31.10.02
01100001
01101110
01101110
00100000
11100001
00100000
01100001
01100110
01101101
11100110
01101100
01101001
00100000
11101101
00100000
01100100
01100001
01100111
00101110
00101110
00101110
Við skulum allir syngja afmælissönginn:
Hann á afmæli í dag,
...
-og Giggús er Göbbels
Ég las fínan pistil í gær hjá eoe.is og linkar hann á mjög góða grein sem fjallar um hversu fljótir menn eru að líkja stjórnmálamönnum við fígúrur úr WWII (góðar eða slæmar), um hvernig alheimslöggutaktar BNA gera lítil vandamál stór og síðast en ekki síst að allt er þetta kryddað með vitleysingum sem hafa söguþekkingu sína af tyggjópökkum og hegða sér í samræmi við það.
Var að spá í að skrifa þetta í ummæli hjá gaurnum en hætti við. Ekki alveg sáttur við skrifin mín. Þessi átti sem sagt að fara í ruslið en fer til ykkar í staðinn - í hvíta ruslið.
------------------------
Hilli, Stalli, Killi og Velli
Ef við ætlum að fara í nafnaleik með WWII getum við líka kallað vonda menn Stalín, hann drap tugmilljónir sinna eigin landa.
Einhverjum kann að finnast grófara að drepa 10x fleiri af löndum sínum en Hitler drap af gyðingum. Sem voru jú vissulega landar hans að einhverju leyti. Hér er ekki verið að draga úr vægi hvers mannslífs.
Eða hreinlega Churchill / Roosevelt sem brenndu 135.000 óbreytta borgara til dauða í eldhafi í hinni hernaðarlega ómerkilegu Dresden undir lok seinni heimsstyrjaldar. "Til að eyðileggja baráttuþrek andstæðingsins skaltu kremja það fallegasta sem hann á." Eldsprengjurnar bjuggu til eldstorm sem sogaði allt súrefni á svæðinu til sín og náði tæplega 1000° C hita. Síðan skutu flugvélar á þá sem eftir lifðu, m.a. bandaríska stríðsfanga.
Eftir þetta drápu þeir náttúrulega álíka marga í Hiroshima og Nagasaki, minna illvirki en Dresden en illvirki engu að síður. Óþarfi? Hugsanlega...
Þannig ættum við að geta sagt: "Bush er Churchill." Eða: "Osama er Roosevelt." Gerum það þó ekki.
Staðreyndin er sú að stríðin sem slík eru vond. Allir sem setja puttana í þau gera mismunandi ógeðfellda hluti en ógeðfellda engu að síður. Þar með talinn títtnefndur Bush. Hann er engu betri og engu verri en aðrir stríðsherrar.
30.10.02
Að því að ég best veit hafa Vonleysingjar farið þrjár ferðir í það heila enn sem komið er. Fyrsta ferðin var því sem næst fugllausa ferðin okkar Dindra á Skjaldbreiðina. Á fimmtudaginn í síðustu viku fór Graðni upp í Súlur og kroppaði niður 4 fugla, sá ekki fleiri. Ég skaust svo við annan mann í Súlugil á sunnudagsmorgun í blíðskaparveðri. Gengum fram að hádegi ca. enda þurftum við að vera komnir í bæinn aftur um 2 leytið. Skemmst frá því að segja að við fengum 3 fugla, ég 1 en feiti daninn 2. Auk þeirra fugla sem við skutum sáum við 2 fugla í fjarska en fundum þá ekki þrátt fyrir mikla leit. Þannig að samanlagður árangur Vonlausa eru fimm fuglar ferlegir þar sem Graðni er minnkurinn í hópnum sem kann sér ekki hófs í drápunum. Skamm Guðni!!!
Í framhaldi af þessu sting ég upp á því að Vonlausa Veiðifjelagið nýti tímann á meðan Giggús er að sóla á sér vömbina í Flórítard og skelli sér í eina sameiginlega Vonlausa Veiðiferð þar sem verður drukkið, rifist, slegist, riðið, nei bíddu, ekki riðið...já og veitt!!!
Labels: Veiði
29.10.02
Djöfuls snilld:
Hippar
Texti: Valgarður Guðjónsson
Kúltúrpakk, hippalið.
Kúltúrpakk, hippalið
og alls konar rusl
uppfullt af djöfuls væli.
"Ykkar mál. Vandamál".
Helvítis eymdargól.
Helvítis eymdargól
í húmanistum
sem komust smástund í tísku.
"Ykkar mál. Vandamál".
Þykjast skilja pönk.
Hlusta ekki á pönk.
Misnota pönk.
Þið getið hnýtt ykkur
saman á rasshárum
og slefað svo vel
hvort upp í annars kjafta.
"Ykkar mál. Vandamál".
Hlustið á Patti Smith,
Hagen og beljulið
og haldið að þær
eigi eitthvað skylt við pönkið.
"Reipið er til!". Hengið ykkur nú.
"Höfnin er auð!". Drekkið ykkur nú.
"Spennan er há!". Steikið ykkur nú.
"Bensín er dýrt!". En brennið ykkur samt.
28.10.02
Godan daginn gott folk.
Nu er ordid ansi langt um lidid sidan eg hef latid i mer herya, vona ad
allir fyrirgefi mer og seu almennt katir.
Lifid her er indaelt ad vanda, vedur gott og mengunin yfirgengileg. Skolinn
gengur einstaklega vel og undirbuningurinn fyrir BA programid naestu onn er
i fullum gangi. Thad verda miklar breytingar eftir aramot, tha haetti eg ad
mestu ad laera kinversku og fer ad nota kinversku i nami, t.e.a.s. lesa
bokmenntir, menningarfraedi og ymislegt annad meira spennandi en bara ad
sitja allan daginn ad studera malfraedi.
Annars er eg nykominn heim fra Hong Kong thar sem eg loksins, loksins, festi
kaup a flugmida heim. Ja, rett er thad, eftir eitt og halft ar i Asiu er
kominn timi til ad kikja heim og sja sitt folk. Eg lendi i Keflavik thann
13. Januar og mun dvelja a Paradisareyjunni thar til 26.Feb. Mikil gledi
thad. Thad er strax kominn spenna i minn kropp og eg tel daganna thar til eg
stig faeti a fredna jord a ny.
Ja ja. Tha er svo sem ekki margt annad ad segja fra i bili en hvet folk
endilega til ad lata i ser heyra og segja mer hvad er ad gerast thvi eg veit
navkaemlega akkurat ekki neitt :)
Heyrdu, thetta er tha bara thannig. Ast og fridur fra lydraedisrikinu i
Midjunni.
Arnar Steinn
25.10.02
24.10.02
23.10.02
Mér finnst að ég hefði átt að vinna.
Annars er ég búinn að herða upp á gormaliðunum og stýrismaskínunni í Krúsernum og þetta er allt annað líf. (Hehe - þið vitið ekki hvort þetta er bara eitthvað bull eins og truntpakkning, kjörnfar og splæsreim)
þessi ætti að gefa sumum svarið -
Vísbending 1.1.0. : þeir bera sama ættarnafn
Vísbending 1.0.1: umræddur Íslendingur er skráður karlkyns í þjóðskrá.
Spurningaleikurinn þar sem þú getur unnið ljúffenga flösku af BASTUÖL sem Sírnir gefur þér um jólin ef þú verður fyrstur til að pósta rétt svar hér á Vonlausa.
Spurningin er: "Hvaða Íslending rakst Sírnir á hérna rétt í þessu úti á mótum Kungsportsavenyn og Vasagatan?"
Vísbending, hann er nááááááááskyldur Kolla.
hér getið þið grandskoðað afstöðukort af því hvar ég er núna og aðeins austar er umræddur árekstrarstaður
Veljið IS 500V, hægt að velja hæðarlínur, vegi, vötn o.fl. (vantar reyndar örnefni).
Getur ekki verið að þeir menn sem þú ert að tala um séu í raun að rölta um svæðið að leita sér að fuglum sem hafa dáið af náttúrulegum orsökum, og eru því tæknilega séð í rjúpnamó en ekki á rjúpnaveiðum.
Væri þettta brot gegn eigendum?
22.10.02
Ef þú ert að vísa til setningarinnar "eignalönd og heiðalönd" er nú frekar hæpið ef þeir eru að stunda þetta utan eignarlanda. En hafðu í huga að utanvegaakstur er bannaður.
Þar sem svíar eru með óviðjafnanlega þjónustulund þá varð hann við þessu, en ég varð að kýla hann í nýrun af því að hann hóstaði blóði á tölvuna. Þetta er ekki neitt ennþá, en þarna ætla ég að reyna að halda smá dagbók um það sem ég er að gera hérna, þannig að ef úr verður að ég geri ekki neitt þá hef ég í það minnsta gert þessa síðu.
stínkur
"Bændur við Ísafjarðardjúp eru farnir að grípa til ?einkaráðstafana? gegn rjúpnaskyttum sem aka utan vega og fara skjótandi um landareignir þeirra og heiðalönd án leyfis. Meðal annars hleypa þeir lofti úr dekkjum á bílum sem skytturnar hafa ekið utan vega eða vegslóða og skilið eftir þegar haldið er á veiðar.
Í gær fór rjúpnaveiðimaður frá Ísafirði akandi upp veginn að Blævardalsárvirkjun og yfir stífluna við uppistöðulónið og inn á ósnortið land og skildi bílinn þar eftir. Þegar skyttan kom til baka var búið að hleypa úr öllum dekkjum. Sama hefur gerst á Steinadalsheiði og víðar.
Samkvæmt heimildum bb.is hyggjast bændur ekki láta hér staðar numið í aðgerðum sínum gegn ágangi leyfislausra rjúpnaveiðimanna. Það mun vera staðfastur ásetningur þeirra að láta menn hugsa sig um tvisvar áður en þeir koma aftur á þessar slóðir til aksturs utan vega og óleyfilegra rjúpnaveiða."
Af netmogga
Hvar standa bændur á Kollabúðum við Þroskafjörð í þessu máli? Er réttlætanlegt að gera menn að strandaglópum uppi á reginöræfum vegna gruns um ólöglega veiðimennsku?
Miðað við sögurnar af ládeyðunni hingaðtil var ég farinn að halda að ég væri brjálaður einræðisalki sem væri að draga ykkur meðvirku ræflanna með mér í svaðið. Fjarskalega er gott að svo er ekki.
Hvað fær þetta partý mörg rokkstig? Drukkið, ælt, drepist, strunsað, hlutum grýtt, mönnum hent út. brotnaði eitthvað? eða telur ennþá þegar Kwaron rúnkaði sundur klósettið hans Kolla?
21.10.02
Svo gleymdu þeir líka nestinu, en það var allt í lagi því þeir átu bara hvorn annan
Nú er kominn tími til að hysja upp um sig buxurnar og fara að veiða eitthvað!
Nú er kominn tími til að hysja upp um sig buxurnar og fara að veiða eitthvað!
19.10.02
prump á ykkur allar
18.10.02
ég vil bara óska honum til hamingju með þessa nýju síðu um veiðimál sem svo sannarlega tengjast VV ég bara skil ekki af hverju það er ekki línkur á hana hér til vinstri, (hægri ef maður er tölva)
Svenni geispar og notar stein fyrir kodda
Komin er skýring á því af hverju krulludvergurinn var að skjóta á Sibba. Málið er að hann er svo miður sín þessa dagana því að fólk er alltaf að rugla honum saman við Ron Jeremy.
Nú á að banna okkur að hengja rjúpurnar okkar utan á húsin því að það er svo ógeðslegt!!!
Þessi fífl halda því fram að það verði allt flæðandi í blóði og innyflum á svæðinu ef þessi litlu grey fá að hanga úti. Alveg er ég viss um að einhverjar reiðar lesbískar einstæðar mæður hafa farið að nöldra yfir þessu.......
17.10.02
16.10.02
Við Sindri vorum í gær á fjölförnustu rjúpnaslóðum landsins á fjölmennasta veiðidegi ársins. Það hafa ábyggilega verið a.m.k. 50 manns á Skjaldbreiðinni einni saman og hellingsumferð á vegunum í kring. Þá og þar hefði verið ekkert mál fyrir eina löggu að tékka á leyfum og löglegum vopnum hjá hrúgu af köllum en að sjálfsögðu var ekki ein slík í innan við fjarlægð 100 km fjarlægð frá svæðin. Manni finnst það frekar morkið þegar það er verið að minnka veiðisvæðið hér í kringum bæinn um helling og slengja fram styttingu á veiðitíma, sölubanni og vopnageldingu að það sé ekki einu sinni reynt að hafa eftirlit með því að núverandi lög séu virt. En á móti fær löggan á Húsavík props fyrir að nenna a.m.k að vera með augun opin á opnunardeginum.
Ég og Skabbi rukum af stað úr bænum kl. 06:00. Gilli frændi var skilinn eftir því hann nennti ekki að vakna nógu snemma. Planið var að fara í Skjaldbreið og héldum við inn eftir línuveginum og lögðum á "planinu" norðan við fjallið. Fyrstir á svæðið, ekki amalegt það.
Veiðin
Við örkuðum af stað og sáum fljótlega eina rjúpu í fjarska. Við héldum strax í átt að henni en hún var styggari en andsk... og flaug út fyrir sjóndeildarhringinn áður en við komumst í færi. Við settum þá stefnuna á toppinn og héldum að þar biði okkar sægur af rjúpum. Eini snjórinn sem við sáum var ofan í gígnum en þar voru engar rjúpur (það sama mætti segja um restina af fjallinu). Við eitthvað niður í hlíðina sunnan megin og settum stefnuna aftur á bílinn. Vorum komnir þangað um eitt-leytið án þess að hafa séð neinn fugl. Við heyrðum nokkra skothvelli og sáum nokkra kalla en það var alls ekki mikið á seyði.
Bíltúrinn
Nú voru góð ráð dýr og ákváðum við frekar að fara í bíltúr heldur en að fara í bæinn. Við héldum því áfram austur eftir línuveginum og tókum síðan stefnuna á Hlöðufellið. Ég hafði heyrt veiðisögur þaðan og datt í hug að það gæti verið gaman að kíkja á það. Þegar að því var komið leit það út fyrir að vera nánast ókleift, sandbrekkur neðst en hamrabelti efst. Við lögðum því ekki í það enda hafði mér tekist að bösta á mér hnéið fyrr um daginn.
Við Hlöðufellið hittum við fyrir þrjár hressar sveitastelpur að leita að hrúti einum sem þær sögðu að héldi til þar um slóðir. Þær sögðust hafa séð tvær rjúpur við Sköflung fyrr um daginn en fullt af þeim við Stóra-Dímon daginn áður. Okkur Skabba fannst þetta skrítið því eini Stóri-Dímoninn sem við vissum um var í rétt hjá Markarfljóti. Það upplýsist hér með að það er einnig til Stóra-Dímon á Lyngdalsheiði.
Síðan héldum við áfram að skröltast eftir slóðanum. Cherokee-inn þoldi það merkilega vel. Við stoppuðum tvisvar á leiðinni og kíktum aðeins út en sáum engan fugl. Fundum þó nokkuð af stöðum sem lítu út fyrir að vera vænlegir í meiri snjó. Vorum síðan komnir heim upp úr fimm.
Niðurstaða
Fínn dagur en veiðin hefði nú mátt vera meiri (a.m.k. veiðivonin)! Ég held að í framtíðinni væri betra að leita langt yfir skammt.
Labels: Rjúpa
Heill sé þér Stefán Pje, verndari og dýrðlingur tölvulúða með hor í nös um heim allan!!
Hahahahaha
Hmmm...........er það þess vegna sem dindill tók inn skallalyf, til að vera meiri harðjaxl?
Hann skrifar stórt, en ég held að hann sé ekkert ýkja skýr, hnoðrinn sá arna.
Nýlega rannsókn bendir til þess að rauðhært fólk sé næmara fyrir sársauka en aðrir. Samkvæmt rannsókninni þurfa rauðhærðir um 20% meira af sársauka- og deyfilyfjum en þeir sem eru með annan háralit.
Hahahahaha - Sindri aumingi, Sindri aumingi....
Af vísi
Stefán fjarlægist hér með úr hómís þó að ég efist um að hann fari að gráta. Kannski ef við hendum húfunni hans í poll?
Reyndar finnst mér fáránlegt að vera að púkka undir 200+ barna æskulýðsstarf. Það er miklu snjallara að byggja upp flott rafveitusafn. Jeee.
Það er vert að endurtaka, heill þér Sóshéðinn fyrir að minna á það hér.
RASS
Ekki byrja á þessu aftur!
15.10.02
Ohh - við löbbuðum og löbbuðum og fengum þvílíkt hælsæri án þess að sjá kvikindi. Svo borðaði Skabbi samlokuna mína og átti svo Subway í bílnum þegar við komum til baka. Svo tók ég líka eftir því að hann var búinn að naga skaftið af byssunni minni og stela bensíninu þegar ég skilaði honum heim. Þetta var ömurlegt. Ég vildi að ég hefði verið í vinnunni eins og Kolli og Sveppur. Djö...
Jó - veidduð þið eitthvað?
Djöfulsins munur að hafa tíma til að föndra í þessu. Obi-Wan, AmalgaM eða ChubaCabra ættu að gefa út tónlistar-DVD hljóðblandaðan fyrir heimabíókerfi.
14.10.02
(skotunum fannst þetta samt heavy fyndið)
he takes it up the rear,
na na na na na na na na
he shags all over town,
and when he's shagging Bertie,
he thinks of Craigy Brown.
Og hvað erum við að gera í þessu tré anyway, við erum engir netverjar.
Réttupphend í VV sem sér sig fyrir sér sem netverja!
Best að búa til skoðanakönnun.
Netverji myndi gera það!
Hversu fyndið væri samt að vera í brandarafangelsi ??
Tillaga að svari: Ef þú ætlar að halda lífi verðuru að passa þig á skotkúkunum ... ???
Annars er það ekki ráðlegt að senda fyrirspurn í svartholið hans Svenni þar sem óendanlegt þyngdarafl gerir það að verkum að ekkert kemst út.
Spurning: Hvað er líkt með rassgatið á Geltinum og ´War Zone'?
Dindri dindill og Spunge ætla víst að fara og halda 1sta í rjúpu hátíðlegan (Dindri - þú ættir að gleypa allar rjúpur sem þú skýtur heilar og æla þeim svo í bænum - þá eru minni líkur á að Spunge steli þeim). Annars er vert að minna menn á að láta vita um ferðir sínar og gera allt rétt - í fyrra voru 14 eftirgrennslanir vegna rjúpnaskytta hjá Neyðarlínunni, flest allar þessar eftirgrennslanir áttu rætur sínar að rekja til þess að ekki var vandað til undirbúnings veiðiferðar og ferðaáætlun ekki gerð. Allt á 15. okt. Þannig að það verður eflaust stuð hjá mér á morgun...
Jójó - fór á Gufuskála með Björgunarsveitinni á Undanfaraæfingu. Við eyddum helginni að mestu hangandi í spottum eitthvað að mixa fyrir veturinn.Stuð...
(ég er að hlusta á Sveitamannapönk með Ob-Wan - jeee)
Talandi um tónlist - fór á tónleika í gærkveldi. Sólstafir voru að spila þegar ég kom á staðinn. Þeir eru algjör snilld. Gamla góða þunga/dauða - 1990 fílingur. Náið ykkur í sýnishorn und tjékk itt! Ég ætla að reyna að sjá þá oftar. Með flösuna og leðrið og allt á hreinu. Og fokk hvað trommarinn þeirra er að massa. Monster hraðir taktar - pure mussle.
Síðan stigu okkar eigin Brainpolice á stokk og voru geðveikir! Þeir eru að gefa út 3 laga demo í vikunni sem allir verða að kaupa. Nýi söngvarinn er náttúrulega magnaður og Jómbi er magnaður og Laugurinn er magnaður og Höddi er magnaður og stærstur (XXXL) enda eru Brainpolice þyngsta hljómsveit á Íslandi. Jeee...
Labels: Tónlist
ha ha ha hah og H AH A HAH AH AH Ahhhhahaha
Það er opinn veðbanki hér í skólanum um það hvort einn gaur sé með Skabba eða ekki ( 90/1 )
þannig var að hann klæjaði svo mikið að hann fór til læknis sem gaf honum eitthvað kláðakrem sem virkaði ekki neitt og þegar hann var farinn að fá svona millimeters sár um skrokkinn og á tippið sérstaklega, þá ákvað hann að fara til kynsjúkdómalæknis sem henti honum út til einhvers húðsérfræðings sem tók húðsýni en fann ekki neitt þótt hana grunaði að hann væri með Skabba, en þann 17 fer hann aftur til læknis til að sjá hvort hann sé með Skabba.
Mér datt í hug að nýta mér aðstöðu mína og fá innanbúðarupplýsingar (innherjaviðskipti): Skabbi ert þú með, hefur þú einhverntíman verið með, eða heldur Steffan Hjalmarsson að þið séuð saman?
Og af hverju þarf að fara til kynsjúkdómalæknis til að komast að því?
11.10.02
Djöfull er þessi gaur mikill faggi - hann kemur með einhvern faggapúnkt og svo er þetta horfið örstuttu seinna af því að hann er leynifaggi og vill ekki láta alla vita hvað hann er mikill faggi. Faggi.
Mynd af móniku!
Góður draumur, hvað borðar þú áður en þú ferð að sofa? Afhverju er hún Mónika að biðja um myndir af ykkur, hvað ætti hún að gera við myndir af skápahommum? Fyrir utan það þá veit ég ekki betur en það séu alveg andstyggilegar myndir af ykkur hérna upp um alla veggi. Gott innlegg engu að síður, gat ekki greint hvort þar væri á ferð grenjandi biturð eða sönn andstyggilegheit. Þessi sver sig í ættina, því er ég sammála.
Á Baggalúti þá lenti rjúpan mjög neðarlega í grendarkönnun dýra á og við Ísland. Lenti í sæti 78 af 105 með orðunum "Ákaflega taugveikluð og keðjureykti". Ég sé reyndar ekki betur en en þarna sé sálufélagi Mjaðmarinnar kominn og hann bara ... 112: Er hún dauð. (Kaplam, kaplam, kaplam) Kolli: Já, hún er dauð.
Hei, Mónika. Sendu Vonlausa frekar mynd af þér.
Passa að fara ekki saddur í veislu!
10.10.02
Sindri er flumbra
Hvenær verðum við svo skítablogg dagsins?
Í gærkveldi var þvílíkt sjónvarpskvöld hjá mér sem var kærkomin tilbreyting frá félagsforingjafundinum sem ég sat fyrr um kvöldið. Jæja, hvað um það þá horfði ég Black books (tær snilld), Futurama og geimhommana í Star Trek og hafði gaman af. Eftir allt þetta gláp þá var ég náttúrlega límdur við imbann og horfði Kastljós endursýnt sem er bara sjúkt. Þar var verið að tala um blogg og enginn annar en Stefán Pálsson var annar viðmælenda ásamt einhverjum öðrum bloggara. Ótrúlegt en satt þá talaði hinn viðmælandin meira en Stefán. Þessu bjóst ég aldrei við, hélt að þetta væri ómögulegt. En þegar maður býst síst við því á eru sönnunargögnin á myndbandi og hundrað þúsund vitni.
En hvað um það "svo bregðast krosstré sem önnur tré" þá var umræðuefnið blogg og þá vaknaði sú spurning hjá mér um að hver hefði verið sendur af vonlausa ef að til þess hefði komið að fara í viðtal í Kastljósi? Hefði það verið:
Svenni: Þræll sem leitar fróunar í bloggi til að yfirvinna leiðindin í keisarveldi hins illa.
Skap: Þræll sem leitar fróunar í bloggi til að yfirvinna leiðindin í keisarveldi hins illa.
Mjöðm: Þræll sem leitar fróunar í bloggi til að yfirvinna leiðindin í keisarveldi hins illa.
Hýenan: Stúdent og gigaló sem leitar fróunar í bloggi til að yfirvinna leiðindin í keisarveldi hins illa.
Sírnir: Í keisaraveldi hins illa.
Ég: Dagmamman sem lokaði sig inní herbergi eftir að hafa mistekist að bjarga heiminum í keisarveldi hins illa.
McRenis: Hefði hvort eð er ekki komist.
Hver hefði verið málsvari vonlausa? Hver hefði komist best frá þessu? Hver hefði ekki talað af sér og farið hlæja eins og hýena?
Það er frost úti núna, hefur frost þessi áhrif á stelpurassa?
Hei ég finn ekki myndirnar sem eru til á VV af Benjamin, vill einhver setja mynd af honum upp á vonlausa fyrir mig í tilefni dagsins.
9.10.02
og svo pissa ég ekkert neitt á punginn á mér, ég klemmi aftari klemmunum á Guðnaböndunum mínum í hann svo að hann helst upp undir rassinum á mér. Þannig fæ ég líka QuadruplePrumpf og gyllinæðarsessu í senn.
Ha ha ha ha ha muniði eftir því þegar Kolli ætlaði að taka Gyllinæðarsessuna fyrir utan Gufubaðsstofuna og gaurinn kom hlaupandi til að stoppa hann,
"Tzjéddlingin hné niður - gæti verið gigtin, gæti verið gangráðurinn - eða eitthvað - hvað á ég að gera?"
112 gaur: "Slappaðu af - fyrst skulum við fullvissa okkur um að hún sé dauð."
Smá þögn, síðan - KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM.
Krumpi kemur aftur í símann, "Ókídókí, hvað núna?"
112 gaur: "Æj gamla beyglan, hennar tími var kominn..."
"Vinur minn hné niður - hann gæti verið dauður eða eitthvað - hvað á ég að gera?"
112 gaur: "Slappaðu af - fyrst skulum við fullvissa okkur um að hann sé dauður."
Smá þögn, síðan - KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM, KAAABLAAAMMMM.
Guðni kemur aftur í símann, "Ókídókí, hvað núna?"
8.10.02
Heimurinn snyst um mig, thessvegna er eg alltaf svona ringladur.
hva, their fundu bara allt i einu nyjan hnött, hvad eru tha stjörnuspekingar bunir ad vera ad gera undanfarid, ljuga ad okkur? Eg sem byggi allar minar akvardanir a thvi sem stendur i mogganum a hverjum morni, og thessvegna fer eg aldrei ur husi a manudögum. Heimsmynd min er hrunin.
Baccus er allt of svalur gud til ad soa nafninu hans a einhverja geimbaun. Vulkan er miklu betra enda var hann haltur krypplingur.
Önnur hugmynd að nafni er Svampurinn, en menn eru hræddir við það nafn þar sem það gæti orsakað það að nýja plánetan fari að svampast og svampi til sín allt efnið í sólkerfinu og orsaki það að heimurinn implodi.
Sminkur
Hvort ætli sé meira vandamál - fyllibyttur eða smókerar...
Hver man hvað plánetan sem Howard the Duck kom frá heitir?
7.10.02
Kurt Vonnegut
Læknarnair sögðu honum að hann ætti í mestalagi hálft ár eftir.
Hann hafði reykt eins og strompur alla æfi og var kominn með öndunargat á hálsinn og súrefnisslöngu þar ofaní, þannig að fréttirnar komu honum ekkert á óvart. Hann var undir þetta búinn, hann hafði gert ráðstafanir fyrir tilvistina eftir dauðann. Hann vissi upp á sig sökina að hafa verið ókristilegur; reykt, drukkið, slegist, hórast, drepið mann (að vísu var það í stríðinu en hann hafði aldrei fundið réttlætingu á því í orðinu) og hann spilaði gjarnan póker upp á pening og var óhræddur við að svindla. þannig að hann vissi að hann ætti örugga vítisvist og treysti ekki alveg fyrirgefningu guðs, þannig að fyrst hann var nú þegar dæmdur til vítisdvalar var nú eins gott að gera sér hana eins bærilega og mögulegt var. Niðri í kjallara átti hann litla kompu þar sem hann útbjo sér lítið fylgsni og særði fram Satan sjálfan og skoraði á hann í póker upp á sál sína, viss í þeirri trú að hann hefði engu að tapa og allt að vinna, gerði hann nú allt sem hann gat til að gera spilið eins skemmtilegt fyrir Satan og hann gat til þess að ráðabrugg hanns myndi ganga upp, þegar spilinu fer að ljúka spyr gamli maðurinn Satan hvort hann vilji spila aftur seinna sem úr verður, að þeir spila póker með 6 ásum á hverju Sunnudagskvöldi. Gamli maðurinn reynir að gera vel við Satan og býður honum ákavíti að drekka en Kölski spýtir við því og vill heldur Sellulósaþynnin sem hann rak augun í, til að sýnast jafnari finnur gamli maðurinn flösku af rauðspritti og flytur miðann í laumi yfir á brennivínsflösku, en til að bragðbæta setja þeir báðir Appelsínu og möndludropa útí.
Gamli maðurinn reykir sitt venjulega tóbak, en Lúsífer reykir eitthvað ógurlega sætt og höfgandi úr lítilli pípu þar sem hausinn er úr akarni og hálsinn úr holum stilk. Þeir spila upp á pípuna og gamli maðurinn hefur hana af skrattanum.
Svo deyr maðurinn af veikindum sínum og fer að öllum líkindum til Helvítis, en hvað um hann verður þar er ekki fyrir lifendur að vita, en pípan og spilastokkurinn með 6 ásum 2 hjarta ásum og 2 spaðaásum, tóm sellulósaþynnisflaska og brennivínsflaska með rauðsprittsmiða á, möndlu og appelsínudropar. Og pípan hans Kölska liggja nú í kompunni hans gleymdir.
-þarf aðeins að vinna á þessu. En þetta er sagan um gaurinn sem átti íbúðina á undan mér, sonur þessa gaurs erfði hana og seldi mér hana og það var nágranni minn sem lét mig vita af þessari kopu, sonurinn vissi greinilega ekkert af henni. Nágranninn lýsti syninum, sem hefur ekkert verið neitt allt of snyrtilegur sjálfur sem "Grísman"
Það er greinilega algjör snilldarregla að banna reykinar inni í íbúðum því þessi flauk af fýlu þannig að ég neyddist til að mála alla veggi.
Veggir í Svíþjóð
Svíar veggfóðra alla veggi, þannig að á öllum veggjum er pappír, sem er óþolandi að mála.
Sumir veggir eru veggfóðraðir með textílefnum, sem er enn ógerlegra að mála.
í svefnherberginu var blátt veggfóður með bómullarþráðum lóðrétt niður þannig að það leit út fyrir að vera veggfóðrað með bláum GBH-buxum
og eldhússkáparnir svo ógeðslegir að ég og mamma, sem hjálpaði mér við allt, vorum heilan dag að þrífa eldhúsið, en nú er allt nýmálað og hreint.
Ég fékk gefins 3sæta sófa sem er gott að hvíla sig í svo fékk ég mér eldhúsborð og stóla, stofuborð og mottu, straujjárn, rúm handa Benjamin í notaðrasölu-kirkjunnar, bráðsniðugt framtak, kirkjan selur ódýrt gömul húsgögn sem þeir fá gefins.
Svo er ég sjálfur á rúmi úr rúmfatalagernum, prýðisgripur, hlakka mikið til að láta reyna á gormana í því. þannig að núna er ág með eldhús svefnherbergi og hálfa stofu, mig vantar hillur undir allt dótið sem ég á ekki ennþá. Svo er eitt herbergi alveg tómt.
Sturtan er mjúk og þægileg, engan veginn eins og frábæra rigningarsturtan sem ég var með á Sævangi en alveg ljómandi engu að síður, stórt og karlmannlegt niðurfall. Og þvottavél í baðherberginu, losna við að bóka tíma og kjaftæði í þvottahúsinu.
En nú fer ég að skólast aftur, tók mér vikufrí(skróp) til að mála og þrífa og redda drasli.
Sagan hans Krumma var allt of fyndin.
Í nótt sefur Benjamin Logi hjá mér í fyrsta skipti í íbúðinni minni, spennandi að sjá.
4.10.02
3.10.02
Í nótt dreymdi ég að ég væri að halda partý á háloftinu á skrýtnu gömlu húsi. Rosa gaman, fullt af fólki. Allt í einu fékk ég, ásamt Thori Thors, þá frábæru hugmynd að búa til snittur úr hrökkbrauði, kotasælu og mannaskít. Þegar því var lokið varð svo ofboðslega gaman hjá mér að ég drapst og vaknaði ekki aftur fyrr en 4 tímum seinna ( í draumnum þeas). Þá var fólkið í partýinu búið a éta allar snitturnar. Þetta þótti mér svo óstjórnlega fyndið og ég hló svo mikið að ég vaknaði, hlæjandi. Endir
Ætli þetta þýði að ég sé illa innrættur. Eða að mig dreymir um að éta skít með Thori Thors......
2.10.02
Varðandi himnaríkis- eða helvítisvist gagna á tölvum okkar þá leyfi ég mér að fullyrða að biblíumyndir og falleg ljóð fara aldrei inn á harðan disk í þessum tölvum. Þangað fer bara ósómi eins og allir vita og ég held að við myndum frekar henda tölvunni og dæma hana ónýta frekar en að eyða öllu kláminu. Fæðilega séð kemur aldrei til þess að Lykla-Pétur leggi dóm á þessi gögn, vegna þess að þeim er aldrei eytt.
En ég held að þú ættir ekki að hafa áhyggjur af þessu Svenni minn. Miklu fremur huga að eiginn sálarheill vegna þess að þú hefur nú þegar unnið þér inn eilífa kvalarvist í helvíti vegna þess að þú gegnur blygðunarlaus meðal almennings í spandex hjólabuxum. Það hlakkar í Skrattanum að hitta þig og ég veit það fyrir víst vegna þess að ég var að tala við hann.
Einu sinni var göltur sem hét Svenni sem vildi verða maður. Hann fattaði að hann gat ekki breytt sér í mann, þannig að hann ákvað að þykjast bara. Hann fór að ganga á fjöll, keyra á jeppum og fékk sér vinnu þar sem hann mátti vera í jakkafötum allan daginn.
Honum gekk nokkuð vel til að byrja með, lærði að labba næstum uppréttur og hrýndi mikið. En það komst alltaf upp um hann, því hann var með bleikan, uppásnúinn svínsdindil sem potaðist oft í gegn um buxurnar hans.
Gölturinn brá þá á það ráð að skera svínsdindilinn af, klæddi hann í föt og kallaði hann Sindra.
Sindri vildi líka verða maður, eða allavega þykjast, en þar sem hann var bleikur, hárlaus og uppásnúinn tókst það mjög illa, enda er hann kallaður dindill enn þann dag í dag.
Fin
Sem minnir mig á eitt, hvenær eigum við að setja Sírni í búr og selja aðgang? Ég sé milljónirnar koma fljúgandi.
1) Þú hefðir átt að fatta þetta strax, án vísbendinga
2) Alvöru nördar finna sætistöluna í höndunum, með blað og penna að vopni.
Enginn bjór verður veittur í verðlaun.
1.10.02
Sko - nú eru gögn í tölvum bara rafboð. Fólk er líka bara safn af rafstraumum sem mynda minnstu einingar lífs og byggjast þannig saman eins og legó þangað til það er kominn feitur kall eða geðveikt ríðuleg kjélling. Ef ekki væri fyrir samspil þessara rafeinda væri í raun hægt að hlaupa bara beint í gegnum mann...
Nema hvað - fyrst að gögn eru rafboð alveg eins og maðurinn hljóta þau að eiga rétt á eilífu lífi ef þau haga sér vel. Þannig hljóta góð gögn, t.d. kristilegar myndir og falleg ljóð að fara til himna og vera á einhverjum ótrúlega næs rúmgóðum hörðum diski um aldir alda amen.
Vond gögn eins og klám og þannig hljóta að fara til helvítis þar sem þau lenda í allskonar vírusvörnum, bandvíddarlögreglu, disk cleanup og öðru veseni um alla eilífð.
En pælingin er þessi - ef vond gögn iðrast rétt áður en ég hendi þeim, komast þau þá til himna?
110111100110100111110000001000000110010101110010011101010010000001
101000011011110110110101101101011000010111001000000000
Skoða eldri færslur >>

