29.4.03
Stínkur um svartfuglaveiði
Hvernig væri að Vonlausa stæði fyrir einni svartfuglsferð, núna á fimmtudaginn eða um helgina? Veðrið á að vera í fínu lagi og það er hægt að leigja zodiak með góðum mótor á svona 3-4 þaus á mann. Það á að vera hægt að flengjast um allan Faxaflóann á svoleiðs tryllitæki án vandræða.
Hvað segiði, eruði of hræddir að vera nálægt hverjir öðrum með byssur eða er þetta e-ð sem kitlar?
28.4.03
Allir að krossleggja fingur og vona það besta fyrir Adda (
sjá mbl.is)
27.4.03
Nýjar myndir
Var að bæta tveimur söfnum á
askinn - Skessuhorni og Hrútfjallstindum
25.4.03
Sömuleiðis.
24.4.03
Gleðilegt sumar, Kínversku sumarsveinarnir ykkar.
23.4.03
Fyrsta skipulagða kastæfing Vonlausa Flugufélagsins var farin í blíðunni í gær. Þáttakendur voru þrír, Skarphéðinn, Kolbeinn og María, sem reyndar kastaði stórum látúnsflugum. Staðurinn var Vífillstaðavatn. Sem fyrr segir var hér einungis um kastæfingu að ræða og sem betur fer var ekkert til að trufla köstin og fiskar létu flugurnar blessunarlega í friði. Prýðileg skemmtun í ágætu veðri og hvetjum við aðra vonleysingja til að fara að æfa köstin hið fyrsta.
22.4.03
Eyjafjallajökull sigraður, en tæplega þó
Að morgni sunnudags lögðu 5 vaskir kappar í hann. Ferðinni var heitið á tind
Eyjafjallajökuls. Fararstjóri var Haraldur Guðmundsson en auk mín voru líka Brynni, Ása Róberts og Ásdís. Ferðin sóttist seint framan af, ónýt skinka og pulsustopp á Hvolsvelli ollu seinkunum.
Föruneytið leggur í´annLoksins þegar við lögðum af stað á jökulinn var klukkan að verða 12. Farið var frá Seljavöllum (60m y.s.m.) og stefnan sett á Hámund (1651m y.s.m.). Ferðin sóttist vel framan af og eftir um tveggja stunda labb vorum við komin að snjólínu. Stuttu áður höfðum við hitt tvo kappa á niðurleið. Þeir sögðu færið gott og að við kæmumst upp úr skýjunum, sem við höfðum verið að labba í, í 1000m hæð. Að auki sögðu þeir að það væri óþarft að burðast með línu með okkur, þar sem jökullinn væri ósprunginn, og buðust til að taka hana niður fyrir okkur. Við þetta léttist pokinn hans Halla um 3kg og munaði um minna.
Eftir að hafa fengið okkur aðeins í svanginn voru snjóþrúgurnar spenntar á lappirnar, Halli setti skin undir telemark-skíðin, og labbað af stað. Fljótlega náðum við upp úr skýjunum og skein þá sólin skært. Ekki var síðra að sjá á toppinn og spurði Ásdís hvort það væri virkilega svona stutt eftir. Eitthvað var þó fjarlægðarskynið að blekkja hana því við áttum eftir að labba í fjóra tíma í viðbót. Miklar drunur kváðu öðru hvoru við frá tindinum, þá var ís að hrynja niður af honum með látum.
Toppnum náð þrátt fyrir áföllÞað gekk ekki áfallalaust fyrir sig að ná toppnum. Ása fékk slæman verk í mjöðmina og þurfti að leita í lyfjakistu Halla til að fá bót meina sinna. Í 1300m hæð varð ég mjög slappur, fann til flökurleika og fór að efast um að ég kæmist alla leið, ekki bætti úr skák að ég var búinn með vatnið mitt. Brynni, Halli og Ásdís voru nú kominn þó nokkuð á undan mér og Ásu. Við Ása ákváðum þá að við skyldum komast alla leið hvað sem tautaði og raulaði. Eftir að hafa pínt okkur áfram í rúman klukkutíma náðum við toppnum þar sem þau hin biðu eftir okkur. Síðustu tíu skrefin voru tekin með krampa í læri og er ég nokkuð viss um að ég hefði ekki komist mikið lengra. Á toppnum kom í ljós að Halli var líka gjörsamlega búinn. Við vorum heppinn að Brynni, sem hafði ótrúlega lítið fyrir þessu, átti nóg vatn til að gefa okkur hinum.
NiðurferðinEftir að hafa jafnað okkur aðeins og notið útsýnisins var niðurferðin undirbúinn. Færið var svona ekta "summer slush" enda hafði sólin bakað jökulinn allan lið langan daginn. Við renndum okkur niður í 600m hæð og náðum því 1000m fallhæð, nokkuð gott það. Þá tók við 1 1/2 tíma labb niður í bíl og vorum við ekki kominn þangað fyrr en rúmlega átta. Við tóku teygjur og hinar ýmsu æfingar til að forðast harðsperrur daginn eftir (ekki að það hafi haft nein áhrif, ég gat ekki sofið almennilega fyrir harðsperrum). Hefðum við greitt hátt verð fyrir að komast í sundlaugina á Seljavöllum sem var lokuð.

Ferðin tók í allt 8 tíma, upp og niður, og var mikil raun. Betra hefði þó verið að leggja fyrr af stað (kapparnir sem við hittum lögðu af stað klukkan átta um morguninn), þá hefði gangan á jöklinum sóst betur enda harðara færi (það var ansi mikil sólbráð þegar við vorum á ferðinni).
Sem sagt,
SNILLDAR FERÐ, props til Halla fyrir að skipuleggja hana. Myndirnar frá Brynna eru komnar á
askinn.
16.4.03
Metnaðarfullt páskaplott

Planið er að fara á
Herðubreið (1.682m) og
Snæfell (1.833m), en planið er svo að skíða það síðarnefnda. Snæfell er hæsta fjall Íslands utan jökla.
Svo á náttúrulega eftir að sýna sig hvort við fáum veður og aðstæður, vonandi náum við amk. öðru og smá rennsli. Annars er það bara 2.000 km keyrsla og bar á Austurlandi...
15.4.03
CNN: Wicked
Hmm - spurning hvort
fluguhnýtingardeildin þarf ekki að
endurskoða stefnu sína.
14.4.03
Ágætis
pistill um allar fylgiskannanirnar sem dynja á landanum þessa daganna.
Skúter kominn og sem betur fer farinn
Stúlka var flutt með sjúkrabifreið frá Laugardalshöll á slysadeild meðvitundarlaus, grunur er um e-töflu neyslu. Stúlkan var sett á gjörgæslu. Nokkru síðar var önnur stúlka flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. Hún kvaðst hafa drukkið kók sem einhver maður hefði laumað dufti út í.
Og hér eru svo tvær beyglaðar frá Bolungarvík og Selfossi í boði
djammari.is. Þessi frá Bolungarvík var geysisnjöll að bjóða ömmusystrum sínum frá Ytri-skítaklepra með sér enda lítur hún allmikið betur út en þær. Takið eftir útvextinum á berbrjósta kjéllingunni - það er að vaxa reiður þrútinn dvergur að nafni Sindri Páll út úr klofi hennar. Ógó.
Þetta eru sko ekki klassadömur á borð við hana Ernu okkar sem linkað er á hér að neðan...
Aflakló Vonlausa er komin af stað!
Hér með upplýsi ég limi VV um að ég varð um helgina fyrstur allra í þessu fróma félagi til að bleyta færi í ár. Það var á laugardaginn, við Karen renndum austur á Þingvöll í bongó blíðu, keyptum veiðileyfi af durgi durganna og börðum vatnið fyrir landi Nesja í ca. 3 tíma án þess að verða vör. Þó tók einn vel upp alinn fiskur sér pásu frá annríki sínu á botninum til þess að koma upp á yfirborðið og hía á mig þar sem ég stóð rauður í framan með hor í nös og línuna í flækju utanum mig. Það var eina lífið sem ég sá þann daginn. Aftur á móti hvíslaði lítill fugl því að mér að í vatninu sé 8 kílóa urriði merktur mér sem bíði einungis eftir því að ég drepi sig. Er að hugsa um að gera það í kvöld. Ef e-r vill koma með og mynda viðburðinn er honum það velkomið.
Ógnvaldur Undirdjúpanna Halldórsson
Bíó spyr
Hver verður fyrstur?
Páskarnir
Er eitthvað páskaplan í gangi?
11.4.03
Útskriftargjöf
Þar sem þið gáfuð mér enga útskriftargjöf finnst mér sanngjarnt að þið chippið inn í
þessa handa mér...
Hívaþa litli skeit klukkan 19:00
Hvaða skotvopn ert þú?
Í boði
Stæners
Skabbi er ekkert annað en gamalt prump.
9.4.03
ACDC
Sel það ekki dýrar en ég heyrði á Radíó Reykjavík að ACDC ættu að spila hér í sumar.
Spurning um að kíkja á það?
Vefur ACDC.
Annars vil ég endilega fá meiri umræðu hérna um paranoju BNA-manna við allt og alla og mögulegar ástæður. Gun-nuts eða plain nuts?
8.4.03
Þetta er alveg magnað, ég er sammála Svenna trekk í trekk. Ég er búinn að vera bíða eftir að sjá þessa mynd í langan tíma og hlakka mikið til. Þannig er neblinlega að hann gerði heimildarmynd sem heitir
Roger & Me sem fjallar um heimabæinn hans og hvernig stórfyrirtækið GM lagði hann nánast í rúst með downsizing. Þessi mynd var sýnd í sjónvarpinu fyrir löngu og af einhverjum furðulegum ástæðum horfi ég á hana án þess að vita neitt um hana. Þessi mynd er helvíti mögnuð og ég legg til að þið verðið ykkur út um hana og sjáið.
Síðan þegar ég fór að gerast netnörd man ég allt í einu eftir þessari mynd og leitaði að upplýsingum um hana og komst þá að því að þessi feiti lúðalegi gaur er algjör hetja. Reyndar sér hann hlutina oft með sínum augum en hins vegar hefur hann gott lag á að benda manni á hluti sem mar hafði ekki alveg pælt í.
Ég er núna að lesa bókina hans
Stupid White Men og hún er algjör snilld. Mæli með að þið hlaupið strax upp í bóksölu til Maríu og kaupið hana því hún er til þar. Mundi lána ykkur hana en Svenni hefur gert það að verkum að ég lána ekki bækur lengur.
ALGJÖR SKYLDA:Óskarsverðlaunamyndin Bowling for Columbine
Myndin veltir upp pælingum varðandi af hverju BNA-menn eru
jafn ógurlega duglegir við að drepa hvorn annan og raun ber vitni. Skoðar morðin í Columbine, atvinnuleysi, utanríkisstefnu og aðrar mögulegar ástæður fyrir því að þjóðarsálin er svona ofsalega tens og ofbeldisfull.
Ræðan á Óskarnum
Michael Moore er höfundurinn, feitur bangsakall, sem virðist fá sjokkerast meira og meira á umfjöllunarefninu eftir því sem á líður í myndinni. Hann sagði einmitt á Óskarsverðlaunahátíðinni á dögunum:
"On behalf of our producers Kathleen Glynn and Michael Donovan (from Canada), I would like to thank the Academy for this award. I have invited the other Documentary nominees on stage with me. They are here in solidarity because we like non-fiction. We like non-fiction because we live in fictitious times. We live in a time where fictitious election results give us a fictitious president. We are now fighting a war for fictitious reasons. Whether it's the fiction of duct tape or the fictitious 'Orange Alerts,' we are against this war, Mr. Bush. Shame on you, Mr. Bush, shame on you. And, whenever you've got the Pope and the Dixie Chicks against you, you're time is up."
Að launum er hann núna talinn upp með besta aðstoðarkokk og besta 3rd gaffer gaffer gripper undir "aðrir sem unnu óskarinn".
Klipping og riffilskot
Það eru í raun ótrúlegar glefsur sem kallinn bregður upp fyrir mann. Hann fer í banka og opnar innlánsreikning og fær í leiðinni forláta riffil. Bankinn er nefnilega einnig löggild byssubúð og geymir nokkur þúsund skotvopn í geymslum sínum. Ef þú opnar ákveðinn reikning færðu byssu í kaupbæti.
Michael labbar hress í bragði út úr bankanum á rakarastofuna með riffilinn á öxlinni. Þar sest hann niður og fær sér klippingu. Kaupir í leiðinni skot sem honum eru færð og hleður byssuna. Svo fer 16 ára strákur og kaupir upp birgðir K-Mart (einsk. 10-11) af skammbyssuskotum.
Hann byrjar á að gagnrýna hversu auðvelt er að nálgast byssur en fer út í pælingar um rasisma, hræðsluáróður fjölmiðla, utanríkisstefnu BNA, gagnrýni á stríðsgagnaframleiðendur og fleiri.
[NRA hatar gaurinn]
Hataður af NRA
Að sjálfsögðu er myndin fremur einhliða en hún er ágætlega bökkuð upp með staðreyndum. Það sem menn eru að láta út úr sér er náttúrulega ótrúlegt og engin leið að draga þá hluti úr samhengi. Charlton Heston kúkar t.d. á sig þarna.
Eins og faðir eins fórnarlambsins í Columbine segir þá er enginn tilgangur í því að eiga hálfsjálfvirkan árásarriffil heima hjá sér. NRA er í rugli að berjast ekki fyrir því að mega eiga byssur heldur því að nánast engar reglur gildi um byssur og aðgengi sé óheft. Hér er maður vanur því að menn eigi byssur til veiða og víkingasveitin er kölluð út í hvert skipti sem einhver er að leggja pípulagnir heima hjá sér. Reglur eru fremur strangar og vandamál nánast engin. Ef einhver á byssu sem er ekki notuð til veiða eða skotfimi er hann hálf skrýtinn. Hvað er með að eiga M16 til heimilisverndar? Það er líka enginn á forsíðunni hjá NRA
nrahq.org með skammbyssur eða hríðskotabyssur.
Þessi
annar viðauki er líka grín:
"A well regulated militia, being necessary to the security of a free state, the right of the people to keep and bear arms, shall not be infringed."
Húff - rólegir. Bretarnir gætu komið aftur og þá er sko eins gott að eiga nóg af byssum!
Heildamyndin
Rótin að vandanum er náttúrulega enn frekar stjórnunin á landinu. Þeir gefa byssur og pening hingað og þangað, skjóta svo þá sem þáðu. Þeir þjálfa menn til vondra verka sem fremja svo hryðjuverk að launum í þeirra landi. Þeir skjóta, sprengja og drepa og steypa lýðræðislega kjörnum þjóðarleiðtogum. Á meðan er menntakerfið og heilbrigðiskerfið í steik.
Sem leiðir okkur aftur að spurningunni sem lagt var upp með: Af hverju eru Bandaríkjamenn svona hræddir við allt?
Vefur myndarinnar - tékkið á introinu - athyglisverð tölfræði
Guardian - umfjöllun
BBC - umfjöllun
Heimasíða kappans
NRA kúkar á MM og kallar hann and-amerískan
Gifting Tinna og Sissu
Myndirnar komnar á askinn
[Skoða albúm]
Páskasleikurinn
Allir að taka þátt í páskaleik isb.is. Ef þið eruð ekki skráðir í Netbankann (Mjöðmin er allavega skráð) er bara málið að skella sér í gegnum nýskráninguna og skrá sig.
Þá er hægt að taka þátt. Síðan bara skella sér í útibú og skrifa undir til að fá aðgang að bankaviðskiptum og því. Vinningarnir eru 100 páskaegg #5 og eitt megastórt handgert páska(strúts)egg.
Það breytir því samt ekki að þið eruð aular að hafa hangið í bænum um helgina.
7.4.03
Sindri Páll-inn þinn.
Eitthvað fyrir brandaralöggurnar.
Saddam's doctor called a meeting of all the Saddam look-alikes. "Men, I've got some good news and I've got some bad news! The good news is that Saddam is still alive. The bad news is that he lost an arm."
Darwin awards
Úff - djöfull eru sumir vangefnir
Ég er ekki viss um að ég hefði þorað á þessa Xgay leika, það virðast allt og allir hafa verið teknir og stikkaðir. En mér þykir ljóst að þetta hafi verið prýðis Xgayms fyrir þá sem eru á þeim sitjandanum.
AK(gay)Xtreme
Hetjur fara og tékka á aðstæðum - aumingjar sitja heima.
Renndum okkur á föstudagskveldið í glænýju, léttu massapúðri í -4°frosti. Algjör snilld. Blautt púður á laugardaginn, dalurinn, skálin ofl. tekið. Fór svo 2 ferðir upp og tók hrygginn norðanmegin - það var hellings snjór í honum og þaðan gat maður farið klassíska gilið þarna niður að hóteli. Þið eruð bara aumingjar.
Annars finnst mér alveg fáránlegt að þetta kom ekki í Helgarsportinu. Það voru 3000 manns á Big-jump keppninni sem var geðveik. Standardinn er orðinn helvíti hár, menn stikka allt, geðveikur stíll og allt mjög klín. Svo með fullri virðingu fyrir badmínton og blaki þá finnst mér þetta nú alveg prýðilegt sjónvarpsefni. Þarna voru líka 100* fleiri en á þeim mótum. Svo var eldur, vélsleðagaurar að norðan tóku pallinn og trikkuðu smá. Algjör snilld. Hefðuð átt að koma...
4.4.03
Svenni þarf engann snjó, hann átt við AK-GAY-EXTREME hommahátíðina.
Í hvaða snjó ætlarðu að renna þér? Spáð er 9°C á laugardaginn og 13°C á sunnudaginn.
(sjá nánar: www.akureyri.is)
AK-Exteme um helgina
Ég fer norður - en þið?
2.4.03
Gellan
Sá hana Beggu á kaffihúsi í gær - ofboðslega er hún nú sæt stelpan...
Amalgamkötturinn says:
svo spilaði ég á strengjalausa bassann hans Willy Nelson
Amalgamkötturinn says:
Síðan spilaði hann aðeins slædgítar á mig og tók svo svaka trommusóló, algjör bassatromma
Amalgamkötturinn says:
Ég get varla setið
Scweppes says:
gaaaaaaaaaaa - ég vil ekki heyra þetta
Gott
sírnir og willy nelson eru byrjaðir saman
Af því að síðan hafði verið höfuðlaus í óratíma. Höfuðleysið sem slíkt truflar mig ekki en þegar það er 300 punkta bil frá efri mörkum síðunnar að fyrsta(nýjasta) innleggi í umræðuna, blöskrar það formfræðiskyni mínu og beinlinis kallar á úrbót. Mér er sársaukalaust að hafa ekkert síðuhöfuð ef textinn er færður ofar. Svo notaði ég þetta síðuhöfuð til að leiða á skólasíðuna mína, sem ég hef ekki uppfært í marga mánuði af því að serverinn hér er belja sem leyfir ekki dreifingu MP3, mov og annarra tímavíddarskráa.
Vonandi er þessi útskýring þér næg Hommbeinn litli, ef hún er það ekki (sem kæmi mér ekki á óvart miðað við gáfnafar og líkamsburði þína) skaltu bara éta hundaskít.
Ný fluguknýtingarsíða kominn, allir voða glaðir.
Svo tók ég líka út þennan ógeðslega banner, Sírnir hefur gert margt ljótt um ævina en þetta var eitt það versta sem ég hef séð. Afhverju í andskotanum settiru þennan banner Grulsa?
1.4.03
Þú þarft ekki að skammast þín. Þú ert ekki af sömu tegund.
Myndir af opnuninni hjá deildinni minni
Skoða eldri færslur >>