30.8.03

Finnst ykkur ekkert skrýtið að Spunge hafi ekkert látið í sér heyra frá Noregi? Haldiði að Karen sé að púlla Halim Al? Platar Spunge út undir því yfirskyni að hann sé að fara í nám en segir honum síðan að gleyma vinum sínum, hann fái aldrei að fara aftur heim til Íslands?
::KÍB skeit klukkan 14:04 30.8.03 ::

29.8.03

Eins og Gölturinn er. Þetta verður ekkert mál. Þetta er bara spikaður ótrúlega steiktur göltur, sem sagt pörusnakk. Unninn vara sem tollarinn getur ekkert sagt við.
::H.H. skeit klukkan 16:04 29.8.03 ::

Haldiði að Göturinn komist í gegnum tollinn? Er ekki bannað að flytja hrátt svínakjöt til landsins?
::KÍB skeit klukkan 14:39 ::

Já, en ef þú segir að hann hafi verið kraminn til bana af flugskeyti þá hljómar það eins og einhver hafi misst flugskeyti ofan á hann en ekki skotið því á hann.
::KÍB skeit klukkan 14:34 ::

Það verður að viðurkennast að ég er sammála þér. Fyrst að eyða á peningunum í drasl þá er kannski alveg eins gott að hafa það handónýtt og engum til gagns frá upphafi. Ég endurtek tilboð mitt til að kveikja sjálfur í þessum peningum, tek krónu á 1000 kr. Ætti að koma ágætlega út úr því. Nota síðan ágóðan til að styrkja róna eins ég hef verið að gera. Ég veit að minnst kosti hvað þeir nota bæturnar sínar í og það er fínt að vita til þess að peningarnir manns eru notaðir til einhvers sem manni finnst gott sjálfum. BRENNIVÍN.

Varðandi flugskeytið: Þetta er sennilega málið. Flaugin sprakk ekki. En var fórnarlambið þá ekki kramið til bana eða e-ð í þá áttina?
::H.H. skeit klukkan 14:21 ::

Þetta er alveg rétt, m.v. hvernig vetur við höfum fengið síðustu 3 ár þá er enginn ástæða til að fara út í þessar framkvæmdir.

Mér finnst þetta þó mun skárra heldur en að stækka Laugardalsvöllinn eins og KSÍ er að reyna að þrýsta á borg og ríki að gera. Planið er að eyða 1 milljarði (já, 1000 milljónum) í að stækka stúkurnar þ.a. það komist 12-14.000 manns á völlinn í staðinn fyrir 7.000 eins og nú er. Það er heldur ekki eins og það séu alltaf 14.000 manns á vellinum, það gerist kannski einu sinni á fjögurra ára fresti (ef við drögumst á móti réttu andstæðingunum). Þrátt fyrir að vera mikill knattspyrnuunnandi þá blöskrar mér við að heyra þessar hugmyndir. Knattspyrnuhallirnar eru þó skömminni skárri, þar geta a.m.k. knattspyrnumenn í öllum aldursflokkum æft en á sama tíma mun stækkuð stúka í Laugardal standa ónotuð (eða hálf-notuð) 364 daga á ári (365 í hlaupári).

Af tvennu illu kýs ég frekar að eyða milljónatugum í nýja lyftu enda eru yfirleitt nokkrir dagar á ári þar sem um eða yfir 10.000 manns mæta í fjöllin. Verst er að hvorug þessi framkvæmd útilokar hina og að öllum líkum verður ráðist í þær báðar fyrr en seinna.

Vandi jaðaríþrótta liggur í því að enginn ráðamaður þjóðarinnar stundar jaðaríþróttir og á meðan svo er geta menn ekki búist við miklum skilningi á aðstöðuleysinu. Reyndar held ég að jaðaríþróttir, eins og flestar aðrar íþróttir, eigi erfitt með að standa undir mikilli yfirbygginu. Ég get ekki séð að hægt sé að reka jaðaríþróttahús með hagnaði frekar en að hægt sé að reka skíðasvæði með hagnaði. Ég veit svo sem ekki hvernig gengur að reka klifurhúsið.

Hvað ef flugskeytið springur ekki? Er maður þá skotinn til bana með flugskeyti?
::KÍB skeit klukkan 13:21 ::

Ég vil rukka þetta skíðapakk miklu meira í staðinn fyrir að vera borga þetta fyrir þá. Skíðaíþróttin er að fá alveg geigvænlega peninga miðað við vinsældir. Manni svíður þegar hver fótboltahöllinn er byggð eftir aðra en það er hægt að réttlæta (naumlega) vegna þess hve vinsæll fótbolti er. Nær væri að byggja meiri golfaðstöðu en skíðabrekkur, sú íþrótt er víst númer 2 á Íslandi.

Og hvernig væri að byggja almennilega aðstöðu fyrir jaðarsport á Íslandi. Klifurveggir, skate-rampar, háloftaþrautabrautir, o.s.frv. í stórum flugskýlis-risa límtréshúsi.´

Ég skal alveg taka þessa peningar sem er verið að eyða í Bláfjöll, kveikja í þeim og sturta niður í klósettið. Algjörlega gagnslaus aðstaða sem er ekki að skila neinu nema djöfulsins merkikertum sem þykjast betri en aðrir vegna þess að þeir detta ekki á rassinn þegar þeir renna sér á skíðum.

Af öðru er að þetta að segja að ég heyrði fréttaþul segja í fréttum að Ísraelsmenn hefðu skotið aba-araba til bana með flugskeyti. Skotinn til bana með FLUGSKEYTI. Veit fréttamaður ekki hvað flugskeyti er? Þetta er ekki eins og byssa, maður þarf ekki einu sinni að hitta skotmarkið bara svona í fimm metra radíus. Er maður ekki sprengdur í loft upp með flugskeyti?
::H.H. skeit klukkan 13:07 ::

Það er nú samt miklu betra að kjósa Steingrím J. heldur en þetta fon.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:41 ::

28.8.03

Hinsvegar voru það Sjálfstæðismenn sem borguðu undir stólalyftuna í Vetrarmiðstöðinni á Akureyri. Enda vita þeir að það þýðir ekkert að mennta Norðanmenn þeir kjósa hvort eð er Steingrím J. og þess vegna er betra að þeir leiki sér bara.
::KÍB skeit klukkan 20:16 28.8.03 ::

Þú ert alveg eins og Ísraelsmenn að því leyti að þú ert djöfuls fífl. Nanana-bubu.

Og eins og þú bendir réttilega á eru það kommúnistarnir sem borga þetta. Gott hjá þeim. Meira svona.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:26 ::

Gad dem. Mér skilst að menntunarstig þjóðarinnar fari hríðlækkandi. Hvernig bæta stólalyftur sem við borgum í Bláfjöllum til með að bæta það. Sjálfstæðisflokkurinn er með sömu taktík og Ísraels menn. Ísraelar sjá til þess að menntun og möguleikar til menntunar eru illmögulegir í Palestínu til þess að hryðjuverkamennirnir séu enn heimskari en þeir eru nú þegar og því auðveldara og kostnaðarminna að ná þeim. Sjálfstæðiflokkurinn beitir sömu aðferð, býður okkur bara að leika okkur í staðinn fyrir að mennta okkur. Þannig verður þjóðin ófær til að gagnrýna.

P.s. mér andskota sama þótt að það sé annar flokkur sem stjórnar borginni (í orði). Þetta er bláa höndin sem er að búa til heimskingja.
::H.H. skeit klukkan 16:16 ::

Ný stólalyfta í Bláfjöll
Af skidasvaedi.is
Nú stendur undirbúningur fyrir næsta vetur sem hæst. Unnið er að viðhaldi á lyftum og búnaði. Byrjað er að huga að nýjum framkvæmdum. Meðal stórverkefna ársins er flutningur á Gillyftunni í Bláfjöllum. Sú framkvæmd er hafinn og stefnt að opnun lyftunnar á nýjum stað næsta vetur. Ný stólalyfta í Kóngsgili fer í útboð í haust. Stefnt er að uppsetningu hennar næsta sumar (2004) Skoðaðir verða möguleikar á 4 sæta og 6 sæta lyftum. Með tilkomu nýrrar stólalyftu með flutningsgetu frá 2.500-3.500. manns á tíman í stað 1.200 með þeirri gömlu má segja að öll aðstaða gjörbreytist og raðir ættu að heyra sögunni til. Í Skálafelli er hafinn undirbúningur samkeppni um hönnun nýs þjónustuhúss. Þá er stefnt að því að endurnýja stólana í lyftunni í Skálafelli að hluta eða öllu leyti fyrir næstu vertíð.


Hmm - er ekki hægt að fá ný fjöll frekar?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:02 ::

Árni hamstur er snillingur. Hann tók líka myndir af Foo. Skoðið líka restina af myndunum hans.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:20 ::

Hér er KÍB!
::KÍB skeit klukkan 10:22 ::

27.8.03

Foo Fighters rokkuðu eins og halalausir hanar
Magnaðir tónleikar. En áður en ég tala um FF ætla ég að minnast aðeins á upphitunarböndin.

Vín(g)yll(inæð)
Sko - mér finnst virðingarvert þegar menn eru að gera tónlist, sérstaklega ef þeir hafa eigið sánd og svona. En kommon stárkar - hvað voruð þið að gera þarna? Algjörlega óviðeigandi hljómsveit. Svo hef ég bara alls ekki smekk fyrir þessu bandi þó að aðrir hafi það kannski. Þeir sökkuðu. Svo var lélegt gítarsánd, heyrðist of lítið í hljómborðinu framan af. Slappt heildarsánd. Ekki þéttir. Öll lögin voða svipuð. Mér fannst þetta hrikalega slapp og algjört turnoff. Heitir víst Kári gaurinn sem ber ábyrgð á þessu rugli. Hvar voru Brainpolice, Sign, Mínus eða Búdrýgindi? Eitthvað kúl rokk hérna takk.

My Morning Jacket
Ótrúlega skondin grúppa. Þungarokkarar með hárið, flying V gítar og allar græjur en eitthvað 70's bítlasánd. Heví góðir. Voru þyngri en á diskunum sínum, bíó lýsir þeim sem mitt á milli Neil Young og Flaming Lips á upptökum. Það er nokkuð góð lýsing. Flottir gaurar. Það var víst bara til eitt eintak af einum disk með þeim í þegar bíó tékkaði. Þannig að það er bara KaZaA.

Smelltu til að sjá stærri

[Dave ásamt forsprakka Nilfisk]


Sko...
Þegar tónleikarnir áttu svo að hefjast kom Dave Grohl á svið og fór að segja frá því að það hefði verið svo voða nice á mánudaginn að fara í Bláa lónið (I'm a fucking tourist man) og að éta humar á Stokkseyrarbakka (það er líka snilld). Maður var að hugsa - jæja, á að fara að sleikja helvítis Íslendingana aðeins upp. En þá kom surprise. Þeir höfðu heyrt rokk í bílskúr, búnir að drekka fullt af brennivíni (DG var í brennivínsbol ;) og gengu á hljóðið. Hittu fyrir 15 ára? töffara í Nilfisk sem voru í djammsessjóni. Dave skellti sér á trommurnar og tjúttuðu þeir saman í smá stund. Svo sagði hann sem sagt Nilfisk að þeir væru töffarar og að þeir mættu taka 1 lag á undan FF sem þeir og gerðu. Fínt hjá strákunum með svona litlum fyrirvara og maður heyrði hvað er mikið killer sánd í trommusettinu hjá FF.

Gaddem - þetta er það sem mann dreymdi nú alltaf um að gerðist, vera á tónleikum og gítarleikarinn myndi handarbrotna eða eitthvað. Ég æfi meira að segja alltaf lög með böndum sem ég er að fara á tónleika með bara til öryggis ;) Heppnir strákar.

FF
KEYRSLA, GEÐVEIKI, RRRRRROOOOKKKK. Þetta voru alveg rosalegir tónleikar. Þvílíka og aðra eins keyrslu hef ég ekki heyrt. Þeir negldu beint á milli laga fyrstu 7 lögin, ekki orð og gáfu liðinu ekki einu sinni færi á að klappa. Geðveikt. Þvílíkt úthald, þvílíkt sánd, þvílík lög, þvílíkar útsetningar. Vaaaaa. Þeir hafa greinilega lagst yfir stöffið sitt og gert tónleika útsetningar. Allt þyngra og hrárra, fullt af skemmtilegum breikum, halftime, litlum fléttum og smáhlutum. Til dæmis voru þeir að leika sér með skemmtilega með rólega kaflann í For all the cows. Hann er ótrúlega töff.

Smelltu til að sjá stærri

[Rokkið í hámarki]


DG er gríðarkraftmikill söngvari og performer og helvíti lúnkinn spilari. Er oft á tíðum að spila flókin riff og djöflast. Reyndar er það mjög töff að þeir eru í töluverðri leikfimi með raddanir á milli gítaranna og oft bassans líka.

Nate Mendel er bassaleikarinn og er hann frekar rólegur gaur að bassaleikara sið. Alveg solid og þéttur.

Taylor Hawkins, afi hans Stephen W. Hawkins, spilar á trommurnar. Hann er brjálaðasta græna bóla stól sem ég hef séð, amk. miðað við þyngd. Hann hélt út prýðilegri blöndu af raw power, ógeðslega kraftmikill spilari, við ansi mikla tækni. T.d. að spila Low, sem er helvíti tæknilegt lag á trommur, á full blast eftir 10 önnur lög án þess að hafa tekið 1 sekúndu í pásu er magnað.

Chris Shiflett er drullugóður gítarleikari, tók m.a. afar skemmtilegt djamm á móti munnhörpuleik félaga þeirra sem steig á svið. Hann er með fetish fyrir Gibson gítörum og var líka með flying V. Magnaður spilari, kemur svona með tæknifíneseringuna til að bakka upp ofsann í DG.

Djöfull öfunda ég þá líka að vera með sjálfvirka tjúnera. Nice að þurfa ekki að stressa sig á þessu.

Nema hvað - þeir tóku alls 17 lög sem er gott, spiluðu non stop í 2 tíma og voru allir fucking frábærir. Geðveikir tónleikar og vel peninganna virði. Fara í flokk með Pink Floyd tónleikunum sem ég fór á í Gautaborg. Allir sem fóru ekki eru fífl. DG var líka í svaka fíling og sagðist fíla landið og ætla að mæta aftur. Orðrétt: "Iceland is fucking cool and shiiiit."

10.000 rokkstig af 5 mögulegum.

  • Heimsa Foo - svaka fín
  • Myndir og setlistinn úr Höllinni - snillingar

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:00 27.8.03 ::

    Ég var á Foo Fighters í gær, mætti seint og missti alveg mátulega af Vínil og því miður líka MyMorningJacket, hefði viljað sjá þá. Það var skemmtilegt að horfa yfir gólfið og sjá þetta undarlega landslag hausa sem svamla um meðal annarra hausa. Athyglivert einnig að sjá reyki stíga upp af þessu höfðahafi, suma þeirra þétta og grænleita. Þegar ég stakk mér svo sjálfur til sunds og tók þátt í þessari mannakássu var reykarlyktin á stundum megn. Ég hef ekki orðið var við svona mikið smaug síðan á Burning Spear tónleikunum á Hróarskeldu.

    Mikið þykir mér FF vera göfugir að bjóða litlu strákunum í Nilfisk að spila með sér.
    Fokk hvað FF rokka feitt og keyra áfram, íslenskar haldaræðu-milli-laga-og-þykjast-þurfa-að gera-eitthvað-við græjurnar-sínar-hljómsveitir ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar. Enda hef ég sjaldan lent í jafn þéttu moshi, vont var að fyrir aftan mig var á tímabili einhver djöfulsins væskill sem kleip alltaf í síðuspikið á mér þegar hann var að detta, verst þykir mér að hann skuli hafa náð taki! Og togaði alltaf í bolinn minn þannig að nú er ég með klíptrúðakíbför á síðunni og nuddsár í handarkrikanum eftir bolatogið. Svo þegar af volki var komið nóg létum ég og félagi minn fleygja okkur yfir handriðið, því það var auðveldara en að berjast gegn straumnum út. Þar gerðist það að meðan tveir fílelfdir menn reyndu að tosa mig uppúr þéttrikássunni klemmdist hún um lappirnar á mér og mér varð hvergi hnikrað og hékk ég á fótunum út úr mannkássunni og varð að snúsmokra mér lausum.
    Mér varð einnig hugsað til lagsins Gay not gay, merkilegt hvernig gott rokk bindur karlmenn þeim bræðraböndum að þeir geta legið þétt upp að hvejum öðrum, sveittum, öskrað og nuddast án þess að slást eða fundið til árásar á kyn sitt, reyna svo af lífs og sálar kröftum að teygja hendurnar til rokkgoðsins (sem einnig er karlmaður).

    Svo að lokum keypti söngvarinn salinn með lofi um land og þjóð og lofaði endurkomu.
    Nú vil ég meina að hafi hann þetta eftir einhverstaðar annarsstaðar þá er af því meiriháttar landkynning. Á þann hátt stunda tónleikahaldarar magnaða landkynningu, einkaframtak rúlar. Meðan stjórnvöld virðast reyna sitt ýtrasta til að eyðileggja það góða orð sem einstaklingar hafa getið Íslandi og íslenskri þjóð erlendis.

    Fólk er líka fífl, sem ég gekk að bílnum eftir tónleikana ennþá með ílandi everelong í eyrunum gekk ég framhjá Selfyssingatorfu sem stóð við bílana sína og voru að skipta um föt, og blöstuðu Brittney Spears eða einhvern álíka grút á XV-pv bassmaster 3007 græjunum sínum. Þeir skulda mér heiðarlegt Everlong íl.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 10:50 ::

    26.8.03

    Það er fleiri sem hafa látið Gölla Pepp fara í sínar fínustu. Tékk it át: sminkur. Sjáið hvað hann Pär Lindh segir.
    ::H.H. skeit klukkan 21:19 26.8.03 ::

    Þú ætlar sem sagt að kjósa sjálfstæðisflokkinn í framtíðinni?

    En annars er ég sammála þér með Rodney Mullen, gaurinn er faggi sem getur ekki rassgat.

    Hvenær ætlar Svenni Pepp að þegja og hætta bögga okkur með þessum hetjusögum af sjálfum sér? Hann og Steini voru reyndar mestu mátar einu sinni þannig að það er kanski ekkert skrýtið að þeir séu báðir jafn skemmtilegir og hafa góða frásagnarhæfileka um áhugaverða hluti.

    Hvar er KÍB!
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 19:03 ::

    Rodney Mullen er faggi. Getur ekkert.

    Hvað um það, fór í flamerbío í gær með Skrítni. Sáum sjóræningjamyndina. Massaflott og drulluskemmtileg. Kolli rasspíka þorði ekki í flamerbíó vegna þess að hann er tzélling.

    Sagði Kolla söguna af því þegar Karrison traumatiseraði mig seinasta laugardagmorgun á MSN. Læt hana fylgja með.

    Ég og Gölli sátum sótölvaðir að háma í okkur vöfflu fyrir framan Hreðjardóm þegar lögmaðurinn sér okkur og til að vinna inn stig í framtíðinni þá fer hann að tala við okkur. Eftir að hafa fylgst með munninum á honum hreyfast í nokkra stund þá skildist mér að hann væri að fara þannig að ég sagði bless. Þá gekk ódámurinn framhjá mér og klappaði mér föðurlega á kollinn sem skilnaðarkveðju. Hvað í ósköpunum veldur því að menn verða svona geðveikir, klappa fullorðnum mönnum sem þeir þekkja ekki neitt á kollinn. Heldur greinilega að hann sé næsti arftaki Davíðs Landsföður. Ég veit hvað ég strika út af öllum kjörseðlum í framtíðinni (lélegasta hefnd sögunnar).
    ::H.H. skeit klukkan 16:53 ::

    Kúl vídjó
    Rodney Mullen er wicked. Enda uppáhalds gaurinn í Tony Hawk. Geðveikt skemmtileg trikkin hans. Gott vídjó.

    Svo má geta þess til fróðleiks fyrir Kolla að ég synti 1000 metrana á hálftíma og bætti svo 200 við upp á djókið.

    Dagbókin hans Kolla
    1. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    2. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    3. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    4. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    5. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, drekka bjór, sofa
    6. jan. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    [...]
    26. ágú. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    23. ágú. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, drekka bjór, sofa
    24. ágú. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    25. ágú. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa
    26. ágú. 2003: Vakna, vinna, kúka, éta, sofa

    Hvernig er hægt að keppa við mann sem lifir svona spennandi lífi?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:13 ::

    Vá hvað ég skildi ekki þennan brandara.

    En að öðru sem ég gleymdi að minnast á, hverskonar þroksaheftur mongólídi segir 'Afar hressandi allt saman'???

    Og svo að allt öðru, ég er að fara veiða í Grenlæk næstu helgi og ætla að veiða risa fiska. Veiðigagnagrunnurinn er líka að komast á laggirnar og nú vantar mig bara kíb til að við getum klárað dæmið. Svenni er allt of heimskur til að mega vera með.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:45 ::

    Hahaha - djöfull er fyndið hvað maður þarf lítið að dissa Kretín til að hann fari í fýlu og skrifi á vefinn. Eða ætti ég að segja Herra Karrison Óttarsson?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:38 ::

    Svenni pepp
    Gölturinn er farinn að minna óþægilega mikið á Steina pepp með þessum sögum sínum hvað hann er duglegur að hjóla, hlaupa og synda. Gerðu það nú fyrir okkur og gerðu þína eigin heilsusíðu þar sem þú getur montað þig af þessum aumu afrekum þínum og höldum vonlausa sem veiðivef ekki hlaupandi galtarvef.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:31 ::

    Hvar er Sindri slímugi skoti? Hann hefur ekki sést í lengri tíma. Er hann ennþá að strokka eftur 4:0 á sunnudaginn?

    Kíkti út að hlaupa í gær, 5 km á 27:45. Það verður bætt til muna þegar hlaupaþol kemur. Svo er sund í hádeginu, stefnan að taka svona 1-1,2K. Afar hressandi allt saman.

    Kolli er hvolpurinn hans Krumpa
    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:48 ::

    25.8.03

    Djís - ég ætla að ítreka þá bón okkar að þú haldir hommaklámmyndasafninu þínu fyrir sjálfan þig pervert.

    Annars fór helgin aðallega í tómt rugl. Lenti í algjöru twilight zone prattí á laugardaginn. Annars vegar af því að gaurarnir þar höfðu farið til Mexíkó á námskeið til að láta pynta sig. Auka sársaukaþol. Barðir eins og harðfiskur í tvær vikur. Mjög harðir gaurar, bendi fólki á að vera ekki með uppsteyt á skemmtistöðum. Hitt var að kærasta eins gaursins strippaði í partýinu. Það er bara totally öðruvísi í heimahúsum og ég er ekki viss um að þetta sé málið. Mjög skondið þó.

    Þá lýsi ég því hér með yfir að Tequila skal frá þessari stund ávallt drukkið á þann hátt í VV að sítrónan er kreist í augað, saltið tekið í nefið og tequila drukkið (döh) - bara miklu snjallara.

    Hjólaði svo til Þingvalla í gærkveldi. Algjör snilld. 50K metrar úr Vesturbænum og þangað. Tók þetta á 2 klst. og 45 mín. Lítið mál að gera betur þó.

    Kolli er tíkin hans Sírnis.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:17 25.8.03 ::

    22.8.03

    Sérstaklega fyrir þig af því að fáir rassar, sem og rassgöt eru jafn VÍÐ og þitt.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 19:03 22.8.03 ::

    Hahaha - það gefur því eiginlega nýjar víddir þegar fólk segir manni að hoppa upp í rassgatið á sér
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:31 ::

    Um svarthol
    Úr A Brief History of Time eftir snillinginn Stephen W. Hawking:
    ... a star that was sufficiently massive and compact would have such a strong gravitational field that light could not escape: any light emitted from the surface of the star would be dragged back by the star's gravitational attraction before it could get very far... Such objects are what we now call black holes [innsk: T.d. rassgatið á Svenna]...


    Fleiri kvóts
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:11 ::

    Meira af ljóshraða
    Úr A Brief History of Time eftir snillinginn Stephen W. Hawking:
    ... at 10 percent of the speed of light an object's mass is only 0.5 percent more than normal, while at 90 percent of the speed of light it would be more than twice its normal mass. As an object approaches the speed of light, its mass rises ever more quickly, so it takes more and more energy to speed it up further. It can in fact never reach the speed of light, because by then its mass would have become infinite, and by the equivalence of mass and energy, it would have taken an infinite amount of energy to get it there. For this reason, any normal object is forever confined by relativity to move at speeds slower than the speed of light. Only light, or other waves that have no intrinsic mass [innsk: T.d. Skabbi], can move at the speed of light.


    Fleiri kvóts
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:42 ::

    Skoðanakönnun
    Hvor er leiðinlegri, Leibbs leiðinlegi eða Sævarr skemmtilegi?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:30 ::

    Foo Fighters og Vínyll
    Það er fáránlegt að bauga-kókaín gaurarnir í Vínyl séu að hita upp fyrir Foo. Þetta á bara engan veginn saman og ég efast um að þeir sem hafa áhuga á Foo nenni að hlusta á þetta rusl. Dómgreindarleysi að gera þetta. Björn Steinbekk sem er að flytja þetta inn sér um Vínyl skilst mér - en dúd - rólegur á að troða bandi upp á mann sem á bara ekki heima þarna.

    Þarna hefðu átt að vera BRAINPOLICE, Mínus, Sign eða sambærilegt. Þessvegna Sólstafi. Bara ekki fucking Vínyll. RRRRRRRROKK!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:52 ::

    21.8.03

    Feiti plöggarinn
    ...er hinsvegar snillingur. Diana Krall - mjög frambærilegur djassari - en enginn hafði heyrt um hana hérna fyrir 4 mánuðum. Feiti bókar tónleika með henni, kemur live upptöku í sjónvarpið og fullt af einhverju cover-laga rusli í útvarp og sjónvarp. Selur eins og vindurinn á tónleikana. Lýgur því að hann sé að bæta við miðum þegar hann losar sig við restina af því sem seldist ekki. Lætur fyrirtæki sponsa í staðinn fyrir nokkra miða. Lekur því að Elvis Costello gæti kannski slæðst upp á svið (ræt). Fyllir svo alla til að fólk taki ekki eftir því að þetta er standard djass...

    ... sem var frekar pirrandi fyrir okkur sem voru þarna að horfa á djass því að það var óþolandi fyllerí og öskur á þessu pakki. Sparkandi glerflöskum fram og til baka, farandi á klóið 10 sinnum, rífast við kjéllinguna/kallinn osfrv. Pakk.

    DK var góð og spilararnir með henni líka. Djass á að vera á knæpum og white trash á að sitja heima. Feiti plöggarinn er evil en snjall.

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:30 21.8.03 ::

    Og Don Alfredo...

    Hvaða hagfræði er það að hækka verð þegar eftirspurn minnkar? D: Það er kalt úti og færri kaupa ís. Hækka verðið á ís svo að sömu tekjur haldist. Í venjulegum heimi hætta neytendur að versla við viðkomandi. En Don Alfredo neyðir okkur bara til að kaupa sína orku, byggir sínar marmarahöll með plasmagluggum, hækkar verðskránna og segir nauðsynlegt að sóa peningum Orkuveitunnar því að orkuverð megi ekki lækka, Íslendingar kunni nefnilega ekki að fara með orku???

    Svo kemur upp úr kafinu að amk. 8 orkuveitur á landinu eru ódýrari, öfugt við fullyrðingar Don Alfredo.

    Góð þjónusta, frábær þjónusta...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:39 ::

    Maður er uppfullur af pirringi þegar ekki er hægt að bitcha á blogginu.

    Hvað er Björn Bjarnason að pæla? Eiríkur Tómasson og Ragnar Hall eru massar. Ég hef aldrei heyrt um þennan gæja sem hann er að plögga. Hélt hann að enginn kveikti á þessu? Og hvað er með að hrósa Ann Coulter. Eoe er með úttekt á því hér. Úff.

    Ritskoðun á sjálfstæðum fjölmiðli. Hvað gerir það fyrir trúverðugleikann? Eftir að hafa rekið meirihlutann af fréttamönnum og þrælapískað restina. Að ekki sé minnst á restina af liðinu sem þeir eru að taka í rass. Hvernig væri að byrja á Stöð 2 áður en menn fara að pæla í aðbúnaði Pólverja uppi á heiðum. Ég held bara svei mér þá að Hr. Ólafsson blandi líka sandi í vaselínið, Ítalirnir passa nú lúbið.

    Hverjum datt í hug að fara að veiða hval? Hvað sem við viljum og höldum þá eru menn bara á móti þessu erlendis. Það er enginn fjárhagslegur ávinningur í þessu og mér er skítsama um vísindalegu rökin. Maður þarf ekki einu sinni að hugsa svo langt að velta því fyrir sér hvort manni þykir vænt um hvali eða ekki. Við skíttöpum á þessu. Það eru mótmæli í heimspressunni, við eigum eftir að tapa í vörusölu, reppi, þeir sem fylgjast með Íslandi eru vonsviknir og þetta mun kosta okkur krónur og aura. Fáránlegt. Ég er alveg til í að éta prinsippin mín ofan í mig ef staðan er svona. Af hverju í helvítinu er Kristján Loftsson með bakdyraaðgang að ráðamönnum þjóðarinnar? Hvað gerir það fyrir almenningsálitið að bjóða fjöldamorðingjum í heimsókn, handtaka friðsama mótmælendur, fara í stríð, drepa hvali osfrv.? Við töpum sjálfsagt jafn mikið á þessu og að missa beisið úr landi en enginn pælir í því.

    Hvernig væri að einhverjir með viti færu að bjóða fram á móti Dabba, ekki bara slefandi hálfvitar, svo ég geti kosið eitthvað annað án þess að allt fari til andskotans?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:13 ::

    Húff - ég veit að maður á að vera *vei* eftir sumarfríið en ég er bara *gubb*

    Þessi maður ætlar að koma með okkur á skytterí - eiginlega soldið scary. Eigum við ekki bara að taka BigLobster og Leiðinlega á spítti með líka til að gera þetta áhugavert?

    Djöfull verður Kolli keisari - hann er mesta veiðifæla og kjélling á Íslandi, nú þegar Spunge er flúinn í útlegð. Djöfull á ég eftir að veiða óteljandi gæsir þegar það er enginn spunge til að stela þeim.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:18 ::

    Það er vegna þess að Sírnir er veruleikafirrtur spassi sem bregst hinn versti við hvers konar gagnrýni. Þessvegna þorir maður ekki að setja neitt út á ógeðfelldan narcissisman í honum af ótta við hann detti úr jafnvægi og gangi berserksgang um allt. Þessvegna er best að bíða þessa orrahríð af sér og láta hann sjálfan sjá um að taka þetta fúla smetti í burt. Reyndar er þetta svoldið langt gengið og spurning hversu umburðarlyndir við eigum að vera, sérstaklega í sambandi við þennan hommabanner. Ég þoli ekki hreyfimyndir.

    Ég verð reyndar að minnast á eitt hérna, Sindri er kallaður skítafýlan í vinnunni sinni vegna þess að hann fer alltaf að skíta í vinnunni og ég hef heyrt að samstarfsmenn hans séu að verða allverulega pirraður á honum. Ég legg til að skítafýlan skíti heima hjá sér í framtíðinni ef hann vill eiga einhverja framtíð. Það er óheilbrigt að skíta í vinnunni.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:31 ::

    Af hverju er enginn búinn að segja fyrir löngu: "Sírnir, taktu þennan hommalega banner í burtu og settu eitthvað annað sem bakgrunn en fésið á sjálfum þér..."

    Þarf maður að gera allt hérna sjálfur?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:59 ::

    Ég legg til að á næstu árshátíð Vonlausa þá leggjum við formannsembættið niður og krýnum keisara í staðinn við hátíðlega athöfn.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 09:50 ::

    20.8.03

    Eigum við ekki að fá okkur svona fyrir utan félagsheimili Vonlausa?
    ::The Satan of Death skeit klukkan 16:56 20.8.03 ::

    19.8.03

    Hvenær fáum við veiðisögu úr Stóru-Laxá?
    ::KÍB skeit klukkan 14:44 19.8.03 ::

    Kannast einhver við Veiðifélagið Sósuna?
    ::KÍB skeit klukkan 10:33 ::

    18.8.03

    Sheez! mig dreymdi það í nótt að ég var á leiðinni til Gautaborgar aftur en hafði verið svo mikill sekkur að þegar ég var að pakka var ég svo stoltur af því að hafa verið svo hygginn að taka með mér kodda, svo það væri þægilegra að sofa á leiðinni, að ég gleymdi að pakka öllu öðru, nema tannbursta vöfðum inn í svartan ruslapoka. Þar sem ég var ekki með neinn farangur þá var ég heldur ekki fullgildur farþegi og varð að hýrast í kolageymslunni í flugvélinni af því að það var mjög mikilvægt að þyngdarhlutfall milli farþega og farangurs væri rétt og þá er gildi farangurs meiri. Nú eruð þið sjálfsagt hlessa því þið vissuð ekki að það eru kolageymslur í flugvélum en það get ég eftir þennan draum fullvissað ykkur um. Þær eru meira að segja steinsteyptir kjallarar með litlum ferhyrndum glugga í lofthæð gegnt steinsteyptu tröppunum og það er kolabingur í einu horni og maður í bláum smekkbuxum mokar þeim í ofn. Farangurinn var í hrúgu í horninu beint á móti kolabingnum til þess að skóflugaurinn myndi ekki ruglast og henda farangri á eldinn. Þarna hýrðist ég og gat hugsað ráð mitt. Og læt mér þetta að kenningu verða og hygg betur að því hverju ég pakka þegar ég geri það í alvöru.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 11:40 18.8.03 ::

    15.8.03

    Hvað er í gangi?

    Sindri says:

    Kúkfiskurinn says:
    Vignir hefur yfirtekið þessa tölvu homminn þinn
    Sindri says:
    haha
    Kúkfiskurinn says:
    og kastað Skabba út úr byggingunni
    Sindri says:
    hahaah
    Kúkfiskurinn says:
    og er að smíða lið í Dream Team leikinn
    Kúkfiskurinn says:
    vertu með í leiknum
    Kúkfiskurinn says:
    láttu skabba senda þér upplýsingar og vertu með
    ::KÍB skeit klukkan 15:16 15.8.03 ::

    Ég veðja á mig.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:28 ::

    Jæja, hver ætlar að veiða mest í Stóru-Laxá og hver fær stærsta fiskinn? Ég veðja á mömmu Kretinbræðra.
    ::KÍB skeit klukkan 13:55 ::

    14.8.03

    Ekki gleyma plasmagardínunum á skrifstofu Don Alfredos.
    ::KÍB skeit klukkan 10:22 14.8.03 ::

    Ef ég væri Don Alfredo þá mundi ég bara hætta að mæla notkun manna á heitu vatni. Miklu skynsamlegra er að hafa bara fast gjald, þá getum við ekki snúið á hann með því að nota minna heitt vatn og veðurguðirnir hafa ekkert vald yfir honum. Reyndar þyrfti náttúrulega alltaf að hækka gjaldið öðru hverju til að standa straum af rækjueldinu, parkett á gólf og annarskonar fínerí sem er náttúrulega bráðnauðsynlegt.

    Ég segi fyrir mitt leyti og hér með lofa ég því, ég læt ekki plata mig til að kjósa þessa hálfvita næst og mun að öllum líkindum kjósa húmanista eða eitthvað svipað. Þá hefur maður allavega ekki óbragð í munninum eftir kosningar. Legg reyndar til að þeir sem kjósa sjálfstæðismenn reglulega geri slíkt hið sama.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 09:58 ::

    13.8.03

    Ég var nú bara að hlæja að því hversu þunnir þið voruð. Hvernig það tengist umræðunni um A og B fólk er mér óskiljanlegt.
    ::KÍB skeit klukkan 09:01 13.8.03 ::

    12.8.03

    "Þetta eru bara hundarök og falslógík! Þið eruð bara eitthvað ruglaðir."
    (muniði ekki eftir gamla kallinum í pottinum í Vesturbæjarlauginni?)
    ::KÍB skeit klukkan 16:44 12.8.03 ::

    Enn og aftur setja fasistarnir sig á háan hest ef einhverjir vilja sofa frekar en fara veiða í skíta veðri í skítapytti. Ekki skil ég afhverju það fór svona í taugarnar á KÍB að ég og Krumpi nenntum ekki út að veiða fyrr en seint og síðarmeir, því það fór greinilega mikið í hann því hann gat ekki hætt að tala um þetta.
    Þetta er neblinlega enn eitt dæmið um yfirgang A fólks yfir hinum chilluðu B mönnum. Það þarf alltaf að setja sig á einhvern stall og þetta endar bara með ofsóknum. A fólk eins og KÍB mætir alltaf snemma í vinnuna og býsnast yfir þeim sem gera það ekki, það fer alltaf snemma að sofa og býsnast yfir þeim sem gera það ekki, það gerir bara heilbrigða hluti og býsnast yfir þeim sem gera það ekki. Það þarf alltaf að skemma allt skemmtilegt með tuði og leiðindum yfir hlutum sem því kemur bara ekki við. B fólk er hins vegar þeir sem gera hlutina almennilega þegar þeim hentar og eru snöggir að því. Þeir versla sem sagt í 10-11. Ef ekki væri B fólk væri lífið hundleiðinlegt sem sést best á því að ég og Sírnir værum þá ekki til og þá væri sko ekki gaman að vera til ef við værum ekki til.
    Hef oft verið að pæla i því hversvegna þetta er svona og það eina sem ég get séð úr þessu er að A fólk öfundar bara okkur hina fyrir að vera svona chillaðir og verða að reyna skemma fyrir þeim.

    Takk fyrir Sírnir minn að kalla mig KGB sem stendur einmitt fyrir Kolbeinn Guðmundsson Besti. Þú ert hins vegar SHE sem stendur fyrir SHE-MALE eða Sírnir Hörbuxur Einarsson
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:27 ::

    Nei nú er nóg komið, KGB (KolliGölliBoggi) stendur í staðreyndafalsi og hefur stolið myndum sem sanna sakleysi mitt í hörbuxnamálinu. KGB (KolliGeorgeBush) veður greinilega bara yfir hvað sem er og veigrar sér ekki við að brjóta alla alþjóðlega sáttmála. Enda var það löngu vitað að hann er undirförul píka hvers orð er einskins virði. Það kæmi mér lítið á óvart ef skyndilega birtust hér myndir úr ferðinni í Vola(æði) sviðsettar af KGB (KollaGuðnaBuxum) til þess að hefja hann til dýrðar, sem hann gæti aldrei unnið sér inn af sjálfsdáðum.
    Don´t belive the Hype!
    Don´t belive the Kike!
    Don´t belive the undirförula píka hvers orð er einskins virði!
    Niður með KollaGölla! Lifi GölliGölli!
    ::The Satan of Death skeit klukkan 15:22 ::

    Ooo, ég hlakkaði svo til að sjá myndirnar af Kretín bræðrum skítþunnum í koju á hádegi. Ég tala nú ekki um myndirnar af þeim skítþunnum í koju klukkan fimm.
    ::KÍB skeit klukkan 14:45 ::

    Það voru ekki teknar neinar skemmtilegar myndir í Vola heimski Hýrnir hörbuxnahommi. Við viljum ekkert láta minna okkur á þennan fúla kúkapytt með einhverjum skítamyndum sem þú tókst af okkur eins og flissandi smástelpa. Þú og Skrúðhéðinn getið bara farið saman og haldið ykkar eigin tískusýningu í ökklasokkum og hörbuxum. Ekki einu sinni reyna að syndayfirfæra hörbuxnasyndir þínar á aðra.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:29 ::

    Hei KolliGölli hvenær koma myndirnar af Blíðhéðni, Skeinipapphéðni, Níðhéðni, Lord Dobson og Mumma hörbuxum.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 13:55 ::

    Matrix borðtennis.
    ::KÍB skeit klukkan 13:48 ::

    11.8.03

    Eru menn búnir að jafna sig á vonbrigðunum úr Vola?
    ::KÍB skeit klukkan 13:10 11.8.03 ::

    Flugbíll?!?

    ::KÍB skeit klukkan 09:09 ::

    8.8.03

    Return of the King teaser
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:44 8.8.03 ::

    Gæðunum er misjanflega skipt:
    Þá fréttist af fjögurra manna hóp sem veiddi í vötnum á Arnarvatnsheiði yfir verslunarmannahelgina og voru rúmlega 200 silungar í kælikössum á leiðinni til byggða. Mest var það 1-2 punda bleikja og veiddist best í Arnarvatni litla og lækjum sem renna í og úr Úlfsvatni.
    www.mbl.is

    Ég hefði nú viljað fá eitthvað af stærri fiskum líka.
    ::KÍB skeit klukkan 09:15 ::

    6.8.03

    Mér finnst að þú hefðir frekar átt að fara í grísbí - frisbí með golfkylfum. Það er einn grísbívöllur á Akranesi en því miður er allt útlit fyrir að það verði byggð fóðurgeymsla akkúrat á vallarstæðinu.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:32 6.8.03 ::

    Ég heyrði þetta líka - sammála.

    Fór í folf í gær - frisbí golf. Það er sniðugt. Alveg eins og golf nema maður er ekki í ljótum fötum. Svo hendir maður frisbí og reynir að koma honum í svona körfu í sem fæstum köstum. 9 holur. Einn svona völlur uppi við Gufunesbæ.

    Farinn á Kobbalúðir að veiða - l8r
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:13 ::

    Vel meint en subbulegt
    Í gær var á dagskrá X-ins þátturinn Rætur og fjallaði hann um sögu hljómsveitarinnar Janes Addiction. Á allan hátt lofsvert framtak og hugði ég batnandi útvarpsstöð best að lifa, af því sem ég heyrði þá hafði umsjónarmaðurinn náð í einhver "skúbb" og slúður og raðað þeim í tímaröð, ég hafði mjög gaman af þessum skúbbum og slúðurfréttum og man sumar þeirra frá því þær voru ferskar. Hinsvegar þótti mér vanta innihaldsmeiri umfjöllun. En verst var að umsjónarmaðurinn var með öllu ótalandi, ummaði og e-aði sig í gegnum, að einhverju leyti, undirbúinn texta, þvoglaðist og stundi þannig að hann þrefaldaði tímann sem það myndi annars taka að segja hverja setningu. Svo þykir mér lágmark, úr því að við krefjumst þess að innflytjendum að þeir læri íslensku, að þeir sem hafa atvinnu af því að tala hana kunni móðurmálið sitt sæmilega. Það var pínlegt að hlusta á hnökurtunguna í stráknum, ég get ekki gefið dæmi enda er ég ekki stelpa sem leggur á sig mistök annarra.
    Vel meint tilraun, en í samanburði við það sem ég hef mátt venjast af svona þáttum þá var þetta bara froða og enginn bjór.
    En ljómandi fín afsökun til að spila Janes Addiction í klukkutíma í útvarpinu.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 10:58 ::

    5.8.03

    Mótórama
    Helginni var aðallega eytt í að mótorhjóla. Ég hafði varla keyrt hjólið áður og skellti mér á föstudagskveldið upp að Kleifarvatni. Þar er leirkenndur vatnsbotn síðan í Suðurlandsskjálftanum - þá mynduðust sprungur þarna sem sjást enn mjög vel og vatnið hvarf. Magnað. Kíktum líka eitthvað þarna í kring.


    Hengill og Lyklafell
    Á laugardag fór ég í braut uppi við Lyklafell (eiginlega á móti Sandskeiði) og hjólaði svo upp að Hengli. Náði að krassa hressilega í brautinni, gaf of mikið í yfir hól og hjólið fór í tígurlegt heljarstökk fyrir framan mig meðan ég var í lausu loftið með þeirri óumflýjanlegu niðurstöðu að slamma beint á rassgatið. Vont að sitja. Geggjað að fara þarna upp að Hengli, maður er að hjóla eftir lækjarfarvegi, fara yfir ána, sandur og möl til skiptis.

    Á sunnudaginn var sprungið og það tók smá tíma að redda því - aðeins stífari dekk en á reiðhjólinu. Lagaði líka bremsuna okkar síðan á Kollabúðum, það var smámál.



    Tindfjallahringur
    Síðan var alvaran í gær. Fórum inn í Fljótshlíð, ég og brósi, og hittum félaga hans þar sem ætlaði að gæda okkur meiriháttar enduro leið. Hann spurði "hvað ertu búinn að hjóla mikið" og ég svaraði "síðan á föstudaginn, tvisvar." Honum leist ekki alveg á það.

    Síðan keyrðum við inn Fljótshlíðina, og áfram inneftir. Framhjá Einhyrningi og Syðra fjallabak í Krók og Hungurfit. Síðan til baka hjá Þríhyrningi, það sem Fljótshlíðarbændur kalla litla-Fjallabak. Þetta var alveg mögnuð leið, reyndar svaka löng, sjálfsagt 100km. Fullt af ám sem þurfti að fara yfir, allskonar undirlag en geggjað útsýni allan tímann. Maður sá yfir Eyjafjallajökul, Emstrurnar, Þórsmörk, Markarfljót og fleira flott. Allan tímann voru Tindfjöllin á vinstri hönd, geðveikt flott.

    Enduðum í heitum potti í Fljótshlíðinni og grilluðum silla. Snilldarsport. Hvernig væri nú að fleiri redduðu sér hjóli?

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:49 5.8.03 ::

    Þessi draumur er góður fyrirboði. Sérstaklega veiki urrinn undir bílnum, allir fiskar sem ég veiði í draumum eru veikir og ógeðslegir, og alltaf eftir þannig drauma veiðist vel. Fyrir KÍBstaðaós í vor dreymdi mig að ég veiddi risastóran albínóalax og það blæddi út úr augunum á honum. Mig langaði ekkert sérstaklega að hirða hann en Skabbi vildi endilega éta hann sem ég leyfði honum að gera.

    Annars þá er ég farinn að hlakka allverulega til Vola og það verður haldið hnýtingarsession fyrir ferðina og er KÍB sérstaklega hvattur til að mæta og knýta einn muddler eða tvo.

    Svo er ég að pæla í einu. Afhverju skrifaði Gölli ...and in the darkness blog them?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:45 ::

    ...and in the darkness blog them
    Þú og Range Rover - ertu viss um að þetta hafi verið draumur?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:25 ::

    Mig dreymdi sérkennilegan draum um helgina:

    Ég, Skabbi og (takið nú eftir) Tinni vorum að fara að veiða í Elliðaánum. Þegar við komum í veiðihúsið var hinsvegar búið að taka frá bestu tvö svæðin í ánni. Við fórum því hálffýldir af stað á svæðið okkar. Skabbi var á Cherokeenum sem var alveg að detta í sundur. Við komum að fyrsta staðnum og vöðum allir þrír út í (ekki veit ég afhverju). Um leið og við byrjum að vaða stekkur lax undan fótunum á okkur. Þetta þótti okkur góðs viti. Skabbi byrjaði að veiða og þá ætlaði Tinni að fara að veiða líka en ég stoppaði hann af, af því að við vorum bara með eitt leyfi. Skabbi setur í lax (ca. 3 pund) og landar honum, við Tinni stöndum út í miðri á og fylgjumst með. Síðan förum við aftur í bílinn. Bíllinn hans Skabba hafði þá breyst úr Cherokee í Range Rover. Okkur fannst þetta ekkert skrýtið en það skrýtna var að undir honum var stór urriði (ca. 10 pund) sem hafði ekki verið þarna þegar við komum. Við spáðum í að taka urriðann en leist ekkert á það því hann virtist vera með einhverja fiskaveiki. Því næst keyrðum við í burtu og ég vaknaði.

    Getur einhver ráðið í drauminn? Er þetta góðs viti fyrir Vola?

    Annars veiddi ég nokkrar murtur og eina litla bleikju í Þingvallavatni um helgina. Djöfull eru sumar murtur steiktar! Ég tók nokkrar á stórann Þingeying og þær voru á fullu að atast í stórri Muddler Minnow (sem er eiginlega orðin uppáhalds flugan mín upp á síðkastið).
    ::KÍB skeit klukkan 11:53 ::

    Sírnir er dorkur
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:43 ::

    2.8.03

    Hvaða beitu ertu með?
    ::The Satan of Death skeit klukkan 14:30 2.8.03 ::

    1.8.03

    Nokkuð gott:
  • Switch to Macintosh
  • Switch to Linux
  • Intellitoast
    ::KÍB skeit klukkan 14:36 1.8.03 ::

    Rakst á sniðuga auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun:

    Kæru hausar til sjávar og sveita
    Athugið að ég sel ekki graus og baut lengur. Hinsvegar er ég með á lager blátt M&M, General snus (bæði poka og í lausu) og grænleskar rjúpur á sérstöku opnunartilboði 2 fyrir 1.

    Kær kveðja,
    Maðurinn


    Skiljanlega - betri framlegð og miklu lægri refsingar. Maðurinn er greinilega hugsuður líka.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:24 ::

    Skoða eldri færslur >>