31.3.03
Ekki það að maður hafi ekki séð nógu mikið af harmleik og viðbjóði frá þessum hluta heimsins, þá var það aðallega það sem menn voru að skrifa í foruminu sem er þarna sem fór í mig. Það er merkilegt hvað fólk getur verið ógeðslegt, maður er að lesa "good riddance" og "the bitch deserved it, she was against America".
Þetta er fólkið sem fordæmir bæði BNA og Ísrael, fólkið sem fær mann til að hata þessi ríki og þeirra fólk. Ég verð reiður þegar ég sé manneskjur haga sér svona og skammast mín stundum fyrir að vera af sömu tegund.
Og allt tengist þetta kananum á einhvern hátt. Dæmdu fyrir sjálfa/-n þig.
Skoða hér > Velja laugardag / 19.00 spóla til 30:05 - ansi fallegt hengjudropp...
Snilldarband - unnu mússikktilraunir. Tékk itt - mp3 og info
29.3.03
28.3.03
Auglýsingastofa í Austurbænum var myrt í gærkveldi. Ekki er vitað nánar um atburði
Svona gætu fréttirnar hljómað ef ég væri Orkan. Ótrúlegt dómgreindarleysi hjá þeirra auglýsingastofu að velja bleika frelsisstyttu (hermangarar sem fara með ófriði á hendur öðrum ríkjum í trássi við ákvarðanir SÞ í hugum margra) með krepptan hnefa (táknar ofbeldi) og loks með olíudælu í hendinni (þarf ekki að útskýra). Svo er heimurinn í afbakaðri mynd í bakgrunni á kynningarefni.

Hvað eru menn að pæla að birta svona auglýsingaherferð þegar (stór) hluti íslensku þjóðarinnar er á móti stríði. Er ég kannski bara svona geðveikur að sjá eitthvað táknrænt út úr þessu?
Þegar ég og Skabbi héldum knýtingarfund á þriðjudaginn urðum við fyrir miklu áfalli. Knýtistöffið var allt á rúi og stúi og svo þegar ég í gær fór að sortera það og taka til þá rann upp fyrir mér hversu samviksulausir þessir kettir geta verið. Gullfasaninn og appelsínugula kálfaskottið var horfið.
Það leikur ekki nokkur vafi á því í mínum huga að þetta var Al Kattída sem réðst á mig grunlausan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Osama Katt Laden og hans kumpánar ráðast á mig. Þeir hafa verið undanfarið ár brotist inn til mín og beitt svívirðilegum efnavopnum á eldhúsborðið og baðherbergisvaskinn. Nú síðast varð gluggankistan í svefnherberginu fyrir barðinu. Ennú er komið nóg, ég heimta að Sameinuðu Kettirnir samþykki ályktun um að annaðhvort framselji Kattebanarnir Osama Katt Laden, ellegar ræðst ég inn og set ólar á alla Kattebana og þeir sem eru í Al Kattída verði settir í búr á Kattholti.
27.3.03
Pics úr steggjun Beina loxins komnar á Askinn - hér - mánudagsprattí dauðans...
[Gangsta sjitt]
Verst að það vantar myndir af söltuðu síðunni...
26.3.03
Fullt af góðu stöffi í boði Nasa
Nú er búið að bæta við askur.org og Hauki fagga í hómís listann. Hann má reyndar passa sig eftir að hafa stolið nafngift síðu sinnar með bíræfnum hætti frá VV. Stebbi Páls er ennþá óvinur vonlausa eftir niðrandi ummæli um Prella Zíba og verður brenndur á báli líkt og aðrir sambrýndir faggar ef til hans næst.
Djöfull er fyndið líka hvað Haukur er miklu fremri tölvon en Sírnir þó að hann sé listafaggi líka - hahahhahaha - Sírnir er ekkert smá glataður tölvon.
Ég held að þeir séu hommar. Loksins get ég hætt að reyna að þykjast vera umburðarlyndi gaurinn því nú á ég tvo hommavini og ég er þvílíkt umburðarlyndur vinur þeirra. Ég mun vaða í píkum.
Í tilefni þessa birti ég hérmeð atómljóð frumort eftir sjálfan mig.
þú hefur étið úldinn sokk
og hneturnar hans Sindra
hommavinurinn Svenni.
25.3.03
Jei! Það er hægt að publish-a með blogBuddy.
Söltuð síða (skorin í bita), laukur, paprika, hvítlaukur, krydd og tilbúinn hrísgrjónaréttur (þ.e. allur matur sem við fundum hjá Ömma sem ekki var útrunninn). Síðan var allt saman steikt á pönnu og viti menn útkoman var hrein snilld.
Það er ekki loku fyrir það skotið að maður grípi einn svona síðu bita næst þegar maður skellir sér í búðina.
Beini er að fara að gifta sig á laugardaginn og var náttúrulega að búast við steggjun um síðustu helgi en ekkert gerðist. Við lugum að honum að þetta hefði gleymst og klúðrast - hann frekar súr. Síðan í gær hitti hann fyrir "tilviljun" Hadda og einhvern annan niðri á Sticks and Sushi, síðan fara þeir að rölta og viti menn - 2 aðrir félagar á Brennslunni. Svo er rölt eitthvað áfram og haldiði ekki að Jón T. komi bara útaf Kaffibarnum. "Blessaðir strákar - hvað eruð þið að gera hér." Svo rekast þeir áfram á fleiri og fleiri, mig og Renis uppi við Devitos og þá eru þetta orðnir 20 manns sem labba inn á Banthai.
"Hei - eigum við ekki bara að éta hérna?" Beinið búið að átta sig á fyrir allnokkru að ekki er allt með felldu enda tilbúinn salur og alles. Étið og drukkið þar, síðan kíkt á Gufubaðsstofu Jónasar þar sem strákurinn fékk nudd, kíkt í gufuna og síðan í partý heima hjá Ömma. Helvíti gott. Frí fyrir hádegi í dag enda vorum við Renis á esinu þegar við skröltum heim í nótt. Stuð.
Sem sagt - enginn bleikur sundbolur og hárkolla í Kringlunni, bara góður matur, gufa og chill með hómís.
24.3.03
[Skoða hrikalegt ástand á hinum svæðunum líka]
Svo má benda á það að þið eruð aumingjar að hafa ekki komið í RISK á föstudaginn. Við Stæner tókum bara 2 mann RISK og bjór án Risksins.
22.3.03
Péess - askur.org er loxins farinn að rokka hjá okkur og ég er að dunda mér við að setja upp myndasafn þar...
Annars fannst mér friðarsinninn sem réðst á kjánana með "Bomb Iraq" skiltið niðri við Stjórnarráð ekki sérlega friðar-sinnaður. Lamdi þá og sparkaði hundinum þeirra niður 2 metra vegg, skynlausri vesalings skepnunni. Hvað er með það? "Þið eruð ekki friðarsinnar þannig að ég ætla að buffa ykkur"??
Gaman líka að sjálfhverfu Sírnis, ekkert nýtt svo sem, en hann er eini maðurinn sem þreytist aldrei á að búa til bannera með sjálfum sér á þessa síðu.
Lifið heil.
1,2,3,4 We don´t want your fucking war kyrjaði hópurinn.
þeir eru duglegir við þetta svíarnir.
21.3.03
Casa Lu Pork - mæting kl. Risk með bjór - skyldumæting.
Kolli er aumingi þannig að hin hýenan mætir vonandi...
20.3.03
Grísinn sem mósar mun verða í Kína frá miðjum september til loka desember. Þetta verður magnað, magnað I tells ya!
Ég heiti því að ég mun stela keisarans appelsínu og bera hana á borð á næstu árshátíð.
Ótrúlegt að hugsa til þess að um leið og þingið er leyst upp lýsum við yfir stuðningi við hernaðaraðgerðir gegn Írak. Leyfum notkun á landsvæði og flugstjórnarsvæði fyrir tæki og mannskap á leið í stríð. Fréttirnar koma frá fréttafulltrúa Bandaríkjamanna, ekki okkar lýðræðislega kjörnu fulltrúum. Í stað þess að funda um málið með utanríkisnefnd er leynifundur með bandaríska sendiherranum. Hverskonar gúmmílýðræði er þetta?
Hlutlausir Íslendingar
Í gegnum tíðina eru Íslendingar allaf að tala um að þeir séu svo hlutlausir, enginn her og þar fram eftir götunum. Hjálpuðum litlu Eystrasaltsríkjunum eftir mætti (litlum þó) þegar þeir reyndu að komast til sjálfstæðis. En svo tökum við þátt í hernaðaraðgerðum?
Lönd á borð við Frakkland, Þýskaland, Noreg og Svíþjóð eru á móti. Það ætti nú að vera vísbending um að við þurfum að hugsa okkar gang. Meira að segja kommúnistaríkið Kína er á móti. Öll spænska þjóðin er á móti nema forsætisráðherrann. Hugsanlega svipað ástand og hér.
Saddam er vissulega vondur maður sem þarf að koma frá en...
Við erum ekki að tala um að þessi ríki séu vinir Saddams. Það liggur alveg á borðinu að hann er mesta illmenni, beitti efnavopnum á eigin þjóð, pyntir og drepur. Hann tók meðal annars tugi ráðamanna af lífi þegar hann kom til valda til að tryggja valdastól sinn.
Hinsvegar höfum við ákveðin batterí á borð við stríðsglæpadómstól, Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðasamfélag. Með því að fara framhjá þessum réttu boðleiðum, eins og nú er gert, erum við að veikja þær gríðarlega. Hver á eftir að fara ?réttu? leiðina þegar kaninn segir bara hingað og ekki lengra og veður í menn. Hvað mun svo gerast í N-Kóreu og fleiri löndum sem eiga kjarnavopn og eru ekki par hrifin af kananum? Þarf að fara inn í öll þessi lönd, rústa innviðum þeirra, senda þau 20 ár til baka í þróun og setja á leppstjórn til að þau fái að vera í friði? Rökin eru vopn sem finnast ekki, tengsl við Al-Kaída sem sannast ekki.
Brjóta BNA-menn Genfar-sáttmálann?
Verkfræðingur sem kom í Kastljós í gær bar könum ekki vel söguna, sagði þá brjóta Genfar sáttmálann með því að eyðileggja þá hluti sem venjulegir borgarar þurfa til daglegs lífs, vatnsveitur, rafmagnsveitur, samskipti og samgöngur. Hann var í Írak eftir Persaflóastríðið og kom með vægast sagt hörmulegar lýsingar á tjóninu sem var valdið þarna, tjóni á lágmarksaðstöðu óbreyttra borgara, í borgum og bæjum. Svakalegasta lýsingin var þegar húsmæður þurftu að dýfa sér í skólp til að reyna að veiða smá vatn upp.
Á hinn bóginn hugsa ég að svona kallar eins og Saddam fái hláturskast þegar hann pælir í SÞ. Enda eru þeir yfirleitt álitnir trúðar í stríðsátökum. Málið er bara að þeir þurfa að fá viktina til að díla við svona mál. BNA eru búin að tryggja að það gerist ekki með þessum einhliða aðgerðum.
Er lýðræði á Íslandi?
Ef allir hinir stjórnmálaflokkarnir væru ekki hálfvitar í efnahagsmálum myndi ég hætta að kjósa X-D núna, vegna gerræðislegra vinnubragða í þessu máli og útflutningu raforku / innflutningi náttúruskemmda þeim er ekki rataði í þjóðaratkvæðagreiðslu eins og eðlilegt hefði verið. Mikið vantar að hrista aðeins upp flokknum og senda Dabba í frí.
Friður.
þessi gaur er til dæmis að ímynda sér að hann sé í þrísommi með tveimur kalkúnum!!
klikkað
Mikið verður ógeðslaega fyndið þegar fólk segir við mig á skemmtistað: "Heyrðu, sá ég þig ekki á OMEGA" og ég svara: "Aaaahh, horfir á OMEGA. Ha ha ha ha."
Svo tilkynna þessir þrjótar að fyrsta árásin sé til að "afhöfða" Irak. Launmorð í raun og veru. Hversvegna ætti Saddam að fara frá völdum, bara af því að BNA segja honum að vera farinn annars komi þeir klukkan 12.
Ég held að sögubækur(gefnar út annarstaðar en í Bandaríkjunum) muni kalla þetta Olíustríðin og þegar BNA menn stálu olíu frá Írak.
Haldið þið að ef okkur tekst að verða Vetnisveldi að Olíukúrekar og furstar láti það í friði? Eða er engin framtíð í vetni. ... hugmynd að vísundaskáldsögu.
Jæja nú ætla ég að fara að kaupa mér Kebab og borða það fyrir framan McDonalds.
Lögreglumaður í Reykjavík hefur verið sendur í leyfi vegna kæru um ólögmætar handtökur. Lögreglustjóraembættið óskar þess að ríkislögreglustjóri leysi lögreglumanninn alfarið undan starfsskyldum á meðan ríkissaksóknari kannar kærefnin.
Kært er vegna tveggja atvika sem áttu sér stað 8. og 9. mars. Í fyrra tilfellinu var piltur handtekinn sem tók ljósmynd inni á skyndabitastað í óþökk lögreglumannsins.
Kært er vegna tveggja atvika sem áttu sér stað 8. og 9. mars. Í fyrra tilfellinu var piltur handtekinn sem tók ljósmynd inni á skyndabitastað í óþökk lögreglumannsins.
Öll fréttin á Vísi
19.3.03
"You know the world is going crazy when the best rapper in the world is a white guy, the best golfer in the world is a black guy, France is accusing the US of arrogance and Germany doesn't want to go to war."
"We know that Saddam has weapons of mass destruction. We still have the receipts."
- George W. Bush
- George W. Bush
Sem minnir mig nú á góðan brandara - mig minnir að Bretarnir hafi verið nýbúnir að selja Írökum alla eyðimerkurbúningana sína síðast, nokkrum vikum fyrir Persaflóastríðið. Voru víst að kafna úr hita fyrstu vikurnar þangað til búið var að sauma nýja.
Rakst síðan á grein þar sem fullyrt er að BNA-menn ætli sér að stúta Saddam sama hvað gerist. Ótrúlegar línur þar, kaninn málar náttúrulega aðallega með svörtu í svona greinum og segir síðan hvað herinn sinn er æðislega kúl.
Annars heyrði ég því fleygt að Dindri væri hárlaus og húðlitaður, svo mjög að kornabarnið hans hlær að því hvað hann er nakinn á bringunni, Mjöðmin kaus Samfylkinguna utan kjörstaðar til að systir hans hætti að bögga hann og keypti svo hnífaparasett í staðinn fyrir nýja PS2 leikinn sem hann langar í, Gírnir var handtekinn á hommabúllu fyrir utan Gautaborg um helgina og kom þá í ljós að hann er ekki í listanámi heldur að reyna að koma sér á framfæri sem hommaklámmyndaleikari í Svíþjóð - gerir mest út á risavaxin eistu sín og púngflengir alla í magann - kallar sig Herr Ollon, Fabían vinnur við að hreinsa pípettur hjá Díkód og kann ekkert að sloppafaggast.

Krummi hefur verið ættleiddur af hýenufjölskyldu og býr núna í búrinu við hliðina á Styrmi storki í húsdýragarðinum. Ég legg til að hann verði skotinn og hausinn hengdur upp í félagsaðstöðu VV, tengdur við upptöku af hýenuhlátri í eilífri lúppu.
Addi er feitur, Sibbi er Pu, Gári er þorskur dauðans og allir aðrir eru fávitar. Guðni er GBHG.
Þetta eru nú meiru hetjurnar þessir hermenn í Kúvæt. Sýnist að þeir díli ekki alveg nógu vel við veðrið ef marka má lýsingar. Sandurinn víst að gera þá vitlausa.
Reyndar kom McRenis með ágætis pælingu á þá leið að sandurinn hljóti að vera miklu léttari þarna, hann hreyfist ekki hér nema í alvöru roki og fer þá ekki meira en í 2 metra hæð.
En dæmi um hversu aðstæður þarna eru slæmar:
Vindhraðinn fer upp í 20 hnúta eða rúma 10 m/s í mestu hviðunum, segja veðurfræðingar
...og
Sandrokið hefur reynst ríflega 170.000 breskum og bandarískum hermönnum erfitt þar sem þeir bíða fyrirmæla í eyðimörkinni í norðurhluta Kúveits. Hermenn hafa ítrekað þurft að hreinsa sand úr byssuhlaupum og sópa vistarverur sínar.
Vesalings mennirnir, eru þarna í öskrandi vindi, 10 m/s, eða 36 km/klst. Hlýtur að vera agalegt. Og að þurfa að sópa, segi bara eins og Kurtz, The horror, the horror. Hvað segja menn annars, gæti þetta orðið annað Nam? Aðstæður sem menn eru ekki vanir og það allt? Þrátt fyrir afgreiðsluna síðast og yfirburði á öllum sviðum? Sennilega ekki. Ekki gaman að vera Íraki þessa dagana.
18.3.03
SíEnnEnn
Svartur api
Annars var Svarti apinn algjör snilld. Mér fannst reyndar allsberi maðurinn sem réðist á ljósmyndarann svolítið sturlaður en hýenurnar voru nottla búnar að hlæja ansi mikið af honum. Magnað líka að draga dauðaspaðann í síðasta. Kolli 2 fær verðlaun fyrir besta outfittið. Takk fyrir bjórinn dúds. Helvíti var samt ljúft að hjóla heim, með fullan camelback til að drekka og Greyboy Allstars í MD'inum. Snilldarkveld.
Stríð og fr.. stríð
Fín mótmælastaða fyrir framan Stjórnarráðið í morgun. Ánægður með þetta - smá aðhald á kallana. Þeir eru allavega að kynna sér málið núna hugsa ég. Legg til að menn spili Hallelujah með Jeff Buckley á hverjum degi til að chilla sig aðeins niður og styrkja friðarviljann. Upphaflega með Leonard Cohen en JB tekur það snilldarlega á Grace.
Veðurfar
Þetta er svoooo fucking sorglegt. 9 stiga hiti snjórinn að fara og sísonið líklega búið. Ég er búinn að klifra eina snjó/smá ís leið, smá í jökli og einn ísfoss það sem af er vetri. Það er ekki neitt. Ömurlegt. Það er nú oft skíta rennsli hérna en að það skuli ekki einu sinni vera klaki er bara fáránlegt. Ég held að Norge sé bara málið, snjór og klaki á veturna og gott veður á sumrin. Let's face itt - veðrið hérna SÖKKAR!
Hvað er annars að frétta?
17.3.03
14.3.03
13.3.03
Ef að gimpið myndi svo kalla mig kúkalabba og taka samt mynd, þá ætti ég um ekkert að velja annað en að handtaka þennan plebba. Fasismi er af hinu góða.
Reyndar mun ekki þurfa á fasisma að halda lengur þegar ég hef fullkomnað uppskriftina mína að Stubbabrauði sem mun gera almúgan hlýðinn og háðan mér, meistara mannkyns.
Og fyrst ég er að tala um þetta þá leyfi ég mér að tilkynna að ég hef flutt inn nokkrar bænheitar bænakonur frá Filippseyjum, 99. kr mínútan og hvett ég alla nota sér þjónustu þeirra.
12.3.03
Jæja Vondúrr, hvernig væri að þú færir að fá yfirmannsdjobb og koma kallinum í eitthvað þar sem hann þarf ekki að díla við almenna borgara áður en hann drepur einhvern...[1] [2]
Þá er ekkert betra en að CNNast svolítið:
Svo ég vitni nú í David Bowie "I´m afraid of Americans". Þeir eru farnir að sýna merki múgsefjunnar á heimaslóðum.
Þessa grein las ég í blaðinu hérna:
Frönskum mat gefin ný nöfn til að hæfa smekk USA
Þingmenn republikana sýndu í gær óánægju sína með stöðu Frakklands
gagnvart Irakmálinu með því að skipta út "fench fries"(franskar kartöflur)
á matseðlinum í kaffiteríu þinghússins og setja í staðinn "freedom fries".
Það var Rob Ney, (einhver titill sem ég kann ekki að þýða) sem stendur
fyrir nýyrðunum í veitingasölum þinghússins.
Á sama hátt mun "french toast" ( eggjabrauð, franskur riddari) í framtíðinni
heita "freedom toast". Ekki kom fram hvort standi til svipaðra aðgerða
vegna mótstöðu þjóðverja við stríðsreksturinn.
Undarlegt hvað lítið orð eins og "fífl" nær að lýsa þessu vel.
11.3.03
Bombay Gin, Black Sabbath og Tónik heima hjá mér á föstudaginn.
9.3.03
Þetta er gjörsamlega ný upplifun fyrir mig, vaknaði fyrir hádegi og knýtti flugur eins og óður maður, og þá var dagurinn samt bara hálfnaður. Þá brá ég á það ráð að knýta fleiri flugur og hérmeð krýni ég sjálfan mig Flugnahöfðingjann.
Mjöðmin, Kike og Spunge eru bara hálfdrættingar á við mig í knýtingum og hlæ ég að ykkar aumu kretínflugum sem enginn heilvita fiskur myndi líta við.
7.3.03
Hversu mörg spil haldið þið að við náum áður en Kolli verður með? Það eru nú þegar komin tvö og vonandi verður eitt um helgina.
Hvað ætla menn að gera um helgina? Planið var hjá mér að fara á sleða (búinn að skipta um primer, geymi, skíði, meiða, smyrja allt, hreinsa blöndunga, shine-a til osfrv. - svo er bara allt flautað af), en menn eru eitthvað ragir enda spáð skítaveðri. Spurning um RISK ef það verður svona glatað veður?

Svo eru tónleikar næsta fimmtudag sem er skyldumæting á - það eru vinir okkar í Brainpolice, Mínus og Hell is for heroes sem rokka eins og þeir ættu lífið að leysa. Sem fyrr eru þeir sem mæta ekki aumingjar.
6.3.03
Vissuð þið að Sveppi og Dr.Green voru mestu mátar í menntaskóla?
Þrátt fyrir að hafa tölvunarfræðingalyddur og verkfræði lúða með bleika húð og ekkert hár þá er ÉG tölvon vonlausa frá og með þessum degi. Í gær var ég eitthvað að spassast og fann þvílíkan öryggisbögg hjá samkeppnisaðila okkar, stórri fjármálastofnun. Núna á ég grunnatengingarnar þeirra og alles. Létum þá vita og þeir löguðu þetta í gær eða morgun.
Sem mesti tölvoninn ætla ég að útnefna Skötu dauðans sem aula-tölvon félagsins, Sírnir fær ekki að vera með þó hann langi það (hann er bíond glataður tölvon), Bleika hættan verður húðlitaði-tölvon vonlausa (KÍFD (Kúkur Í Floppy Drifi) ) og Mjöðmin verður yfirfaggi vonlausa tölvulúðafélagsins með logandi píku.
Heill mér - mesta tölvon Vonlausa sem uppi hefur verið
Meira rokk og meira helvíti. Fór á mega-tónleika áðan í boði Radíó Rvík á Gauknum - Black Sabbath tribute.
Þegar við komum inn var einhver átján ára gítarhetja að þenja sig og var frekar fúlt að missa af því hver þetta var. Hann var helvíti magnaður. Síðan stigu Solid IV á stokk og gerðu góða hluti, þá Botnleðja, Sólstafir (vá hvað þeir eru miklir 1990 Metal snillingar og trommuleikarinn þeirra hlýtur að vera með mössuðustu bassatrommulöpp í alheiminum) og loks Sign.
Lag kveldsins var tvímælalaust War-pigs í flutningi Sólstafa. Þeir voru rosalegir, bætu smá trommugeðveiki og öðru frá sér í þetta og úr varð mega flott lag. "Ef þið kunnið ekki textann við þetta getið þið farið heim". Góðir. Spilareynslan segir líka til sín þegar þú stillir upp á 5 mín. og sándar samt vel.
Sign hafa greinilega ekki sömu reynslu, þrátt fyrir að ég fíli þá alveg. Lagið þeirra (Fyrir ofan himininn held ég að það heiti) var kúl en BS lögin ekkert spes. Þeir voru líka í einhverri HAM keppni, yfirkeyrðu kerfið gjörsamlega og núna er bara "biiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii" í eyrum mínum. Botnleðja eru drulluþéttir en hafa náttúrulega ekki gítarhetjuleadspilara innan sinna raða - komust þó fínt frá þessu.
Ágæt skemmtan og þið sem mættuð ekki eruð AUMINGJAR!
Helvíti
Labels: Tónlist
5.3.03
EOE hefur mikið til síns mál hérna - er með úrdrátt úr þessari frægu Borgarnesræðu ofl. Mikið eru nú hagfræðimenntaðir líka skynsamir...
Mér finnst samt sorglegt þegar helvítis sköllótta kellingin er farin að tala um frelsi í viðskiptum en ekki þeir sem gefa sig út fyrir að styðja það. Hinsvegar treysti ég hennar slekti engan veginn til að reka land. Okkar vantar nýjan kóng í Valhöll. Hvar er Óðinn þegar maður þarf á honum að halda?
Þetta er kúúúl. Kannski getum við líka sett lax í þetta og veitt á flugu í fluguhnýtingarstofunni, þannig væri hægt að prófa straumflugurnar strax...
Vonlausa Arabafélagið heldur fund....
4.3.03
Svo þykist hann vera einhver reglison líka.
Haltu bara eins og þú villt, KolliPíka, en haltu þó umfram allt kjafti svo að við þurfum ekki að hlusta meira á þetta píkuslurp sem þú kallar tal.
Ég er náttúrulega algjörlega sammála þeim upp þessa "great big vagina in the sky" LOTR en langar til að benda á nokkuð sem Dagný bendir á en fer ekki nánar í. Hún sagði að merkið () táknaði einnig fiska sem við allir erum sammála um er einnig kristið tákn. Hringurinn er líka tákn eilífðarinnar í kristni, eilífs kærleika og trúfesti Guðs við menn. Nú samkvæmt öllu ætti ég að kalla Peter Jackson, son djöfulsins og andkristinn andskota. En hvað er að mér? Ég nenni því ekki, er ekki nógu bilaður til þess.
Annað er að ( ) líkist eiginlega meira auga. Auga var mikið notað tákn í dulhyggju og gnóstískum trúarbrögðum austurlanda sem voru smatíða kristindómi og sumir vilja meina að fiskurinn sé í raun afurð táknsins. Nú þá er auga í auganu ef við leyfum ímyndunaraflinu lausan tauminn og ætlum Peter Jacksson jafnmikla táknfræðilega íhugun og Dagný. Er það þá ekki alveg í samræmi við persónu Saurons, auga í auganu, ekkert er eins og það sýndist og Sauren er og verður tvöfaldur í roðinu.
Speklationir sem leiða ekkert. Tákan er tákn og því miður eru flest tákn dauð nema þau séu að selja einhvern fjandan sbr. Coca Cola (tákn kapítalismi), Che Guvara (sósíalístík frjálshyggja í skjóli efnishyggjunnar, áhyggjuleysi sófabyltingarsinnans). Bla, bla bla bla.
En þetta er alveg rétt, hvað er konan? samhvæmt þeim mikla fræðingi Dr.John er konan rót alls hins ílla og við höfum allir fengið stærðfræðilega sönnun þess hundrað sinnum á netföngin okkar. Sauron er líka frumíllska, þannig að samlíkingin ætti ekki að koma á óvart.
Þetta þýðir ennfremur að Kolli er öfugur mogwai, ef maður gefur honum að drekka eftir 12 ælir hann og ef maður kveikir í honum breytist hann í Sauron.
Þetta hlýtur bara að vera eitthvað grín til að hrista upp í kallpungum eins og Geltinum. Reyndar getur maður aldrei vitað þegar die-hard femínistar eiga í hlut. Pæliði í hvað það væri erfitt að gera eitthvað ef það mætti aldrei vera píku- , reður- eða samfaratákn án þess að einhverjir móðgist og segji karla vera að niðurlægja konur. Því maður getur séð þau hvar sem er.
Dæmi:
Svenni rennir sér á brettinu á fleygiferð niður suðurgil. Hvað er Svenni þá annað en reður, suðurgil risa leggöng og svo þegar hann svífur yfir stökkpallinn þá er það greinileg táknmynd yfir getnað og drotnun karlmannsins yfir kellingunni.
Það kemur mér sífellt á óvart hversu öfgafullur level af geðveiki fyrirfinnst í heiminum. Hvernig er hægt að sjá píku út úr auga Saurons? Ég sé nú bara auga. Og ég veit að þið allir, eins miklir klámhundar og þið eruð, sáuð ekki heldur píku. Enda væri eflaust mjög kjánalegt að stinga drjóla í brennandi píku. Mjög líklega vont.
En femínistarnir sanna hvað þær eru Últra miklir klámhundar og geta séð loðnu píkurnar á hvorri annarri út úr öllu með því að eipa eitthvað hérna
Femínistar eru ógeðslegir klámhundar (sorrí, -tíkur) og kvenfyrirlitningar.
Hérmeð er líka á það bennt að Geltinum finnst formaðurinn vera ógeð og vill ekki hafa af honum mynd á skjánum hjá sér.
Þetta er hið grófasta formannslast og hefur það verið tilkynnt til stjórnarinnar.
Sírnir - þú ert viðbjóður.
Fór í Bláfjöll í gærkveldi, opið til 23. Ansi hart og rosalega hratt færi. Maður var hálf smeykur um að strauja einhvern niður allt kveldið. Svo voru víst 2 ágætir pallar í Suðurgili og troðari að lýsa á þá en ég hefði ekki viljað faula neinu í gær - mjög punishing færi. Slatti af óþolandi bretta og skíðaliði að renna sér hægt og vera fyrir.
Töluvert af fólki - lítið af kunnuglegum andlitum. Mættir voru Sveppur, Ása, Stæner og frú, Helgi Már, Andri, Reynar og fleira gott fólk.

Formaðurinn tók sér frí frá eigin fjölskylduleik og leit við í heimsókn til okkar Benjamins Loga um helgina, hann er sá eini sem er duglegur að heimsækja vini sína, þið hinir eruð bara lyddur. Ræddum við liðna tíð og lífsins gagn og nytjar. Svo fengum við okkur að drekka þangað til formaðurinn sofnaði á klósettgólfinu, þegar hann ætlaði að hefna sín á mér fyrir að Kolli ældi einusinni yfir klósettið hans. Þá tók ég þessa mynd af honum.
Gaman að fá þig í heimsókn, komdu endilega aftur. Þið hinir eruð líka velkomnir.
3.3.03
Verið er að undirbúa auka aðalfund þar sem rædd verða aðgerðir gegn þeim er neitað hafa að borga fyrir notkun spilsins. Stefnir allt í að vanksil við sjóði spilsins verði send lögfræðingi til innheimtu!
Almenningi stendur, hér eftir sem hingað til, til boða að kaupa hlut í spilinu. Verð fyrir einn hlut er 2.333 * 224,3/223,9 = 2.337 kr m.v. síðasta skráða gildi á vísitölu neysluverðs. Söluhagnaður af hlutum spilsins verður varið til frekari spilakaupa.
Fór e-r í fjall um helgina?
Á miðvikudaginn verða tribute tónleikar um Black Sabbath á Gauknum. Meðal spilara verða Maus, Sign og fleiri snillingar. Ég mæti, en þið?

Hell yeah!
Labels: Tónlist
Bíó á línu dagsins...
Skutla: "Þú ert sætur"
Bíó: "Ha?"
Skutla: "Þú ert sætur"
Bíó: "Ha?"
Skutla: "Þú ert sætur"
Bíó: "Ég veit, mér finnst bara svo gaman að heyra þig segja þetta ;)"
Skoða eldri færslur >>

