30.6.03
mbl.is
Lögreglumenn ákærðir fyrir ólöglegar handtökur og ranga skýrslugerð
Ríkissaksóknari hefur ákært tvo lögregluþjóna í Reykjavík fyrir meintar ólöglegar handtökur tvær nætur í miðborginni í mars sl. Jafnframt er þeim gefin að sök röng skýrslugerð í tengslum við handtökurnar og brot í opinberu starfi.
Fyrri handtakan sem um ræðir átti sér stað inni á veitingastað í Hafnarstræti, en þar er öðrum lögregluþjónanna gefið að sök að hafa handtekið rúmlega tvítugan mann og fært á lögreglustöðina við Hverfisgötu án nægilegra ástæðna eða tilefnis.
Seinni handtakan átti sér stað daginn eftir framan við veitingastað í Tryggvagötu, en báðir lögregluþjónarnir eru sakaðir um að hafa þá handtekið rúmlega þrítugan mann og fært á lögreglustöðina við Hverfisgötu án nægilegra ástæðna eða tilefnis.
Báðir lögreglumennirnir eru sakaðir um ranga skýrslugerð með því að skrá í skýrslur um handtökurnar að mikil múgæsing hafi myndast á vettvangi í báðum tilvikum, ástandið verið mjög eldfimt og að notkun úðavopns hafi verið nauðsynleg til að lögregla kæmist af vettvangi án þess að til frekari átaka kæmi.
Annar lögreglumannanna, sá sem sakaður er um ólögmæta handtöku í fyrra tilvikinu, er ákærður fyrir brot í opinberu starfi með því að hafa af án nægilegra ástæðna eða tilefnis beitt úðavopni í tengslum við seinni handtökuna.
Ríkissaksóknari krefst þess að lögreglumennirnir tveir verði dæmdir til refsingar. Eru þeir taldir með framferði sínu hafa gerst brotlegir við 131., 132. 138. og 146. grein hegningarlaganna.
Þá krefst sá er handtekinn var í síðara tilvikinu 600.000 krónu miskabóta úr hendi lögreglumannanna.
Sjá frétt á mbl
Sjá frétt á Vonlausa [12.3 2003] [20.3 2003]

Þegar kjéllingar eru í brúðkaupum eða sjá lítil börn er það eina sem þeim dettur í hug að bögga alla sem eru ekki giftir eða eiga ekki börn með "er ekki komið að þér","er ekki komið að ykkur","hvenær ætlar þú að giftast","er ekki eitt lítið á leiðinni hjá ykkur" osfrv.
Þessi hegðun er öll hin furðulegasta, helst dettur mér í hug að svona fólk sé svo vitlaust, talar aldrei heima hjá sér og veit ekki neitt, og dettur því ekkert í hug að segja nema einhverjar klisjur.
Ég hyggst snúa vörn í sókn. Sem dæmi má bíða eftir að ein kjérlingin fer að kúka og segja svo við hinar: "Jæja, er ekki komið að þér að læða einum kafbát í höfnina?" Líka þegar þær eru orðnar fullar: "Jæja, hún Jóhanna bara búin að æla. Er ekki komið að þér að öskra á postulínið?" Í alvarlegum tilfellum má svo skella fram: "Er ekki komið að þér að DEYJA?"
(ath. - hér er átt við áfengisdauða, maður er nú ekki algjört bastard...)
29.6.03
Jæja, litla indjánagerpið hann ég fór og festi sér kaup á mótorhjóli áðan. Gripurinn er KTM 250 EXC Racing árgerð 2000. Ógeðslega flott. Kannski næ ég að prófa það áður en ég fer á hækjur því á þriðjudaginn er svo stefnan sett á hnéspeglun. Það er ákveðin kaldhæðni í því að fara sama kvöldið og kaupa sér krossara og fá lánaðar hækjur...
Á föstudaginn kíkti ég aðeins á Spunge og kom með Dindra-osta handa honum. Spjölluðum um heima og geima og drukkum smá bjór. Tók samt ekki Guðnann á gestrisnina og drullaði mér heim um 12.
Síðan var brúðkaup í gær og þar þurfti ég að hlusta á lýsingar fyrrum yfirmanns Dr. Spunge, sem er líka vísundamaður eins og hann, um hversu mikið undrabarn og snillingur Spunge væri, sameindalíffræðingsstjarna, og ætti að drífa sig beint í doktorsnám, setjast að í klaustri í Fjarskanistan og helga líf sitt vísundum. Persónulega held ég bara að gaurinn hafi verið of rulluf til að meika sens, allir vita jú að Spunge er heimskari en egg. Múhahahaha ;)
27.6.03
Hlustaðu með hlustinni
Magnað líka að ef þú skoðar próana hjá þeim er stelpa sem heitir Ýr Gestsdóttir sponsuð af þeim og Duotone. Ég er ekki klár á hver það er. Óþolandi að vera með flash-vef þannig að maður sér ekki slóðina á myndirnar.

Bjarni frá Ísafirði er aðallega að sjá um þetta held ég, hann er búinn að vera búsettur í Insbruck í einhver ár. Hitti hann þar í fyrra þegar við fórum í mega-road-trippið okkar.
Í stuttu máli sagt var alveg hellingur af liði hérna um daginn - fullt af einhverjum frekar massívum útlendingum. Kúl dæmi og eflaust hin prýðilegasta landkynning...
26.6.03
The Icelandic characters don't appear in the "BlogItemAuthorNickname" tag e.g. "H?va?a litli" should be "Hívaða litli".
I've already changed the language to Icelandic (in Settings -> Formatting) but that only fixed the problem for the "BlogItemBody" tag. It seems to be the only tag which works properly (i.e. displays Icelandic characters instead of ?).
Keep up the good work,
Sindri

(kolli potaðu í augað á þér, þetta er bretta tengt!)
25.6.03
Glóandi járnstangir!
Þegar ég las Þetta um daginn Þá fór ég að hugsa. Hvert ætli sé kjörhitastig járnsins? Ef járnið er of heitt þá er stöngin lin og ekki gott að nota hana til barsmíða. En ef hún er of köld þá brennir hún ekki nógu miki?.
Það gæti verið fróðlegt að plotta hörku járns sem fall af hitastigi til þess að komast til botns í þessu máli. Þá þyrfti reyndar að vera búið að ákvarða sársaukastuðla eftir því hversu heitt járnið er og eftir því hversu hart það er.
Bara smá pæling.
(Og vinsamlega hlífðu mér við "brandarar geta ekki lamið mann" "járnstöngin myndi kólna á leiðinni úr smiðjunni þannig að hún væri ekki glóandi þegar hann myndi lemja mig" og öðrum álíka gáfuðum athugasemdum).
(Fékk þó Skabba til að blogga!)
Ég er orðinn alveg brjálaður á Suzuki - þetta rusl er síbilandi...
Hjóli hjóli
Annars kíktum við í smá Team Saumó hjólatúr í gærkveldi enda þriðjudagur. Hjólað var úr Árbæ að Rauðavatni, síðan yfir að Hafravatni, Hafrafell klifið og dúndrað svo niður veginn af því sem var afar skemmtilegt. Síðan lokað hringnum í kringum Hafravatn og til baka svipaða leið. Helvíti hressandi.
Það er ekki spurning með þessa tónleika - ég mæti. Einnig er ég búinn að festa mér miða á djassarann Diönu Krall ef menn vilja tölta með á það...
24.6.03

Stórskáldið okkar, hann Putti Burgeiss, hefur aldeilis fengið samkeppni í skáldskapnum. Ég rakst á frábæra ljóðasíðu í morgun sem heitir Sandú rímur, en Sandú var tyrknesk heimasæta á bænum Nyrðra-Hvolli í Strandahreppi milli 1951 og '59 en eftir það lagðist byggð þar af. Hún yrkir um náttúruna á staðnum og gefur alveg magnaða innsýn í hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á þessum tíma. Helvíti hefur þetta verið hart hjá þeim. Eftir að hún fór úr vistinni átti hún svo krakka eftir bóndann þarna, við litla hrifningu húsfreyjunnar.
23.6.03
Hvað voru menn annars að sýsla?
Tékkiði annars á Birninum - hann er farinn að blogga á fullu. Sérstaklega áhugavert sníp-piercing vídeóið hans. Nokkuð hugguleg stúlka...

20.6.03
19.6.03
Nú stendur undirbúningur fyrir næsta vetur sem hæst. Unnið er að viðhaldi á lyftum og búnaði. Byrjað er að huga að nýjum framkvæmdum. Meðal stórverkefna ársins er flutningur á Gillyftunni í Bláfjöllum. Sú framkvæmd er hafinn og stefnt að opnun lyftunnar á nýjum stað næsta vetur. Ný stólalyfta í Kóngsgili fer í útboð í haust. Stefnt er að uppsetningu hennar næsta sumar (2004) Skoðaðir verða möguleikar á 4 sæta og 6 sæta lyftum. Með tilkomu nýrrar stólalyftu með flutningsgetu frá 2.500-3.500. manns á tíman í stað 1.200 með þeirri gömlu má segja að öll aðstaða gjörbreytist og raðir ættu að heyra sögunni til. Í Skálafelli er hafinn undirbúningur samkeppni um hönnun nýs þjónustuhúss. Þá er stefnt að því að endurnýja stólana í lyftunni í Skálafelli að hluta eða öllu leyti fyrir næstu vertíð.
Af skíðasvæði.is
Af skíðasvæði.is
Hmm - gleðilegt - en hvað á að gera í snjónum, eða réttara sagt króniskri fjarveru hans?
MBL: ?Steinaafhending er táknræn athöfn til að minna viðtakendur á að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi við ákvarðanatöku og hvatning í leiðinni fyrir viðtakendur að kynna sér femínisma og jafnrétti kynjanna sem er eitt af aðalmarkmiðum femínisma,? segir Erla.
Hvað finnst ykkur annars um T3? Talandi um að vera fastur í sama hlutverkinu...
Hvað finnst ykkur um þetta femínistabrölt allt? Allir hinir litirnir voru uppteknir (svart er sorg, blátt er X-D, grænt er umhverfisvernd, ef maður spáir í því var ekkert eftir nema bleikt. Þannig að nú eru litirnir opinberlega búnir!) þannig að þær völdu bleikt. Ég er viss um að sumum femínistum finnst það vera móðgun við konur.
Persónulega finnst mér að allir ættu að hljóta frama á grundvelli eigin verðleika, óháð kyni eða lit. En ég held að þessir gallhörðu femínistar vilji það ekki. Miðað við málflutninginn þá er maður ekki alveg að meika þær. Það er gengið þvert á stjórnarskrá trekk í trekk. Karlar mega ekki tjá sig ef það samrýmist ekki skoðunum þeirra. Konur í raun ekki heldur. Fólk má ekki eiga meira en femínistarnir. Ekki má sjást í skinn á kvenfólki í auglýsingum, þó að þeim sé alveg sama um nakta karla.
Hvað viljið þið eiginlega, stofna úber-race trukkalessa sem berja ógeðslegu, sorugu maðkana sem kallast karlmenn í dag, niðurlægja þá, taka af þeim peninginn þeirra og banna þeim að tala? Er það jafnréttið sem þið viljið? Ég held það ekki af því að ég er ógeðslegur karlmaður (indjáni), heldur af því að þannig hljómar málflutningurinn.
Af Mogga:Femínistafélagið veitir í fyrsta sinn Bleiku steinana
Femínistafélag Íslands veitir nú í fyrsta sinn Bleiku steinana í dag, á kvenréttindadeginum, 19. júní. Þá hljóta að þessu sinni helstu ráðamenn þjóðarinnar. Það er von Femínistafélags Íslands að Bleiki steinninn minni á mikilvægi þess að hafa jafnréttissjónarmið í huga við ákvarðanatöku.
Femínistafélagið mun m.a. afhenda Davíð Oddssyni forsætisráðherra steininn, borgarstjóranum Þórólfi Árnasyni, biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni og ritara forseta Íslands f.h. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem er erlendis.

PS - bleikur steinn, er það eitthvað snípatákn?
PPS - Ég er að verða geðveikur á þessum spígsporandi kjéllingum hérna í vinnunni í bleikum bolum með helvítis læti og hlátrasköll. Reyniði að vinna og útrýma þannig launamuni kynjanna í stað þess að hanga í kaffi og trufla mig.
Haddi og Scweppes eru þarna að gera Sigma merkið, sem var borðið þeirra, til að fyrirbyggja misskilning.
Skondin lýsing:
Iceland
The country with the chilly name is rapidly becoming one of Europe's hottest destinations. Much of Iceland's popularity is due to its natural features, which include glaciers, hot springs, geysers, active volcanoes, portentous peaks and vast lava deserts. Apart from an expansive landscape, it also has a rich history, literature and folklore tradition. However, tempering Iceland's appeal is that its prices are the most expensive in Europe. That doesn't mean it can't be visited on a shoestring, but it does mean that budget travellers will have to spend some time under canvas in order to fully appreciate the country without needing to get on intimate terms with their bank manager.
Tekið af síðunni: http://www.lonelyplanet.com/destinations/europe/iceland/

Þýðist: Þó þú eigir fullt af pjéning skaltu taka með þér tjald til Íslands ef þú ætlar ekki að fara á hausinn. Verst að þeir gleyma að minnast á veðrið sem á eftir að ÉTA tjaldið þitt.
18.6.03

Fleiri myndir komnar á askinn.
17.6.03

Brúðkaup Lindu og Sindra
Takk fyrir okkur! Þetta var snilld í alla staði. Ég get ekki ímyndað mér neitt sem betur hefði mátt fara. Takk aftur.
Ég er búinn að setja myndir sem ég fékk frá Gogga á gallery. Fleiri myndir koma síðar.
16.6.03
Snillarnir í Nóeffexx eru að spila með Brain á Gauknum í kveld, opnar kl. 20.
Lög af nýja disknum, War on Errorism [1] [2] Þetta er svona ekta snjóbrettamyndarokk.
Veit ekki hvort þið munið eftir þessum gaurum en þeir gáfu út snilldardiskinn Punk in Drublic sem ég fékk gefins á AK um verzlunarmannahelgina hérna um árið. Það var einmitt montni lygamarðar ameríkaninn sem var að deita vinkonu hennar Dísu sem gaf mér hann af því að þeir voru vinir hans og hann gat fengið 10 þúsund í viðbót. Hann hafði líka verið 3 daga að komast niður brekku á skíðasvæðinu sem hann vann vegna veðurs (fauk alltaf afturábak upp), ætlaði að fá okkur í heimsókn að surfa þar sem var svo geðveikt sörf að hann myndi berja okkur ef við færum í lans og hafði líka verið quarter-back í amrískum fótbolta (sagði það þegar við vorum í ísl. fótbolta = soccer, en svo þegar við Dindri drógum upp amrískan fótbolta og gátum hent helmingi lengra en hann og miklu flottara fór hann í fýlu.)
Þess má geta að um sömu helgi ákvað Gus-gus að halda partý í íbúðinni sem við vorum með þrátt fyrir að a) þau væru óvelkomin b) við þekktum þau ekki c) engin húsgögn d) klukkan 7 um morgun og fullt af sofandi fólki á gólfinu.
Gaman að því - en - allir á tónleika!
Flokkar: Tónlist
Fínt trúðkaup - miklu betra þegar Mjöðmin er ekki mjálmandi á staðnum. Kveldið endaði hjá mér, Spunge, Gírni og Betu fönk á Sæbraut snemma morguns á sunnudegi eftir gríðarhressandi umræður inni á 22. Stuð.
13.6.03
Þetta skannar tölvuna þína fyrir svoleiðis krappi og drepur það.
12.6.03
11.6.03
![]() |
[Rugl eða snilld?]
leoemm.com
Ný Janes Addiction plata 22 júlí.
Flekkur
10.6.03
Þetta eru sko vísindi í verki!!
7.6.03
Hvað segja hrokafullu vísundarnir um þetta?
Kretin hlekkur... sekkur!
6.6.03
Jæja, Brynni loksins búinn að dúndra myndunum inn. Þetta var nú meiri snilldarferðin. Vantar reyndar hnyttna myndatexta inn en það kemur sjálfsagt allt.
Annars fór ég til læknis áðan út af hnénu og oh my god - gaurinn sprautaði 1/2 lítra af einhverju drasli undir hnéskelina á mér. Frekar skrýtið.
Svo var ég að horfa á íþróttir í gær og þeir voru að segja frá smáþjóðaleikunum. Hverjir eru þessir KÍBverjar eiginlega? Ég hef ekki séð þá í veiðiferðum að minnsta kosti.
Bókin sem allir hafa beðið eftir:

Design Your Own O'Reilly Book Cover!
5.6.03
Fyrsta leiðin sem ég hef tekið þátt í fyrst-fara. Jíha. Lifi steggjun Kíb.
Ætli það hafi verið sama fíflið sem lamdi einhverja aðkomumenn í tjaldvagni og hélt þeim í gíslingu? Slapp svo með þetta af því að hann "iðraðist".
Bíó - Matrix
Fór á Matrix II um daginn. Hún sökkar. Sérstaklega var dansatriðið alveg út í hött. Annars var hún í heildina eins og klámmynd að reyna að hafa söguþráð, nema að í stað klámsins komu tæknibrellur.
Rakst á fyndna umsögn. Til dæmis fannst mér þetta snilld:
Finally, toward the end of the move, Trinity brought down the power of a whole city block by hacking into the Matrix by using Nmap on a laptop running some flavor of Unix. I know they have to appease the hardcore geek crew who make up a large portion of the first Matrix movie's cult-base, but didn't you find it a bit, well, un-futuristic that Trinity could defeat the defenses of the Matrix (AD 2199) with a few commands on a Unix box?!
Bíó - Mean machine
Fín mynd frá snillingunum sem gerðu Lock Stock og Snatch. Vinnie Jones leikur fyrrverandi landsliðsmann í fótbolta sem lætur henda sér í steininn og fer að dúlla sér í fótbolta með föngunum. Óþarfi að fara nánar út í plottið því að þegar maður spáir í myndinni er hún í raun bara eins og hvaða önnur krakkamynd, þar sem þau eru með lið (hafnarbolti, körfubolti, fótbolti osfrv.) og vinna svo against all odds í endann. Eða tapa ;) Nema hvað þessi gengur þvílíkt vel upp og er hin skemmtilegasta.
Líka fyndið að Vinnie og Jason Statham skipta um rullu. Jason er geðsjúklingurinn núna (shit hvað hann er massaður) og Vinnie er nokkuð eðlilegur/chillaður. 4 Kíb af 5.

Some kid used his high school's video camera to record himself busting some serious Star Wars moves. Apparently, he forgot to remove the tape, and some punk came along and posted the footage to the internet. Within days, this video was circulating all over the world.
[Hér er videoið.]
Enter another nameless punk(s), whose talent is exceeded only by his/her/their free time, and voilà: check out the Star Wars Kid Remixed!
[Hér er viedoið.]
[Hér er videoið.]
Enter another nameless punk(s), whose talent is exceeded only by his/her/their free time, and voilà: check out the Star Wars Kid Remixed!
[Hér er viedoið.]
3.6.03
Hmm - finnst ykkur þetta ekkert sikk auglýsing? Allir útlendingar með Aids. Kannski er ég bara svona steiktur. Mér finnst herferðin alveg valid en fyrirsögnin "Hvað tekur þú með þér heim?" er svolítið Zenophobic...

Annars eru þessar tvær þarna alveg frekar myndarlegar. Spurning um að kalla þetta "Hvern tekur þú í Leifsstöð?"

Annars náðist þessi mjög svo truflandi mynd af Skabba í sauðburði. Það er ekki að spyrja að því þegar hungrið sverfur að kallinum. Stoltur af því að hafa klárað matinn sinn...

2.6.03
Það var ákveðið á fundi í æðsta-steggjunarráði á föstudaginn að þeir sem mættu ekki myndu borga líka. Við sendum reikninginn von bráðar.
Ánægjulegt að heyra að steggjun KÍBs gekk vel. Er hann ekki lengur steggur eða er hann hér með steggur fram að giftingu? Og er átt við steggur eins og í karl-önd, karl-gæs eða karl-köttur. Í ljósi þess að konur eru gjarnan gæsaðar fyrir eigin brúðkaup þá hlýtur steggjun dindra að hafa gengið út að karl-gæsun... oj... leiðinleg pæling...
En allavega, ég mætti ekki því ég var í sveitinni um helgina. Milli þess sem ég fistaði rollur og mokaði skít renndi ég færi í Mjóadalsánna, ánna mína. Og þegar ég segi færi meina ég ekki tittlingur og þegar ég segi á á ég við rennandi vatn, ekki kind. En allavega þá fórum við Karen nokkrar styttri ferðir upp með ánni, sáum urmul gæsa og gæsahreiðra en urðum lítið vör við fiska. Það var ekki fyrr en síðasta kvöldið (þegar ég ég skildi Karen eftir heima, fiskifæla) að ég fékk fisk á lítinn píkukokk með kúluhaus. Þetta var 3. punda urriði sem barðist eins og hetja í 10 mínútur með stökkum og sporðaköstum. Þetta var þvílík barátta hjá honum að mér var skapi næst að gefa honum líf eftir viðureignina en hristi þá hugsun nú úr kollinum og drap hann með steini, flakaði og gróf.
Þannig að nú er ég kominn með 2 fiska undir beltið og stefni hraðbyr að því að endurheimta aflakóngstitilinn. Húrra fyrir mér!
Svo var náttúrulega ekki leiðinlegt að við klifruðum nýja leið, Dauðaspaðann (ca. 5.6) og hef ég aldrei áður fyrst-farið leið. Snilld.