27.2.03
Hvað segir Svenni hagfræðingsdólgur? Er eitthvað vit í þessu sem stendur þarna?
Hins vegar stafar að mínu mati engin hætta af Írak, og stríð þar sem óbreyttir borgara munu falla í þúsundatali, allt innra stjórnkerfi verður lamað getur bara alls ekki verið eitthvað sem almenningur vill. Þar að auki munu innrásarlöndin velja sér stjórn, hirða öll olíuviðskipti á sínum forsendum og að öllum líkindum verður bara annars konar einræðisstjórn. Auðlindirnar munu ekki nýtast fólkinu heldur innrásarliðinu það er alveg pottþétt.
Ég tel að besta lausnin sé að aflétta viðskiptabanninu það eru nú einu sinni við sem settum það á og berum að vissum hluta ábyrgð á því hvernig statt er fyrir fólkinu þarna. Alþjóðasamfélagið á að þrýsta á Írak og fleiri að gera úrbætur í mannréttindum, því Írak er langt frá því að vera einsdæmi né verstir. Með tíð og tíma og batnandi hag þá verða breytingar. Lýðræði verður aldrei þar sem almenningur er fátækur og fáfróður.
Þar að auki er Bush bara prúðuleikari fyrir olíuframleiðendur og vopnaskakara og stórhættulegt að hafa svna spillta pabbastráka og erkibjána sem forseta Bandaríkjanna.
26.2.03
Þetta fer sko upp á vegg við hliðina á binary klukkunni - tjékk
25.2.03
Í gær sá ég að Andy Rooney í 60 mín. (þoli hann ekki) vakti gríðarlega reiði Frakka með því að segja: Frakkar hafa ekki rétt á því að hafa skoðun á stríði í Írak. Við björguðum þeim í WWII og þessvegna höfum við bara rétt á því að vera með eða á móti. Dæmi hver fyrir sig um svona málflutning.
Annars verð ég að viðurkenna að þrátt fyrir að vera sammála um allt sem Sírnir er að segja, finnast þetta alheimslöggu bullsjitt (sem maður lærði um í barnaskóla en á samt ennþá við) algjörlega út í hött, og vera almennt hagfræðilega sinnaður friðarsinni þá væri ég rosalega mikið til í að vita meira hvað fólkið í Írak er að hugsa. Í fyrra var voða þægilegt að hafa Palestínu Pu í Pulestínu, fá fréttir frá fyrstu hendi, frá manni sem maður treystir til að fá sannleikann.
Væru Írakar betur settir án þessa einræðisherra þrátt fyrir allar þær hræðilegu afleiðingar sem stríð hefur á landið, þjóðina, aðrar þjóðir, verslun og velsæld á þessu svæði. Það langar mig að vita. Er Saddam að murka lífið úr öllum án dóms og laga? Hafa fíflin hugsanlega eitthvað til síns máls að þessu sinni og eru búin að eyðileggja fyrir sér með gerræðislegum vinnubrögðum?
Ekki veit ég það - hvað segið þið?
Daddara
Saddam skorar á Bush á málfund og þótti mér það frekar ódrengilegt af Saddam að ráðast á GoggaRunna svona þar sem hann er veikastur fyrir, Nú veit ég ekki hversu mikill enskumaður Saddi er en það er alvita að GB kann ekki að tala óundirbúinn í pontu. Enda blása BNA menn á þetta. Annað rak ég augun í þarna:
"uppbyggingar áform BNA í Írak"
Hafi heimsveldistilhneigingar þeirra verið ógnvekjandi áður eru þeir hreinlega orðnir stórhættulegir núna.
The Pentagon envisions an era of "transition" before Iraq can be transformed into a democracy, according to one official
Ég man eftir því þegar BNA menn voru að skamma einhverja litla byltingarkalla fyrir að búa ekki til demokrasíu strax eftir byltinguna og þessir byltingarkallar notuðu einmitt þessa afsökun til að halda einveldi sínu.
Svo sá ég athyglivert viðtal við einhvern gaur sem hefur mikið verið að stússast í miðausturlandapólitík og mér fannst hann skýra vel frá og draga skynsamlegar ályktanir. Hann sagði meðal annars.
Bnar eru ekki að þessu vegna hættulegra vopna, þá væru þeir líka með her í viðbragðsstöðu við Kóreu og mörg fyrri ríki Sovietríkjanna, Irak hefur hinsvegar Olíu sem Kóreu skortir.
BNA eru ekki að þessu af mannúðarástæðum. Árið sem Saddam var mest sakaður um að nota efnavopn gegn óvinum sínum og eigin þegnum var Sendiráð Bandaríkjanna aftur opnað í Bagdad.
BNA eru ekki að þessu til að vernda nágrannaþjóðir Iraks. Í fyrstalagi af því að Irak er ekki nógu sterkt til að vera ógn gegn nágrönnum sínum, BNAr eru með herstöðvar í Arabíu og Kúvait, Tyrkland og Iran eru of sterk og Jórdanía liggur handan við óralanga eyðimörk og er til lítils að vinna. Enda hefur engin þessara þjóða beðið Bush um að bjarga sér. Nú fer það ekkert á milli mála að Saddam er íllvirki en viljum við að John Wayne komi og sprengi Reykjavík í tætlur til þess að losa okkur við Doddson?
Ef þetta er til að uppræta hryðjuverk í heiminum mun það reynast fullkomlega öfugt. Þeir gera nákvæmlega það sem Osama BinLaden hefur verið að segja um þá og þannig vex honum fiskur um hrygg svo verður hann einn eftir sem sterkasta rödd islam gegn bandarískunni og hann nýtur mun meiri virðingar araba en Saddam. Auk þess trúir því enginn að Írakar taki bandarískri hersetu fagnandi, Þeir munu þurfa að kaupa þann frið mun dýrara verði en stríðsreksturinn og ekki er ég viss um að your average Homer Simpson sé til í að borga þá skatta. BNAr eru líka orðnir svo stórir að það vita það allir að ekki þýðir að fara í hefðbundið stríð við þá, það eru skærur(hryðjuverk) ein eftir.
Nú er ljóst að ekki verður aftur snúið, en það sem er líka svo ógnvekjandi að BNAr munu sennilega ráðast inn í Írak með eða án samþykki Sameinuðuþjóðanna og þar með verður gildi þeirra ónýtt. BNAr sjá sér líka hag í því að það er klofningur innan Evrópu, því meðan Evrópa er sundruð hefur hún enga rödd gegn þeim. Og það er ekkert leyndarmál að Bandaríkin hugsa sér sig og vinna ötullega að því að vera leiðtogi þjóða.
24.2.03
22.2.03
21.2.03
Þið eruð allir slyngir!
Húrra fyrir Vonlausa Veiðifjelaginu og bezta veiðimanni þess, MÉR!!
Húrra fyrir Vonlausa Veiðifjelaginu og slyngasta veiðimanni þess, MÉR!!
Húrra fyrir Vonlausa Veiðifjelaginu og slyngasta veiðimanni þess, MÉR!!
Húrra fyrir Vonlausa Veiðifjelaginu og slyngasta veiðimanni þess, MÉR!!!
19.2.03
Annað kvöld verður haldinn fundur í fluguhnýtingarstofu Vonlausa. Allir meðlimir Vonlausa mega mæta nema Sírnir því hann er hommi. Ég og Graðni munum kenna þeim vitleysingum sem kunna ekki neitt. Skabbi fær loksins að gera eitthvað annað en púpur ef hann þorir.
Ég þarf nú þegar þessara stríðnisálaga vegna að rogast með minn eistnabelg, er hættur að geta verið í buxum, geng þessvegna alltaf í mussu eða kufli núorðið.
Hættu að reyna að homma mig. Ég veit líka alveg af hverju þú ert að þessu. þú ert svo mikill væskill að þú þorir aldrei að gera neitt einn og nú þegar þú hefur áttað þig á því að þú er Bara hommi og ekkert nema hommi og ekkert neitt annað, þá reynir þú að draga mig í forina með þér. Það yrði líka til þess að eyðileggja allar gufubaðs og pottaferðir því þú værir alltaf að reyna að knúsa mig og kyssa og þegar þú værir orðinn fullur myndi þig langa til að fara að "elskast". Þú ættir að skammast þín, þú átt fína konu, kauptu bara handa henni yfirvaraskegg og sprautaðu á hana Old Spice, þá getur þú verið sáttur. Þú þarna sem ert BARA hommi og ekkert annað.
Hvar er Pu annars? Hann hefur ekkert sagt lengi. Munið þið eftir því þegar hann var spassi í hjólastól?
18.2.03
Lengi lifi KÍB myrkrahöfðingi
Sírnir er hommi
17.2.03
Ég sé núna að þetta er málið - ég hvet allar Birkihríslur á Suðurlandi til að ráðast á þennan arga fagga og reyna að fella hann, helst í poll. Kannski fær hann gat á hausinn! Við skulum sko sjá til hversu bleikur hann verður eftir það...
Ég krefst bóta!
Þið munið eftir atriðinu í Lorti Hringvöðvans þar sem Sarúman kallar fram mannskaðaveður og hindrar þar með ferðalag Föruneytisins. Nákvæmlega sömu sjón mátti sjá við gamla kirkjugarðinn aðfaranótt laugardagsins síðastliðins. Þar mun hafa verið á ferðinni bleikhöfða illyrmi sem magnaði hvílíkan seið að ekki hefir annað eins sést síðan Cauldron var síðast útbúin. Sáust gráir og þrútnir skýjabólstrar stefna hraðbyr austur yfir heiðar. Það má vera ljóst að í kjölfarið á óvæginni gagnrýni Galtarins á Marmot höllinni svokölluðu leysti Dindill úr læðingi þvílíkt ofsaveður að engu sem fyrir því varð var eirt. Stefndi hann þar með lífi og limum vaskra bjarghomma í stórfellda hættu. Honum tókst þó ætlunarverk sitt; að eyða öllum keppinautum Marmot Hallarinnar um aldur og ævi. Lengi Lifi Marmot Höllin og Bleiki Myrkrahöfðinginn!!
Tímamót í sögu vonlausa.is - einhver bjó til nýja síðu. Þetta eru líka kúl flugur og aðstaða - congrats. Ég þarf að gerast lærisvenni ykkar Krumpa og fatta hvernig á að gera svona kúl flugur. Sérstaklega finnst mér Kretín 2 mögnuð og KÍB óhugnalega nærri raunveruleikanum - næstum því krípí.
Þess má svo geta að NF höllin sprakk á laugardaginn og við erum að reyna að díla við tryggingarnar. Já, það var vont veður á Gígjökli.
Þó að framkvæmdir hjá honum séu jafn tíðar og ferðir halastjarna hjá jörðinni, ( í vissum félagsskap er hann lika betur þekktur sem Halastjarnan, en það er aðallega á hommaklúbbunum Gate-8 og hommasnekkjunni, á hverri hann er alltaf í gay cruise).
Og nú þarf Trúðurinn KÍB að vanda sig því nú er hann ljótasti maðurinn með síðu.
Ég ætla rétt að vona að það sé ennþá pláss í bílskúrnum fyrir Theremínverkstæðið.
Hvenær verður svo opnað spúnsláttar verkstæði? (ég geri ráð fyrir því að spúnar séu slegnir eins og krónur)
Og hvenær eigum við að smíða bát?
16.2.03
14.2.03
eða nei ég gleymdi við ætlum að sneika þig.

Fluguhnýtingardeild Vonlausa hélt fund í gær. Skabbi skróp því hann þykist eiga merkilegri vini. Ég og Graðni tókum hins vegar gott session, hnýttum saman 10 flugur, og ég skemmti mér vel við að pína hann með power og viking metal þangað til hann bannaði mér að setja annan disk í spilarann.
Guðni hnýtti tvær heimasætur, og gerði augu á þær sem gerir þær miklu flottari. Svo tók hann sig til og ætlaði að gera Píkukokk með kúluhaus á grubberöngul en hugði ekki að láta búkinn fara nógu langt niður á rass þannig að þetta varð frekar rindilslegur Píkukokkur. Síðan gerði hann tvo svarta Francisa, einn frekar flottan og annan forljótan enda endurskírðum við hann ljótur Francis.
Ég hnýtti eina heimasætu, loksins með réttum efnum og málaði augu, mjög kúl en vantaði samt herslumuninn að hún yrði verulega flott. Svo gerði ég straumflugu sem heitir Gráa Kusa sem var alveg fín nema hún er með ofurvaxinn haus, ætla að mála augu til að gera hana grimmari. Svo gerði ég bláa Hairy Mary (háruga María) sem tókst alveg fullkomlega þangað til að ég var að gera hausinn þá losnaði helmingurinn af vængnum af og ég varð brjálaður, hún er samt flott. Svo gerði ég einn Alder sem kretaðist big time, en lærði þó eitt, ég hef verið að gera skeggið vitlaust og nú veit ég hvernig á að gera þetta. En nú kemur að snilldinni, ég var orðinn eitthvað pirraður á kretínputtsku minni þannig að ég ákvað að semja eina flugu á staðnum. Þegar hún var tilbúinn þá leit hún út eins og algjör trúður, KÍB var fæddur. Þetta var töfrum líkast, blár búkur, bleikur rasshali og appelsínugult nef með koparhaus. Hlakka til að taka risa bolta á Arnarvatnsheiðinni með KÍB. Snilldin bakvið KÍB er líka að hægt er að breyta litasamsetnigunni að villd svo lengi sem hann verður litríkur trúður. Mynd af KÍB kemur von bráðar þannig að þið getið séð snilldina með eigin augum.
Næsti fundur var ekki ákveðinn en ég hvet menn til að vera með í þessari nýju nörda og veiðideild innan Vonlausa, ég er kominn með leið á að hlæja eins og hýena að Graðna og þarf að geta gert grín að fleiri kretínputtum.
Kolli elskast með ítölskum folum
Í öðrulagi finnst mér heimasíðan hans Cheendrah miklu flottari en eina heimasíðan sem Kolli nöldurkall með bjálka í auga hefur nokkru sinni gert, sælla minninga.
Hinsvegar fer ekki á milli mála að Gölturinn og TrúðurinnKÍB eru Nørdapósarar. Hafa þeir þarmeð þvílíkt móðgað hinn sanna 0rthodoxNørd, Kolla (aka: KolliPíka, aka: homminn sem gleypti 100 tippi, aka: Mjöðm). Sem yfirbót mega þeir hvorki, mun þeim þykja þetta hinn harðasti dómur, totta hvorn annann né rúnka hvorum öðrum í 4 daga frá og með í dag.
13.2.03
Sírnir er einn mesti faggi sem til er.
Þetta stýrikerfapróf er bara asnalegt og ég tek ekkert mark á því enda er bara valið random, einungis lúðar eins og KÍB eru stoltir af því að vera linux, án þess þó að nota linux sjálfir. Hann er næstum jafn mikill nördapósari og Gölturinn.
Þessi tzjéddling hatar tónlist og er eiginlega bara drepfyndin. Hinn ágæti eoe benti nú reyndar á þetta en ég gat ekki fingra bundist að benda á þetta.
Ekki sammála kannski með Pink Floyd en verð að taka undir Sigurrós - djöfull er Ég er sæljón platan óendanlega slöpp. Eins og Ágætis byrjun var nú ágæt byrjun.
Þess má svo til fróleiks geta að hún slysast til að hitta naglum að hluta í hausinn (nei - ég veit ekki hvernig það er hægt) því að þegar þeir Pink Floyd menn voru að taka upp lagið Shine on you crazy diamond labbaði einhver ruslaralegur feitur viðbjóðskall inn í stúdíóið og settist í sófann. Eftir smástund föttuðu þeir að þarna var kominn fyrrverandi aðalsprauta sveitarinnar og lagahöfundur, enginn annar en Sid. Hann hékk þarna allan daginn, hlustaði á lagið og talaði ekki við neinn en fattaði aldrei að það var um hann sjálfan. Síðan hefur hann eiginlega ekki sést.
12.2.03
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég er nokkuð montinn með að hafa klifrað þessa leið [1] [2]
Djöfull var gaman á síðustu árshátíð, Skabbi með nýja riffilinn í pottinum og alles - vantar samt aðeins fleiri kjéllingar.

Fyrir ykkur tölvurúnkarana: Hvaða stýrikerfi ert þú?
11.2.03
10.2.03
(Þess má geta að gölturinn ákvað frekar að fá sér tebollu og fara í þriggja tíma bíltúr en að renna sér með okkur Skabba.)
Púður í Mt. Blue á föstudag, Skabbs og Skatan mættu, + bjór og viskari á eftir, púður í Mt. Cabin á laugardag + niðurlæging í RISK 2210 (Kolli er aumingi að mæta ekki og getur ekkert í Risk), og loks púður í Mt. Cabin með Dindra (já svei mér þá hann mætti) og Skabbs. Massíf helgi bara.
Hvað gerði Kolli aumingi annars? Eflaust eitthvað frábært eins og að hanga inni hjá sér og mega ekki fara í Risk. Krummi er miklu meiri maður að standa við yfirlýsingarnar og mæta.
7.2.03
Skúnkur
6.2.03
Kolli?
Já...
SNUÐ!!!

Múhahahahahahah - Kolli tottar litla bleika drjóla...
og dálítið af teygju
Sindri er kúkur í bleyju
Svenni er samt faggi
Þið verðið að taka Donnie Darko - Biluð mynd.
Kollun; (so) að kolla. Sögn sem þýðir að svíkja sig undan lofuðum hlutum eins og Riski, veiðiferðum og bíóferðum og nota til þess leim afsakanir eins og að vera illt í mjöðminni.
dæmi um kollun: Nei.....ég kemst ekki í veiðitúrinn sem við erum búnir að vera að plana í 2 ár.....öööö.......ég er kominn með svo langar táneglur að ég kemst ekki í vöðlurnar mínar........
og veitt nokkrar murtur,
Kolli er algjör Nurtur.
og dálítið af froski
Sírnir er algjör þroski.
5.2.03
En annars af veiði þá verðum við að setjast niður og skipuleggja sumarið bráðum. Það verður allavega farin ferð upp á Arnarvatnsheiði í byrjun júli, Svenni má ekki koma með þannig að enginn segir neitt.
Hann er dvergslega vaxin og þekktur fyrir að lifa á loftinu einu saman.
Hann lét síðast í sér heyra 20. desember 2002.
Lýst er eftir ungum karlmanni, hann er ca. 185 cm á hæð með millisítt skollitað hár. Önnur kennileiti eru tröllvaxið nef sem og pungur. Sírnir verður einna best þekktur á viðreynslutækni sinni sem fellst í að svívirða vænlega kvennkosti (að hans mati virkar þessi tækni þeim mun betur eftir því sem hann hefur innbyrt meira alkahól).
Sírnir lét síðast í sér heyra 24. janúar og eru aðstandendur síðunnar farnir að hafa áhyggjur af honum.
Ég reyndar skulda geltinum nokkrar Kretín2 flugur, en sú fluga sýndi og sannaði hvers megnug hún var í síðasta veiðitúr.
The Kike er reyndar enn í hönnun ásamt KÍB, en þær koma von bráðar.
Næsta mál á dagskrá er skipulagning á veiði næsta sumars. Ég er búinn að viða að mér nokkrum bæklingum þ.a. við þurfum að finna okkur tíma til að setjast niður og plana veiði sumarsins.
Það er greinilegt að þú viljir ekki góða spítala fíflið þitt því að þetta er sú stjórnunaraðferð sem þér finnst greinilega sniðugust. Draga úr heilbrigðisþjónustu, loka deildum o.s.frv.. Á meðan þetta er í gangi eru okkar snjöllu stjórnarmenn að opna sendiráð í Japan fyrir tæpan milljarð, sem að er augljóslega til þess fallið að gera líf okkar betra.
Ég er algjörlega sammála að skuldasöfnunin er út í hött, þetta er bara spurning um hvort menn vilja borga X milljarða í vaxtagjöld eða fá X milljarða í vaxtatekjur. Ég kýs hið síðarnefnda.
Þessar tölur varðandi skuldasöfnun borgar og ríkis eru hinsvegar ekki samanburðarhæfar. Hjá borginni er skuldasöfnun borgarfyrirtækja (t.d. OR) teknar með í reikninginn en ekki hjá ríkinu. Nú er ég ekki að segja að það sé í góðu lagi að fyrirtæki í eigu borgarinnar safni skuldum, hinsvegar kann það aldrei góðri lukku að stýra þegar epli eru borin saman við appelsínur.
Að auki má koma fram að hluti af skuldasöfnun OR tengist t.d. fjárfestingum á Nesjavöllum sem munu vonandi skila borginni tekjum í framtíðinni. Þ.a. skuldir eru ekki bara skuldir. Gera verður greinarmun á skuldasöfnun vegna fjárfestinga og skuldasöfnun vegna neyslu.
Ég er samt á þeirri skoðun að skuldirnar hafi vaxið óhóflega t.d. vegna gæluverkefna Alfreðs Þorsteinssonar (LínaNet, Líkamræktarstöð OR o.fl.) og annarra í meirihluta borgarstjórnar.
Fyrst þér finnst þau vera svona æðisleg í spítalarekstri hvernig útskýrir þú þá lokanir á Landakoti, verkföll heilbrigðisstarfsfólks, óhóflegt vinnuálag og sífelldar kvartanir í fjölmiðlum um fjárskort? Greinilega hægt að gera betur þarna. Ég spyr því: Hver heldur þú að vilji ekki hafa góða spítala fíflið þitt? Og það minntist enginn á gróðafyrirtæki, heldur fyrirtæki sem tapar ekki, setur ekki sína minnstu þegna á hausinn með óhóflegum álögum og óbeinum (földum) sköttum, gott þjónustufyrirtæki fyrir Reykvíkinga.
Ég vona að þú hafir verið að grínast með síðasta pistli þínum því að annars ertu heimskari en ég hélt.
4.2.03
Ég vil frekar vera í borg þar sem stjórnunin snýst um að gera íbúum borgarinnar vel, hafa góða spítala og góða skóla frekar en að vera í borg þar sem stjórnendurnir geta montað sig af því að reka hana með gróða. Borg er ekki og á ekki að vera gróðafyrirtæki heimski göltur.
Skuldasöfnun borgarinnar hefur verið með ólíkindum í tíð kjéllingarinnar og ég gleðst yfir því að það er kominn maður í brúnna sem ber eitthvað skynbragð á pjéning. Verst bara að sömu fíflin eru undir honum. Vona að hann nái bara að sýna þeim hver ræður í stað þess að láta þá vaða yfir sig eins og gerst hefur áður í borgarstjórn við svipaðar aðstæður.
Ingibjörg lofaði kjósendum árið 1994 að skuldir Reykjavíkurborgar yrðu lækkaðar undir hennar forystu. Búllsjitt.
Hreinar skuldir Reykjavíkurborgar án lífeyrisskuldbindinga hafi aukist um 1.100% síðan árið 1993 en á sama tíma hafa sambærilegar skuldir ríkissjóðs lækkað um 13%. Heildarskuldir á hvern Reykvíking eru 733 þúsund krónur og þar með hærri en í nokkru öðru stóru sveitarfélagi í landinu eða á höfuðborgarsvæðinu.
Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2002 sem samþykkt var í borgarstjórn í desember 2001 var gert ráð fyrir því að hreinar skuldir borgarinnar í árslok 2002, án lífeyrisskuldbindinga, yrðu 33,2 milljarðir króna. Spá fyrir niðurstöður ársins 2002 gera nú ráð fyrir því að niðurstaðan verði rúmir 43 milljarðar króna eða tæpum 10 milljörðum hærri. Frávikið sé því 30% miðað við það sem áætlunin gerði ráð fyrir. Stjórnandi sem skilar 30% lélegri afkomu í fyrirtæki með fastar tekjur og nokkuð fastmótuð útgjöld yrði tekinn í analinn af Halta bingó og sparkað út í hafsauga fyrir svona klúður. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2003 er reist á sama grunni og áætlunin fyrir árið 2002.
Hugsa áður en maður kýs! Það er ekki eins og það séu bara vondir menn í Sjálfstæðisflokknum sem myndu vaða af stað, loka spítölum og sparka í einstæðar mæður. Þetta eru bara menn sem kunna að reka stórt fyrirtæki á borð við borgina, taka til í þessum skítapolli, minnka kostnað og hætta að safna skuldum = lægra útsvar fyrir okkur.
Ps - mamma þín er tvinntala
Góðan daginn. Opið verður í dag frá klukkan 14:00-21:00. Opnar verða diskalyftur og byrjendalyfta. Snjór er í lágmarki í byrjendabrekkunni en er frábær í diskalyftunum.
-tekið af kistunni.
We know Major Tom's a junkie
Strung out in heavens high
Hitting an all time low
3.2.03
Ætli það sé hægt að fá nagladekk?
Dagur (aka Dike) er að kaupa sér Remington 700 PSS (Police Sniper Special) sem er allsstaðar talinn best buy vegna þess að þú færð ekki jafn góðan riffil á jafn lítinn paun. Á flestum síðum sem ég skoðaði töluðu þeir um að hann væri á ca $700 en sömu gæði kostuðu yfirleitt $3000 til $5000. Eruð þið ekki menn í að panta? Hægt að fá .308 Win og líka .223.
Við fáum bókað betri díl á flutning og svona ef við gerum magninnkaup.
Listinn yfir svik Kolla lengist jafnt og þétt.
Sem formaður útnefni ég Kolla sem svikara Vonlausa og mun hann bera nafnbótina "Svikari" þar til að einhver annar meðlimur VV fremur þvílík svik að öll svik Kolla Svikara blikna í samanburðinum.
Formaðurinn hefur talað.
Skoða eldri færslur >>

