31.7.03
Skrítnir vill komast heim í fæðingarbæinn sinn
Kannski vill hann bara ekki styggja viðkvæma listafaggann okkar því það er svo gaman þegar hann skrifar. Nema þegar Trúðurinn KÍB kom í heimsókn. Annars finnst mér laaangbesta stemningin á þessum vef þegar My little Pony er í fýlu og allir að stríða honum...
30.7.03
Heimsins hommalegasta bókastoð
[Eða ef við snörum þessari setningu á Spunge-lensku: Éttu skít helvítis fagginn þinn og hættu að stela súrefninu sem ég ætlaði að anda að mér ef þú hefðir ekki stolið því með saurugum lungunum þínum...]
"Hvort verður Brynni eða Tóti á undan á þing?" Hér er komið alveg frábært tilefni til að opna veðbanka. Það væri hægt að veðja um hvenær, hvar og hvernig þeir komast inn í landspólitíkina. T.d. hvort þeir komist inn með því að sannfæra kjósendur, hrókeringum eftir kosningar, verður stopp í borgarpólitíkinni, hvort þeir verði þá of fínir til að umgangast Kolla o.s.frv. KÍB sér um að opna veðbankan, með þeim möguleikum sem hægt verður að veðja um.
Og takk æðislega fyrir fiskana frá Arnarvatnsheiði, ég er búinn að kvíða því svo óskaplega að þú komir og takir þinn skerf af þeim, enda veit að þú et sólginn í silung. Ég er að hugsa um að troða þeim samt ekki upp í rassgatið á mér þó að þú teljir það eðlilega aðferð til að losna við fisk úr kistunni.
Og ég á ekki eftir að sjá þig mikið að veiða í Vola. Þú hefur það eitt í hyggju að tapa veiðikeppninni vísvitandi svo að þú getir smakkað Hattinn, alla með tölu. Þú ert ógeðslegur.
Djöfull er geeeeðveikt fyndið samt hvað Spunge verður brjálaður ef einhver spunge-ar hann - múhahahaha
Vá hvað menn geta verið þroskaheftir. Allt sem Skabbi gubbar út sér hérna að neðan er helber þvættingur. Að reyna halda því fram að fisklufsurnar sem hann veiddi hafi verið eitthvað betri en aðrir fiskar er náttúrulega bara sönnun alvarlegrar geðfötlunar. Gölturinn segir að hann hafi átt stærri fiskana sem við veiddum áður en hinir hommarnir mættu á svæðið? Ég á bara ekki aukatekið orð yfir þessari rangfærslu og ég vona að þetta sé nú bara Skabbi sem vill muna þetta svona, því hið rétta í málinu er að ég veiddi stærsta fiskinn þá og þrjá aðra frekar góða. Ég skal fúslega viðurkenna að einn af fiskunum sem ég dró á land þá var frekar lítill en þetta var fyrsti fiskurinn og við gátum með engu móti vitað að við mundum moka honum upp. Skúffan í ísskápnum var troðfull af fiski þannig að ef herra hálfviti Skabbi var virkilega svona í mun að eignast nokkra fiska í frystinn þá hefði hann eflaust getað fengið nokkra. Að halda því fram að sínir fiskar hafi verið bestir er bara firra, einungis Gölli og Skabbi haga sér svona.
Þannig að mér finnst bara gott að Minki stal fiskunum, gott á Spunge að vera spungaður. Í sambandi við tiltekt þá var það alveg vitað mál að ég þurfti að fara snemma, minni bara á ferðina þegar einhver var kallaður prumpurassi fyrir að stinga af úr tiltekt. Þú mátt eiga fisktittinn sem ég hirti á Arnarvatnsheiði í sárabætur fyrir fiskana sem Minki stal og troddu honum svo upp í rassgatið á þér. Þínir fiskar voru alveg eins og allir hinir.
"fyrst minki ruglaðist..." gimmí a breik! Heldur þú virkilega að rækjuheilinn hann bróðir þinn hafi ruglast á mínum 5 fallegu 1.5 punda bleikjum, handpicked to perfection og þessari lúkufylli að slímugum horlontum sem þú og gölturinn myrtuð í græðgi ykkar? Þú ætlar kannski að segja mér að í þessum úldna sekk hafi verið 3 fiskar sem skriðu upp í pundið en Sveinn benti mér réttilega á að hann hafði veitt þessa "stóru" og ætlaði að éta þá sjálfur en þú verið að kroppa upp smælkið. Mínki Lú hagaði sér eins og Mikki Refur, sá að mínir fiskar voru margfallt eigulegri en þetta hrat sem þú varst að reyna að pranga inn á hann, hirti mína fiska og skildi ruslið eftir. Og glætan spætan að ég ætli að hirða ruslið upp eftir þig í þetta skiptið! Þó svo að þið Kretínbræður hafi stungið af frá tiltekt um helgina eins og ykkar er von og vísa þýðir það ekki að við hin séum skyldug til að hirða alltaf upp ruslið eftir ykkur.
Vel á minst, ég skilaði þér fiskunum þínum frá Arnarvatnsheiðií morgun, þeir eru í póstkassanum þínum, hálfviti.
29.7.03
Bara svona til að dissa Gölt Reykás aðeins þá ef mig rekur minni í rökræður okkar fyrir ári síðan þá varstu froðufellandi yfir sölubanni vegna þess að það skerti einstaklingsfrelsi þitt og markaðurinn yrði að fá að ráða. Gölturinn og það sem hann stendur fyrir er sem sagt vatn á myllu rjúpnaveiðibannsins.
Karl Th. Birgisson skrifar áhugaverða grein í Fréttablaðið í dag (bls. 14).
Segir meðal annars:
Enginn veit hversu mikið af ref er í landinu, en allt bendir til þess að honum hafi verið að fjölga verulega. Á hverju ári eru skotin tæplega 4.500 dýr, sem segir töluvert um stofnstærðina. Sömu sögu er að segja af aðskotavarginum, minknum. Fátt er vitað um hann, nema að af honum eru skotin um 6.500 dýr árlega, næstum hálfu fleiri en af ref, sem bendir líka til óhugnanlegrar stofnstærðar. Til samanburðar er rétt upplýsa að rjúpnaveiðimenn eru 4.600 og hafa veitt að meðaltali 16 rjúpur á ári hver. Refur og minkur (margfalt
fleiri en þessir 11.000 sem eru skotnir) hafa látið hjá líða að tilkynna hversu mörg egg, unga og fugla þeir éta. Lesendur geta reiknað að vild og niðurstaðan er veiðimönnum örugglega ekki í óhag.
fleiri en þessir 11.000 sem eru skotnir) hafa látið hjá líða að tilkynna hversu mörg egg, unga og fugla þeir éta. Lesendur geta reiknað að vild og niðurstaðan er veiðimönnum örugglega ekki í óhag.
Góður vinkill. Bendir samt ekki á neinar leiðir til úrlausnar í greininni. Ég trúi því að sölubann (50% rjúpunnar er veidd af 10% veiðimann heyrði ég einhversstaðar) og svæðisbundnar friðanir myndu gera meira til lengri tíma. Þó að ég trúi á frjálsan markað og að höft séu slæm á það ekki alveg við í þessu dæmi.
Hér er verið að ganga nærri dýrastofni til að mæta eftirspurn. Hún minnkar ekki. Með því að gera veiðimönnum erfiðara fyrir að losa sig við rjúpuna ætti ávinningurinn af veiðunum að minnka og færri að sjá sér hag í því að skjóta í söluskyni. Jafnvel þó þetta leiði til einhverra viðskipta sem ríkið fær ekki skatt af. Kvóta verður varla komið við þrátt fyrir að hann væri sjálfsagt æskilegasta leiðin. Það er einfaldlega ekki hægt að fylgjast með þessu.
Ég sendi veiðistjóra bréf í dag og bað um endurgreiðslu á veiðikortinu mínu. Með því finnst mér ég vera að sýna hans embætti stuðning. Skondið.
PS - þið eruð allir faggar og kunnið ekkert að veiða. Krummi er minkur að stela fisknum hans Skabba, Kolli er minkur að vilja ekki fiskinn sinn og Skabbi er minkur fyrir að vilja ekki fiskinn hans Kolla í staðinn fyrir fiskinn sem Krummi minkaði og minka fleiri upp úr ánni. Morð um hábjartan dag. Húðlitaði Kúkurinn er ekki minkur af því að hann veiðir aldrei neitt.
Það stefnir allt í æsispennandi veiðikeppni í Vola að tveimur vikum liðnum. Í síðustu veiðikeppni, Showdown in KÍBstaðaós, knúði Team Göltur fram sigur í magnveiðikeppninni með ósvífnum mínkshætti en Team Cretinbrothers and the Kike særði upp stærsta fisk keppninnar með því að drepa grindhoraða niðurgönguhrygnu. Þótti það hvort tveggja níðingsverk af verstu sort.
Í kjölfar slaks árangurs í magnveiðikepnninni hefur the Kike verið rekinn úr liðinu með skít og skömm og frægasti magnveiðimaður VV, sjálfur aflaklónninn, ráðinn í hans stað. Nafni liðsins mun einnig verða breytt í MM&A, Mjöðmin, Minki LÚ & Aflakló.
Hvort þessar tilfæringar séu nægar til að leggja hið firnalélega lið Team Göltur af velli á eftir að koma í ljós. Heyrst hefur að þeir góðvinir, Gindri og Gölli, séu hægt og bítandi að tileinka sér nútíma veiðiaðferðir sem mun eflaust gera MM&A sigurinn enn auðveldari. Þó verður að taka tillit til þess að Alpha-hog liðsins verður nýkominn út endurnærandi haustferð séð &heyrt til íbíza þegar keppnin stendur yfir. Mun það eflaust hafa góð áhrif á liðsandann.
En eitt er víst, ég á eftir að rústa ykkur öllum í veiðileikni, kaststíl og almennu glensi.
Síðan er forðamaðurinn eitthvað að reyna gera grín að knýtingarhæfileikum sem er skondið í ljósi þess að hann hefur aldrei þorað að mæta á knýtingarfundi. Hver var það sem fann upp killer fluguna KÍB sem veiðir hvern stórfiskinn á fætur öðrum?
En KÍB getur allavega huggað sig við þá staðreynd að það er fátt eitt sem mun koma í veg fyrir að hann nái endurkjöri í formanninn, nema Gölturinn er reyndar að gera harða hríð (ha ha hann er með hríðir) að formannstólnum með afburða léleg aflabrögð, enda eru þeir í Team Gelti handónýtir veiðimenn.
Hér tel ég rétt að nema staðar því þú nærð nýjum hægðum með hverju andsvarinu.
Kannski verið sniðugt ef þú hefðir bara ælt einu sinni. T.d. "3 fiskar í einu kasti um helgina, það er bara nokkuð gott".
Og formaðurinn grætur þurrum tárum yfir því að komast ekki í lax og gæs því hann kemur hvort sem er alltaf heim með öngulinn í rassgatinu (hausnum).
Nú verður sko gaman í Vola, Kolli er búinn að jinxa það svo mikið að það eina sem hann á eftir að gera er að standa á bakkanum og vola!
Annars er ég búinn að analísera ferðina og komst að þeirri niðurstöðu að ég er lang besti veiðimaðurinn. Það var ég sem skannaði alla ána og fann veiðistaðina fyrir ykkur. Ég veiddi mest þrátt fyrir að hafa leyft Skabba Spunge að spunga hylina þegar ég var búinn að finna fiskana. Þessvegna segi ég það án þess að vera hræddur að ég mun éta hattinn minn ef ég veiði ekki flesta fiska í Vola.
Þú ert ekki boðinn í haustferðina húðlitaði kúkur, ég verð víst að taka þetta allt út á þér fyrst Spunge hræðist reiði mína svo mikið að hann er flúinn til að fela sig í pilsfaldi kjérlingar sinnar í Þroskaheimum.
gölturinn fór að grenja og tapaði
high-five dindri!
Flott hjá Húðlituðu hættunni að redda Negranesi og setja inn myndirnar og æði hjá Spunge að redda þessu frábæra buffi, Kretinshops og setja inn ferðasöguna. Frábært.
Nýju nöfnin ykkar skulu vera Línkur og Stínkur.
Ertu orðinn fullkomnlega geðveikur, herra alpha-hog? Follow-up frétt um ástarmál íslendinga úr séð og fokking heyrt?!?!!? Nýjum lægðum er náð í skítabloggi á Vonlausa. Ég held að þú sért best geymdur, tjóðraður við pallinn með sígaretturnar hans kolla, byssuna hans adda og metersþykkan bunka af Se & Hör. Þá getur hellt þér af fullum þunga í alvöru rannsóknarblaðamennsku.
niggaplíííís
Hehe - þetta er skondið. Hljómar reyndar svolítið eins og vinahópurinn okkar. Ég er alphamale - þið eruð aumingjar með hor!
Úúúú - eridda nýjasta Séð og heyrt?
Svona í tilefni þess að sorpritið S&H var tekið til kostanna á White trash - redneck degi VV, þá er Bjöggi Taka-í-fúsa víst ekki að meika þessa tzjéddlingu. Hún er víst stalker, segir sagan, alltaf að hringja og bögga, bögga á börum borgarinnar og hringja í sorprit og segja að þau séu saman. Hann meikar ekki.
Þetta er svipað og með prinsa gaurinn þarna, erfitt líf að láta fegurðardrottningar eltast við sig. Maðurinn á náttúrulega að setjast hjá einhverjum gellum og segja svo Manúelu að drulla sér og hrinda henni fram af svölunum. Hvað er betri pikk-upp lína en: "Þetta er fegurðardrottning, hún er alltaf að reyna við mig og bögga mig."
28.7.03
Allir hardcore veiðimenn Vonlausa lögðu af stað eftir vinnu á fimmtudaginn í sumarferð Vonlausa. Kobbi og ég erum einu hardcore. Fyrsta fréttnæma mómentið var stopp í City Peninsula fyrir hambó. Fuck hvað þeir voru vondir - hvað er maður að gera sér þetta? Við sluppum þó við matareitrun, ælu og skitu eins og þeir sem fengu sér pulsu í Staðarskála um helgina.
Komum vestur í frábæru veðri rétt fyrir miðnætti, skelltum rafstöðinni í gang og rúlluðum svo inn á dal að skoða ána, ég á krossaranum og Kobbi á Dummmóbíl. Hrikalega lítið vatn þarna enda enginn snjór þarna í hlíðum eins og er venjulega fram á haust. Fengum okkur bjór og vorum í einhverju tjilli til 4 eða 5.
Föstudagur til fiskja?
Göltur og french tóst í morgunmat, (reyndar eftir hádegi).
Kíktum aftur inn á dal, ég þorði að setja í 3 gír og fór aðeins hraðar. Mjög gaman. Sáum ekki bein í pollunum innfrá og snerum til baka frekar súrir. Ákváðum að kíkja aðeins í Ármótin. Þegar þangað var komið drapst á krossaranum og vildi hann ekki meira í gang þessa helgina.
Merkilegt nokk þá lentum við í twælæt són þarna. Á í hverju kasti. Tókum ca. 10 ágætis fiska. Fórum afar sáttir upp í hús og plottuðum hvernig við gætum logið að Veiðifasistanum að ekkert hefði komið á land. Ákváðum líka að veðja um 1) hvað það liði langur tími frá því að hann kæmi í hús þar til hann kíkti í veiðibókina (15 sek) og 2) hversu langur tími liði frá því og þar til hann væri kominn út að hoppa í döðlurnar (23 sek).
Eftir að strákarnir mættu á svæðið, Fasistinn, Pu, veiðimaðurinn sem var áður þekktur undir nafninu Krumpi Kretín eða hýenan og Taut. Menn veiddu prýðilega niðurfrá þetta kveldið og voru nokkuð sáttir.
Kvöldmatur ekki af verri endanum, grillsteik, bakaðar töflur og alles. Strákarnir héldu áfram að veiða og Mjöðmin var meira að segja að rífa upp silla á KÍB fluguna.
Laugardagur til leti
Fórum og köstuðum smá á laugardagsmorgninum, strákarnir keyrðu upp á dal. Skelltu sér í hylinn við Gullna hliðið þegar ekkert veiddist. Tóti spyr Skabba: "Varidda kalt?" Skabbi: "Niiii" Tóti hoppar út í - "gaaaaaaaaaaaa" Skabbi: "Reyndu að segja eitthvað - múhahahaha".
Addi Pu fór hinsvegar einn í rómantíska göngu upp dalinn, inn á gömlu póstleiðina, yfir á Hvannahlíðarfjall og niður dalinn hinumegin við það. Lagði sig á leiðinni, talaði við fugla og þannig stöff.
Síðan fóru menn að chilla agalega þarna. Ákveðið var að halda Red-neck laugardag. Við sátum úti á verönd í sólbaði, fullt af náhvítum gaurum með sólbrunna hálsa, sígó, bjór og byssu. Auðvitað reyndum við fyrir okkur í skotfimi á pallinum fyrst þetta var red-neck laugardagur. Fólkið sem kom þarna keyrandi að bænum til að tékka hvort vinir þeirra væru þarna fengu smá sjokk þegar náhvítur rauðháls með lafandi sígó, bjór og byssuna tók á móti þeim. "Whut da fuck do ya'll want? Best not mess wit us goddam redneck porch monkeys...!"
Þar sem Krummi var algjör minkur og steindrap allt sem hann tók á land fékk hann nýtt viðurnefni, Minki Lú, en Loo þýðir einmitt klósett og samrýmist arabíska nafni Minka Lú sem þýðir líka klósett. Pu myndi kannski vera svo vænn að skella því hér á síður vefsins.
Helga hans Minka Lú mætti á svæðið en þorði ekki upp að bæ svo hún fór í 2 tíma bíltúr. Mætti síðan upp að húsi en gerði heiðarlega tilraun til að hanga í símanum þar til Minki kæmi.
McRenis (aka Trúðurinn KÍB) og frú + erfinginn kíktu svo á svæðið rétt fyrir kveldmat og dvöldust fram á sunnudag.
Um kveldið var boðið upp á grillaðar kjúllabringur, rauðvín og fínerí. Og að sjálfsögðu Bombay gin. Sagðar stórfenglegar gamansögur en auðvitað endaði þetta með kúk og piss bröndurum. Mjög gott.
Kíktum aðeins niður að á um kveldið og enn var mokveiði. Kolli átti svo lokasetningu dagsins. "Svenni, ef maður ætlar að sofa úti og það fer að rigna, hvað á maður að gera?"
Sunnudagur á sýru
Við reyndar droppuðum ekki sýru en þetta stuðlar bara svo flott.
Menn fóru að týnast burt, kretínbræður að sjálfsögðu fyrst en Mjöðmin fær 10 þúsund frípunkta fyrir að hafa nennt að taka krossarann. Krummi er hinsvegar svikari. Síðan beiluðu McRenis og frú. Við þrifum allt hátt og lágt, Addi bónaði meira að segja klósettin með tungunni. Síðan kíktum við niður að á og vorum að taka fína 2 punda silla þar. Frábært veður.
Í heildina endaði helgin í 300 kúkabröndurum, 700 lélegum bröndurum, 1 nýju viðurnefni, 20 þús kr. af mat og 60 silungum þó að slatta af þeim hafi verið sleppt. Heildarþyngd afla hefur sjálfsagt verið eitthvað yfir 30 kíló. Vonlausa hvað? Veiðifélagið aflaklær hljómar bara svo faggalega...
Lordinn
Labels: sumarferð vonlausa
(Magnað að læra ekkert annað í 3 ára námi)
27.7.03
Það er magnað hvað stelpurnar í Búðardal ræða sín á milli þegar þær halda að enginn heyri...
Stelpur geta alveg píkuprumpað sjálfar, mar fer bara á fjórar og glennir þar til opnast. Þá kemur FFFFFFT þegar pjullan fyllist. Og svo sest maður upp. Og þá kemur PRRRRRRRRRRT. Líka hægt að liggja á bakinu og setja lappirnar upp í loft.
Hvað segir Hrokafulli vísundurinn um þetta?
25.7.03
Ég held að hann sé hommi.
Eftir alla þessa þjálfun sitjið þið nú bara uppi með leikfang.
24.7.03
Friðun á rjúpu í þrjú ár, gott og vel, hefur áreiðanlega helling að segja.
En hvað svo? Á þá alltaf að friða rjúpuna í 3 ár þegar stofninn er í lægð? Af hverju í ósköpunum var ekki hægt að setjast aðeins niður og líta til framtíðar; hvernig getum við minnkað og stýrt veiðiálaginu á rjúpu þegar til lengri tíma er litið? Það eina sem gerist núna er að í þrjú ár fær enginn að skjóta eða éta rjúpu en að þeim tíma liðnum verðum við á nákvæmlega sama stað, nema með nýjan moðhaus í umhverfisráðuneytinu. Þetta er fáránlega vanhugsuð skyndiaðgerð sem á ekki eftir að hafa neina þýðingu fyrir aðra en fanatíska andstæðinga skotveiða sem geta nú sagt: "þessir byssuóðu brjálæðingar útrýmdu næstum rjúpunni en okkur tókst á síðasta snúningi að bjarga henni"!
Skotvís segir ráðherra ætla að banna rjúpnaveiðar í 3 ár
Skotveiðifélag Íslands segir að umhverfisráðherra hafi ákveðið að banna veiðar á rjúpu næstu 3 árin en ráðherra hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem greint verður frá til hvaða aðgerða verður gripið vegna slæms ástands rjúpnastofnsins.
mbl.is
Skotveiðifélag Íslands segir að umhverfisráðherra hafi ákveðið að banna veiðar á rjúpu næstu 3 árin en ráðherra hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem greint verður frá til hvaða aðgerða verður gripið vegna slæms ástands rjúpnastofnsins.
mbl.is
Svo langar mig geðveikt að sjá Kill Bill - hlakkar geðveikt til þegar hún kemur. [Official vefurinn]
Hrikalegt að LOTR (ísl. HDS) - Hilmir snýr heim er ekki komin - ég er alveg að eipa á því. Húff. Og af hverju er Tveggja turna tal ekki komin á DVD ennþá? Verður einhver special edition af henni eins og Föruneyti hringsins?
23.7.03
Hahahahahahaha...
trallallæ!
Í gær þá var Skabbi að tala um að við myndum ekki veiða neitt fyrir gæsaveisluna því að hann væri að fara út. Þá sagði ég að við myndum einmitt veiða miklu meira því það væri enginn Skabbum til að stela öllum gæsunum okkar og naga þær hráar inn að beini. Múhahahaha
22.7.03
Hafið þið spáð í því að ikke er alveg eins og ekki afturábak? Magnað...
The saga continues...
Hvatning gegn breytingum - Starfsmenn eru hvattir til að láta lítið á sér bera, vinna vinnuna sína eins og tíminn hefur leitt í ljós að virkar best, láta lítið á sér kræla. Við viljum engar "hugmyndir" í okkar góða fyrirtæki og enn síður "framkvæmdir"...
21.7.03
Svenni fer í vöðlurnar hans Skabba spunge og festist í þeim svo það þarf að flysja þær af honum. Við þetta fer Skabbi að gráta og borðar eina silunginn sem María veiðir. Addi frá Pulestínu ákveður að fara einn í einhvern leynihyl og sést aldrei til hans aftur. Kolli setur á stærsta trúðanobblerinn sem hann á og kastar honum í mjöðmina á sér svo han getur ekkert meira veitt. Krummi veiðir alla stóru fiskana og verður hylltur sem veiðikóngurinn!
Hverjir ætla annars að mæta?
Öruggt
Spenar (ekki búnir að tilkynna sig)
Ég og Kolli ætlum að fara á fimmtudagskveld í síðasta lagi.
PS - fasisti smasisti / álftavatn hálftavatn: Ég fór sko með veiðistöngina á Hornstrandir '97 og sleit væna silla upp úr hverri sprænu, steikti þá svo á hellum yfir rekaviði niðrí fjöru og át með lúkunum. Kallar þig veiðifasista - hefðir eins getað veitt í Bankastrætinu, slík er traffíkin.
Ffffuuuuuuusssss
Í síðustu viku og fram á laugardag gekk ég í Laugaveginn svokallaða. Hefðum ekki getað fengið betri veður, sól og blíða allan tíman. Tókum nokkra útúrdúra frá hefðbundinni göngu, kíktum á íshellinn við Hrafntinnusker, fórum upp á Háskerðing og gengum meðfram Markarfljótsgljúfrum. Ótrúlega magnað allt saman. Gljúfrin eru mega-geðveik, 180 metra djúp á köflum. Ég trúi ekki öðru en að kayak-lúðar fá úronum við að sjá svona stað.
Þar sem ég er veiðifasisti varð ég að halda merki FDVV á lofti í ferðinni og tók með mér stöngina, enda hafði ég heyrt að í Álftavatni sé veiði góð og mikil en skálinn sem við gistum í að loknum öðrum degi göngunnar stendur einmitt við Álftavatn. Kom að vatninu eftir 6 tíma göngu og kastaði strax af mér bakpokanum og hljóp niður að vatni. Eyddi restinni af deginum og fram á kvöld við að kasta þurrflugum fyrir smáfiskinn sem í vatninu var ásamt Stebba líffræðifagga. Enduðum með að draga ca. 20 fiska, bleikjur og urriða, flestir á stærð við murtur en þeir stærstu ca. 250 grömm. Að veiðum loknum brytjaði ég niður stærstu fiskana og steikti í smjöri fyrir hungraðan mannskapinn. AMMINAMM! Endaði reyndar á því morguninn eftir að grafa holu og urða restina af fiskunum á meðan ég söng "Circle of life" hástöfum. Ekki fallega gert en ég held að ég hafi ekkert farið of illa með stofninn. Get ekkert sagt mér til málsbóta annað en að ég er er greinilega minkur í bland við veiðifasista. Þriðji dagurinn var dauðaganga í gegnum íslenska eyðimörk, brennandi hiti, glampandi sól, svartur sandur svo langt sem augað eygði, ryk, sviti og klístur. Allir brúnir og rauðir eftir sólina, sumir meira að segja með steiktan bakpokabruna eins og svenni var með hér um árið. Komum niður í Emstrur þar sem trúss-hópurinn frá Útivist var að skála í bjór og rauðvíni og skella kótelettum á grillið. Fokkíngs aumingjar! Bara hardcore crew rogast með draslið sitt sjálft alla leið, fær engan bjór og ekkert rauðvín, einu verðlaunin sem við fáum er enn ein núðlusúpan. Síðasti dagurinn var gargandi snilld ein og allir hinir dagarnir. Laugavegsmaraþonið var þann dag, þegar við vorum búin að labba í tvo tíma fóru gaurar að taka hlaupandi framúr okkur. Ég tók að mér hlutverk hálfvitans sem öskraði á eftir hverjum einasta keppanda " Þú átt ekki séns, hinn gaurinn er langt á undan þér!" eða "Run Forrest Run!" Fíbbl.
Komum niðrí þórsmörk um 5 leytið á laugardaginn. Um leið og við gengum inn á tjaldstæðið í Básum fóru að heyrast fjarlægar drunur og skömmu seinna brast á alvöru þrumuveður með eldingum og látum og algeru skýfalli! Magnað, mar sér þetta ekki oft á Íslandi. Í mörkinni beið okkar fríður flokkur sem flutti okkur bjór, tjöld, hrein föt, grillmat og bjór. Ég tók strax til við að hella í mig bjórnum, restin af kvöldinu er í hálfgerðri þoku, man samt eftir geggjuðu grilli, meiri bjór, bakkardí af stút, kvennagönguklúbbnum Stíg, lúðar í sleik, kúkabrandarar og gott grín.......súrasta þynnka ever og gallsúr í bílnum heim.
Frábær ferð í alla staði, bara snillingar hafa vit á að taka sér frí þegar hitabylgja gengur yfir landið.
Eru ekki annars allir í stuði fyrir Gobbabúðir 2003 um næstu helgi!? Ég spái því að ég eigi eftir að veiða flesta og stærstu fiskana! je!
En ef þið hafið lesið Hringadróttinssögu (annars pota í auga)...
Ef þið nennið að pæla í þessu er svosem fullt af öðru stöffi sem ég hef verið að velta fyrir mér í sambandi við þetta...
Djöfull verður svo atriðið með draugahernum örugglega flott í myndinni.
Á föstudaginn keyrði ég með Ásu upp á Leirubakka í Landsveit þar sem hún var að vinna að rannsókn fyrir Bs. verkefnið sitt. Word of mouth marketing. Það virkar svona; A:"Hei - þessi bjór er geðveikur." B: "Vá, kúl. Ég ætla að fá mér eins."
Ása fór á hestbak þarna um kveldið, henni finnst það voða gaman, og á meðan lenti ég í fullu íslensku pari. Þau voru í lopapeysum, með Tjaldborgartjaldið og alles, alveg rallandi. "Errrriggi prattýýýjjjj?" Með kassagítarinn og allt. Það var samt fínt. Fékk bjór og sígó hjá þeim og svo spurði gaurinn, sem var búinn að vera showing off allt kveldið ægilega tónlistarhæfileika sína (þvergripin og stál og hnífur) hvort ég kynni eitthvað á gítar. "Mar gutlar sona..." Síðan tók ég aðeins í gítarinn og það var nú gaman. Byrjaði á smá djass, svo blús, smá klassík, aðra röddina í sellódúett eftir Bach, Yesterday í klassískri útsetningu, Metallica, Van Halen, slatta af Jimi, Stones og fleira. Kall greyið, maður á ekki að drulla svona yfir fólk fyrir framan gelluna. Hefði átt að glamra bara eitthvað...
Á laugardaginn var 28° hiti í skugga og logn. Ég bar á mig eitthvað sólarkrem en brann samt viðurstyggilega mikið. Kíktum síðan á Úlfljótsvatn að kíkja á Adda, Gumma og crewið. Nýjustu viðbótina í garðinn hans Svenna - múhahaha.
Á sunnudaginn var bara chill, kíktum heim til pabba hennar Ásu sem er home alone og grilluðum svaka fínan kjúlla. Svo í Skotastúkuna hjá Skabba sem var snilld því að leikurinn fór 2-0 fyrir KR, sem er gott, og þar var fríður hópur sveina (engin kjélling því að Kolli mætti ekki) og eina meyja, hún Ása.
Um helgina las ég Hringadróttinssaga: Tveggja turna tal og líka Hilmir snýr heim. Nokkuð vel af sér vikið held ég. Maður þarf eiginlega að lesa þetta allt í einu til að hafa þetta í samhengi. Var náttúrulega huxað sem ein bók. Ótrúlega góðar. Búinn með Hobbit og fyrstu áður. En svakalega er ýjað og mörgu og margt látið ósagt. Er ekki til nein bókmenntaskýring eða pælingabók um Hringadróttinssögu sem þið hafið rekist á? Þarf náttúrulega líka að lesa Silmerilinn eða hvað sem hún heitir.
Horfði líka á Catch me if you can með Tom Hanks og Leo litla DiCaprio. Steven Spielberg er leikstjóri. Tveir leikarar sem ég þoli ekki og leikstjóri sem er fáviti. En merkilegt nokk þá er þetta bara ansi góð mynd og þeir standa sig mjög vel. Fínt handrit og mjög skemmtilega gert allt. Flottur stíll á myndinni, myndatakan mikið í gleiðum skotum sem er frekar óvenjulegt og kemur sterkt út. Líka rosa skemmtileg grafík í byrjuninni, en Tinni og Sissa tóku einmitt mynd af vefnum fyrir myndina og mixuðu boðskort í brúðkaupið sitt.
Letihelgi en afrekaði samt töluvert. Merkilegt.
Það bar þannig til að ég hélt á tvemur sokkum í vinstri hendi og notaði svo hægri hendina til þess að opna annann sokkinn meðan ég smokkaði honum yfir tærnar á mér, þá vildi svo bráðskemmtilega til að hinn sokkurinn læddis með ofaní.
þetta var sagan af því þegar ég í morgun klæddi mig og sokk í sokk.
17.7.03
Meðan veiðifasistinn hefur verið að dýfa færi höfum við Prelli Pu verið að leika okkur með vatnið. Veit að maður á ekki að leika sér með dótið sem maturinn manns syndir um í en svona er það nú bara.
Á þriðjudaginn var saumó. Fórum á Hafravatn og Addi reyndi fyrir sér að weikborda. Ég var settur í ökumannssætið á bátnum hans Bigga og var það hið mesta stuð. Hnéð ekki alveg að meika svona enn. Síðan var farið í land og grillað og drukkið rauðvín á ströndinni. Síðan tóku strákarnir góðan túr á krossurunum fram yfir miðnætti en ég tók upp nafnið Veika hné og var frekar fúll að geta ekki tekið þátt í gleðinni.
Í gær fórum við Pu svo á Þingvöll og tókum kajakana með. Sigldum fyrst yfir til Sindra og í gegnum sprungurnar á leiðinni þangað. Síðan til baka og inn að Valhöll. Sigldum svo eins langt og við komumst upp Öxará og var það stuð. Fórum svo niður hana aftur og inn einhverjar sprungur sem við fundum. Snilld. Síðan aftur niður í bústað eftir 4 tíma róður. Veðrið frábært og hin besta skemmtun. Ég var bara búinn á því í morgun, svaf yfir mig og ætla að fá mér meira kaffi núna.
Pís.
UPDATE: Gleymdi að segja að þegar lognið færðist yfir í gærkveldi byrjaði murtan að vaka eins og vitlaus. Þær hoppuðu svei mér þá bara næstum allar upp úr vatninu. Það er slatti af flugu þarna og maður var að sjá 10 stykki koma hálfar upp í einu á smá bletti. Kraumar af þessum tittum þarna...
15.7.03
Starfandi meðlimir Fasistadeildar Vonlausa Veiðifjelagsins fjölmenntu að bökkum Elliðavatns í gærkvöldi í þeirri veiku von að hægt væri að draga þar bein úr sjó. Starfandi meðlimir FDVV eru aðeins einn, ég. Mætti á svæðið upp úr níu, ætlaði að kaupa leyfi í Elliðavatnsbænum en þar sem enginn var heima sá ég þann kost einan í stöðunni að drífa mig í döðlurnar og veiða þar sem enginn sæi til mín. Keyrði að austurenda vatnsins, þar sem það kallast Helluvatn. Austan andvari og e-nvegin ekkert sérstaklega líflegt í vatninu. Sá þó eina gáru á yfirborðinu á meðan ég talaði við Sindra í símann og við það lifnaði aðeins yfir manni. Setti þurrflugu undir og dúndraði henni út á vatn í allar áttir. Varð ekki var. Færði mig yfir að lítilli vík sem var í skjóli fyrir vindi. Þar sáust nokkrir hringir á yfirborðinu og hugsaði ég mér gott til glóðarinnar. En sama hvað ég reyndi og hverju ég kastaði, allir viku fiskarnir sér fimlega undan, hnusuðu ekki einu sinni af því sem ég bauð þeim. Ég færði mig til nokkrum sinnum, kastaði hingað og þangað, púpum og þurrflugum en ekkert gekk. Svo allt í einu þegar ég var alveg búinn að gleyma að ég væri einu sinni að veiða, stóð bara og góndi út í loftið, kom högg á línuna, ég brá við, festi í og landaði eftir litla og hálfauma baráttu fallegri pundsbleikju.
Um þetta leyti var dottið á dúnalogn um allt vatn og þá færðist fjör í leikinn. Maður sá fiska vakandi og stökkvandi út um bókstaflega allt vatn. Ég lýg því ekki, það voru þvílík læti allt í kringum mig, litlir fiskar og stórir að háma í sig e-ð í yfirborðinu. Græðgin var hvílík að stundum sá maður bleikjur koma eins og hákarla upp á yfirborðið, bara eins og í JAWS! Það var geðveikt! Eina sem vantaði var að þær litu e-ð við flugunum mínum. Aftur kastaði ég öllu sem ég átti í þær en var ekkert var það sem eftir lifði kvölds. Veiddi til miðnættis, þá var aftur farið að gola aðeins en maður sá ennþá fiska skvetta sporði hér og þar um vatnið.
Flott kvöld og á köflum gersamlega magnað. Hefði verið ákaflega frústrerandi samt ef ég hefði ekki fengið þennan eina fisk.
Minni á að eitt pláss er laust til umsóknar í FDVV sökum forfalla. Reglur deildarinnar eru einfaldar, fara að veiða eins oft og mögulegt er, vakna alltaf snemma og kaupa aldrei hrísköku.
vísundavefurinn
14.7.03
Skabbi var að tala um að durrinn sem seldi ykkur veiðileyfi hefði tekið 120 minka í fyrrahaust upp við vötnin. Mér skilst að þetta sé komið í 3.000- kall stykkið - það er 360 þúsund kall. Ekki slæmt. Í fyrra gaf rebbi 7 þús. En ég fíla samt rebba - langar ekkert að skjóta hann. Helvítis minkurinn er skaðvaldur, mikið væri ég líka til í að eiga orð við landbúnaðarforystu hálfvitana sem fluttu þennan varg hingað inn og slepptu honum.
Nema hvað - kaupum minkabú á slikk, ræktum mink, seljum skottin, látum hina minkana éta þá sem við drepum og allir fá lítið hamstrahjól með dýnamó til að skaffa rafmagn fyrir ljós og hita. Snilld.
Jjjjjjjjjesss - við erum komin með almennilega kaffivél í vinnuna. Núna er sko Café Au Lait og Espresso í morgunmat, hádegismat og kveldmat. Náttúrulega líka í - ehhh - kaffinu...
Þið eruð lúðar sem drekkið rasspisshommakaffi
...og Kolli er iggaf
13.7.03
Prýðileg sillaveisla - Dindri slappur að mæta ekki og Gírnir arfaslakur að beila án þess að láta vita. Annars gæddum við okkur á prýðilegum humri og silla úr Kíbstaðaós og Arnarvatnsheiði. Einhverjum þótti það ekki nógu fínt og átu búrger.
Annars var þetta bara tíðindalítið, Addi sofnaði reyndar og kom því of seint í veisluna. Skabbi stóð sig eins og hetja og var eini veiðifasisti helgarinnar. Fór meira að segja út að fiska þegar allir voru sofnaðir í fylgd Khára. Kobbi varð drullurullluf og fór að troða helvítis 80's metal einhverjum upp á partýiið ítrekað, en ekki kunnu allir að meta það. Ég ætla að mæta með Kenny G næst og gá hvað honum finnst.
Annars var toppurinn án efa fín bátsferð sem við tókum á sunnudeginum ég, Addi og Spunge feðgar. Kíktum út í eyju sem Kjartan skírði Kjartan - mjög gott. Síðan fengum við bátinn hans Bígó lánaðan í 10 mínútur og þeystum um allt vatnið og nærsveitir á augabragði. Snilldargræja.
Frábær ferð, það fannst mér allavega...
11.7.03
Ég styð fjölskylduferð vonlausa heilshugar, það ætti ekki að vera ómögulegt að fá Djúpavatn aftur á sama hátt og síðast, bara að gera Tjörva að erindreka, þar sem ég sjálfur verð ekki á landinu þegar salan hefst. Vera þá heldur ekki svo miklir sekkir að klúðra því að muna eftir þessu.
Ég fór annars í klippingu í gær hjá frænku minni sem er klippingarína og leyfði henni alfarið að ráða klippingunni minni. Hárið er styttra, vissulega. En ég skil ekki af hverju hún klippti mér lesbíuklippingu. Ég ætla samt að bera þetta í nokkra daga og gá hvernig hún reynist.
Það eru allir hommi nema ég.
-jæja þá er það skjalfest.
Félagar mínir í undanförunum hjá Ársæli (einhverjir hafa nú hitt Freysa amk.) eru að fara á Khan Tengri sem er 7010 m fjall núna næsta mánuðinn. Frekar fúlt að sitja heima með böstað hné og geta ekki labbað út í búð. Ég veit nú ekki hvort að maður hefði meikað það upp á topp en gaman að tékka á þessu engu að síður. Þetta er ansi strembið fjall, langar að byrja einhverju af þessu minna dóti, Mont Blanc, Matterhorn, Aconcagua, Huscaran, Island Peak (sem Himmi og Jón Heiðar fóru á) og taka svo eitthvað massívara.
Skabbi - maður í eitthvað háfjallamauv næsta sumar?
KíBstaðarósinn virðist vera að koma sterkur inn:
11. júlí: ...og þeir eru fallegir boltarnir úr Baugsstaðaósi!
5. júlí: Hörkufínir fiskar eru í Baugstaðaósi, en þar gekk fiskur fyrst í vikunni leið. Veiði hefur ekki verið tiltakanlega mikil, þrír 5-6 punda komu á land í gær.
Tekið af www.flugur.is
5. júlí: Hörkufínir fiskar eru í Baugstaðaósi, en þar gekk fiskur fyrst í vikunni leið. Veiði hefur ekki verið tiltakanlega mikil, þrír 5-6 punda komu á land í gær.
Tekið af www.flugur.is
10.7.03
Nú eru meðlimir vonlausa sífellt að hlaða niður krökkum út um allar trissur. Er ekki málið að halda einhverskonar fjölskylduferð t.d. einu sinni á ári á einhvern barnavænan stað? Djúpavatn var t.d. helvíti fínt upp á þetta að gera, stutt og svona. Kannski full lítið hús. Taka þá með krakka og kjéllingar á borð við Kolla...
Egilsstaðir - Seyðisfjörður 34 km 27 km
Leiðin lengist með jarðgöngum
En Hallgrímur Þroski er svo sannarlega faggi. Helst vona ég að hann verði bara í Hommafirði af því að hann er svo leiðinlegur og kann ekki að elda. Hver veit - kannski ætla hann og Sindri eitthvað að dunda sér um helgina meðan við verðum í góðu geimi að rífa upp risa durriða...
Svo að öðru, Sindri er svikari og júdas.
Eitt annað, hefur einhver talað við Gírni þroska? Ætlar hann loksins að brjótast úr Hommafirði eða ætlar hann að loka sig inni áfram?
Meira um jarðgöng
Það fer óheyrilega í taugarnar á mér að 1) það skuli eiga að byggja göng frá Sigló til Ólafsfjarðar, 2) vælið í landsbyggðarliðunu og kröfurnar 3) ekki heyrist rassgat í Reykvíkingum eða þeirra þingmönnum, við stöndum engan veginn saman sem einhver kröfuhópur 5) að göngunum var svo bara frestað í eitt ár en ekki feykt út í hafsauga 6) að það er verið að byggja göng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar.
Hvað svo? Vaðlaheiðin?
9.7.03
1) Snilldar plan, reyni að mæta!
2) Snilldar plan, reyni að mæta!
(ekki nema þú sért með pro-blogger eða eitthvað svoleiðis, þar sem maður getur bloggað fram og aftur í tímann!)
8.7.03
2) Löngu orðið tímabært! Ég mæti, 25.-27. og ríf upp laxana!
1) Sillaveisla + tollur um næstu helgi. a) Casa Kobbi b) Þingvellir í Placé du la Pork + stangveiði og jafnvel má kíkja út á bát. Boðið upp á gistingu...
2) Næsta veiðiferð VV - við eigum vikuna 22.-29. júlí á Kobbabúðum. Ég er að spá í að vera í fríi eitthvað þarna - hvað segja menn um að kíkja í feita ferð vestur með konunum, grill, chill, fullt af sill og jafnvel stórlaxar?
1. Fara á www.google.com
2. Slá inn: weapons of mass destruction (engar gæsalappir)
3. Velja "Vogun vinnur, vogun tapar" (eða "I'm feeling lucky")
Gott að við erum ekki bændaþjóðfélag lengur, mér finnst kúgalygt svo vond...
Skoða
Þetta eru fornmynjar sem ekki mega glatast!
7.7.03
Þrátt fyrir fiskileysið og haglél dauðans.
Drifum okkur eftir þetta niður að Campi aftur þar sem sest var að frekari bjór- og brennivínsdrykkju og galtaráti. Kolli og hans krú höfðu ekkert fengið af fiski heldur enda var þar stífur vindur eins og annarsstaðar og leiðinlegt að veiða.
Sátum að sumbli e-ð fram eftir nóttu, við dindri fórum að sofa milli 12 og 1 en ákváðum að einstæðum fasisma að vakna klukkan 5 og veiða fram á morgun. Ótrúlegt nokk var það Sekkurinn Sjálfur sem vaknaði og reif mig á lappur og má það tíðindum sæta að hann vakni á undan einhverjum öðrum í útilegu, hvað þá um miðja nótt. Við tróðumst út á grjótkarðinn í austan garra og hófum að þenja köstin. Urðum ekkert var en þegar ég var að spóla inn línuna til að pakka saman og fara í land tók hlussubleikja trúðaköttinn minn nokkra metra frá mér. Við tók stutt og sérkennileg barátta þar sem fiskurinn virtist varla hafa tekið eftir því að hann var með öngul í kjaftinum, þumbaðist bara niðri við botn og gerði sig ekkert líklegan til að straua af stað. Eftir nokkrar sekúndur bylti hann sér þó og snéri og við það losnaði flugan úr honum. ANDSKOTINN!!! Negldur í sömu spor kastaði ég nokkrum sinnum í viðbót og eftir skamma stund, þegar ég var að toga köttinn upp úr vatninu rétt fyrir framan nefið á mér koma aftur fiskur úr djúpinu og stökk á fluguna í yfirborðinu. Sú barátta stóð heldur ekki lengi yfir því eftir 2-3 sekúndir skaust flugan uppúr vatninu eins og fiskurinn hefði hrækt henni útúr sér. FOKKÍNGS TUSSU HELVÍTI!!!!!
Héldum í landi skömmu seinn, ég gersamlega bugaður af harmi og Sindri furðu lostinn. Til að kæta okkur aðeins gengum við fram á rebba í flæðarmálinu. Sá var ekki smeykur, rótaði upp fiskislógi í fjörunni og virstist vera skítsama þó að við stæðum 10 metra frá honum og góndum á hann eins og naut á nývirki. Skokkaði svo í burtu eftir nokkrar mínútur eins og hann væri aleinn í öllum heiminum.
Við gengum út að Typpasteininum, reyndum nokkur köst en skemmtum okkur meira við að horfa á himbrimann baða sig.
Lögðum okkur aftur um 8 leytið og þegar við fórum á lappir aftur voru Kolli og konurnar búin að pakka saman og farin.
Við tókum saman draslið okkar, smökkuðum gölt í morgunmat og ókum svo af stað.
Rétt áður en við fórum renndi að vatninu makrílgengi í Kraftgöllum sem spurði frétta. Við sögðum þeim hvar væri hægt að kast að pössuðum okkur að segja þeim ekki frá Typpasteininum. Vonum við báðir að þeir hafi snúið aftur með makrílinn að kafi í gorunni, og fái hringorm í rassgatið.
Renndum á heimleiðinni að Stóralóni en komumst að því að hægt er að vata yfir allt vatnið á gúmmískóm þannig að við drifum okkur bara niðrí byggð, köstuðum kveðju á durrann á Augastöðum og brenndum í bæinn.
Eins og fyrr sagði voru væntingarnar til þessarar ferðar orðnar skyhigh fyrir löngu síðan og ekki er hægt að segja að ferðin hafi staði undir þeim. Fyrir mitt leyti verð ég samt að segja að ég naut hverrar mínútu af ferðinni þó að lókal djókar og bjórdrykkja hafi stundum skyggt á veiðina.
Lókal djókur ferðarinnar: ef þú heldur í þér of lengi gæti komið að því að e-r þurfi að kraka í rassgatinu á þér með skrúfjárni til að losa um!
Hvenær eigum svo að éta fiskana? Legg til að við grillum þá sem allra fyrst!
Ferðin mikla fyrri hluti
Loksins, loksins kom að ferðinni sem við vorum búnir að bíða eftir frá því í júlí í fyrra. Ferð sem við vorum búnir að hlakka svo mikið til að við vorum búnir að margjinxa hana.
Lögðum vaskir af stað, Ég, Dindri og Golli eftir vinnu á fimmtudag. Ég get bætt því við að ég var svo spenntur að ég gat varla unnið á fimmtudeginum og Kolli var svo spenntur að hann tók sér frí. Rúlluðum útúr bænum milli 7 og 8 eftir að hafa gersamlega troðfyllt bílinn af drasli. Stoppuðum í mosó á leiðinni útúr bænum til að kaupa í matinn. Ákváðum að fyrst svenni kæmist ekki með gæti hann allavega verið með í anda þannig að við keyptum fátt annað en beikon og svínakótelettur. Ætluðum okkur svo sannarlega að smakka gölt í öll mál, sem við og gerðum.
Eftir innkaupaleiðangurinn lá leiðin upp í Borgarfjörð þar sem ég fyllti bensíntankinn og KÍB fyllti frettankinn. Hyrnuvibbinn virtist fara beint úr föstu formi í gas í belgnum á honum að hann rak við eins og fýsibelgur það sem eftir var ferðar. Ef hætta var á ferðum eða spenningur í lofti mátti bóka að KíB þrumaði einni bombu út til að magna upp stemminguna
Eftir vibbann í Borganesi lá leiðin á durrafund, n.t.t að Augastöðum í Reykholtsdal. Þegar við renndum í hlað voru hestar að ríða á hlaðinu, í orðsins fyllstu merkingu. Mjög huggulegt. Dindri vildi endilega hlaupa út og múna á hestana en sem betur fer var barnalæsing á hurðinni. Durrinn var alveg magnaður, á júmbójeppa með riffil og haglara í aftursætinu. Rukkaði okkur reyndar morðfjár fyrir veiðileyfi.
Eftir stutt stopp í Húsafelli þar sem tveir ferðafélagar losuðu sig við Hyrnuborgara á mettíma lá leiðin loksins upp á heiði. Festum bílinn næstum því í Norðlingafljóti því Sindri rak við af spenningi þannig að það leið næstum því yfir bílstjórann. Tveggja tíma brölt skilaði okkur að leynistaðnum okkar og ekki sála sjáanleg við allt vatnið. Affermdum bílinn, skelltum upp tjaldbúð og tókum til við bjórdrykkju. Fengum okkur smá labbitúr út að lítilli sprænu sem rennur í vatnið. Fyrsti fiskurinn kom á land í sprænunni, 5 gramma bleikjuseiði sem tók svartan killer númer 8 og var flugan sjónarmun stærri en fiskurinn. Þegar klukkan var farin að ganga 5 datt á dúnalogn. Vatnið varð spegilslétt og fiskar að vaka um allt vatn og alveg upp við bakkann. Tókum nokkur köst fyrir svefninn en fengum ekkert. Ég vaknaði fyrstur manna milli 9 og 10 morguninn eftir. Þar sem það var ennþá snilldaveður dreif ég mig út á nærbrókinni til að veiða. Settist á stein við vatnsbakkann og kastaði þurrflugi fyrir bleikjutitti. Eftir smástund og nokkra titti sem allir fengu líf komst ég að því að ég hafði sest á minkagreni og voru íbúarnir að skríða á lappir. Minkamamma var ekkert allt of sátt við mig en hvolparnir virtust ekki kippa sé mikið upp við að maður stæði á húsinu þeirra. Mér leið eins og sannkallaður villimaður sem talar dýramál þar sem ég stóð á brókinni með heila minkafjölskyldu skríðandi milli lappanna á mér. Snéri mér samt fljótlega að veiði aftur, setti í nokkra titti og eina sæmilega bleikju sem var eini fiskurinn sem ég drap. Ákvað að svo stöddu að fara að vekja strákana sem ég ímynda mér að hafi verið að nota tækifærið til að hommast á meðan ég var í burtu. Fréttir að aflabrögðum drifu strákana á labbir eins og gorma.
Eftir að hafa smakkað smá gölt héldum við allir að Typpasteininum svokallaða þar sem jafnan hafa verið hvað best fiskimið. Rifum upp smáfiskinn á litlar púpur af ýmsum gerðum en þar sem við ætluðum bara að koma með stórfiska í bæinn var þeim sleppt jafnharðan. Ákváðum eftir smástund að fá okkur göngutúr út að affallinu og reyna að finna stórfiska þar. Semmst er frá því að segja að við urðum ekkert varir við fisk allan daginn. Þar sem í fyrra voru fengsæl mið var nú alger ördeyða. Hittum þrjá kalldólga sem voru að koma upp ána en höfðu lítið fengið. Um kaffileytið skall á því líkt bylmingshaglél að ég hef aldrei lent í öðru eins. Eftir það héldum við blautir og hraktir heim í camp.
Efitr að hafa smakkað gölt í kvöldmat og drukkið smá bjór ákváðum við að halda aftur út að Typpasteininum til að reyna hvort ekki fengist þar urriði. Beyttum fyrir okkur straumflugum af ýmsum gerðum og við kolli fengum fljótlega sinn hvorn smáurriðann. Tókum líka nokkrar bleikjur, þar af fékk KÍB eina sæmilega.
Reyndum líka að veiða á Grjótgarðinum svokallaða. Þar setti ég í stórfisk sem spólaði lengst út í vatn, stökk þar allur og hristi sig og skók. Eftir stutta baráttu, sem þó virtist heillöng losnaði hann af og forðaði sér hið snarasta. DJÖFULLINS!!! Eftir stóð ég skjálfandi í hnjánum að springa úr gremju á meða Kolli og Sindri spurðu í sífellu ?Erteggi fúll yfir því að hafa misst stóra fiskinn, hnjehnjehnje?!?
Um miðnæturbil fór heldur að draga af dindra sem skreið inní tjald og fór að sofa. Við Kolli ákváðum að reyna frekar fyrir okkur við typpasteininn fyrir svefninn og tókum þar nokkra bleikjutitti í viðbót. Þegar hér var komið við sögu var orðið útséð að fiskurinn á svæðinu væri ekki ýkja stór þannig að frekar en að koma með ekkert í land drápum við alla þá titti sem við náðum í. Kolli gekk svo út í þokuna til að reyna að finna Krumma, Helgu og Maríu sem áttu að vera á leiðinni til okkar um þetta leyti. Á meðan hitti ég á bleikjutorfu skammt frá landi, dró úr henni nokkra fiska en var þá orðinn svo uppgefinn að ég sá mig tilneyddan til að hætta veiðum og fara að sofa.
Þegar ég kom aftur í Camt voru Krummi og hans krú mætt og voru að tjalda. Ég fór að sofa en vaknaði skömmu seinna við drykkjulætin í þeim bræðrum og kellingum þeirra.
Skriðum öll á lappir um hádegi daginn eftir. Við Sindri ákváðum að keyra upp að Hávaðavatni og fá okkur labbitúr þar á meðan Kretínbræður og konurnar hugðust halda sig við þekkta veiðistaði sem áður eru nefndir. Skemmst er frá því að segja að veiði þennan dag var engin. Veður versnaði til muna þegar líða tók á daginn og um kaffileytið var orðið bálhvasst og öll vötn orðin kolmórauð. Við Sindri gengum stóran hring frá Hávaðvatni niðrað Úlfsvatni og aftur til baka og urðum ekkert varir við fisk á leiðinni. Eftir gönguna vorum við orðnir svo sveittir og klístraðir að við skrældum af okkur vöðlurnar, lögðumst í grasið og fengum okkur bjór. Sáum reyndar fljótlega að þetta leit alls ekki vel út hjá okkur, fötin lágu á víð og dreif í kringum okkur þar sem við lágum hálfnaktir með sælubrosin á vörum og bjór í hönd.
Ég er bara búinn að húka heima með löppina uppi á púða, voða gaman. Hjúkrunarkonan mín er samt frábær þannig að tíminn mjakast. Fékk lánaðan LOTR leikinn á PS2 hjá McRenis. Ekki alveg nógu sniðugur leikur, grafíkin fín en maður kæmist af með að ýta bara ógeðslega hratt á skottakkann í gegnum allan leikinn. Svo var alveg fúlt að klára leikinn, það er ekkert svona gott stöff sem maður fær í endann, bara texti um hverjir smíðuðu leikinn. Mér finnst það algört rippoff. Ótrúlega asnalegt líka að öll secret misson eru eins. Hér eru nokkur tips ef menn hafa áhuga...
Mikið lifi ég spennandi lífi...
3.7.03

Sjá mbl
2.7.03
loksins snefill af skynsemi, vonandi verða allir fluttir frá siglufirði 2006!
Hætt við Héðinsfjarðargöngin (í bili)
Sjá www.gudjohnsen.com

Eiður Smári á æfingu
Eiður Smári Guðjohsen æfði með KR-ingum í síðustu viku. Eiður Smári lék sex deildarleiki með KR sumarið 1998 og tvo bikarleiki...
Sjá heimasíðu knattspyrnudeildar KR
Eiður Smári Guðjohsen æfði með KR-ingum í síðustu viku. Eiður Smári lék sex deildarleiki með KR sumarið 1998 og tvo bikarleiki...
Sjá heimasíðu knattspyrnudeildar KR
1.7.03
Jæja, þá er maður kominn heim með götótt hné. Fór í speglun áðan, hálf steiktur enn eftir svæfinguna og það allt. Fyndið, maður er alltaf fljótari og fljótari að vakna eftir þessar svæfingar. Ég var komin út um eittleytið - ekki að það sé eitthvað voðalega sniðugt.
Beint á Makk, hef reyndar ekki étið þar í meira en ár, en mundi að ég fékk mér mat þar síðast eða þarsíðast og það kom ágætlega út. Sökkar að fasta svona.
Aðstaðan á þessum einkastöfun er ekkert alltof traustvekjandi. Svæfingalæknirinn var með sár á augnabrúninni og svona sauma-strip yfir, eins og hann hefði verið kýldur. Hoppaði út í sígó meðan ég var að koma mér inn á skurðstofu. Síðan setti hann svona ól um handlegginn minn til að fá æðarnar út, og hún var öll í gömlu blóði. Ummmm.
Annars er ég kominn með brjálað trikk til að auðvelda manni að ná áttum eftir svæfingu. Maður er sko soldið ruglaður, t.d. fór ég að rífast við hjúkkuna eftir fyrstu svæfinguna mína um að ég væri ekki búinn í aðgerðinni. Hún benti mér svo á að ég væri í öðru herbergi. Maður vaknar sko um leið og maður var svæfður, eins og það líði enginn tími. Trikkið er að díla við svæfingarlækninn að teikna á hendina á manni OK eða eitthvað þannig. Þá veit maður strax að þetta er búið.
Úff, ég er alveg drulluslappur núna, ætla að hætta tölvubulli og leggjast niður.
PS - Skabbi og Sindri fá miklar þakkir fyrir að segja mér hryllingssögur af svæfingum í gær, t.d. um konuna sem vaknaði í aðgerð og gat ekki látið vita. Thanx guys ;)
Skoða eldri færslur >>

