31.12.02
23.12.02
20.12.02
Skrall - já - útskrift, svo skrall...
19.12.02
Að öðrum sálumum: Rosalega er heimasíðan mín leiðinleg. Ég hreinlega skil ekki hvernig ég nennti þessu enda grunar mig að ég hafi ekki búið hana til heldur Svenni. Nær samt alveg þeim anda sem ég vildi hafa í heimasíðunni minn.
18.12.02
Ekki eru það tíðindi að CNN-reporter VV skuli "velta" sér upp úr fréttum sem eru á allra vitorði. Nú hins vegar ber svo við að það eru nokkrar rangfærlsur í frétt hans. Í fyrsta lagi vorum við humardrengirnir búnir til á Iðntæknistofnun í Grafarvoginu (og allir íbúar í Grafarvogi eru búnir til í) ekki á Rannsóknarstofnun Landbúnaðarins þar sem þú varst hins vegar búinn til, Göltur. Það er lygi að við hefðum verið drepnir, í ljós kom að við væru góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar, til að nefna nokkur dæmi án þess að gefa nöfn þó þá vinnur humardrengur sem safnstjóri hjá Rafmagnsveitu Rvk. og einn lögfræðingur í eiginn fasteignasölu.
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins bjó hins vegar til marga gelti sem voru allir drepnir að tilraunum loknum. Ekki af því að þeir væru hættulegir eða bragðvondir, nei vegna þess að þeir voru svo leiðinlegir og ófyndnir. En...
Einn komst undan, sá er við þekkjum í dag undir nafninu Gölturinn aka. Freysi. Hafið þið aldrei pælt í því af hverju hann er rosa stór, asnalegur á litinn, með klær og enginn skilur hann? Sá hefur nú gefið út bók um líf sitt sem utangar´ðssvín, "Dagar og nætur í lífi Galtarins."
Brot úr bókinni sem kemur út á Þorláksmessu:
"Ég var búinn að leita mér að lífsförunaut um langt skeið, einn daginn þegar ég var að CNN-reportast fyrir vini mína vegna þess að þeim þykir það svo skemmtilegt þá sá ég auglýsingu á netinu. Miðaldra þýskur karlmaður var að leita að kærasta og mér leist svo vel á þetta að ég svaraði strax. Við MSN chöttuðu lengi og loksins tók ég á mig rögg og sagði honum að ég var Gölturinn. Ég var svo hæddur um að hann myndi hafna mér en hann vildi alveg ólmur fá mig til Þýskalands. Ég fór til Þýskalands en þegar ég hitti hann þá hafði sá þýski bara áhuga á að skera af mér drjólann, éta hann í félagi við mig og taka allt upp á myndband."
Kaupið bókina til að komast að því hvað gerðist næst.
Hin merku tíðindi hafa borist að Addi Pu er Humardrengurinn. Humardrengir voru ræktaðir af Rannsóknarstofnun landbúnaðarins á sjöunda áratugnum í hernaðarlegum tilgangi og fór verkefnið leynt. Síðan var hætt við það er einn humardrengurinn gerðist of nærgöngull við starfsmenn, klippti gaurinn af einum og annað brjóstið af einhverri kjéllingu (það skipti samt engu því að hún var með ljót tepokabrjóst). Þá voru humardrengirnir drepnir og afurðirnar seldar á Grillið á Sögu.
Einn komst undan, sá er við þekkjum í dag undir nafninu Addi Pu aka. Addi Hu(mar). Hafið þið aldrei pælt í því af hverju hann er rosa stór, asnalegur á litinn, með klær og enginn skilur hann?
17.12.02
Í Írak til dæmis eru dauðarefsingar, menn geta verið handteknir án dóms og laga, fjölmiðlar eru ritskoðaðir, þeir gætu átt kjarnorku- og efnavopn og eru árásargjarnir. Það sér hver heilvita maður að svona þjóð er vond og því verður að skipta um stjórn.
Mér var hugsað til að hernaðarbrölts BNAnanna í Afganistan eða öðru skítapleisi er ég las skilgreiningar 1 og 2 um hvað er hvað í þessum sprengjuglaða heimi. Einhverju sinni voru BNAnar að skamma einhverja hirðingja fyrir að sprengja andstæðinganna í loft um og beint inn í jómfrúarpardís með bílsprengju, það hentaði ekki hagsmunum BNA akkúrat þá. Stuttu seinna endurtóku sömu hirðingjar leikinn en í þetta skipti með Joe the Camel. Aftur voru þeir skammaðir en þeir skildu ekki afhverju og svöruðu: "No carbomb, camelbomb."
Hér er ekki um að ræða siðferðilega spurningu heldur aðferðafræði og siðferðilegt réttmæti virðist mótast af aðferðinni sem er notuð. Þannig að ef þú notar hugrökku WASP (White Affluent Suburbian Protestants) hermenninna þína þá er allt í lagi, en ef þú ert skeggjaður með lak á hausnum og kannt ekki að lesa þá er um glæpi gegn mannkyninu að ræða. Ef það er tækniundur sem er notað þá er það "tactical" en ef það er rörsprengja "murderous".
Þó að það sé vissulega óþægilegt að lifa við ógn brjálæðinga sem telja það auka hróður sinn í augum Guðs að drepa borgara þá er ég efins að nokkuð sé áunnið með því að taka upp nákvæmlega sömu aðferðir og þessir andskotar notuðu til að kúga alla í Afganistan.
16.12.02
Skilgreining1: þegar sprengja springur innanfrá í bíl þá er það hryðjuverk, ekki ef hún kemur utanífrá bílnum
Skilgreining2: þegar sprengja er heimatilbúin þá er það hryðjuverk, ekki þegar milljónum er kostað til hennar af ríkstjórn.
BNA er bara með "dulbúna" nýlendustefnu. Nú eru þeir ekki aðeins að leika alheimslögguna heldur líka dómara og böðul.
En hvað erum við að kvarta, þeir eru í stríði til þess að verja okkur og kaupmáttaraukningarnar okkar og í stríði verður að búast við mannfalli, jafnvel óbreyttra borgara.... svo lengi sem þeir eru ekki BNAnar.
Þetta er bara týpískt fyrir þann tvískinnungshátt sem að einkennir þetta rotna samfélag bna-manna. Allan tíman væla þeir yfir að allir séu jafnir fyrir lögum og að réttarkerfi þeirra sé svo fullkomið, en svo þegar þeir eru pisst þá fara þeir bara og drepa án dóms og laga. Ekki það að maður hafi ekki löngu vitað þetta, þá eru þeir samt sem áður að gera sig alveg jafn slæma og andstæðinga sína með því að segja þetta opinberlega. Þeir virðast bara ófærir um að skilja að það eru ekki allir sammála þeim og að það líta ekki allir upp til þeirra. Ég held satt að segja að þeir einu sem að líti upp til þeirra séu þeirra eigið trailer-trash.
P.s. comment kerfið sökkar
Ég vil fá frekari umræðu um morðingjana í BNA en verð að skella einni gróðahugmynd hérna inn.
Þannig er mál með vexti að rjúpnaveiði hefur verið frekar slök eins og menn vita. Ég legg til að við förum að rækta í stórum stíl, kaupum eitthvað kjúklingabú sem er farið á hausinn. Síðan verðum við með svona resort eins og úti í Englandi, þú kemur að veiða og groundskeeper Willy fælir upp með hundum. Síðan tökum við rjúpurnar og seljum veitingastöðum og stórmörkuðum því að allir aðrir eru í sölubanni.
Síðan þegar við erum búnir að græða á tá og fingri förum við líka að selja bringur, nagga og heilsteiktar rjúpur í búðir. Síðan þegar við erum búnir að græða á því stofnum við HCFR - Hafnir City Fried Rjúpa - rjúpukeðju. Þar geta menn keypt sér Screamer og fleiri lost(afulla)æta rjúpuborgara og rétti. Þjóðlegt og gott. Þetta verður glóbal dæmi bræður, jeeee!
Ég held því ekki fram að þetta hljómi hjá þér eins og þetta komi þér á óvart. En kom þetta útspil herranna vestra þér á óvart? Ég tel þetta skref BNA í raun ofur eðlilega framvindu menningarstefnu þeirra. Bandaríkjamenn eru ofurhrifnir af eigin menningu og telja hana þá bestu í heimi ásamt u.þ.b. öllu öðru í BNA. Í ljósi þess að í 200+ ár hefur almenn byssueign verið í landlæg í BNA og beinlínis hvatt til hennar, þessu hefur fylgt eins og sést í fréttum almennt veiðileyfi á náungan í henni Ameríku. Fjöldamorð í skólum, vopnuð rán enda yfirleitt með því að fórnarlambið er drepið (sérstaklega í Kaliforníu þar sem glæpamenn hafa ákveðið að drepa fórnarlömb sín öll og skilja ekki eftir vitni eftir að third strike veldur því að þú færð sjálfkrafa 25 ára dóm.) Það ekki nema eðlilegt framhald að BNA reyna að halda áfram að kreista eigin menningu upp á okkur hina aumingjanna. Skjóta fyrst, spyrja síðar.
Hvernig getur dvergurinn hann Bush gefið veiðileyfi á menn hægri vinstri? Nú er ég ekki að halda því fram að þetta séu einhver gæðablóð, ég hreinlega veit það ekki. En hinsvegar má ekki einu sinni taka menn svona af lífi í stríði án dóms og laga. Allir eiga rétt á óháðum dómstól til að fjalla um mál þeirra. Rétt leið væri hugsanlega að gefa út handtökuskipun, væntanlega eru þær til, og fá svo fjölskipaðan alþjóðlegan dómstól til að fjalla um mál þessara gaura. Ef þeir geta komist nógu nálægt þeim til að drepa þá hljóta þeir að geta handtekið þá.
Enn eitt prump í hatt morðingjanna í BNA, hvað er með að vera enn að taka menn af lífi hægri og vinstri? Og nú án dóms og laga...
Bara for the record þá mæli ég ekki með því að þamba 1/3 úr wiský-flösku í einum sopa, það er bara of gróft. Vil líka nota tækifærið til að bjóða Gautaborgargautann velkominn heim. Nú verður spennandi að sjá hversu lista-skemmdur hann er orðinn...
Hívaþa litli er friðarsinni og anarkisti og skrifar reglulega pistla um föndur í Nesblaðið.
13.12.02
Farðu á Sorpu og fáðu gefins klósett. Settu svo signal og tívolíbombu oní það. Berðu eld að og prestó - þú ert kominn með jólaklósett.
klink
Mjöðmin og Krumpi eru þvílíkt sikk and twisted gaurar að hommast og flambera svo typpið hans Krumpa og éta það. Úff
12.12.02
Þessi hérna dama er sérstaklega fyrir Mjöðmina - hljóð er must! Skoða...
11.12.02
Annars er ég sammála að þetta er ekki gott, það er nóg að hafa símann á silent því mar vill geta vitað hver hefur hringt og mar vill fá sms. Norðurljós sökka og ég ætla að boycotta smárabíó.
Ekið á hreindýr í Lóni
Um klukkan níu í gærmorgun ók pallbifreið á hreindýr í Lóni austan Hafnar í Hornafirði. Að sögn lögreglunnar á Höfn tilheyrði dýrið stórri hjörð sem var í Lóninu. Að sögn lögreglunnar drapst dýrið við áreksturinn en ökumann sakaði ekki. Mikið er nú um hreindýr á þessu svæði en slíkt er venja á þessum árstíma. Í samtali við local.is sagði lögreglan á Höfn að þetta væri í fyrsta skipti í ár sem ekið væri á hreindýr í umdæmi lögreglunnar en að jafnaði gerist slíkt tvisvar á ári.
Hvað er að? Ef þú ert á pallbíl og keyrir á hreindýr seturðu það náttúrulega á pallinn, ferð heim og færð þér svo hreindýrasteik, hreindýragúllas, hreindýra carpaccio, hreindýrakássu, hreindýra fíle, grillaða hreindýrahammara osfrv. Djöfuls fífl.
Annars fór ég að hjóla í gær, helber snilld. Byrjuðum hjá Perlunni, rúlluðum upp á Elliðaárstíflu með smá viðkomu á skógarstígunum í Elliðaárdalnum. Helvíti áhugavert svona í myrkrinu að reyna að forðast tré og grjót. Svo hjóluðum við niður hinumegin og vestur í bæ. Kíkt í dótaskúrinn hjá Valla sem er helvíti áhugaverður. Broddar sem fóru á Cho Ouy (8.206 m), MSR snjóþrúgur, KTM fjórgengishjól (búinn að svínnegla það - 850 skrúfur í afturdekkinu), Polaris 700 sleði, 2000 módel, fullt af seglbrettadrasli osfrv. Fallegt um að litast þarna. Síðan baunað upp í Perlu aftur og jólabjór í Nauthóli svo að enginn fari nú að missa niður líkamsþyngd af þessu hjólabulli. Djöfull er Malt jólabjórinn góður - í hófi...
Labels: Hjól
Ekkert bíó fyrir hjálparsveitir lengur... (mbl.is)
10.12.02
Nú getur Mjöðmin kannski farið að pissa standandi
9.12.02
6.12.02
5.12.02
Ég er búinn að komast að því af hverju blessuð forsjánin hefur gert okkur alla að vinum með okkar mismunandi manngerðir og hæfileika. Ef við slúbbum þessu ekki frá okkur eins og öllu öðru, þá verðum við fjall ríkir. Kolli og Kári eru tölvonar, McRennusteinn er Verkjafræðingur, Skabbi er líffræðingur, Svenni er Viðskipton og sjálfur er ég Listi. Eruð þið búnir að átta ykkur á því hvað okkur er ætlað? Sko við búum til I-PORN (Interactive Programmable Organic Interface)... USB píka, úr klónuðum píkufrumum frá skabba í stoðgrind frá sindra og hugbúnaður frá los dorritos, Viðskiptoninn sér um að markaðsetja, og ég um auglýsingar, og lít jafnframt á mig sem verkefnisstjóra. Endalausir möguleikar, það verður hægt að downloada frægum samförum, forrita sín eigin, og láta I-PORN lesa inn trukkið og senda vista það til seinni nota. Fyrr eða síðar munum við þá að sjálfsögðu búa til I-PORN drjóla, en bara svo að við verðum ekki fyrirlitnir af konum sem saka okkur um kvennfyrirlitningu.
Prellarnir finna guðlega tefflonhúð handa okkur svo að við förum ekki til helvítis. The Kike verður látinn prófa þetta fyrstur.
3.12.02
Svo virðist vera ef mbl.is og vonlausa eru bornir saman.
2.12.02
Jójó - jóladagatal
Allir að taka þátt í jóladagatalinu á isb.is - það er fucking snilld og þið eruð fávitar
Gæsaveislan verður haldin 14.des að Efra-Nesi.
Nú þarf bara að ákveða hver eldar hvað og hvernig og þá er allt klárt!

Skoða eldri færslur >>

