27.3.02

Ég er að pæla. Laginu Wild Boys með Duran Duran segir Simon þá á einum stað 'secret steak hotel' ? Ef svo er hvað í andskotanum þýðir það?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:45 27.3.02 ::

Skegg er vandmeðfarið
Þess vegna vex börnum það ekki og sumum mönnum sem áttu að vera konur, en jafnvel vönustu atvinnumenn geta farið offari í skegginu og valdið sjálfum sér og öðrum tjóni með því.
Hér hefði örugglega farið verr ef ekki væri atvinnumaður á ferð

morguninn eftir að fyrri myndin var tekin
SKEGG OG ÁFENGI GETUR VERIÐ HÆTTULEG BLANDA. FARIÐ AÐ ÖLLU ÓGEYST ÞEGAR DRUKKIÐ ER MEÐ SKEGG!
::The Satan of Death skeit klukkan 11:19 ::

Þetta er fallegur skeggapi. Sir Nirhall Grimes, Barón. Með flottasta skegg í heimi og þeir sem mæla því gegn eru bara öfundsjúkir af því að þeim vex ekki grön, bara görn.
Flott mynd.
::The Satan of Death skeit klukkan 11:02 ::

26.3.02


Ljótur skeggapi eða falleg eðla
... þú ræður

smelltu til að skoða hinn sjaldgæfa rauðvínsapa

::Hívatha litli skeit klukkan 16:22 26.3.02 ::

Kári hári írafári
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:54 ::

Mér finnst þetta frekar vera kretíndagur.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:53 ::

Nú er svo sannarlega kominn dómsdagur.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:03 ::

25.3.02

Þú hefur étið úldið smér,
og dálítið af glöggi
hommavinurinn brandaralöggi.
::The Satan of Death skeit klukkan 16:31 25.3.02 ::

Þú hefur étið úldið smér,
og dálítið af froski,
hommavinurinn þroski.
(ath. til að forðast allan misskilning er þessi vísustubbur um Þroskhéðinn)
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:23 ::

Auglýsing
Okkar minnstu bræður vita oft ekki hvað þeir segja. En þá stoðar lítið að taka vitleysuna sem þessar dúllur láta út úr sér bókstaflega. Þeir vita náttúrulega ekki betur. Við í Vonlausa höfum ákveðið að halda pottaprattí og bjóða nokkrum velunnurum klúbbsins á borð við Katrínu, Deing sjá Píng og Ramzi Yousef.

Þroskinn meinar alltaf vel - honum finnst að vinum sínum vegið en getur ekki lesið milli línanna. Greyið. Réttlætiskenndin er gríðarleg og hann bregst við af heiðvirðum hvötum en því miður vill oft vera misskilningur á ferðinni.

Í stað þess að kúka yfir þroskana er betra að gefa þeim pening. Nú hefur Vonlausa einnig tekið upp herferðina "Vilt þú eignast þroska?", en þar gefst færi á að kaupa þroska, þ.e. styrkja hann um 1000 kall á mánuði svo hægt sé að kaupa hrísgrjón handa honum. Í staðinn færð þú mynd á ískápinn af þroskanum.

Allir að mæta í pottinn - þetta verður geggjað prattí!


::Hívatha litli skeit klukkan 14:20 ::

Tryggvi gat étið sjálfan sig
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:49 ::

Það er ekki snjallt að éta sjálfan sig nema maður sé mjög liðugur.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:40 ::

Borðaru þá líka svínakjöt?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:32 ::

Ég er kjötæta
Einu sinni borðaði ég grænmeti. Ég hugsa til þess með hryllingi. Vissir þú að í iðrum meðal manns eru 5 pund af ómeltu rotnandi grænmeti? Það er engin tilviljun að botnlanginn er hættur að virka - við eigum ekki að borða grænmeti.

Grænmeti er gáfað, það teygir sig í átt að sólu, lifir hreinlegu kynlífi en samt með öllum og hefur rætur. Dýr éta bara kúk og velta sér í honum. Dýr eru heimsk og það er í lagi að éta þau. Til þess skapaði guð okkur. Hann vill að dýr éti dýr. Það var líka ágætis jafnræði með öllum þar til við fundum upp byssur.

Ég hef verið að reyna að kenna nokkrum gæsum sem ég fangaði fyrir tveimur árum að skjóta af byssu og gengur það bara prýðilega. Reyndar eiga þær soldið erfitt með að hlaða. Við ætlum að fara að stunda action veiðar á móti vopnuðu gæsunum. Um daginn fór ég með þeim í paintball og þær stóðu sig bara býsna vel. Ég er líka búinn að kenna þeim að éta kjöt enda er villimannlegt að éta varnarlaust gras.

Finnst ykkur hamborgarar vondir? Nei. Grænmeti er hinsvegar vont svo að það sé ekki étið. Útfrá næringarsjónarmiðum þá fær maður öll efni sem líkaminn þarf úr bjór. Hvers vegna að slátra saklausu grænmeti?

Hefur þú heyrt um einhvern sem hefur snappað og drepið alla því að hann borðaði kjöt? Það held ég ekki. Allir þessir póstkallar eru grænmetisætur! Pésus (2nd coming of Christ) snappaði þegar hann át grænmeti um tíma.

Allt er rautt sem vel er dautt!
::Hívatha litli skeit klukkan 13:21 ::

HA HA HA HA HA HA!
Sáuð þið spenann sem heldur að hann sé Þorsteinn Thorarensen af því að hann kann orð eins og Marbendill. Það tók mig tíma að rýna í rúnir, enda stafir hans allir snúnir, öfugir og brúnir eins og vísast öll hans kynhvöt. Ekki að neinn sé tossi þótt hann sé aftaníossi, við bara afþökkum það hnoss að fá hann aftaní oss.
Hættu svo að rúnka þér yfir myndum af mér.
::The Satan of Death skeit klukkan 13:00 ::

Síðastliðinn föstudag potuðu mjög margir í augað á Gírna hér á myndinni að ofan. Við viljum biðja fólk að hætta þessu. Hann hefur líka tilfinningar þrátt fyrir að vera kretíndvergur.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:53 ::

Hehe
Það eru fleiri sniðugir en þið [1] [2]
::Hívatha litli skeit klukkan 11:39 ::

AH ! Die Garfünkel, það var nú hljónst í lagi. Er ekki mál að búa til minningarplötu um þá glæsisveit. hún gæti heitið: Die!, Die Garfünkel Die! Verst(best) er að Die Garfünkel á einn týndan meðlim, trommarinn Þórhallur Sigurðsson aka, Laddi, Dolli, Shrek, Sulli.

Svona leit hann út síðast þegar hann sást
::The Satan of Death skeit klukkan 11:00 ::

Múhaha
Einhver gaur vann fimm kringlóttar í VVMilljón í gær. Úrslitaspurningin var: " Af hvaða ættkvísl er skúmurinn?" Þetta ættu nú allir í Vonlausa að vita því að Skúmurinn er auðvitað af ættkvísl hreinræktaðra hálfvita...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:38 ::

Requiem
Nú um helgina var haldin sálumessa Týnda hlekksins sem þýðir engin meiri föt, bretti og fyllerí á Þorláksmessu. Hræðilegt. Þar hittist allt crewið og spjallaði um t.d. snilldartónleikana með Die Garfünkel í portinu.
Brainpolice eru að æfa á fullu þessa dagana (heita reyndar eitthvað annað) og eru komnir með nýjan söngvara. Skemmst er frá því að segja að þeir voru magnaðir. Heví þétt XXXL sánd með Fu Manchu / Deep Zeppelin áhrifum. Hægt er að ná sér í lög með af plötunni með gamla söngvaranum hér.

Vatn í fljótandi og föstu formi
Freysi og Kirkjufell í Grundarfirði í baksýn en það hef ég einmitt klifrað á - geggjað fjallEftir ótæpilega mikið rugl á fö/lau kvöld ákvað ég að gera eitthvað heilsusamlegt og fór að ísklifra í rigningunni. Farið var í Kollafjörðinn (við Esjuna) en þar er slatti af ca. 25 m háum leiðum. Þetta var hin besta skemmtan og hékk sæmilega þurrt á meðan. Mig langar aftur í dag að glíma við helvíti skemmtilega mixaða leið sem við sáum þarna. Spurning hvort Fabían hættir að vera þroski og kíkir við eftir smíðamassahelgi.

Ég hef séð ljósið
Það er ekkert gaman að dissa fólk sem maður þekki ekki. Ég mun beina spjótum mínum að fullgildum limum í Vonlausa (og Kolla sem hefur víst bara leggöng) ásamt aulameðlimum á borð við Renis McPenis. Þá er líka einsgott að menn svari...

Sá einhver keppnina í að vera sætastur? Einhver að gera fræðilega úttekt um það takk. Þarf maður bara að láta taka sig inni á verzlunarlager til að vera góður í að keppa í svona?
::Hívatha litli skeit klukkan 10:35 ::

23.3.02

Ég hata mest af öllu...
...bloggara sem eru alltaf að dissa allt og í stríði eins og var vinsælt á tímabili. Ái! Úbbs, skaut mig í fótinn, það var vont.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:41 23.3.02 ::

22.3.02

Sírnir er hommi
Viltu sönnun? Það er ekki lengra síðan en um síðustu helgi að það var káfað á púngnum á þér - þú ert sko með kolvitlausa fermóna í gangi þannig að einu bjórarnir sem þú færð er ef þú setur kassa á Kolla og hirðir svo Delirium Tremens af hommavinum þínum fokkíng skíthóra. Engin badmíngton beib fyrir þig...

Þú ert að stíga inn í Hús sársaukans. Ef þú kemur í bardaga skaltu koma með haglabyssu - en ef þú gerir það ertu fífl því að ...

...en ef þú ert til í að battla með mér þá eru þessi [1] og þessi [2] asskoti lífleg bara...
::Hívatha litli skeit klukkan 23:15 22.3.02 ::

HRÍN HÆST Í TÓMUM GELTI
þú meinar að þú sért faggi!
hvaða dissstríði varst þú í við fínu netnördavini þína? hvar eru svörin þeirra sem svara svo verðugt fyrir sig að það sé meira gefandi en okkar vönduðu svör. Og já ég tala í núliðinni tíð eins og þú sért ekki hérna. Ég gylli nákvæmlega þær æðar sem ég vil og spyr engan leyfis.

Er þetta mynd af lessunni hérna neðar? -Bjórkassi? *"hefðbundar reglur að CocoaPuffsi undanskildu"

Ég er alveg til í að fara í stríð við minnimáttar en ég vil geta séð hverju þeir skeina til baka, það er ekkert gaman að sjá bara þessi þungu högg frá Geltinum en engin andsvör.
::The Satan of Death skeit klukkan 22:01 ::

Ég legg til að Mjöðmin verði fjarlægð úr Knorrfési
Hei - ef þessir lúðar myndu standa sig í dissinu þyrfti ég ekki að leita á önnur mið. Það hefur sannast í dag að þið eruð aumingjar að dissa - teknir í nefið. Ef Mjöðmin væri tíkin hans Gírna en væri alltaf íllt í gyllinæðinni og vildi ekki leyfa honum að taka sig myndi Gírnir leita á náðir annarra fagga, t.d. Fabíans. Á sama hátt leita menn á aðrar slóðir ef öngvinn nennir að svara dissi. Þetta veist þú mæta vel Knorrfés, enda ert þú eini maðurinn sem nennir að gera eitthvað. Eina leiðin er að bauna á fólk utan þessa sofandi dissrisa sem vonlausa var. Gölturinn hefur talað.
::Hívatha litli skeit klukkan 20:21 ::


Heiða alltaf að meika
Smelltu til að skoða fréttabréf Onboard
::Hívatha litli skeit klukkan 20:17 ::

Ég legg til að geltinum verði tímabundið bannað að blogga vegna stjarnfræðilegrar heimsku og fyrir að reyna að draga okkur á lægra plan ( þ.e. að þessi vefur sé til einhvers annars en að dissa hvern annan).
::Drjóli von Dork skeit klukkan 19:07 ::

Hvað er hér á seyði? Við hvern er Gölturinn að hrína? Er hann orðinn galinn, kallar hann út í tómið, hvar eru svörin? Eru lessur að dreifa tippamyndum af okkur og þykjast ekki magnfangnar? Sei sei þá er nú svínunum sóað á perlur.
::The Satan of Death skeit klukkan 18:48 ::

Kretíndvergar
Sumir virðast ekki vera alveg klárir á því hvað kretíndvergur þýðir. (Kunna ekki á Ctrl-F). Við hér í hinu velupplýsta Vísundahorni Vonlausa látum vanþekkingu landans ávallt varða okkur og því kemur skilgreiningin hér:

Ef of lítil virkni er á framleiðslu skjaldkirtilshormónanna á meðan meðgöngu stendur og í frumbernsku getur það valdið kretín-dvergvexti. Kretín-dvergvöxtur lýsir sér í smáum vexti allra vefja og andlegri fötlun. Hið fyrra er vegna þess að skjaldkirtilshormónin örva ekki beinagrind og vefi til vaxtar. Hið seinna er vegna skorts á vexti í heilaberki.


Þar hafið þið það...

::Hívatha litli skeit klukkan 16:43 ::

Góð hugmynd
Katrín í pottinn - fær mitt atkvæði...!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:33 ::

Illa upplýstur
Gvuð - ég er illa upplýstur. Til þess að bæta úr þessu ætla ég að fara að skrifa einn fræðilegan pistil á dag. Hér er sá fyrsti í myndformi en það er...

...Geir í sínu náttúrulega umhverfi


Smelltu til að stækka - Geir étur görn

::Hívatha litli skeit klukkan 15:52 ::

HAHAHAHA það er einhver lesbía búinn að linka myndir af okkur á nördasíðunni sinni vegna þess að hún tók það eitthvað til sín að Gölturinn sagði að bloggarar væru nirðir (hvað erum við þá?). Skabbi verður örugglega mjög kátur. Annars finnst mér að við ættum að bjóða henni með okkur í pottin næst, þá getur hún skoðað litlu typpin okkar mun betur, þ.e. ef hún getur höndlað skemmtiatriðin frá trúðnum KÍB.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:49 ::

Djís Lúís...
Fólk er ekkert að taka djóki. Katrín sýnir vígtennurnar og allt. Gaman að þessu. Eigum við að rifja upp hvernig fólk byrjaði að lesa vefinn hennar þegar hún dissaði skátana? Sýndu skátarnir myndir af legsiginu hennar? Ég held ekki...
::Hívatha litli skeit klukkan 12:57 ::

21.3.02

Ég hata venjulega bloggara
Ég fékk mér súpu í dag, fór í bíó, horfði á rassgatið á feitri stelpu í VR2, er nörd, á yfirgripsmikið rúnksafn í tölvunni minni sem ég deili með netverjum, er á nagPortal, skrifa title tög á alla linka, linka ógisla mikið, linka alltaf á Katrínu, Katrín er með mig blocked á MSN því að ég er svo leiðinlegur, skrifa um stúdentapólitík, finnst stúdentapólitík ekki tilgangslaus, skrifa oft hvað ég hef fengið mikið hits og sessions, kalla hits og session flettingar og eitthvað kjaftæði, linka á moggann, segi hvað ég var að læra í skólanum, tala um kaffi en hef ekkert vit á því, sjónvarpsdagskrá, páskaegg, komst í blogg dagsins hjá Sigurjóni, skyndibita, nærbuxur, klósettferðir, spila badmíngton, þykist vera thug og er ekki einu sinni úr vesturbænum, tek íslenskt neftóbak í vörina (whadda fuck?) og lykta illa.

Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn en þið eruð fokkíng KRETÍNDVERGAR...
::Hívatha litli skeit klukkan 18:56 21.3.02 ::

Má þá Gírnir ekki koma? Og hver er þessi Páll sem þú ert með undir valdi þínu?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:47 ::

Ég ætla ekki að mæta í hnakkríðingar með þér og geltinum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:41 ::

Allir sem hamri, reku, borvél eða páli geta valdið eru velkomnir í hnakksmíðingar að meistaravöllum í kveld.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:32 ::

Vísundaferð Vonlausa
Vonlausa ætlar að fjölmenna til Fabhéðins af Kretínskeri og fræðast um viðnám í borðplötum og vísundahroka í kveld.

Nefndin

ps - OK Fabían?
::Hívatha litli skeit klukkan 12:49 ::

20.3.02

rass
nafnorð karlkyn

Dæmi í ritmálssafni frá 17m-20s
Heimild elsta dæmis: RJónGramm , 29

Heimildarskammstöfun: RJónGramm
Titill: Recentissima antiqvissimæ linguæ Septentrionalis incunabula Id est grammaticæ Islandicæ rudimenta Nunc primum adornari cæpta & edita Per Runolphum Jonam Islandum.
Höfundur: Runólfur Jónsson
Útgáfuár: 1651
Útgáfustaður: Kaupmannahöfn
Aldur: 17m
::Hívatha litli skeit klukkan 16:41 20.3.02 ::

Nú verðum við að fara að gæta okkar í stríðninni. við höfum greinilega meiri kyngikraft en okkur grunaði. Stríðnin okkar virðist beina sannleikanum veg, td. var Schweppez bara mjór þegar við fórum stríða honum á vextinum, Sírnir var bara með meðalstóran pung, Guðni var með slétt hár og allra manna unglegastur og Kolbeinn þótti gáfaður og velheppnaður ungur maður með eðlilega mjaðmarbyggingu. Skarphéðinn var með bítlahár, en það er hans vegna sem ég gerist hér pistlavottur. Við verðum að fara gætilegar í að kalla Skarphéðinn þroska, því stríðnin og nýfengin ábyrgð fylgjandi því að vera formaður SamkynhneigðraForeldra er að buga hann til ómælds þroska.
Munum að aðgát skal höfð í nærveru sálar og gætum að magnþrunginni kyngi orða okkar og hláturs.
::The Satan of Death skeit klukkan 10:54 ::

Týndi sonurinn
Gaman að heyra í þér Pu - passaðu þig á bílunum og öllu hinu dótinu. Fleiri pistla svo takk...
::Hívatha litli skeit klukkan 09:59 ::

Saelir eru sekkir thvi ad theirra er Gudsriki.
Blessadir baendur. Loksins hefur mer tekist ad komast til faedingarstads frelsarans. Sem er Betlehem fyrir tha sem eru oskirkdir og ofermdir (Skritnir). Undanfarna daga hef eg verid ad fylgja laeknum og hjukkum eftir til thess ad lidid komist klakklaust i gegnum C.P. israelsmanna. Hergaurarnir eru vist ekki jafn donalegir og leidinlegir ef ad observer er med i for. A manudaginn for eg a C.P watch vid Kalandya C.P. Thar var allt rolegt than tima sem eg dvaldi thar. Flestir palestinumenn komust i gegn, a faeti. Thad var 200 metra long biulalest ad bida eftir ad komast inn. Thad var natturulega einhver paranoia i herkollunum yfir einhverjum pakka sem their konnudust ekki vid. Sma gaman i 10 m'in. en thetta var ekki neitt.
Sidan tha er eg kominn til Betlehem og verd thar med stuttum hleum fram a sumar.
Segid Krumma ad hann aetti ekki ad koma eins og var talad um. Israelsmenn elska ad nidurlaegja arabastraka. Hann gaeti aldrei hondlad thad.
::H.H. skeit klukkan 07:45 ::

19.3.02

Hei vá en, hér vantaði þann fjórða. Sem gerir þetta að fjórförum.
::The Satan of Death skeit klukkan 14:35 19.3.02 ::


Þrífarar vikunnar á Baggalútnum

::Hívatha litli skeit klukkan 14:27 ::


Meiri veðbjauður


Smelltu til að stækka hryllinginn enn frekar



::Hívatha litli skeit klukkan 13:47 ::


Bifristlar eru ÖMURLEGIR tölvonar!


Smelltu til að stækka hryllinginn



::Hívatha litli skeit klukkan 13:43 ::

En af hverju er Haraldur Hrafn snappí dresser að klæða sig eins og hann sé í Backstreet Bojs og alltaf í ljósum þegar hann kann ekki einu sinni að syngja?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:35 ::

Hvenær ákvað tískulöggan að heiðra Vonlausa Veiðifélagið með lögregluþjóni á þeirra vegum?
Svo hef ég heyrt að þetta eskimóathing sé alveg happening!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 13:24 ::

Vááá - tölvunördafrétt
::Hívatha litli skeit klukkan 13:21 ::

Það er ekkert skrítið að ruglast, gölturinn og hinir straubrettahommarnir klæða sig eins og 16 stelpur og lifa í þeirri sjálfsblekkingu að það sé kúl.
Ég er að spá, ef að Gölturinn og hinir kretarnir myndu fíla geggjað að sigla kajökum væru þeir þá alltaf í eskimóafötum svona dagsdaglega?
::Mósagrís skeit klukkan 12:34 ::

Fyrst hélt ég að það hefði verið Gölturinn sem slasaði sig á bretti í gær en svo mundi ég, hann er ekki 16 ára stelpa, hann er 28 ára kelling.

Labels:

::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:29 ::

Hvað á að gera um páskana? Brettaferð Vonlausa? Kollum má ekki koma með því að hann kann ekki á bretti og ekki Gírnir Grulsa heldur af sömu ástæðu...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:40 ::


Buhu - Hlekkurinn er að hætta


Smella fyrir stærri mynd





::Hívatha litli skeit klukkan 10:29 ::

18.3.02

Snáðinn í snjónum, með mannaskít á tánum

Vonlausa veiðifélagið var rétt í þessu að tryggja sér helgina 8 og 9 júní í Djúpavatni. Þar sem ég beið eftir afhendingu veiðileyfisins hlustaði ég á nokkra GuðnaKalla GuðnaKallast, var almenn óánægja með fyrirkomulag sleppinga í fyrra, þar sem nýslepptum fiski var mokað upp daginn eftir. og var eitthvað rætt um aðrar aðferðir sem myndu dreifa aflanum sósialískar.
Þetta eigum við nú Steinafa að þakka og legg ég til að afgangur félagsgjaldanna fari í að kosta af honum brjóstmynd sem sett verður upp á Víðistaðatúni.
::The Satan of Death skeit klukkan 22:19 18.3.02 ::


Flottari


Full stærð

::Hívatha litli skeit klukkan 19:43 ::


[640*480] - [1280*960]
::KÍB skeit klukkan 18:40 ::

CNN
Mogginn: Samkvæmt grænmetisverðskönnunum Alþýðusambands Íslands hafa allar verslanir, sem kannaðar voru, lækkað verð á innfluttu grænmeti í kjölfar niðurfellingar tolla. Íslenskar agúrkur hafa hins vegar hækkað í verði þrátt fyrir nýjar niðurgreiðslur á rafmagni til framleiðenda.

Gott að skattpeningarnir fara eitthvað gáfulegt - að hækka verðið til okkar...
::Hívatha litli skeit klukkan 17:44 ::

Góð helgi, þrátt fyrir topless...
(er það bara ég eða vantar eina lyftu á þessa mynd?)
::KÍB skeit klukkan 16:23 ::

Akureyri
Gölturinn, McPenis og Bjögger ákváðu á föstudaginn að skella sér í rennslis(og menningar-)ferð til Agureyris. Skabbi var of mikið kretín til að koma með, Kári var slave to the c... og Sírnir kann ekki á snjóbretti.

Gisting var ves þar sem Giggús hafði ákveðið að flytja í bæinn án þess að 1) segja okkur 2) leigja íbúðina áfram svo við gætum alltaf krassað þar. Nú voru góð ráð hreindýr.

En McPenis riggaði okkur inn í ferð Verkfræðinema og þar sem við erum nú allir áhugamenn um sprengihreyfilinn og ferðalög í tíma og rúmi með stæl vorum við gjaldgengir í þann pakka.

Hammari á Brú. Ógeð. G (af 5 mögulegum)

Renndum norður og komum okkur fyrir í góðu skoti í KA heimilinu þar sem við vissum af mikilli kænsku að við myndum vakna við æfingar morguninn eftir => kæmum í fjallið á réttum tíma. Löbbuðum inn í næsta sal og sáum okkur til furðu að þar voru Boo-bee og Embla, Johnny Spons, Óli Stef, Ömmi, Ása Róberts, Signý, Jóna (Joint), og fleiri Vesturbæjarrottur (þó sumar búi í nágrannasveitarfélögum.) Þar urðu gleðifundir.

Nú var planið að drekka 1 bjaur og fara að sofa. Eftir 2 bjóra vorum við Bjöggs komnir í partýstuð. Haldið var niður í bæ og tíminn nýttur vel í mannfræðilegar rannsóknir. Geltinum tókst að sanna að hægt er að fá Akureyrskar meyjar til fylgilags við sig með pikköpp línunni : "Koddu hérna kisa - ksss kssss..."

Djammið var magnað og psycadelic. Muuuuuuu! Reynt að nauðga sponsa af ljótri stelpu - no luck - eða hvað??

Vakna súr - bakarí - fjallið. Mættir kl. 10. Ágætis rennsli en soldið blint. Vorum aðallega að leika okkur á heelside hittum í gilinu vinstramegin við stólinn (ef horft er upp). Rennsli til 3.30 - síðan sund. Síðan smá chill með öl í hendi. Síðan....

VÍSÓ!!!

Bráðskemmtileg vísindaferð í Viking-brugg (nú Vífilfell (á það ekki að vera Vífilsfell??)). Fullt af prýðilegum bjór og skemmtilegar staðreyndir frá eina bjórmeistara klakans á borð við:
  • Pilsner er minna fitandi en undanrenna
  • Það eru færri hitaeiningar í bjór en týpískum áfengum drykk blönduðum í gos
  • Lagerbjór dregur nafn sitt af því að hann er geymdur í stórum geymslutönkum við 0° eftir að gerjun lýkur. Þar öðlast hann endanlegan karakter. Loks er hann síaður í gegnum kísil og settur á flöskur.
  • Pæling í framhaldi af þessu - ætli maður gæti sett bjór sem maður bruggar sjálfur á geymslukút við lágt hitastig, síað hann svo í gegnum kol og fengið almennilegan bjór með engri gerdrullu?
  • Bjórframleiðendur vilja bjórinn ekki í búðir því að þeir eru svo hræddir við baug.
  • ÁTVR græðir ekki á áfengissölu heldur tóbakssölu - skyldi Þorgrímur Þráins vita af því?
  • Bjór inniheldur öll helstu efni sem líkaminn þarf til að komast af - þar á meðal ríkulegan skammt af vítamínum og andoxunarefni.
  • Bjór er hollur

    Meiri bjór!

    Síðan var haldið á Bauthann vinur! þar sem snæddur var alltílæ hlaðborðsmatur. Soldil bið. Þá var haldið á Dáthann vinur! þar sem hálfvitar vinna. Dáthinn vinur! breyttist svo í netta réttastemningu þar sem fólki var annaðhvort hent á súrt ball eða hent út (allir voru með fullt bjórglas og brugðust Reykvíkingar að vonum ókvæða við þessum fruntaskap og sögðu helvítis dreifurunum aldeilis til syndanna!)

    Þá var haldið á Foster´s (asnalegt nafn) sem spilar súrt Evróbít en hleypir manni frítt inn. Athugið að spyrja sérstaklega um hvurskonar gin menn eru með á börum fyrir norðan áður en þið kaupið. Þeir eiga sko fullt af viðurstyggilegu gini. Nema hvað - svo fórum við og vældum okkur inn á CA eftir að hafa farið fýluferð á karókístað einn. Þar var stiginn trylltur dans og drukkið ótæpilega. Á þessum tímapunkti voru húðlitaða óhættan og Bjöggster búnir að beila. Menn voru í rugli.

    Loks var haldið aftur í KA heimilið þar sem ríkti almenn upplausn og stjórnleysi. Props til chillaða húsavarðarins. Sponsi Jones var einn í heita pottinum með Signýju í 2 tíma. Hvað ætli þau hafi verið að gera? Sjálfsagt bara að chilla.

    Eftir tæplega 2 tíma svefn var mætt í fjallið og nú glöddust menn. Náðum einni gerð úr Strýtunni í brilló skyggni - tókum feitt púður í dalnum. Náðum svo fleiri ferðum í sæmó skyggni. Restin af deginum fór í pista brun og litla stólalyftugilið.

    Síðan tekin ákvörðun sem ekki hefði gengið með kvenpening í för - sleppa sundi og bösta í bæinn. Heví gott. Góður borgari á Blöndósi GGG (af 5 mögulegum - þetta er náttúrulega þjóðvegaborgari).

    Öflug helgi. En þetta HÍ lið eru aumingjar að renna sér - fór örugglega enginn á sunnudaginn. Bannað að vera svona góður við sjálfan sig.

    Norður um næstu, þarnæstu og þarnæstu!!

    Scweppes hefur lokið máli sínu.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:21 ::

    15.3.02

    Creme de Mente, Creme de Ment
    Creme de Mente, Creme de Mehehent
    Creme de Mente, Creme de Meeeent
    Creme de Mente, de Mente de Mente de Ment.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:35 15.3.02 ::

    Hvað er klámmyndanafnið þitt?
    Nicky Lovecolt

    Sminkur
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:08 ::

    hehehe - þessi er brjálaður Brandur...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:58 ::

    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:53 ::

    14.3.02

    Indjánar trúa því að í þeim lifi andi ýmissa dýra, nú getur Vonlausi skorið úr um hvaða dýr í þér býr.
    Smelltu á scminkinn hér að neðan og tölvan mun soga eilítið að líf-krafti úr þér í gegnum múnina, þetta er ekkert sárt. og greina hann og sýna þér sálardýrið þitt.
    schminkur
    ::The Satan of Death skeit klukkan 19:04 14.3.02 ::

    Pant!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:11 ::

    Hverjir ætla norður um helgina?
    ::KÍB skeit klukkan 13:27 ::


    Klifur er skemmtilegt

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:49 ::

    En nú er McPenis ekki sérlega hættulegur lengur... Húðlitaða meinleysisgreyið?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:26 ::

    Snilld
    Jæja, Gölturinn hætti sér aftur í bíó eftur ófarirnar á Black Hawk Down (ísl. Kanamellur allra landa sameinist). Skemmst er frá því að segja að Gölturinn var greinilega búinn að byggja upp feita inneign á karmareikningnum eftir þá bíóferð því að þessi var alveg mögnuð.

    Myndin fjallar um Bosníumann og Serba (andstæðar fylkingar í Bosníustríðinu) sem festast á ótrúlegan hátt milli víglínanna. Félagi annars þeirra liggur einnig í skotgröfinni ofan á stökksprengju. Gæslulið S.Þ. er eitthvað að reyna að redda málunum en menn eru náttúrulega harðir á því að stúta ótætis fagganum, óvini sínum.

    Samt eru þetta menn sem þekkja sama fólkið og eru jafnvel skyldir. Magnað. Jæja, Grafarvogurinn ætlar að gera árás. Ætliði bara að sitja þarna eða ná í haglarana og hakka þá?

    Þessi fær GGGG (fjórir Geltir af fimm mögulegum).
    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:49 ::

    13.3.02

    Það var í gamladaga, nú er hann húðlata hættan.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 18:43 13.3.02 ::

    Sindri er með hár, annars væri hann kallaður húðlitaða hættan.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:40 ::

    Leiðrétting - Sindri er rauðhærður á pungnum (sbr. myndir frá árshátíð) - allir sjá að hann er nauðasköllóttur á hausnum. Hefur Mjöðmin virkilega ekki mætt á smíðafundi síðan McPenis var með hár?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:17 ::

    Þetta er rétt hjá þér þetta með McRenis og eins og allir vita þá er rauðhært fólk hálfvitar og hommar. Ég legg til að McRenis raki af sér hárið.(verður reyndar engin þörf á því eftir smá tíma)
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:58 ::

    Ég hata Mjöðmina því að hún er aumingi. Kjéllingum er ekki hleypt inn á Gufubaðsstofuna og ég myndi líka aldrei fara með þér.
    Ég er með ógeð á Dick Norris því að hann er lítil tík sem vælir þegar hinir krakkarnir stríða honum á því að vera ljótur.
    Fabian er ræfilstuska sem sleikir rassgatið á Mjöðminni og McRenis er rauðhærður.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:37 ::

    Hvað segiði um gufabaðsferð á Jónas á laugardaginn. Tilefnið er eins árs galtarammæli Svenna.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:14 ::

    12.3.02

    Meðan Gírnarnir sofa liggja Geltirnir andvaka.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:41 12.3.02 ::

    Skabbi faggi eða hommi?
    Svenni göltur eða svín?
    Gírnir park eða hói?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:46 ::

    Pí er stærra eða jafnt og núll og minna eða jafnt og einn.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:42 ::

    Ég er sko ekki neinn grís, ég fyrri mig öllum ættartenglsum við svínaættir og önnur klaufdýr, ég þakka fengna orðskýringu, sem því miður rýrði brandaran og lýsti yfir selloutismanum sem Glæfragölturinn hlustar mestast og bestast á. Fyrst öllum er sama hvers vegna er það þá rætt í heilan dag á vonlausa? -hér vil ég ekki svar, ég veit það, og það er þessvegna sem það er svo sorglegt.
    Svo er ég einmitt fallegur og skemmtilegur ekki þetta hitt sem þú bullaðir hérna áðan.
    Svo þykir mér fokið í flest skítavör þegar Porky le Pew fer bendandi fingri um óheilindi og pilsfaldahang á vonlausa.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 11:08 ::

    Sírnir er djöfuls vælukjói - það má dissa alla í hel en svo fer hann að hrína eins og lítill grís um leið og einhver talar um hljómsveitina Linkin Park - eins og einhver hefði skilið það nema maðurinn hefði gefið orðskýringu. Who cares hvort þú ert að ríða eða ekki - þú ert ljótur og leiðinlegur. If you can´t stand the heat - get out of the campfire!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:51 ::

    Ekki fara á Black Hawk Down - hún er ömurleg. Vélbyssuskothríð með öllum klisjunum, gaurinn sem hringir í kærustuna, dauðabréfið, gaurinn sem biður hinn gaurinn að segja mömmu og pabba að hann hafi verið dullegur, óreyndi liðþjálfinn, hrædda innfædda konan með börnin osfrv. Þessi mynd er drazl, ég trúi ekki enn að menn búi svona til.

    Ég er viss um að þessir gaurar gerðu svona Verzló stuttmyndir þegar þeir voru yngri þar sem var ekkert handrit, bara skot af bílum úr öllum áttum og töffarastælar.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:43 ::

    11.3.02

    Væri ykkur sama, ég svaf hvorki hjá sama né lappa.
    en hinsvegar leið mér eins og kappa milli hennar lappa
    við að láta í rasskinnum klappa og í píku að stappa með mínum stutta tappa.
    Því má viðbæta, hverju sem því má sæta, það er mig ekki að kæta
    að hin annars ágæta umræða á þessum vef fjalli um hjá hverjum ég sef þá komi af mér kvennmansþef í hundanef. Skýrslur skal gefa í orði en ekki stafa, yfir bjór en ekki safa, hef ég eftir afa. Þvílík umræða mun hræða og afglæða alla glóð sem yfirstóð og gera minna úr engu og ekkert úr öllu.

    Bíddu nú hægur, Glæfragölturinn var að bera sig á almannafæri um helgina? Kom þá í ljós að hann er Glæfragöltur á næturnar en LogsForlegs á daginn?.
    OJ, Skabbi hefur nagað rottuna á Svenna!



    ::The Satan of Death skeit klukkan 18:45 11.3.02 ::

    Þetta er teiknimynd. Virkaði frekar kúl reyndar en þetta er bara advanced Roger Rabbit. Allt saman var teiknað og svo öðru hverju leikarar. Sáuði hvað storm trooperarnir voru gerfilegir?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:01 ::

    Glæfragölturinn
    Eins og Miltisbrandur bendir réttilega á rokkaði Glæfragölturinn feitt á Mjúsikktilraunum þrátt fyrir að vera töluvert eldri göltur en grislingarnir sem voru í meirihluta þar. Hinsvegar hefur Hr. Jónsson ruglast eitthvað þegar hann fór í myndasafnið sitt - þarna er gölturinn nefnilega ekki á ferðinni enda er það alkunna að hann var súkkulaðibrúnn í atriði sínu - enda búinn að fara í ómælda túrbó ljósatíma og nota óspart brúnkuklúta. Þá var Gölturinn í smekklegum G-streng í tónabæ til að gæta fyllsta velsæmis.

    Þarna mun vera fyrrverandi spúsa Miltisbrands á ferðinni - Logs for Legs. Fyrir hönd vonlausa fer Gölturinn fram á að MJ hrelli okkur ekki með klámmyndum af fyrrverandi hjásvæfum enda eru þær arfaljótar margar hverjar.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:25 ::

    Clonewars
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:48 ::

    Hvað gerði Svenni um helgina?!

    Músíktilraunir Tónabæjar fóru glæsilega af stað þetta árið. Fyrsta tilraunakvöldið fór fram núna um helgina að viðstöddu fjölmenni. Margir ungir og efnilegir tónlistarmenn stigu þar sín fyrstu skref auk nokkurra kunnuglegra andlita. Einn af þeim tónlistarmönnum sem vakti hvað mesta athygli var maður nokkur sem kallaði sig Glæfragöltinn. Óhefluð sviðsframkoma en jafnframt sterkur þokki þótti prýða sýningaratriði hans end var hanum klappað lof í lófa að atriðinu loknu.



    Því miður komst Glæfragölturinn ekki áfram í úrslitakvöldið en sagðist aðspurður "...bókað ætla að reyna aftur næsta ár!"
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:43 ::

    Ég hef heyrt lag með hljómsveit sem heitir Gírnir Park - lagið hét "I parked a lorry..."
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:28 ::

    Gírnir Park fékk nafnið Corky Park og síðan var gerð sjónvarpssería um sama efni
    ::Mósagrís skeit klukkan 12:57 ::

    Hafiði séð mynd sem heitir Gorky Park? En mynd sem heitir Gosford Park? Hvað með myndina Gírnir Park?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:50 ::

    Hvað park Gírnir? Sama?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:20 ::

    Sögur helgarinnar
    Kolli var veikur heima og kveinkaði sér yfir mjöðminni sinni.

    Skabbi flaut um og stríddi fólki á því að vera með massa.

    Svenni fór í homma ferð og reyndi að sanna karlmennsku sína en sannaði bara kerlíngsku sína.

    Sírnir park.

    Guðni graðn.

    Sindri fékk sér dindil.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:40 ::

    blogBuddy 0.5
    ...er kominn á sourceforge.net. Fullt af sniðugum breytingum.
    Ég mæli eindregið með honum, sérstaklega þegar blogger.com er hægvirkur.
    ::KÍB skeit klukkan 11:00 ::

    Engar sögur frá helginni? Engin sniðug fyllerí? Engar tilraunir á mannverum með engan massa eða stuttbuxum með ekkert núningsviðnám?

    Ég fór í Mörkina - það var nett. Vorum á Gígjökli allan laugardaginn. Heimferðin var skrautleg - ljósagrind slitin af einum jeppa - svo dekki rústað - svo drekkt í á þannig að við þurftum að rífa í sundir og pumpa vatninu af vélinni. Eyðilagðist sem betur fer ekki.

    Bretti á eftir fyrir karlmenni - aðrir eru aumingjar. Sérstaklega Mjöðmin.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:10 ::

    7.3.02

    Könnunin
    Hver eftirtalinna hluta hefur massa?

    Ljós
    Skabbi
    Ljóð
    Hatur
    CityMonsters
    Kyrrstöðuorka ljóseindar


    Current Results
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:31 7.3.02 ::

    Ljós kann ekki að synda og troða marvaðann...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:31 ::

    Af því að Skabbi er ekki ljós.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:06 ::

    Ljós hefur engan massa en samt sogast það í svarthol, afhverju ætti Skabbi að vera eitthvað öðruvísi?
    ::KÍB skeit klukkan 13:49 ::

    Samkvæmt vísundavefnum (e. buffalo web) tengist "undarlega efnið" (e. exotic matter) hugmyndum um að búa til andþyngdarafl.

    Snýst um hvort til sé kraftur sem virkar fráhrindandi í hlutfalli við massa hlutar. Líkt og segulstál nema að það virkar á alla hluti með massa - ekki bara með ákveðna segulmögnun eða hleðslu.

    Menn eru reyndar ekki alveg að kaupa þá pælingu lengur þar sem hún gengur í berhögg við lögmál þyngdarinnar og myndi þar að auki sjá okkur fyrir eilífðarvél og þannig brjóta gegn lögmálinu um varðveislu orkunnar.

    Brjáluð pæling - væri eiginlega miklu skemmtilegra ef þetta væri hægt. Þá myndi ég fá mér andþyngdarefnisvél í bílinn minn.

    Varðandi Skabba og unaðsolíuna hafa menn verið að spá í því hvort halda megi ormagöngum opnum ef vegið er á móti þyngdarsviðinu með exotic matter. Eitthvað slíkt þyrfti til því að ljós kemst ekki einu sinni í gegnum ormagöng, og þar af leiðandi ekki Skabbi heldur...

    Allt um þessar frábæru pælingar á vísundavefnum
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:21 ::

    Hvað er exotic matter? Og afhverju þarf Skabbi að henda því í svarthol? Þar sem Skabbi hefur engann massa þá mundi hann ekkert sogast inn í svartholið heldur bara fara fram hjá á ljóshraða. Síðan kæmi skímsli og við vitum allir hvernig fer fyrir honum þá.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:58 ::

    Gætum við fengið hrokafullt vísindasvar við spurningunni - gosar á borð við Miltisbrand sem taka engu alvarlega eru beðnir um að fara til helvítis. Þetta er alvarleg umræða!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:55 ::

    Ef þú ert að biðja mig um að nudda erótískum olíum á rassinn á þér og skríði svo inn eftur að þú treður í þig nifteindabrauði og breytist við það í hvíthol þá geturðu bara gleymt því hér og nú!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:07 ::

    Ef Skabbi (massi=0) myndi henda slatta af exotic matter inn í svarthol, gæti hann þá farið í gegnum ormagöng og jafnvel aftur í tímann?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:25 ::

    Vísir. Mið. 6. rass 15:30
    Meirihluti andvígur lögleiðingu rass
    88% landsmanna eru andvíg því að leyfa eigi neyslu rass á Íslandi. 5% eru hvorki hlynnt né andvíg og 7% svarenda eru hlynnt því. Þetta kemur fram í nýrri viðamikilli könnun á áfengis- og vímuefnaneyslu Íslendinga sem Gallup gerði fyrir Áfengis- og vímuvarnaráð.

    ::The Satan of Death skeit klukkan 09:40 ::

    6.3.02

    Vísir. Mið. 6. mars 15:30
    Meirihluti andvígur lögleiðingu hass
    88% landsmanna eru andvíg því að leyfa eigi neyslu hass á Íslandi. 5% eru hvorki hlynnt né andvíg og 7% svarenda eru hlynnt því. Þetta kemur fram í nýrri viðamikilli könnun á áfengis- og vímuefnaneyslu Íslendinga sem Gallup gerði fyrir Áfengis- og vímuvarnaráð.

    1) Af hverju að tala bara hass en ekki gras? Hass hljómar illa - Hlemmrónalegt.
    2) Af hverju ekki að spyrja um eitthvað aðeins hófsamara, eins og t.d. að leyfa neyslu, leyfa eign til eigin neyslu/í litlu magni.
    3) Mér finnst nú frekar fréttnæmt að 7% (Um 20.000 manns) séu til í að "lögleiða hass" eins og það er orðað.
    4)Og að 12% landsmanna séu til í þetta eða sama...

    Enga ólöglega garðyrkju árið 2004!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:25 6.3.02 ::

    Eigum við að hittast í kveld og taka einn nifteindabjór og spjall - t.d. Casa du Porc?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:18 ::

    OK - ég hef bara aldrei heyrt áður um hvíthol. Mér finnst pælingin svolítið fjarstæðukennd. En ég viðurkenni að undanfari hefði verið heppilegra orð en andstæða.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:59 ::

    Svenni má alls ekki borða nifteindabrauð, þá mun hann að öllum líkindum falla saman og draga allt sólkerið með sér.

    Smá besserviss; hvítur dvergur er ekki andstaðan við svarthol, hvernig færðu það út nifteindagöltur? Þegar stjarna deyr verður húna annaðhvort hvítur dvergur eða nifteindastjarna. Nifteindastjarnan verður síðan kanski að svartholi. Ég fann hins vegar smá athyglisvert á vísindavefnum um andstöðu svarthols sem heitir því skemmtilega nafni hvíthol. Smá úrdráttur:

    Hvíthol (e. white hole) eru algjörlega ímynduð fyrirbæri, það er reist á tilgátum, og líklegt er að þau séu ekki til í raun og veru. Samkvæmt kenningum eru hvíthol andstæður svarthola og senda frá sér agnir í stað þess að gleypa þær eins og svarthol. Meðal annars hafa menn getið sér þess til að hvíthol myndi annan enda ormaganga, á móti svartholum
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:54 ::

    CNN: Mont-Blanc göngin opnuð aftur
    Mér finnst þetta nú glatað - það á að hleypa vörubílum og öllu draslinu þarna í gegn aftur þannig að dalurinn verður dísilmettaður og ógeðslegur enn á ný. Öll fréttin...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:39 ::

    Pæling
    Andstæðan við Svarthol er hvítur dvergur en svarthol myndast einmitt þegar þeir falla saman (sól deyr). En nú er Skabbi er einmitt hvítur dvergur.

    Ergó: Ekki gefa honum nifteindabrauð.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:24 ::

    Þetta með city monsters fellur um sjálft sig því þær hafa sinn eigin massa. Fari ég nakinn í City Monsters er ég kominn með massa á við eitt par af City Monsters sem gerir það að verkum að ljóshraða verður aldrei náð. Því miður.

    Stjörnufræðispurning: Ef svo væri að hlutur hefði rúmmál en engan massa, myndi hann brenna upp í geimnum þegar hann nálgast ljóshraða? Ef City Monsters væru massa- OG núningslausar, gæti maður klætt sig í þær og ferðast aftur í tímann ef maður gæti haldið í sér andanum nógu lengi úti í geimnum og væri bólusettur fyrir kulda eins og Svalur og Valur í Veirunni?

    Spurning: Hvað gerist ef Svenni borðar nifteindabrauð? Verður til tvöfalt svarthol? Eða andefnis- hvíthol sem eyðir alheiminum?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:10 ::

    5.3.02

    Spurning til Þroskafulla Vísundsins:
    Hverjar eru líffræðilegu ástæður þess að hættulegra er að kveikja í náunga frá Kína, heldur en einhverjum gaur frá Japan?

    Spurning til allra
    Nú vitum við að:
    1.Skarphéðinn,(Þroski, Strunsi, Hrokafulli vísindamaðurinn) Baila hefur engan massa.
    2.CityMonsters bermúda-stuttbuxurnar hans Kolla hafa ekkert viðnám.

    A: Hvað gerist ef Skarphéðinn er settur í CityMonsters?
    B: Hvað gerist ef hann er látinn borða nifteindabrauð meðan hann er í CityMonsters?
    ::The Satan of Death skeit klukkan 17:35 5.3.02 ::

    Ég var að tala við Sírni áðan og við vorum að rifja upp WBOS ferðina á Hróarskeldu og okkur til gamans rifjuðum við sérstaklega upp hegðun Skarphéðins og komust að þeirri niðurstöðu að hann var algjör þroski og strunsi alla ferðina.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:59 ::

    Kolli er í skítavítahring
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:46 ::

    Svenni er með ræpu.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:20 ::


    Opið í Skálafelli í dag


    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:32 ::

    Skítblogg
    Nokkrar gamlar og góðar...
  • jesus.com/
  • putrid.com/turk/
  • geocities.com/asianprince213/
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:53 ::

    Skabbi er þroskaheftastur
    Orðskýring: Samkvæmt orðabók menningarsjóðs þýðir Þroski á WBOS eftirfarandi: Þroskaður, grown up, leiðinlegur - af því að allir hinir eru svo barnalegir. Oft er um hrokafulla vísunda að ræða.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:14 ::

    Dööö
    Það var búið að breyta Sírni í tölvuforrit þannig að við þurfum ekki að pulsa Adda. Við ættum því vandræðalaust að geta sent Sírni fram í tímann. Og líka Skabba því hann hefir engan massa.Tjékk itt
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:27 ::

    Skabbi er þroski á WBOSísku, Svenni er hins vegar þroski á akureyrsku.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:22 ::

    Þroski...
    ...þýðir þroskaheftur á Akureyrsku. Af hverju þorir Skabbi ekki að blogga?

    Hefur þú einhvern tíman séð einstakling með stórlega skerta námsgetu á ljóshraða / í tímaferðalagi?

    Skabbi er þroski með engan massa....
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:20 ::

    Gleymdi...
    Hefðum átt að fagna í gær, þá var 04.03.02.

    Gleymdi líka að fagna í gærmorgun. Þá var 06.05 04.03.02. Sköll.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:19 ::

    4.3.02

    Hvar er Skabbi annars? Ég vissi að hann er orðinn svoldill mikill þroski en þetta er alveg fyrir neðan allar þroskahellur.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:56 4.3.02 ::

    Það er ekkert mál að breyta Adda Pu í tölvuforrit. Það eina sem við þurfum er brjóstahaldara til að setja á hausinn á okkur, hakka okkur svo inn á LÞÍ og síðan má ekki gleyma að tengja pulsu við tölvuna.

    Eða við getum náttúrulega alltaf sent Skabba því hann hefur engan massa og getur því ferðast á ljóshraða.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:40 ::

    Skv. nútíma eðlisfræði þá er KÍB hommi sem verður einn af þeim fyrstu sem að verður látinn hverfa eftir byltinguna miklu.
    ::Mósagrís skeit klukkan 15:09 ::

    Forritarar Vonlausa - hefjumst handa við að breyta Adda Pu í tölvuforrit - líkt og læknirinn í Startrek eða eitthvað þannig - þá getum við sent hann í gegnum tíma.

    Eða við getum bara sent Skabba því að hann hefur engan massa og getur ferðast á ljóshraða.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:01 ::

    Margt er óskýrt í okkar heimsmynd. Afhverju beygist ljós vegna þyngdarafls. Eru svarthol til og hvernig virka þau? Er andefni til? Þar sem heimsmynd okkar byggist bara á tilgátum um hvernig hlutirnir virka þá getur vel verið að sú heimsmynd eigi eftir að hrynja einn góðan veðurdag.
    Það er hinsvegar mín skoðun að tímaflakk, eins og sést í bíomyndum, verður aldrei að veruleika.
    Hugmyndin hans Kolla er ágæt. Ef þú getur tekið hlut, með massa, og breytt honum í merki eða bylgju og breytt honum síðan aftur í hlut með massa þá geturðu ferðast á hraða ljóssins og stundað tímaflakk að vissu marki.
    ::KÍB skeit klukkan 14:52 ::

    Múhaha - góður Kolli.

    Hinsvegar eru síðustu skilaboð guðs til manna vel þekkt. Læt þau fylgja til að fyrirbyggja frekari misskilning: "We appologise for the inconvenience."
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:46 ::

    Renis hrokafulli...
    Skabbi getur samt ferðast á ljóshraða - hann hefur engan massa.

    Hei - ekki vera svo að snúa útúr - við erum annarsvegar að tala um að nýta sér hinn náttúrulega framgang tímans til að svindla eilítið á honum, stíga útaf vellinum um stundarsakir og hoppa svo inn aftur. Tíminn er líkt og á sem streymir áfram - við getum farið aðeins upp á bakkann og svo aftur útí.

    Þegar þú talar um að stytta ævina osfrv. sérðu náttúrulega að þetta samband virkar bara á annan veginn.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:43 ::

    Ok en þá gætum við hjúpað einhver hlut með sérstöku ljósfíldi þannig að hluturinn væir inni í ljósinu og sent hann þannig á ljóshraða. Svo gætum við sett Svenna inn í þennan hlut og sent hann á ferð um vetrarbrautina. Þar hittir hann allskonar fólk og þar á meðal guð sem segir honum svarið við öllum ráðgátum heimsins. Addi Pu verður náttúrulega frekar fúll þar sem hann vill verða sá sem hittir guð og kemur síðan heim og verður Jesú II. En það er smá von því að samkvæmt spádómum mínum þá mun Svenni að öllum líkindum verða étinn af skrímsli á leiðinni heim.

    Og svona til að svara spurningu KÍB þá ef mar er að ferðast í tímann með því að stytta ævina þá er ég tímaflakkari og ferðast um heilar 7 minútur í hvert sinn sem ég fæ mér smók.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:38 ::

    Skv. nútíma eðlisfræði getur hlutur sem hefur massa ekki náð hraða ljóssins, ekki einu sinni næstum því.

    Er maður að ferðast í tíma ef maður gerir hluti sem stytta ævina eða virkar það bara þegar maður lengir hana?
    ::KÍB skeit klukkan 14:33 ::

    Skiptir höfðumáli - maður vill náttúrulega skilja smá eftir - t.d. fyrir brauðristina og kaffikönnuna...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:29 ::

    Ertu þá að segja að það sé ekki neinn einasti möguleiki á að fara hraðar, eða á hraða, eða næstum því á hraða ljóssins án þess að nota alla orku alheimsins?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:29 ::

    Það skiptir ekki máli þótt þú viljir fara á "næstum því" hraða ljóssins. Ef þú vilt ná fram þeim áhrifum sem þú lýsir þarftu að nálgast ljóshraða það mikið að þú þarft "næstum því" alla orku alheimsins.
    ::KÍB skeit klukkan 14:12 ::

    Ef við hefðum sent fóstrið Mósagrís aftur í tímann hefði hann verið drepinn við fæðingu því að svona spassar fengu ekki að lifa í gamla daga.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:53 ::

    Kíb á ekki pabba í eiginlegum skilningi, hann varð til við sjálfskviknun lífs þegar "pabbi" hans skildi eftir skítuga skyrtu og ost í kassa á gólfinu.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 13:19 ::

    Það er reyndar rétt að Skabbi hefur engan massa, og gölturinn hefur of mikinn massa af óþekktum toga. En það er bara útúrdúr.

    Einn daginn skal verða hægt að ferðast um tímann, þó að við vitum ekki hvernig við förum að því í dag. KÍB er bara hommi sem hefði viljað brenna Galileó því að það sem Galíleó sagði var ekki hægt o algert bull á sínum tíma.
    Spurningin sem Kolli feithaus varpaði fram er áhugaverð að mörgu leyti. Ég er ekki sammála því að það sé búið að breyta okkar tímalínu, en hins vegar er ég viss um að það séu til endalausar hliðstæðar tímalínur þar sem að hver einasta litla ákvörðun hjá hverjum einasta manni eða dýri fer á annan veg en hérna hjá okkur. Ef að einhver færi aftur í tímann og breytti einhverju, t.d. benti pabba hans KÍB á að nota smokk, þá breytti hann(því miður) ekki okkar veröld, heldur í raun byggi til nýja.
    ::Mósagrís skeit klukkan 13:13 ::

    Hei - sagði einhver hraða ljóssins? Ég sagði nálgast hraða ljóssins. Pant líka ekki vera fyrstur til að prófa ljóshraða því að kannski leysist maður upp í frumeindir.

    PS. Skabbi hefur engan massa ;)
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:04 ::

    Til þess að hraða einhverju, sem hefur massa, á hraða ljóssins þarf alla orku alheimsins.
    ::KÍB skeit klukkan 12:55 ::

    Einmitt - úrslitarökin hans Sírnis - gleymdi...

    Tímaferðalög eru sumsé möguleg, en aðeins stutt. Örlítið lengri hugsanlega líka ef þú breytist ekki í amöbu á því að dvelja í þyngdarleysi.

    Önnur leið - Ef maður gæti ferðast á hraða sem nálgaðist ljóshraða gæti maður í raun fryst sig í tíma og ferðast þannig fram í tímann að vild. Gert þetta t.d. á sporbaug og haldið þannig hraðanum...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:27 ::

    Einu pælingarnar um þessar sögubreytingar eru náttúrulega í bókmenntum og bíómyndum. Reynslan sýnir okkur að þær eru nú venjulega bull.

    Hinsvegar - ef við ætlum að hætta okkur út í þær pælingar mætti setja það módel (sem er bull og ég trúi ekki á) upp á eftirfarandi hátt. Raunveruleikinn liggur á óendanlega breiðri sléttu tímans. Hún er takmörkuð til endanna - þ.e. upphaf og hugsanlega lok tímans??

    Á sléttunni er hefst raunveruleikinn sem ein lína sem kvíslast svo í margar sem aftur kvíslast osfrv. = Atburðir.

    Ef þú breytir atburði gæti raunveruleikinn hugsanlega tekið aðra línu áfram sem hefur þau áhrif að við lifum í öðrum raunveruleika en ella eftir það. Upprunalegi raunveruleikinn ásamt öllum öðrum möguleikum eiga sér þó stað á sama plani við hlið þess sem við lendum á.

    Hugsanlega væri áhugaverðari pæling hvort hægt væri að hoppa milli þessarra raunveruleika (vídda) frekar en í tíma??

    Með von um hrokafullt svar.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:23 ::

    Kollý þroski!
    Þið eruð svo miklar ufsagrýlur. Það hægist ekki aðeins á öldruninni, tíminn líður hægar. Úr geimfaranna gengur á öðrum hraða miðað við þá sem á jörðu dvelja og það er eitthvað allt annað en dvali-elpasvali. Annars treysti ég helst Svenna í þessum málum af því að pabbi hans gaf einusinni út Tímann.
    Svo ég vitni nú í ljóðið Tíminn og vatnið eftir Einar Stein Steinar

    Létt rennur stund,
    á góðvina fund
    en þungstígur tíminn
    þegar verið er að taka mann í rass bara til að pína mann.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 11:58 ::

    Tæknilega séð er mar að ferðast fram í tímann ef mar hægir á öldrun, mar kemst bara ekki til baka.
    Það er gaman að sjá hvað KÍB er hrokafullur verkfræðingur, við erum bara komnir með tvo hrokafulla vísunda. Ég er bara ekki að skilja afhverju það er ekki hægt að ferðast um tímann. Einu sinni var ég svo hrokafullur að segja að ferðast hraðar en ljósið sé ekki hægt. Það er hins vegar fáránlegt að halda því fram að það sé ekki hægt. Það er reyndar alveg líklega ekki hægt en hins vegar kennir sagan okkur það að sannleikur í dag er bull á morgun. Pælingin mín í byrjun var einfaldlega sú að ef það er hægt að ferðast til baka í tímann, er þá búið að því og breyta sögunni?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:46 ::

    Pældu samt aðeins í þessu - hið nákvæmlega sama er að gerast, þ.e. þú ert á einhverjum stað í framtíðinni á öðrum aldri en þú hefðir átt að vera þar. Bara takmarkaðra.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:29 ::

    Maður er ekki að ferðast í tíma þótt maður hægi á öldrun. Ef þú hægir á öldrun þá lifir þú lengur, það er ekki tímaflakk. Annars væri hægt að segja að birnir væru að stunda tímaflakk þegar þeir leggjast í dvala!
    Eina leiðin, sem ég sé, til að stunda tímaflakk, að einhverju marki, er að ferðast hraðar en ljósið og það er ekki hægt.
    ::KÍB skeit klukkan 11:22 ::

    Enn af tímaferðalögum.
    Ef hægt væri að yfirvinna ókosti þess að lifa í þyngarleysi í langan tíma, þ.e. beinþynningu og fleira, væri hægt að fara út í geiminn, búa þar í nokkur ár - jafnvel í einhversskonar svefnástandi. Þá verður öldrun/hrörnun hægari en ef viðkomandi væri á jörðu niðri.

    Þegar viðkomandi kæmi til baka mætti segja að hann hefði ferðast eilítið fram í tímann - þ.e. hann er orðinn yngri en hann hefði ella verið árið X en er engu að síður staddur á því ári.

    Ferðalög til baka í tíma eru hinsvegar mun erfiðari viðfangs. Tímaferðalög í hefðbundnum skilningi eru einnig þess eðlis að breyta þarf nokkrum grundvallarlögmálum um tíma og rúm til þess að það sé einhver pæling.

    ERGÓ: Áfram - kannski með smá svindli / til baka - ekki í bili amk.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:01 ::

    Líkan af hugsanlegri mynd tímans:
    Tíminn er eins og endalaus hringstigi sem á hverju þrepi stendur einn náungi sem borðar hrökkbrauð með engu smjöri. Allir eru þeir á leiðinni niður stigan og yfir hvern þeirra rignir hrökkbrauðsmylsnu af gaurunum beint fyrir ofan.

    Nú vill hrokafulli verkfræðitrúðurinn meina þar sem þetta er stigi þá sé aðeins hægt að ferðast um hann einan og því tímaferðir ómögulegar.

    En reki maður við þá hefur það áhrif upp stigan. þó maður geti ekki snúið við sökum þrengsla. Eru líkur á því að með nógu mögnuðu Skabba eða Guðnaprumpi myndist rúm til að klífa stigan á handriðunum. En geri maður það þá missir maður af þeim hrökkbrauðsmylsnum sem yfir mann myndu rigna meðan maður klöngrast á stiganum.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 10:40 ::

    Sírnir hinn mikli hefur talað...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

    Hrokafulli PungKlípiTrúðurinn með kúk í bleyju
    ef-það-er-ekki-áþreifnalegt-þá-er-það-ekki-til-verkfræði-faggi
    Það er fullt hægt að ferðast um tíman, það eru allir alltaf að því NEMA ÞÚ af því að þú ert svo ljótur að þér verður aldrei boðið með. Ef maður horfir bara á DiscoveryChannel endrum og eins þá lærir maður alveg jafn mikið og þeir sem læra verkfræði og aðrar raungreinar í 4 ár í háskólanum, og það hef ég akkurat gert, sem og ég vitni aftur í Dikecovery þá er til svokallaður ThinkTank í hollandi held ég þar sem hrokalausir vísundar frá ýmsum löndum reyna að leysa hugans gátur. Þeirra á meðal er sérstaklega virtur vísundur sem einbeitri sér að því að raunverulega leysa vandan um það hvort tímaflakk sé mögulegt.

    Dæmi um tímaflakk: um helgina fórum við Kollý, Graðni og Kúkrúnkiprumpi í bæinn og ég er sannfærður um það að við Kollý fengum okkur TimeElexir því að allt í einu vaknaði ég bara og varð að koma mér í vinnuna, en smám saman rifjaðist upp fyrir mér algjörlega af handahófi atburðarrás næturinnar og hún er ekki samfelld. ERGO við ferðuðumst ekki samfellt um samfelldan tíma heldur skoppuðum um tímasviðið líkt og herðatré í DangerZone. Q.E.D.
    -How do you like THEM apples!-
    ::The Satan of Death skeit klukkan 09:31 ::

    1.3.02

    Framtíðin
    Ef ég hefði farið í stígvélum í vinnuna í morgun, hefði þá framtíðin orðið örðuvísi?

    Það er ekki hægt að ferðast aftur í tímann og það verður aldrei hægt! (þótt vissulega gæti það verið skemmtilegt ef svo væri.) Þ.a.l. eru svona pælingar óþarfar.
    ::KÍB skeit klukkan 17:24 1.3.02 ::

    Ég held nú að það sé gölturinn sem sé heimskari en egg. Fyrst hann vill vera svona mikill málfræði og stafsetningarlögga þá vorum við ekkert að tala um málfræði, hann var kanski að því. Reyndar sé ég ekki alveg málfræðina sem hann er að tala um en hver skilur þetta hrín í honum.

    Alltaf gaman þegar einhver dissar Ísland.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:45 ::

    Knorrsuppe er dumber dann et egg
    Við erum að tala um málfræði, ekki eðlisfræði fríkið þitt.

    Diss á Ísland
    You would think a country called "Iceland" would be good at winter sports. As a colleague pointed out, the country may be the only one in the world with a Winter Olympics playing surface as part of its name. Meira...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:30 ::

    Afvherju alls ekki? Þú ert kanski að gera ráð fyrir að tíminn sé eins og lína og við erum í rauninni bara einhverstaðar á tímaásnum þannig að framtíðin er til einhverstaðar þannig séð. Þá ætti ekki að vera hægt að fara til baka og breyta vegna þess að þá væri búið að því og raunveruleikinn okkar er sem sagt breytt saga. Hins vegar getur alveg verið að framtíðinn sé ekki til og verði til með hverri sekúndu sem líður, þá ætti að vera hægt að fara til baka og breyta sögunni.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:22 ::

    Svar
    Nei, alls ekki. Hinsvegar VÆRI hugsanlega hægt að fara til baka...

    Spurning til Knorrfés
    Hvernig var með Sibba í bíó í gær? Eða varstu kannski að hnýta flugur með Halla Guðmunds?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:45 ::

    Ef maður ætti tímavél, er þá hægt að fara til baka og breyta og sögunni?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:36 ::

    Skoða eldri færslur >>