30.5.03

Jeee - Snæfellsjökull á morgun. Sjáumst síðar...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:12 30.5.03 ::

Enn af göngum jarðar
Mun fleiri myndu heimsækja Evrópu ef þangað væru jarðgöng frá Íslandi. Og öfugt. Ég veit að ég myndi nýta mér þau. Ekki er þar með sagt að það væri æskileg framkvæmd.
::Hívatha litli skeit klukkan 01:07 ::

Sportið heldur áfram
Nú er ég búinn að sportast í meira en viku samfleitt á hverjum degi. Í dag skruppum við Nonni (hafnarfjarðarsveitin) upp á Langjökul á sleða. Tókum af í Þjófakrókum ofan við Húsafell, keyrðum síðan upp á Geitlandsjökul. Reyndar eftir að hafa keyrt bílinn upp á risa stein þannig að hann festist með hjólin á lofti. En við fengum lánaðan drullutjakk og náðum grjótinu undan. Me and cars...

Nema hvað - svo brunuðum við í norður um Hábungu inn í Þursaborgir, síðan inn í Fjallkirkju, niður í Þjófadal (rétt hjá Hveravöllum) og svo suður allan jökul og inn að Slunkaríki, sem er rétt norðan við Skjaldbreið, og loks aftur vestur yfir niður í Þjófakróka þar sem bíllinn beið. Þetta tók okkur ca. 4 tíma með nestisstoppum, myndatökum, vatnasulli ofl. Við krúsuðum á 100 km upp í 125 eiginlega allan tímann. Frábært færi efst á jöklinum og nýr snjór. Rúmlega 150 km. rúntur og þvílík snilld, geggjað veður og alles.

Ég ætla bókað aftur fljótlega.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:43 ::

28.5.03

Komið vídjó líka
::Hívatha litli skeit klukkan 15:37 28.5.03 ::

Weiký weyký
Fór á weikboard með saumó í gær. Hittumst uppi við Geldinganes og sjósettum bátinn hans Bígó. Gamall björgunarsveitarbátur, harðbotna gúmmíbátur með 70 ha. mótor og svíngengur. Síðan var haldið út á sundin blá og bretti strappað á fætur, síðan hoppað í sjó. Það er helvíti kalt ennþá.

Nema hvað - það er búið að smíða stöng á bátinn og línan er fest efst í hana þannig að báturinn togar mann meira upp núna sem er snilld, líka auðveldara að stökkva. Svo erum við líka komnir með miklu betra bretti. Það var því ekkert mál að standa upp og svo krúsaði maður bara þarna. Þetta er ekkert smá gaman...

Síðan var haldið út í einhverja eyju þarna og grillaðar pulsur. Eftir það sigldum við út í Reykjavíkurhöfn og ætluðum að tékka á kaffi í kaffivagninum. Nota bene - allir í björgunarvestum og blautbúningum - flottur klæðnaður. Lokað þar. Þá sigldum við út í Viðey í kaffi. Síðan aðeins meira weiký til að sína einhverjum sjóskíðanördum að hliðarrennsli er algjörlega málið.

Kveldinu lokað með bjór á veröndinni hjá Bígó. Tær snilld.

  • Myndir komnar á Askinn

    Annars er maður búinn að vera duglegur síðustu daga, í gær fór ég í Valshamar og klifraði Eilífinn, flöguna en svo varð skítkalt, á sunnudaginn var malarstígadagur á hjólinu, björgunarleikar á laugardaginn (1st place), græja alsírgaurana á föstudaginn, klifur á fimmtudag að mig minnir.

    Sólmyrkvi
    Hverjir ætla að koma með á Esjuna?

    Labels: ,

    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:10 ::

    Kerrifflakeppni KÍB
    Hin árlega kerrifflakeppni trúðarins KÍB fer fram á hrotæfingarsvæðinu í Köfnun laugardaginn 17 maí kl. 10.00 (f/ hádegi).

    Keppt verður með kerrifflum án jónauka á 100 metra færi standandi 10 hrot og liggjandi á 300 metra færi 10 hrot.

    Allir sem eiga kerriffil eða geta fengið afnot af slíkum er velkomið að taka þátt. Skráning hjá Jóa skrýtna. Þátttökugjald kr. 1500 Við hvetjum áhugasama að mæta og fylgjast með spennandi keppni. Skyldi Eiríkur tannlæknir vinna enn eitt árið?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:01 ::

    Herriflakeppni HÍB
    ::KÍB skeit klukkan 08:41 ::

    27.5.03

    Loksins létu Kolli og Addi
    verða af því að gifta sig - congrats!

    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:21 27.5.03 ::

    afsakið, ég er kominn með smá hreim, hér er þetta aftur á kjarngóðri íslensku:

    Til Hommingju.
    Órtúlega hlýlegt að frétta svonalagað á Vonlausa, sýnir og sannar hvað hann er sterkur miðill. Eins og ég gleðst fyrir þína hönd að hafa tekið þetta skref, skaltu ekki láta þér detta það í hug að reyna að laumusteggjast, Eiginmaðurinn þinn. En ég skal drekka ykkur til hamingju, oft.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 09:55 ::

    Til Hommingju.
    îtr?lega hlàlegt aÝ fr?tta svonalagaÝ ? Vonlausa, sànir og sannar hvaÝ hann er sterkur miÝill. Eins og ?g gleÝst fyrir ß?na h?nd aÝ hafa tekiÝ ßetta skref, skaltu ekki l?ta ß?r detta ßaÝ ? hug aÝ reyna aÝ laumusteggjast, EiginmaÝurinn ßinn. En ?g skal drekka ykkur til hamingju, oft.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 08:45 ::

    26.5.03

    Til hamingju!

    (faggi sem verður laminn með járnstöngum og fær enga pakka)
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:25 26.5.03 ::

    Til hamingju!

    (faggi sem verður laminn með járnstöngum)
    ::KÍB skeit klukkan 16:17 ::

    Til hamingju!


    (faggi)

    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:11 ::

    Hér með kunnigjörist það og skjalfesti hér með að ég og María giftum okkur síðasta föstudag. Þetta var ein mesta leyndó gifting sem sögur fara af því enginn fékk að vita. Það eina sem ég er fúll yfir að þið gleymduð að halda steggjaveislu. En allavega þá var þetta mjög flott, vorum bara tvö ein hjá sýslumanni og fórum svo á Holtið eftir að við vorum búin að hringja í fjölskyldufólk, þið þurftuð ekkert að vita þetta strax. En nú er ég sem sagt orðinn giftur maður og verð örugglega mikill þroski og leiðindapúki við þetta.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:55 ::

    Þetta er leitarsveit, ekki björgunarhópur. Það er skilgreiningaratriði í rústabjörgun. Þau reyna að finna fólk á lífi og svo koma aðrir og bjarga þeim. Eru með sérhæfðan búnað í það t.d. hljóðleitartæki og cameru sem er hægt að senda í gegnum veggi og þessháttar.

    Núna eru menn ekki lengur á því að fleiri finnist á lífi þannig að ákveðið var að senda þau heim. Yfirvöld í Alsír stjórna því. Þau báðu náttúrulega frekar seint um aðstoð.

    Þegar þau fóru út bjuggust þau alveg eins við því að vera þarna í 3 vikur eins og 3 daga, málið er að það er engin leið að vita hvernig þetta spilast. Fólk getur lifað þvílíkt lengi í rústum við ákveðnar aðstæður.

    En svo er þetta náttúrulega bara fín æfing fyrir stóra skjálftann hérna.

    Umhugsunarefni er að allur búnaður alþjóðasveitarinnar er keyptur fyrir fokking flugelda og þau bera vinnutap og ýmiskonar kostnað persónulega. Samt er RÍKIÐ að bjóða fram aðstoð þeirra.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:31 ::

    Til hamingju!


    (faggi)

    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:15 ::

    Er ekki svolítið steikt að senda þessa björgunarsveit til Alsírs og senda hana síðan aftur heim 2 dögum seinna?
    ::KÍB skeit klukkan 14:44 ::

    Björgunarleikar
    Mar er víst Íslandsmeistari í björgun núna eða eitthvað þannig - liðið mitt, Ársæll-1, rústaði björgunarleikunum á laugardaginn. Stuð.

  • Skoðist hér og hér

    PS - ekkert diss takk, bara samgleðjast...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:56 ::

    25.5.03

    Stuð
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:18 25.5.03 ::

    23.5.03

    Er núna út í kópavogi að hjálpa alþjóðasveit björgunarmanna úr húsi, þeim er stefnt til alsír. Handagangur í öskjunni...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:47 23.5.03 ::

    Veiðfréttir

    Síðastliðin miðvikudag hafði ég 3 klukkutíma til umráða sem ég mátti eyða að vild í sjálfan mig eftir vinnu. Við Kollum ákváðum því í sameiningu að þvo flugur í elliðavatni enda var veðurblíðan búin að gera mann viðþolslausan í vinnunni. Við völdum okkur stað í Helluvatni þar sem tvæ litlar bryggjur ganga út í vatni, strunsuðum út í vatnið og þöndum köstin af miklum móð. Það leið ekki á löngu áður en fyrsti fiskur sumarsins gleypti fluguna mína, litla brúna púpu. Þetta reyndist vera pattaraleg bleikja, ca. 1.5 pund. Því miður var þetta eini fiskurinn sem kom á land hjá okkur það kvöldið, utan þess sem kolli fann brie myglufisk undir bryggjnunni sem ég háfaði upp. Þetta er e-r sá ógeðslegasti ódráttur sem ég hef séð, urriði útbólginn af sýkingu og þakinn viðbjóðslegum brúnum myglusveppum. Kolli lét það nú ekki hafa nein áhrif á sig og sleikti daunillt slímið af fisknum þar sem við stóðum á bryggjunni og kjammsaði svo á myglukögglunum sem festu milli tannanna. Frekar ógeðslegt en hann sá víst fiskinn fyrst og mátti því eiga hann. Restinni henti hann svo í ruslið.
    Það var annars heilmikið líf í vatninu, fiskar að vaka og skvetta útum allt vatn og jafnframt margir kallar að veiða. Ég mæli eindregið með því að við gerum okkur aðra ferð þangað við tækifæri.

    Eftir þessa ferð er heildarafli minn í sumar kominn upp í 1 fisk í 8 ferðum sem ég verð að viðurkenna að er talsvert undir væntingum mínum þar sem ég hefi í allan vetur ímyndað mér að ég eigi eftir að verða stórkostlegur stórfiskabani í sumar, sem veiði alltaf stóra og marga fiska í hvert sinn sem ég bleyti færi. Ég neyðist því að afsalam mér aflakóngstitlinum tímabundið. En það stendur vonandi til bóta, sérstaklega ef menn geta rifið sig uppúr júróvisjón þynnkunni um helgina og drifið sig af stað í veiði. Ég ákalla hér með alla alvöru veiðimenn í VV til að taka sér stöng í hönd (aðra en drjólann á sér) og drepa eins marga fiska og hugsast getur á sunnudaginn!!

    Hvert eigum við svo að fara?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:35 ::

    Snilldar Honda auglýsing!

    Please remember as you watch this Honda commercial that absolutely NO computers were used to generate the movements shown. Also, no photographic tricks were used either. These parts acted just as you see in the film (even the tires rolling uphill).
    Of course it took 606 takes as it was shot in one fell swoop without stops.
    ::KÍB skeit klukkan 09:55 ::

    22.5.03

    Búmm - þú ert dauður
  • Sprengjuparanojan hefur innreið sína á Keflavíkurflugvelli. Öryggisstarfsmenn Keflavíkurflugvallar eru búnir að vera að pæla í sprenguleit og fleira. Landhelgisgæslan kom og sprengdi gínur og fleira fyrir þá. Myndin hér til hliðar er af bakpoka-bensínsprengju. Tékkiði á myndunum.

  • Magnað myndagallerí

  • Fréttin
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:29 22.5.03 ::

    Úbbs
    Norðmenn komnir á hit-listann
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:30 ::

    Júróvisjón drykkjuleikur Hívaþa litla
    Drekktu helling af brennivíni og reyndu að drepast áður en keppnin byrjar.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:26 ::

    21.5.03

    Sólmyrkvinn
    Sindri benti á skemmtilegan link um sólmyrkvann. Það er ekki spurning um að rölta upp á einhvern hól og kíkja á þetta. Hinsvegar verður maður að redda sér gleraugu eða grípa til einhverra ráðstafana til að rústa ekki augunum.



    Þegar ég var úti í Frakklandi fyrir nokkrum árum var sólmyrkvi þar. Frakkarnir dreifðu svona gleraugum frítt út um allt. Þetta kostar sjálfsagt krónu í framleiðslu og er mun ódýrara en að þurfa að fá fullt af blindu fólki inn í heilbrigðiskerfið. Núna eru einhverjir gúbbarselja þetta. Mér finnst að það eigi að gefa þau, hver nennir að kaupa þetta?

    CV Alþingismanna
    Rakst á skemmtilega síðu inni á Alþingi.is. Þar er listi yfir cv alþingismanna, núverandi og fyrrverandi. Mynduð þið t.d. ráða þessa persónu til að reka 100 manna fyrirtæki? En stærra?

    Stúdentspróf MT 1974. BA-próf í sagnfræði og bókmenntum HÍ 1979. Gestanemandi við Hafnarháskóla 1979?1981. Cand. mag.-nám í sagnfræði við HÍ 1981?1983. Vann ýmis almenn störf með námi 1974?1981. Starfsmaður dönsku póstþjónustunnar 1979?1981. Ritstjóri tímaritsins Veru 1988?1990. Ýmis ritstörf og blaðamennska 1990?1991
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:49 21.5.03 ::

    Greyið kallinn, fékk ekki að borða.

    Skil afhverju þú ert grautfúlt en við hverju á maður að búast á stað sem er með tólf ára stelpur til að afgreiða í sal. Þeim finnst náttúrulega bara frábært að fá ís og ekkert nema ís. Ég skil reyndar ekki afhverju þú ert að fara á Pizza Hut ég hef ekki getað borðað þar eftir að ég píndi mig á einn slíkan stuttu eftir að þú hafðir drepið mig.
    Pizza Hut. Stendur Hut fyrir kofi sem hefur einhverju merkingu en nú verður manni litið á logóið og þar er enginn kofi heldur hattur (eða á þetta vera þak). Pizza hattur. Komum og borðum á Pítsa hattinum.
    ::H.H. skeit klukkan 11:41 ::

    20.5.03

    Arfaslök þjónusta á Pizza Hut hótel Esju (Nordica)
    Áðan brá ég mér úr vinnunni til að njóta kveldmáltíðar með minni heittelskuðu, systur hennar og systurdóttur. Pöntuðum og allt í góðu með það. Kókið var ekki einu sinni flatt til tilbreytingar og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að gæða mér á kjúklingapizzu með tvöfuldum skammti af kjúlla.

    Þegar pizzurnar koma á borðið okkar sé ég að eitthvað hefur ekki komist í gegn hjá þeim. "Það vantar kjúklinginn á pizzuna mína?!" Stúlka: "Nei, nei." Ég hugsaði með mér að kjúklingurinn gæti dulist undir yfirborði pizzunnar og gramsaði aðeins með gafflinum en það sást berlega að enginn kjúlli fylgdi hvað þá tvöfaldur. Ekkert mál, allir gera mistök.

    Gekk rosalega illa að ná athygli stelpnanna því að hluti að þeim var komin úr gallanum að éta ís og hinn hlutinn var eitthvað að vesenast og ég náði ekki í þær þrátt fyrir tilraunir. Ekkert mál enn. Geðveik læti í eldhúsinu og einhverjum gaurum sem hlaupa þaðan stanslaust út í gegnum hliðardyr og reykja. Reykurinn berst inn í salinn. Fýla. Mér er sama.

    Loks næ ég tali af stúlkunni, henni Hildi Sif (tek fram að nöfnum saklausra var breytt í greininni). Hún virðist ekki alveg trúa mér og fer að athuga málið. Nú eru stelpurnar búnar með rúmlega helminginn af sínum mat og ég ókyrrist. Ekkert mál samt. Eftir svolítinn tíma sé ég að Hildur Sif er bara farin að afgreiða einhvern hóp. Það finnst mér rosalega fúlt. Ég næ tali af stelpu eftir dúk og disk sem tékkar á þessu á einni mínútu og var mjög almennileg. Pizzan var auðvitað ekki eins og hún átti að vera.

    Nú eru stelpurnar búnar að éta og mínir valkostir skv. afgreiðslustúlkunni (Hildur Sif lét sig hverfa) eru:

    1. Ókeypis köld pizza sem ég pantaði ekki og bíða eftir hinni pizzunni sem ég þarf að borga. Síðan þurfa systur og litla stelpan að bíða og horfa á mig éta. Ekki hrifinn.

    2. Ókeypis ís. Mig langar ekki í ís.



    Ég þakkaði því fyrir mig og borgaði pizzu kærustunnar. Þær felldu náðasamlegast niður pizzuna sem ég át ekki en annað fengum við ekki. Mér hefði nú þótt allt í lagi að fá almennilega afsökunarbeiðni fyrir að eyðileggja kvöldmatinn, pizzu konunnar fría eða jafnvel gjafabréf. Þarna er sjálfsagt starfsvenjum fyrirtækisins um að kenna. "Bjóddu þeim ís, ekkert annað en ís." Með gjafabréfi hefðu að minnsta kosti verið smá líkur til þess að ég hefði farið þarna aftur. Nú er ekki möguleiki að ég snæði á Pizza Hut aftur. Ég er fúll með tóman maga.

    Fann síðu með veitingahúsagagnrýni sem fjallar meðal annars um Pizza Hut. Einn þeirra, tekur aðeins sterkari pól í hæðina. Hr.Eyore hjá tímaritinu Restaurants & Gourmet, hafði þetta að segja í tímaritinu 8. september '01:

    Pros: Some evidence suggests it is made from actual food.
    Cons: Such evidence comes from sources with the penchant for veracity of The Simpson's Dr. Nick

    [Einnig]...Pizza Hut competes in an endeavor that, to my mind, is every bit as important as running, jumping and thing-throwing: They deliver pizza. And if the competition was to see who could get the most things wrong in the various pizza making and delivering events, Pizza Hut would win the gold in unprecedented fashion. They are the Daley Thompson of suck.


    PS - Þjónusta PH á vefnum
    Þegar ég settist niður, svangur, og ætlaði að koma ábendingum mínum á framfæri komst ég að því að það er ekkert grín. Merkilegt þykir mér að á heimasíðu þeirra Pizza Hut manna er ekkert póstfang og engar contact upplýsingar, aðeins pöntunarsími. Engar upplýsingar um fyrirtækið að baki. Það er nánast eins og þeir vilji ekki að það komi fram.

    Ég þurfti að fletta þeim upp á isnic.is til að hafa upp á meili. Fróðlegt verður hvort að Jón Garðar svarar eða fer að afgreiða næsta kúnna og spjalla við vinina eins og Hildur Sif.

    Nema hvað, Pizza Hut er rekið af Íslensk pizza ehf.

    • Heimilisfang: Suðurlandsbraut 48 Box 8852
    • Borg/Sveitarfélag: Reykjavík
    • Póstnúmer: IS-128
    • Sími: +354 533 2010

    Netfang greiðanda er jon.gardar@pizzahut.is. Ef þið hafið lent í slæmri þjónustu og ekki fundið neinn til að koma ábendingum á framfæri við er þetta tækifærið ;) Ég ætla að senda honum póst og benda á þennan pistil en ég hugsa að hann hafi ekki samband. Býður mér í mesta lagi ís...

    Póstfang vonlausa er vonlausa at visir.is.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 20:53 20.5.03 ::

    Evróvisjón
    Úff - djöfuls skandall að Botnleðja vann ekki heldur beyglan frá Húsavík. Ég lotta á 7. sætið. Reyndar allt í læ meðan við vinnum ekki.


    [Örugglega fín stelpa og góð fyrirmynd fyrir börnin
    en tónlistin hennar sökkar og mér bara finnst hún ekki sæt]


    Ég skil reyndar ekki hvað við erum að taka þátt í þessu rugli. Keppni í að koma með besta lélega lagið. Slagarakeppni. Skítapopp eitthvað. Svo ef við vinnum þurfum við að halda keppnina, byggja upp rándýra aðstöðu og henda milljarði út um gluggann. Þetta er eins og að spila í happdrætti þar sem fyrsti vinningurinn er að þú tapar aleigunni.

    Bull...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:51 ::

    Magnað
    Seint hélt ég að ég yrði sammála leiðindapúkanum honum Ögmundi...

  • Sminkur
  • ::Hívatha litli skeit klukkan 13:37 ::

    19.5.03

    Hagfræði SÁÁ

    1) Verð á fíkniefni hækkar
    Ályktun SÁÁ: Gríðarleg eftirspurn eftir fíkniefni - Gríðarlegt vandamál til staðar - Mjög slæmar fréttir

    2) Verð á fíkniefni lækkar
    Ályktun SÁÁ: Gríðarleg aukning framboðs á fíkniefni - Gríðarlegt vandamál til staðar - Mjög slæmar fréttir
    ::Hívatha litli skeit klukkan 19:33 19.5.03 ::

    Mér finnst að þú eigir að gefa mér svona í brúðkaupsgjöf (kostar ekki nema $1500)! Þú getur síðan kannski fengið hana lánaða.
    ::KÍB skeit klukkan 16:46 ::

    Geðveik myndavél
    Þetta er bara biluð græja. Mér finnst að Sindri eigi að gefa mér svona!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:42 ::

    Góðar myndir, ljót á.

    Ef ég væri Salómon myndi ég kveða upp þann dóm að team Göltur hefði veitt fleiri fiska, 3, en team Þroskaheftir kretíndvergar hefðu veitt stærsta fiskinn. fiskar sem ekki ná hálfu pundi eru afrakstur barnamorða og á að telja sem refsistig.

    en sem betur fer er ég ekki salómon og því síður kveð ég upp dóma þannig að endilega haldið áfram að rífast
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:14 ::

    Pics
    Fínar myndir - mér finnst samt vanta sárlega meira af skýjamyndum og kertamyndum.

    Smelltu til að sjá stærri útgáfu


    Af því að spurt var um myndina hér að ofan þá er þetta trúðurinn KÍB að reyna að fanga Kretín 2 á mynd meðan hann gerir stykkin sín. Áhugamál manna eru æði misjöfn. Og svo langar mig að bæta því við að það er ekki fyndið hvað við veiddum miklu meira en Team Kretín.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:20 ::

    Jæja, þá er komið að því að Skabbi dæmi um það hvort "Team Göltur" eða "Team Döðlur" veiddu meira:

    ::KÍB skeit klukkan 14:16 ::

    Myndirnar frá Baugstaðaós eru loksins komnar á askinn!

    ::KÍB skeit klukkan 14:07 ::

    artsí-fartsí netklám af hæsta gæðaflokki. Hvað er langt þangað til við sjáum svona síðu frá sírni?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:19 ::

    Athugasemd við bankaránsgrein
    Mér bárust þær athugasemdir frá bíó að hugsanlega gæti verið um eftirfarandi að ræða

    1) Gaur skuldar pening fyrir dópi
    2) Fíkniefnasali ætlar að drepa hann
    3) Hann rænir pening
    4) Lifir

    Honum væri þá skítsama hvort hann næst eða ekki, hugsanlega bara betra. Þá er hann lokaður inni og hætti að dópa. Neyðarkall og það allt. Það myndi náttúrulega útskýra af hverju hann huldi ekki andlit sitt.

    Eða að hann vildi láta loka sig inni svo hann þyrfti ekki að sjá innvíðu buxurnar hans Krumma aftur...?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:34 ::

    17.5.03

    Hmm - komandi frá manninum sem á innvíðar hommabuxur...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:16 17.5.03 ::

    Fólk sem gengur í baggy fötum eru annaðhvort hálfvitar eða fitubollur sem reyna að klæða af sér bumbuna.............sem þýðir að Svenni hefur tvær ástæður til að vera í baggy fötum.

    Ég vil einnig geta þess að lögfræðideildin á Grænuborg er með þeim virtari í heimi þannig að það er ekkert skrítið né niðrandi að lögfræðideildin á Bifháraröst sé ekki í sama klassa.
    ::Mósagrís skeit klukkan 11:25 ::

    16.5.03

    Mér finnst afar gleðilegt að þú tekur þessu svona illa því að þá hlýtur að vera sannleikskorn í því sem ég sagði...

    ...og ég sagðist ekki kunna neitt í lögfræði. Bara að þú værir tjokkó og kynnir ekkert í lögfræði. *hýenuhlátur*
    ::Hívatha litli skeit klukkan 23:39 16.5.03 ::

    Betri "léleg" lögfræði en engin lögfræði..........allavega ef mann langar til að þykjast vera lagagöltur.
    Það er því miður ekki nóg að falla nokkrum sinnum í einhverju fagi til að vera sérfróður, ef svo væri þá gæti Kolli eins þóst vera reiprennandi í þýsku.
    ::Mósagrís skeit klukkan 21:01 ::

    Hohohoho - ef þú ert að sækjast eftir því að gagnálykta frá þessari fullyrðingu að þú sért ekki heimskur af því að þú ert ekki í baggy fötum skjátlast þér hrapalega. En það er náttúrulega ekki von þegar menn eru að læra jafn slaka lögfræði og þú, lögfræðideildin á Grænuborg nýtur meiri virðingar en sú á Bifháraröst.

    Múhahahaha
    ::Hívatha litli skeit klukkan 18:10 ::

    Ég verð að vera sammála geltinum, allir sem eru í baggy fötum eru heimskir.
    ::Mósagrís skeit klukkan 18:06 ::

    Bankaræningjar á Íslandi eru fífl
    OK - það var kúl plottið hjá gaurunum sem mættu með sendiferðabíl og græjur og stálu hraðbanka. Ef þeir hefðu ekki notað sitt eigið debetkort til að opna hurðina og að sjálfsögðu er það loggað.


    [Smile - you are on TV ;)]


    En hvað er þessi gaur að pæla? Hefur hann aldrei horft á vídeó? Nú er ekkert verið að fela myndavélarnar í útibúunum. Ég vona að hann sé að minnsta kosti FM-hnakki og tjokkó og sé í baggy fötum sem dulbúningi. En ég efast einhvern veginn um það...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:36 ::

    Stæner er búinn að finna rétta bjórinn fyrir vonlausa!


    [Arrogant Bastard Ale]


    Spurning um að panta...?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:09 ::

    Meira af Kastljósi
    Kíkti aftur í gær - núna var ritstjóri Séð og heyrt í teinóttum jakkafötum að ræða um hvað það sé nú gott að Óli Grís sé búinn að giftast því það stangast á við prótókol að vera með kærustuna í opinberum móttökum. Og þetta er maður sem gefur út klósettpappír. Djís...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:54 ::

    Nú eru menn orðnir langþreyttir á að bíða eftir að Kíb og Mjöðmin drullust til að setja myndirnar inn. Drífiði í þessu spenar!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:20 ::

    15.5.03

    Nostalgía

    [Baddi sendi mér þessa - tekin í Veiðivötnum um Páska, örugglega
    ca '95. Djöfull var Econoline-inn magnaður.]
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:22 15.5.03 ::

    Þú ert fokking jafn ömurlegur og þessi Snorri Már. Það gerðist sem sagt ekki neitt hjá þér heldur í gær en þú þurftir endilega að segja okkur hinum aumingjunum það. Það besta er að þú ræður ekki einu sinni yfir stöðvunum heima hjá þér sem algjörlega toppar sögu þína af þegar sveppi horfði á sjónvarp.
    ::H.H. skeit klukkan 13:47 ::

    Kastljós
    Sem ég var að glápa á Kastljós í gær var eitthvað lið, Guðmundur Oddur prófessor í Lhí, Friðrik Eysteinsson (klikkhaus) formaður auglýsenda og einhver femínistabeygla, Katrín Anna Guðmundsdóttir, að kjafta um klám í auglýsingabransanum. Friðrik benti réttilega á að það væri ekki hagur auglýsenda að vera með klám í auglýsingum. Ef auglýsandi gengur fram af fólki bregst markaðurinn einfaldlega við og kaupir ekki vöruna. Viðkomandi fer á hausinn og þá er þetta búið.

    Femínistabeyglan hélt því fram að fyrirtæki væru bölvaðir klámhundar og suðaði einhver ósköp. "Svo náttúrulega er þetta barnaklám af því að stúlkan er greinilega í skólastelpupilsi." Vá hvað fólk er geðveikt. Eru stelpur börn ef þær fara í pils? Hefði einhver sagt þetta ef við hefðum snúið myndinni við og sett strákinn í stuttbuxum á hnén? Hún var náttúrulega í XL stuttermabol og pokabuxum, ekkert barnaklám þar. Nennti ekki að hlusta á hana.

    Smelltu til að skoða stærri útgáfu
    [Frekar augljóst feik - myndirnar hér]


    Grínið er að eina dæmið sem var sýnt, amk. eina sem ég sá, var feik Puma auglýsingin. Ótrúlega óvönduð vinnubrögð að spinna heila Kastljósumræðu um brandara af netinu. Ég leyfi mér líka að efast um að þetta fólk séu merkilegir auglýsingapælarar fyrst þau voru ekki löngu búin að sjá það sem allir með nettengingu hafa séð...

    Viðbrögð Peter Kim, sem stýrir gagnvirkri markaðssetningu hjá Puma í Boston, á ofangreindri síðu voru:

    It has been brought to our attention that several unauthorized, sexually suggestive advertisements portraying the PUMA brand have been released over the Internet. We are appalled that images like these would be created and distributed under the PUMA name. As a brand, we seek to take a unique perspective toward our advertising in an effort to challenge the boundaries of our industry; however we would never consider using these tactics. We are in the process of researching the circumstances and reserve any legal steps available.


    Skipti yfir á St. 2 og þar var aleinn Snorri Már sem mátti ekki vera inni í sal í Borgarleikhúsinu. Mátti ekki vera með í afmæli forsetans. Blaðraði, skaut svo inn íþrottafréttum og var svo með alveg innihaldslaust viðtal við Tinnu. "Er pabbi þinn góður kall?" "Já." "Við látum þessu þá lokið héðan úr Borgarleikhúsinu þó að við höfum ekki náð í forsetann eða sýnt eða sagt neitt merkilegt þennan hálftíma. Góða nótt."
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:31 ::

    Eurovision, eða Grand Prix eins og þýðverskir kalla þetta.
    Er reyndar ekki búinn að sjá þetta myndband en ef rétt er þá eru þetta lævísir menn. Bróðir minn sagði mér um daginn af hverju það sé ekki séns að þýskararnir vinni Grand Prix nokkurn tímann. Þannig standa mál hjá þeim að popparar eins og David úr Baywatch eru með stéttarfélag og þetta stéttarfélag er víst drullusterkt. Það sem meira er að þessir menn þykjast eiga Grand Prix og hleypa helst engum öðrum að en þýskum eigthís poppurum. Hvað um það. Er farinn að hlakka til Eurovision því að þá get ég sagt stoltur daginn eftir að ég hafi EKKI horft á þetta og ekki síst talað fjálglega um hvað þetta og hitt lagið hafið verið lélegt og listamennirnir óframbærilegir. Sem fyrr þá held ég með Bretum.
    ::H.H. skeit klukkan 12:59 ::

    Eurovision, eða Slagerfestivalen eins og svíarnir kalla þetta.
    Ég fór á netið áðan og sótti mér myndbandið við íslenska lagið, því það var búið að segja mér að Daniel Atli væri í því. Viti menn hann er þar á 6. sekúndu 00:00:06.
    Þá tók ég líka eftir því að bakvið Birgittu er risastórt ljósaskilti sem gefur okkur berlega til kynna að þetta sé nú hún sem er stjarnan hér, en ekki Daniel. En skiltið er einnig notað til dåleiðslu. A skiltinu sem stendur BIRGITTA blikka annar hver stafur á víxl. þannig að á einum stað í myndbandinu stendur: I G I T A og svo á móti : B R I T. Hér er greinilega verið að heilaþvo okkur og tengja við BRIT-tney Spjótsdóttir og jafnframt höfðað til ættjarðarástar Breta. Hér eru slyngir menn að störfum.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 10:47 ::

    14.5.03

    Launin hjá Dabba og félögum
    Mér finnst gott að það sé búið að hækka launin hjá æðstu ráðamönnum þjóðarinnar. Hærri laun þýða að hæfara fólk hefur tækifæri á því að gegna þessum störfum. Við getum ekki ætlast til þess að menn og konur sem geta fengið 1,5-2 mills hjá fyrirtækjum í einkageiranum séu í einhverri sjálfboðavinnu við að stjórna landinu fyrir okkur. Enda hefur þetta fólk ekki litið við þessum djobbum. Vonum að þetta leiði til þess að meiri massar fari út í pólitíkina.

    Með dómara er þetta náttúrulega nauðsynlegt svo þeir hafi það gott og ekki sé hægt að hafa áhrif á þá með því að bjóða þeim mútur. Á líka við um þingmenn. Tryggir sjálfstæði dóms- og löggjafarvalds.

    Hver er starfsmannastjóri á Alþingi?
    Þegar fólk er ráðið til fyrirtækja er það tekið í nokkur viðtöl, skoðuð ferilsskrá og pælt í menntun og fyrri djobbum. Af hverju skoðum við ekki frambjóðendur í þingkosningum með sama hætti? Mikið af þeim sem voru að bjóða fram eru algjörir sokkar og hafa aldrei gert neitt af viti. Nema kannski að vera dæmdir skattsvikarar - nefni engin nöfn en fyrstu stafirnir þeirra eru HH og HBA. Þeir myndu aldrei fá stjórnunarstarf í fyrirtæki en mönnum þykir í lagi að láta þá á þing? Ég vil fá CV frá öllum frambjóðendum fyrir næstu kosningar.

    Ég vil borga bankastjóraafslátt með sköttunum mínum!
    Af hverju erum við að niðurgreiða launin hjá sjómönnum með sjómannaafslætti? Af hverju ekki flugmannaafsláttur fyrir Guðna, lögregluafsláttur fyrir Isnoj og bankastjóraafsláttur fyrir grey bankastjórana? Svo eru þetta mikið til einhverjir gaurar sem skreppa út á sjó yfir daginn og við þurfum að borga skattana þeirra. Fæ ég skattaafslátt ef ég mixa skrifstofu í einhverju skipi og vinn á ytri höfninni?

    Starwars húsið
    Talandi um skrifstofur. Alfreð Þorsteinsson er með risastóra skrifstofu í nýja Orkuveituhúsinu. Hann er með panorama útsýni. Þegar hann vill draga fyrir panorama útsýnið sitt dregur hann ekki gardínu fyrir gluggann. Hann tosar ekki einu sinni í spotta. Hann ýtir á takka svo að rafhleðslan í gasinu milli glerjanna breytist og rúðurnar skyggjast - kostaði sex mills skilst mér. Sama væri mér ef hann væri í einkageiranum. En hann er það ekki.

    Nema hvað - hann var spurður hvort ekki væri nær að lækka orkuverð en að byggja svona fáránlega dýrt og íburðarmikið hús. Svarið var (og athugið að maðurinn sagði þetta í alvörunni í viðtali): "Nei, það væri mjög ósniðugt. Íslendingar fara nefnilega svo illa með orkuna."

    Magnað...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:52 14.5.03 ::

    Reykjadalurinn heimsóttur á ný
    Skellti mér í Reykjadalinn í gær með Rúnari, Baldri, Valla og Óla flubba. Hjóluðum frá Hellisheiði og vorum svo forsjálir í þetta skiptið að skilja bíl eftir í Hveragerði. Höfðum ekkert gimp með til að hjóla upp Kambana og ná í bílinn fyrir okkur eins og síðast.

    Síðan hjóluðum við inn á heiði frá bílnum og helvíti varð ég fúll þegar ég sá mistökin sem við Addi gerðum um daginn í þokunni. Við beygðum bara beint í norður í áttina að Þingvallavatni - ótrúlegt hvað maður getur orðið ruglaður í svona þoku.


    Ein almagnaðasta hjólaleið landsins


    Þá kemur maður í Reykjadalinn sjálfan. Þessi leið er alveg fáránlega góð. Núna eru reyndar einhverjir helvítis hestar sem skemma stíginn þegar líður á sumarið en hann var fínn í gær. Bara blastað alla leið niður. Nenntum ekki í heita lækinn og kláruðum leiðina. Undarleg sjón blasti við þegar við komum í neðsta hlutann af leiðinni, stór hrútur sem var búinn að festa hornið í vegastiku sem merkir gönguleiðina. Við frelsuðum rolluna sem var frelsinu fegin en ekkert sérlega þakklát að okkar mati.

    Loks var endað á Pizza 67 (Pizza 67 er ótrúlega mikil úti á landi stemning) í gráðostapizzu með rifsberjahlaupi og bjór. Snilldarferð.

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:43 ::

    Hvernig fóruð þið annars að því að missa samtals 11 flugur?
    ::KÍB skeit klukkan 09:12 ::

    13.5.03

    Trúðurinn KÍB svíkur Vonlausa
    Sekkurinn er 25 ára í dag og er ekki búinn að auglýsa prattí - hverslags auðvirðilegi svikari er þetta?


    Trúðurinn KíB leysir gjarnan vind
    við hátíðleg tækifæri
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:53 13.5.03 ::

    Myndirnar munu tala sínu máli og eftir þeim verður dæmt!

    Hvernig hatt ætlar þú að borða Kolli?
    ::KÍB skeit klukkan 13:37 ::

    Bara til að svekkja Team Gölt þá veiddu þeir minna. Við Krumpi slepptum 4 fiskum sem gerir okkar total 7 fiskar, meðan þið veidduð bara 6 sem þýðir að ekkert verður úr hattaátinu sama hvort þið hrínið um það út og suður. Sem sagt þið voruð knésettir.

    En annars var þessi ferð algjör snilld þrátt fyrir að þetta hafi ekki verið eins og ég hafði ímyndað mér. Ég held líka að ekkert hefði veiðst hefði Skabbi verið með í för. Nú er bara að knýta fleiri flugur fyrir næstu ferð því kretínbræður misstu samtals 8 flugur og Flugi missti 3 guðna ofan í drullumallið.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:10 ::

    Drullumall og hattaát í KÍB-staðaós
    Ekki var útlitið merkilegt þegar við renndum í hlaðið við veiðihúsið(kofann) hjá DrulluKÍBós. 2 metra breiður lækur fullur af skít. Menn höfðu á orði að snjallara væri að reyna fyrir sér í Tjörninni og hvort þetta væri einhver sikk húmor í Skabba af því að hann þurfti að fara til Grísalíu. Hefnd gegn restinni af veiðifélaginu.

    Við byrjuðum á því að rölta niður að ósnum sjálfum og að fossinum (mestu ýkjur seinni tíma - ekki einu sinni flúð - kannski grynningar...) og skoða stöðuna. Ekki lyftist brúnin nú mikið. Ekkert kom á land þetta kveld.

    Síðan var haldið í veiðikofann og gert grín að innvíðu buxunum hans Kolla og líka að hann kom með ost. Fékk hann því fljótt nafnbótina drottning ferðarinnar. Þetta var frekar mikil aumingjastemning því enginn varð blindfullur. Síðan sofnuðu menn við ljúfa tóna í Kretín tveimur sem reyndi að feykja kofanum út á haf með djöflahrotum.

    Skrýmsli undirdjúpanna
    Sváfum út á laugardeginum og héldum síðan til veiða. Ég og Dindri tékkuðum á einhverju ræsi aðeins lengra í burtu sem mátti líka fiska í. Síðan keyrðum við niður að KÍBstaðaós og viti menn - þegar við renndum að var Krumpi ákkúrat að draga þennan líka fína Durra á land, 4 pund. Við lifnuðum þvílíkt við og fórum að veiða á fullu. Það komu nokkrir fiskar á land, Dindri veiddi nokkra, Krumpi líka, ég fékk einn ágætan og Graðni myrti síli. Allt útlit var fyrir það að Kobbi þyrfti að efna það að éta hattinn sinn, sem hann var búinn að lofa að gera ef okkar stöng veiddi meira en þeirra.

    Við kíktum í mat og eftir það fékk ég einn 3 punda. Eitthvað meira kom á land. Í myndatökunni eftir ferðina kom svo berlega í ljós að Kobbi þarf að éta hattinn sinn enda voru aðeins 3 fiskar sem komu upp á Kretínstöngina en 6 á okkar. Þetta var því ánægjuleg veiðiferð af 3 ástæðum; 1) Kolli þarf að éta hattinn sinn 2) við veiddum fisk 3) Skabbi verður fúll af því að við veiddum svo ógeðslega mikið og ætlum aldrei að fara þarna aftur svo hann geti ekki veitt þarna...

    Kobbi ætlar svo að skella inn myndunum.

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:32 ::

    9.5.03

    Jörðin er full - vinsamlega farðu heim
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:56 9.5.03 ::

    Gott að helvítis auminginn hann Skabbi sé farinn úr landinu. Hringjum nú í útlendingaeftirlitið og segjum að hann sé í Falun Gong.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:59 ::

    Farinn til Grísalíu, bless hommar!

    góða skemmtun í KÍBstaðaós, mín spá er sú að þyngdi fransisinn hans Graðna á tvíkrækju númer 2 eigi eftir að festast á bólakaf í kóngnum á Krumma.
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:02 ::

    8.5.03

    90210
    ::The Satan of Death skeit klukkan 14:20 8.5.03 ::

    Þessi er reyndar stolinn frá Bjössa Hróbjarts en bara svo mikil snilld...

    "There is no place like 127.0.0.1"
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:48 ::

    Þar hefuru rétt fyrir þér. Þumalputtaregla er að foraðst allar viðbætur og aukastöff sem er ekki official. Þetta er algjört prump og vill sérstaklega vara fólk við að fá sér eitthvað sem heitir hotbar sem er eitthvað enhancement á outlook. Krumpi ofurgáfaði hlustaði á ráð einhvers snillingsins sem sagði honum frá þessu og hvað það væri sniðugt að geta sent icon í póst með þessu. Það sem þessi Einstein gleymdi að minnast á eru endalaus popups og spyware og outlook sem krassar. Skemmtilega líka við það að til uninstalla þarf að fikta í registry sem er ekki á færi meðaltölvugaurs. Hef heyrt af fleiri svona hommalegum uppfærslum.

    Svo vill ég bara benda þér á eitt Svenni, maður á ekki að skila of seint og ef mar gerir það þá á maður að borga sektina þegar maður skilar. Þú ert ekki góður viðskiptavinur heldur afæta og slímberi. Þessi vídjóleiga er betur sett án þín.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:48 ::

    Það hringja einhverjar viðvörunarbjöllur í hausnum á mér þegar ég skoða þetta. Einhvern veginn er ég sannfærður um að þetta sé SPYWARE.
    ::KÍB skeit klukkan 13:32 ::

    7.5.03

    MSN Plus - Rusl eða svalt?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 22:33 7.5.03 ::

    Nope, Kolli samþykkti að ég mætti eiga hana með því að mæta ekki í pool. Ég er búinn að skeina mér á helmingnum og brenna 1/4. Restina ætla ég svo að færa Kolla að gjöf síðar.

    PS - það besta er að ég á 2 eintök af bókinni sjálfur, íslensku og ensku. Múhahahahahaha
    ::Hívatha litli skeit klukkan 20:53 ::

    Hei...........getur Mjöðmin þá sigað Intrum á Göltinn því hann neitar að skila Hringadróttinssögu og RomperStomper?
    ::Mósagrís skeit klukkan 17:48 ::

    Vídeóljónið Dunhaga Í VIÐSKIPTABANN
    Í Vesturbænum eru allir vinir. Nema helvítis fíflið sem keypti Vídeóljónið á Dunhaga, hann á að brenna á báli.

    Forsaga málsins er sú að þessi sjoppa náði blómatímabili líkt og margar aðrar, tók að selja mjólk og helstu matvöru sem var mjög gott, og hafði ágætis vídeóspólur. Það voru líka sætar stelpur að vinna þarna á tímabili.

    Svo dalaði þetta og þá keypti einhver karlfauskur leiguna. Ég er búinn að leigja spólur þarna frá opnun, þó að það sé ekki í neinu svaka magni, og náttúrulega versla við þetta lið líka heilan helling.

    Í gær fékk ég svo bréf um fokking LÖGFRÆÐIINNHEIMTU á þúsundkalli sem ég skuldaði síðan í feb. á Donnie Darko (og er by the way ein magnaðasta mynd sem ég hef séð lengi). Maður hefur bara gert upp þegar næsta spóla er tekin. Ég vil meina að ég sé frábært kúnni, tek aldrei nýjar myndir, skila alltaf 1-2 dögum og seint og greiði það alltaf næst þegar ég tek mynd.

    Ég held að tekjur þessa manns muni ekki aukast heldur minnka með því að senda Intrum á alla sem skulda 500 kall í nokkra daga eða vikur. Ég er að minnsta kosti hættur að verzla við þetta fíbbl.

    Dissa þessa leigu krakkar mínir :p
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:35 ::

    6.5.03

    Það var náungi hérna í skólanum sem var að vinna með hættuleg efni, eitthvað sellulósaþynni, sýru og annað sull, þá klunnar hann yfir sig sýru og til að brenna ekki á sýrunni, þá hleypur hann að neyðarsturtunni(sem á að vera á öllum stöðum þar sem farið er með sýrur) en sparkar á leiðinni kút með sellulósaþynni um koll og meðan hann stendur í sturtunni þá lekur úr kútnum á rafmangshitara sem kveikir í sellulósaþynninum sem brennur út um allt og setur af stað sjálfvirka slökkvikerfið sem tekur allt kalda vatnið úr sturtunni og greyið náunginn fær 3 stigs bruna í andliti og á bringunni. Hleypur út og sér eldinn ærist af ótta og sársauka og hleypur niður þær 3 hæðir sem eru niður á jarðhæð og út á götu, í veg fyrir sjúkrabíl sem var að bregðast við sjálfvirkri neyðarhringingunni.
    -það er sannarlega lán í óláni að verða fyrir sjúkrabíl.
    þetta er náttúrulega bara uppspuni en skemmtilegur frá að segja. Hinsvegar er alveg satt að ég sá hér í sjónvarpinu þátt um veiðar. Fyrst var veiddur einhver forljótur fiskur sem er bara veiddur á veturna (þá í gegnum vakir) af því að hann er skelfilega bragðvondur á sumrin. Svo var sýnt heimavídeo af gaur sem var að landa geddu, þegar hún var komin að bátnum stökk hún uppúr vatninu og beit veiðimanninn í löppina og skildi eftir gapandi sár og í því 5 tennur. Eins og hann hafi verið sleginn með vélsög í fótinn. Svona fisk verður að veiða og halda gedduveislu.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 20:05 6.5.03 ::

    Formaðurinn og hinn tryggi skósveinn hans Gölturinn verða teknir í kennslustund í veiðimennsku næsta mánudag. Hér með skjalfestist það að ef mín stöng , þe ég ,Krumpi kret og Graðni, veiðir ekki meira en þessir örgu sekkir þá mun ég éta hattinn minn. Það verður sérstaklega gaman að niðurlægja Göltinn sem er búinn að vera með stórar yfirlýsingar og þykist vera eitthvað náttúrubarn. Ég mun knésetja þá báða enda eru þeir aumingjar og lúðar.

    Annars er það að frétta af veiðimennsku að ég og Skabbi aka Veiðiauminginn tókum létta kastæfingu í gær. Við fórum í Elliðavatn og létum kulda og rok ekki á okkur fá, nema Skabba varð kallt, missti við það allmörg rokkstig. Þetta var kastæfing þannig að við vildum ekki láta fiska trubbla okkur og við náðum því takmarki okkar með glæsibrag því ekki sporður kom upp. KÍB skrópaði eins og venjulega, mér er sama, hann er bara að undirita dauðadóm sinn í KÍBstaðaósskeppninni.

    Hefur einhver frétt eitthvað frá Gautarborgargauta? Er hann lifandi?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:48 ::

    Meira Blush vídjó
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:53 ::

    5.5.03

    Er þessi virkjanna umræða ekki orðin þreytt? Samt hálfskrýtið að byggja virkjun til þess eins að selja bara umframorku! Það væri allt í lagi ef við værum að græða á þessu en einhvern veginn finnst mér þetta allt lykta af byggðastefnu (þá virðist ekki skipta máli hvort verkefnin séu arðbær eða ekki). Það verður hinsvegar fróðlegt að líta til baka eftir 10-20 ár og sjá hvort þetta hafi orðið lyftistöng fyrir Austurland eða hvort þetta verði bara baggi á samfélaginu.
    ::KÍB skeit klukkan 16:59 5.5.03 ::

    Virkjanir
    Í tilefni þess að ég kíkti á virkjanasvæðin á dögunum, Eyjabakka, Kárahnjúka, Hafrahvammagljúfur (minnir mig - betur þekkt sem Dimmugljúfur), Laugavalladal (minnir mig líka), Snæfell, Alcoa Special (mest seldi búrgerinn á Reyðarfirði - keypti samt ekki) ofl. - hvað finnst mönnum um virkjanaáform? Kostir og Gallar? Steinríkur?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:03 ::

    Skoða eldri færslur >>