29.11.02

Tírnir trunta eða hói?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 20:10 29.11.02 ::

28.11.02

allir syngja með
::The Satan of Death skeit klukkan 17:52 28.11.02 ::

Ég var að leika mér í öðru hljóðstúdeoi skólans, nennti ekki að vanda mig, leiðinda ávani
::The Satan of Death skeit klukkan 17:48 ::

27.11.02

Blönduós
Það er krókur að keyra á Blönduós. Samt er vegurinn lagður þangað svo þeir geti rekið sjoppu og byggt fullt af hringtorgum til að neyða mann til að kaupa táfýluborgara.

En það er ekki nóg. Þeir verða líka að pína mann til að keyra svo hægt að þeir geta hlaupið mann uppi til að pína ofan í mann Sloppy Joe´s. Hálfvitar.

Það er ca. 20 km. krókur að keyra að þessu rassgati ef maður er að keyra norður. Við byggðum massív göng til að stytta leiðina aðeins en svo þurfum við að taka einhvern helvítis hammarakrók? Ég keyri alltaf í gegnum Húnavelli og sleppi þessari vitleysu

Hvað er líka með að bíta í hendina sem fóðrar mann? Stoppa allt pakkið að sunnan og sekta það fyrir að keyra á 91 - helvítis pakkið sem við neyðum til að keyra í gegnum bæinn okkar og kaupa hammara skal sko ekki fá að keyra á réttum hraða (athugið að venjurétturinn er sterkari réttarheimild en settur réttur - til eru hæstaréttardómar þar sem segir að eðlilegur hámarkshraði á 90 km. vegi við bestu aðstæður sé mun hærri. Einnig hefur Ríkislögreglustjóri sent embættum sínum bréf og beðið þau um að sýna ekki ósanngirni í þessum málum og stoppa ekki fólk á undir 110).

Ég legg til að við leggjum veginn stystu leið, framhjá Blönduósi, og látum þá alveg um að kaupa hammara og stoppa hvorn annan og hananú!





::Hívatha litli skeit klukkan 17:58 27.11.02 ::

Ég prófaði þetta comment kerfi. Það er leiðinlegt. Og þú ert gluggafaggi og ég vil ekki naga neitt á neinum manni. Drullugöltur.
::H.H. skeit klukkan 17:38 ::

Ég legg til að árshátíðin verði haldin 14. des. í Nesinu sem er ofar. OK? Þið eruð faggar.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:04 ::

Er ekki alveg að ná þessu comment dæmi. Afhverju? Ég hélt að þetta væri hin alþjóðlegi dissvefur VV, eða eins og stendur í auglýsingunni "a world of insults and homophobia, just one click away" en núna er þetta orðinn tveggja clicka síða. Ég vil beinlínutengingu í ósóma og ruddaskap.

Og ég er að sjálfsögðu með kenningu um þetta. Þú sem ert sá ofurfaggi að glápa á Krumma sjúga skaufan á Tryggva skít (a.k.a Hringur róni) finnur náttúrulega þörf hjá þér að setja allt í litla glugga til að glápa á það, vojur-faggi.
::H.H. skeit klukkan 12:29 ::

Jamm, ég var annars á gangi um daginn niðri á Laugarvegi og rakst þar á Krumma. Hann var að slefa upp í Hring róna og fór síðan niður á hann í dimmu húsasundi. Það voru einhverjir falin myndavél gaurar þarna frá Popptíví og ég fór eitthvað að spjalla við þá. Þeir voru í sjokki. Þá höfðu þeir semsagt fengið SkúbbíDú til að labba upp að fólki og reyna að kyssa það. En allir náttúrulega hlupu æpandi í burtu. Nema Krummi. Hann er semsagt með eitthvað rosalegt róna fetish og varð bara að fá kallinn. Magnað.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

26.11.02

Djöfull er hressandi að geta dissað tvívítt...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:03 26.11.02 ::

Kúl
::Hívatha litli skeit klukkan 12:33 ::

25.11.02

Skellti inn kjaftakerfi upp á djókið...
::Hívatha litli skeit klukkan 17:58 25.11.02 ::

Helgin
Kíkti í Tindfjöll með björgunarsveitinni. Fengum þvílíkt skítaveður á föstudagskveld og nótt, skítaveður á laugardag en nokkuð gott í gær. Komumst ekki á neinn almennilegan tind og létum Stóra-Bláfell duga. Annars er þetta bara nokkuð flott rjúpnasvæði held ég, stutt úr byggð, mikil hæð og jöklar. Sá 3 fugla á föstudaginn og það voru einhverjir faggar að skjóta þarna á laugardaginn, amk. heyrði ég skot.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:39 ::

22.11.02

Djöfulsins kjaftæði. Þú ert alltaf á fylleríi af því að þú ert ljótur og leiðinlegur og engum þykir vænt um þig. Þú ert ekki ljótur og leiðinlegur og hataður af öllum af því að þú ert alki. Enda varstu ljótur og leiðinlegur og engum þótti vænt um þig löngu áður en þú byrjaðir að drekka.

Shit hvað ég er með mikið ógeð á þér!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:05 22.11.02 ::

Ok, það er eins og að segja að Sveppi sé með undirhöku vegna þess að hann er kallaður gölturinn, ekki öfugt.
::Mósagrís skeit klukkan 15:22 ::

Vá hvað ég vissi að Gölturinn mundi sjá þetta svona.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:25 ::

Gæti ekki hugsast að fólkið reyki svona mikið gras af því að því líður illa, ekki öfugt??
::Hívatha litli skeit klukkan 10:46 ::

21.11.02

Já það er rétt. Námið heitir Fri konst och digital gestaltning. Ég setti upp platgat á dyrinar á herberginu okkar með mynd af digimonum og skrifaði Fri konst och Digimon gestaltning. Einhverjum fannst það ekkert fyndið og tók það niður, ég held að það hafi verið kennari.... ég er fallinn.
::The Satan of Death skeit klukkan 12:01 21.11.02 ::

"My webdiariary for my MA degree in FineArt and DigitalMedia...."

Þegar sírnir útskrifast verður hann orðinn Farting DIGImon?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:25 ::

20.11.02

Hahahahahahahah

Ég skildi ekkert í því hvert þessi umræða var að fara um einhverja gaura að tala um landamerki fyrr en stórsnjöll svívirðing Mjaðmarinnar og innskot íslenzkulöggunnar kom.

Varðandi þennan spjallvef sem skíbloggað var á þá skoðaði ég hann og las allt eins og góður sonur. Ég vil taka áskorun eins þarna um að fara veiða á einhverjum skítalandkrika bara til þess að láta handtaka sig og gera prófmál úr því.
Áfram hver sem þú ert
Anarkistar allra landa sameinist í heimskupörum og tilgangsleysi
::H.H. skeit klukkan 15:38 20.11.02 ::

Nú tel ég mig ekki vera íslensku snilling en VÁ hvað sumir eru talfatlaðir á þessu spjalli...
::KÍB skeit klukkan 11:28 ::

19.11.02

Mér finnst þú vera faggi og þessi Sissi sem skrifar þarna er greinilega fatlaður og með aukalitning.

Svo er Skabbi píka.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 20:44 19.11.02 ::

Hvað finnst ykkur um þetta mál?
::Hívatha litli skeit klukkan 16:41 ::

Ég hvet alla vonleysingja til að fylgjast með þessari umræðu af athygli, enda merkileg í alla staði...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:53 ::

HA HAHA vinnnufélagar Sindra ríða rjúpum

ég var svo uppveðraður af skítablogginu hans Skarpa að ég vildi líka skítablogga
Flassteiknimyndir, skoðið þær allar
::The Satan of Death skeit klukkan 15:01 ::

Af hverju reið hann rjúpunum? Oj...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:06 ::

18.11.02

Vinnufélagi minn fór norður í Öxarfjörð og tók 14 rjúpur á þremur dögum.
::KÍB skeit klukkan 16:46 18.11.02 ::

Nei - hvaða faggar voru þetta?
::Hívatha litli skeit klukkan 16:46 ::

Það er lygi - þú baðst mig um þetta eins og vælandi krakki í síðustu viku
::Hívatha litli skeit klukkan 16:32 ::

"Þrír veiðimenn á Þorskafjarðarheiði fengu saman 11 rjúpur eftir daginn, eða 3,5 rjúpur á mann. Sjálfsagt verður það að teljast lítill fengur en samt, menn komu ekki rjúpnalausir af fjalli." (sjá)
Voru þeir með leyfi?
::KÍB skeit klukkan 16:31 ::

Ég fæ póstinn hans Sírnis og mér finnst að hann eigi ekki að vera á netinu!
::KÍB skeit klukkan 16:30 ::

vá, bloggað með tveggja sekúndna millibili!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:51 ::

Dindri bað sérstaklega um þetta þar sem hann fær þetta ekki og bað mig að taka fram að þú ert fífl í leiðinni.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:50 ::

fréttir eru farnar að berast af veiði fyrir austan og vestan....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:50 ::

bíta sklogg
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:36 ::

Étt'ann sjálfur
Þú getur étið úldin skarfa, göltur. Heldur þú kannski að þú sért sniðugur bara vegna þess að Sírnir er það? Lengi vel þurfti ég að lifa í skugga Sírnis og flestir vita hvað um er að ræða (vísa hér til MSN samskipta okkar Sírnis er ég var að utan og flestir hafa heyrt söguna af) en það þýddi samt ekki að ég væri folinn. Ó nei. Þú getur bara setið á þínum fúla rass og lesið þessi bréf eins og þau berast okkur hinum aumingjunum án þess að klína þeim inná alla skjái á landinu.
::H.H. skeit klukkan 15:25 ::

Stuð
::Hívatha litli skeit klukkan 15:09 ::

GautaborgarGautinn mótmælir harðlega þessari ólöglegu dreifingu á -SKÍRNI- Fréttabréfi Sírnis?
Vilji menn fá -SKÍRNI- Fréttabréf Sírnis? stökkt og ferskt í pósthólfið sitt þá er bara að skrifa gautaborgargautinn@hotmail.com bréf og óska eftir OK-Piss áskrift að -SKÍRNI- Fréttabréfi Sírnis? sem fjallar um áhugaverðasta líf, áhugaverðasta manns sem vitað er til að hafi, sé og muni vera uppi.

Þeir sem dreifa -SKÍRNI- Fréttabréfi Sírnis? ólöglega viðurkenna með því að þeir sofa með ausu í rassinum og varalita á sér geirvörturnar.
Sissi pissi
::The Satan of Death skeit klukkan 13:58 ::

Addi Gu - hahahahaha
::Hívatha litli skeit klukkan 13:39 ::

Hei - rétta upp gönd sem finnst Addi vera Grulsa. Éttu analbúðing helvítis selleríið þitt.

Mér finnst það vera heilög skylda okkar gagnvart mannkyni að leyfa öllum að njóta þessa, ekki fá heldur allir þessa snilld senda. Svo finnst mér að það eigi að taka best of vonlausa + fréttabréfið skírni + ljóð og prósa Putta Burgeis og gefa út í bók.

Takk sömuleiðis.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:26 ::

Hvur fjárinn!?!
Afhverju þurfa bréfin hans Sírnis nauðsynlega að fara á þennan vef. Ef hann hefði áhuga á að hafa þau hér þá geri ég ráð fyrir að hann gerði það sjálfur. Með þessum aðgerðum er verið að breyta þessum vef í skítablogg skítabloggara sem skítabloggast um hverju þeir skitu þennan eða hinn daginn og eða skammast út Strætó fyrir hvað þjónustan er ömurleg (blaaaaa). Það er fjarri mér að setja bréf Sírnis í þennan flokk en vefurinn þarf að hafa einhvern standard og einu dagbókarfærslurnar sem hafa verið leyfðar hinga til eru veiðidagbækur og það er anskotans nog og á vel við.

Fyrir utan það þá er það ritúal hjá mér að lesa bréfin frá Sírni og mér finnst ég hafa verið sviptur þessu. Ég fæ þessi bréf send til mín persónlegt og privat í mitt einka-pósthólf og get gert mér smá stund úr því að lesa þessi bréf. Síðan eru þessi bréf dýrleg til að vitna til á meðal vina en nú er þetta orðið internet fyndni sem brandaralöggan hantekur fyrir. Ahhhhh svo þetta er ástæðan, brandaralöggan er búinn að búa sér til kerfi til að geta handtekið alla. Þetta er það sem kallast á úglensku "a sting", eða gildra. Brandaralöggan er snarbilaður nasisti.

Takk fyrir laugardaginn, það var mjög gaman.
::H.H. skeit klukkan 12:57 ::

FRÉTTABRÉFIÐ SKÍRNIR: Hann er herskár blessaður Márinn.
Ég ákvað að reyna að hlusta aðeins á útvarpið hérna um daginn, en það er
eitthvað lélegt samband hjá mér, sennilega Ericsson að kenna, Ericsson er
nefninlega nágranni minn, ég verð sennilega fyrir ómældri geislun hérna og
mun í framtíðinni eignast ferhyrnd börn, en það er ágætt þá á ég betur með
að stafla þeim upp. Þetta lélega samband lýsir sér þannig að ég næ aldrei
færri en 2 rásum í einu, nema finnska útvarpinu og nokkrum arabískum rásum.
Ég ákveð að hlusta á Máravarpið í smá stund, því einhverjum er mjög heitt í
hamsi og flytur þvílíka ræðu. "klavbbaarcham ishhrraagleriiiger almanak
pyjamas chramm falaffel camel chramm kebab ichatar.... osfv." En þá allt í
einu heyri ég eitt hunnulegt orð "Anthrax!" .... misheyrðist mér eða "
chrabbla gubbla ANTHRAX!" aftur! nei nú líst mer ekki á það og svo sagði
hann það í þriðja skiptið. það fór um mig hreinlega, Ég hlustaði aðeins
lengur til að gá hvort hann hafi bara verið að kynna hljómsveitina Anthrax
og ætli að spila hana næst en svo var ekki. Svo nennti ég ekki að hlusta
lengur og gleymi þessu fljótlega. Ég ætla bara ekkert að hlusta meira á
Máravarpið, það er sennilega ekkert hollt.

Nú eftir að hafa vælt um félagslífsleysi ákvað ég að gera eitthvað í
málunum, ég fór í heimsókn til Frosta, "Take that you lonely heart!" en þar
sem við sátum og hlustuðum á nýja Sigurrósardiskinn og drukkum rauðvín...
hmmm? Hljómar svoldið gay? En við gerðum þetta á nákvæmlega eins
karlmannlegan og kynvísan hátt og mögulegt er og við kysstums ekki neitt. -
mammaðín sjálfur!
Sem við sátum gagnkynhneigt og karlmannlega við rauðvínsdrykkju heyrium við
að það er einhver hljónst að æfa í næsta húsi og við ákveðum að kíkka inn (
þetta er í svona listamanna vinnustofuhverfi) þar var hljómsveit að æfa
Juju og Jive músík, þrælskemmtilegt og bleksvartur negri að syngja á
svertíngsku. En það sem ég og Frosti töldum þessari hljómsveit mest til
tekna er bassaleikarinn þeirra. Hún var fallegasti bassaleikari sem við
höfum séð og tæknilega séð betri en ég -en hún svindlar líka með 5strengi-
En hún var í þröngum svörtum kjól með hvítri sportrönd niður efitr síðunni.
þau halda tónleika bráðum og þá ætlum við að fara til að sjá (þau) spila.

Svo fór ég á Föstudaginn með Victor vini mínum í hönnunarskólapartý (sem var
samt haldið í mínum skóla???). Hönnunarstelpur eru talsvert laglegri en
listastelpur. Sennilega af því að þær klippa sig ekki sjálfar og fara
stundum í bað. Svo hefur þeim líka verið kennt að umbúðirnar skipti máli,
enda er það þeirra bransi. Partý í Svíþjóð byrja klukkan 8 svo við mættum
klukkan 8 og fengum okkur bjór og rauðvín og hvítvín og snakk og svona eins
og maður gerir í partýum. Ég var mikið spurður hvort djammið í Reykjavík
væri eins og í myndinni 101 Reykjavík og hvernig það allt færi fram og allir
virtust hafa brennandi löngun til að fara til Reykjavíkur til að djamma eins
og alvöru djammarar, nú gleðst yfir mér og ég sé fram á almennilegt kvöld
með duglegum djammhundum. Svo tala ég heillengi við gaur um prump og
prumpfræði. Svo slær klukkan 12 og tími til að fara að kíkka í bæinn,
tjútta ,drekka , daðra , æla og allt það. En það voru allir með einhverja
öskubuskuveiki og fóru bara heim og eftir stóð ég umkomulaus og nennti ekki
að reyna að fara einn á djammið miðað við fyrri reynslu. Svo ætlaði ég að
djamma með Frosta seinnakvöldið en lenti óvænt í að passa Benjamín af því að
fóstursystir Zenobíu (barnsmóður minnar) ákvað að gifta sig leynilega. Já
svo leynilega að hún sendi Zenobíu bara boð með Emeil, sem hún var ekki búin
að gá að. hringdi svo í hana og sagði ég er að fara að gifta mig eftir 14
mínútur, af hverju ertu ekki komin. Ég leyfði blessuninni að fara bara og
sagði henni að njóta stundarinnar, Ég færi bara út þegar hún kæmi heim og ef
hún kæmi seint þá gerði það ekkert til. Svo kom hún akkurat klukkan ekki
alveg of seint, en þá náði ég ekki í Frosta og sleppti þá bara bænum alveg
kjaftaði við Zenobiu í smá stund og fór svo heim að sofa og gerði
stórhreingerningu í íbúðinni minni morgunin eftir. Það tekur nákvæmlega
einn At the Drive-Inn disk að skúra alla íbúðina.
En aðra helgi ætlum við Marco (Speedy Gonsales) að halda partý hérna, þá
verður fjör annars gefst ég upp og tek upp á fluguhnútingum eða eitthvað,
flugvélamódel voru skemmtileg í gamladaga?
Jú vissulega talaði ég líka við stelpur í þessu partýi, en mér tókst bara
ekki að móðga neina þeirra nógu mikið til þess að vekja brennandi losta og
áhuga, enda var ég sviptur eðlilegum tímaramma af því að Svíar eiga að vera
komnir heim klukkan 12.

Ég er búinn að kynnast gaur sem er með hljóðstúdíó í kjallaranum hjá sér, ég
er reyndar ekki búinn að sjá það en hann vill ólmur að við gerum eitthvað
saman. Ef hann er ekki bara að reyna að lokka mig í rassríðingargildru þá
ætti að koma einhver ný tónlist fljótlega.

Í desember á ég að sýna kennurunum eitthvað fullbúið verk, þannig að á
næstunni verð ég að hamast eitthvað, en sem varaskeifu og ég var íllilega
útsmoginn, setti ég upp heimasíðu hér í skólanum http://www.valand.gu.se/digital_media/students/sirnir/
Hún er einskonar dagbók og skrá yfir það sem ég geri hérna og
"net-sjálfmynd" ha ha! "net-sjálfsmynd" það er ekki furða að ég er
heimsmeistarinn í myndlist. Hún verður í stöðugri endurskoðun og breytist
og uppfærist eftir því sem ég nenni og aðhefst. Það besta er að ef ég klúðra
að gera eitthvað þá get ég alltaf vísað í síðuna í staðinn, Sérstaklega
núna þegar ég hef látið heiminn vita af henni.

-SKÍRNIR- fréttabréf Sírnis?.
dreifingaraðili GautaborgarGautinn
Gautaborg 2002.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:34 ::

Kolli lætur þjón kreista "tannkremstúpuna"
Vestfirska blaðið Bæjarins bestu gagnrýnir Kolla Mjöðm harðlega fyrir bruðl og pempíuhátt. Í ljós hefur komið að Kolli hefur fjóra einkaþjóna og einn þeirra setur m.a. tannkrem á tennurnar hans og sleikir það í burtu meðan hann kreistir tannkremstúbuna hans. "Hann er svo dekraður að jafnvel Krumpi hefur gert athugasemdir," segir BB.
Fjölskyldan hans Kolla hefur legið undir harðri gagnrýni síðustu vikur eða frá því réttarhöld yfir fyrrum bryta Krumpa prinsessu fóru út um þúfur. BB segir að 84 menn séu í vinnu fyrir Kolla og æ fleiri þingmenn krefjist þess nú af Mjöðminni að hann upplýsi hvers vegna hann þurfi svona mikið starfslið.

"Mjöðmin skiptir stundum um föt fimm sinnum á dag," segir blaðið. Fötin sem hann fer úr, þar á meðal handsaumaðir afabolir og dýrir leðurjakkar, eru skilin eftir á gólfinu þar sem þjónarnir hirða þau upp. Það er síðan þeirra hlutverk að sjá um að fötin séu illa lyktandi og þau hengd upp í leðurblökuhellum. Hvert sem Kolli ferðast vill hann að þrír þjónar að minnsta kosti fari með honum til að sjá um fötin.

"Starfsliðið þarf ekki aðeins að sjá um hið mikilvæga starf að taka föt Mjaðmarinnar upp af gólfinu. Í ljós kom í síðustu viku að Kolli fær jafnvel einn af þjónunum til að kreista tannkremstúbuna sína í sturtu. María er sögð telja að fjöldi þjónanna og útbúnaðurinn sem hann ferðast með sé fáránlegur."

Talsmaður Eiðistorgs, þar sem Kolli býr, vildi ekki tjá sig um frétt BB.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:33 ::

Erfitt að vera Kolli
Mér er orðið þvílíkt illt í mjöðminni á að hlaupa eins og kjélling - það er ekkert grín að vera Kolli.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:51 ::

Kolli á afmæli í dag!
Í tilefni dagsins skulum við allir labba um eins og við séum aumir í mjöðminni og hlaupa einsog kellingar.
::KÍB skeit klukkan 09:34 ::

16.11.02

Þetta er stórkostlega fyndið. Maður einfaldleg losnar ekki við brosviprunar úr andlitinu.
::H.H. skeit klukkan 12:39 16.11.02 ::

15.11.02

Ævisaga Skabba loksins þýdd
Nú er loksins búið að þýða stórvirkið um ævi Skabba á ensku.



[Apafóstur í apaskaki]


::Drjóli von Dork skeit klukkan 08:50 15.11.02 ::

14.11.02

GERUM GREYINU TIL GEÐS

ég var að tala við hann Kolla áðan á MSN og hef satt best að segja svolitlar áhyggjur af honum, hann er farinn að fá undarlegar hugmyndir.

DR. Jóli says:
ég er farin
Amalgamkötturinn says:
farin? ertu púðursykur?
Amalgamkötturinn says:
ok ef þú vilt vera púðursykur
DR. Jóli says:
já ég er brun farin
Amalgamkötturinn says:
heyrðu Brun Farin hvað ætlar þú að gera um helgina?
DR. Jóli says:
ertu að tala við sjálfan mig?
Amalgamkötturinn says:

DR. Jóli says:
nú?
Amalgamkötturinn says:
já Brun Farin það er ég einmitt að gera
DR. Jóli says:
hvað ætlar þú að gera Brun Farin
Amalgamkötturinn says:
af hverju ertu að tala við sjálfan þig?
DR. Jóli says:
ég er að því Brun Farin
DR. Jóli says:
en ég er allavega farin
DR. Jóli says:
hahahahahaha
Amalgamkötturinn says:
bæ bæ brun farin
DR. Jóli says:
ég er brun farin

Hann vill augljóslega láta kalla sig Púðursykur eða Brun Farin. Hversvegna veit ég ekki en ég held að það sé best að láta þetta eftir honum, fyrst hann er í svona óstöðugu ástandi. Það er aldrei að vita hverju hann tæki uppá ef hann verður áreittur vegna þessa. Gerum vel við greyið, látum þetta eftir honum. Héðan í frá heitir Kolli Brun Farin eða Púðursykur.
::The Satan of Death skeit klukkan 17:40 14.11.02 ::

Ása Pjása
Eins og landslýði er ljóst verður prattýið hennar Ásu klukkan prattí á laugardaginn og þið eigið að koma. Það er bannað að koma með aukadót. Þið verðið að koma með pakka en munið ekki fá brennivín eða veitingar þannig að þið þurfið að koma með það líka. Og það er víst harðbannað að fara í gufu, sturtu, sund eða hlaupa um allsber. Þið verðið bara að ræða við bóndann á bænum um undanþágur. Þá er rétt að taka fram að það er stranglega bannað að þvo síma í vaskinum og pissa í lummurnar mínar.



[Ása í góðum fíling með flétturnar sínar]


Nefndin
::Hívatha litli skeit klukkan 14:46 ::

Hönd
::Hívatha litli skeit klukkan 13:10 ::

Vígslugjöf vonlausa.

Fékk bréf frá Maríu í bóksölunni um að nýja orðabókin kosti 11.??? kr. Er það ekki gráupplagt handa prestinum. Allir sem ætla sér að vera með rétti upp hönd. Síðan þegar því er lokið er sennilega best að leggja þá upphæð sem við á inn á reikning Maríu og hún kaupir gripinn fyrir oss. Sem sagt þegar komið er í ljós hverjir verða með þá tökum við næsta skref.
::H.H. skeit klukkan 12:00 ::

Hehehehe
::Hívatha litli skeit klukkan 10:18 ::

13.11.02



::Hívatha litli skeit klukkan 15:50 13.11.02 ::

Hvað ertu að bulla um eignaupptöku heimski gölturinn þinn???
Viðurlögin við því að nota ekki handfrjálsan við akstur eru sektir, ekki að síminn sé tekinn frá þér. Hvað ertu eiginlega að tala um?

Og hjálpaðu mér aðeins......er þjóðveldi betra en þjóðveldi? Ég er ekki alveg að fylgja þér hérna......
::Mósagrís skeit klukkan 14:43 ::

Enn betra en lýðræðið væri Þjóðveldi, lýðræði þar sem 3 stoð þess, framkvæmdavaldið fengi vald á verkefnabasis.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:38 ::

Það heitir í raun eignaupptaka og samrýmist eflaust þínum hugmyndum um stjórnarfar svo lengi sem það hefur ekki áhrif á þig kommúnistasvínið þitt (hinir eiga að hafa það hart svo lengi sem ég get spilað á kerfið) - fífl.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:36 ::

Er Anarkistagölturinn að segja að það sé sem sagt bara hægt að tala í þessar fínu flottu talstöðvar og fjarskiptatæki á meðan verið er að keyra bílinn? Það þykir mér fremur skrítin tækni og satt að segja myndi ég henda þessu drasli sjálfviljugur, og án nokkurra leiðbeininga eða reglugerða frá ríkinu, ef það væri svo asnalegt.
::Mósagrís skeit klukkan 14:33 ::

Reyndar þá held ég að anarkismi væri æskilegt stjórnarfar er allir væru ekki svona mikil fífl (þar með talinn ég)
::Hívatha litli skeit klukkan 14:27 ::

Nei, það held ég ekki. Á ég þá að fleygja Gufunes stöðinni minni, CB stöðinni og NMT símanum af því að það er ekki til handfrjáls búnaður á þetta dót? Það er nú aldeilis sanngjarn ó þú boðberi lýðræðisins og góðra hátta.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:25 ::

Ég held að Gölturinn sé að sækjast eftir heiðursorðu frá anarkistum því að hann hefur svo sannarlega gefið stjórnvöldum langt nef með því að tala í talstöðina sína meðan hann keyrir, veivei!!! Kanski getur hann notað flottu talstöðina sína til að tala við aðra flóðhesta sem ekki vilja láta kúga sig svona gjörsamlega og láta banna sér að vera slysahætta.

Auk þess held ég að nýju reglurnar nái til allra samskiptatækja, ekki bara gsm-síma.
::Mósagrís skeit klukkan 14:22 ::

Vertu ekki að reyna setja þig á hærra þroskastig með þessu Skabbíska commenti um kall og málefni.

Finnst þér í alvöru fáránlegt að banna eitthvað sem er beinn orsakavaldur að slysum? Það er því miður ekki hægt að treysta fólki til að vega og meta hvað því finnst því það hefur rangt fyrir sér í flestum tilfellum. Í sambandi við spurningu þína þá er það er bannað að nota farsíma nema með handfrjálsan búnað, þú ert að tala um eitthvað sértilvik sem er kanski á gráu svæði. Ef þú værir samkvæmur sjálfum þér þá ætti það að vera bannað líka nema þú viljir hafa reglugerðina sértækari og banna þetta þá líka (píka).
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:48 ::

Hmm - alltaf jafn málefnalegur kall. En nú á ég VHF stöð og get talað í hana í NMT kerfinu án þess að nota handfrjálsan búnað - það er alveg löglegt. Hvað finnst þér um það?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:26 ::

Svenni virðist alltaf gleyma því að fólk er fífl, og gölturinn er mesta hirðfíflið af þeim öllum. Viltu ekki bara fella öll lög og allar reglur úr gildi og hafa bara eina reglu sem segir 'Gerðu það sem dómgreind þín segir þér'. Virkar fínt í Bizzarro World þar sem álfar og dvergar hlaupa hlæjandi um með Geltinum í sæluvímu yfir frelsinu sínu að gera það sem þeim finnst skynsamlegt.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:25 ::

Það þarf víst að banna svona, og ástæðan fyrir því að það þurfi er fólk eins og þú. Það er mega heimskulegt að segja að maður viti nákvæmlega hvar hættumörkin liggja og hvenær maður er hættulegur sér og umhverfi sínu sökum þess að maður er upplýst persóna(sem reyndar strokar Sveppa út úr jöfnunni strax).
Með reglugerðum eins og þessum er verið að reyna að koma í veg fyrir slys sem orsakast af því að heimskir plebbar halda að þeir séu upplýstar persónur og viti þar af leiðandi að það er ekkert hættulegt að tala í símann þegar þeir keyra.
::Mósagrís skeit klukkan 13:21 ::

Serrano í Kringlunni
Nýr staður í boði hagfræðingsins og hins mjög svo skemmtilega penna eoe.is, eina núlifandi Íslendingsins sem hefur étið (skíthóran þín) á öllum MacciD í S-Ameríku.

Kíkti þarna með Bíó og Stæner.

Nema hvað, maturinn er helvíti góður, burritos og svona shit, mixað meðan þú bíður ala Sub, ferskt og gott, mjög gott verð. Diet Pepsíið freyðir alveg hrikalega reyndar (vandamál sem Coke glímdi við hér á árum áður) en ég get líklega sjálfum mér um kennt fyrir að drekka hommagos. Þjónustan prýðilega, snyrtilegt og fínt. Það er ein kerling að vinna þarna sem lítur út fyrir að vera verulega leið á lífinu. Maður ætti að forðast að ráða skólafólk og eldra fólk á svona staði, bara lið sem er í þjónustu sem career og er ekki útbrunnið, bros á vör. En hagfræðingurinn og slasaða stelpan stóðu sig ansi vel í því, persónuleg og góð þjónusta. Fullt af bisness, kannski spörning um að vera ekki milli 12-13. Einkunn að teknu tilliti til staðsetningar á markaði og gæða miðað við verð er 8,5 sveppir af 10.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:09 ::

Sindri geymir tómatsósu í eyrunum af því að hún kostar á sumum veitingastöðum - hann er Skoti eins og allir vita...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:02 ::

Auðvitað ætti ekki að þurfa að banna svona, ef þú ræður ekki við að tala í símann áttu að sleppa því af því að þú ert upplýst persóna og vilt ekki drepa þig. Með reglugerðaþjóðfélagi sköpum við fullt af litlum ósjálfbjarga krökkum sem halda að þau megi allt sem ekki er neglt niður í reglugerð, eins og t.d. að éta pizzu, senda SMS og fá blowdjobb meðan þau keyra á 90 í fljúgandi hálku og skafbyl uppi á heiði, bara af því að það er ekki bannað.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:55 ::

Hei.....er það ástæðan fyrir því að Sindri er alltaf með tómatsósu í eyranu?
::Mósagrís skeit klukkan 12:30 ::

Eruð þið virkilega að væla yfir því að það er bannað að nota símann þegar mar keyrir. Er þá ekki jafn fáránlegt að mega ekki drekka bjór og keyra, ég veit um marga sem telja sig alveg geta gert það.

Hvaða lúði heldur á síma eins og pulsu?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:23 ::

Mér finnst líka svolítið spes að það sé bannað að halda á síma í akstri en ekki t.d. pulsu!

Að auki er búið að sýna fram á það að athygli manna skerðist ekki við að halda á símanum heldur við að tala í hann.
::KÍB skeit klukkan 11:51 ::

Þessi handfrjálsi búnaður er líka stórhættulegur. Kolli fékk sér svona og var svo ánægður með þetta að hann ákvað að sofa með þetta á sér. Það fór ekki betur en svo að hann var nærri búinn að hengja sig í þessum vítisbúnaði um nóttina. Strákgreyið var allur innvafinn í snúruna þegar hann vaknaði og hann hefur ekki borið sitt barr eftir þetta.
::Mósagrís skeit klukkan 10:11 ::

Símageggjun
Jó - nú eru þessi faggalegu lög sem eru miðuð að því að neyða alla landsmenn til að styrkja símafélögin um nokkra þúsundkalla með kaupum á handfrjálsum búnaði komin á koppinn. Scweppes lætur að sjálfsögðu ekki beygja sig og ekki glæta að hann kaupi þennan búnað. Það er versta helvítið að maður er tvisvar næstum búinn að keyra á því það er svo fokking erfitt að skrifa SMS og skipta um gír...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:04 ::

Brainpolice
Smelltu til að stækka - mynd fengin hjá Snow.isFór á magnaða tónleika í fyrradag á Gauknum með uppáhalds hljónst Vonlausa sem er starfrækt í dag, Brainpolice. Þeir eru þyngsta hljónst á Íslandi (í tvennum skilningi) og hafa menn eflaust heyrt snilldarlagið Jacuzzi Suzy á útvarpsstöðvum landans upp á síðkastið. Þeir voru að gefa út þriggja laga smáskífu á dögunum sem fæst í Hljómalind. Allir að kaupa! 666 stjörnur af 666 á rokkskalanum...










Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 09:47 ::

12.11.02

Netútgáfa Sírnis? Ef um er að ræða þessi snilldarbréf sem hann sendir þá er ég á móti því. Það er mikið af vondu fólki úti í hinum víða heimi og vont fólk á ekki bréfin hans Sírnis skilið.
::H.H. skeit klukkan 20:40 12.11.02 ::


[Stærri]
::Hívatha litli skeit klukkan 15:31 ::

Hei - mér finnst að Netútgáfa Skírnis eigi að birtast hér!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:06 ::

Bodysnatcher in out middddddst
Vó - ég var að fatta eitt. Sírnir er Andri. Honum finnst pönnsur góðar (með graflaxi þá), var með Áslaugu og eignast rauðhærð börn. Skilaðu Sírni aftur helvítið þitt!!!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:40 ::

HA? Eru lummur eiturlyf? Treður þú lummum í vörina á þér? Kanntu ekki að borða?
En vitaskuld hljóta lummur að vera eitthvað varasamar fyrst hlutir seljast "eins og heitar lummur". Samt sér maður aldrei neinn selja heitar lummur. (lummusalinn þinn er lélegur, fyrst hann seldi þér feitar lummur. Hann hefur miskilið eitthvað.) Ég er reyndar hrifnari af pönnukökum sjálfur.
::The Satan of Death skeit klukkan 14:24 ::

Ég er dópisti
Ég er dópisti og fíkniefnahundur. Í gær var ég kominn með tremma og fór að leita að sölumanni dauðans sem var búinn að lofa mér smá skammti. Ég hitti hann fyrir í skuggalegu hverfi í Kópavoginum innan um skítugar nýbyggingar, hauga af mótatimbri og drullupolla. Hann litaðist flóttalega í kringum sig og hljóp svo að bílnum mínum.

"Blissar mar!" Við spjöllumst stuttlega við fyrir kurteisissakir og hann segir mér að það verði þurrkur fyrir jólin útaf öllu hassinu sem fannst um daginn. Sagan segir að menn hafi þurft að henda öllu stöffinu fyrir borð í Svíþjóð því að tollurinn þar var að leita. Helvítis. Eins og þetta sé ekki nógu dýrt nú þegar. Af hverju eru fíkniefni ekki bara lögleg?

1) Ég trufla engan
2) Sölumenn dauðans eru bara að svara eftirspurn sem er til staðar
3) Ég tók ákvörðun um að langa í þetta, enginn annar neyddi mig til þess. Eru það ekki stjórnarskrárbundin réttindi að mega gera það sem maður vill, svo lengi sem það truflar ekki eða skaðar einhvern annan?
4) Ég brýt ekki mannréttindi á neinum líkt og reykingamenn með því að svæla ofan í þá sem standa nálægt.

...en samt sem áður þurfum við að læðast í skúmaskotunum með fíkn okkar. Fokkitt. Ég kveð sölumann dauðans, keyri inn í dimmt húsasund og set Bob á fóninn. Með titrandi höndum opna ég dolluna og treð feitri lummu í vörina.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:02 ::

11.11.02

Bretti
Gaddem

Annars er brettabíó á fimmtudaginn í Laugarásbíói kl. 20.00.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:29 11.11.02 ::

Sælir Faggar.

Ég sá Skabbarúbbíleik um helgina í Ólafsvík og þar var Skabbi boltinn. Ég skil ekki hvernig hann hefur náð að fela þetta svona öll þessi ár. En það var náttúrulega eins með fíkniefnaneysluna á sínum tíma. Skyldi María vita af þessu?
::Hívatha litli skeit klukkan 14:47 ::

10.11.02

Er Skabbi þá boltinn í Skabbarúbbí?
::Mósagrís skeit klukkan 22:34 10.11.02 ::

6.11.02

AHAHAHAHA.....Ég dreymdi stórskemmtilegan draum í nótt! Ég man ekki neitt eftir honum annað en það að í draumnum hafði Kolli gefið út plötu sem hét "Wise as they cum". ég hló og hló þegar ég vaknaði í nótt....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:34 6.11.02 ::

Ég sá InCorny á leiðinni í skólann í morgun, sæt kvikindi en löðrandi í hundaæði skilst mér.
Mig dreymdi stórskemmtilegan draum í nótt. Það voru haldnir Skarphéðinsleikar og meðal keppnisgreina var að stökkva yfir á í fullum herklæðum,(var það ekki annars Gunnar sem gerði það?) svo var líka stórskemmtileg grein sem var plastpokakast. hmm? þetta er einhver reaccurring draumur því nú man ég allt í einu eftir því að hafa dreymt að við fórum í Skabbarúbbí og þá var Skabbi boltinn. Við ættum að kaupa okkur dverg svo að Skabbi geti verið með.
::The Satan of Death skeit klukkan 10:23 ::

Mér sýnist það já. Ef þú vilt vera viss geturðu lesið úrskurðina (þeir eru 7 talsins, u.þ.b. 300 síður hver)
::KÍB skeit klukkan 09:41 ::

5.11.02

Hjálpaðu mér aðeins að skilja sindri: Eru Þjórsárver skv. þessu alfarið inná afrétti Flóa- og Skeiðamanna og Gnúpverja? Landsvirkjun hefur þá sótt um að fyrirhugað lónstæði yrði undanskilið afrétti þeirra en óbyggðanefnd hafnað því. Er þetta rétt skilið hjá mér?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:53 5.11.02 ::

Kort af úrskurði óbyggðanefndar um uppsveitir Árnessýslu.
Þess má geta að fjármálaráðherra hefur kært úrskurðinn!
::KÍB skeit klukkan 15:13 ::

hin fullkomna gjöf handa verðandi presti

svo getum við kannski fengið hana lánaða næsta sumar....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:33 ::

Fyrirtaks hugmynd, hvernig líst ykkur á að gefa honum uppstoppaðan gölt?
Ég legg það í hendur Pu að koma með tillögur að gjöf! Við hinir leggjum í púkkið a.m.k. ég.

Er vinum og vandamönnum boðið að mæta í svona dæmi eða er engum hleypt inn sem ekki er í hempu?
::KÍB skeit klukkan 14:26 ::

Leyfi mér að minna á að Silfurrefurinn vígist næsta sunnudag um kl. 1400 í Dómkirkjunni. Er ekki viðeigandi að við sláum saman í gjöf handa gamla. Þá verðum við eins og vitringarnir þrír. Þetta verður að vera eitthvað sem fer vel inni á skrifstofu prests.
::H.H. skeit klukkan 14:03 ::

vísundahornið!

Tíundi hver hrútur samkynhneigður

Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að einn af hverjum tíu hrútum er samkynhneigður. Þegar gerð var rannsókn á kynhneigð hrúta kom í ljós að 6 til 10% þeirra löðuðust að öðrum hrútum. Kom þetta vísindamönnum á óvart enda höfðu fyrri rannsóknir bent á að 100% galta eru samkynhneigðir.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:35 ::

4.11.02

Veiðiskapur gekk afleitlega á sunnudaginn og dæmi ég hér með Skjaldbreiðina fugllausa með öllu, aftur. Reyndar segir þessi gaur að það sé nóg af fugli þar ennþá en hann er eflaust bara rugludallur.

Árshátíðin verður haldin næst þegar Sveppesen á lausa helgi, þ.e. önnur helgin í apríl 2007.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:36 4.11.02 ::

Hvernig gekk veiðiskapurinn í gær og hvenær verður gæsaveisla?
::KÍB skeit klukkan 13:32 ::

1.11.02

Þetta er örugglega einn besti texti sem samin hefur verið á enska tungu, eða bara hvaða tungumáli sem er.

Þetta er auðvitað titillag plötunnar "My Icelandic Man", með Leoncie.

My Icelandic man, A real gentleman.
You light up my fire.
What makes you tick, is it your big Icelandic stick?
I'm filled with desire.
Hey Icelandic eyes, with your great magnetic smile.
Take off your clothes.
Come close to me baby, for I am your Lady,
and you don't need those.
Do it, do it, do it, do it all night long.
Grab me, take me, fill me Darling, please do not sweat.
I don't need no Lubrication, I am wet.
Oh yeah, I feel it coming now.
I feel you in me oh.
I feel it coming, it's exploding.
My Icelandic lover, from a land filled up with Lava.
You're volcanic, like the country.
Your muscles make me shiver, I'm burning with desire.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:00 1.11.02 ::

Djö... það er búið að taka út myndina.
::KÍB skeit klukkan 12:31 ::

Húff - þessi (Starfsmenn) má bóka hvað sem er á mig bara ef ég má stemma hana af...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:55 ::

Skátahreyfingin býður til afmælisveislu
Í tilefni af 90 ára afmæli skátastarfs á Íslandi efna skátar til glæsilegrar afmælisveislu í og við Laugardalshöll laugardaginn 2. nóvember.

Boðið verður upp á margskonar skemmtun sem gestir og gangandi geta tekið þátt í og má þar nefna sig og klifur, þrautabraut, andlitsmálun, líflínukast, hoppkastala, hnútakennslu, skyndihjálp, risarennibraut, vinabandagerð og ótal margt fleira. Þá gefst gestum kostur á að fræðast um hreyfinguna á skemmtilegan hátt.

Hátíðin hefst kl. 14.00 og stendur til 17.00 en þá tekur við kvöldvaka fyrir yngri kynslóðina og fjölskyldufólk sem stendur í klukkutíma. Um kvöldið er svo kvöldvaka fyrir dróttskáta og eldri skáta sem hefst kl. 21.00.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Líka faggar.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:31 ::

Skoða eldri færslur >>