)
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:20 ::

Leirubakki
Hvað varð um Leirubakka ferðina sem Sissi var búinn að lofa. "Sissi varstu ekki að tala um að fara einhverntímann í nóvember?" "Stendur þessi ferð til, eða hvað?"
Það væri helvíti nett ef að þessu gæti orðið. Það væri þá hægt að renna fyrir rjúpu í leiðinni. Taka síðan eitt ærlegt fyllerí með tilheyrandi gufubaði og heitapottslátum. Allir commando að sjálfsögðu.
"Er ekki annars hörkustemming fyrir þessari ferð?" Ég er allavega þokkalega til í þetta. Svo lengi sem að þetta dregst ekki fram í desember því þá er ég kominn í próflestur.
::KÍB skeit klukkan 00:38 ::

14.11.00

Umræðuvefur
Mér datt í hug að gaman gæti verið að opna umræðuvef. Þar sem félagar í Vonlausa veiðifjelaginu og vinir þeirra gætu spjallað um það sem væri á döfunni.
Ég hafði hugsað mér að bjóða öllum meðlimum fjelagsins og nokkrum vinum að auki. Ef ég gleymi einhverjum þá verðið þið bara að láta mig vita.
::KÍB skeit klukkan 14:51 14.11.00 ::

Skoða eldri færslur >>