31.8.01

MAMMA YKKAR ER ÞROSKI!
::The Satan of Death skeit klukkan 15:16 31.8.01 ::

30.8.01

McRenis != KÍB
Ég neita að vera titlaður sem KÍB í veiðisögunni og krefst þess að þetta verði lagað hið snarasta!
::KÍB skeit klukkan 17:33 30.8.01 ::

Elsku drengirnir mínir
Ég fyrirgef ykkur alla vitleysuna og óvildina því ég veit að hið illa hefur taumhald á ykkur. Reynið samt að láta ekki illskuna ná yfirhöndinni. Í hjálparviðleitni minni ákvað ég að gleðja ykkur með spánýrri veiðisögusíðu og nýjum fellivallista að auki. Gaman væri nú að þið nýttuð orku ykkar til góðs og skrifuðuð fleiri skemmtilegar ferðasögur og senduð til mín og skal glaður setja þær inn á vefinn og benda á þær í fellivallistanum. Sögur af veiðiferðum fá að auki krækjur inn á síðunni góðu.
Með gleði og frið í hjarta,
Kári.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 16:51 ::

Til Hamingju Vonleysingjar til Sjávar og Sveita!

Stofnuð hefur verið ný deild innan Vonlausa Veiðifjelagsins til að mæta brýnni þörf á afþreyingu fyrir nokkra meðlimi. Þeir meðlimir sem ekki stunda skotveiðar í íslenskri náttúru hefir þótt starfsemi félagsins ekki við sitt hæfi upp á síðkastið. Til að bæta úr þessu hefir verið stofnuð ný deild, Reytingadeild Vonlausa Veiðifjelagsins, sem samanstendur af þeim félögum Kára "Skeinara" Halldórssyni og Hallgrími "Þroska" Einarssyni. Nú geta þeir kumpánar gert sér glaðan dag eftir vel heppnaðar veiðiferðir okkar hinna, spjallað um landsins gagn og nauðsynjar á með þeir hamast við að reyta gæsir og endur eða reyta hamina af rjúpum og svartfogli.

Við hinir óskum Kára og Hallgrími innilega til hamingju!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:55 ::

Hallgrímur Þroski Einarsson
Vonlausi vefurinn hefur löngum verið kjörinn vetvangur heilbrigðra skoðanaskipta meðlima Vonlausa Veiðifélagsins og vina þeirra. Nú er hins vegar svo að einn meðlimur hefur verið að reyna eyðileggja þann góða anda sem ríkt hefur hérna í skjóli þess að hann sé ekki svo barnalegur að hann taki þátt í þessu. Nú er ég að tala um Hallgrím Þroska Einarsson öðru nafni Sírnir Fullorðni. Við skulum samt ekki leyfa honum að komast upp með þessa einangrunarstefnu sína og halda ótrauðir áfram í viðleitni okkar til þess að gera þennan vef sem skemmtilegastan og legg ég því til að Hallgrímur Þroski fái hér með formlega áminningu fyrir niðurrífsstarf.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:52 ::

29.8.01

Sírnir er hökurassi
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:34 29.8.01 ::

Ég held að skeinarinn sé algjörlega óhæfur vefstjóri. Hann er einungis með valdahroka og skæting. Þar að auki er það í lögum að sósublettur maximus megi ekki vera í ábyrgðarstöðu.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:48 ::

Fyrst Skeinarinn er búinn að fá því framgengt að vera titlaður vefstjóru á þessu heimili skal hann drullast til að setja veiðisögurnar á þar til gerða síðu á vebbnum í staðinn fyrir að svara bara með skætingi.

Heyriru það, spassinn þinn!!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:00 ::

28.8.01

Ætli þeir bræður Örn og Gunnlaugur Claessen hafi ekki útkljáð málið yfir kaffibolla og snúðum.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:25 28.8.01 ::

Réttlætið mun ná fram að ganga!
Héraðsdómari taki Hvalnessmálið til efnismeðferðar
Hæstiréttur felldi í gær úr gildi frávísunarúrskurð Héraðsdóms Austurlands frá 27. júlí sl., þar sem vísað var frá dómi máli sýslumannsins á Höfn í Hornafirði gegn fjórum mönnum sem ákærðir eru fyrir stórfelld skemmdarverk á bænum Hvalnesi í Lóni. Sýslumaður kærði úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar, sem felldi úrskurðinn úr gildi og lagði jafnframt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Einn hinna ákærðu hefur einnig verið ákærður fyrir að hafa brotist inn í bæinn í janúar sl. og kveikt í húsinu. Tjón vegna þessa er metið á tæplega 20 milljónir króna. Skemmdarverkin voru unnin um ári fyrr og var tjón vegna þeirra metið á 1,6 milljónir króna.

Héraðsdómur vísaði máli sýslumanns frá dómi m.a. á þeim forsendum að ekki væri unnt að kveða upp dóm vegna ágalla á ákærunni. Taldi héraðsdómur ákæruna ekki nægilega glögga til að fullnægja kröfum um meðferð opinberra mála og að hún bryti jafnframt í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð fyrir dómi.

Nægilega greint frá efnisatriðum
Þá fann héraðsdómur að því að ekki lægi fyrir mat á þeim munum sem skemmdust og að vátryggingafélagið hefði ekki lagt fram kvittanir fyrir því að tjónið hefði verið greitt. Hæstiréttur taldi aftur á móti að í ákærunni væri nægilega greint frá þeim efnisatriðum sem áskilin væru í 116. gr. laga nr.19/1991. Á þessu stigi málsins væru ekki að öðru leyti annmarkar á reifun þess af hendi ákæruvaldsins sem gæfu tilefni til að vísa málinu frá dómi.

Dóminn kváðu upp hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.
::KÍB skeit klukkan 08:49 ::

27.8.01

Skilmerkileg og ítarleg veiðisaga hjá þér, minn kæri herra Sindri.

Best að ég bæti örlítið upp á það sem vantar, aðallega það sm gerðist í morgunfluginu hjá okkur Giggsa (a.k.a the kike team).
Eftir að við höfðum komið okkur fyrir utaní barði við fallegan grasbala fóru að heyrast skothvellir frá hinu krúinu (a.k.a the dyke team). Eins og sannir vinir hugsuðum við þeim þegjandi þörfina. Skömu seinna fóru gæsirnar í okkar lofthelgi að láta á sér kræla en sökum títtnefndrar Þoku dauðans sáum við ekkert. Ekki leið þó á löngu þar til fyrsti fuglinn gerði vart við sig, stealth njósnari sem skaust yfir barðið á mach3 og og hvarf jafnhljóðlaust og hann birtist út í þokuna án þess að við Giggús gætum svo mikið sem lyft byssunum. Ekki þurftum við að bíða lengi eftir næsta fugli en það var stakur fugl sem setti sig niður við árbakkann í ca. 50 metra færi og spígsporaði þar um sallarólegur. Giggús varð alls óvar við fuglinn þegar hann settist en ég var að búa mig undir að fikra mig í skotstöðu og fella þennann hrekkleysingja. Það sem vildi honum til lífs var að hópur 6 gæsa kom fljúgandi yfir ána í áttina til okkar í þann mund sem ég ætlaði af stað. Þær komu í fínt skotfæri við okkur og við tæmdum byssurnar á þær. Giggús var skotstjóri en brást e-ð bogalistin því öll hans skot geyguðu. Ég aftur á móti felldi fugl í fyrsta skotinu og er ansi hræddur um að ég hafi sett nokkur högl í anna fugl í skotunum 2 sem fylgdu. Við ráfuðum sv umm í þokunn til að reyna að finna særða fuglinn en það var eins og að leyta að nál í heysátu enda vonlaust að segja til um í hvernig ásigkomulagi fuglinn var. En allavega við komum okkur fyrir í barðinu, súrir með að hafa sært fugl og misst en Guðnu þó talsvet súrri með sinn veiðiskap.
Eftir þetta flug vorum við báðir komnir með njálg og ákváðum að fá okkur smá labbitúr meðfram ánni. Eftir smá labb kemur fljúgandi til okkar gæsafjölskylda í ákjósanlegast skotfæri sem ég hefi lent í. Í þetta sinn skiptum við Guðni um hlutverk, ég var kretíndvergurinn sem dúndraði öllum mínum skotum út í loftið en Guðni felldi fugl í fyrsta skoti. Í kjölfarið fékk svo Guðni kennslustund í því hvernig EKKI skal aflífa særða gæs. Án þess að ég vilji vera með nein smáatriði hefir Giggús nú hlotið indíánanafnið Trampandi Skúnkur.
Eftir þetta gátum við báðir verið sáttir með að hafa fengið fugl en súrir mð okkar framistöðu að öðru leyti. Héldum því til baka í basecamp með fenginn og skáluðum fyrir sjálfum okkur og frábærri ferð.

Í alla staði snilldarferð þó svo að skytturnar hefðu mátt vera ögn markvissari.

LIFI VONLAUSA VEIÐIFJELAGIÐ OG SKEMMTILEGUSTU VEIÐIFERÐIR Í HEIMI!!!!!

Labels:

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:26 27.8.01 ::

SNILLD!
Eina orðið sem mér dettur í hug til að lýsa nýafstaðinni veiðiferð er SNILLD!
Það er ekki vegna þess að veðrið hafi verið geðveikt gott. Það er ekki vegna þess að við höfum veitt ógeðslega mikið af gæsum. Þessi ferð var SNILLD! vegna útiverunnar og félagsskaparinns.
Ferðin byrjaði snemma um eftirmiðdaginn á föstudaginn. Við hættum snemma í vinnunni til þess að geta náð kvöldfluginu um kvöldið. Vorum að rúlla út úr Mosfellsdalnum (þetta er ekki fokkíng bær) rétt fyrir kl. fjögur, áttum reyndar eftir að versla. Stoppuðum við því í KB (ekki KÍB) og hófumst handa við að versla. Þetta reyndist léttara verk en oft áður því MatarFasistinn (a.k.a. Skabbi) sat á sér og ég og Kolli höfðum nánast frjálsar hendur við innkaupin. Fasisminn braust reyndar fram þegar Skabbi gjörsamlega strækaði á súkkulaði-hrískökuna sem mér og Kolla hafði tekist að lauma í matarkörfuna. Áfram hélt ferðin og næsta stopp var á Brú. Þar vorum við búnir að ákveða að fá okkur hammara. En sökum þess að við vorum orðnir tæpir á tíma og að Elliheimilið Grund hafði ákveðið að fara með vistmenn í mat á Brú, þá létum við samlokur duga. Þriðja stoppið var svo á Blönduósi þar sem ég hljóp inn og keypti kol, þau gleymdust í KB. Þrátt fyrir þrjú stopp á leiðinni tókst okkur að gleyma að fylla vatnsbrúsan og vorum við því vatnslausir.
Þegar við vorum komnir upp á heiði dembdist þoka dauðans yfir okkur og skyggnið ekki nema 20 metrar. Fundum samt Giggús (sem kom að norðan) og slóðan að veiðilöndunum. Vorum við komnir á staðinn rétt rúmlega átta og skelltum okkur beint í gallann og drifum okkur út. Ákveðið var að skipta liði, ég og Skabbi vorum Camo-gengið en Giggús og Kolli voru Vöðlons. Vöðlons fóru í barðið hjá vatninu, staður sem þekkt er fyrir veiðileysi, en Camos fóru og földu sig bak við steina hjá litlum polli. Til að gera langa sögu stutta þá heyrðu báðir hópar í fullt af gæs en hvorugur sá neitt vegna þoka dauðans. Þar sem ekkert var að gerast þá drifu Camos í því að tjalda en Vöðlons sátu eitthvað lengur við (væntanlega til að þurfa ekki að tjalda). Þegar við vorum búnir að tjalda Marmot-höllinni og WBOS-tjaldinu, þá var gúffað og síðan farið í háttinn, enda ræs eftir rúma 3 tíma.
Guðni ræsti í morgunflugið og við drifum okkur út eftir að hafa downloadað smá skyr.is. Ákveðið var að skipta liðunum þ.a. einn vöðlon og einn camo voru í hvoru liði. Ég og Kolli ætluðum út að vatninu, en Skabbi og Giggús ætluðu með gervigæsirnar niður að lækknum. Ég og Kolli röltum af stað og fljótlega fengum við flug, tveir njósnarar flugu yfir okkur. Kolli ætlaði að skjóta á þá en hann hafði gleymt að cocka skot í hlaupið og því gerðist ekkert þegar hann tók í gikkinn. Eftir þessi hjákátlegu mistök héldum við áfram göngunni. Aftur komu tvær gæsir, skutum við báðir en hittum ekkert (væntanlega vegna stífra skotæfinga undanfarið). Áfram hélt gangan sem var farinn að verða mun lengri en ég hélt. Enn fengum við njósnara, hann var einn í þetta skiptið. Við skutum á hann en áttum aldrei séns enda njósnarinn í skotheldri brynju (það var allavega niðurstaða míns og Kolla). Löbbuðum áfram og sáum tvær gæsir ég skaut fyrst og lá hún í fyrsta skoti. Kolli skaut líka en særði hina gæsina þ.a. hann þurfti að hlaupa á eftir henni. Það var stutt hlaup og gæsin lá dauð stuttu seinna. Nú var gangan orðin svo löng að við ákváðum að taka upp GPS-tækið til að átta okkur á stöðunni. Við fundum út að við höfðum labbað allt of langt til hægri þ.a. við ákváðum að taka vinstri beygju, það eina sem við gleymdum að taka með í reikninginn var að meðan við vorum að skoða GPS-tækið höfðum við snúið okkur í 180°, þ.a við fórum ennþá lengra til hægri! Löbbuðum aðeins lengur og fundum Twilight-Zone vatnið! Eftir að hafa labbað eftir því í dágóða stund og ráðfært okkur við GPS-tækið þá ákváðum við að halda aftur að bílnum enda nánast orðið bjart. Fengum okkur aðeins í svanginn þegar við komum aftur en fórum síðan beint að sofa. Skabbi og Giggús komu þó nokkuð á eftir okkur og merkilegt nokk þá höfðu þeir líka fengið eina gæs á kjaft. Strákarnir skáluðu í ónefndum miði og síðan var sofið til hádegis og rúmlega það.
Þegar við vöknuðum aftur var þoka dauðans farið að létta. Við ákváðum að fara í Recon leiðangur og skoða aðeins nánasta umhverfi. Fátt markvert gerðist á leiðinni. Við gengum þó fram á rollu sem var að niðurlotum kominn. Eftir ráðleggingar frá líffræðingnum í hópnum þá reistum við hana við og komum henni í grasbala þ.a. hún hefði eitthvað að bíta. Allir vorum við þó svartsýnir á að hún lifði af. Ég ákvað að halda heim á leið og setja kolinn í gang en strákarnir ákváðu að rannsaka meira. Á leiðinni að bílnum fældi ég upp tugi gæsa og meira segja 11 rjúpur, þær fengu allar að lifa enda greinilega búnar að kíkja á dagatalið og voru því ekkert stressaðar. Strákarnir gengu fram á aðra rollu, í þetta skiptið var hún aldauð. Einnig fundu þeir gjöful gæsalönd sem ákveðið var að nýta í framtíðinni.
Eftir að hafa grillað, SNILLDAR kótur og með því, fóru fram sértækar björgunaraðgerðir til að bjarga WBOS tjaldinu frá bráðum bana. Guðni lagði bílnum sínum alveg uppvið tjaldið og myndaði þannig nóg skjól til að tjaldið tórði. Eftir þessar björgunaraðgerðir héldum við af stað.
Við ákváðum að fara allir á morgunflugsstaðinn Guðna og Skabba. Vöðlons voru í felum hjá gervigæsunum en ég og Skabbi fórum aðeins lengra niður með læknum og komum okkur fyrir þar. Fljótlega kom þoka dauðans og uppúr því fórum við að heyra í gæsum. Allt í einu komu þrjár fljúgandi yfir læknumm, ég og Skabbi biðum eftir að þær voru komnar í færi, skutum á þær en ekkert gerðist. Stuttu seinna heyrum við skothvelli hjá Vöðlons, allt í einu lít ég upp og sé að gæsirnar þrjár höfðu eitthvað fælst við skothvellina hjá Vöðlons og ákveðið að snúa við og fljúga beint yfir mig og Skabba. "Skabbi það eru þrjár gæsir að fljúga yfir okkur!" segi ég og skýt eina sem dettur niður steindauð í fyrsta skoti. Skabbi stekkur til og miðar en gleymir að taka öryggið af byssunni og ekkert gerist. Ekkert meira gerist og við löbbum fljótlega til Kolla og Guðna. Þar kemur í ljós að Kolli hafði skotið gæs en heldur að hann hafi týnt henni. Guðni skaut líka eina. Seinna komust þeir að þeirri niðurstöðu að Guðni hefði skotið gæsina sem Kolli hafði sært og týnt. Drifum okkur upp í bíl og fengum okkur kakó og stroh og síðan beint í háttinn.
Guðni ræsir okkur út í morgunflugið kl. hálf sex (tveimur tímum eftir planað ræs!). Enginn nennti út nema Veiðifasistinn (a.k.a. Guðni), enda orðið allt of bjart. Giggús rölti niður að gervigæsunum og varð heldur betur hissa, því þær höfðu fjölgað sér. Þegar hann reynir að nálgast þær þá höfðu sumar gervigæsirnar lært að fljúga og flugu þær af stað. Veiðifasistinn kom því aftur tómhentur en við vorum allir frekar súrir (samt aðallega Skabbi) enda hefðum við drullast á lappir á réttum tíma, þá hefðum við fengið flug.
Sváfum vært til ellefu en drulluðum okkur þá á lappir, fengum okkur að borða og brunuðum í bæinn.
Þetta var SNILLDAR ferð!
(og þetta hefði verið snilldar helgi ef helvítis hollendingurinn hefði skorað úr helvítis vítinu!)

Labels: ,

::KÍB skeit klukkan 11:45 ::

24.8.01

guy rule nr.21

The morning after you and a babe who was formerly "just a friend" have
carnal drunken monkey s*x, the fact that you're feeling weird and guilty is
no reason not to nail her again before the discussion about what a big
mistake it was.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:47 24.8.01 ::

KÍB??

Vonlausa gæsaferðin hefst á eftir and spirits are high!!!

Ég spái því að Sindri sofi yfir sig á morgunflugið og Kolli fái niðurgang.

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:47 ::

GBH ??
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 10:33 ::

Gæs
Loksins, loksins er gæsin byrjuð. Ég heiti því að ef ég veiði enga gæs um helgina þá ét ég hattinn hans Skabba.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:02 ::

23.8.01

Hann á afmæli í dag...
logger er tveggja ára í dag! Hipp, hipp, Húrrey
::KÍB skeit klukkan 16:40 23.8.01 ::

Sýslumaður dauðans
Er þessi sýslumaður einhver freðýsa?
Hvað er hann að spá? Fyrst þá finnst honum ekki ástæða til að gera neitt í málunum, enda var þetta allt óvart, síðan klúðrar hann ákærunni!
::KÍB skeit klukkan 13:39 ::

Gott að sjá að kerfið virkar.

Ákæru um skemmdarverk í Hvalnesi vísað frá dómi
Fyrir skömmu vísaði Héraðsdómur Austurlands frá ákæru sýslumannsins á Höfn í Hornafirði á hendur tveimur mönnum sem sakaðir eru um stórfelld skemmdarverk að bænum Hvalnesi í Lóni. Slíkir ágallar þóttu á ákærunni að ekki væri hægt að kveða upp dóm í málinu. Sýslumaður hefur kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.
Annar mannanna sem sýslumaður ákærði fyrir skemmdarverk hefur einnig verið ákærður fyrir að hafa í byrjun janúar sl. brotist inn í bæinn og kveikt í húsinu. Tjón vegna þessa er metið á tæplega 20 milljónir. Skemmdarverkin voru unnin um ári fyrr og var tjón vegna þeirra metið á um 1,6 milljónir króna.

Verjendur mannanna, hæstaréttarlögmennirnir Örn Clausen og Sveinn Andri Sveinsson, héldu því fram að ákæran væri svo gölluð að vísa bæri málinu frá dómi. Þessu neitaði sýslumaður og vísaði til rannsóknargagna máli sínu til stuðnings.

Í dómnum segir m.a. að lýsing brota þeirra sé ónákvæm og í engu samræmi við það sem kom fram við lögreglurannsókn. "Verður að telja það verulegan ágalla á ákæru að þar sé ekki með skýrum og ótvíræðum hætti greint frá því hver brot hver og einn ákærða er ákærður fyrir enda þótt rannsóknargögn málsins gefi tilefni til þess að greina með nokkurri nákvæmni þátt hvers þeirra um sig í brotunum," segir enn fremur í dómnum.


Ákæra ekki nægilega glögg
Ákæran væri ekki nægilega glögg til að fullnægja kröfum um meðferð opinberra mála og bryti jafnframt í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð fyrir dómi.
Þá var fundið að því að ekki lægi fyrir mat á þeim munum sem skemmdust og að vátryggingafélagið hefði ekki lagt fram kvittanir fyrir því að tjónið hefði verið greitt. Skaðabótakrafan væri því vanreifuð.

Logi Guðbrandsson dómstjóri vísaði því málinu frá dómi. Málskostnaður verjendanna, 80.000 krónur, verður greiddur úr ríkissjóði.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:47 ::

Sírnir er geðveik belja með vonda mjólk.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:59 ::

Giggús Sparkar í rassa....

Mannekla og mikið álag helstu orsakir biðarinnar
Afgreiðsla á skotvopnaleyfum tekur nú um það bil viku vegna mikils álags og manneklu vegna sumarleyfa, að sögn Skarphéðins Njálssonar, varðstjóra í leyfadeild lögreglunnar í Reykjavík.

"Við höfum verið að reyna að afgreiða þetta á viku eða innan við viku," sagði hann.
Morgunblaðið hafði samband við lögreglu þar sem því hafði borist til eyrna að ekki væri hægt að fá skotvopnaleyfi afgreidd vegna bilana í tölvukerfi. Skarphéðinn sagði ekkert slíkt vera að nú, reyndar hefðu öðru hvoru komið upp vandkvæði en reynt hefði verið að leysa þau eftir föngum. "Það má segja að þetta séu oft á tíðum fæðingarörðugleikar," sagði hann en nýtt tölvuvætt skráningarkerfi var tekið í notkun í desember 1999. Það hefur það í för með sér að allar upplýsingar um skotvopnaeign eru til staðar hjá ríkislögreglustjóra og þar geta öll lögregluembætti á landinu nálgast upplýsingarnar fljótt og örugglega. Auk þess hefur hvert embætti sína eigin skrá. Áður var það svo, að sögn Skarphéðins, að menn þurftu að hringjast á til að afla upplýsinga um skotvopn og þá hafi oft verið óvissa varðandi ýmis atriði.

Skarphéðinn sagði að afar mikið álag væri í skotvopnadeildinni, t.d. vegna skotvopnanámskeiða, sem lögreglan heldur, en ekki síst vegna vinnu við að afla upplýsinga en margir gefa ekki upp nauðsynlegar upplýsingar, t.d. um eigendaskipti skotvopna, og þá þarf lögreglan að rekja það og fá staðfestingu á því hver eigi tiltekið skotvopn. "Það fer rosalega mikil vinna í þetta og ekki hvað síst þegar breytt er í svona nýtt kerfi. Þá þarf að uppfæra allt af gömlu kerfunum [frá] öllum embættunum og samræma þetta," sagði Skarphéðinn.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:34 ::

22.8.01

Ég er allavega ekki Óli Grís.
::KÍB skeit klukkan 15:32 22.8.01 ::

Þú getur þó ekki haldið því fram að þú sért einhver happagrís.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:26 ::

Bull og Vitleysa
Ég er búinn að fara á alla leikina nema leikina á móti ÍBV (heima og úti). Báðir leikirnir sem ég sleppti töpuðust þ.a. þessi (ó)rök falla um sig sjálf. Auk þess mætti ég á flest alla leikina í fyrra og töpuðust þeir fæstir!
Ef þú hefur þig ekki hægan þá sendi ég Móða Varðstjóra til að handtaka þig! Hann er sko ekki þekktur fyrir nein vettlingatök.
::KÍB skeit klukkan 15:21 ::

Sindri er óheillakráka
Ég veit afhverju KR hefur gengið svona illa í sumar. Alltaf þegar Sindri fer á völlinn þá tapa þeir. Þessvegna legg ég til að hann horfi á leikinn á svölunum hjá Skabba í kvöld.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:13 ::

Allir eru hommar nema ég
Hver vill fara upp á heiði þegar hann getur grandað gæsum inni í hlýjunni(sjá ofan)?
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 12:39 ::

21.8.01

Allir eru hommar nema þeir sem eru í Vonlausa Veiðifjelaginu.
Hver ætlar að koma með upp á heiði næstu helgi að granda gæsum?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:25 21.8.01 ::

Hæ Hæ nú getið þið æft ykkur í vinnuni smellið á gæsina ef þið hittið!
::The Satan of Death skeit klukkan 14:21 ::

Ég þori því ekki, það eru svo margir marbendlar þar líka og þeir hlæja bara að mér.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:17 ::

farðu þá niður í fjöru og gerðu tilraun
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:06 ::

Það er fullt af marglyttum í fjörunni hérna.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:53 ::

Hef það fyrir satt að Sírnir prumpar eins og hommi afþví að það eru svo margir gaurar búnir að putta hann.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:30 ::

Ég hef það fyrir satt að Kolli prumpar brauði
::The Satan of Death skeit klukkan 13:08 ::

Ég prumpa alltaf eins og trompet á morgnana. Þá er ræs.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 11:52 ::

Líka ef maður borðar penna...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:32 ::

Ef maður drekkur mikið kaffi þá prumpar maður mikið.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:22 ::

Sumir djamma til að skemmta sér...
aðrir djamma til að taka myndir!
::KÍB skeit klukkan 10:31 ::

20.8.01

and the beat goes on....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 17:01 20.8.01 ::

Spegill!
Vissulega var ég einn af hvatamönnum þessarar veiðiferðar en það var ávalt ljóst að ég myndi ekki fara nema ef lagt yrði snemma af stað. Ég vaknaði snemma en það sama verður ekki sagt um aðra meðlimi, það að leggja af stað í veiðiferð eftir hádegi er dauðasynd! Þ.a.l. þurfti ég að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Ég fylgdi mínum mönnum til votrar grafar á útnára Reykjanesskaga og er stoltur af því.
::KÍB skeit klukkan 16:52 ::

PS - hver er þessi Sævar?
::Hívatha litli skeit klukkan 16:20 ::

Bjálkinn og flísin
Ég leyfi mér að benda á að samkvæmt reglugerð þeirri er Skarphéðinn sjálfur tók þátt í að smíða hefur Daníel Atli meiri rétt til að blogga en bróðir Skarphéðins.

Þá rennir mig í grun að eina ástæðan fyrir því að Skarphéðinn tekur réttmætri gagnrýni Kolbeins á skrif Skötunnar svona illa er að Skatan gegnir hlutverki tzjéllingar Skarphéðins á þessum vef, þ.e. ræðst á alla með offorsi sem taka þátt í eðlilegum samskiptum við þann mæta dreng Skarphéðinn. Ver hann með kjafti og klóm, ber fyrir neðan beltisstað.

Mér finnst Skarphéðinn vera meiri maður en svo að hann þurfi að láta litla bróður sinn verja sig í sífellu.

Með vinarþeli...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:17 ::

Veiðiferð helgarinnar fór fram í mesta bróðerni. Ég get ekki séð hvernig skrif mín núna undanfarið tengjast henni á neinn hátt. Skabbi hefur greinilega misskilið eitthvað og mér finst það mjög leitt ef hann er eitthvað orðinn fúll.

Það sem ég hef verið að benda á er óvægin gagnrýni á fjelagsmenn ef þeir fara ekki í allar veiðiferðir. Ég er alls ekki að taka upp hanskan fyrir Svenna og Sindra heldur einungis að reyna svara þeirri skítaholskeflu sem hefur dunið á mér undanfarnar vikur vegna þess að ég hef ekkert komist/nennt í veiðiferðir. Ef fjelagsmaður kemst ekki í ferð af einhverri ástæðu, hvort sem það er vegna anna eða nennuleysi þá er það allt í lagi. Það er minn oddur í þessu máli. Ég viðurkenni að ég hef kryddað það með ýmsum fúkyrðum en það er nú bara þannig sem málefnaleg umræða fer fram hérna á vefnum.

Í sambandi við Kára þá finnst mér bara mjög gaman að hann skuli skrifa og lífga upp á umræður hérna, en þá verður hann líka að gera sér grein fyrir að hann fær svar til baka í sömu mynt. Ég held líka að hann geri sér fyllilega grein fyrir því og óþarft er að Skabbi sé að taka upp hanskan fyrir hann og ég held að hann kæri sig ekkert um það. Kommentin mín um að hann fari ekki í veiðiferðir voru ekki þess eðlis að þau ætti að taka alvarlega og ef einhver hefur gert það þá so be it. Ég er ekki að gráta mig í svefn þótt ég sé kallaður hinum ýmsu nöfnum heldur reyni ég bara að svara fyrir af bestu getu.

Kolbeinn Guðmundsson,
sjónvarpskló og sófaguð.

Labels:

::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:15 ::

Og ég sem hélt að veiðiferð helgarinnar hefði farið fram í mesta bróðerni....

Svo virðist sem e-r bæld reiði hafi brotist út í Kolbeini félaga okkar í kjölfar veiðiferðar helgarinnar. Í stað þess að gefa okkur greinagóða lýsingu á sinni fyrstu veiðiferð í sumar kýs hann að ráðast að okkur bræðrum með skít og skömm, gersamlega uppúr eins manns hljóði. Ásakanir mínar um leti og veiðileysi það sem af er sumars hrakti hann í ferðinni með því að rífa sig upp og draga bein úr Meðalfellsvatni og á hann heiður skilið fyrir vikið. En að það skuli gefa honum rétt til að garra með offorsi og gassagangi á aðra meðlimi VV get ég ekki samþykkt.
Vissulega má það til sanns vegar færa að Kolbeinn sé vinur litla mannsins þar sem honum virðist umhugað að taka upp hanskann fyrir Sindra og Svenna sem ekki mættu í fjölskylduferðina og fengu að launum skömm í hattinn, frá mér, enda ekkert óeðlilegt í ljósi þess að Sindri var einn af hvatamönnu ferðarinn en eyddi deginum í staðin fyrir framan playstation í GT3.

Ég sé að skrif Kára á vefinn eru farinn að ýfa upp fjaðrir á hverjum meðlimnum á fætur öðrum. Þess vegna legg ég til að þeir sem ítrekað veitast að honum í skrifum sínum fyrir að vera ekki veiðimaður geri betur grein fyrir skrifum sínum. Er það staðreynd málsins að verið sé að gera Kára útlægan af Vonlausa Vebbnum á þeim fosendum að hann mundi aldrei byssu og bleyti aldrei færi? Eða á bara að banna honum að ger gys að fullgildum meðlimum?

Með von um skjótfengin viðbrögð

Skarphéðinn Halldórsson,
aflakló og alguð

Labels:

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:30 ::

Af mikilmennskubrjálæði Skabba og minnimáttarkennd Kára
Þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar mínar um að ekki ætti að taka mark á WGOS bræðrum þá get ég ekki setið kyrr á meðan þeir vaða hér uppi með alls konar yfirgang og skít.
Hverskonar fasistafélag heldur Skabbi eiginlega að Vonlausa Veiðifjelagið sé? Er það einhver heilög skylda að fara í allar ferðir sem Skabbi fer í, annars er maður aumingi og fær holskeflu af drullu yfir sig frá honum. Því miður er það þannig að aðrir meðlimir fjelagsins hafa öðrum skyldum að gegna og þar að auki hafa kanski ekki allir áhuga á að gera nákvæmlega það sem hans hátign Gabbhéðinn vill gera. Fyrst rausar hann um að han sé sá eini sem borðar veiðina, síðan heldur hann því fram að hann sé mesta aflaklóin, síðan fer hann að kasta skít á alla sem gera ekki nákvæmlega eins og hann. Og eftir allt þetta þá kennir hann öðrum um að vera að stofna til illinda. Þar að auki skil ég ekki hvernig hann getur sætt sig við að Kári skrifi inn á vefinn, því samkvæmt Skabba lögmálum er Kári lang mesti sekkurinn.
Kári er hins vegar með alvarlega minnimáttarkennd sem brýst fram öðru hverju í skrifum hans hér á þessum annars málefnalega vef. Þar sem hann kann ekki að veiða þá getur hann ekki tekið þátt í þeim umræðum, þá reynir hann hvað hann getur að æsa hina meðlimina upp í einhverja endalausa vitleysu og skítkast. Hann þykist vera fyndinn en í rauninni er hann alveg ófyndinn. Meiri að segja Sírnir er fyndnari en hann og það liggur við að maður sakni hnetusmjörsblogg frá honum.
Hættiði bara sjálfir að reyna að stofna til illinda píkurnar ykkar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:06 ::

Sannleikur dagsins
Kolli er WGOS og faggi

ps. Hver er þessi Sævar? Er það ekki þjófótta rasspíkan sem eyðilagði ógisslega skemmtilega WBOS reunionið!
pps. Íslenska 101
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:46 ::

Málsháttur dagsins
Erfitt er að veiða er öngvinn vill lána stöng

ps - hver er þessi Skeitari Dauðans - ég man ekki eftir honum úr neinni veiðiferð.
pps - et. munnvik, ft. munnvik - munnvikunum
::Hívatha litli skeit klukkan 13:38 ::

Ég er alguð, ekki hálfguð!

Hver var að tala við þig Kolli Píka? Þegiðu bara. Hættu að reyna að stofna til illinda, hornösin þín. En reyndu samt að klóra saman veiðisöguna úr vatninu fyrst þú ert svona mikil aflakló.

Svenni, ég vil nú meina að þú hefðir líklega veitt fisk ef þú hefðir ekki verið svona mikill sekkur og mætt í ferðina.

og Sindri.....er hægt að vera meiri poki?

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:35 ::

Kolli er með brund í munnvikjunum
Enda var hann að enda við að sjúga'ann svoleiðis á Svenna að þeir hafa ekki verið betur sognir í manna minnum. Því er ekki óeðlilegt að upp skuli hrópað "Dýrð sé drottnun (BDSM)" enda er það aðferð hinnar spilltu stéttar WGOS sem þeir tilheyra báðir. Kolbeinn hefur hér með slegið met í píksku og er allt í senn: WGOS, sósu- og sogblettur! Geri aðrir ver!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:26 ::

Loksins mælir einhver af viti...
...og þá er ég ekki að tala um spýtu! Hallelúja - (ísl; dýrð sé Drottni)

Skabbi - ég vil þó halda því fram að þú hefðir líklega veitt fisk í AverageMountainLake ef þú hefðir ekki jinxað þig með öllu þessu aflaklóa tali.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:01 ::

Skabbi og Kári eru hommar
Mér sýnist að Svenni hafi einungis verið að reyna að lægja öldurnar hérna á vonlausa, en því miður þurfa Skabbi og Kári alltaf að nöldra eitthvað. Ef maður skoðar þetta allt saman síðan í sögulegu samhengi þá kemur greinilega í ljós að það eru þeir sem eru alltaf að ýta undir úlfúð og skítkasti. Kári þykist til dæmis alltaf vera málefnalegur og sniðugur og tekst oft að gabba mann en í rauninni er hann sjálfumglaður þrjóskupúki sem getur ekki látið neitt í friði án þess að píkast eitthvað út í allt og alla. Skabbi er náttúrulega þekktur fyrir að stofna til illinda og gerir það oftast með grobbpóstum um sjálfan sig, þar sem hann lyftir sér í þvílíkar hæðir að það mætti halda að hann væri einhver hálfguð (han er í rauninni ekkert annað en hálfviti). Þess vegna legg ég til að við hættum að taka mark á þeim, enda sæmir það ekki alvöru meðlimum vonlausa að svara sósublettum og WGOSum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:35 ::

Æ, sorrý.
Ég fékk víst engan meil um teljarann enda hefurðu líklega ætlað að halda honum fyrir "ykkur strákana". Hvítur punktur á svörtum bakgrunni er heldur ekkert svo rosalega ógreinilegt þegar allt kemur til alls.
Já, Skabbi ... segðu endilega hetjusögur af spassafiskunum úr Meðalfellsvatni!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 12:28 ::

Hættu þessu kyndingum Skabbi...
og segðu okkur sekkjunum (mér og Sissa) veiðisögu frá Meðalfellsvatni!
::KÍB skeit klukkan 11:42 ::

kári, ætlaru ekki að svara fyrir þig eftir nýjasta bloggið hans svennsa svo að ÓGEÐSLEGA SKEMMTILEGA BLOGGSTRÍÐIÐ YKKAR GETI HALDIÐ ÁFRAM!?!?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:32 ::

Hmmm - sko, ástæðan fyrir því að ég sendi ykkur meil um teljarann og gerði hann svona ógreinilegan var til þess að halda þessu fyrir okkur. En Kári bloggaði um hann svo það er væntanlega búið...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:26 ::

Ertu fjöldamorðingi?
Ég skoraði 13 - tékkiði á prófinu.

SCORES 11 - 15
We're not going to label you borderline, but the Death Row staff would sleep better at night knowing the word "psychotherapy" is part of your vocabulary.


::Hívatha litli skeit klukkan 10:45 ::

Þetta er bara algjörlega fucked up. Minni menn á þá gömlu góðu/nauðsynlegu reglu að opna alltaf gluggann þegar kynt er með gasi...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:22 ::

Einnar mínútu þögn!
Fréttablaðið, Mán. 20. ágú. 09:18
Fernt kafnar í veiðhúsi
Þrír karlar og ein kona fundust látin í veiðihúsi í Veiðivötnum um kvöldmatarleytið í gær. Sýslumaður telur líklegt að gasleki hafi valdið dauða fólksins.


::KÍB skeit klukkan 09:31 ::

18.8.01

hmmm
Ekkert skrítið að ég fái engan hatemail þegar linkurinn er horfinn :( Í staðinn kominn lítill punktur sem linkar í countersíðu!
Strange things are happening...
og sjá! Ég er eini gaurinn sem heimsækir síðuna fyrir hádegi á laugardegi :p
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 11:00 18.8.01 ::

17.8.01

Jeahh
Vorum að fá nýtt tæki í eldhúsið hérna í vinnunni. Núna fer þetta loks að ganga:

::KÍB skeit klukkan 16:28 17.8.01 ::

Snilld
Fúsi bekkjarfélagi er búinn að skirfa snilldar forritið BlogBuddy.
Þar getur maður á auðveldan hátt postað og publishað færslur án þess að þurfa að fara í gengum heimsíðuna hjá Blogger. Þetta er miklu hraðvirkara, sérstaklega fyrir þá sem eru með lélega tengingu!
Ég tek hattinn ofan fyrir þessari snilld!
Þessi færsla var skrifuð með BlogBuddy!
::KÍB skeit klukkan 15:41 ::

Ég vil biðja innilega afsökunar alla þá sem telja sig bera skarðan hlut frá borði mín vegna hér á vefsíðu Vonlausa Veiðifélagsins. Aldrei hef ég að fyrra bragði ætlað neinum illt og ekki óskað eftir særindum. Ég hef aldrei legið á liði mínu við að svara fyrir mig og oft á tíðum hressilega og veit ég vel að öllu gamni fylgir nokkur alvara en ég vildi óska þess að gamninu mínu væri tekið fyrst og fremst sem gamni en ekki sem fúlustu alvöru. Þegar ég hins vegar reyni að vera alvarlegur, sem ég geri þá helst persónulega en ekki á vefsíðum á internetinu, þá vil ég líka ekki að því sé slegið upp í grín fyrir almenning og það haft í flimtingum. Ég er búinn að bæta við link hér vinstra megin fyrir ykkur sem þetta á við þar sem þið getið útskýrt fyrir mér hvað ég hef gert á ykkar hlut og þannig hjálpað mér að bæta ráð mitt. Ég myndi vera hæstánægður ef sem flestir myndu nota þennan link til að hleypa út allri reiðinni sem innra með ykkur býr og þannig gætum við öll hjálpast að við að gera vefsíðu Vonlausa Veiðifélagsins að betri stað!

Ykkar einlægur,
Kári Halldórsson.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 15:33 ::

Hei - hættu að dissa bróður minn. Sumt á líka ekki heima á netinu, ha...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:07 ::

WGOS
og titilinn fær ... trrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr ... Skarphéðinn!!! ... durumm tsss!
Fyrir að mæta ekki í pottinn og láta bara bíða og bíða eftir sér og vera svo mikil kellíng að þora ekki að vera gaurinn sem mætir seinna en allir og láta gera grín að sér. og við sem vorum alir búnir að hlakka svo til! það þarf sannarlega góða hoppukeppni til að þú endurheimtir WBOS status aftur. En annars skiptum ég og Kolli á milli okkar Sænsku bjórsopunum þínum og urðum hevví fullir!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 15:01 ::

Þetta er allt satt. Nennirðu að hætta þessu kjaftæði og skrifa eitthvað uppbyggilegt?
::Hívatha litli skeit klukkan 14:35 ::

Þér ferst
Hver breytti upphaflega "WBOS rúla þvílíkt" í "WBOS sjúga böll" eða eitthvað svoleiðis. Ef ég man rétt þá var allra fyrsta "falda" commentið í VV síðunum "!-- Kári er skíthóra og má ekki fokka í síðunum --". Því breytti ég í eitthvað nett grín og bætti líklega inn öðru. Þegar þú ákvaðst svo að miskunna þig yfir vonlausa og byrja að blogga aftur fórstu í leiðinni í kóðann og breyttir þessu í "Kári er algjört kretín og er ekki einu sinni meðlimur í VV" eða eitthvað svoleiðis. Sannarlega breytti ég því aftur enda varst þú þá kominn út á hálan ís með blogg á vefnum. Núna síðast stóð einfaldlega "Kári er ógeðslegt örverpi" og "Kári er fífl" og mér fannst það ekkert vera neitt nett grín lengur og þessvegna tók ég það út án þess að halda leiknum áfram enda var hann kominn út í rugl. Fyrirgefðu að ég skuli hafa sett spurningamerki við WEBMASTER titilinn þinn en eins og öllum góðum dissurum sæmir gat ég ekki alveg skilið við þetta allt á þess að setja mitt mark á. Ég hef líklega hitt á viðkvæmari blett en ég bjóst við.

ps. Sannarlega kunna Kerfisfræðingar HR að telneta póst ... en sumir draga línu milli þess að geta og gera!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 14:29 ::

PS - magnað að kerfisfræðingur frá HÝR kunni ekki að senda nafnlaust Emil í Kattholti með Telnet...
::Hívatha litli skeit klukkan 14:01 ::

Tíhí - Kári þú ert svooo fyndinn og sætur og skemmtilegur. (Allir staðir í kóðanum þar sem eitthvað stendur um þig voru upphaflega diss á mig skrifuð af þér :p )
::Hívatha litli skeit klukkan 14:00 ::

hehe, þessi er skemmtilegur líka:
Athugið - umræðuvefnum hefur verið lokað að beiðni Kolla og Skabba.

hvað er það annars við þessa mynd? Akkuru er linkað í hana undir orðinu asnalegur?
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:41 ::

Fyndið eða asnalegt???
númer 1: meta name="Description" content="Vonlausa veiðifélagið er félagsskapur nokkurra vesturbæjarotta sem hefur það að markmiði að veiða lítið en hafa gaman að því. Kári er fífl."
númer 2: !-- Kári er ógeðslegt örverpi með hor --
númer 3: Að nota ógeðslega sniðugu wefforritin sem XML hetjurnar í prumpubanka kunna að búa til til þess að senda póst í nafni einhvers annars. Hefði reyndar verið fyndið núna síðast ef það hefði ekki verið búið að gera það áður á einstaklega ófyndinn hátt.

Fyndið ... já, ef notað á glaðlegan og skemmtilegan hátt. En það á ekki lengur við og ég reyndi af góðvilja að taka þetta bara orðalaust út núna í síðasta skiptið en það var sannarlega ekki tekið sérlega vel upp og þessvegna skal ég glaður taka aftur fullan þátt í hatrömmu dissi á VV.

Þú hefur étið úldið smér
og dálítið af brenni.
Hommavinurinn penni!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:27 ::

Svenni WGOS
Ég veit ekki hvort póstarnir þínir eiga að vera fyndnir eða ekki en mér finnst þú vera aðallega vitlaus og veruleikafirrtur nöldurpúki.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:35 ::

Kári speni
Ég veit ekki hvort þetta lagaflækjubull þitt á að vera fyndið eða ekki en mér finnst þú aðallega asnalegur. Núna fer póstur á vonlausa á þig og ég vona að þú getir þá hætt þessu fokking væli. Farðu svo að smíða eitthvað nýtt í staðinn fyrir að skemma það sem fyrir er.

Ostur...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:53 ::

Finnskur ofurhugi sýnir áhættuatriði á Miðbakkanum
Finnskur ofurhugi að nafni Iiro Seppänen hyggst sýna áhættuatriði á Miðbakkanum annað kvöld á Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Atriðið felst í því að losa sig úr spennitreyju í 80 m hæð áður en reipi, sem hann er dreginn upp með, brenna í sundur. Áður en hann er dreginn upp er þó kveikt í reipunum. Þessa þraut hyggst Iiro leysa milli kl. 19.00 og 20.00 á Miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn. Segir í tilkynningu að ef honum takist ekki að leysa sig sé honum bráður bani búinn.

Iiro Seppänen, sem er þekktur í heimalandi sínu, hefur fengist við töfrabrögð frá unga aldri, meðal annars sýnt í Las Vegas og skemmtiþætti David Letterman árið 1995. Á ferli sínum hefur Iiro sýnt um allan heim, m.a. í New York, Los Angeles, London Amsterdam, Kosovo, Peking, Shanghaí og Berlin.

Hann hefur hin síðari ár snúið sér í auknum mæli að svokölluðum jaðaríþróttum og sýningum tengdum þeim. Þar á meðal eru teygjustökk, BASE-stökk, fallhlífarstökk og einnig lætur hann sig aldrei vanta í hið árlega nautahlaup í Pamplona á Spáni. Árið 2000 varð hann fyrstur til að taka þátt í því á hækjum, þar sem hann hafði fótbrotnað í BASE-stökki skömmu áður.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:44 ::

anus oval rúlar!
::Hívatha litli skeit klukkan 11:41 ::

Mér líst bara ansi vel á veiðina!
Sir Sonny "Insider"
::KÍB skeit klukkan 11:22 ::

Klor din rasshola
Þetta er sniðugt! ( dr honk speni rass Holland )

dr. Kolin Rasshola
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 11:12 ::

Huggó
Þessi gaur ætlar að höggva af sér lappirnar í fallöxi á afmælinu mínu...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:08 ::

Stangveiðideild Vonlausa Veiðifjelagsins vex fiskur um hrygg

Næstkomandi sunnudag mun Stangveiðideild VV standa fyrir fjölskylduskemmtun við Meðalfellsvatn í Kjós, annálað fyrir mokveiði og mikla laxagengd. Þar munu meðlimir VV kynna mökum og afkvæmum (og Kolla) fyrir veiðilistinni auk þess að njóta útiverunnar og samvistum hverjir við aðra enda löngu orðið ljóst að fáir kunna jafnvel að veiða ekki fisk á fengsælum stöðum og limir Vonlausa.
Ólyginn sagði að jafnvel sé von á leynigesti, einum af stofnfélögum VV sem ekki hefir sést undir beru lofti í háa herrans tíð.

Það verður spennandi að sjá hvort aflaklóin heldur uppteknum hætti við fiskuppmokstur og hvort að Kolla Mjöðm takist að hrekja ásakanir um fiskifælni og amlóðaskap sem á honum hafa dunið undanfarna daga og vikur.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:43 ::

Við Íslendingar megum stoltir vera af fyrstu íþróttagellunni okkar. Eftir að hafa horft tröllvaxna skrokka Völu Flösu og Þóreyar eddu skaka sig á öllum helstu stórmótum undanfarin ár og Guðrúnu Arnardóttur sem ekki er beinlínis snoppufríð er ágæt tilbreyting að fá loksins íslenskt beib í sportið.


Silja Úlfarsdóttir, Norðurlandameistari í 400 metra hlaupi, eða e-ð.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:31 ::

16.8.01

Ping Pong
::KÍB skeit klukkan 14:43 16.8.01 ::

Góður Gírni
Þetta hljómar vel, ganga bara í málið. Gaman að Gírnirinn sé að koma svona sterkur inn í veiðimálum, verst að maður er hálf smeykur þegar þú ert með hlaðið skotvopn :p
::Hívatha litli skeit klukkan 14:35 ::

Gaman að sjá að fleiri hafa fundið Djúpavatn.
Sem ég hef og áður sagt þá get ég sennilega reddað fyrir okkur góðri helgi þarna á næsta úthlutunartímabili í gegnum afa (sem flutti skálann þangað, þann sem brann ekki þennan nýja). En við þurfum þá bara að láta hann vita, við ætluðum að reyna þetta fyrir einhverjum árum síðan en þá var engin samstaða í verki- dagsetningu og fleira þannig að ekkert varð úr. En hann er alveg fullt til í þetta ennþá.
Djúpavatn er gullfallegur staður með sandströnd og hornsílum þannig að það er vel hægt að vera með krakka þarna, þannig að pabbahelgar eru engin afsökun og þá fræðilegt að Biggi komist líka.
-þarna voru líka teknar frægar myndir í jarðskjálftanum hérna um árið. -gargandi fólk að flýja grjóthnullunga.
::The Satan of Death skeit klukkan 13:32 ::

Aflatölur og rannsóknarniðurstöður úr Djúpavatni
Skellti mér í Djúpavatn með family um daginn og tók eina bleikju(á 2 tímum) sem var rúmlega 1/2 pund á flugu og flotholt.
Í djúpavatni er sleppt fiskum tvisvar sinnum yfri sumarið, 500 fiskum í hvort skipti. Vorum við að veiða rétt áður en seinni slepping átti að fara fram og því ekkert geðveikt af fiski í vatninu. Aflinn var frekar rýr í heildina séð, nokkrir tittir (eins og minn fiskur) og einn u.þ.b. tveggja pundari. Þetta er ágætis vatn, frekar lítið, ekkert sérstaklega djúpt (16 m þar sem dýpst er) en líka frekar ódýrt að fá veiðileyfi og með því fylgir sumarbústaður þar sem hægt er að grilla og gista. Eflaust ágætis vatn til að taka í flugustöng ef veður er rólegt.
::KÍB skeit klukkan 11:42 ::

Glymur revisited
Við fórum upp að Glym í gær (stærsti foss á Íslandi, 200 m) og skröltum upp gilið ofan í ánni. Þetta er svona blautbúnings, hjálma, línumauv. Síðast þegar þetta var reynt, þjóðhátíðardaginn fyrir 3 árum, var þetta 6 tíma brölt og eftir brotna fingur, beyglaðar lappir, einn meðlim sem þurfti að skilja eftir og fleira bögg komumst við ekki alla leið.

Nú bar svo við að áin flæddi ekki langt yfir bakka sína líkt og síðast og vafðist þetta ekkert gríðarlega fyrir okkur. Það eru þó nokkur crux í leiðinni en ekkert óyfirstíganlegt. Það er alveg magnað að vera fyrir neðan fossinn, krafturinn í honum er svo mikill að það eru 12 vindstig við hann og vatnið skefur þarna niður eins og í versta byl. Við syntum yfir hylinn fyrir neðan (mjög spúkí) og skröltum svo til baka. Í þetta skiptið tók ferðin bara klukkutíma og kortér til og frá hellinum sem liggur niðrí gilið.

Þeir sem eru áhugasamir um að tékka á þessu ættu að fara þegar ekki er búið að rigna síðustu 1-2 daga. Keyra inn í Botn í Hvalfirði og að hliðinu þar sem Leggjarbrjótur byrjar (rétt við eyðibýlið). Svo er gengið eftir slóðinni að gilinu. Ferðasaga og myndir úr svona ferð. Einnig er víst ágætt að skoða fossinn ofanfrá. Það er klukkutíma létt ganga. Passa að vera hægra megin við ána því að hann sést bara þar. Að vísu ekki allur.

::Hívatha litli skeit klukkan 11:32 ::

15.8.01

Ég fer út á þriðjudaginn 21. og verð til 28. Þannig að við tökum Kobbabúðir eftir það...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:52 15.8.01 ::

Skotvís sem rekur æfingasvæðið við Rauðavatn er með ágæta heimasíðu, http://www.skotvis.is. Þar kemur hvergi fram að svæðinu hafi verið lokað eða að það standi til. Ef e-r er maður í að kíkja þangað í kvöld ættum við að drífa í því. Sem fyrr segir er ég með hálfan kassa af skotum heima, nóg í nokkra umganga.

Cheese
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:47 ::

Hvor helgin er það sem þú telur þig vera í burtu? Við förum nú varla í Kollabúðir án þín Sveinn þannig að planið mitt gengur ekki sem best ef þú verður í burtu seinni helgina.

Kolli baun er fyndnast brandari sem ég hef heyrt í langan tíma!!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:32 ::

Planið
Ágætis plan - það reyndar gæti verið að ég yrði erlendis þessa helgi. Þannig að ég lofa ekki þátttöku - en ykkur veitir sjálfsagt ekki af smá forskoti...

Heiðarinn er ágætis útileguskemmtun en helvíti mikið happaglappa mauv engu að síður. Svo er um að gera að stúta öndinni fyrir vestan af því að hún étur grey seiðin sem við ætlum að veiða eftir 3-4 ár.

Flogabannerinn með fiskinum er ennþá hjá mér - skrýtið. Kári fékk líka annan banner en ég í gær.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:05 ::

Kolli Baun!
::The Satan of Death skeit klukkan 14:45 ::

Þokkalegt plan
Líst ekkert illa á þetta plan, en þá verð ég að slaufa Kollabúðum því ég verð úti frá 31.ágúst til 12.sept!
::KÍB skeit klukkan 14:19 ::

Ný hugmynd um tilhögun veiðiferða

Ég er aðeins að spá...hvernig líst ykkur á að fara frekar upp á Kjöl eða Kúluheiði helgina 24.-26.? Við gætum þá frestað Kollabúðum um 2 helgar. Þá er væntanlega auðveldara að eiga við gæsina auk þess sem nóg ætti að vera af fiski í ánni. Þar að auki verður komið grænt ljós á öndina sem fregnir herma að talsvert sé af í dalnum um þessar mundir.
Það er alltaf best að vera sem fyrst upp á heiði, við fengum að kynnast því í fyrra að það var ekkert heví mikið um að vera þegar við fórum upp á kjöl í byrjun september þar sem menn segja að sé alveg mökkur af gæs í byrjun tímabils. við Kolli og Giggús höfum farið tvisvar upp á Kúluheiði í byrjun tímabils og það eru alveg haugar af gæs þar um þetta leiti.

Flogabannerinn er hættur að flogast hjá mér, sem er gott. Það var samt annar banner seinnipartinn í gær, þessi með fisknum.

Fídbakk plís
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:16 ::

Gírni
Hvað gerðir þú eiginlega við þennan banner (sem er bæ ðe vei massaflottur) - það er ekki séns að stoppa flogaveikis-fídusinn. Can jú redd?
::Hívatha litli skeit klukkan 12:08 ::

Ég ber mikla virðingu fyrir þeim öfum sem eru búnir að renna sér í 60 ár.
Þó að þér finnist ekkert merkilegt að ég sé búinn að vera helmingi lengur en þú á snjóbretti, þá verðurðu einfaldlega að sætta þig við það að ég er ennþá betri en þú, þrátt fyrir "að vera ekki búinn að renna mér rassgat síðustu 3 árin"! Ég mun standa við þessi orð þegar við höldum fyrstu old-boys keppnina í vetur.
::KÍB skeit klukkan 11:36 ::

Ég skil
Þannig að einhverjir afar út í bæ sem eru búnir að renna sér á skíðum í 60 ár eru mestu töffarar á landinu samkvæmt þinni töffaraskilgreiningu. Gaman af því.

Fyrir utan það þá ertu ekki búinn að renna þér rassgat síðustu 3 árin. Þó að þú hafir rétt stungið nefinu uppeftir í hitteðfyrra kallast það ekki síson.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:26 ::

Viðbót í veiðitækjasafnið
Þessi gæti komið sér vel á röltinu niðrí bæ, t.d. ef gæsir eru á túninu við Tjörnina. Snilldartæki.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:22 ::

Ungepungs
Þrátt fyrir að hafa tekið mér eitt ár í leyfi frá snjóbrettinu þá hafði ég þar áður rædað í 9 vetra samfleytt.
Þú mátt dissa mig þegar þú hefur toppað það!
::KÍB skeit klukkan 11:16 ::

Sindri og skemmtun
Það er nú kraftaverk ef þú manst hvernig er að vera á bretti Renis minn - það er svoooo langt síðan þú hefur stigið á svoleiðis. Það mest extreme sem þú hefur gert síðustu 3 árin er að leika við köttinn þinn (hann gæti klórað) og leika þér í PlayStation2 (gætir flækst í snúrunni og hengt þig).

Og mér finnst Wakeboard ekki gay - hugsaðu um tzjokkó á línuskautum og svo extreme gaura að massa á bretti í ísköldum sjónum. Þá færðu vonandi nýja sýn á gay/nongay. reyndar finnst mér ótrúlega gay að vera alltaf heima hjá sér, veiða þorsk og fara í vinnuna kl. 8 svo þú getur verið kominn heim að sofa kl. 16.00 á mínútunni.

Kobbabúðir - framhald
Það er rétt hjá Skabba - þetta er hátindur veiðitímans í ánni - það hefst ekki fyrr en seinnipartinn í júlí og toppar þarna. Reyndar var Össi að tala um að maður gæti fengið eitthvað á svona stöðum í sept og okt.

Banner
Góður banner Skyri - þú ert samt allur í flogaveikinni...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:08 ::

Kolli er drengur góður og ekki skal setja út á hann að ósekju, þrátt fyrir að letin hafi tekið völdin hjá honum í sumar!
::KÍB skeit klukkan 11:04 ::

Auðvitað er ég ekki að tala um tripod auglýsingabannerinn speni. Það var kominn nýr VV banner í gær, líklega úr hugmyndasmiðju Sírnis. Það var fiskur sem synti fram og til baka, mjög sniðugt. Á vel við enda erum við allir duglegir veiðimenn, nema Kolli sem er letihaugur, píka og fiskifæla.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:02 ::

Ég man nú ekki eftir því að það, að láta sleða draga sig á bretti, hafi verið talin mikil skemmtun. En ég get ímyndað mér að Wakeboard-ið sé eitthvað skemmtilegra, þó það sé hálf-gay!
::KÍB skeit klukkan 10:54 ::

Vökubretti
Ég fór á wakeboard í gær úti á Gróttu. Þvílík og önnur eins schnilld.


Snjóbrettareynslan kemur sterk inn, ekki ósvipað og að láta draga sig á sleða á bretti.

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 10:51 ::

Ertu að meina ógeðslega tripod auglýsingabannerinn?
Vonandi kemur hann aldrei aftur!
::KÍB skeit klukkan 10:49 ::

Hey! Hvað varð um nýja bannerinn?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:34 ::

Sírnir
Áttu nokkuð sænskarn hálfbróður, sem gerir jafnskrýtna hluti og þú?
::KÍB skeit klukkan 08:32 ::

14.8.01

Þegar við skutum gæsirnar á kollabúðum fyrir þremur árum fórum við uppeftir daginn sem þið voruð búnir í haustprófum, ég held að það hafi verið önnur helgin í gæs. Þegar við fórum fyrir tveimur árum vorum við seinna á ferðinn, samt var engin gæs að fara að setjast í túnið. Ég held að gæsalega séð verði þetta alltaf happaglappa mauf nema e-r sé búinn að fara uppeftir á undan og skoða. Það er heldur ekkert óhugsandi að veiða gæsir annarsstaðar en í túninu. Auk þess að við erum of margir til að liggja allir innan í rúllunum, þeas ef allir mæta.
Án þess að ég viti það þá reikna ég líka með að fiskveiðin sé best um þessar mundir og fari að dala þegar líða tekur á september. Hvað segir staðarhaldari um það?

Ein skotæfing er algert möst áður en við förum e-ð að skjóta. Ég held að það sé til e-r reitingur af dúfum og hálfur kassi af skeetskotum heima.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 17:43 14.8.01 ::

"Er "Heimasætan" jafn góð þarna eins og annars staðar? Eða er heppilegra að vera með þyngdar púpur og veiða uppstreymis með tökuvara? "

Hvað þýðir svona eiginlega? Djöfull hlýt ég að vera slakur veiðigaur...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:51 ::

Það verður ekki gæs á Kollabúðum 24 sept - það get ég sagt þér kall.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:47 ::

Spurning um að fresta Kollabúðum um mánuð eða svo og fara kannski eitthvað annað um þessa helgi?
::KÍB skeit klukkan 16:45 ::

Skabbi heldur því fram að við höfum farið heví snemma þarna um árið...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:42 ::

Kollabúðferð aldarinnar!
Nú legg ég til að við notum orkuna í að skipuleggja komandi ferð á Kollabúðir og leggjum afladeilurnar á hilluna í bili!
Kolli kom með ágætan punkt áðan: "Verða gæsirnar eitthvað komnar á túninn svona snemma, verða þær ekki bara í berjamó?"
::KÍB skeit klukkan 16:40 ::

Hmm - nokkuð til í því. Hinsvegar taldi ég þær ekki til afla heldur Gabbi þannig að það er trauðla hægt að hengja mig fyrir það. Hengdu bara Sævar.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:33 ::

Þorskur og ýsa
Þorskur og ýsa er afli svo lengi sem hann er veiddur á stöng! Þrátt fyrir að þið landkrabbarnir, sem aldrei hafið migið í saltan sjó, séuð í einhverjum afneitunarleik. En fyrsr við erum að tala um auðvirðilegan afla, þá held ég að þrjár murtur flokkist undir þá skilgreiningu. Enda hefur það aldrei verið vaninn að telja murtur til afla úr Þingvallavatni heldur einungis Bleikjur og Urriða. Það væri alveg eins gott að telja sardínur úr dós og að telja murtur úr Þingvallavatni!
::KÍB skeit klukkan 16:11 ::

Skotæfingar hljóma vel
En mér skilst að planið sé að reyna við Glymsgilið í Hvalfirði öðru sinni annað kveld. Þeim sem vilja er velkomið að mæta - blautbúningar ekki verri og hjálmar nauðsynlegir. Ég á 1 auka galla ef einhver vill kíkja með.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:02 ::

Ýsa og þorskur
Það er náttúrulega hverjum í sjálfsvald sett að draga svo auðvirðilegan afla til sögunnar en persónulega mun ég ekki gera það þar sem það er fyrir neðan mína virðingu. Hugsa ég að betri félagar klúbbsins séu á sömu skoðun.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:00 ::

Skotæfingar
Hér með er boðað til skotæfingar!
Hvað segja menn um að skella sér út fyrir bæinn á mogrunn eftir vinnu og stunda óhóflegt dráp á dúfum þær er við leir eru kenndar?
Hvernig er status á skotum og dúfum, á einhver afgang síðan í fyrra? Held að ég eigi slatta (100 stykki) af skotum en samt ekki skeet-skot! Er ekki málið að kaupa kassa af dúfum og kassa af skotum?
::KÍB skeit klukkan 15:59 ::

Geggjað
http://www.gofastsports.com/DOWNLOADS/FS14ss.mpg
::Hívatha litli skeit klukkan 15:49 ::

Afli hver og eins verði listaður
Því legg ég til að afli hvers og eins verði listaður eins og hingað til hefur verið og síðan lagt mat á það hver er með besta aflann í lok árs - m.a. með huglæg mati.
Gölturinn

Hættið þið þá að setjast í dómarsæti og dæma þennan og hinn afla úr leik. Það er ekki á valdi ykkar heiðursmannanna heldur verður það að bíða dóms fjelagsfundar í lok árs!

Líst vel á Kollabúðir!
::KÍB skeit klukkan 15:49 ::

Maður fær nú bara bóner...

Bandaríkjamenn byggja ofurtölvu til rannsókna
Bandaríska vísindastofnunin ætlar að láta búa til til gríðarlega öfluga tölvu sem mun gera vísindamönnum kleift að að rannsaka uppruna alheimsins, orsök krabbameins og veðramynstur um heim allan.

Tölvan, sem ber nafnið Teragrid, er tengd við fjögur ofurtölvukerfi og getur framkvæmt 13,6 trilljónir færslna á sekúndu, býr yfir 600 terabæti geymslurými, sem er álíka og 146 milljón bækur í fullri lengd, og keyrir á 40 gígabæta hraða á sekúndu yfir netkerfið. Búist er við að hægt verði að auka hraðann í 80 gígabæta á sekúndu síðar.

Tölvan keyrir á Linux-klasa og nota yfir 3,300 örgjörva frá Intel. Fjölmargar stofnanir í Bandaríkjunum vinna að gerð tölvunnar, eða 3,300 manns, en gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin á næsta ári, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Kostnaður við gerð tölvunnar verður að öllum líkindum 5,3 milljarðar ísl. króna.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:16 ::

Ég sendi Kollameilið og mér fannst það bara asskoti fyndið. Enda á hver fullfrískur karlmaður að hafa fattað að um plat var að ræða. Ef þið eruð eitthvað ósáttir megið þið lemja Sævar fyrir þetta...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:08 ::

Ef þetta er stigakeppni vil ég fá 5 stig fyrir að drepa flash-lúppuna hans Gírna!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:54 ::

Eruð þið GEÐVEIKIR?
Djöfull ertu skemmdur eftir boltaíþróttaástundun McRenis. Þú hefur greinilega fengið boltann í hausinn einum of oft. Við förum ekki að gefa einhver stig eftir bráð eins og við séum í fótboltakeppni. Það er fáránlegt og ekki í stíl við þá heiðursmennsku sem á að viðhafa í veiðimennsku. Þar eru það gæðin sem skipta málið, ekki bara hreint magn.

Því legg ég til að afli hvers og eins verði listaður eins og hingað til hefur verið og síðan lagt mat á það hver er með besta aflann í lok árs - m.a. með huglæg mati.

Þá vil ég einnig benda á að við höfum aldrei keppt um mesta aflann heldur aðeins MINNSTA
::Hívatha litli skeit klukkan 14:51 ::

Kollabúðir með byssu og stöng!

Eru menn ekki heitir fyrir male bonding testósteron byssur, bílar og bjór ferð?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:50 ::

Ágæt "hugmynd" enda hefir hún verið í gildi frá upphafi. En það er rétt hjá þér, tími er til kominn að taka reglurnar saman svo ekki sé um það að villast hver sé aflakló ársins og hver sé formaður. Mín skoðun er sú að hreindýr megi telja mest t.d. 5, lax næstmest ( td 3), gæs og rjúpa eiga að telja jafnmikið ( td 2) enda er ekkert erfiðara eða mekilegra að veiða gæs en rjúpu. Svartfugl má svo telja 1 stig enda ekki merkilegur veiðiskapur, þótt skemmtilegur sé. Mín skoðun er sú að stigagjöf fyrir silung fari aðeins eftir stærð hans. Er ekki 8 punda urriði aðeins merkilegri bráð en murta? Sjávarfang er fullkomnlega ómerkileg bráð og hefir ekkert að gera í veiðikeppnina.

Hvenær sagði ég að óétin bráð væri ekki talin með? Hún er auðvitað talin með, aftur á móti er hún hinum frækna veiðimanni til minnkunar. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá var ég með fyrri pistlum mínum ekki að skjóta á neinn sérstakan, þetta er brot sem við höfum allir gerst sekir um og ég veit það fyrir víst að við allir (nema kanski Sírnir) eigum kaldar beinagrindur í frystikistunum. Það er hreinlega söguleg staðreynd að fiskur sem einu sinni er kominn ofan í kistuna á sjaldan afturkvæmt. Þetta á við um gæsir líka. Það er ekkert að því að ég éti gamalt kjöt eftir ykkur úr frystikistunni minni, enda fer það mun betur í maga en í kistuna.

Rjúpur eru reyndar annað mál, mér finnst það óskiljanlegt hvernig nokkur getur látið jafnljúfengan kost og rjúpan er firnast í kistunni!

Og eitt að lokum:
Snillingurinn sem er að senda vælbréfið í nafni Kolla (píku) ætti að gera sér grein fyrir því að póstfangið hans er kollig@trackwell.is.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:48 ::

Telst kræklingur með sem sjáfarfang?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:38 ::

Stigagjöf
Ég legg til að notast verði við stigagjöf til að telja saman aflann.
Hér er vísir að stigagjöfinni.


VeiðibráðStig/pund
Hreindýr5
Lax3
Gæs3
Rjúpa2
Silungur2
Sjávarfang1

Allar ábendingar varðandi það sem betur mætti fari í stigagjöfinni eru vel þegnar.
::KÍB skeit klukkan 14:29 ::

Ég er sammála Sindra, þetta er veiðifjelag fyrst og fremst, ekki átklúbbur. Og þar að auki finnst mér að fiskur úr sjó telji. Hitt dæmið var allt annað, sonur Sírnis veiddi einhvern myglaðan olíuborinn þorsk sem körtturinn hans Rikka át.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:17 ::

Regluson
"Ef að veiðimaður borðar ekki veiði sína þá telst hún ekki með í aflatölum"
Skarphéðinn Halldórsson


Hvenær telst veiðin með, þegar hún er veidd eða þegar hún er borðuð?
Ég á nefnilega tvær rjúpur sem ég skaut í fyrra en át aldrei. Get ég borðað þær núna og fengið þær taldar sem hluti af afla þessa árs?
Hvað með að borða afla annarra? Fær maður það skráð sem afla ef maður fær veiði annarra í matinn?

Er þetta kannski át klúbbur?
::KÍB skeit klukkan 14:13 ::

Cool
Hey auglýsingabannerinn er farinn!
::KÍB skeit klukkan 14:07 ::

Kollabúðir 24-26 ágúst
Ég er maður í Kollabúðir og hér með skora ég á Gabba litla í veiðikeppni, ef hann þorir þ.e. Þá kemur í ljós hvor er betri veiðimaður, bæði stang og skot. Þar sem ég hef því miður ekkert komist í veiði í sumar hef ég þurft að þola fúkyrði og dónaskap frá Gabba og Skírni pissrass, en þeir munu þagna fljótt eftir að ég buffa þá í veiðikeppninni. Mér finnst það ansi hart að meiri að segja Sírnir sem hefur farið í eina veiðiferð ( sem ég fúslega viðurkenni að er einni meira en ég hef farið í og ég ætla ekkert að reyna blása hetjuljómann af því ) sé farinn að ásaka mig um feiturössun. Gabbi er náttúrulega ennþá fastur í gamla farinu, gjammar um að allir aðrir séu aular af því að þeir hafa ekki jafn mikinn frítíma og hann.

Og enn heldur litli kallinn áfram að ropa út úr sér einhverjum hetjusögnum um að hann borði bráðina og enginn annar. Það er bara lýgi og ekkert annað, ég ét alltaf það sem ég veiði. Kanski er þetta bara svo framandi fyrir litla greyið að borða veiði því hann hefur aldrei fyrr veitt neitt að hann heldur að hann sé að finna upp á einhverju snilldarbragði. Svo þegar hann er búinn að slarfa í sig annarra mann fiskum þá básúnar hann yfir heiminn nýjustu uppgötvun sinni að silungur sé nú bara helvíti góður. Ég segi nú bara eitt að við vissum það allir litli kall, og okkur þykir það ekkert stórmál að borða veiðina, það er sjálfsagt. Í rauninni er það algjör faggaskapur að gera það ekki, þannig Gabbi er nú ekki alslæmur. Þessir fiskar sem eiga vera til í frystikistum félagsmanna er bara í huganum á honum. Gabbi er þessvegna ekkert annað en veruleikafirrt fretlessa og þurrkunnta.

Sírnir þú veiddir mest 1997, það gildir ekki núna. Ef þú ætlar að halda áfram að tala um þessa fiska sem þú veiddir úr Reynisvatni fyrir mörgum árum þá ertu bara SFR. Og ég neita að vera kallaður undurförull.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:05 ::

Hver var að fokka í síðunni?
Og afhverju er þessi ömurlegi banner kominn efst?

Varðandi fiska veidda í sjó:
Ég er sammála því að fiskar veiddir í sjó eru ekki jafn merkilegir og t.d. lax eða rjúpa. Hinsvegar hljóta þeir að teljast sem veiði (svo framarlega sem þeir eru veiddir á stöng) þó þeir falli ekki undir flokkinn villibráð! Er ég með þessu á engan hátt að reyna að skara eld að minni köku, heldur einungis að stuðla að því að menn telji til allan afla sem veiddur er innan félagsins.
Augljóst er að þegar kemur að því að útnefna veiðimann ársins að þá verður einungis byggt á aflatölum um villibráð.

Hættiði að stríða Kolla hann er feiminn!
::KÍB skeit klukkan 14:04 ::

Ég er maður í CretinShops helgina 24. - 26. ágúst. þá er gæsin byrjuð og allir í góðum fílíng. Ég held reyndar að Liverpool sé að spila við Anal Athletic þá helgi og það útilokar víst að KolliMjöðm komi með....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:48 ::

Ég vil byrja á því að biðja minn kæra herra Grimes afsökunar á því að hafa vantalið aflatölur hans. Því miður er þó ekki hægt að leggja fram fiska sem veiddir voru 1997 í keppninni um aflakló ársins 2001. Engu að síður máttu vera stoltur af afla þínum ( og afa þínum) úr Hlíðarvatninu, sér í lagi ef þú hefir staðið við stóru orðin og snætt bleikjurnar skömmu seinna. Ekki ætla ég að leggja það á nokkurn mann að setja hann í sama flokk og Kolbeinn Fiðurnef Túrpíka sem aldrei gerir neitt sem góðum Vonlausum Veiðimanni sæmir.
Því miður minn kæri herra Renis McPenis, umræðan um sjávafiska hefir þegar farið fram og var það samdóma álit allra að fiskar veiddir í saltvatni eru ekki taldir með í aflauppgjöri. Hins vegar ætla ég ekki á nokkurn hátt að bera þig saman við landeiðuna og amlóðann Kolla Mjöðm sem varla hefir staðið upp úr sjónvarpsstólnum í allt sumar.

Ég hefi nú þegar talið upp allar helstu veiðiferðir sumarsins og lagt fram heiðarlegar aflatölur, þar með tel ég það óþart með öllu að tína það allt til aftur. Hins vegar geta allir meðlimir Vonlausa Veiðifjelagsins staðfest göfuglyndi hjarta míns þar sem ég hefi boðið þeim til snæðings með mér eftir vel heppnaðar veiðiferðir. Það er e-ð annað en Kolli Kerlíng er vanur að gera. Í hans brenglaða huga eru veiddir silungar best geymdir neðst í frystikistunni þar til þeir smám saman mygla og gufa að lokum upp.

Í bréfi þínu spáir þú því að þú eigir eftir að standa upp sem sigurvegari í vonlausu veiðikeppni sumarsins. Það verður að teljast harla ólíklegt í ljósi árangursins í sumar. Ekki nema stórar torfur silunga taki sig til, skríði upp á þurrt land, bægslist eftir götum borgarinnar heim til þín á Öldugrandan og skríði þar sjálfir ofaní frystikistuna.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:44 ::

Ooops
::KÍB skeit klukkan 12:15 ::

Lífmassi
Það er nokkuð til í þessu hjá Gírna. Reyndar verð ég að segja að Giggús hefur líklega veitt mesta lífmassann. En samkvæmt sjávarfangsreglunni telur það ekki.

McRenis tapar líka sínum feng samkvæmt "éta sjálfur" reglunni - hann gaf einhverjum sjóara fiskinn sinn. Giggús klikkaði ekki á því! Át hvalinn sinn í hvert mál. Og Kolli - er ekki orðið soldið hart þegar Gírni er farinn að skamma þig fyrir að veiða ekki?

Er ekki málið að blása til Kobbabúðaferðar? Fregnir herma að í síðustu viku hafi verið 7 laxar í hyl 34 sem gáfu sig ekki. Einnig var allt stútfullt af silla. Vantar bara smá rigningu og þá er þetta að rokka!

Við eigum 20. til 26. ágúst. Allir að veiða - enginn í Bingó, því þá verður hann bongó!
::Hívatha litli skeit klukkan 11:16 ::

Jæja þá er vonleysið farið að ríða rækjum!

Er nú orðið svo ílla komið fyrir fjélaginu að það verði að telja ómekrilega sjávarfiska til aflasamtölu?

Kolli þú er bara undirförul píka, orð þitt er einskins virði. Gerðu, Veiddu, Vertu. Annars ertu bara KFR.

Þar fyrir utan er ÉG mesta aflaklóin, ég á verðlaunapening því til sönnunar og ég held því enn fram að ég hafi veitt mestan lífmassa.
::The Satan of Death skeit klukkan 10:27 ::

Skyldi aflaklóin okkar hafa veitt eitthvað í hamrinum í gær?
::Hívatha litli skeit klukkan 10:19 ::

13.8.01

Lúðisem skrifar verkfræðingur í símaskránna.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:26 13.8.01 ::

Fréttir af aflatölum brenglaðar og misvísandi upplýsingar.
Hvað er eiginlega að gerast í þessu veiðifjelagi ef Skabbi fær athugasemdalaust að birta hér rangfærslur og róg um aðra fjelagsmenn. Hann verður sér hreinlega til minnkunnar með þessum skrifum sínum. Vissulega viðurkenni ég að ég er ekki búinn að vera virkur í sumar en það er vegna mikilla anna sem ég hef ekki komist en þar mun verða breyting á. Undanfarin ár er ég búinn að vera langmesta aflakló fjelagsins, hvort sem það eru fiskar eða fuglar. Þetta hefur greinlega vakið gremju hjá Skabba litla sem er nú farinn að stæra sig af því að hafa veitt einhverja smátitti, og hefur hann þó farið í allmargar veiðiferðir og oftast komið heim með öngulinn á kaf í rassgatinu á sér. Þetta sést best á því að hann vill ekki tilgreina hvað hann hefur veitt heldur kemur með óljósar staðhæfingar um vænar kippur, og setur sig og Guðna saman. Hið rétta í málinu er að Guðni veiddi meira en hann þrátt fyrir að ekki hafi hann verið frekar fiskinn. Það kemur líka spánskt fyrir sjónir flestra sem lesa þessar tölur að Skabbi þykist vera mesta aflaklóin, þegar allir sem hafa fylgst með aðförum hans við bakkan vita hversu arfaslakur veiðmaður hann er. Ég held meiri að segja að Sírnir hafi unnið hann með þessum fiskum sem hann veiddi í Hlíðarvatni og samkvæmt nýjustu tölum frá Sindra er hann líka kominn fyrir ofan hann.

Síðan stærir hann sig af því að hafa étið fiskana? Ekki skil ég hvað hann á við. Ég hélt að það væri sjálfsagt mál að borða bráðin og alls ekki eitthvað sem maður montar sig af að hafa gert, eða er hann kanski að stæra sig af því að hafa ekki tímt að kaupa sér nesti þegar við fórum í Kollabúðir og verið síðan svo mikill aumingi þegar honum tókst ekki að veiða neitt að hann stal eina og fyrsta silungnum sem María hefur veitt og var búinn að hlakka til að gæða sér á sjálf. Hann er spunge. Heyrst hefur líka að hann ætlar einn að borða helsingjan sem Svenni skaut.

Skabbi er WGOS og píka sem ekki á skilið að vera meðlimur í Vonlasa Veiðifjelaginu fyrr en hann bætir sitt ráð.

Spyrjum að leikslokum, ég spái því að ég verði aflmesti veiðimaður eftir sumarið.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:18 ::



::Hívatha litli skeit klukkan 15:11 ::

Minnimáttarkennd
Aflakló Gabbi?? Alveg rólegur. Hvenær veiddi Kobbi annars eitthvað síðast? Murturnar brögðuðust vel og voru nóg fyrir 2.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:10 ::

Rannsóknarleiðangur Vonlausa til Vestfjarða
Skellti mér til Ísafjarðar um helgina í giftingu en stundaði einnig rannsóknir fyrir Vonlausa.
Helstu niðurstöður voru eftirfarandi:
Kollabúðir virðast hafa komið vel undan vetri og því tilvalið að skella sér þangað og veiða síðasta laxinn í ánni. Túnin virðast vera klár fyrir Gæsaveiði.
Var tekinn í landhelgi í Djúpinu en lét það ekki á mig fá þar sem refsivendirnir voru kvennkyns.
Súgandafjörður er stútfullur af fiski! Skelltum okkur í smá sjóstangaveiði, ég veiddi tvær 3kg ýsur (= 12 pund af ýsum) og linda tók 5kg þorsk. Veit ekki hvort þessi mikla veiði stafar af seiðandi tónum hljómsveitarinnar Múm sem er við lagasmíð við Galtarvita (sem ég málaði um árið) eða hvort veiðireynsla skipstjórans hafi komið við sögu.
Vestfirskar giftingar eru snilld! Steinbítur í forrét, lamb og svíni skolað niður með Montichello '94 í aðalrétt, kaffi og kaka ásamt ógrynni af bjór í eftirrétt. (=þynnka dauðans hjá öllum nema mér :) Svona eiga giftinar að vera!
::KÍB skeit klukkan 14:51 ::

update
Gírnir tók tvær bleikjur sem voru 1/2 og 1 pund í Hlíðavatni meðan afi hans mokaði upp 9 stk. Afi hans gaf honum sílin því að hann sér svo ílla sko. Þær eru komnar í kalda gröf í frystinum hans Sírna nema tveir sem á að grilla í kveld.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:18 ::

Starfandi Fiskveiðdeild Vonlausa Veiðifjelagsins gerir góða ferð.

Enn og aftur er það orðið lýðum ljóst hverjir eru dugandi veiðimenn í þessu Vonlausa Veiðifjelagi. Skabbi og Giggús eru þeir einu sem hafa dregið bein úr sjó eða vatni sem heitið getur í allt sumar enda aflaklær og dugnaðarforkar í meira lagi.
Síðasta trompferð þeirra félaga var upp á Arnarvatnsheiði hvar margur þéttvaxinn silungurinn mátti lúta í svörð fyrir gríðarlega sterku veiðieðli og firnaöflugum veiðarfærum sem þeir félagar beittu af mikilli skynsemi og kunáttu. Ef breiðfylking blóðþyrstra minka hefði ekki gert aðsúg að eymingja Giggúsi þar sem hann stóð í miðri silungatorfu og hrakið hann grátandi í burtu hefðu stórfiskarnir orðið margfalt fleiri.
Hugdjörfu veiðimennirnir létu sér ekki nægja að veiða fiskana heldur var tekin upp sú nýbreyttni að ÉTA FOKKÍNG FISKANA ÁN ÞESS AÐ VÆLA!! Legg ég til að þessi ágæti siður verði tekinn upp í komandi veiðiferðum og vona ég að nesti heyri brátt sögunni til í ferðum Vonlausa Veiðfjelagsins.

Í gær fóru svo Svennson og Skabbi aflakló í skottúr austur á þingvöll og renndu fyrir risaurriða. Sá stóri vildi ekki gefa sig en Sveinn nældi sér í 3 svellþykkar murtur sem samanlagt hafa vegið álíka mikið og blautur túrtappi. Þar með hefir hann bæst í þann fríða hóp vonlaysingja sem nælt hafa í fisk þetta sumarið.

Aflatölur eftir sumarið eru því eftirfarandi:

Skabbbi og Giggús: Vænar kippur stórsilúnga , dregnar úr Elliðavatni, á Arnarvatnsheiði og úr margvíslegum veiðistöðum norður í landi.

Svenni: 3 murtur allvænar

Sírnir: Óstaðfestar fréttir herma að hans eina veiðiferð hafi ekki verið upp á marga fiska.

Sindri: henti flotholti þrisvar í Þingvallavatn, nennti svo ekki að veiða og fór inn í bíl að leggja sig

Kolli: Kolli er hér með settur ofan í skúffu ásamt ekki merkilegri veiðimönnum en Bigga, Pésa, Adda Pu og Sibba sem aldrei veiða nokkurn skapaðan hlut enda bleyta þeir félagar aldrei færi og koma ekki til með að gera það í sumar. Kolli er WGOS og píka sem ekki á skilið að vera stofnmeðlimur í Vonlasa Veiðifjelaginu.

Og hananú!

Labels:

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:13 ::

CNN
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:44 ::

Skrýtið þá...
Ég held að þessir gaurar ættu að ráða Giggús sem ráðgjafa...

Ögurstund Keikós
Kvikmyndastjarnan, Íslandsvinurinn og hvalurinn Keikó fær í þessarri viku sitt síðasta tækifæri til þess að njóta frelsis í villtri náttúrunni með öðrum hvölum.

Haldið verður áfram út vikuna að reyna að aðlaga Keikó lífinu í villtri náttúri. Verkefnið hefur tekið þrjú ár og miklu hefur verið til kostað til þess að hvalurinn syndi burt með bræðrum sínum og systrum.

Hallur Hallsson, talsmaður Ocean Futures samtakanna, segir að miklu verði kostað til þess að Keikó nýti sér þetta tækifæri sem hann fær nú í síðasta sinn. Hann segir að ólíklegt sé að verkefninu verði haldið áfram næsta sumar ákveði hvalurinn ekki að grípa frelsið nú á síðsumardögum.

"Það bendir allt til þess að Keikó verði í Klettsvíkinni í vetur en ég tel það ólíklegt að hann fái annað tækifæri annað sumar. Við munum endurmeta stöðuna þegar sumri lýkur og það er allt sem bendir til þess að hann fari eitthvað annað -- fari hann ekki út í villta náttúruna -- annað hvort hér á landi eða erlendis," sagði Hallur en bætti því við að ótímabært væri að gefa upp hvaða sveitarfélög koma til greina sem framtíðardvalarstaður hvalsins hér á landi.

Aðstandendur Keikó eru ekki vonlitlir um að hann sigli sinn sjó í þessarri viku en Hallur segir að búið sé að vinna að þessu verkefni í þrjú ár og mikið átak þurfi til þess að þetta takist nú.


...ég veit amk. að hann er ekki þrjú ár að reka einn hval í burtu!
::Hívatha litli skeit klukkan 13:30 ::

Sírnir #1?
Mér skilst að...


...Sírnir hafi unnið hoppukeppnina hans Kaur um helgina.

(Helvítis stöðumælar!)
::Hívatha litli skeit klukkan 10:48 ::

Góð hugmynd
Ef þið viljið stofna ykkar eigin fyrirtæki er hægt að stela nokkrum hugmyndum hér...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:36 ::

10.8.01

má heyra saumnál detta
Vonlausi hefur núna þagnað í vel yfir sólarhring og ekki hægt annað en að spyrja sig hvort menn hljóti ekki að vera svona utan við sig af gleði og fögnuði yfir fréttum gærdagsins af komandi WBOS myndum.
Hvernig er það, er ekki Dr. Jóli kominn til heimalandsins og á ekki að halda WBOS hoppukeppni?
Þið eruð öll WGOS nema WBOS !!!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 17:30 10.8.01 ::

9.8.01

Fögnum !!!
Ég hef fyrir því áreiðanlegar heimildir að filmupokinn minn hafi fundist í kaupmannahöfn og verður honum komið til landsins við fyrsta tækifæri. Þetta þýðir að seinustu ( og flottustu ) WBOS myndirnar ættu að verða komnar inn á Vonlausa vefinn fyrir lok ágúst. Þá verður mikið um dýrðir og lítið um WGOS og förum nú að halda WBOS hoppukeppni!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 12:43 9.8.01 ::

What are friends for?
::KÍB skeit klukkan 11:20 ::

Jeahhh!
::KÍB skeit klukkan 09:46 ::

8.8.01

How stuff works - shooting your monitor
::KÍB skeit klukkan 16:03 8.8.01 ::

Ehh, eimitt
::KÍB skeit klukkan 14:19 ::

RÚV ber hagsmuni okkar fyrir brjósti...
Árlega finnast á milli þrjú og fjögur þúsund óskráð viðtæki. Ef Ríkisútvarpið sinnti ekki tækjaleit er ólíklegt að öll þessi tæki yrðu skráð. Það myndi þýða tekjutap og hærra afnotagjald. Þeir sem greiða þyrftu þá að greiða enn meira. Fjölgun í hópi þeirra sem ekki greiða afnotagjald gæti einnig leitt til styttingar á dagskrá eða að ekki yrði unnt að sinna allri þeirri innlendu dagskrárgerð sem fram fer í dag. Tækjaleitin er því réttlætismál og hagsmunamál allra greiðenda afnotagjalda.

...og sinnir þeim með því að troða afnotagjöldum upp í rassinn á landsmönnum og liggja á gluggum þeirra.

Reyna svo að halda því fram að þeir séu að gera okkur greiða. Æði.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:31 ::

7.8.01

þokkafokkinglega!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:48 7.8.01 ::

sævar rokkar er í tómu rugli í dag...
::KÍB skeit klukkan 15:56 ::

tripod er í tómu rugli í dag...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:43 ::

Sindri skiptir um vinnu


Sindri hefur ákveðið að hætta hjá fjármálalausnum og taka til hendinni á sviði næringarmála. Vonlausi óskar Sindra til hamingju!

::Hívatha litli skeit klukkan 15:23 ::

Þarf allt efni á öldum ljósvakans að vera eins og slæm upplifun á tannlæknastofu?

Jæja, nú getum við glaðst á ný. Síðustu misserin hafa verið þau allra döprustu í íslenskri útvarpssögu - ekkert nema einhver FM-froða í gangi.

Síðustu dagana hafa verið tilraunaútsendingar í gangi á 89.0 og lofa þær góðu - massagott fönk, rapp, techno og fleira sem ekki hefur beinlínis verið á vinsældarlistunum hjá sveitaballapakkinu sem ríður rækjum á hinum útvarpsstöðvunum, vill bara Sálina og Land&Syni (jakk).

Nema hvað - þarna eiga hlustendur að fá að ráða ferðinni, ekkert kjaftæði eða auglýsingar - tekjurnar koma af auglýsingum á netinu og SMS sendingum. Þeir taka nebbnilega þann skemmtilega pól í hæðina að leyfa fólki að velja sjálfu tónlistina á netinu í ansi skemmtilegu kerfi. Tékkiði á síðunni, muzik.is.

Svo verður þetta fært yfir á 88,5 skilst mér. Þeir sem eru klárir að leggja saman 2+2 hafa sjálfsagt tengt þetta við auglýsingaherferðina sem er í gangi á Skjánum (bara þar) sem staðfestir þann orðróm að þeir séu á bakvið þetta. Einnig Silfur Egils og Íslandssímaauglýsingar á forsíðu.

Ég óska aðstandendum til hamingju, þetta er snilldar dæmi. Svo verðum við bara að vona að menn drullist til að velja hardcore/frístæl tónlist.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:54 ::

Tiger Man
::KÍB skeit klukkan 13:33 ::

KFC og útihátíðarsekkir
Ég fór á KFC í gær - táfýlukjúklingar í brauði. Þeir hafa alltaf verið með bölvaða stæla á borð við að selja ekki kók, bara Pepsi (eins og að selja ekki kaffi, bara te) og taka ekki debetkort heldur vera með stóran hraðbanka inni á gólfi hjá sér þar sem fólk fattar að það man ekki PIN-númerið og brestur í grát, töltir svo yfir á Mac því að KFC eru svo mikil frík.

Nema hvað, nú eru þeir farnir að taka debet-kort en bara Vísa. Ég fór semsagt á svona stað í Mosó og þeir vildu ekki sjá kortið mitt og höfðu engann hrabba. Þetta á víst að vera einhver pressa á kortafyrirtækin að láta þá hafa súperdíl. Á meðan riðlast þeir á kúnnanum og senda burtu í hrönnum. Halda svo að allir hugsi; "Kortafyrirtækið mitt sökkar" þegar allir eru í raun að hugsa; "Djöfull er Góu kallinn sem á KFC mikið frík að vera með þessa stæla."

Sendiði KFC mótmælapóst!

Útihátíðarsekkir
Fyndnar týpurnar sem maður sá á KFC í gær. Súrir gaurar með aflitað hár, bólgin augu eftir 3 daga fyllerí. Sumir státa af glóðurauga eða rispu á kinn og eru sérlega stoltir. Flottustu týpurnar eru svona gaurar í skítugum snjóþvegnum gallabuxum og sjóarapeysu með bland í hönd, ennþá á esinu. Þeir eru gjarnan með coverið af svefnpokanum á hausnum.

Tala um: "bla, bla, bla, fullt af dópi, bla, bla, bla, djöfull var ég fullur, bla, bla, bla, djöfull lamdi ég gaurinn í klessu sem pissaði á tjaldið mitt; bla, bla, bla, djöfull nauðgaði ég systur þinni..."

Mér er svosem slétt sama en asskoti er´idda súrt lið.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:32 ::

Forræðisdeila á netinu
Ég veit ekki hvort er fyndnara - bullið í Ívari Páli eða fíflin sem eru að kaupa þetta. Búið að koma í Kastljósi og allt.

Tékkiði á Ívari og Jónínu. Lagið er líka schnilld. (Stilla hátt)
::Hívatha litli skeit klukkan 13:20 ::

3.8.01

Pointið er þetta: Það þýðir ekki að vera með útivistarsvæði sem er bara fyrir þá sem silja sitja á rassgatinu og vera þægir. Þarna þarf hver að geta skemmt sér á sinn hátt í sátt og samlyndi. Hinsvegar má vel vera að ástandið lagist.

Mér fannst rosalega ósanngjarnt að sjá ítrekuð dæmi þess að krökkum og fólki væri vísað frá svæðinu án þess að hafa gert neitt af sér. En þér finnst það semsagt alltílæ og átt rétt á þeirri skoðun.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:15 3.8.01 ::


Fyndið - birti þessa frá stæner með góðri samvisku því ég tók hana nebbnilega.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:06 ::

Allir sáttir nema þeir sem ekki vilja vera það

Hvaða rugl er þetta í þér maður. Ströndin er snilldarhugmynd og prýðilega útfærð. Sterkur leikur í að mynda heilsteipt útivistarsvæði fyrir okkur reykvíkinga. Í alla staði mun skemmtilegri minnisvarði um borgarstjórnina en Perlan og ráðhúsið sem eru einkapródjekt DabbaKrull. Ég á bátt með að sjá hvernig Ingibjörg Sólrún, okkar ástsæli borgarstjóri skal úthúðað þó að e-r krakkar í sumarvinnu hjá ÍTR fari offari fyrstu dagana í nýju vinnunni. Sjálfur hef ég farið nokkrum sinnum þarna með krakka og alltaf haft það mjög gott, algerlega bögglaust. Þetta er bara e-ð sem þarf að slípast aðeins.

Spurning um að halda aðeins aftur af nöldurkellíngunni í smá stund, þangað til reynsla er kominn á fyrirbærið...

O&O
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:58 ::

Útivistarsvæði fyrir sjónvarpsglápara
Snillingarnir í borgarstjórn eru búnir að reisa sér lítinn sætan minnisvarða niðrí Nauthólsvík. Hugmyndin var góð, að reisa ylströnd fyrir Reykvíkinga þar sem maður gæti skoðað skonsur á engum brjóstahöldum og buslað í sjónum. Jafnvel keypt sér ís. Nauthólsvíkin var reyndar baðströnd í gamla daga áður en það voru byggð skólprör niður í fjöru og byrjað að dæla manna í víkina. Þá vildi enginn synda þar lengur því að allstaðar voru lortar fljótandi.

Útfærslan á hugmyndinni var svo sem ágæt. En svo fóru menn að gera OF mikið. Eins og ég sagði við Stæner vin minn um daginn: "Pétur, ekki hugsa of mikið," því þannig verða slysin.

Kveikjan af þessu er sú að ég hef hjólað ansi oft þarna framhjá síðasta árið. Í fyrra voru allir í góðum chill fíling að fíflast. Nú ber svo við að eitthvað valdabrjálað lið frá ÍTR er komið í gæslu þarna með talstöðvar og í gulum jökkum. Eitt kvöldið sá ég á 5 mínútum 12 ára krakka rekna úr sjónum því að þeir busluðu með of miklum látum, sjóþotugaura sem sýndu listir sýnar fyrir UTAN lokaða svæðið rekna út í hafsauga og amast við öllum sem voru að reyna að hafa það gaman.

En fyrir hverja er þá Ylströndin góða. Það varð mér deginum ljósara. Nefnilega gamla liðið sem notar ekki aðstöðuna heldur labbar út á svalirnar þarna fyrir ofan í kvöld-späsinu sínu og segir "Djöfull er þetta nú æðislegt hjá henni Ingibjörgu Sólrúnu."
::Hívatha litli skeit klukkan 13:46 ::

2.8.01

Nýji SNOOP Dog
Nú hefur maðurinn sem setti saman hinn eftirminnilega frasa "bitches ain´t shit but ho´s and tricks" eða tíkur eru ekki skítur nema hórur og mellur verið sigraður af hinum geysiöfluga nýja Snoop...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:33 2.8.01 ::

Veldu rétt
PATH eru samtöku evrópskra ungmenni án fíkniefna, en þau munu um Verslunarmannahelgina gefa ungu íslensku fólki á leið á útihátíðir 20 þúsund sérmerktar hálfslítra vatnsflöskur. Hugmyndafræði þeirra er að minna ungt fólk á að best sé að lifa lífinu og skemmta sér án fíkniefna. Samhliða þessu verður dreift *lol* (laugh out lout) póstkortum sem ungt fólk er hvatt til að senda vinum sínum.

Er alveg málið að vera með svona hrikalega corný boðskap? Fyrsta vímuvarnarauglýsingin sem eitthvað vit var í (frá upphafi) var rifin af strætó af því að hún fór fyrir brjóstið á sömu siðapostulunum og vildu hafa dóplaust land í fyrra. Þá er ég að tala um "Úr hvaða rassi..."

Annars er líka spurning hvort ekki sé bara rétt að fara eftir 71. grein Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands/1944 nr. 33 17. júní um friðhelgi einkalífsins þar sem segir að fólk megi gera það sem það vill svo lengi sem það brýtur ekki á rétti annarra með því. Ég sé ekki að einhver djönký brjóti lög á mér þó að hann sé að sprauta sig með heróíni heima hjá sér.

Dóp-Ísland - sættum okkur við það...



::Hívatha litli skeit klukkan 14:25 ::

Aumingjar
Raftið í Skaftá er á 10 km kafla í fljótinu frá Hunkubökkum að Hótel Kirkjubæjarklaustri. Fljótið er skemmtilegt gráðu 2 og því mjög gott fyrir fyrirtækjahópa og aðra hópa sem vilja skemmta sér með hæfilegri spennu. Leiðin er fögur og miklar sagnir eru um staði á leiðinni.

Aldurslágmarkið er 12 ára. Dísus...

::Hívatha litli skeit klukkan 12:36 ::

Svalt

Tjékk it...

BASEC??
::Hívatha litli skeit klukkan 12:33 ::

Skeitari dauðans er algjört frík
Sko, mér finnst vefurinn fínn eins og hann er núna. Ekki henda drasli sem aðrir hafa gert - gerðu frekar eitthvað nýtt. Það geta allir droppað vinnu annarra.

Þá finnst mér magnað að þér finnist stóri bróðir þinn svo mikill lúser að þú þurfir að verja hann fyrir vonda Scweppes með einhvurjum svívirðingum. Ég hef meira álit á manninum en svo að mér finnist að einhver kretíndvergur eigi að vera að verja hann.

Ekki draga konuna mína inn í þessa umræðu - þú dissaðir hana nóg um daginn. Ég hef aldrei dregið ykkar tzjéllingar á síður þessa sora-umræðuvefs hvursu beyglaðar sem þær kunna að vera.

Hættu svo að bögga mig fríkið þitt.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:27 ::

NÝJUSTU FRÉTTIR!!

LÚÐAR FARA Í RAFTING

Nítján björguðust úr Skaftá
Tveimur bátum ferðaþjónustunnar Tindfjalla hvolfdi með 19 manns innanborðs eftir siglingu í straumharðri Skaftá við Hunkubakka skammt frá Kirkjubæjarklaustri á ellefta tímanum í gærkvöld. Fólkið var starfsfólk á Hótel Kirkjubæjarklaustri auk þriggja leiðsögumanna.

Eftir að öllum hafði verið komið á land var fólkið flutt í félagsheimilið á Kirkjubæjarklaustri þar sem það fékk frekari aðhlynningu. "Það eru allir undir teppum og margir eru enn í sjokki og grátandi," sagði Sveinn. Aðspurður hvort áin hefði verið óvenjustraumhörð sagði hann að hún væri mjög vatnsmikil núna og straumhörð. Björgunarsveitin í Vík var kölluð til hjálpar og þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, fór á vettvang með þrjá kafara innanborðs. Þyrlan var kölluð til baka.

moral of the story: Lúðar og gamalmenni eru ekki hardcore!!

Og svo þurfum við hrekkleysingjarnir að borga fyrir þyrluna.....

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:31 ::

Um vefinn
Fyrst Sveppur er aftur farinn að taka þátt í umræðunni og eiga við síðurnar þá væri ekki úr vegi að hann gerði í leiðinni nokkrar þarfar breytingar.
1) taka burt auglýsingabannerana neðst á öllum síðunum. Sér í lagi helvítis Andríkislinkinn.
2) ávarp ráðherra er steikt. Það var tekið út með vilja VV meðlima. Ástæðulaust að setja það inn aftur.
3) taka burt auglýsingabannerana neðst á öllum síðunum. Sér í lagi helvítis Andríkislinkinn.
4) ef það er mjög mikilvægt að láta síðuna líta út eins og einhver sé að styrkja hana þá væri gaman að setja inn auglýsingu fyrir Coco pops eða Mariachi Nachos eða eitthvað, ekki vefrit hallærislegra pólitískra öfgasamtaka.
5) Síðan væri líka hægt að gera ekkert að svo stöddu og sjá til hvort ekki byggist upp nýr og betri SAMEIGINLEGUR Vonlausi vefur inni á Tripod. Ég hef sterka trú á því og tel að aðrir séu af vilja gerðir til að láta það rætast.

ps. Það eru komnar inn fleiri skemmtilegar myndir úr massaferð WBOS til Danmerkur. Smellið endilega á sniðuga bannerinn vinstra megin eða bara hér.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 09:11 ::

Ég vil endilega frábiðja mér að þurfa að taka þátt í vefumræðu þar sem verið er að metast um ríðingar.
Mér finnst það vera heimsk macho umræða og það bera vott um sterka einkalífskrísu að þurfa að bera fyrir sig kynlífsmagn sem merki um sterkari þjóðfélagsstöðu. Slík umræða er til þess eins fallin að flytja Vonlausa vefinn niður á lægra plan eins og sannast í tilfelli Geirs vinar okkar Ágústssonar sem sannarlega skaut sig í fótinn með því að opinberlega stæra sig af hjásvæfum!
Ljúkum nú þessari umræðu með því að klappa fyrir Svenna sem fær alltaf að ríða og Ásu sem gerir honum það kleift.
*applause*
*applause*
*applause*

Segðu okkur svo endilega meira frá því Svenni einhverntíma í partýi en látum það liggja á milli hluta á vefnum.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 08:56 ::

1.8.01

Umhverfisvinir á Íslandi hafa ærna ástæðu til að fagna!! Þó svo að fullnaðarsigur sé ekki unnin hlýtur þetta að vara skref í rétta átt.
Ég fyrir mína parta tek að ofan fyirr Skipulagsstjóra ríkisins, Það má ljóst vera að hér er á ferð maður með bein í nefinu. Nú er bara að bíða og sjá hvort Dabbi mætti ekki öskuillur í sjónvarpið í kvöld og krefjist þess að embættið verði lagt niður....


Skipulagsstjóri leggst gegn framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun

Skipulagsstjóri hefur lagst gegn framkvæmdum við allt að 750 MW Kárahnjúkavirkjun, eins og hún er lögð fram í tveimur áföngum og fjórum verkhlutum, vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa og ófullnægjandi upplýsinga um einstaka þætti framkvæmdarinnar og umhverfisáhrif hennar, að því er fram kemur á heimasíðu. Skipulagsstjóra. Til grundvallar við ákvörðun hans liggur matsskýrsla Landsvirkjunar og athugasemdir og umsagnir um hana sem borist hafa frá fjölda aðila. Kærufrestur vegna úrskurðar Skipulagsstjóra er til 5. september.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:46 1.8.01 ::

Kæri vinur - ég held að hver sem er gæti verið bitur gaur ef hann hefði ekki fengið að ríða í á annað ár og væri böttaður af Val hval fyrir klink uppi á Höfða á hverjum degi. Ég skil þjáningu þína.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:29 ::

Fokk jú Sindri



::The Satan of Death skeit klukkan 15:18 ::

Þið eruð súru gaurarnir!
::KÍB skeit klukkan 15:07 ::

Er verið að bötta þig voða mikið í vinnunni Svenni minn eða er Ása e-ð vond við þig þessa dagana? E-ð hlýtur að vera að angra þig fyrst þessi óskaplega biturð þarf að finna sér farveg hér á Vonlausa Vebbnum þar sem allir eru vinir og syngja saman.

Brandara-endurvinnslan þín var reyndar ágætis framtak, það var löngu orðið tímabært að e-r bókhaldarinn tæki sig til og reyndi að halda aðeins utanum um allt grín sem við félagarnir höfum verið að segja hverjir um aðra. Það er alls ekki slæmt að það sé þú þar sem þú ert sá bókhaldari sem stendur okkur næst. Má maður þá búast við svipaðri samantekt um aðra Vonleysingja? Ég fyrir mína parta hlakka til að fá frekari sýnishorn af hnittni þinni og orðheppni. Verst að þú skulir ekki geta laumað inn nokkrum af þínum eigin skrýtlum heldur þurfir eingöngu að reyða þig á grín sem aðrir hafa samið. Það er þó engin ástæða til að skammast sín fyrir það, þú kemst bráðum í grín-æfingu ef þú heldur þig við efnið.

Ég vona að ég sé ekki að rífast við þig í þessum pistli því eins og þú veist eru það bara spassar sem rífast á netinu....

Óverendát
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:06 ::

Skabbi er...
  • Skallapoppari/britpoppari
  • Með ömurlegan tónlistarsmekk
  • Formaður veiðifélagsins
  • Alltaf að rífast á netinu => spassi
  • SPUNGE
  • Ógeðslega nískur
  • SPUNGE
  • RassPissiHommi
  • Alltaf kalt => kjélling
  • Talandi um kellingar - aldrei verið við kvenmann kenndur
  • Alltaf kalt = alltaf í úlpu og með húfu
  • Með herpes á nefinu
  • Fleimer
  • Vill ekki hafa typpamyndir af sér á netinu
  • Drepst alltaf fyrstur
  • Á ekki að vera með svona mikla stæla

    Ég óska Skarphéðni alls hins besta í starfi og leik því að ég er ekki bitur gömul kona eins og hann. Þá vil ég sérstakleg óska þeim félögum alls hins besta í hösslinu um næstu helgi.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:46 ::

    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:14 ::

    Vá Svenni maður, takk fyrir að bjarga Vonlausa Vebbnum fyrir okkur!! Þetta var allt alveg ónýtt á meðan þú varst ekki að skrifa, allt alveg glatað, aldrei neinar ferðir eða nýjar myndir eða grín eða neitt!! Við vorum eins og höfuðlaus blogghæna án þín.

    Mitt plan er að fara hvert á land sem er, fylgja góða veðrinu. Persónulega langar mig að gera e-ð aðeins meira hardcore en að klóra mér í rassinum á Þingvöllum og ég held að Giggús sé á sama máli. Við vorum að pæla í Arnarvatnsheiði eða e-ð álíka, það er líka til að dobía af litlum veiðivötnum og sprænum á öllum heiðum landsins, jafnvel hægt að gera smá labb úr ferðinni. Allir sem nenna að mauva e-ð eru að sjálfsögðu gjaldgengir í okkar ferð.

    O&O
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:56 ::

    Bústaður
    Ég get reddað bústað á Þingvöllum á föstudagskveldið fram á laugardag/ld-kveld. Hægt að skreppa út á bát og veiða (ekki). Renis ætlaði að redda spítt bát (þaggi?) Eða heróínbát ;)

    Endurtakið svo þrisvar: Sævar rokkar, Sævar rokkar, Sævar rokkar...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:14 ::

    Skoða eldri færslur >>