30.9.01
Scweppes
Það mun gerast núna fyrir jólin að Afi minn fær umsóknarblað fyrir næsta sumar og því þarf að skila inn í janúar einhvern tímann, þar eð hann ætlar að láta okkur eftir dagana sína, þurfum við að tilgreina hvaða helgi/dag við vildum fá og aðra daga til vara. Svo mun hann beita vogarafli sínu til að fá þessu framgegnt.
28.9.01
27.9.01
Gyllum hefur vakið reiði mína...
...nú neyðist ég til að siga Kúkum mínum á hann.
Gollum hefur vakið reiði mína...
...nú neyðist ég til að siga púkum mínum á hann.
Árshátið Vonlausa hússins/félagsins sem veiðir gæsir.
Allir sem permanece vínið sitt og kaupa meðlæti. Getum síðan hist 13. okt í
söng "þegar við borðum hér og ég er frægur faggi"
Lengi lifi VV
Lausleg þýðing - Á.S.S, löggiltur skjalaþýðandi
Mæltu manna heilastur Gírnir hinn mikli. Sannleikurinn hrýtur af vörum þínum líkt og tærasta vatn af fossi dáðarinnar sem glitrar í geislum kvöldsólar að vori.

The annual jubileum of the Desperate Club of Caza is a fact.
Now all that remains is wine and additional purchases.
Then we can all assemble inside the 13 of October in singing " when one eats here " and " I am faggit famous "
Alive of length the Desperate Club of Caza.
Ahora todas que permanece son vino y compras suplementarias.
Entonces podemos todos ensamblar adentro el 13 de octubre en cantar " cuando se come aquí?" y " soy un faggit famoso "
Vivo de largo el Club Desesperado de la Caza.
Hefði verið til í þetta í fyrra en dagskráin núna sýgur gildan drjóla.
Drasl í rassgötum (flöskur, skot ofl.)
Veiðifasistinn og KÍB hafa ritað bull og vitleysu í mínu nafni til að sverta það og láta hrikta í stoðum alræðisvalds Sólguðarins og Æðstaklerks.
Þeir skulu dæmdir í 100 vandarhögg, skógargangssök og fjörbaugsgarð.
Lifi Knorrfés von Knorr og megi ógurlegt augnaráð hans steikja þá er ekki trúa líkt og kjúklingalæri í ofni. Heill sé sólguðinum sem í óendanlegri visku sinni refsar þeim seku hræsnurum sem reyna að grafa undan valdi hans. Niður með lýðinn. Lengi lifi konungurinn!
Kæru félagar, nú reynir á styrk ykkar ef við eigum að komast úr þessum öldudal sem falsspámaðurinn Híavaþa hefur leitt okkur í. Hundinginn Híavaþa hefur verið dæmdur til þess að vera varpað í dýpstu dýflissu , hlekkjaður með pungklemmum og neyddur til þess að horfa á teletubbies ( telesvennis) allan sólarhringinn. Ástæður þess eru ýmsir glæpir sem falsguðinn hefur drýgt og skulu þeir vera taldir upp nú.
Hann hefur rægt KÍB og gert lítið úr honum með því að líkja öðrum við það nafn
Hann gerst sekur um rit og brandarastuld
Og svo versti glæpurinn, hann vill að faggasveitin Grey boy allstars aka Gay boy allstars spili fyrir dansi í gæsaveislunni.
Hann skal nú hundeltur og hver sem gefur honum grið skal hljóta sömu örlög og hann. Ég sé að ég hef verið alltof linur við ykkur og mun því herða agann og berja ykkur til hlýðni. Þið megið búast við nýjum tilskipunum bráðum.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr, reiði hans er réttlát.
Á síðustu 40 dögum hafa komið tæplega 2000 sessjónir á VV, þar af 1157 einstakir notendur. Nú er VV gríðarlega fjölmennur og eftirsóttur fjélagsskapur en mig rekur ekki minni til þess að við höfum skráð alveg svona marga við síðustu endurskoðun fjélagatalsins...?
KÍB-vísitalan er í sögulegu lágmarki eftir nokkur viðskipti á millibankamarkaði við opnun markaða í morgun
...á að vera skemmtilegur, ekki leiðinlegur. Ég gleymdi að þú varst líka á póstlistanum hans Rikka helvítis reglusoninn þinn. Ég er búinn að breyta þessu og gjéta heimilda svo ekki fari fyrir mér eins og Villa Vill.
Ég kenni um sárri vöntun á reglum um notkun heimilda á vef VV.
Forréttur.
Grafnar gæsabringur að hætti Knorrfés von Knorr vs. afdalagæsabringur ala Veiðifasistinn.
Aðalréttur.
Marineraðar, villikryddaðar og sér valdar unggæsir veiddar á reginfjöllum, bornar til byggða á tveimur jafnfljótum af meðlimum VV. Að sjálfsögðu reyttar af reytingarteymi VV. Ásamt tilheyrandi meðlæti og glöðu geði. (ef ekkert geristi s.s. Sírnir sofnar á Borðeyri, gleymir þessu og allt verður í rusli þegar við mætum)
Eftirréttur.
Gómsætur *** með ljúffengri ***
Skemmtiatriði.
Trúðurinn Prumpi tryllir lýðinn
Tónlist
Greyboy Allstars leika fyrir dansi (ef amazon stendur sig í sendingum)
Vín
Sérvalið rauðvín frá *** með ögn af ***bragði og smá ***
Til þess að sá matseðill sem hér er kynntur, gæti orðið að veruleika, varð VV að ganga um óbyggðar heiðar, synda yfir kolmórauðar jökulár með blautan sunnankárann í rassgatið. Þeir voru meirihlutann af tímanum í döðlum. Þessar ferðir fóru fram á tveimur heimskautum, hinu nyrðra og hinu syðra. Briem Briem Briem var því miður étinn af ísbirni en við vonum að hann mæti.
26.9.01
Pantaði líka 3 diska með Greyboy í dag. Jibbí hvað verður gaman að hlusta á þá...
...ef einhver vildi vera svo vænn að lækka aðeins í viðtækinu þegar einræðisherrann (heill sé honum) talar. Það kemur svo mikið bergmál!
Eitt enn, menn virðast gleyma að hylla einræðisherrann eins og vera ber og munu allir hljóta refsingu fyrir.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr, ljós hans mun skína á rétttrúaða en lampi Skarphéðins mun slokkna og hinir trúlausu vafra í myrkri og kulda.
Ég hef undanfarið haft mig hægan í skrifaum á VV og leyft ykkur að skipuleggja prumpuhátíðina ykkar í friði en nú halda mér engin bönd. Ég vil gera öllu Vonlausa Veiðifélaginu skilmerkilega grein fyrir því að þó að ég hafi sætt mig við ýmis gælunöfn og uppnefni í gegnum tíðina þá er bara einn KÍB ... og það er sannarlega ekki ég. Ég bið þá sem kunna ekki skil á því hver er hver innan þessarar umræðu að verða sér út um greinarbetri upplýsingar þess efnis áður en þeir gera í brækurnar á internetinu.
Takk fyrir og niður með leppstjórnina, sá háæruverðugi sonur sólarinnar von Knorr einræðisherra er fullfær um að stjórna þessu ríki með sinni eigin visku og þarf ekki íhlutun misviturra kóna og til þess.
Kári (KíB) er beðinn um að endurtaka jóðlið síðan á síðustu árshátíð...
Trúðurinn Prumpi (KÍB) mun sýna trúðalæti og fíflagang klukkan 21.00 þegar auka-, aulameðlimir og KÍB2 eru mættir.
Skemmtiatriðið skal vera gríðarlega flott með allskyns trikkum, sprelli, sætri aðstoðarkonu (eða dverg - má vera Fasistinn), og fleira. Þeir sem vilja einnig vera með skemmtiatriði skulu hafa samband við sólguðinn eða æðstaklerkinn.
25.9.01
Kollum von Knorrfés er búinn að lýsa því yfir að óviðkomandi fólk og fjölskyldumeðlimir séu ekki velkomnir á árshátíðinni. Hér er ég ekki að gera neitt nema að tilkynna þá ákvörðun. Þýðir ekki að skjóta sendiboðann...
Er nú farið að skína í göltinn Napoleon undan pilsfaldi Leppsins Kolla Kretínmjaðmar.
Ég er búinn að fá skemmtanaleyfi hjá yfirvaldinu, nú er bara að sjá hvort Sævör sé til í að skipta á vakt við mig, en ég á litla von á að svo verði ekki.
Ég kýs að hunsa listann frá Naflajóni því hann stangast á við raunveruleikan, ætti ég að fylgja honum eftir samhv.3) lið þyrfti ég að henda honum sjálfum og Kolla Leppstjornandanum hans.
Eini staðurinn sem þið gætuð haft nokkur völd væri í bænum Kretinga í Lettlandi.
Árshátíðin er í nánd
1) Árshátíðin verður heima hjá Gírna S.E.
2) Hann getur bara æmt og skræmt við því
3) Hann á að reka allar kjéllingar og annað lið úr húsinu
4) Hann á að láta renna í pottinn
5) Hann á að taka til í eldhúsinu
Viðauki
Sá sem æmtir við þessu skal hljóta 20 vandarhögg
Viðauki 2 - mætingar
Svo mælir Hívaþa litli, æðstiklerkur VV fyrir í óendanlegri visku sinni sem er líkt og ískjaki í kvöldsólinni, falleg og spegilslétt en ógnarstór, dimm og óravíð undir vatnsborði þess sjáanlega.
er hér.
Þessi er flottari en allir hinir til samans. ath að quicktime er svo mikið hommaforrit að maður þarf alltaf að vera að upgrade-a það þannig að líklegast þurfið þið að upgrade-a. Apple sucks dorks.
Þetta eru sjálfsögð mannréttindi!
Þess vegna keypti ég mér Pressukönnu og kaffi þ.a. ég get hellt uppá GOTT kaffi þegar ég er búinn að fá nóg af hinu!
Hér með tilkynnist að hans hágöfgi sólarguðinn Knorrfés og Æðstiklerkur hans, Hívaþa litli, hafa ákveðið að árshátíð Vonlausa skuli vera laugardaginn 13. október. Þeir sem eru á gestalista í matinn eru:
Sólguðinn Knorrfés og spúsa Hívaþa æðstiprestur og spúsa Trúðurinn Prumpi (KÍB) og spúsa Fabían kretíndvergur (engin spúsa) Gírnir Scrotum Elephantisis (engin spúsa) Giggús handpíka (engin spúsa) Bilbó Baggi Brím Brím Brím og spúsa
Eftir matinn eru velkomnir; Sibbi og spúsa, Addi Pu og spúsa, Rúnar og spúsa, Rikki (es), Kaur (os) og hverjir aðrir sem mætt hafa í veiðiferðir með okkur og teljast þ.a.l. fullgildir auka- og aulameðlimir í Vonlausa Veiðifélaginu. Ath. í þessu felst ekki viðurkenning á að Kári sé meðlimur/aukameðl./aulameðl. í veiðifélaginu sem hann er ekki. Bara KÍB
Matseðillinn verður birtur síðar en búast má við gæsum og annarri villibráð sem verður reytt af sólguðinum knorrfés von knorr, bringuskorin af Fab the Cretin og púngmúnuð af Gírni Grulsu ógur-eista. Ætli einhver mamman muni svo ekki matreiða eftir uppskriftinni hans Mullah.
Veiðiferð
Á sunnudeginum verður ekið á veiðislóð og gert tilbúið fyrir veiði mánudaginn 15. október. Skyldumæting.
Skabbi skuldar mér kók!
Viðauki 1 við tilskipun #4, 25. september 2001, eftir sólguðinn Knorrfés von Knorr.
Í fyrstu grein skal segja bleyja í stað blæja.
Æðstiklerkur Hívaþa litli boðar og skal tilskipun þessi taka gildi nú þegar.
Sindri má ekki sjást opinberlega nema hylja rassinn á sér með bleyju.
Nýtt á VV!!! Uppskriftir
Ný tilskipun
Sírnir og Kári mega ekki lengur sjást opinberlega nema hylja andlit sitt með blæju.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr og æðstaklerk Hiavaþa litla , kúgun er af hinu góða.
Hvað er að sjá! valdataka og uppreisn, samsæri og áform um limleistingar.
Ekki að ég vilji styggja Son Sólheima og Æðstastrumpinn hans, heldur aðeins rifja upp samþykktir Vonlausaveiðifélagsins.
Formaður félagsins átti að velja á árshátíð félagsins og var það vonlausasti veiðimaðurinn sem hlýtur þann titil. Nú þykir víst að Kolbrún er búin að vanda sig mikið upp á síðkastið að vera vonlaus veiðimaður og er hann fyllilega að titlinum kominn. En hinsvegar þykir mér hann vera of fljótur að stökkva upp á mjöðm sér og krýna sig.
-Ég vil bara að rétt sé farið að. Því ég vil fyrir alla muni ekki lenda aftur í því að rugla almúgan með rangtitlun, eins og áttisér stað í ST þegar Kolli Ormur titlaði sig Inspector Þriðjubekkingum til mikils hugarangurs.
Svo fer stórlega ýktum sögum af sprengifimi eistna minna. Ég iðka það sem ég predika, í þeim málum. Þrýstingi er haldið jöfnum og í skefjum manually með jöfnu og þéttu millibili. Þessvegna óska ég eftir því að Tilskipun Æðstaprumps verði látin niður falla, í það minsta bíða framkvæmdar þar til eftir árshátíð þegar valdsviðið má viðurkenna á hefðbundinn hátt.
Annars þykir mér orka tvímælis að gefa út tilskipun á hendur þekkts ódæðismanns sem felur sig í afdölum M´Eista Ra Valla.
Heill sé Steina og Olla.
24.9.01
...faðmaðu múhaðmeðstrúarmann!
Skabbi á að naga eistun af Gírna áður en þau springa og slasa fólk.
Það hefur sannað sig í gegnum tíðina að upplýst einræði er hentugasta stjórnarformið. Af hverju eruð þið með stæla? Hvernig haldiði að landið væri ef það væru 12 Skabbar að stýra því?
Niður með kretínið, lengi lifi sólkonungsins og drottnari VV í óendanlegri visku sinni sem teygir sig útyfir ystu mörk hins þekkta heims.
Um næstu helgi ætla ég að veiða hundrað gæsir, éta af þeim gogginn og henda restinni.
NIÐUR MEÐ MULLAH OG ABDULLAH ABDULLAH, TÍKINA HANS!!!
1. Svenni hefur verið skipaður æðstiklerkur VV og hefur rétt til þess að koma með nýjar tilskipanir og einungis ég hef rétt til að afturkalla þær.
2. Það verður að hylla Knorrfés von Knorr og Hiavaþa litla í enda hvers bloggs.
3. Það er bannað að veiða meira en maður þarf.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr og æðstaklerk Hiavaþa litla , þeir eru réttlátir refsivendir VV.
Ég hef ekkert á móti því að matreiða bráðina á fleiri en einn hátt, þegar maður reytir gæsina eru allir möguleikar opnir. En þegar þið trúleysingjarnir sem eru í krossferð gegn góðum gildum innan veiðifélagsins bringuskerið 9 gæsir þá eruð þið búnir skemma ansi mikið. Afsakanir hafa allar verið á þá leið að það sá ákaflega ljúffengt og síst verri en heilsteiktu. Hinn sanna ástæða er hins vegar að þið nenntuð ekki að reyta. I sambandi við rjúpurnar þá er það allt annað mál. Þær eru teknar úr peysunni og kallinn sem verður eftir er notaður í matreiðslu ásámt hjörtum. Þar er ekki um að ræða að kjöt sé að fara til spillis. Það er líka allt í lagi að taka endur úr peysunni. En bringuskurður á gæsum er óþekkt fyrirbæri á gæsum nema í þeim tilfellum þegar gæsirnar eru of litlar. Trúleysingjarnir hafa hins vegar alltaf verið gjarnir á að bringuskera og væla um það í hvert sinn sem reytt er. Þeir tala jafnvel um það svona matter of factly að það sé nú hægt að bringuskera eins og það sé víðtekin venja.
Ég skil ekki afhverju er umræða um þetta samt, þetta er bannað samkvæmt nýjusu tilskipun sólkonungsins og drottnara mannheima. Ég hef ekki gert sjálfan mig að einræðisherra, það var samþykkt og engin mótmæli bárust. Fögnuður fjelagsmann var gífurlegur og grátið af gleði þegar ég var krýndur. Það var löngu búið að sanna sig að þetta rotna og gerspillta lýðræði sem ríkti var að sliga fjelagið og ganga af því dauðu.
Hins vegar líst mér ekkert á þetta agaleysi fjelagsmanna, trúleysinginn og andófsmaðurinn Skabbi gengur laus og Sindri hefur verið dæmdur til að þola 20 vandarhögg vegna vanvirðingar við Knorrfés von Knorr verndara VV.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr, dauði yfir andófsmönnum og trúleysingjum.
Kæri Mullah
Ég sé að þú hefir gert sjálfan þig að einræðisherra VV og hefir látið það verði þitt fyrsta verk að kveða upp herör gegn öllu sem gæti kallast frelsi og sjálfstæði innan þessa fyrrum ágæta félags. Það kveður frekar rammt við þar sem þú ert án nokkurs vafa latasti veiðimaðurinn í hópnum en hvað með það, engin virðist mótmæla þessari valdatöku. Það sem ég ekki fæ skilið er af hverju þú þykist hafa e-ð að segja með það hvernig aðrir veiðimenn innan félagsins meðhöndla og matreiði sína bráð. En hvað með það, engin virðist mótmæla. Þó hef ég nokkrar spurningar sem þú getur án nokkurs vafa frætt mig um að fullu.
Af hverju þykir þér það vanvirða við bráðina að matreiða hana á fleiri en einn hátt? Að reyta gæsir er ekki verk sem ég set fyrir mig. Hins vegar býður það ekki upp á mikla fjölbreytni í eldamennski, raunar er aðeins ein leið fær. Er þó í lagi að reyta gæsina fyrst og skera svo bringurnar af og borða?
Af hverju er í lagi að hamfletta rjúpur en ekki gæsir? Í minni sveit hefir það alltaf tíðkast að reyta rjúpur og éta hverja æta örðu af þeim. Hjá þinni fjölskyldu tíðkast aftur á móti að hamfletta rjúpur og hirða aðeins bringurnar. Ég heimta því hér með að þið feðgarnir setjist niður fyrir næstu jólamáltíð og reytið þessar 20 rjúpur eða svo sem þið étið í jólamatinn.
Hversu oft hefur þú eldað gæs heima hjá þér? Heilsteikt gæs er herramannsmatur en þarf talsverðan undirbúning og tekur langan tíma. Frá því að VV tók til starfa veit ég ekki til þess að nokkur veiðimaður að mér sjálfum undanskildum hafi étið gæs án þess að það hafi verið í vonlausu gæsaveislunni. Allar þær gæsir sem ég hefi eldað hafa verið ákaflega ljúffengar og síst verri en heilsteiktu gæsirnar.
Vonadi sérðu þér fært að svar þessum spurningum sem fyrst.
Valdatíð þín hefir einkennst af stjórnleysi, sleggjudómum og hroka!
Niður með Mullah og hans spilltu stjórnarhætti!!!
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr, hann er sonur sólarinnar og meistari allra dauðlegra veiðimanna.
Nenni ekki að veiða mikið meira vegna áhugaleysis á gæsareytingum. Ég hóta því hér með að bringuskera allar gæsir sem ég veiði hér eftir. (Þýðir það ekki að Kolli reytir þær?)
PS: Guðni flóði!
PPS: Fjaðrirnar undir kerrunni voru eftir að þú reyttir dverghænsnið.
Heill sé þér einræðisherrann Kollum.
Ennfremur vil ég bæta við þetta að það stríðir gegn stofnsamþykktum veiðifjélagsins að veiða svona mikið. Skamm. Og Kobbi, þú mátt alveg reyta allar mínar gæsir ef þú vilt. Sú sem þú reyttir þegar ég var veikur var hreint prýðilega reytt. Takk fyrir það! Og Sindri er smám saman að komast inn í hlutverkið sem reytingamógull félagsins.
PS - pabbi spurði af hverju það væru fjaðrir undir kerrunni...
| Almennt gengi | ||
| Kaupgengi | Sölugengi | |
| USD | 100,92 | 101,44 |
| GBP | 147,65 | 148,41 |
| DEM | 47,30 | 47,59 |
| JPY | ,86 | 0,86 |
| EUR | 92,51 | 93,07 |
| KIB | 141,72 | 42,62 |
Sælir félagar. Nú er Vonlausa Veiðifjelagið statt á miklum tímamótum. Við erum búnir að sjá miklar breytingar á veiðiskap fjelagsmanna, frá því að vera vonlausustu veiðimenn landsins í að vera bara frambærilegir og á köflum frekar góðir veiðimenn, sem tölur frá þessu tímabíli styður. Þetta er náttúrulega hið besta mál, en hættur steðja að. Veiðimenn og þá sérstaklega skotveiðimenn hafa ekkert sérstaklega gott orð á landinu og við höfum margoft rætt um það hvað aðrir veiðimenn séu mikir flóðhestar og hommaveiðimenn. Við höfum líka alltaf talið okkur ekki vera flóðar og mótfallnir subbuveiðimennsku. Við megum ekki gleyma okkur vegna þess að það getur verið þunn lína milli þess að vera góður veiðimaður og argasti flóði. Síðustu fregnir af veiðiafrekum nokkurra félagsmanna hafa vakið upp nokkrar spurningar hjá mér. Skabbi og Guðni fóru ferð góða ferð norður og ég er ekki að taka neitt af því að þeir gerðu góða veiði, en hins vegar frömdu þeir verknað sem ég get seint fyrirgefið. Í mínum huga er staðreyndinn sú að menn geta eða nenna ekki að gera að bráðinni á að sleppa því að veiða hana. Gæsastofninn er á niðurleið og það er bara ofveiði þar um að kenna. Ég verð líka að segja að við eigum ekki að selja bráðina. Veiðimennska er sport, ekki vinna og ef maður staldrar aðeins við og hugsar málið þá er það andskotans enginn veiðimennska að salla niður fugla ef maður nennir ekki einu sinni að gera að þeim eða selur, það er ekkert annað en slátrun. Við erum 5 official veiðimenn í VV og saman erum við núna búnir að drepa 25 gæsir, ég reyndar bara eina og hálfa ( ég skal fúslega viðurkenna að ég hefði ekkert á móti að vera með fleiri), en það gera 5 á mann. Það er bara þokkalega mikið og ef við værum alvöru kommar þá ættum við nóg í góða svallveislu og allir félagsmann gæti boðið fjölskyldu sinni upp á veglegan veislumat. Því miður eru 11 gæsir af þessum eyðilagðar með bringuskurði og við vitum ekki hvað Graðni ætlar að gera við sínar en heyrst hefur að hann ætli að selja.
Ok nú ér ég aðeins búinn að létta af mínu hjarta en oddur minn í þessu máli er bara að við verðum aðeins að staldra við og hugsa okkar gang. Ég hef tvær lausnir á þessu vandamáli. Sú fyrsta er að við setjum okkur einfaldlega tveggja gæsna kvóta á mann á ferð til þess að menn nenni að gera að þeim og sú seinni er að ég skal reyta allar gæsir sem veiðast ef mönnum finnst kvóti óviðunandi vegna þess að ég get ekki þolað það að bráðin sé bringuskorinn.
Heill sé einræðisherranum Knorrfés von Knorr, hann ber hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.
Guðni, aka Giggús, aka Graðni, aka Krulli, aka Durri Skúnkur fór í gay picnic í Mývatnssveit með e-m kalli og felldu þeir félagar 14 gæsir og eina önd. Mega þeir félagar vera stoltir af því en engu að síður gerir þetta fyrri sigra Reykjavíkurdeildar VV að engu. Þetta þýðir það að við hinir verðum að drífa okkur í eina ferð í viðbót og salla niður fiðurféð. E-r hugmyndir að ferð um næstu helgi?
Ég er hættur með þér í hljómsveit. Þú ert leiðinlegur. Pungur þinn er fullur af vessa eftir að litlir líkormar stífluðu allar pípur í honum þegar þú reiðst í kirkjugarði.
Þessi mesti glæpamaður samtímans er með málfræðivillu í nafninu sínu. Auðvitað á þetta að vera Osama ist geladen.
Ívar Páll Jónsson á heimasíðu sinni.
sem ég segi bara umla og tumla you ain´t got no cohones!
Ég öfunda þig bara svo mikið af púngnum þínum. Fyllist minnimáttarkennd. Minn er svo lítill, sérstaklega í hlutfalli við stóra typpið mitt að það er smánarlegt. Það er svo kúl að vera með Scrotum Elephantisis. Það getur kannski einhver fundið mynd af bræðrum hans Gírna frá Afríku?
Svenni hinsvegar fer á kostum í Tryggva röksemdafærlsu og hefur sjaldan verið troðið yfir mig á þennan hátt síðan Giggvi Galú var og hét.
Badbears.com
a) Sírnir er hommi
b) Sírnir er hommi
Þar sem 2 menn virðast ekki vera vissir um hvort Sírnir sé með stóran púng virðist þurfa að koma til opinber könnun á stærð og umfangi vandamálsins. Það hlýtur að vera óhjákvæmilegt að leita til hlutlausra aðila til að takast á við hið tröllaukna verkefni að rúmmálsmæla púnginn, t.d. eftirlitsstofnunar EFTA. Ég veit allavega að ég ætla ekki að koma nálægt púngnum á Sírni í hanging loose fasa og ÞVÍ SÍÐUR í fully intracted fasa. Ég veit hindvegar að Graðni á fiskikar sem er í lítilli notkun sem mætti hálf-fylla af vatni og láta Sírni dýfa nauðrökuðum púngnum í vatnið til að athuga hversu miklu hann ryður frá sér. Alveg eins og Aristófanes forðum. Ekki býst ég við að myndataka sé nauðsynleg enda er Sírnir sjálfur kynfæramyndatökumaður af mikilli ástríðu, jafnt á eigin kynfæri sem annara.
Hvenær er Trúðurinn KÍB með næstu sýningu?
23.9.01
Hinsvegar fer ekkert á milli mála að Kolli ER með stóra mjöðm og Guðni ER (ekki aðeins með eina heldur tvær) píku undir höndunum (eina hvoru megin) Og því ástæðulaust að kjósa um það.
Svo hafa Skabbi og Svenni kosið sinn eigin lið til þess að þeirra mál fái umfjöllun og að ekki sé gert ráð fyrir að misvexti þeirra.
En það er stelpulegt að kjósa sjálfan sig þannig að þau telja ekki og vitað er og víst sannað að Sveppi ER með stóran rass og Skabbi ER með lítið tippi. -Köllum það 13% skekkjumörk-
Nú þá er það mál Sindra, hverjum ég veitti mitt athvæði: Hann er EKKI trúðurinn Prumpi ef einhver væri Prumpi þá væri það annaðhvort Skabbi eða Guðni enda eru þeir frægustu fretararnir og hafa báðir oft kúkað lofti. Sindri er reyndar Trúðurinn KÍB. Vegna miskilnings milli heilahvela uppsetjara auglýsingar fyrir skemmtiatriði hans, og það að hann prumpar mikið í atriðinu, auk þess sem hann (K) (Í) (B) sem hápunkt atriði síns, var hann óvart titlaður Trúðurinn Prumpi.
Hvort kári sé mesti sósubletturin ætti ekki einusinni að koma til tals. Kári er yngstur og minnstur og ef við segjum að hann er mesti sósubletturinn þá ER hann það. Og það eina sem hann getur gert í stöðunni er að æmta og skræmta.
Sem leiðir okkur að því hvort undirritaður beri þunga punga út á langa tanga. - um þetta vil ég fá könnun- en til þess skal séð að kjósendur hafi réttar og marktækar upplýsingar til að vega og meta áður en þeir gera upp hug sinn. Þá krefst ég þess að pungar allra meðlima Vonlausa veiðifélagsins verði vigtaðir um- og rúmmálsmældir, -í hanging loose fasa OG í fully intrackted fasa. Niðurstöður þessara mælinga skal birta á Vonlausavefnum ásamt ljósmynd af umræddum pungum, í báðum fösum - teknum í nákvæmlega sömu fjalrægð frá ystu brún pungsins (punghár ekki talin með, þótt þau telji til vigtar, rúm- og ummáls) og af þessum gögnum skal svo dæmt um það: 1. Hvort Sírnir sé með stóram pung 2. Hver er með stæsta punginn og 3. Hver er með punginn sem Guð gleymdi?
ps. svarið við síðasta lið Hommalegu skoðanakönnunarinnar er:
Þetta er Jónas
21.9.01
Make love - not war
Þið verðið að vera með headphone-a til að heyra lagið! (Skabbi var þá ekki að ljúga eftir allt saman)
Þetta er nú frekar fríkí - erosnudd.com
Og er e-r til í að segja Dindra að reyna að vinna e-ð í vinnunni!
20.9.01
Ógeðslega flotti javascript/php glugginn sem ég stal virkar ekki á tripod. Hann virkar hinsvegar á heimasíðunni minni hjá HÍ (prófið að smella á myndina).
1. Open Word
2. Type the following flight number: Q33 NY (this was the
flight number of one of the planes which hit the WTC).
3. Now change the size of the letter to 26 and
4. Change the lettertype to Wingdings.
Coincidence?
Þegar ég fékk þetta þá var þetta búið að ganga massalengi án þess að neinn nennti að tékka á flugnúmerinu, sem er by the way algjört KRAPP!
Einhver hefur ekkert við frítímann sinn að gera.
Kolli er samt hetja fyrir að hafa hjálpað mér.
Ekki stríða Kolla! Hann var heavy duglegur (þótt ég hafi platað hann í það) að reyta með mér þegar þið hinir báruð fyrir ykkur lélegum afsökunum!
Það er engin ástæða til að kíta svona.
19.9.01
er ekki kominn tími til að taka sig aðeins á?
![]() |
...þegar þú ert heima hjá þér!
Djöfull erum við búnir að vera duglegir í haust, maður fyllist bara stolti...
Myndirnar frá Auðkúluheiði eru loksins komnar.
Þið vitið hvernig það er að vaknaaf einu af þessum djömmum þar sem tekið var ótæpilega á og Sírnir er heima hjá ykkur þegar þið vaknið. Þetta var þannig laugardagsmorgun. Svo þurfti ég að fara og skátanördast. Maður er nú eiginlega aldrei súr, sérstaklega ekki miðað við suma aðra limi vonlausa, en eftir miðjan dag fór að síga á ógæfuhliðina. Sírnir hætti að vera fullur og ég fór að éta paratabs eins og ópal (ekki afsprengi Tjörva þó.)
Gummi spottaði okkur líka strax úti í heimili, enda hlaut hann nafnbótina Navy Seal í þessum málum áður en hann fór á eftirlaun. "Hnuss - hnuss - Af hverjum er kaupstaðarlykt hérna?"
Ergó: Maður var semsagt ekkert stórfenglega upplagður en illa graður að fara í veiðiferð.
Lagt í ´ann
Veiðifasistinn var tekinn að æsast mjög og hafði ég aðeins um 5 mín til að bakka áður en hann var mættur í innkeyrsluna að býsnast yfir því hvað ég væri með mikið drasl. Hehe.
McPenis var líka kominn yfir. Fínt að ferðast með svona drífandi mönnum sem þarf ekki að bíða eftir! Nema hvað - Giggús var svo þunnur að við þurftum að keyra vískípela heim til hans svo hann gæti afrétt sig fyrir partý kvöldsins. Hann kom semsagt ekki með.
Kolli sem oft hefur nú kallað aðra tzjéllingar fyrir að beila á veiði beilaði. Hmmm... tveiiiiiir plús tveeeiiiiir eru jafnt og TZJÉLLING! Þóttist ætla að fá að vita hvort eitthvað væri í túnunum og hringja seinna...?!? Ömurleg afsökun fyrir því að mega ekki fara út. Hann hringdi náttúrulega aldrei.
Sekkur
SKABBI ER ÖMURLEGUR Í RISK
Keyrum uppeftir og hendum gervurunum út á tún. Sáum ekki JónSkít á svæðinu. Pabbi talaði þó um að hafa séð nokkrar á bænum við hliðina eftir að hann talaði við okkur. Húsið þarna er orðið steikt flott, ógeðslega næs að vera þarna. Pottur og allt, þó að verkfræðingnum tækist ekki að koma honum í gang.
SKABBI ER ÖMURLEGUR Í RISK - var ég búinn að segja ykkur það? Ég viðurkenni reyndar fúslega að ég tapaði fyrra riskinu vegna eigin heimsku þegar ég gleymdi að ég þarf að hafa 2 kalla á hverju af 18 löndum til að vinna, tók bara 24 og sagði hehehe. Fífl.
En hinu klúðraði veiðifasistinn fyrir mér og ekki síst sjálfum sér þegar hann ákvað að McRenis Penis með N- og S- Ameríku og Evrópu væri nú miklu minna threat en Svenni Nasisti með Afríku. UURRRGGHHH. Ég býst ekki við að maðurinn eigi nokkurn tíman eftir að viðurkenna að innri röksemdafærslan hafi hlotið eitthvað skammhlaup þarna en það bara var þannig.
...ég hefndi mín á honum með því að hrjóta svo mikið að hann svaf ekki alla nóttina :p
Veiðin
Við heyrðum í nokkrum gæsum um kvöldið, sennilega niðri við á og náðum að smeygja inn nokkrum bjartsýnisstigum við það og dissa Kobba smá.
Morguninn eftir duttu allir í gang á réttum tíma og við vorum komnir út í first light. Veðrið var ótrúlega fallegt, kalt, og sólarupprásin ein sú flottasta sem sést hefur. Ætli maður sé oft úti að horfa á sólarupprásina kl. 5 á morgnana venjulega reyndar? Jæja, við sáum ekkert aksjón lengi vel. Fengum reyndar nokkur álftaflug. Djöfull eru þetta ótrúlega mikil flykki. Þær eru eins og flugvél. Þvílík læti í vængjatökunum líka. Þær sáu okkur engan veginn þannig að við þóttumst ágætlega camóbúnir.
Við biðum aðeins lengur, dottuðum smá, og fengum svo loksins að líta dýrðina. Á sama tíma tóku sig upp ca 150-200 stk frá ánni. Himinninn var svartur af flugum. Öll voru þau á straujinu upp að vatninu. Þær voru allt of snjallar að taka Exodus pakkann á þetta því að þá hafa geltir á borð við okkur aðeins eitt tækifæri. Eitt kom sæmilega nálægt okkur. Þær sáu okkur um leið og við stóðum upp og bremsuðu með fullum loftbremsum. Þetta var alltílæ færi, ekkert spes, ca 8 stk. Nema hvað, við klunnuðum þessu allir. 3 á kjaft og öll geiguðu. Við Gabbi vorum meira að segja að hlunka á sama fuglinn. Enda tókum við skotæfingarnar í sumar ekki jafn mássívt og sum hinna fyrri ára og áttum þetta bara skilið. Eftir þjóðflutningana miklu var lítið að gerast og við ákváðum að kalla þetta dag.
Ég og Gabbi lögðum okkur aðeins en nú bar svo við að fótboltafasistinn var kominn upp í McRenis og rændi hann svefni svo hann fór að skrúfa saman borð. Síðan var bara tekið saman og mauvað. Fín ferð. Rosa gaman og þeir sem mættu ekki eru tzjéllingar. Seinna...
Myndirnar...
Labels: Veiði
Hver ætlar að skrifa ferðasögu?
Pant ekki ég!
Fréttaritari VV náði einstökum myndum af fyrstu samskiptum manna við geimverur. Á myndinn sést ein geimveran rannsaka myndavél fréttamannsins.
18.9.01
Ég verð nú að segja að þessi blessaða fálkaorða er farin að verða algjört PRUMP! Með þessu vil ég þó ekki gera lítið úr þeim sem hafa hlotið hana fyrir að hafa látið gott af sér leiða t.d. þeir sem hafa hætt lífi sínu til bjargar öðrum. Hinsvegar hafa flestir sem bera fálkaorðuna hlotið hana fyrir algjör PRUMPverk.
Hvað hefur t.d. forseti Grikklands gert til að hljóta einn æðsta heiður íslenska ríkisins?
Ég legg til að stofnuð verði ný orða t.d. Hafarnarorðan sem verði einungis notuð þegar einhver hefur sýnt af sér það miklar hetjudáðir að hann eigi skilið lof þjóðarinnar. Með því að stofna nýja orðu er áfram hægt að nota fálkaorðuna sem tækifærisgjöf og þeir sem eiga orðu skilið fá eitthvað annað en prump fyrir gjörðir sínar.
Er þetta eðlilegt?
Það er ekkert mál að lemja og meiða, stela fartölvum og skjávörpum, brenna jarðir aftur og aftur, en þegar kemur að því að rækta hassplöntu á Hvammstanga þá er laganna vörðum nóg boðið.
Ég sef öruggari í nótt, því ég veit að laganna verðir gæta mín og annarra gegn öllum þeim durtum sem stunda ólöglega garðyrkju!
Þökk sé árvökulum laganna vörðum að við erum öll öruggar hér en áður. Ennfremur að menn séu ekki alltaf að vitna til helvítis stjórnarskrárinnar og flagga einhverri "friðhelgi einkalífsins" eða öðru þessháttar kommabulli. Það var náttúrulega svoleiðis hegðun sem leiddi til hryðjuverkanna í Bandaríkjunum, voru þetta ekki helvítis hipparnir sem sprengdu turninn þarna?
Fundu hassplöntu á Hvammstanga
Lögreglan á Blönduósi hafði af því spurnir að í heimahúsi á Hvammstanga væri verið að rækta hassplöntur og var ákveðið að skoða málið í gær.
Lögreglan fékk inngöngu í húsið með samþykki húsráðanda og fann hassplöntu í íbúðinni sem gerð var upptæk. Sá sem stóð að ræktuninni er ekki ,,kunningi" lögreglunnar.
Endurbygging með stæl:
Ég er þessi í grænu úlpunni.....
Bráðum koma myndirnar frá síðustu veiðiferð, þ.e. í Borgarfjörðinn.
Þar sem ég er svo mikill sekkur þá ætlar Skabbi (a.k.a. Matarfasistinn) að taka að sér að skanna myndirnar frá Auðkúluheiði. Veiii!
þetta var bara test herra drepum allt í fæðingu.
Sheriff Brown!
en takk fyrir að tékka á þessu það þarf bara að segja takkanum að virka á hægrigluggan
og svo efast ég um að mikið verði hrært í þessum liðum vefsins þegar komnar eru á það fastar skorður. en vissulega má greina hvern takka í sundur, eins get ég látið þá vera gif en það býður ekki upp á aðra þá flottheita stæla sem hægt væri að hafa. Ég vil annars lítið skipta mér af forrituninni enda hef ég ekkert vit á hvað þið eruð að tala um. En ég mun standa vörð um útlitið, enda held ég að allir séu sáttir við þau skipti. ég skal gá hvort ég geti látið sourceið í flashdæminu sjást einhversstaðar svo hægt sé að breyta linkunum án þess að nota forrit. annars er það fljótgert, hlaðist ekki upp mikið af stórtækum breytingum eftir að nýtt útlit er komið á
nr 1. Linkarnir opnuðust alltaf í vinstri glugganum og
nr 2. Ef linkarnir eru í svona Flash objecti þá getur enginn breytt þeim nema sá sem bjó objectið til.
Svarthvíta myndin sem var sett inn er mjög vel samsett og allt en mér yfirsést það sem er fyndið við að setja andlitið á mér inn í mynd af nasistum. Endilega bendið mér á það.
Og já, ég var að grínast með xml og allt hitt og ég veit að tipod býður ekki upp á jsp, asp og php. Það er rétt svo að þeir bjóði manni upp á að vera með html ef þeir fá að eyðileggja það fyrir manni fyrst í hvert sinn sem þeir birta það. Svo veit ég líka fyrir víst að ef menn ætluðu að gera eitthvað hevví kerfi fyrir VV þá næðu menn rétt að hálfklára það áður menn misstu áhugann eða hefðu ekki tíma. Ég styð ennþá eitt blogg og restina í html ( ég veit að blogg er líka html ). Það eina sem liggur á að gera er að setja htmlið upp þannig að kóðinn verði einfaldur og auðvelt að bæta inn í hann. Þá er líka hægt að breyta útlitinu á einfaldari hátt, öllu í einu stælsjíti.
Heill sé von Knorr einræðisherra og afsakið mig að hafa komið með hugmyndir eftir að fresturinn rann út!
ps. Hvar er annars nýjasta veiðisagan? Ég trúi ekki orði af því sem þið segið fyrr en það er komið í veiðisögu.
er hægt að troða þessari tilraun hér til vinstri?
Nýtt útlit linkatilraun
Og melir þetta er bara test, ég áttiekki til fontinn sem ég legg til að verði notaður í takka og stöff.
ps. Sindri Renis McPenis er ekki Trúðurinn Prumpi. Hann er TRÚÐURINN KÍB
17.9.01
Þetta er bara spúkí!
Við settum fjóra CS-Activ Celeron 4000
örgjörva í hlaðann og poppuðum stakkinn
þrefalt á við það sem var í gamla Cypresnum.
Kannski þessir 2 nýju Ixel Orbitron þekklar
vinni betur með reklasöfnunum í C-ado, en
það gæti líka verið út af nýju MFC útgáfunni...
Við skiptum líka út Diesel fyrir Bensín í
varaaflstöðinni í ísskápnum, hliðtengdum
svo kaffivélina með belgsaum og tvöföldum korki
án aukaefna.
...af hverju kom hann ekki með?
Tvær gæsir lágu í valnum eftir frækna veiðiferð í Borgarfjörðinn. Veiðisagan kemur síðar, en óhætt er að ljóstra upp nokkrum staðreyndum:
Kolli er kellíng!
Guðni er kellíng!
Ég, Skabbi og Sissi erum hinsvegar hetjur fyrir að drífa okkur af stað þrátt fyrir slæmt útlit!
Sírnir er trúður sem fær ekki geisladiskinn sinn aftur fyrr en hann er búinn að skanna myndirnar fyrir mig.
Labels: Veiði
14.9.01
Dæmi um eitthvað sem XML er sniðugt í:
?xml version="1.0" encoding="iso-8859-1"?
order
pizza
hakk 1 /hakk
gularBaunir 0 /gularBaunir
jallapennar 1 /jallapennar
laukur 1 /laukur
/pizza
coke
size 2 /size
/coke
/order
Nú fer að nálgast stundin sem allir hafa beðið eftir. Kretínhamlet verður sett upp með Svenna í hlutverki Hamlet. Textanum hefur hins vegar verið breytt í samræmi við gáfnafar leikara og gefst mönnum nú tækifæri á að heyra hvernig hin fræga 'to be or not to be' ræða er í þessari nýju uppsetningu.
Heimurinn er núna betri staður og ég get farið rólegur að sofa!
Silhouettið þitt er líka voða fallegt! Er annars ekki spurning um að endurhanna útlitið á vefnum frá grunni frekar en að setja eitt og eitt smáaðriði inn í síðurnar sem eru þegar að springa af kóðakraðaki?
Ég vil leggja til að við notum XML og forritum parser í Java til þess að þýða síðurnar og lesa og skrifa í Oracle8 venslagagnagrunn sem keyrir á Unix. Svo væri líklega gott að búa til XSL interface og lesa upp í php síður til að ná optimal hraða á vinnslunni.
Skrifði svo hvort þið viljið helst vera í XML hönnunarhópnum eða forrita Java parserinn. Svo geta líka sumir beðið núna og tekið að sér útlitið á php síðunum síðar á ferlinu.
Veriði nú allir aktívir svo það sé hægt að drífa þetta af!
Virðingarfyllst,
Skeitari VV og framkvæmdastjóri ómeðlimasviðs,
Kári Halldórsson.
Djöfull er fólk mikið fífl.
Ánægður? Búinn að svala réttlætiskennd þinni? Fínt, flott, goooott.
btw. Er ekki "Kanar eru steiktir" commentið svolítið tvírætt?
Ég á slatta af myndum frá hinni fræknu veiðiför VV upp á Auðkúluheiði sem þurfa að komast í skönnun þ.a. hægt sé að koma þeim á netið.
Hvað er með það að grípa til spámanna og djöflatrúar þegar hörmungar dynja yfir?
13.9.01
Geturðu ekki dobblað pabba þinn til að koma upp webcam til að fylgjast með túnunum?
Nennirðu að kíkja í Borgarfjörðinn Renis McPenis?
Eða ertu bara móðgaður af því að ég lagði til að þú gerðir hlutina öðruvísi. Bíddu bara þangað til Kári fer að dissa þig fyrir að vera "einvaldur" og eitthvað svoleiðis...
Fokkaðu þér tíkin þín!
en á í vandræðum með að sofna?
Þetta er lausninn!
Maður segir ekki "þessari síðu verður breytt" eða "þessi síða er í vinnslu." Taktu þær þá frekar út kretínið þitt. Og þú setur ekki myndir inn með annarri en fixed víddinni án þess að breyta henni...
1) Gera almennilegt css stylesheet
TEXTI
LEIÐARKERFI
BGCOLOR
TÖFLUR
Ath - nota bara class - id sem margir eru að nota er BARA fyrir einstakan stíl, ef maður ætlar að nota sama stílinn á mörgum stöðum Á það að vera class
Vil líka benda mönnum á að í töflum:
2) Myndabankann í grunn - flokka eftir ferðum, gaurum stöðum ofl?
3) Nýtt lúkk - hef reyndar ekkert á móti römmunum en mér er alveg sama þó að þetta verði allt include. Hvaða mál er hægt að nota á tripod - php eða asp?
4) Annað?
Er einhver maður í að tékka á Borgarfirðunum kl. 4 og vera kominn aftur kl 7?
í að hjálpa þér, Kolli minn.
Sælir félagar. Í dag mun ég byrja á því að breyta Vonlausa vefnum og verða þær breytingar miklar. Ef einhver vill vera með eða ef einhver mótmælir því þá rennur kærufrestur út klukkan 4 í dag. Einnig ef einhver vill hjálpa mér þá er það mjög vel þegið. Frestur til að sækja um rennur út klukkan 4 í dag. Tillögur eru líka vel þegnar og rennur frestur út klukkan 4 í dag. Ég ætla líka að gera sjálfan mig að einræðisherra yfir Vonlausa Veiðifjelaginu og ef einhver hefur eitthvað við því að segja þá rennur kærufrestur út klukkan 4 í dag. Ég ætla líka að gera mig að vefstjóra og einhverjum líkar það ekki þá rennur kærufrestur út klukkan 4 í dag. Ef enginn hefur neitt út á þetta að setja og engar athugasemdir hafa borist fyrir klukkan 4 í dag þá er það staðfest að Sírnir er hommi.
En í alvöru talað þá ætla ég að byrja á þessu mikla verki á eftir og ef enginn segir neitt þá geri ég þetta bara eftir mínu höfði.
Það er gott framtak að taka skurk í að laga síðuna. Ég vildi helst sjá nýtt look og líka að losna við frames-fítusinn.
Það þarf einhver að taka sig til og uppfæra aflatölu síðuna fyrir árið 2001. Ég er ekki nógu vel inn í aflatölum þ.a. ég hugsa að það sé betra að einhver annar geri það.
Sælir félagar, ég er búinn að færa mest allt af kóðanum yfir á tripod. Margar myndir eru hins vegar ennþá á skati.is. Nú ætti að vera miklu auðveldara að breyta þessum vef og gera hann semmtilegri og meiri lifandi. Hins vegar má enginn nema ég, Svenni og Kári breyta kóða vegna þess að allir aðrir eiga eftir að klunna þessu. Kári þú þarft að taka út bannerana á öllum síðum sem eru undir vonlausa directory. Svo væri líka gott ef þið segið okkur frá ef það eru eitthvað sem er vitlaus linkað vegna þess að allar síðurnar voru með relatívum path en ekki absolút þannig að eitthvað gæti hafa gleymst. Athugið að það stendur til að breyta miklu meira og allir sem vilja geta komið með tillögur nema Sírnir, hann er hommi og má ekki ráða neinu.
12.9.01
Tékka hér...
5 Nostradamusar í dag - meira hjá ykkur? Þetta er soldið skondið, svona soldið eins og hvísluleikurinn. Þetta færist alltaf nær og nær sannleikanum eftir að maður fær þetta oftar + lengist. T.d. er City of Angels orðin að York núna...
Ég er ekki viss um að Blogg sé svo sniðugt fyrir eitthvað sem á að vera til áfram. Blogg er meira svona eitthvað sem má detta fram af síðunni þegar nýtt stuff er komið inn.
Þarna er ég ekki alveg sammála - bloggið er náttúrulega bara html síða og við getum alltaf klippt á naflastrenginn. Þetta verður aldrei það mikið af sögum þannig að málið er að hafa þær allar á sömu síðu. Kostirnir eru að menn geta hent þessu inn sjálfir og veiðisögurnar koma þá strax inn.
Sorrý með myndirnar, ég skal smella þeim inn og formattinu við tækifæri. Annars eru veiðisögusíðurnar í sama formatti og allar aðrar síður á vefnum (nema að andríkislinknum er sleppt) og mér fannst kúl að hafa þetta í samræmi.
Samræmi er gott - sammála. Ekkert mál með pics...
Annars þarf náttúrulega að fara að setja upp nýtt stylesheet fyrir vefinn og þá er ekkert mál að setja svona dót inn í html því að það er ekki svo mikið af þessu.
Dittó
Annað sem mælir gegn öðru bloggi er bara að þá þarf maður alltaf að vera að tékka á tveimur stöðum og síðan verður bara flóknari en VV vefur þarf að vera.
a name="" aðferðin fellur um sjálfa sig því að bloggin detta út af síðunni þegar 10-15 ný eru komin inn enda eru svoleiðis linkar alltaf hálfsúrir.
Þarft ekki að tékka á tveimur stöðum frekar en núna - kemur bara tilkynning á aðalbloggið. Ef allar veiðisögurnar eru inni á sömu síðunni fer þetta ekki í archive og linkurinn breytist ekki. Svo linkar maður bara "veidisogur.html#03" í option boxið og dettur beint á þann gaur sem maður vill skoða. Eða það er hægt að sleppa boxinu alveg.
Ég held að þar sem veiðisögurnar eru eitthvað sem á að haldast inni um ókomin ár og gott að geta leitað að ákveðnum sögum þá sé betra að gera þetta bara í html enda verður þetta ALDREI meira en einu sinni í viku sem þarf að uppfæra það. Jsp eða php síður væru náttúrulega snilld en það er ekki að fara að gerast.
Ég segi: "setja veiðisögurnar í VV bloggið þegar þær eru ferskar og setja þær svo í statíska síðu til að geyma þær um aldur og ævi".
Any other bright ideas ??
Ég held að það sé snjallara að henda þessu inn á blogg - gerist hraðar og það er ekkert mál að formata þá síðu að vild. Svo getum við bara mokað þessu inn á static síðu einu sinni á ári eða eitthvað þannig.
heitur fyrir veiði...
farinn heim að sofa!
Ein spurning að lokum: Hvað eruði búnir að fá nostrdamusinn oft síðustu 5-6 tímana?
a name="" aðferðin fellur um sjálfa sig því að bloggin detta út af síðunni þegar 10-15 ný eru komin inn enda eru svoleiðis linkar alltaf hálfsúrir.
Ég held að þar sem veiðisögurnar eru eitthvað sem á að haldast inni um ókomin ár og gott að geta leitað að ákveðnum sögum þá sé betra að gera þetta bara í html enda verður þetta ALDREI meira en einu sinni í viku sem þarf að uppfæra það. Jsp eða php síður væru náttúrulega snilld en það er ekki að fara að gerast.
Ég segi: "setja veiðisögurnar í VV bloggið þegar þær eru ferskar og setja þær svo í statíska síðu til að geyma þær um aldur og ævi".
Any other bright ideas ??
Mér finnst að við eigum að búa til annað blogg fyrir veiðisögurnar og hætta þessu HTML bulli. Sammála? Þá lendir það ekki á einum að gera þetta. Einnig er hægt að fara leiðina sem ég notaði, að skíra veiðisöguna með a name="" og vísa þannig í hana í option boxinu. Mér líst samt betur á fyrrgreindu leiðina.
Svo finnst mér reyndar að formatið á greininni og myndirnar hefðu átt að halda sér - ekkert mál að copy-a það úr greininni.
Nostradamus quoteið kom ekki inn strax.
Eitt sem ég ætlaði að spyrja ykkur í gær: finnst ykkur veiðiferðasögurnar eiga að vera svona hver á sinni síðu eða ætti ég frekar að setja þær margar saman svona eins og Veiðisögur 2000 síðuna?
11.9.01
"The third big war will begin when the big city is burning"
Nostradamus
Þá er friðurinn úti. Ég segi bara eins og Bubbi: "Við munum öll, við munum öll, við munum öll - deyja."
Hrikalegt að maður skuli vitna í Búbba á ögurstundu...
Búið að setja inn ferðasögur síðustu tveggja helga. Ví!
Vinnurðu ekki fyrir Landsímann? Ég ætla allavega að kaupa bjór. Þeir koma með 7,9% ávöxtun ;)
If you had bought $1,000 worth of Nortel stock a year ago you would
currently have $47.00.
If you had bought $1,000 worth of beer in the USA (where cans have a
return value) you would currently have $79 worth of EMPTY beer cans.
Sell Stocks. Buy Beer !
Snæfellsjökull hefur hopað talsvert á síðustu árum í kjölfar snjóléttra vetra og virðist kunnugum hann nú vera með minnsta móti. (Argh!)
Að sögn Tryggva Konráðssonar, (héreftir nefndur hálfvitinn) sem rekið hefur ferðaþjónustu á Snæfellsjökli í áratug, hafa síðustu þrír vetur, sérstaklega næstliðnir tveir vetur, verið afar snjóléttir. Hálfvitinn segir það skýra hversu jökullinn hefur dregist saman. Sem mælikvarða á ástand jökulsins nefnir Hálfvitinn að þegar hann hóf að aka með ferðamenn á jökulinn um miðjan maí í vor hafi verið lagt upp frá stað sem venjulega væri lagt upp frá einum og hálfum mánuði síðar á sumrinu eða í byrjun júní. Samt sagðist hann rukka ferðamenn um 3.000 krónur fyrir að hossast í þrjú kortér á hörðum trébekkjum. Hann gleðst yfir þessari þróun enda hefur slit á vélum og noktun á olíu minnkað til muna en hið óraunhæfa verð helst.
"Maður er bara orðinn jafn grófur og olíufélögin," segir hann og hlakkar í honum. "Svo ríð ég þeim náttúrulega í rassgatið ef þau gista á tjaldstæðunum hjá mér." Hálfvitinn vonar að jökullinn minnki enn frekar svo að hann græði enn meira. Að sögn Hálfvitinn yrði líka auðveldara að meina almenningi umferð um jökulinn ef hann væri á stærð við fótboltavöll.
"Ég á reyndar ekkert með að koma svona fram þar sem jökullinn er náttúrulega ekki eign neins og öllum frjáls umferð um hann. En maður verður nú að amast við þessu Íslendingapakki. Ef jökullinn minnkar nægilega mikið get ég sett upp skilti í kringum hann og bannað fólki að labba á honum. Þá verða allir að verzla við mig."
Þá segir Hálfvitinn að með hverju árinu hafi þurft að hætta akstri með ferðamenn á jökulinn fyrr á haustin vegna hættu af sprungum. Í ár hafi ferðum verið hætt 24. ágúst, en árið þar áður ekki fyrr en um mánaðamótin ágúst september og í hittifyrra ekki fyrr en um miðjan september. Þrátt fyrir þá stöðu sem nú er uppi er Hálfvitinn bjarsýnn á að Snæfellsjökli takist að rétta sinn hlut. Hann telur að ástandið á jöklinum hafa verið svipað fyrir áratug og það er nú. "Það þarf ekki nema einn almennilegan snjóavetur til að jökullinn nái fyrri stærð," fullyrðir hann.
Helgi Björnsson, vísindamaður hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, segir ástæðu fyrir rýrnum jökla á síðustu árum fyrst og fremst vera minnkandi snjókomu á vetrum fremur en sumarhlýindi sem áður hafi verið helsta ástæðan. Raunvísindastofnun sjálf fylgist ekki náið með Snæfellsjökli. Hins vegar skýrði Hallsteinn Haraldsson á Gröf, sem tók við mælingum á jöklinum af föður sínum, stofnuninni frá því árið 1999 að Hyrningsjökull, sem gengur út úr Snæfellsjökli, hafi þá verið farinn að þynnast verulega þó það hafi ekki birst sem mikið hop. Fréttablaðið náði ekki tali af Hallsteini í gær en hann mun hafa verið á jöklinum um síðustu helgi og gert á honum mælingar sem leiddu í ljós að Hyrningsjökull og Jökulhálstunga hafa aðeins hopað óverulega frá því í fyrra en að svo virðist sem jökullinn haldi stöðugt áfram að þynnast.
"Þetta gerist alltaf hraðar og hraðar. Ef veðráttan heldur áfram svipuð og hún hefur verið síðustu fimm árin, ég tala nú ekki um ef það hlýnar eins og margir spá, þá verður verulega farið að sjá á stóru jöklunum í lok þessarar aldar og margir smájöklar munu hreinlega hverfa," segir Helgi. "Ég vil einnig nota tækifærið og lýsa frati á Hálfvitinn, en hann er algjör okrari og eitthvað skrýtinn í hausnum að koma svona fram við ferðamenn á svæðinu."
10.9.01
...er ekki prenthæf og verður að segjast í góðra vina hópi.
Strákurinn hans Gírna
Benjamín Logi var í góðum gír á Café París að súpa Café Au Lait þegar blaðamaður Vonlausa náði í skottið á honum. Hann sagðist aðspurður fíla Ísland og gæti vel hugsað sér að kíkja hingað aftur. Var í góðum gír og lét gesti staðarinn njóta hinnar hljómþrungnu raddar sinnar er hann tók nokkur erindi úr sænska þjóðlagabálknum "Jette brå."
Að sögn Benjamíns Loga þarf hann að fljúga aftur heim á morgun til að halda tónleika í Gautaborg á miðvikudaginn. Að lokum klykkti hann út með að segja: "Ég hef mikinn metnað til að gerast aukameðlimur í vonlausa og jafnvel fullgildur limur í fyllingu tímans. Vonlausa rokkar!"
Um helgina kíkti ég vestur og veiddi aðeins þar. Mætti á svæðið eftir brilliant innflutningspartý hjá Johnny Spunge á föstudagskveldið (þar sem hann meðal annars braut vaskinn sinn með rassgatinu þannig að vatn sprautaðist út um allt).
Við Ása komum þarna um 4 leytið. Þá voru á að giska 150 stykki af gæs (kannski fleiri) í túninu fyrir innan húsið. Ég startaði rafstöðinni og henti dótinu inn og rúllaði svo inn í dal. Veiddi 3 silunga á veiðistaðnum við Selið (litla kofann) af klöppinni á mjög stuttum tíma. stærsti var 2 pund. Vildi ekki eyðileggja staðinn þannig að ég hætti eftir það. Þarna er oftast silli en gaf sig samt ekkert um síðustu helgi. Veiddist reyndar ekkert þá. Það sem af er hefur komið 1 lax og tæplega 100 silungar. En áin byrjar náttúrulega ekki fyrr en í byrjun ágúst. Síðan tíndum við slatta af bláberjum sem eru hlunkstór þarna.
Síðan var grillað og ég grillaði 2 af silungunum. Henti út gervurunum og svo var náttúrulega farið alltof seint að sofa.
Gæsamauv
Eftir ca. 2 tíma svefn drullaðist maður á labbir með hausverk og magaverk osfrv. Eyfi opnaði hurðina fram á gang um leið og ég - 5.000 frípunktar til hans fyrir að vakna. Skabbi lánaði galla og rússneska einhleypu svo að hann gæti gerst aukameðlimur í vonlausa. Síðan röltum við út í bunker.
Félagarnir eru búnir að byggja snilldarbunker þarna. Hann er niðurgrafinn með þaki og er það tyrft. Pallettur í gólfinu svo að það lofti undir. Þarna er algjör snilld að vera, enda var ég algjör veiðifasisti og húkti þarna í 5 klukkutíma.
Veðrið hafði breyst til hins verra, orðið lágskýjað (hálfgerð þoka) og rigndi. Við komum okkur fyrir og biðum. Ekkert gerðis fyrr en amk. eftir 6.30. Þá fór einhver hreyfing að koma á liðið. Quickening varð ekki hjá öllum hópunum sem voru þarna en það var ágætis hreyfing í gangi á tímabili. Það var frekar seint. Það lítið var í gangi að nýjasti aukameðlimurinn í Vonlausa náði góðum lúr og sýnist mér að hann sennilega verða eftirsóttur veiðifélagi af McRenis.
Skemmst er frá því að segja að einhverra hluta vegna voru gæsirnar bara á flakki í hlíðunum sitt hvoru megin í dalnum á berjamó. Höfðu greinilega engan áhuga á að fara í túnið. Við náðum að plata tvær gæsir til okkar (með vinkilbeygju og öllu) en þær komu bara í frekar leiðinlegt færi. Ég stökk á fætur og pundaði á þær en hef líklega hrætt Eyfa meira en þær. Þær flugu allavega í burtu. Vona bara að þær hafi sloppið ómeiddar.
Síðan tók mikið af gæsunum sig upp úr hlíðunum eftir að lítið akjsón hafði verið og flugu upp á heiði. Eftir það var eiginlega bara njónaraumferð og stöku flækingur. Einn slíkan náði ég að gabba eftir að Eyfi gafst upp og gat þá drullast heim. Þá var klukkan orðin 10 en við vorum mættir í byrgið kl. 5. Þessi var bara eitthvað ein að dúlla sér og ég kallaði á hana. Hún kom og lenti beint fyrir framan mig. Hún hafði verið á blindu svæði, þ.e. var að fljúga á svæði sem ég sá ekki út úr byrginu en ég var að kvabba á móti henni. Svo birtist hún bara allt í einu eins og þyrla fyrir framan mig. HLUNK. Mér fannst eiginlega hálf asnalegt að skjóta hana svona á jörðinni. Fannst eins og það hefðu liðið 5 mínútur meðan ég var að miða á hana og allt það (þó að það hafi sennilega verið nær 5 nanósekúndum). Hún var ekkert að kveikja á aðstæðunum.
Það sem eftir var dags var nánast ekkert um gæs í dalnum. Þær hafa skellt sér í berjamó upp á fjall. Enda var mjög milt veður. Þarf sennilega bara smá frost. En staðurinn er hreinasta snilld. Gæsirnar eru orðnar vanar að sjá bunkerinn og svo sest maður þarna í myrkri - engin breyting fyrir þær.
Aðeins 1 silungur kom á land þennan dag þrátt fyrir að margir væru að reyna. Það var Dagur sonur hennar Evu Eyfa. Nokkrir laxar sáust á efra svæðinu og ég held að við þurfum að drulla okkur og tékka aðeins á þeim og gæs. Nú fer bestasti tíminn þarna í hönd.
Labels: Gæs
7.9.01
Er ad chilla i Rom. Erum buinn ad skoda fullt af doti t.d. Colesseum og Vatikanid. Var reyndar fyrir gedveikum vonbrigdum af thvi ad eg hitti ekki Steina Pepp i Vatikaninu. Verdum her fram a Sunnudag og forum tha til Florens, kem sidan heim a midvikudaginn.
Hilsen, Sindri
Nokkuð gott - djöfull hlakkar mig til
Eftir það kostar það móttakanda 5 kall - spurning hvernig það leggst í menn ef þeir fá SMS sem þeir vilja ekki fá, t.d. frá auglýsendum, og borga brúsann...
Landssamband stangaveiðifélaga gengst nú fyrir undirskriftasöfnun gegn
sjókvíaeldi á erfðabreyttum norskum laxi við Íslandsstrendur. Áhugasamir
smelli sér inn á www.lina.is og skrái sig á listann.
Sírnir reit; "Hverjum er ekki stolt í brjóst borið af framleiðni afkvæma sinna?
Ég get bara skilið þetta á einn veg - er Danni búinn að barna einhverja gellu á leikskólanum? Góður - sleppur við skemmtanaskattinn þangað til krakkinn verður 12 ára + getur deitað vinkonur hans ef það verður stelpa!
Kannski væri ráð að gera annann svona borða til að æfa sig í kvennafari? Því sögurnar úr mínum veiðilöndum eru vorkunsamar miðað við gæsamoksturssögurnar af ykkur byssubófunum... ah reyndar eru þær bara vorkunsamar, hvað sem miðað er við.
Jæja en ég er ósofinn ataður grænu púlti í mömmó, reyni að koma því við að þið fáið að sjá minn fína afrakstur áður en hann fer aftur til síns verndaða þjóðfélags á þriðjudaginn.
6.9.01
Brilljant veiðisaga Gabbi! Menn ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar...
Svo ég svari spurningu þinni - nú éta þær auðvitað...
Það stefnir í met gæsaveiði hjá Vonlausa Veiðifjelaginu í ár. Það sem af er tímabilsins hafa skotvissir limir VV fellt 12 fugla, 15 ef með er taldir utanaðkomandi aðilar í veiðiferðum. Það er því allt útlit fyrir að sú fornfræga hefða að halda gæsaveislu til að gleðjast yfir góðri veiði verði endurreist nú á haustdögum. Enda eru eflaust margar góðar gæsaferðir eftir.
Síðast Vonlausa Veiðiferðin var farin norður í land á vegum fasistadeildar VV, nánar til tekið í syðst Bárðardalinn, alveg upp við Sprengisand. Þar eru gríðarstórir flokkar heiðagæsa á sveimi á hverju hausti og var engin undantekning á því í ár. Erfiðara getur hins vegar reynst að nálgast fuglinn enda styggur með eindæmum og landslagið bíður ekki upp á vænlega veiðistaði nærri alfaraleið. Ferðin var því aðallega farin til að kynna sér aðstæður í dalnum og hvort e-r möguleiki væri á að nálgast gæsir.
Þegar fasistarnir komu á staðinn um kvöldmatarleytið gátu þeir að sjálfsögðu ekki beðið eftir að komast út í veiði og ruku beinustu leið niður að á, hvar sagan segir að stundum fljúgi gæsir yfir þegar skyggja tekur. Í stuttu máli sagt þá sátu þeir á malarhaugi í 3 tíma án þess að heyra svo mikið sem tíst í gæs og voru því heldur vonsviknir þegar þeir skriðu í bæ. Ákveðið var (að hætti fasistanna) að taka morgundaginn eldsnemma og reyna fyrir sér við ársprænu eina, alllitla. Risu veiðimennirnir úr rekkju klukkan 4 að staðartíma, skófluðu í sig kaffi og kanilsnúðum og héldu af stað út í myrkrið á jebbatröllunu hans Giggsa. Ekki vildi betur til en svo að þeir tíndu slóðanum sem þeir áttu að fylgja niður á sprænunni, þurftu að skilja við bílinn og labba í hálftíma áður en þeir komust að staðnum. Þar var gerfigæsunum raðað upp og fasistarnir skriðu undir barð til að bíða komu gæsanna. Gangan hafði reynst Graðna um megn þannig að hann var sofnaður á sínu græna eyra skömmu seinna. Aflaklóin stóð vörð á meðan en gafst fljótlega upp enda var ekkert líf á svæðinu. Ráfaði hann því um svæðið í fullkomnu eirðarleysi, svona til að tryggja það að allar gæsir sem kynnu að nálgast myndu örugglega verða varar við mannaferðir. Eftir ca. klukkutíma var the Kike vakinn af værum blundi og þar sem ekkert var að gerast var ákveðið að fara í smá könnunarleiðangur upp að vatninu sem sprænan rennur úr. Þar uppfrá var talsvert meira líf en niðri víð ána en allir hópar gæsa sem sáust flugu hátt og stefndu langt, langt í burtu.
Enn súrari voru því veiðimennirnir sem skriðu í bæ um 10 leytið og mættu vorkunarfullu augnaráði ábúenda."Hvað eru líka fullfrískir menn að eltast við gæsir upp á reginheiði. Þeim væri nær að eltast við gæsir heima hjá sér, ófleygar!" Slík var trúin á fasistunum eftir tvær misheppnaðar tilraunir til að nálgast fiðurfénaðinn.
Eftir stuttan lúr bar góðan gest að garði. Þar var kominn Haukur frændi af næsta bæ og var hann í vígahug eftir að hafa fellt væna gæs í túnfætinum hjá sér með hnitmiðuðu riffilskoti. Ákváðu fasistarnir að slást í lið með þessum frækna veiðigarpi eftir hádegið og rölta um veiðilendurnar í leit að góðum veiðistöðum. Flokkurinn hélt því af stað suður eftir túnunum. Ekki höfðu þeir gengið lengi þegar þeir sáu nokkra gæsir standa utaní litlum hól og teigja fram álkuna fyrir utan ysta túnið. Veiðimennirnir stukku því allir sem einn ofan í næsta skurð og skriðu eins og ormar niðurfyrir túnin og hlupu svo undir brekkunni í átt að gæsunum. Án þess að vera vissir um hvar gæsirnar höfðu setið réttu skytturnar úr sér við lítinn hól og viti menn, í 10 metra fjarlægð stóð hópur 8 gæsa. Báðum hópum virtist bregða jafnmikið en þeir sem vopnin höfðu tóku að skjóta á hinn. Endaði viðureignin með því að 4 gæsir lágu í valnum en veiðimennirnir voru allir heilir. Giggús fékk vægt áfall þegar hann gerði sér grein fyrir því að að hann hafði skotið nokkrum skotum í áttina að kellíngu sem var í berjamó skammt frá og reyndist vera mamma hans Hauks frænda. En það er nú ekki góð veiðiferð ef Graðni fær ekki áfall e-ntíman ferðinni. Það sem eftir lifði dags var Haukur frændi enda sífellt að minna Guðna á að hann hefði næstum skotið kellínguna og hló hrossahlátri í hvert skipti á meðan Giggús bara roðnaði ofaní tær.
Nú tók við löng ganga suður í skóg og upp á dal. Allan tíman á meðan gengið var voru gæsir að fælast upp, stundum stórir hópar stundum litlir og stundum RISAstórir. Flestir flugu þeir upp í órafjarlægð en þó var einn sem stökk upp rétt hjá veiðimönnunum en þá var Aflaklóin í miðri sögu sem hinir voru að fylgjast með af athygli og urðu því gæsanna ekki varir fyrr en allt of seint. Ekki féllu fleiri gæsir þann daginn þó svo að hópurinn hefði ekið og gengið dágóðann spöl um kvöldið í leit að heppilegum kvöldflugstað.
Um kvöldið var ákveðið, með hálfum hug, að henda út gerfigæsunum á syðsta túnið og liggja það í skurði um morguninn. Aftur skyldi vaknað klukkan 4 og ekki vera mættir í skurðinn seinna en klukkan 5. Það gekk eftir en það voru gallsúrir veiðimenn sem skriðu ofan í skurðinn um 5 leytið morguninn eftir. Þá var aðein tekið að birta af degi og stutt í "the quickening". Til að gera langa sögu stutta reyndist það mikil happaákvörðun að leggjast í túnið því skömmu eftir að birta tók kom fyrsti flokkurinn fljúgandi inn yfir túnið. Það var skemmtilegt að fylgjast með fuglunum svara flautinu og beygja í átt að gerfigæsaflokknum. Úr því flugi féllu 3 fuglar. Skömmu seinna kom annar hópur sem hafði látið narrast af flautinu og gerfurunum og úr honum féllu 2 fuglar. Eftir seinna flugið fór verulega að hægja á umferð fugla. Nokkrir stórir hópar sáust á háflugi en enginn þeirra lækkaði sig til að spyrja gerfigæsirnar tíðinda. Veiðmennirnir héldu því heim um morgunverðaleytið með 5 fallegar heiðagæsir í farteskinu.
Þar með höfðu fasistarnir og Haukur frændi öðlast virðingar sveitunga sinna á ný enda þykja það tíðindi þar á bæ ef mönnum tekst að fella 9 fugla með haglabyssum að hausti.
Eftr hádegi var gerð ein árangurslaus tilraun til að nálgast stóran hóp grágæsa sem sást til út í móa en þær voru of varar um sig og tók flokkurinn, sem reyndist gríðarstór, sig allur upp í einu. Tignarleg sjón.
Í alla staði frábær ferð, gott veður og fín veiði. Fasistarnir eiga þó Hauki frænda mikið að þakka enda þekkir hann svæðið ólíkt betur en borgarbörnin.
Þá er bara að fylgja þessari ferð eftir og ég vona að þetta sé aðeins til að æsa upp veiðihuginn í Kobba og Sveppa fyrir vestan um næstu helgi.
Góða veiði strákar mínir
P.S.
Hvað ætliði eiginlega að gera við allar gæsirnar sem þið veiðið?
Labels: Veiði
A-team ætlar á Kobbabúðir en GAY-team ætlar að skeina sér í bænum. Þrátt fyrir að við höfum reddað fegurðardís fyrir þá. En ætli það hefði ekki gengið betur að draga þá með ef við hefðum fengið Ricky Martin. GAY-tím skeinir!
4.9.01
...eggjahommi!
Um hvað ertu að tala?
Sagan segir að þeir kunni meira að segja dvergadansinn! Tjékk itt át...
(Minneapolis, MN, July 12, 2001)?When extreme surfer Laird Hamilton goes tow-in surfing, he insists that only the most reliable and best handling watercraft tow him to the brink of the immense ocean waves he challenges. That?s why he is towed exclusively by Polaris watercraft. More importantly, if he crashes, the quick reliable Polaris can swoop in and rescue him quickly before the next big wave crashes in.
Polaris and Hamilton have formed a partnership in which Polaris provides the world-class surfer with its powerful watercraft and Hamilton represents the watercraft division as a spokesperson. ?When Laird goes tow-in surfing, the waves are so large and dangerous his life is on the line. He gets towed in to the world?s biggest waves and Laird knows he can rely on Polaris watercraft to help him reach those big waves as well as retrieve him if he gets into trouble?, said Dan Schroepfer, Polaris Watercraft Product Manager. Hamilton helped pioneer the sport of tow-in surfing when he and fellow Polaris Watercraft rider Darrick Doerner used a small boat to tow them to large waves breaking far from shore. He went on to develop tow-in equipment such as surfboards with foot straps, and he is now renown for superb design and innovation. He has been towed by all types of vehicles and has determined that Polaris Watercraft are the best choice for the demanding sport of tow-in surfing. ?Laird and his partners love Polaris Watercraft because they have the power, stability, handling, and of course the reliability to deliver outstanding performance in the big surf a mile from shore,? said Schroepfer.
Hamilton is a native of Princeville, Kauai, Hawaii, and is the son of legendary surfer Bill Hamilton. He is an all-around waterman who rides tow-in surfboards, shortboards, longboards, paddleboards, kite surfboards, and fly surfboards. He windsurfs, body surfs, kayak, and rides Polaris watercraft.
He has been called ?the Chuck Yeager of experimental surfing" and in 1990, he crossed the English Channel on a surfboard. He hosted the extreme sports TV show ?The Extremists? (1996-97), has appeared in films such as ?Endless Summer II,? ?North Shore,? and ?Waterworld,? and stars in the new extreme sports film ?Liquid.? People magazine named him one of the 50 most beautiful people in 1996, and he won the 2000 espn2 award for most extreme sports performance.
Hamilton is known for chasing big waves off Maui at a site called ?Jaws,? and in August 2000, he rode a monstrous wave approximately 30 feet high at Teahupo?o, Tahiti. Moments later another ?rogue? wave rolled in and Hamilton rode that one, too. Surf forecaster Mike Perry called it ?absolutely the most amazing surf I have seen in 40 years." Hamilton?s rides that day were captured on video and have been widely distributed on the internet, heightening his worldwide stature as the greatest extreme surfer in his history. Information about the complete line of Polaris products is available from authorized Polaris dealers or from the Polaris home page at www.polarisindustries.com.
Polaris designs, engineers, manufactures and markets snowmobiles, all-terrain vehicles, Victory motorcycles, personal watercraft, and the Polaris RANGER for recreational and utility use. Polaris is the largest snowmobile manufacturer in the world, and one of the largest U.S. manufacturers of ATVs and personal watercraft. Polaris also enhances the riding experience with a complete line of Pure Polaris apparel, accessories, and parts available at Polaris dealerships. Consumers can also purchase apparel and accessories around the clock online at www.polarisindustries.com. Polaris Industries Inc. trades on the New York Stock Exchange and Pacific Stock Exchange under the symbol "PII," and the company is included in the S&P SmallCap 600 stock price index.
Hvað kemur það meðlimum vonlausa við að sjá aldargamlar fréttir um einhver tæknimál?
-umsátur í þrjá tíma á Tómasarhaganum
Lögreglan handtók tæplega fimmtugan heimilisföður á Tómasarhaga í Reykjavík í gærkvöldi eftir þriggja klukkustunda umsátur um heimilið. Skotvopn voru á heimilinu og var maðurin talinn líklegur til að beita þeim.
Æði hafði runnið á hann og hann haft í hótunum við fjölskyldu sína, sem flúði húsið ásamt öðrum íbúum þess. Maðurinn gaf sig á vald lögreglu eftir að
sérþjálfaðir samningamenn á hennar vegum höfðu talað hann til. Hann var talinn ölvaður.
Lögreglan var kvödd til á sjötta tímanum í gærkvöldi en þá var fjölskylda mannsins flúin að heiman vegna ástands hans. Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík, sagði í samtali við Fréttablaðið að vegna þess að vitað var að maðurinn átti riffla og haglabyssur hefði verið gripið til þess ráðs að loka af nærliggjandi götur meðan á umsátrinu stóð. Það hefði verið gert til að tryggja öryggi lögreglumanna og nærstaddra borgara. Víkingasveitin var ekki kölluð út heldur voru menn úr lögregluliði Reykjavíkur, sem jafnframt eru í víkingasveitinni og voru á vakt, að störfum á vettvangi, auk fjölmargra annarra lögreglumanna. Maðurinn gafst upp eftir langvarandi símtöl við lögreglu um klukkan 20.15 í gærkvöldi. Áður hafði hann lagt skotvopn sín á tröppur hússins.
Lögreglan lokaði af nærliggjandi götum meðan á aðgerðinni stóð en nokkur fjöldi fólks safnaðist saman við lokanirnar og fylgdist með því sem fram fór. Fréttablaðið náði tali af konu sem búsett er í annarri íbúð í húsinu. Hún sagði að æði mannsins hefði hvorki beinst að sér né öðrum nágrönnum. Aðeins fjölskylda mannsins sjálfs hefði verið í hættu þótt aðrir íbúar hefðu yfirgefið húsið vegna ástandsins. "Þetta er fjölskylduharmleikur," sagði konan. Maðurinn var fluttur í fangageymslur og vistaður þar í nótt og læknir kallaður til að skoða hann.
3.9.01
1.9.01
Ég biðst innilega afsökunar á þessari bíræfni og lofa að gera þetta aldrei aftur!
Skoða eldri færslur >>


