26.12.00
22.12.00
21.12.00
20.12.00
"Fengu sér nokkra öllara"
Hver fer í heimspeki? Svar að ofan. Eigum við ekki annars að halda partý, hvernig væri að Sindri myndi bjóða, hann er búinn í prófum á morgun. Svo skuldar hann Kára náttlega bjór sem ég er til í að stúta.
tékkið á þessu, hreinasta abbbraggð!: www.ucomics.com/calvinandhobbes
19.12.00
http://www.hi.is/nam/heimspekiskor/einkunnir.html
Væru menn tilbúnir að punga út 6.000 kalli fyrir vonlausa.com (gildir í 2 ár)? 1.500 kall á mann. SF (ef einhver getur fundið síðu sem gefur okkur þetta ókeypis er það náttla betra.)
- en óvíst um áhrif á kynhvötina

"Skatan okkar er sterk og fín. Reyndar má segja að við séum í vímu þessa dagana vegna stækjunnar sem svo sannarlega kemur út á okkur tárunum. Þetta er allt saman eins og það á að vera," segir Helgi Helgason.
Hann segir engan vafa leika á hollustu skötunnar, enda sé þarna um að ræða hálfmeltan mat. Helgi vill ekkert gefa út um það hvort skatan búi yfir þeim eiginleikum að styrkja kynhvöt fólks.
"Ég þori ekki að lýsa áhrifum skötunnar þar. Við eigum ekki svo mikið að hægt yrði að mæta stóraukinni eftirspurn sem yrði ef fólk uppgötvaði að skatan hjálpaði í þeim efnum," segir hann og tekur bakföll af hlátri.
18.12.00
Annar meðlimur R&B-dúettsins K-Ci & Jo Jo beraði sjálfan sig fyrir áhorfendur á hátíðartónleikum sem ætlaðir voru öllum aldurshópum.
Margir foreldrar voru mættir á tónleikana með börnum allt niður í 5 ára. Þegar söngvarinn fletti sig klæðum greip um sig mikil skelfing meðal siðprúðra foreldra. Foreldrar ruddust út og myndaðist örtröð um tíma við útganga tónleikastaðarins.
Listamaðurinn seki hefur ekki verið ákærður en lögregla rannsakar nú málið.
Um 4000 manns voru mættir á tónleikana þar sem söngkonan Christina Aguilera var meðal þeirra sem komu fram.
Garfúnkel verður að gera þetta á næstu tónleikum
Og já drekkum meira drekkum dátt, því sopinn er ferskastur frá glasi að vélinda, en vinnur sitt gagn í maga. þess vegna skal á hverri stundu hafa streymandi veigar um tungu og aðeins gera þar á hlé til að hleypa út visku eða spé. Því veigarnar vökva andans tré svo spretta af því vísdóms aldin. Það er Hundur!
Kári, þú ert heljarmenni. Það verður ekki tekið af þér. Ef einhver framsetning á efni varðandi þig fer of mikið í taugarnar á þér læturðu mig bara vita.
Tepokinn fer út, en samt ekki fyrr en á eftir. Segjum að hann verði farinn á morgun. Svo var ég búinn að ritskoða smá - það voru ansi margir rassar þarna m.a.
Er ekki partý um helgina svo?? Mætir rauða hættan??
Til hamingju með fínt partý piltar. Þið stóðuð ykkur vel og gerðuð margar góðar sögur. Ég vona að enginn (nema fíbblið) hafi borið varanlegan andlegann eða líkamlegan skaða af. Myndirnar eru snilld en ég ætla samt að biðja um að NO TEABAGIN' myndin sé færð e-t annað svo að ég geti farið að senda fólkinu sem kom í partýið slóðina án þess að þurfa að flassa sprellanum framan í það.
...en var þetta ekki eitt fokkíng besta partý sem maður hefur farið í? Ég heyrði því fleygt að það hefði ekki verið nógu gott partý á mælikvarðanum "hvað brotnuðu mörg glös" því merkilegt nokk þá brotnaði ekki eitt einasta! En hvað gilda eitt brotið nef( Moron, the drunk suicidal maniac ), einn brotinn haus( Briem briem briem ) og einn brotinn rass( Cliffhanger Kolli ) á móti mörgum brotnum glösum??? En hvað um það, Sindri þú skuldar mér bjór og Svenni: mér finnst að við ættum að virða það við bróður minn að hafa haldið svona gott partý og taka 'teabaggin' myndina út af vefnum...halda henni meira svona fyrir select audience. Eitt enn...ég veit ekki hvort það er beint hægt að kalla það út hald...en HVER fór langseinastur heim úr innflutningspartýinu hans Skabba?
17.12.00
Partýið hans Skabba fór fram úr björtustu vonum hvað varðar skemmtanagildi. Sindri þarf að borga Kára allt ölið þar sem hann stóð við stóru loforðin hans Kolla og setti mark sitt á eldhúsvaskinn, gluggakistuna og fleira. Heppinn strákur. Og Sindri - það er eins gott að þú fokking standir við þín orð og borgir manninum! Annars er mér að mæta...
Tekið skal fram að;
1) í þessu felst engin rætni í garð Kára
2) ég gaf honum ekkert áfengi
3) ég hrakti hann ekki yfir brúnina
4) ég tek þetta fram svo Skarphéðinn sem ræðst á vini sína sem dissa einhvern sem hann vill ekki að sé dissaður geti ekki kennt mér um téð dráp Skötunnar. Sem var brill á allan hátt, sérstaklega á 3. tíma er hann reis upp frá dauðum.
Kolli rassbrotnaði og Biggi fékk gat á hausinn í Mission Impossible mauvi um salarkynni efri hæða hússins. Svo var létt líkamsæfing og fleira til að brydda upp á kryddi í partýið. Sindri - þú hefðir átt að koma...
Nema hvað, myndirnar eru komnar. Velja þær úr hvíta menu-inum.
15.12.00
ps - Vitið þið hver er munurinn á RNA og DNA?
14.12.00
Að lokum - ef ég ætti að dæma um þetta yrði ég að segja að verra væri að vera Path Pot því 1) hann er Path en Pot Path gæti hugsanlega orðið það og 2) það eru svo lítil líkindi á að vera Path Pot að það tekur því varla að tala um það sem raunverulegan möguleika.
This is indeed a disturbing Universe
ps - geta stutt ljóð verið Uni-verse?
Jennifer er mætt til leiks. Þetta er síða sem Sindri bað um að kæmi hér inn. Leyfum henni að hanga í nokkra daga þangað til allir eru komnir með leið.
Svo er einsgott að menn tjútti eins og þeir eigi lífið að leysa því við erum að taka ákveðna áhættu með þessu sneiki. Sko, Renis kemur ekki, Fúsi og Pu ekki, Bjöggi ekki... Við verðum þarna 5 faggar að dissa rauðhærðan fagga fyrir að vera ekki á staðnum. PP - Potentially Pathetic. Því verða menn að vera samstíga í að ná marki fullkominnar geðveiki næstkomandi laugardag.
En reynum nú samt að hegða okkur eins og siðmenntað fólk.....
SkatCat
Air and style mótið er nýbúið. Stefan Gimp vann og fékk að launum nýjan Audi A3 + 50 þaus dull-aur. Einhverjir voru ósattir við þetta og slæduðu á bílnum meðan verið var að reikna stigin. Frekar gróft, maður hefði nú látið nægja að pissa á hann...
Nánar í ljóðablaðinu ADRENALÍNI sem kemur út á næstu dögum.
Hvað ætlar Skabbinn að bjóða uppá í megateiti því er haldið verður...?
13.12.00
...með partýið!
og Sveinn, varðandi "Sjónvarp hvað?" þá var mér tjáð að í "í næsta þætti" hlutanum af síðasta Adrenalín hefðu verið myndir af mér að renna mér í skötuhúsi þannig að ég reikna með skeitmóti í næsta þætti! Allir að horfa á mánudaginn klukkan 20:30 á skjá einum!
SJÁUMST HRESSIR Á LAUGARDAGINN KLUKKAN PARTÝ!!!
Sindri Gore varaforseti Vonlausa veiðifjelagsins hefur ákveðið að hætta baráttu fyrir frestun innflutningpartýsins og fyrirskipað frestunarnefnd sinni að hætta störfum. Að sögn aðstoðarmanns mun Sindra Gore ávarpa Vonlausa Veiðifjelagið í nótt að íslenskum tíma. Tveir háttsettir aðstoðarmenn Sindra Gores hafa staðfest við AP-fréttastofuna að Sindri Gore muni í kvöld viðurkenna ósigur sinn. "Þetta er búið," sagði embættismaður sem ræddi við Sindra Gore í dag. Samkvæmt þessu verður innfluttningspartýið hans SkabbaPabba á LAUGARDAGINN!!
Hvað segiði um laugardaginn frekar? Er það ekki meiri partýdagur? OK, segjum það þá. PARTÝ Á LAUGARDAGINN KLUKKAN PARTÝ!!!!!!
Loksins gerist eitthvað. Ég ætla að koma með sigti og ná hnetunum úr bollunni svo ég geti staðið mína pligt gagnvart Renis. Og við bíðum enn eftir að hann greini frá nánari skilmálum í partýleiknum. Allir sem eru í skóla eru lyddur.
Getur svo einhver reddað vonlausa.com eða .net - ég vil fara að búa til front á síðuna, það eru svo margir farnir að koma inn á hana.
Partí á föstudag (neeeeiiii laugardag)! YEEEEEHHHAAAA!!! Sindrandi bolla (fyllt hnetum) og bjór í boði hússins. Mætið eða verið faggar. Próflestur er sjálfskipaður ræfildómur og er ekki tekinn sem gild afsökun fyrir að mæta ekki.
Ef einhver hefur eitthvað við það að athuga skal hann mæla nú eða halda kjafti að eilífu.
Skarbholio
12.12.00
Vitringurinn er með málamiðlun: Höldum partý báðar helgarnar!
Það verður partý, og Sindri það er bara eins gott að þú látir mig fá bjór fyrir partíið því ég ætla að æla á parkettið og pissa í vaskinn
Mér lángar í partý...og bjór...og innflutning...og allt. Svo verð ég í sjónvarpinu næsta mánudag á Skjá einum klukkan 20:30.
fh. samtakanna innflutningspartý 2000,
Skeitari Dauðans.
Guðirnir munu sjálfir skammta sér í þessu partýi!...og skemmta.
ps. flöskubjór eða stóran kranabjór?
Þú ert aumingi með hor Skarphéðinn!
Ég heiti hér með ókeypis bjór á hvern þann sem ælir í íbúðinni hans Skabba í innflutningspartýinu (klósett og vaskur teljast ekki með).
PS. Hver er munurinn á því að halda það einum mánuði eftir innfluting (15. des) eða 1 1/2 mánuði (í jan)?
Reiði guðanna mun bitna á þeim sem skemmta sér í þessu partýi!
Sko, ég held að við getum allir nema tveir verið sammála um að hinn fullkomni tími fyrir þetta pártý, hvað varðar bæði innflutningstíma og próflok, jól og þess háttar, sé helgina 15 - 17 desember. Ég veit að það er súrt að vera enn í prófum þá en ég skora á hvern þann sem er í hjarta sínu ósammála mér að reyna að halda því fram að það sé betra að halda innflutningspartý 1 1/2 mánuði eftir innflutning heldur en að nýta tækifærið sem býðst núna!
fyrir hönd skyldmenna,
Kári.
Sko, ef halda á partýið á þessu ári verður það að vera um næstu helgi. 22. kemur ekki til greina þannig að við erum að tala um næstu helgi eða um miðjan janúar. Sindri og Bjöggi eru þeir einu sem ég þekki sem eru ennþá í prófum en andskotinn, þið getið nú kíkt við og chillað í smá stund. Hverskonar útilegu ertu að pæla í Sveinn? Ertu búinn að jafna þig í löppinni og tilbúinn í e-ð labb? Segið mér hvað þið eruð að pæla piltar af því að ég er nokkuð heitur fyrir partýi á föstudag eða laugardag.
Skabaróní the flaming penis
11.12.00
...og líka stórt! (22 MB)
Southpark: Episode I
Af því að þetta er svo stórt þá nenni ég ekki að hafa þetta á heimasvæðinu mínu lengur en í nokkra daga. Þ.a. ef þið ætlið að niðurhala þessu þá verðið þið að gera það núna!
...gleðilegt.
Ég var samt að spá Skabbi, næsta helgi er seinasta tækifæri til að fara í útilegu eða skytterí. Eigum við að sóa því í fyllerí?
Hvenær ætlarðu að halda þetta fokkings partý?
Endabúnaður:
Alcatel A1000 Módem fyrir ISDN 24.000 kr.
Alcatel Speed Touch Pro fyrir almennar símalínur 24.000 kr.
Alcatel ISDN/POTS splitter 9.000 kr.
Alcatel POTS splitter 3.000 kr.
Alcatel smásíur 900 kr.
Hægt er að fá módemin á léttkaupum þar sem greiddar eru 7.200 kr. út og
1.500 kr. á mánuði í eitt ár.
Hjá Símanum Internet eru eftirfarandi beinar (routerar) til sölu:
ZyXel Prestige 310 31.990 kr.
ZyXel 642 - ADSL router fyrir almennar símalínur 53.990 kr.
Uppsetning á splitter kostar 6.000 kr. hjá Símanum, en viðskiptavininum er
frjálst að semja við aðra eða sjá um uppsetninguna sjálfir
Allar breytingar kosta 3.000 kr.
Internettengingar: Internetþjónusta er ekki innifalin í verðskrá ADSL
tenginga - viðskiptavinur þarf að hafa samband við sinn
Internetþjónustuaðila til að fá upplýsingar um verð ADSL internetþjónustu.
Fjarvinnutengingar: Auk þess bætist við kostnaður vegna tengingar inn á ATM
net Símans. Fyrir hefðbundnar ADSL tengingar bætist jafnframt við kostnaður
vegna sýndarrásar í BBRas (sjá verðsrká á www.atm.is) og kostnaður vegna
uppsetningar á Radius aðgangsstýriþjón, sem fyrirtækin verða að setja upp
hjá sér.
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Sölu- og markaðssvið
Landssíminn
GSM: 896-7160
Beinn sími: 550-7160
ingibjorggu@simi.is
Fax: 550-7159
10.12.00
Ég skora hér með á Skarphéðin að halda innflutningspartýið þann 22.des
Skarphéðinn, af eða á?
Við komum upp á forsíðu bloggs í hvert skipti sem ég og Sindri (það bloggar enginn annar) setjum eitthvað inn þannig að ég bjó til litla English síðu.
Sindri og kumpánar hans hafa verið að blogga á bakvið oss! Kretíndvegarnir halda úti einhvurjum anal-ríðingavef undir nafninu "rassafélagið er framtíðin" hjá Brynna, hi.is/~brynjolf/framtid. Oss þykir þetta ansi gróft og full mikill sori. Svo á Sekkurinn náttlega að einbeita sér að því sem skiptir máli, að dissa. Og erum vér ekki nægilega góðir til að brjóta brauð með honum?
Svo er lágmark að safna niðurstöðunum frat-tíðarinnar í töflu svo aðrir geti notið góðs af því hvað sekkirnir rusla mikið borð...

Bendi líka á flottar myndir hjá nýjasta meðlimi spjall/diss-vefsins á hi.is/~brynjolf/kungfu. Eini gallinn er að þumalneglurnar eru vitlaust linkaðar svo það þarf að skrifa slóðirnar inn.
9.12.00
Myndir

Svona er Skabbi eftir 4 bjóra ef hann er ekki að borða döner upp úr götunni.
Hvað er að frétta af ykkur duglausu bloggerum? Ég veit að Sissi er að gefa út Adrenalín, en hvaða afsökun hafið þið hinir. Gísli, Eiríkur og Helgi eða Skarphéðin, Kolli og Sírnir, það hefur ekkert heyrst frá ykkur í lengri tíma. Það eru komin 13 blogg síðan einhver annar en ég eða Sissi hafa bloggað.
Hvað með þetta partý, á að sneika mig eða ekki?
8.12.00
...þrátt fyrir ákveðna kosti;
"Jú þetta virkar ágætlega og er miklu öflugra en adsl. Uppitími hefur verið 100% frá því að við fengum þetta, en auðvitað á eftir að koma í ljós hvernig áhrif snjókoma hefur
Grunnkostnaðurinn er router á ca 20.000 og annar stofnkostn á 49000. Mánaðargjaldið er svo 18000. Þetta er peningur, en í okkar samhengi er þetta ekki stór tala."
Þú færð betri tengingu fyrir minni pening hjá linu.net, og auk þess er hún þráðlaus.
Jæja Kobbi, nú er tækifærið... Verðlækkun á ADSL.
Eru menn súrir?
7.12.00

Vér fögnum því að íslenzki er kominn upp aftur. Sérstaklega vil ég taka fram að Chloe hefur fegrað líf mitt til muna. Einnig er rétt að taka fram að ég öfunda Skabba og Kobba sem sitja núna og sötra öl á knæpu. Meðfylgjandi er mynd af Skabba.
...er kominn aftur í gagnið, þótt þunnskipaður sé.
(fokking bloggerinn fríkaði út og birti þessa færslu þrisvar sinnum í einu, jæja búinn að laga það)
Glætan að við förum ekki á fyllerí bara af því að Renis er í prófum. Tölurnar segja sitt, tæp 64% vilja sneika. Nema þið viljið kæra niðurstöðurnar...
Svo á hann það líka skilið fyrir þessa Kornikovu blekkingu. Núna er ég með tippi í tölvunni minni. Og finn ekki forritið í taskman. Urrrrr.
Myndin af Móða er drepfyndin.
Eru Fabian prumpurass og Kobbi Kretíndvergur no. 1 hættir að rita á þennan virðulega vef? En Gírnir og Línuskautari dauðans?
Skabbi mér finnst að þú ættir að halda innflutningspartýið föstudaginn 22. des. Hvað segja menn um það? Fínt að vera þunnur á Þorlák.
Anna Kournikova
Þetta er bara of fyndið!

Hér er stærri mynd.
Komið nýtt style sheet fyrir leiðarkerfið, mér finnst það miklu flottara. Líka komnar ansi góðar skotleiðbeiningar með myndum, tilvalið fyrir lélega veiðimenn.
5.12.00
Hver er annars þessi Sindri?
Skabbi - eigum við að fara í jeppaferð um þarnæstu helgi inn í Landmannalaugar? Hugsanlega hægt að taka hólk/bretti með...
Af góðmennsku minni bjó ég til könnun handa vonleysingjum, þrátt fyrir að verið sé að tala um að svína á mér.
Mér heyrist svona á öllu að stemming fyrir veiðiferð á næstunni sé e-ð að dala og á ég þá sérstaklega við Kvisthaga-kriplinginn Svennson. Hann er víst enn með kryppu og klumpfót og verður því rúmfastur e-ð áfram. Giggús er á leið í bæinn með hólkinn mundaðann, tilbúinn á veiðar.
Að öðru, hvenær á ég að halda innfluttningsprattýið? Ég var svona helst að velta 16. des fyrir mér en til þess að svo geti orðið þarf að sneika Sindrar. Mér finnst það nú bara vera fín hugmynd að kosningu fyrir strákinn: Á að svína á Sindrar (og aðra sem eru í prófum) eða fresta gillinu fram yfir jól og áramót?
4.12.00

Nú getið þið hætt að vera vinir mínir; "Sissi og Auður voru að djamma á Skugga á föstudaginn..." Vantar bara að maður hafi verið með Fjölni eða eitthvað álíka gay. Hvernær verður partýið hjá Skabba? Spurning um að bjóða Séð og Heyrt? Sindri er búinn að lofa að stela einhverju.
"Skjóttu mig!"
Tveir tvítugir menn í Kanada eiga yfir höfði sér að hljóta fimm ára bann við meðhöndlun skotvopna eftir atvik á föstudag sem lögreglumönnum þykir í meira lagi undarlegt.
Þetta upphófst allt með því að annar mannanna kom með skothelt vesti, líkt þeim sem hermenn nota, á heimili þeirra kumpána í Swan River í Manitoba. Hann bað sambýling sinn að skjóta sig í brjóstsið með 22 kalibera riffli.
Þegar það hafði verið gert, og hann varð ánægður með að hafa ekki orðið fyrir meiðslum, bað hann vin sinn að skjóta sig í bakið.
Í þetta sinn ákváðu félagarnir að setja símaskrá undir vestið til að gera það eilítið öruggara.
Símaskráin tók skotið að mestu en engu að síður varð rifbeinsbrotnaði skotmarkið og hlaut skrámur.
?Stærsta spurningin í þessu er "Hvers vegna" og það er mjög erfitt að finna rökrétta skýringu á því," segir Steve Saunders, lögreglumaður í Winnipeg.
Lögregla mun ekki kæra mennina en lögreglan mun hugsanlega svipta þá leyfi til að meðhöndla skotvopn næstu fimm árin.
Þetta er slóðin. Ég er búinn að skrá mig fyrir: www.mcrenis.com, www.sindrir.com og www.sekkur.com.
Að auki skráði ég www.bumban.com fyrir körfuboltan. Hinsvegar þá er bara sindrir.com sem virkar eins og stendur.
En samt - sekkur.com er laust og þú tókst það ekki... Hvar náðirðu annars í þetta?
Ég vil benda ykkur á nýja og stórskemmtilega slóð:
PS. Ég vil hvetja alla aðra en mig til að blogga, I'm getting lonely here!
1.12.00
Nú er komin ný könnun og hvet ég alla til að kjósa.
Vil benda mönnum á að linka á svona efni, þ.e. hafa það á annarri síðu en aðalsíðunni. Málið er að ég og Skabbs þurfum að geta skoðað í vinnunni án þess að greddu-dvergar poppi upp. Annars er þetta mjög vinsælt efni hjá okkur, bara að það standi helst bakvið link.
Skoða eldri færslur >>

