30.9.03

Veiðisaga
Kretínbræður fóru til Hvolsvallar um helgina að skjóta gæsir. Kretín-mamma og Kretín-pabbi voru að sjálkfsögðu með í för og var Kretín-pabbi búin að tryggja okkur einhvern geggjaðan akur sem var alltaf svartur af gæs og engin nema læknirinn má skjóta á.
Við förum um morguninn, fjögur saman í kamógöllum, ca. 100.000 kall stykkið(með úlpum, vöðlum, vettlingum húfum og öllu). Öll vorum við með flottar hálfsjálfvirkar haglabyssur eða pumpur og ábyggilega um 500 skot saman. 50 gerfigæsum var plantað á akurinn í myrkrinu og tveim gerfiálftum for good measure. Ekkert skildi klikka, gæsirnar skildu sko allar láta gabbast af strategískt uppröðuðum gerfi-gæsunum og álftunum okkar og lenda beint fyrir framan byssuhlaupin og liggja í valnum í tugum ef ekki hundruðum.
Dude hvað þetta var misheppnað....það kom ekki eitt alminnilegt gæsaflug, skutum næstum einn helsingja, en klúðruðum sem betur fer því þeir eru víst friðaðir, ég lá óvart í kindakúk meginpart morguns og kolli sofnaði í akrinum og vaknaði kvartandi yfir verk í mjöðminni.
Tvær afskaplega óheppnar endur flugu yfir okkur og voru þær drepnar, ég reyndar skaut hausinn af minni(er ekki að ýkja, hausinn tættist af og lenti annars staðar) og var það heildarafli túrsins.
Upptalningin á búnaðinum var því gerð til að sýna hversu leim þessi túr var, allt þetta, búnaður og byssur fyrir ábyggilega hálfa milljón, 4 manneskjur í skurði í 7 tíma og afraksturinn er tvær litlar stokkendur.
Men hvað ég þarf að hefna mín á þessum gæsum fyrir að hafa mig að svona miklu fífli.....

Labels:

::Mósagrís skeit klukkan 15:58 30.9.03 ::

Meðan þið bíðið eftir mínum myndum getið þið ornað ykkur við þessar. Takið eftri tjaldinu mínu...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:17 ::

ÞrándheimaÞrándurinn - HelgarPeppur

Um helgina fór ég á túr. That's right ladys and gentlemen, Þrándheimaþrándurinn var á súrrandi túr alla helgina! N.t.t með Ski&Fjell til Innerdalen.
Óhemjugóð ferð, ákaflega hardcore. Tjaldútilega í rigningu, slyddu, snjókomu og viðbjóði. Mættum í dalinn eftri 3 tíma keyrslu frá Þrándheimi. Mér var sagt að það væri svona 2. tíma labb að tjaldstæðinu. Eftir að hafa labbað í smástund byrjaði að rigna. Svo fór að rigna meira. Svo fór a fokkíngs mígrigna. Ég er að segja ykkur, að troðast þarna í gegnum skóginn í mígandi rigningu, leðju og drullu upp að hnjám í kolniðmyrkri, mér leið bara eins og í fokkíng Nam! 300 metra hækkun við þessar aðstæður var alger dauðaganga, ætlaði engan endi að taka. Þegar við loksins komum á staðinn var drifið í að tjalda. Á undisbúningsfundinum fyrir ferðina var spurt hverjir væru með tjald og ég hélt nú að ég væri með tjald, þetta líka fína Tjaldborgartjald sem er búið að reynast mér svo vel frá því að ég fékk það í fermingargjöf. Ég held að Siggi hafi ekkert verið neitt allt of sáttur þegar hann sá gripinn og ALLIR í ferðinni kommentuðu á hverskonar skítatjald þetta væri. Allavega, tjaldið fór upp, rennandi blautt náttlega og ég klæddi mig í öll þau föt em ég hafði meðferðis, sem voru flest orðin vel blaut líka. Ef við hefðum verið á Íslandi hefðu menn drifið í sig nokkrar samlokur og drullað sér svo ofan í svefnpoka því það var fokking kalt og ógeðslegt þarna, rigningin orðin að slyddu. En ekki í Noregi. Þar toku menn fram mannætupottana og fóru að saxa niður grænmeti, sjóða pasta og útbúa stórmáltíð handa öllu liðunu. Eftir að hafa slafrað í sig pastað tróðst mar rennblautur inn í tjald, skrældi af sér rennblaut fötin og skreið oní rennblautan svefnpokann. mmmm....æði.
Ræs daginn eftir klukkan hálfellefu eftir svefnlitla nótt af minni hálfu. Alhvít jörð fyrir utan. Það var blessunarlega hætt við að fara í 15 tíma gönguna sem búið var að ákveða. Eftir morgunmat og kaffi var ákveðið að við skyldum skella okkur uppá Innridalsturninn. Aftur í kalda, blauta gallann og af stað. Gangan var reyndar alveg býsna skemmtileg, mjög bratt og á kafi í snjó en menn misstu ekkert kúlið, settu bara upp hjálmana og klöngruðust alla leið upp á topp á ca. 3 tímum. Ég reyndi að vera landi og þjóð til sóma og dró upp viskýpela á toppnum og lét ganga. Mæltist ákaflega vel fyrir. Úsýnið var svosem ekki mikið en stundum komu glennur á leiðinni upp og þá sá mar vel yfir. Allavega, komin niðrí kamp eftir ca. 5 tíma og þá tóku norðmenn til við eldamennskuna á ný, kúskús með kjötkássu, namminamm. Kokkurinn í ferðinni var pínkulítil stelpa, alger nagli. Bar megnið af matnum upp í kamp sjálf og var langt á undan flestum strákunum bæðu upp og niður fjöllin. Og eldaði svona líka fínan fjallamat. Eftir matinn drukkum við fullt af kaffi og restina af viskýinu. Sem orsakaði það náttlega að ég vaknaðu um miðja nótt alveg að míga á mig en nennti engan vegin út í kuldann þannig að ég hýrðist í pokanum í marga klukkutíma alveg í spreng áður en ég gaft upp og fór út.
Sunnudaginn var ræs eldsnemma enda brostið á með bongóblíðu. Ákveðið var að ganga inn dalinn og á tind þar sem ég man ekki hvað heitir. Mjög fín ganga líka, snjór yfir öllu, vægt frost og alveg stillt. Rjúpnaspor útum allt, rop og fuglar að stökkva upp. Óneitanlega kitlaði það veiðimanninn í manni. Uppgangan var ekki mikið þrekvirki en samt gáfust nokkrir upp á leiðinni. Íslendingarnir voru að sjálfsögðu fyrstir á toppinn og hreyktu sér mjög af því. Niður aftur eftri ca. 6 tíma, pakkað saman og gengið niðrí bíl. Ég verð a viðurkenna að niðurferðin með draslið á bakinu var langt frá því að vera skemmtilega, lærin og hnén hreinlega öskruðu á mig alla leiðina. Stoppað fyrir megadýrann táfýluborgara á heimleiðinni, kominn heim aftur klukkan 10, gersamlega uppgefinn. Massagóður túr engu að síður en djöfull var glatað að fara framúr í gær og hjóla í skólann....
Eg set inn myndir þegar ég fæ þær úr framköllun.

Mér finnst eins og Vonlausi Veiðivefurinn sé að fara í gegnum ákaflega dapurt tímabil. Morkinn hnetusmjörsblogg hrannast upp á vefinn af því að þið hafið ekki frá neinu skemmtilegu að segja. Hvað er eiginlega í gangi hjá ykkur!? Mar heyrir talað um mokveiði í gæsinni um þessar mundir en þið gerið ekki skít, ha!? Farið að veiða lúpurnar ykkar og skrifið blogg sem eru lengri en 5 orð!

ÞÞ


::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:26 ::

Fjölskyldan hans Kolla er komin með heimasíðu
::Hívatha litli skeit klukkan 10:11 ::

29.9.03

Vááá
::Hívatha litli skeit klukkan 14:40 29.9.03 ::

Nýji bíllinn hans Svenna.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:21 ::

26.9.03

Rassgat
::Hívatha litli skeit klukkan 17:17 26.9.03 ::

Rosalega hlýtur að vera óþægilegt að gubba jord. Grey Aðalheiður Mína.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:55 ::

alla mina jordgubbar
::The Satan of Death skeit klukkan 10:33 ::

25.9.03

Skúmur. skúmur, skúmur, skúmur...
::Hívatha litli skeit klukkan 22:43 25.9.03 ::

Ævisaga Galtarins loksins kominn á DVD.
::KÍB skeit klukkan 15:25 ::

Hahahaha - þetta er alltof gott. Greinilegt að Kolli og KÍB eru mestu faggarnir á öldum alnetsins...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:43 ::

Hver er þessi óttar? og hvaða borg á hann?
::H.H. skeit klukkan 12:01 ::

Þú ert iggaf sem skuldar okkur tollpartý!
::KÍB skeit klukkan 10:09 ::

Það er dásamlegt veður í borg óttans og KÍB er faggi.
::Hívatha litli skeit klukkan 09:32 ::

23.9.03

Skellti myndum helgarinnar á askinn. Hvar eru myndirnar sem Skabbi er alltaf að bitcha um Kobbi kretín?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:16 23.9.03 ::

22.9.03

Síðasti séns að kyssa gæs
Jæja strákar - hvað eruð þið búnir að fá margar gæsir?

Gæsakóngur Vonlausa




Gaman annars að frá fregnir frá Þrándheimarþrándinum. Gott að hann getur haldið uppi merkjum klúbbsins með svínaríi og götuslagsmálum. Hann er samt kretíndvergur og lydda - ekki einu sinni nýtilegur sem
Gæsaplokkari. Ástmögur krumma sem er vargur og meindýr og réttdræpur hvar sem er.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:26 22.9.03 ::

Ég held að skabbi sé búinn að vera of lengi í hommaborginni Þrándheimi. Hann er farinn að tala um sætilíusa og talar um einhvern ástkærann ylhýrann.......frekar krípí.
::Mósagrís skeit klukkan 14:21 ::

Jæja, hvað eruði þá búnir að veiða mikið, landeyðurnar ykkar?!?

ÞrándheimaÞrándurinn, Helgarútgáfa

Ég fór á sérdeilis prýðilegt bjókvöld hjá Íslendingafélaginu Kjartani, hvar ég drakk frá mér ráð og rænu. Gerðist svo ofurölvi að ég gat ekki hjólað skammarlaust heim. Hrundi tvisvar af hjólinu á leiðinni heim, annað skiptið fyrir framan hóp af norskum kellingum sem æptu og veinuðu þegar ég lá í götunni og jós yfir þær svívirðingum á okkar ástkæra ylhýra.
Eyddi lunganum úr laugardeginum svo þunur að ég gat mig hvergi hrært. Rétt skreyddist á fætur til að fara með Karen og Sigga á Xploding Plastix tónligga á Samfundet. Hér með lýsi ég því yfir að geðveikt hátt spiluð súr tilrauna raftónlist er EKKI góð við þynnku.
Hengslaðist um íbúðina eins og apafóstur fram að kaffi á sunnudaginn, fór þá niðrí bæ og horfði á ManU vs. Arsenal. Sá þar nýjasta sætilíus Man U, Christiano Ronaldo fara á kostum.
Talaði svo við sírni súrpúng í geitaborg í gær sem sagði mér skemmtilegar sögur, sem vonandi verða skrifaðar í GautaborgarGautann.

Svo minni ég ykkur á að þið eruð allir hommar og kellingar, píkur hvars orð eru einskis virði. Hvar eru myndirnar!?!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:14 ::

"Lærðu að naga drjóla", í boði KÍB
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:52 ::

Helgin
Það er afar fróðlegt að skjóta gölt. Mér finnst gaman að skjóta gölt í heilann en það er víst ekki mjög sniðugt.

Hvað voru menn annars að gera um helgina? Ég fór í haustferð Saumó. Það var hlaðið mótorhjólum, reiðhjólum og seglbrettum á nokkra bíla og ekið á Laugavatn. Fórum smá moto rúnt á föstudeginum. Svo fyllerí. Síðan seglbretti á laugardagsmorgun. Brjálað veður. Keyrðum síðan upp á Lyngdalsheiði (moto) upp hjá Litla Dímon og norður á Skjaldbreiði. Síðan inn að Hlöðufelli og suður á Miðdalsfjall. [Kort - ekki alveg þessi leið]

Það var snjóbylur á leiðinni, hvít jörð, og stundum sá maður ekki metra frá sér. Algjörlega bilað veður. Mjög gaman. Reyndar ansi erfitt að hanga í Íslandsmeistaranum í B-flokki, 3. sæti, 7. sæti ofl. þegar maður er bara búinn að vera að hjóla síðan í ágúst.

Svo var snilldar grill, mæli með að kaupa kjöt í Gallerý Kjöt, bara snilld. Fengum líka kartöflur og sósu og alles, allt kryddað og reddí. Besta fucking lambakjöt sem ég hef smakkað.

Smá meira moto á sunnudag og síðan heim. Mjög gott. Ása gaf mér líka Taxi Driver og Snatch - hún rokkar. Myndir úr ferðinni á askinn fljótlega...

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 11:41 ::

19.9.03

"Lærðu að skjóta gölt", í boði sænska sendiráðsins.
::KÍB skeit klukkan 15:33 19.9.03 ::

Hvernig væri nú að einhver af ykkur sem hafið login á hlað þræðina mynduð halda uppi hrokastigi VV og benda þessum steikum á að þrívíddar gæsirnar svokölluðu eru í raun tvívíðar en "venjulegar" gervigæsir eru í þrívídd. Damn...
::Hívatha litli skeit klukkan 12:37 ::

Af því að líkur á því að einhver sé að horfa á þig aukast hlutfallslega eftir heimsku athafna.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:48 ::

Ok, ég bít,
Afhverju ætti einhver að vera alltaf að horfa á mig?
::Mósagrís skeit klukkan 11:31 ::

Það væri fínt að geta hagað vindi eftir seglum!
::KÍB skeit klukkan 09:55 ::

Michael Moore lætur að sér kveða
Eoe birtir vísun á opið bréf Michael Moore til Wesley Clark. Þetta er mjög fróðlegt. "Bush must go." Það er nú aldeilis sannleikskorn í því atarna. [Skoða]

Svo rakst ég líka á síðu um vitleysinginn David Blaine sem er að svelta sig í 44 daga í glerbúri upp á djókið. Það á svo sem að vera hægt að lifa í ca. 50 daga án matar og 5 daga án vatns (ætli þessar tölur séu ekki úr SAS survival handbook eða álíka frómu riti) en gaddem hvað þetta hlýtur að vera ömurlega leiðinlegt og allverulega óþægilegt og óhollt fyrir sál og líkama.

Svo er ein spurning - er alltaf einhver að horfa á Krumma?
::Hívatha litli skeit klukkan 09:43 ::

18.9.03

Rétt er að taka fram ég er ekki á móti fuglategundinni hrafni eða með flóðhestum og morðum þeirra. Ég er bara á móti Haraldi Hrafni.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:42 18.9.03 ::

Helvítis barbarar og villimenn!!!
Mér blöskrar þegar ég les þessa umræðu á hlað-vefnum. Hrafninn hefur aldrei verið nein plága, þetta er einhver fáránlega villutrú bændadurga. Fuglinn er stór fallegur og svartur og einhverra hluta vegna halda menn því fram að hann borði börn og drepi hesta sem er hreint út sagt fáránlegt.

Þessir vitleysingar sem eru að spjalla um hvernig sé best að drepa hrafninn eru sömu asnarnir og vilja leyfa lóudráp og spóamorð. Það að nota þá afsökun að hrafninn sé einhver plága er útí hött, hann er ekki ránfugl, hann er spörfugl.
Þessir menn menn myndu skjóta erni ef þeir kæmust upp með það og eru eflaust með uppstoppaða fálka heima hjá sér sem urðu fyrir "slysaskoti" því þeir héldu að þetta væri gæs í myrkrinu.

Þess má geta að svona faggar urðu til þess að hrafnastofninn hrundi næstum og var fuglinn því settur á válista. maður mundi nú halda að þessir asnar myndu læra, but noooo......

Ég sé að Svenni svín hefur fundið sálufélaga sína meðal flóðanna á hlað.is.
Þessi þröngsýnis hugsunargangur og redneck hugarfar hefur laðað göltinn að, enda sækjast sér um líkir.
::Mósagrís skeit klukkan 13:25 ::

Loksins verið að gera eitthvað í plágunni honum Krumma
::Hívatha litli skeit klukkan 13:11 ::

Fréttir úr frumskógi ADSL tilboða
Kominn með nýjan díl. Var að borga 2.500 kr. til Símans og 3.200 kr. til Dótafón síðan á dögum Halló. Fyrir þetta var ég að fá 256K og 1Gíg í download.

Færði heimasímann til Dótafón og held númerinu. Fæ þá fyrir svipað verð á ADSL-inu 1MB í hraða og áfram gíg ókeypis. Nýjan router/módem ókeypis. Ókeypis fyrstu 3 mánaðargjöldin af heimasíðamum. Þráðlaust netkort fyrir lappann.

Þetta er reyndar eitthvað staffadæmi en nokkuð gott...


::Hívatha litli skeit klukkan 13:03 ::

17.9.03

Í 'Bókinni um veginn' segir Lao-Tse:

Sá, er vill hljóta ríkið og leggur kapp á það, mun áreiðanlega fara á mis við það. Konungdæmið er andlegs eðlis og verður ekki fengið með striti. Sá, sem ætlar sér að vinna það með striti, spillir því; sá, sem vill halda því í greipum sér, týnir því.
::KÍB skeit klukkan 14:52 17.9.03 ::

Jamm og Sun Tzu getur hann fengið lánaðan hjá Leibba vini sínum.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:15 ::

KÍB getur ekki orðið betri maður, hann er allt of illur og valdagráðugur sem sést best á því að hann er viljandi að veiða minnst til þess að halda völdum í Vonlausa. Legg frekar til að hann lesi Machiavelli og Sun Tzu í staðinn og tryggi völd sín enn frekar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:10 ::

Hver ætlar að lána mér KV bækur þ.a. ég geti orðið betri maður?
::KÍB skeit klukkan 13:22 ::

Jamm, heldur betur.

Ég las Breakfast of Champions og hún er helvíti góð. Bíómyndin var eiginlega ógerlegt verk, á svipaðan hátt og American Psyco, þar sem báðar bækur gerast að miklu leiti inni í höfðinu á söguhetjunni. Fjalla um upplifanir hans og (rang)skynjanir. Lesa þessa.

Svo er náttúrulega Welcome to the Monkey House. Verð bara að viðurkenna að ég man ekki neitt rosalega vel eftir henni. Jailbird er góð og eitthvað byrjaði ég á Player Piano .

Merkilegt nokk að þá situr lang mest í mér:

1) klassíkin Slaughterhouse-Five. Ég veit ekki hvort ég varð harður friðarsinni eftir að hafa lesið þessa bók en hún stuðlaði að minnsta kosti að því. Ég skil bara ekki af hverju fólk er að skjóta á hvert annað í einhverjum styrjöldum. Það er fáránlegt. Það er árið 2003 og núna eiga allir að chilla í álbúningum og éta vínber samkvæmt framtíðarmyndum. Þetta er rugl. Nema hvað - bókin er í senn ótrúlega mögnuð og sorgleg og skemmtileg. Hermaðurinn sem var í miðpunkti mesta hroðaverks seinni heimstyrjaldarinnar, sprengjuárásarinnar á Dresden, og grét alla ævi af því að hann hafði ekki veitt sárum hófum hests atygli þar. Svona er allt nú öfugsnúið.

Ekki vegna líkanna sem hann mokaði út úr kjöllurum þarna. KV var náttúrulega þarna sjálfur, töluvert byggt á hans reynslu. Þeir lifa þarna af eldstorminn og það fyrsta sem þeir lenda í þegar þeir koma út er að þeirra eigin menn koma fljúgandi og reyna að skjóta þá. Menn voru alveg orðnir sturlaðir þarna og enn má víst ekki minnast á þetta í USA, gögn innsigluð og annað.

2) Slapstick hafði hinsvegar ansi mikil áhrif á mig líka. Hann segir í formálanum að hún sé eins nálægt því að vera sjálfsævisöguleg og hægt er. Pælingin er að líka og Gög og Gokke eða sambærilegir sprellarar geti maður ekki haft betur í lífinu. Reynir alltaf með bros á vör en það sparkar bara í mann. Þetta sé eiginlega bara cheap grínþáttur allt saman. Mér fannst þetta snilldarbók.

Tek undir það, maður verður betri maður í hlutfalli við lesnar KV bækur.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:13 ::

Vonnegut mýeindir
Ég var einmitt að klára Slapstick í gærkvöldi eftir Kurt. Þvílík brakandi snilld. Bókin er sjálfsævisöguleg að hans sögn, afar athyglisverð framtíðarpæling um hver Bandaríkin séu að stefna. Uppfull af skemmtilegum vitleysisgangi og furðulegum pælingum. Sérstaklega fannst mér pælingin um gerfifjöldskyldur góð. Mæli með henni eins og öllum Vonnegut bókum reyndar. Þarf að lesa meira eftir þenna snilling.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:06 ::

Kurt Vonnegut er snillingur

Síðan ég kom hingað til Noregs hef ég lesið fjórar Kurt Vonnegur bækur, Galapagos, Sirens of Titan, Cat's Cradle og nú síðast Timequake.

Galapagos fjallar í grófum dráttum um þróun mannsins næstu milljón árin út frá pínulitlum hópi manna sem lifði af á Galapagos eyjaklasanum eftir að mannkynið dó út allstaðar annarsstaðar. Steikt pæling en skemmtileg bók því hún er skrifuð ala Kurt Vonnegut með allskona öðrum steiktum pælingum

Sirens of Titan, SciFi snilldarverk frá A til Ö. Ótrúlega súrar en bráðskemmtilegar pælingar og fléttur um tilgang alheimsins.

Cat' Cradle er dómsdagsbók þar sem ábyrgð stjórnenda, vísindamanna og trúarbragða er tekin fyrir. Ágæt á köflum en náði ekkert sérstaklega til mín. Síst af þessum fjórum sem ég las, að mínu mati, nokkuð fyndin en verður stundum allt of fáránleg. Svo er ég líka vísundi og mér er ekkert um það gefið að menn séu e-ð að rausa um ábyrgð vísundamanna

Timequake er held ég besta Kurt Vonnegut bókin sem ég hef lesið fyrir utan náttlega Slaughterhouse 5. Að hluta sjálfsævisöguleg og að hluta uppgjör við alter-egóið Kigore Trout, ókrýndan konung súrra SciFi pælinga. Bókin er svo troðfull af blátærri snilld að það hálfa væri nóg! Lífsskoðanir KV eru mjög skemmtilegar en þar sem hann er kommi er ábyggilega skemmtilegra að lesa þær ef mar er frekar rauður sjálfur. Svo skrifar hann líka svo ógeðslega skemmtilega að ég meig næstum á mig nokkrum sinnum þegar ég var að lesa.
KT er svo allt annar kapítuli. Ef þið munið eftir sögunni Gospel from Outer Space í SH5 þar sem geimveran kom og útskýrði hina raunverulegu meiningu bibblíunnar fyrir fólki ("If you kill a bum, make sure he's not connected") þá er Timequake full af svona fáránlegum KT sögum.
Bókin er skrifuð 1996 og ég held að KV hafi ekkert látið eftir sig síðan.

Allavega, lesiði Kurt Vonnegut bækur því það gerir ykkur að betri mönnum.

hommar
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:50 ::

"Normal folks have need of the women, but we do not. We have
plenty of massage boys." - Sir Krumpi, Student at
the Bifháraröst School for Special Children, 2003
::Hívatha litli skeit klukkan 10:46 ::

Krummi veit ekkert um Darwin

Ef þetta væri satt með bóndagrísina og villigeltina, þá ættu villigríslingar og bóndagríslingar að vera nákvæmlega eins, ekki satt, þar sem umhverfið hefði hvorugan þeirra mótað. Þetta er ekki staðreyndin þar sem villigríslingar eru loðnir og röndóttir en bóndagríslingar bleikir og ógeðslegir. Þú ert fíbble sem hugsar ekkert um það sem hann segir. Burtséð frá því hversu fyndið það væri ef svenni væri nakinn, kaldur og svangur útí hrauni. Hann yrði að passa sig á að festa ekki forhúðina á hraunnibbu. Sírnir gæti svo smalað honum saman þegar hann svalar hommum útí hraun.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:25 ::

16.9.03

Hugleiðing um gelti
Vissuð þið að ef geltir, svona bleikir feitir bóndabæjageltir eins og Svenni eru nákvæmlega sama tegund og þessir dökku, lengri og grennri villigeltir með stóru vígtennurnar. Málið er bara það að ef þú sleppir bleikum feitum spikgelti út í náttúrunna og leyfir honum að hafa aðeins fyrir galteríinu sínu þá transformerast hann á einhverjum árum úr þessum bleika smjörgelti yfir í glæsilegan villigölt.
Bleiku geltirnir eru aldir upp í heimi manna, þeim er gefið að borða og maturinn er valinn með því hugarfari að hafa þá bleika og feita, þess vegna verða þeir svona.
Það fyndna er að Svenni Gölli er einmitt bleikur og feitur og er ég alveg viss um að þetta sé vegna þess að hann hefur verið alinn til að verða jólasteik einn daginn en svo þótti fjölskyldunni svo vænt um hann að þau hættu við að borða hann og ólu hann upp sem son sinn. Því ættum við að frelsa göltinn okkar og sleppa honum í hina viltu náttúru þar sem hann þarf sjálfur að veiða sér til matar. Kanski verður hann orðinn hávaxinn, grannur og stæltur með fínar vígtennur eftir nokkur ár.
Þetta er allavega vísindaleg tilraun sem ég sting uppá að verði framkvæmnd, og ef tilraunin mistekst þá er allavega fyndið að hafa hent svenna köldum og svöngum útí hraun.
::Mósagrís skeit klukkan 21:31 16.9.03 ::

Þessi uplód fídus er nettur. Þið verðið bara að passa að fara nú ekki að yfirskrifa myndir sem til eru mongólídar (Sírnir og Skabbi). Myndir eiga að vera undir /myndir/blogg skýrðar lýsandi nafni.



Ákvað að vígja þessa skemmtilegu aðgerð með mynd af Kolla.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:28 ::

Hmm - þetta er allavega gömul mynd því Spunge er ekki með svona mikið hár lengur.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:02 ::

haha

pissi

KÍB, þú ert fíbbl, þetta er ekkert ég!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:38 ::

Spunge og ælusveppurinn góði

Risa stórir en bragðast eins og æla, tilvalinn í pasta með ælusveppasósu, sagði Spunge.
::KÍB skeit klukkan 14:35 ::

Djöfull ertu óheppinn af hafa misst af Dimmu Borgum. Þú hefðir fílað showið, gervi black metal, satanískar gervi fórnir og svartmálaðir gervi púkar glamrandi á gítar. Reyndar blóðlangar mig til að fara á svona tónligga og Dimmu Borgir er nú ágætis hljómst ef mar horfir framhjá þessu fáránlega gimmikki sem þeir eru með. Hefði átt að fara á skelduna í sumar og sjá lokadauðakippinn hjá hinum ekki lengur ódauðlegu norsku blackmetalistum Immortal sem rokka og mála sig miklu betur en Dimmu Borgir. Furðulegt hvað norsarar eru góðir í stubbalegu metali.

Annars er það nú alveg ótrúlegt hvað Gölli hefur mikinn áhuga á holdafari sínu og annarra þessa dagana. Nú er hann rendar annáluð fitubolla en ég held að hann ætti að halda þessu bara fyrir sig og koma okkur svo á óvart næst þegar við förum allir í hommapott og sjáum hversu mjór hann er orðinn. En í staðinn þá verður honum bara strítt að hann æfi sig eins og sveittur göltur alla daga en mjókkar ekki neitt.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:10 ::

Framtíð fróns
Ég var að fá geggjaða hugmynd. Sko, Íslendingar eru að stefna hraðbyr í það að verða jafn mökkfeitir og mökkfeitasta þjóð heims, úber-kanarnir. Þeir eru orðnir svo feitir (e. fat) að þeir þurftu að finna upp nýtt orð fyrir að vera feitur meðal feitra = mökkfeitur (e. ó-bís).

Nú eru allir eitthvað að brasa við að halda línunum en það virkar náttúrulega ekki neitt. Allir verða feitari og feitari og kaupa samt meira og meira af einhverju hE(AS)rbalæf drazli. Örugglega fitumeðal í því.

Þannig að - við finnum bara upp svona sniðugan orkukapal. Þannig getur þú notað umframorku þína í að knýja t.d. eldhúsáhöld. Líkaminn er náttúrulega ekki búinn að fatta að hann er ekki að hamast úti allan daginn og safnar þessari aukaorku. Eftir nokkur hundruð ár verður hann sjálfsagt búinn að fatta eitthvað sniðugt til að gera við hana, eins og t.d. að láta hárið á manni vera með raflýsingu, sá sem er með flottustu lýsinguna fær gellurnar. Þá verðum við líka sjálfsagt einhverjar amöbur.

Nema hvað - ef við höfum svo svaka mikla umframorku væri hægt að plögga mestu sekkjunum beint inn á raforkunetið. Þannig yrði hugsanlega til fullt af auka orku hjá landanum. Við gætum þá sleppt því að byggja Karí-hnjúka. Og farið að selja raforku til útlanda í stórum stíl.

Og það besta er að miðað við hvað sumir geltirnir hérna éta væri þetta óþrjótandi umhverfisvæn orkulind. Við gætum bara pakkað öllu kjötfjallinu, helvítis umfram lambakjötinu okkar, oní nokkra handboltasekki og yrðum rík um aldur og ævi, amen.

Þetta er bjúúúútifúl framtíðarsýn!
::Hívatha litli skeit klukkan 13:10 ::

O, ég missti af Dimmu Borgum á laugardaginn. European Death Cult túrinn er á fullu núna. En í staðin fer ég á Xploding plastix um næstu helgi. Stick'em up punk, it's the Fun Lovin' Criminals + Cardigans eru svo að koma í október. Ekki sérstaklega mikill metall en ég ætla nú samt að kíkja.

Til hamingju með ræpuna Svenni, rassræpa í staðin fyrir munnræpu til tilbreytingar. Og hlaðvefinn.

Er Gautaborgar Gay-tin farin út?

Var að lesa Moggann áðan, alltaf gaman þegar snillingar fá að láta ljós sitt skína í fjölmiðlum:

Rainbow Warrior í Höfn

Flaggskip grænfriðunga, Rainbow Warrior kom til Hornafjarðar í morgun og fylgdist nokkur fjöldi manna með skipinu leggjast að bryggju. Nokkrir sjómenn voru þar á meðal og einn skipstjóri sagðist myndu segja grænfriðungum frá því að smáhvalir sem hann fengi í veiðarfærin skiptu hundruðum á ári.

Je, djöfull rokkaru feitt mar! Þessir helvítis Grænfriðungar eiga eftir að skíta í buxurnar þegar þeir heyra þetta!

Reyniði svo að veiða e-ð ömurlegu saumaklúbbspíkurnar ykkar!!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:46 ::

15.9.03

Skellti spjall/dissvefnum frá hlaði.is hérna inn í boði Stæners.

Annars verð ég að benda ykkur Kolla Gölla og McRenis Gölla og öðrum sem eruð að fá bumbu á alveg magnaðan megrunarkúr. Ég köttaði alveg 4 kíló um helgina án þess að hreyfa mig neitt - ThrowUpsíCutt er algjörlega málið!
::Hívatha litli skeit klukkan 17:11 15.9.03 ::

14.9.03

Ég náði mér í þessa stórskemmtilegu matareitrun á Ránni í Keflavík á föstudaginn, eða hvort þetta er eitthvað helvíti sem er að ganga. Hlutir sem mér finnst leiðinlegir við svona: 1) Líkaminn heldur áfram að æla í 7 klst. eftir að tæming maga er algjör 2) Líkami hefur ekki automatic shutdown á ælu þegar verið er að skreyta postulínið með pípandi renniskitu 3) Líkami leyfir manni ekki að éta til að ná upp fyrri styrk fyrr eftir dúk og disk 4) Líkami ákveður að setja mann í gegnum þetta rugl allt um HELGI.

Svo er það spurningin - ætti maður að fara í endurotúr kl. 10?

Stæner skápavæðist
Þetta er ansi nett - spurning?
::Hívatha litli skeit klukkan 08:15 14.9.03 ::

12.9.03

Þetta kemur nú úr hörðustu átt! Hvar eru myndirnar, homminn þinn?!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:18 12.9.03 ::

Sírnir er algjör Júdas og ég mun aldrei treysta honum framar og legg til að engin geri það því hann er lygamörður og svikarapíka.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:17 ::

11.9.03

Hvert í logandi!
nú var Sindri næstum því búinn að drepa mig. Ég var á leiðinni heim þegar ég heyrði þessa bráðfyndnu lesnu auglýsingu í útvarpinu: "Brund-ælur, Brund-ælur, Sindri." Ég hló svo mikið að ég var næstum búinn að keyra yfir gamla konu og út í hraun.
Trúðurinn KÍB, alltaf að skemmta manni!
::The Satan of Death skeit klukkan 18:09 11.9.03 ::

Fyndið stöff en ég á eftir að gera eitthvað rosalegt núna...
::Hívatha litli skeit klukkan 17:45 ::

Hvernig ætli Geltinum gangi í keppninni sinni?
::KÍB skeit klukkan 15:47 ::

Jei!! Nýjir fídusar í bloggernum.
::KÍB skeit klukkan 15:38 ::

HAHAHAHAHAHAHAHA
Það er þvílíkt verið að taka Skabba í rass á veidi.is
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:04 ::

Í kveld verða gæsabringur í matinn - mmmmm
::Hívatha litli skeit klukkan 12:55 ::

Um þessar mundir stend ég í rógherferð á hendur drullupollinum Vola á veidi.is. Ég hvet KÍB, Kollagölla og Krumma til að styðja mig í þessari löngu tímabæru knésetningu.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:13 ::

sem sagt, alvöru veiðimaðurinn sem er mesti homminn og amatörinn verður formaður
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:46 ::

Ég vill bara benda Sírni á það að hann er ekki gjaldgengur í formanninn. Einungis alvöru veiðimenn ekki hommar og amatörar eins og hann eru gjaldgengir.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:15 ::

Í kveld verða gæsabringur í matinn - mmmmm
::Hívatha litli skeit klukkan 11:07 ::

10.9.03

Göltur sem kann að synda? Nei hættu nú alveg...
::Hívatha litli skeit klukkan 16:48 10.9.03 ::

Göltur, steiktur:
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í þínu lífi: Kíkti út að hlaupa í gær, 5 km á 27:45. Það verður bætt til muna þegar hlaupaþol kemur. Svo er sund í hádeginu, stefnan að taka svona 1-1,2K. Afar hressandi allt saman.

::KÍB skeit klukkan 16:22 ::

KÍB, atvinnulaus:
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í þínu lífi: Ég bloggaði asnalegum link. Svo var líka geggjað þegar ég setti inn mynd af Halla vini mínum
KÍB mælir píkuna á vini sínum
::Hívatha litli skeit klukkan 15:38 ::

Allan Bogvardt, leikmaður FH:
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég hef spilað leik sem þurfti að gera hlé á vegna þess að áhorfandi henti gervityppi á völlinn.
www.fotbolti.net
::KÍB skeit klukkan 12:40 ::

9.9.03

Vitaskuld ertu velkominn, ég á ekki von á að vera mikið bundinn þennan dag, kanski pabbahelgi... er þetta um helgi? Zorglúbbía hlýtur að sjá í gegnum fingur sér með það að ég fái að trollhlerast með Garçoninum mínum. Annars lími ég hann bara á bakið á mér með kítti og þykist vera síamstvíburi. Ég væri þá fallegri bróðirinn en hann sá gáfaði, nema hvað ég talaði út um munninn á honum og hann með mínum, svo ægilega væru taugar okkar flæktar.
Það verður frábært fyrir lesendur Gautaborgargautans og Þrándheimaþrándsins að lesa sitthvort sjónarhornið á ævintýrum okkar. -Þrándur í Gautaborg eða -Þrándur í Gautu

- hvað er það kallað þegar ofurhetjur hittast í blaði um aðrar ofurhetjur?

Glundri á ekki séns í formannstitilinn því þó ég hafi sótt veiðiferðir af beinstífum þermifasisma í allt sumar hef ég ekki dregið bröndu á land. En geri mér jafnframt grein fyrir að formaður verður að mæta á aðalfund/árshátíð til að taka við titlinum og sem mál standa get ég (fullur sorgar) ekki boðað komu mína.
::The Satan of Death skeit klukkan 19:52 9.9.03 ::

Árið er nú ekki búið. Auk þess er ég formaðurinn og set reglur um formannskjör næsta árs.
::KÍB skeit klukkan 15:31 ::

Kommon KÍB, leyfðu KollaGölla að vera memm í fína askhommafélaginu þínu, þú hefur ekkert betra að gera. Annras finnst mér kolli nú vera aumi tölvoninn ef hann getur ekki sett in nokkrar skitnar myndir án þess að KÍB þurfi að redda öllu fyrir hann.

Silas, gaur sem ég fór með tvisvar á rjúpu í fyrra, er að fara í fjölveiðiferð til Danmerkur. Hann kemur úr sveit og mér skilst að tvisvar á ári komi fólkið í sveitinni saman og reynir að drepa allt kvikt sem leynist á ökrunum og skógum í nágrenninu. Hann er semsagt búinn að bjóða mér að taka þátt í donsku drápsorgíu.

Það sem af er veiðiárinu erum við allir búnir að veiða e-ð af silla, þó mismikið. Þar ofaná erum við kolligölli búnir að veiða sinn hvorn laxinn, graðni búinn að skjóta tvö hreindýr og gölli búinn að salla niður 2/3 af gæs. KÍB er sá eini sem ekkert hefur fram að færa nema nokkrar murtur þannig að það er alveg ljóst hver er dragbíturinn þessar stundir.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:23 ::

Fokkaðu þér; ég skrifa og veiði miklu meira en þú!
::KÍB skeit klukkan 14:11 ::

Ég set myndirnar inn um leið og ég fæ að vera með í fína galleríinu þeirra en þessi slímugu rassahommar eru svo nískir og miklir eiginhagsmunaseggir að þeir vilja ekki leyfa mér að vera memm.

Ekki stríða Gölla þótt hann veiði enga gæs, hann var bara burrinn í hópnum. Mér finnst líklegast að hann verðu formaðurinn í ár þrátt fyrir að mér þyki bölvanlegt að vera í félagi þar sem Gölturinn er einhverskonar foringi. Ættum frekar að kjósa okkur keisara og leyfa Gölla að vera Gölla.'

Annars var ég í Stóru um helgina á svæði 3. Veðrið var ömurlegt, geðveik rok og mikil rigning. Áin var mjög lituð og erfitt að kasta, er samt orðinn betri kastari, gat kastað risa frances túbu í hávaðaroki með sæmilegum árangri. Veiddi samt ekkert nema einn pinku urriða sem var litlu stærri en francesinn sem var á en mamma tók einn 6 pundara og pabbi einn 4. Alltaf gaman samt í stóru og ég legg til að Vonlausa kíki þangað næsta sumar í eina ferð.

Hvert og hvað ertu að fara veiða í Dannmörku ljóti hommatittur?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:51 ::

Hahaha - þú ert bara fúll af því að þú verður formaður næsta ár, ekki kominn með neina gæs eins og snillingurinn hann ég. Mikið var líka að Þrándheimarþrándurinn er kominn af stað. Ein samlíking þó sem ég get ekki gúterað - þú ert meira eins og Mini Mí úr Austin Powers í Melaskóla.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:39 ::

Og séra Pulsa, akkuru er ekki búið að bjóða mér í influttningspartý?! Er þetta allt í sömu bókina lært hjá ykkur prellunum?!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:26 ::

Og KÍB, hvar í andskotanu ertu eiginlega?! Þú veiðir ekki rassgat og skrifar ekki rassgat heldur!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:24 ::

Og Gölli, ertu í alvörunni að reikna þér til veiði gæsir sem Rúnar og Tryggvi skutu eftir að þú varst farinn heim og gáfu þér svo? Ég keypti hálft kíló af krókódílahakki um helgina, má ég það skrifa á mig 1/200 krókódíl?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:22 ::

Og Kolli, ég veit að þú ert undirförul píka hvers orð eru einskis virði en hvenær koma myndirnar?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:19 ::

ÞrándheimaÞrándurinn

Þrándheimur. Ég held að Siggi hafi komist ansi nálægt þegar hann sagði að staðurinn sé eins og Akureyri margfölduð með 10. Hér búa 200 þús manns en samt finnst manni þetta vera miklu meiri þorp en Reykjavík. Mar kemur ekki til með að skora mjög mörg heimsborgarastig eftir dvölina hér, svo mikið er víst. En það skiptir í sjálfi sér ekki svo miklu máli því eins og þið vitið er ég alger lúði með hor í nös og alls enginn heimsborgari. Það sem Þrándheimur hefur, eins og öll önnur þorp er ótrúleg nálægð við sveitina. Ég þarf ekki að hjóla nema í 10 mínútur, án gríns, í hvaða átt sem er, þá er ég annað hvort kominn undir yfirborð sjávar, upp í sveit þar sem bændur aka um tún sín eða út í skóg þar sem elgir valsa um eins og ekkert sé sjálfsagðara, sem það er, ekki...ha? Þar sem ég er svo mikið náttúrubarn heimtaði ég að við Karen færum út í skóg um síðustu helgi að tína sveppi. Það var mjög spennandi þar sem hvorugt okkar hafði nokkra reynslu af sveppatínslu. Keyptum handbók með myndum af 10 sveppum, sáum svona trilljón mismundi tegundir í skóginum. Tíndum bara sveppi sem við vorum nokkuð viss um að væru ekki baneitraðir, helmingurinn af þeim var mjög góður, hinn helmingurinn var eins og æla á bragðið. Ef e-r kemur í heimsókn get ég boðið uppá pasta með ælusveppasósu, amminam! Eða bara ælt uppí hann...

Það er satt best að segja frekar undarleg tilfinning að vera kominn í skóla aftur. Mér líður hálfpartinn eins og Rodney Dangerfield í Back to School, eldgamall innan um smástelpur. Þar sem ég sit hér inní tölvuveri og skrifa þetta eru þrjár stelpur sem virðast vera 17 ára bakvið mig að skoða e-mail skrýtlur og flissa eins og þær hafi aldrei kynnst undrum alnetrins áður. Skólinn er líka megastór miðað við allt sem mar er vanur, öll hús geðveikt stór og flott og full af fólki, allra þjóða kvikindum. Ég er enn sem komið er laus við að kynnast líffræðilúðunum of mikið þar sem ég er ekki byrjaður að mæta í tíma ennþá. Hef aðallega verið inná bókasafni í eigin táfýlu og reynt að lesa mér til um hvernig best sé að vísundast. Það er hundleiðinlegt að lesa vísundablöð og ég verð að fara að hætta því svo að ég drepist ekki úr námsleiða áður en ég næ að byrja á verkefninu mínu.

Norðmenn, að minnsta kosti hér í Þrándheimska háskólanum, eru íþróttaóðir. Það eru ca billjón mismunandi íþróttaklúbbar starfandi innan skólans, frá pílukasti til dvergakasts (enga brandara takk), klifurs til köfunar, rugby til hraðrassríðinga. Skólinn á tvö íþróttahús og annað þeirra er megaflott. Þar er stór fótboltavöllur, badminton vellir, squass salir, eróbikk salur, gym á stærð við ræktina, 12 metra hár klifurveggur o.s.frv... Fór einmitt með Karen í squass um daginn, henni finnst álíka leiðinlegt að tapa fyrir mér og mér finnst að tapa fyrir hvaða kellingu sem er (greinilegt hver er kellingin í sambandinu..). En ég vann og í bræði sinni braut hún fína grafít spaðann sinn, hann hangir nú upp á vegg hjá okkur. Hér á að vera skotvöllur e-sstaðar líka en þar sem ég tók enga byssu með mér hef ég ekkert gert í því að skoða það nánar. Því við erum búnir að vera svo duglegir að æfa, ekki satt, leiðinlegt að missa það allt niður. Siggi þekkir samt e-n veiðióðan gaur, spurning um að setja sig í samband við hann og reyna að skjótast á rjúpu...

Annars er búið að bjóða mér til Danmerkur í veiði í október. Ef ég get knýtt það saman við fyllerí með GautaborgarGautanum er ég að hugsa um að skella mér. Hvað segiru Gírnir, kemstu á fyllerí 31. október?


::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:18 ::

Kolli veiddi ekkert um helgina. Hann er sannkölluð veiðifæla. Karí myndi veiða meira en hann.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:05 ::

8.9.03

OK, ég hef verið gabbaður. Þrándheimur er í raun hommanýlenda og þeir sem stunda hér raunvísindi eru svokallaðir "Alvöru Faggar"! Sveiattan, ég hefði átt að sjá að hér var e-ð undarlegt á seiði þegar ég var sendur á námskeið hjá manneskju sem heitir Sigrun Saur!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:14 8.9.03 ::

Já ég viðurkenni það núna að við kári erum í raun systur. svo eigum við eina stóra systur í viðbót sem heitir Rúnsí...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:02 ::

Enda er Karí algjör kelling eins og systir hennar Skabbí.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:57 ::

Ég var að leita að Kára í þjóðskrá og þar kemur í ljós að hann heitir Karí Halldórsson? Hvað er málið? Vorum foreldrar þeirra svona hrifnir af kjöt í karrí eða eitthvað? Er Karí ekki stelpunafn?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:50 ::

Ég skaut 2 og fæ (10-1)/3=3. Hvað ert þú búinn að veiða margar Spunge? Hahahahahahaha...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:34 ::

Skemmtilegt. En eg skil ekki af hverju thú rúlar, meinaru ad thú rúllar? Af hverju ættir thu ad rula? af thvi ad thu forst i veiditur med mönnum sem veiddu gæs ? En af sögunni ad dæma varst thu tíkin sem veiddi ekki neitt og sagdir bara rosalegar veidisögur af hinum fínu vinum thinum sem veida alltaf gedveikt mikid thegar Tryggvi og Rúnar sjá ekki til.

En stundum ekki skítkast hér á thessum hamingjudegi. Í dag er vonlausi tileinkadur hetju sem hefdi átt afmæli i dag.

PETER SELLERS
Vonlausa veidifélagid hyllir thig.
::The Satan of Death skeit klukkan 13:12 ::

Innilega til hamingju med 2/3 hlutann thinn af einni gæs eftir ad hafa verid a svædi lødrandi i gæs og oheftan adgang af tunum og økrum! Med aframhaldandi aukningu i veidi mattu alveg buast vid thvi ad na heilli gæs a næsta ari! Og tha verdur sko veisla!

Enn og aftur innilega til lukku med fenginn!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:08 ::

Haustlykt í lofti...
- fyrsta gæsaferð vetrarins
Skellti mér á gæs á föstudaginn með 15 mín. fyrirvara. Var búinn að berjast fyrir vesturferð þessa helgi en Kolli píka eyðilagði það.

Dúndruðum norður, í næstu sveit austan við Skabba. Gistum heima hjá Tryggva á Húsavík. Algjör snilld, mamma hans mixaði fullt af geðveikt góðum mat handa okkur. Farið seint að sofa, eftir 1, og vaknað kortér í fimm. Þá var farið að birta ansi mikið, þetta var of seint. Við höfðum fengið leyfi í tún daginn áður og lögðumst þar. Fengum ekkert flug en einhverjir faggar sem Tryggvi þekkir voru á heiði þarna rétt hjá að salla niður.

Keyrðum síðan um sveitina að redda leyfum og læddumst þrisvar. Einu sinni upp í fjall og tókst það vel, náðum tveimur. Einu sinni upp í hlíð, það var ótrúlega langt mauv og svo ógeðslega mikill mývargur að maður er allur útbitinn. Þetta var glæsilega útfært hjá okkur en þær færðu sig á síðustu stundu. Alveg súrt. Síðan hringdi gaur í okkur sem vildi losna við gæsir úr túninu hjá sér. Við skriðum eftir læk í hálftíma en þær voru búnar að færa sig úr færi þegar við stóðum loks upp.

Lögðumst í kantinn á túninu til að tékka hvort þær kæmu aftur. Strákarnir sofnuðu en ég beið til að athuga hvort einhver flækingur kæmi yfir okkur. Eftir 45 mín nennti ég þessu ekki lengur og vakti þá, ætlaði að fara og reka fugl af túninu við hliðina yfir þá. Ég var ekki búinn að taka nema 10 skref þegar flækingurinn minn kom og skaut Rúnar hann.

Fórum svo í geggjað kveldmauv. Rérum á árabátum og læti. Komum okkur fyrir við sandbakka og settum upp gervara. Þeir voru að skítvirka, plötuðum eina staka niður sem hélt sig utan færis og svo hóp sem synti til okkar og gekk á land. Því miður var orðið svo dimmt að þrátt fyrir ágætt færi hleypti bara Rúnar af. Við sáum einfaldlega ekki neitt. Ein þar.

Dagurinn endaði klukkan 01 - illa þreyttur. Fjögur stykki komin. Vöknuðum kl. 4 á sunnudagsmorgun. Fórum í morgunflug á geggjuðum stað en það er ennþá svo hlýtt þarna að það er ekkert hægt að stóla á fuglinn. Hann hafði legið í akri um nóttina og færði sig svo í vatn, kveldstaðinn, kl. 8. Flaug hátt og var almennt með leiðindi. Ekkert. Síðan reyndi ég að læðast smá en það heppnaðist ekki. Redduðum leyfi í akrinum fyrir mánudagsmorgun.

Ég kom mér síðan heim á sunnudagskveld til að geta komið inn ferðasögunni á réttum tíma (og mæta í vinnuna). Strákarnir tóku svo 6 stykki í morgun.

Vonlausa er búið að stimpla sig inn í haust. Skabbi verður formaður Noregsdeildar Veiða ekki rassgat klúbbsins og Kolli Íslandsdeildarinnar. Ég rúla því Skabbi getur ekki stolið gæsunum mínum frá Norge. Þið eruð eymingjar og eigið aldrei eftir að veiða gæs.

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 10:35 ::

5.9.03

Velkominn spunge - kretín 1 er því miður búinn að missa mynda ríkisstyrkinn sinn þannig að hann getur ekki sett inn myndir. Auk þess missti hann líka blogg ríkisstyrkinn sinn þannig að hann getur ekki svarað þér.

Lifi einkaframtakið!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:09 5.9.03 ::

Hvenær koma myndirnar ógeðslega skíthóran þín?!!?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:24 ::

4.9.03

Spunge er fundinn
Smínkur

::Hívatha litli skeit klukkan 18:00 4.9.03 ::

Hafa sumir ekkert betra við tímann að gera?
::KÍB skeit klukkan 16:06 ::

Er Spunge dáinn?
::KÍB skeit klukkan 14:49 ::

3.9.03

Ég bít á agnið
Ég skal alveg viðurkenna að sum stafsemi gengur án þess að fá styrki, en alls ekki öll. Það er til dæmis staðreynd að stórt metnaðarfullt leikhús, sinfónia, ópera ofl einfaldlega getur ekki rekið sig sjálft. Ísland er allt of lítið land til þess að það geti gengið upp. Þessvegna verðum við bara að spurja okkur hvort við viljum hafa svona starfsemi eða ekki. Svenni tekur Iðnó sem dæmi, ég get alveg verið sammála í því að það er ósanngjarnt að Þjóðleikhúsið og Borgarleikhús fá pening frá hinu opinbera en þeir ekki, en ég get ekki tekið undir það að þau séu að kæfa Iðnó, það einfaldlega getur ekki gengið upp nema að fá fjármagn sem sannar mitt sjónarmið. Ef ekkert væri sett í menningarmál þá værum við alveg með leikhús og tónligga ofl en ekki með sama sniði og alls ekki sömu stærðargráðu , gæðin fara reyndar ekki alltaf eftir því. Ég tel það bara vera mjög mikilvægt upp á þjóðlíf og samfélag að hafa öfulga menningarstarfsemi. Skattalækkanir ykkar munu ekki skipta dick í þessu sambandi vegna þess að ef leikhúsin ofl í þeim geira mundu þurfa að hækka verð til að mæta engum styrkjum mundu einfaldlega þýði minni ásókn hvort sem menn hafa einhverjar fleiri krónur í vasanum vegna skattalækkana. Ykkar sýn er sem sagt að hafa enga óperu, ekkert þjóðleikhús, ekkert borgarleikhús, enga sinfoníu o.s fr. Ekki sérstaklega sniðugt að mínu viti.

Í sambandi við björgunarsveitinrnar þá getið þið engum nema sjáfum ykkur um kennt hvernig það er. Ríkið gerir ekki neitt því það þarf þess ekki. Þið farið í öll skítaverk sem falla á ykkur án þess að segja múkk. Ykkur tekst að fjármagna ykkur sjálf þannig að auðvitað fáiði ekki neitt.

Sanngirni er kansi ekki til staðar en ekki er hægt að gefa öllum sem biðja um pening, þá mundi ég bara stofna kretínleikhús og heimta styrk. Menn geta bara vegið og metið hvort þeir haldi það gefa sig að fara í einkarekstur, en að segja að hin leikhúsin kæfi allt annað er bull, það eina sem er kæfa er að það er bara fáránlega erfitt að láta svona hluti bera sig. Það er alltaf verið að tyggja oní mann hversu rík þjóð við erum en ef við getum ekki haldið uppi menningu og samskonar lífi þá erum við nú ekkert sérstaklega rík.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:12 3.9.03 ::

Gölturinn er greinilega búinn að gleyma því að einu rök Kretín bræðra eru: "Af því bara!"
::KÍB skeit klukkan 16:32 ::

2.9.03

Kanntu ekki að lesa? Kíktu nú aðeins yfir það sem stendur hér að neðan og reyndu svo að svara því af einhverju viti. Þú færir engin rök fyrir máli þínu.

Og nei - ég var á námskeiðum og hjá kennurum í heimahúsum sem voru ekki ríkissponsaðir. Ekki fullyrða um það sem þú veist ekki um.

Hvað með Iðnó? Það er einkarekið leikhús sem gengur ekki af því að ríkisrekna leikhúsið er að setja það á hausinn. Er það sanngjarnt? Hvað með öll leikhúsin sem eru út um allan bæ og eru að gera góða hluti án ríkisstyrkja. Hvað með bíómyndir sem eru gerðar án ríkisstyrkja? Eru þær verri? Hvað með allan djassinn, rokkið, poppið, blúsinn og já - jafnvel klassíkina sem er gefin út án styrkja ríkisins? Er hún eitthvað verri? Hvað með skátana sem fá enga styrki? Hvernig geta þeir skapað sér tekjur ef annað barna- og unglingastarf getur það ekki? Hvað með björgunarsveitirnar - hvernig halda þær úti tækjaflota bíla, vélsleða, trukka, báta, skipa, köfunarbúnaðar, fjarskiptabúnaðar og mörgum húseignum án þess að fá krónu frá ríkinu ef það sem þú segir er rétt?

Það er föst upphæð af tekjum sem landinn skapar. Hún er alveg jafn stór/lítil þó að ríkið taki hluta af henni og eyði í þessa hluti. Þannig gæti framboð og eftirspurn vel skapað aðstæður fyrir vel rekið leikhús með góða starfsemi til að selja inn á sama verði eða lægra.

Það eina sem gerist þegar ríkið deilir út peningum er að eftirspurn ræður því ekki hverjir fá þá í sína starfsemi heldur duttlungar ráðamanna. Er það sanngjarnt gagnvart einkareknum leikhúsum, tónlistarskólum, íþróttastarfi osfrv.?
::Hívatha litli skeit klukkan 17:59 2.9.03 ::

Það er greinilegt hver kúrir hjá sínum (ó)fagra KÍB í skugga þröngsýni og eiginhagsmuna.

KÍB og skógöltur hans gleyma því að án opinberra styrkja myndu íþrótta- og tómstundafélög aldrei geta rekið sig. Skógöltur KÍB vældi mikið um að enginn styrkti tónlistarnám hans. Bullshit, allir skólar, þ.á.m tónlistarskólar fá opinbert fjármagn og gætu ekki starfað án þess, svo að í raun borguðum við undir gítarglamur galtarins.
Ef að starfsemi eins og sinfóníuhljómsveitir, tónlistarskólar, leikhús og íþróttafélög fengju ekki opinbert fjármagn til að stunda rekstur sinn myndu þessir hlutir ekki vera til staðar í íslensku þjóðlífi. Ef að markaðurinn fengi að ráða myndi verðið vera svo fáránlega hátt að engin færi á þetta, þrátt fyrir að skattarnir væru ögn lægri og við hefðum smá meira á milli handanna.
Einnig má benda á að það að hafa þetta ríkisstyrkt gerir það að verkum að þessir hlutir eru til staðar og fólk sem ekki er tilbúið að eyða tugum þúsunda í eina leikhúsferð getur farið í leikhús fyrir viðráðanlegar fjárhæðir. Þessir styrkir eru ekki fyrir fanatísku áhugamennina sem myndu borga næstum hvað sem er fyrir góða skíðalyftu eða góða tónleika, þessir styrkir eru fyrir hinn venjulega borgara sem hefur kanski áhuga á að kíkja án þess að koma sér á hausinn fyrir vikið.
::Mósagrís skeit klukkan 17:28 ::

Það er greinilegt hver kúrir hjá sinni fögru frú í skugga snjóflóðavarna og skreppur göngin á vídeóleiguna. Greinilegt líka að hann gengur í skóla sem kennir ekki hagfræði heldur hag landsbyggðarinnar.

Og hver minntist á sendiráð?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:22 ::

Þú gleymir því að ef við værum ekki að eyða svona miklum peningum í allt þetta krapp þá gætu skattarnir verið lægri. Fólk hefði miklu meiri pening á milli handanna og væri þess vegna til í að borga þrefalt verð í lyftuna eða á sinfoníuna eða í leikhús eða bara í eitthvað sem það hefur áhuga á (en ekki það sem stjórnmálamenn hafa áhuga á).
::KÍB skeit klukkan 12:39 ::

Djöfull ertu heimskur
Gölli hættir ekki að koma manni á óvart með heimsku sinni og öfgakenningum.
Markaðslögmálin rúla rassinum á Svenna
Ef að útópía Svenna gengi eftir og það væri aðeins ein lyfta á þreföldu verði þá myndi enginn fara í þessa lyftu og skíðalyftur væru engar, hence enginn gæti farið á skíði með familíuna á góðum sunnudegi og Gölli gæti ekki faggast á brettinu sínu. Þessi æðislegu markaðslögmál Galtarins myndu gera það að verkum að það væru engar skíðalyftur á landinu, engin sinfónía, engin alminnileg íþróttafélög. Allt þetta myndi hverfa því að í eðli sínu eru þetta ekki arðbær fyrirtæki og án ríkisstyrkja getur þetta ekki gengið.
Persónulega er ég frekar til í að eyða mínum skattpeningum í íþrótta, menningar og tómstundastarf en hærri laun til alþingismanna, fáránleg sendiráð hér og þar og fleiri gáfulega hluti sem Gölli virðist vera mjög svo hlynntur.
::Mósagrís skeit klukkan 12:12 ::

Markaðslögmálin rúla
Veistu það Kobbi - mér finnst eiginlega að markaðslögmálin ættu að stýra skíðalyftum eins og öðru. Þó það væru færri lyftur þá væru þær örugglega betur reknar, starfsfólkið ekki þroskaheft, betur staðsettar og meiri metnaður í rekstrinum. Jafnvel þó að það væri bara ein helvítis lyfta og þrefalt dýrara í fjallið held ég bara að það væri betra fyrir alla. Það er rétt, ég vil ekki hafa það að fólk sem notar ekki skíðalyftuna sé að niðurgreiða hana fyrir mig. Það er bara rugl.

Þetta mættu hinsvegar allir taka sér til fyrirmyndar. Fullt af þessu menningarbulli mætti nú alveg leita sér að peningum sjálft. Ég minnist þess nú ekki að við höfum verið styrktir af ríkinu í okkar tónlistarnámi eða spileríi. Þetta kom allt úr eigin vasa eða foreldranna. Og gítararnir mínir voru sko ekki keyptir með skattpeningum og fluttir inn án tolls, ónei.

Auðveldara að skera en að keyra rútu?
Við eigum að setja nægilega mikinn pening í nauðsynlega málaflokka, heilsugæslu og skóla. Hvaða rugl er það að unglæknar njóti minni verndar vinnulöggjafar en rútubílstjórar? Þó að rútubílstjórinn hafi vissulega tækifæri til að drepa fleiri í einu er fjarstæðukennt að láta lækna vinna 30 tíma vaktir. Slysin hafa orðið og munu verða eins og læknir einn sagði mér. Þetta er bara tímaspursmál þangað til eitthvað af þessum dæmum verður plásið upp, einhver með sambönd drepst.

Og skólarnir okkar eru ekkert góðir. Þeir eru frekar slakir. Of stórir bekkir, margir lélegir kennarar á lélegum launum með léleg kennslugögn. Skila krökkum út úr skólunum sem kunna ekki að segja neitt nema "bara" þegar þeir eru spurðir skoðunar á einhverju. BARA ER EKKERT SVAR andskotinn hafi það.

Svo eru náttúrulegar forstjórar Íslands, alþingismennirnir, margir hverjir vanhæfir. Ég held að hæfari menn myndu skila sér inn ef þeir fengju hærra borgað líka. Þá gætum við líka haft minni áhyggjur af spillingu og mútum. Slíkt er haft að leiðarljósi við ákvörðun kjara dómara. Þarf löggjafinn ekki að vera óháður líka? Svo mætti nú líka alveg meta frambjóðendur eftir ákveðnum reglum miðað við fyrri störf og menntun. Gefa þannig óháða einkunn á skalanum 1-10. Mætti líka nota í borgarstjórnarkosningum. Þetta er toppframbjóðandi, ómenntuð fífl sem skulda vörsluskatta fá lélega einkunn og komast ekki í borgarstjórn. Og ef allir hafa sama tækifæri til náms hafa allir sama tækifæri til að komast á þing þó metið sé eftir menntun.

Það mætti alveg bæta upplýsingaflæðið til kjósenda til að þeir gætu tekið betur upplýsta ákvörðun og lýðræðið gæti þannig virkað aðeins betur. Ákvarðanir á að byggja á rökum ekki vana eða fylgispekt.

Meira um almannafé
Addi nefndi skátana áðan. Vissuð þið að öfugt við íþróttafélög fá þeir ekki krónu í styrki. Af hverju getur svona batterí rekið sig sjálft og gert það vel, haldið við húseignum, skálum, bílum, tjöldum, ýmiskonar búnaði, hoppuköstulum, klifurveggjum og ég veit ekki hvað og hvað? Af hverju geta önnur félög það ekki? Á borð við íþróttafélög, menningu, gerð bíómynda ofl.? LOTR var dýr bíómynd, hún fékk samt ekkert frá ríkinu.

Og rekstur björgunarsveita er bara djók. Enginn ríkispeningur en samt er bundið í ný lög um björgunarmenn að þeim beri skylda til að mæta í útköll. Og ekki bara til að bjarga fólki heldur þegar ríkinu þóknast. Þegar þeir fara út úr húsi er borgaður þungaskattur af bílunum, vaskur af öllum vörum og eldsneyti, vaskur af matnum sem menn þurfa að kaupa sér sjálfir, vaskur af einstaklingsútbúnaði (1 milljón á mann úr eigin vasa), vaskur af sameiginlegum búnaði, vaskur og vegagjald af bensíni á báta og vélsleða sem keyra ekki einu sinni á vegum ofl. Þannig græðir ríkið og sparar sér í leiðinni að láta lögregluna eða ríkisstarfsmenn fá peninga til þessara mála. Spara þannig laun og græða skatt þegar björgunarsveitamenn eru látnir negla niður þakplötur.

Svona er það nú. Peningarnir fara til þeirra sem láta hæst eða búa í minnsta skítaplássinu svo atkvæðið þeirra vegur margfalt á við mitt. Þeir geta fengið jarðgöng og fínar fiðlur meðan við þurfum að hanga í umferðarsultu hálfan daginn og vera í lífshættu á umferðarljósum á borð við Miklabr./Kringlum.br. á leiðinni í Kringluna.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

1.9.03

Hvað er að þér, láttu mig í friði.

Iss, hverjum er ekki sama um þessa skáta. Reyndar finnst mér að það ætti að steikja þá, mala í duft og dreifa yfir heimshöfin. Vonandi losar það okku við þá plágu.

Af öðru, vaknaði klukkan hálf sex í morgun, var með martröð. Ég var ekki í martröðinni sjálfur, mig var að dreyma "28 days later" kvikmyndina. Algjörlega óbreytt í draumnum. Ég veit að ég var drulluskelkaður í bíó en gerði mér ekki í hugarlund að myndin hefði traumatiserað mig.
::H.H. skeit klukkan 16:34 1.9.03 ::

Ég var nú bara að stríða þér smá Pu minn með þessu skoti á þig, en hins vegar þykist ég vita að þú ert alls ekki á móti því að hið opinbera styðji við bakið við hin ýmis málefni og vera á móti einu vegna þess að þú stundar það ekki er ekkert annað en tvískinnungur. Skíðaiðkun og hlutir tengir því (td þessi bóla með þessi hommabretti) er mjög vinsælt sport. Hins vegar ætti Gölli að vera á móti því og vilja að markaðslögmálin ættu algjörlega að ráða ferðinni. Ef maður býr í almennilegu samfélagi þá verður maður bara að sætta sig við það að peningarnir fara ekki bara í það sem maður sjálfur vill og ég græt ekki aurana sem fara í íþrótta og menningarmál. Ég græt hins vegar allt bruðl með almenningsfé.

ps. Reyndar máttu ráða því hvort ég var að tala um kirkjuna eða skátana.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:55 ::

Það var nú bara einn aðili sem vissi um núverandi borgarstjóra áður en hann var ráðinn. Sá aðili spurði ekki núverandi borgarstjóra hvort hann væri saklaus eða sekur heldur hvort hann gæti verið sig fyrir þessum ásökunum.

Finnst mönnum það ekkert skrýtið? Ég veit að ef ég væri að ráða einhvern sem sætti lögreglurannsókn þá myndi ég spyrja hvort hann væri saklaus, sérstaklega ef hann er sakaður um að svindla á fyrirtækinu sem ég er að ráða hann til að stýra.
::KÍB skeit klukkan 14:50 ::

Hvað er að þér, láttu mig í friði.

Hvað er að þér, láttu mig í friði. Það var ekki ég sem kom með lýsinguna þína. Málið er náttúrulega að ég geymi mín fetish fyrir mig á meðan allir vita þín sem eru að ríkja sem hommadúó með Kolla í Noregi af öllum stöðum. Og hvað er málið með að draga Steina pepp í umræðuna eins og hún sé ekki nógu ómálefnaleg fyrir.

Hvað er að þér, láttu mig í friði. Ertu að segja að þjóðkirkjan þjóni bara smáum hópi. Hvað með allar skírnir, fermingar, giftingar, útfarir, sálgæslu, barna og unglingastarf, ellimálastarf, hjálparstarf, félagslegt hlutverk o.s.frv. Klassískt dæmi um að yfirfæra eigin notkun og hugmyndir á þorra landsmanna. Mjög rangt að gera slíkt. Allir íslendingar nota sér þjónustu kirkjunnar á einn eða annan hátt einhverntíman á lífsleiðinni, það er ekki hægt að segja um skíðalyftur.
::H.H. skeit klukkan 14:16 ::

Allir að kjósa!
::KÍB skeit klukkan 14:15 ::

Það fer nú alveg eftir því hvort vinnuveitandi þinn vill fá þig í vinnu eða ekki ef hann veit þetta. Fólk vissi þetta alveg fyrir kosningar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:11 ::

Vantar ekki eitthvað í starfsferil þessa manns? Nú á íslenska þjóðin alþingismann í steininum og svo gæti farið að borgarstjóri bættist í hópinn. Ætli ég yrði ráðinn á almennum vinnumarkaði ef ég gæti ekki byrjað alveg strax í vinnunni af því að ég þyrfti að sitja af mér smá tíma?
::KÍB skeit klukkan 14:01 ::

Tvöfeldni Galtar og Pulsu
Þið eruð báðir á algjörum villigötum (eða villigöltum) og eruð algjörlega ósamkvæmir sjálfum ykkur sníkjusníglar og eiginhagsmunaseggir. Mér þykir Pu ekki vera trúverðugur með málflutningi sínum að ekki vilja borga fyrir annarra manna skemmtun en er sjálfur partur af stofnun sem er haldið uppi af landsmönnum öllum en þjónustar í raun smáum hópi. Gölturinn er náttúrulega í hrópandi mótsögn þar sem hann hefur oft haldið reiðilestur þegar opinbert fé er sett í hin ýmsu menningar og íþróttamálefni. Skíðalyftur þjóna hóp sem er nákvæmlega sama og td sinfonían og fyndið er að vera á móti einu en með öðru einungis af því að maður sjálfur græðir á því.

Í sambandi við flutning frá Noregi þá var nú tíðin sú að menn fluttust þaðan vegna þess að því líkaði ekki að vera stjórnað af konungi. Hins vegar er staðan því miður orðinn þannig að hið göfuga íslenska blóð hefur þynnst svo mjög að foringjadýrkun er orðinn þannig að við værum miklu betur sett með alvöru kóng frekar en þetta gervilýðræði sem við búum við.

Enn og aftur koma þessir peningalegu þenkjandi hommar með sömu hræðslutugguna um vinstri stjórn og láta eins og Alfreð Horsteinsson sé vinstri stefna holdi klædd. Hvað með gaura eins og Einarana tvo fyrir vestan, Sturlu, Árna Johnsen, Sólveigu P, Sigga Kára ofl ofl. Jarðgöng á Siglufirði, mannaráðningar sem eru út í hött, sendiráð fyrir hundruði millójóna ofl ofl. KÍB ætti að vera löngur fluttur enda er hann að hugleiða það og flytjast í frjálshyggjubælið Dannmörku þar sem er sko ekki bruðlað með opinbert fé.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:00 ::

Djöfull er hressandi þegar menn eru soldið pissed off hérna!

Damn dúd - hvað heldurðu að vinstri stjórn á Íslandi myndi geyma pening lengi inni á banka eins og nojararnir gera? *Púff* - hvaða pening?

Fyrir utan það að ef við hefðum ekki flutt væri ég keisari í Noregi og Kolli væri hershöfðingi. Við myndum bæla niður hverskyns vinstra pakk og senda það beint á féló í Svíþjóð með lestum. Lifi byltingin!

Og Addi - in your dreams - geymdu fetishin þín fyrir sjálfan þig og Steina Pepp púrtvíns homminn þinn. Hvernig var í gay-krúsinu þínu?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:44 ::

Hvurslags eiginlega...
Ég vil taka það fram að Gölli fer með algjör ósannindi hvað varðar umræddan dag. Ég skemmti mér mjög vel og var það fyrst og fremst vegna þess að það var púður þannig að ég losnaði við Gölla beseveser á þessum dýrðardegi. Ekkert skyggði á upplifun mína. Hitt er annað mál að mig rekur ekki minni til þeirra atburða sem Gölli rekur hér að neðan með mjög svo hómóerótískum myndlíkingum. Ég get ekki munað að þú hafir tekið "flugskeytið" þitt og "Bugsy Malone byssu" og sprautað yfir mig "rjóma." Það er svo annað mál að slíkt trauma myndi að sjálfsögðu valda algjöru minnisleysi og afneitun af minni hálfu.

En og aftur losum okkur við þessar lyftur, liðið sem notar þetta eru pervertar sem þykjast vera að skíða en eru í raun að níðast á vinum sínum með fleimer-hætti. Til hvers ætti ég að vera að borga fyrir slíkt?
::H.H. skeit klukkan 13:09 ::

Það var nú kannski meira tengt því hverjir stjórnuðu ekki það að landið hafi verið svona hræðilegt. Hvað ætli þú myndir tóra lengi hér á landi með vintstri stjórn yfir bæði ríki og borg? Þar sem hugmyndir eins og hraðlest REYKJAVÍK-KEFLAVÍK fyrir 30 milljarða, sporvagnar með tilheyrandi jarðgöngum undir Þingholtin, skattahækkanir ásamt fjölþrepaskattkerfi og almennt auknum ríkisrekstri í samkeppni við einkaðila ætti upp á pallborðið.
::KÍB skeit klukkan 13:08 ::

Íslendingar eru fífl
Ísland er fínt, ekki misskilja mig. En hvað voru þessar víkingalufsur að pæla? Flýja frá landinu þar sem er endalaust af spýtum til að brenna, byggja úr og selja? 30 stiga hiti á sumrina og hæfilegur kuldi á veturna = ekkert slabb og sæmilegur skíðasnjór? Fullt af klettaklifri? Endalaus olíuauður? Landfast við Evrópu = keyra í fríið = ekkert helvítis flugleiða OKUR? Engir jarðskjálftar, eldgos, flóð og aðrar náttúruhamfarir?

Ég sé það núna, þennan hræðilega stað þurfti sko að flýja EFOAE (Eins Fljótt Og Auðið Er).
::Hívatha litli skeit klukkan 13:02 ::

Þið eruð fífl
Norge var fínt. Smyglaði einni munntóbaksdós upp á prinsippið en þær eru því miður í dýrari kantinum þarna úti. Kosta 58 norskar en ég er að fá þetta niður í 400 kall hérna þannig að það tekur því ekki. Hinsvegar var ég spurður hvort ég væri hrár í tollinum. Ég sagðist vera villisvín og stangaði gaurinn.

Hraksaga arabíu-adda
Sko. Skíðasvæðin eru öllum opin, ekki bara einhverju forréttindapakki. Þetta er ekki einhver asnaleg hópíþrótt þar sem helmingurinn af krökkunum er á bekknum, allir geta rennt sér saman og haft gaman af hvort sem það er á skíðum, bretti, telemark eða einhverju öðru. Í góðum árum skríða svæðin upp og yfir núllið. Þau standa samt ekki undir fjárfestingum. Það koma að minnsta kosti einhverjar tekjur. Hægt væri að hagræða töluvert í Bláfjöllum með því að færa til lyftur og nota búnað betur en smákóngar í íþróttafélögum koma í veg fyrir það. Fífl. Annars finnst mér pening í skíðalyftu betur varið en í margt annað til að styrkja útivistaraðstöðu Reykvíkinga og barna og æskulýðsstarf.

Ástæðan fyrir að Pu er svona svekktur er að þegar hann fór með okkur á bretti var púður. Eins og allir vita: "there are no friends on a powder day" Þetta skildi Pu ekki og fór að gráta af því að enginn vildi vera memm. Sat svo í snjónum vælandi í 10 tíma meðan við vorum að renna okkur. Og eins og allir vita eru arabar á borð við Pu ekki með hitaelement í slíkt. Það var einmitt þá sem á tók flugskeytið sem ég var með í bakpokanum en hafði breytt í svona Bugsy Malone byssu og skaut Adda. Þá var arabi skotinn með flugskeyti. En í rauninni var þetta bara Pu sem var skotinn með rjóma. Þar hafið þið það. Þessvegna hefur hann alltaf verið á móti skíða íþróttinni.

Spunge má greinilega bara tjá sig við þá sem eru í Norge því að hann sendi mér SMS. "Fyrsta Íslendingaprattíið - á ég að míga í vaskinn?" Ég svaraði að sjálfsögðu að annað væri lögbrot. Hálftíma seinna kom: "Jæja, þá er það afgreitt og líka í handsápuna. Og þvílík fossmiga"

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 10:48 ::

Skoða eldri færslur >>