31.10.03
30.10.03
Kanski við ættum að láta lessurnar á femin.is vita af honum, þær geta eflaust hlúð að særðum tilfinningum og hjálpað honum að takast á við mótlætið.
Bakgrunnurinn er enn eitt helvítis einkaflippið hans Gírna. Eitthvað asnalegt kofaskrifli. En ég tek undir það, batnandi mönnum er best að lifa og sjálfhverfan er kannski að læknast, hver veit. Nema það sé búið að breyta Sírni í kofa í listafaggaskólanum. Hver veit?
Þetta lógó er ljótt en allt er skárra en ljósritað andlitið á Sírni afbökuðu og steiktu í bakgrunni. Talandi um það, hvað er með þessa mynd sem er núna í bakgrunni. Ég ætla rétt að vona að þetta sé eitthvað alvöru (og hef Fabian grunaðan) því að ef þetta er sölumynd af vef ferðamálaráðs Noregs þá erum við algjörir aumingjar.
Ég held að það sé orðið ljóst að Gölli má ekki fá nein völd í hendurnar án þess að hann misnoti þau. Ég legg til að hann hýsi Vonlausa en jafnframt verða tekin af honum öll admin réttindi. Einnig legg ég til að árshátiðin verði haldin í Efranesi en honum meinað að taka þátt, nema til að koma daginn eftir og taka til.
29.10.03
Hvernig væri nú að þú myndir hýsa Vonlausa fyrir okkur fyrst það er alltaf svona mikill sláttur á þér hér á vefnum. Tja, eða bjóða okkur í veiðiferð í fínt veiðihús? Það væri nú gaman.
Gölli, við hyllum þig fyrir að hafa loksins komið Vonlausa.is á þitt plan eftir áralanga baráttu.
Við verðum líklega ekki moldríkir eftir allt saman...
af agn.is:
"Loks má nefna, að Sigurður Héðinn, leiðsögumaður í Norðurá og ritstjóri Fréttabréfs SVFR er að skrifa bók um flugur og fluguuppskriftir. Hvort að hún kemur út eða ekki þessi jól vitum við ekki, en þó mun það vera bjargföst ætlan höfundar."
Hann hefur legið á hleri í Vola, helvískur...
28.10.03
Ég ætla að leggja fram vél fyrir þetta, 1MB tengingu, ip-tölu og router. Sindri ætlar að hjálpa mér að strauja hana og setja upp XP með IIS pakkanum. Græjum líka ftp server. Við kaupum lén en sleppum hugsanlega við hluta af föstum kostnaði þar með smá mixi.
Kostnaður við þessa aðgerð verður því að kaupa lénið og hugsanlega væri sanngjarnt að menn myndu taka einhvern smá þátt í tengingu og ip-tölu, en þá er ég bara að tala um klink á kjaft.
Kostir við þetta eru að við getum þá sett upp það sem við viljum á servernum og haft ótakmarkaðan aðgang. T.d. movable, póstþjón, MySQL fyrir einhver nördaprójekt hjá Renis og Mjöðminni osfrv.
Við gætum misst þetta niður á næstu dögum. Mæli með föstudegi eða helginni í tölvonamix.
F.h. vefnefndar,
Gölturinn
Ég drep mig næstum og eina sem gölturinn hugsar um er hvort hann fái að éta og ef hann fær ekki að éta þá rekur hann mig úr félaginu. Síðan hvenær varðst þú Formaðurinn, þú fyrirgerðir rétti þínum til stöðunar þegar þú veiddir gæs fyrir norðan. Gott á þig, ha, ha.
Á næstu dögum dettur vefurinn niður. Þjónustuaðilinn okkar er að hætta. Ég veit ekki hvort þetta lén verður sett upp annarstaðar en ég myndi ekki treysta því.
Hvar getum við sett þetta upp aftur og á hvaða domaini? Nasistasamfélagið askur á eflaust ekki eftir að taka þetta í mál. Er einhver með server / domain sem við getum notað?
Sælir hommar
Ég get ekki sagt að síðustu tvær vikur hafi verið sérstaklega viðburðaríkar. Sérstaklega i ljósi þess að alla síðustu viku lá ég heima með flensu.
Hér í Þrándheimi stendur yfir heljarmikil hátíð. Þetta er viðburður sem haldin er á hverju ári og nefnist UKA eða vikan. Og eins og nafnið gefur til kynna stendur hátíðin yfir í ... þrjár vikur. Tónleikar á hverju kvöldi næstum, söngleikir, leikrit og endalaus partý. Sumir mæta hreinlega ekki í skólan allan þennan tíma. En af því að ég er gamall lúði fór ég bara einu sinni í leikhús að sjá e-n norskan grínþátt (yawn) og á Briskeby/Cardigans tónleika. Sem voru prýðilegir, án þess að vera stórmerkilegir. Svo var tíðindalaust bjórkvöld hjá Íslendingafélaginu Kjartani.
Um síðustu helgi fór ég hinsvegar til Oslóar til að hitta fjölskyldu Karenar. Til upphitunar horfði ég á Meet the Parents. Því miður var fjölskylda Karenar allt of venjuleg til að gerð verði bíómynd um heimsóknina. Ég túristaðist aðeins um bæinn á laugardeginum. Fór og fékk mér míkróbruggaðan bjór um kvöldið. Á sunnudaginn bauð mágur Karenar mér með sér á fótboltaleik því hann er gallharður Lilleström áhangandi. Lilleström - Odd Grenland, 3-0 fyrir Lilleström, húrrahúrrahúrra!! Allir í fjölskyldunni voru búnir að vara mig við því að mágurinn væri bandbrjáluð fótboltabulla sem engin bönd héldu en þar sem okkar menn höfðu yfirhöndina allan tíman fékk ég því miður ekki að sjá þá hlið á honum.
Svo var haldin mikil veisla á sunnudagskvöldið, mér til dýrðar, hvar snæddur var nýskotinn elgur. Ég verð bara að segja fyrir mína parta að ef ég hafði e-ntíman áhuga á að veiða elg þá hefur sú löngun margfaldast núna því elgssteikin var þvílíkt geðveikislega góð að ég hefi varla smakkað annað eins! M M MMMmmmm! Enda át ég á mig gat....
Svo kom ég heim í gær og fór í bíó.
Einu verð ég að deila með ykkur í viðbót. Á meðan ég lá með pestina heima hugsaði ég bara um eitt...eða tannski tvennt... Allavegana hugsaði ég ógeðslega mikið um að veiða og hversu frábært mér finnst að veiða fugl og fisk. Þessvegna heimta ég að e-r komi með mér að veiða önd eða skarf eða svartfugl þegar ég kem heim um jólin. Ég lýsi líka eftir hugmyndum um stórveiðiferð næsta árs. Nú veit ég ekki hverjir ykkar verða tjóðraðir við barnavagna næsta sumar en ég trúi ekki öðru en að við getum skipulagt að skellt okkur í a.m.k eina sæmilega ferð.
ÞránheimaÞrándurinn kveður í bili, hommar
1) Þú snérir og hirtir gæsina og snæðir hana ásamt VV í kveld, grillaða, þunnt sneidda með góðu rauðvíni. Ert þar með búinn að veiða meira en Sindri, Skabbi og Kolli í ár.
2) Þú lést hana liggja og ert hér með drekinn úr VV.
Prattí verður haldið í Le Casa du Porc á laugardaginn af því að ég á ammæli og Ása er að útskrifast. Mætið kl. prattí, komið með brennivín þó að ég gefi ykkur kannski smá. Bannað að vera með óspektir á borð við gufuferðir, pissa í vaska á glugga og í blómapotta osfrv. Ása verður sett í að henda Kolla út ef hann getur ekki hagað sér.
Skabbi er tíkin hans Þrándar.
27.10.03
24.10.03
Ótrúlegt hvað verður mikil breyting á mönnum þegar markaðurinn er á uppleið...
Bandaríkin ætla að ráðast á Ísland - spurning um að hamstra haglaskot og kúrekabaunir...
Google er að spá í að fara á markað. Þeir eru að græða fullt af paun og gera góða hluti. Djöfull er margt ótrúlega töff hjá þeim, hér er hægt að sjá þjónustur, svo er fyndin saga af stofnun google (angel). Svo tveir magnaðir fídusar, fréttaleit og vöruleit.
Að lokum smá fyrir Skabba, Kolli potaðu í augað þitt. Það er hægt að klefra smá hérna þó að enn sé ekki kominn alvöru ís.
23.10.03
Hún hitti hann á pöbb eitt kvöld
á Country pub í Reykjavík
Hún starði á hann mjög ákveðinn
Hann glápti á móti dauðadrukkinn
Hún kinkaði kolli og blikkaði hann
Hann var dáleiddur af allann Vodkann
Hann fór til hennar og sagði
hvar hann var frá
Hún sagði "Veistu hvað?"
Við höfum sameiginlegt
því við komum bæði frá Kópavogi
Chorus
Ást á pöbbnum, þau féllust í ást á
pöbbnum
Nú grætur hann - Hann átti að kynnast
henni fyrst
Hún eyðir öllu hans fé. Hann sparar
ekki neitt
Hann vildi kaupa hús, en hann á varla
fyrir öl krús
Til að gera allt verra hann missti vinnuna
í staðinn að vinna fór hann norður með henni
Hún dróg hann til Akureyrar
Þau dönsuðu línudans fram til klukkan 3
Syngjandi.....við komum bæði frá Kópavogi.
Þar sem ég náði ekki að klára drauminn þá er eitt sem ég er búinn að vera að velta fyrir mér:
Til öryggis held ég að næstu laugardaga ætti Kolli að kaupa lottómiða með tölunum 5, 7, 9, 11 og 35 og geyma hann hjá mér. Best væri líka ef hann gæti gleymt því að ég væri með lottómiðann hans.
22.10.03
Fyrir þá sem voru að fylgjast með litla Ninjanum þá er fyrirtækið hætt við að fara á hausinn og komnir fleiri þættir
Sérfræðingar í Intersport
Hvernig er hægt að vera svona heimskur?
"Öndunin í gegnum úlpuna er meiri eftir því sem goritexfilmurnar eru fleiri. Úlpa með einu filmulagi er fín ef þú ætlar að rölta um Heiðmörkina, tveggja laga goritexfilma er fín upp til fjalla fram eftir hausti...en í úlpu með þremur lögum ertu fær í flestan sjó hvenær sem er"
Meira rugl frá ruglödöllunum í IS. (Kolli, potaðu í augað á þér)
21.10.03
regla 1. Engir geltir mega spila
regla 2. Spilið má aldrei fara aftur í vesturbæinn
regla 3. Sírnir er hommi
Djöfull dýrka ég hnetusmjör!
Vesturbærinn sökkar big tæm, ég flyt líka á réttum tíma akkúrat þegar mar er loksins hættur að halda með þessu skíta KR. ÁFRAM ÞRÓTTUR!!
Svo ætti Gölturinn líka að vita það að hnetusmjörsblogg eins og síðasta innlegg hans eru síst til þess fallin að vera eitthvað burn verður bara alltaf veikara og veikara.
Held líka að maðurinn sem er geymdur á heimavistarskóla milli þess sem hann pantar pizzur í ÍBÚÐINA sem foreldrar hans keyptu fyrir hann hafi brotið nokkrar rúður í glerhúsinu sínu núna.
Öldugrandi tilheyrir skítapakksveitarfélaginu Seltjarnarnesi.
Verst er að mer getur ekki farið í heimsókn til þín nema mamma og pabbi séu ekki heima og þá má ekki vera í fínu stofunni.
20.10.03
Kill Bill er snilld - farið á hana. Mig langar aftur. Mig langar að sjá Part II. Vá. 40 rokkstig af 5 mögulegum. Keypti líka tónlistina. Stjörnuleikur hjá öllum eins og venjulega. QT er snillingur. Þessi fer í DVD safnið.
Kíkti á Kaffitár með Renis (stóra og litla) á laugardaginn, smá hjólatúr, listflug á Reykjavíkurvelli og svona. Svo ammælisprattí hjá bjsv. Tryggva. Hann var með matreiðslumann af veitingahúsi að elda gæs og önd hjá sér. Geeeeðveikt. Við þurfum augljóslega að snúa okkur meira að andaveiðum, þær eru rosalega góðar.
Síðan voru snilldar drykkjuleikir (var reyndar edrú) - verð að sýna ykkur borðtennisspilið. Mjög vinsælt í Kasakstan. Allir perufullir, bírbong, pissað fram af svölum, hátt rokk, mún, ælt, drepist og fleira skemmtilegt.
Skellti mér svo í snilldartúr á Sólheimajökul í gær, klifruðum tvo ísveggi og tókum smá rölt. Síðan Gallerý Pizza á Hvolsvelli sem er náttúrulega snilld.
17.10.03
Dagsins í dag mun ég ávallt minnast sem dagsins er ég eignaðist "non-optical mouse cleaner."
Jibbí.
16.10.03
Kolli er svikari og skíthóra hvers orð eru einskis virði! Hann er fluttur á Langholtsveg.co.uk í rassgat sem er amk. 10.000 metra frá miðpunkti KR-vallar. Samkvæmt lögum VV verður hann því drekinn úr klúbbnum og má þar að auki ekki vera í RISK klúbbnum okkar samkvæmt lögum hans og alls ekki varðveita spilið.
Tekið skal fram að Krummi er samt meiri faggi.
12. gr. Forseti lýðveldisins hefur aðsetur í Reykjavík eða nágrenni.
Það er rétt að því opnari sem stjórnarskrár eru því betra. Mestu harðstjórnarríki heims eru oft með ítarlegustu stjórnarskrárnar og er þá beitt gagnályktun til að réttlæta mannréttindabrot. Löggjafinn heldur lögunum við og dómstólarnir stýra þeim svo út í þjóðfélagið þar sem löggjafinn er svifaseinn. Hinsvegar réttætir þetta ekki að kúka yfir stjórnarskránna. Það er einfaldlega stjórnarskrárbundinn réttur manna að það sé ekki vaðið inn á heimili þeirra af starfsmönnum samkeppnisstofnunar án þess að fara í gegnum eðlilegan prósess, dómstóla og lögregluna.
Segjum að þetta gerist 5 sinnum á ári. Réttlætir það lagasetningu? Eða ætla þeir að hlaupa inn á heimili hjá öllum þegar lögin fara í gegn.
Fyrir utan það - þetta er bara rugl og verður aldrei samþykkt.
15.10.03
Mér þykir merkilegt að gölli sé svo klár í lögfræði að geta skýrt greinar stjórnarskrárinnar svo engin vafi felist í. Ég satt að segja skil ekki afhverju hann hefur ekki verið skipaður sérstakur lögskýringagöltur Hæstaréttar sökum gríðarlegs skilnings hans á vafaatriðum lögfræðinnar.
Staðreyndin er sú að þessi grein er mjög opin og skv. almennum lögskýringareglum skal túlka stjórnarskrána rúmt. Mér finnst soldið fyndið að gölli vitni í Hæstarétt því ég held hann hafi ekki hundsvit á því hvort Hæstiréttur hafi mótað sér þessa ákveðnu afstöðu gagnvart 2. málsgrein 71. greinar stjórnarskrárinnar.
Lagagreinar eins og sú sem við erum að tala um eru hafðar með svo opnu orðalagi til þess að þær geti aðlagast breyttum tímum. Hagsmunir þjóðarinnar felast í því að hægt sé að koma í veg fyrir ólögleg samráð og að það sé refsað fyrir slík athæfi. Því er hægt að gera slíka húsleit undir merkjum þessarar greinar, breyttir tímar og breyttar aðstæður krefjast þess.
Þú talar um að slíkar aðgerðir eigi að beinast gegn fyrirtækjum en ekki einstaklingum. Bullshit. Samkeppnislögin taka það skýrt og skilmerkilega fram að forstöðumenn fyrirtækja beri fulla ábyrgð á samkeppnisbrotum og samkvæmt þeim er hægt að dæma í fangelsisvist fyrir brot á samkeppnislögum. Skv. þínum skilningi, ætti þá að setja Sölufélag garðyrkjubænda hf. í fyrirtækjafangelsi?
Ég skal alveg fara í fræðilegar umræður um þetta ef þú vilt, en þá mæli ég með að þú lesir eitthvað meira en utan á þennan Trix pakka þinn. Hann hjálpaði þér allavega ekki í lögfræðinni.
Samkvæmt þeim skilningi sem menn leggja í 71. grein, þ.á.m. sú túlkun sem Hæstiréttur hefur mótað, fellur þetta svo langt utan heimilda að það er ekki sniðugt.
Ef nauðsynlegt er að brjóta þennan rétt verður það að vera til að vernda hagsmuni annarra, t.d. leita að morðvopni eða slíku. Ekki bara til að róta í einkamunum þínum og fjölskyldunnar þinnar til að athuga hvort þú tókst skýrslu um verðsamráð á olíumarkaði með þér heim. Þær aðgerðir eiga að beinast gegn fyrirtæki, ekki starfsmönnum þess. Það er vissulega mögulegt að menn feli eitthvað svona heima hjá sér en það er ansi langsótt. Eðlilegra væri líka að taka sérstaklega á máli af þeim toga ef grunur um slíkt kæmi upp. Furðulegt að setja þetta í lög.
Þá er verið að veita opinberri stofnun þessar ríku heimildir sem verður að teljast mjög varhugavert.
Ég skal alveg fara í fræðilega umræðu um þetta hérna við þig ef þú vilt. En áður en þú hættir þér út í það bendi ég á að þú lærir meira um lögfræði með því að lesa utan á Trix pakka en að nema við Bifröst.
Þú vísar í 71.grein stjórnarskrárinnar sem segir að það beri að vernda friðhelgi einkalífsins. Lestu þá alla greinina, sérstaklega aðra málsgrein þar sem tekið er fram að það megi takmarka þessa friðhelgi til að vernda rétt annara. Hence, það má gefa heimild til húsleitar heima hjá þessum plebbum til að passa uppá hagsmuni okkar sem þeir eru að að fokka í með samráði og leiðindum.
P.s. ég skryfa ekki vytlaust og hef aldrey posdað á hlaþ vevinn
Leyfa Samkeppnisstofnun að hafa heimild til húsleitar á heimilum fólks út í bæ? Hvað er næst? Veiðistjóri má leita í frystikistunni minni?
Ætli þeir hafi skoðað þetta? T.d. 71 gr.? Hugsa ekki. Samfylkingin er ekkert að stressa sig á svona hlutum.
Lærðu svo stafsetningu hommatetur.
Annars magnað - þó að þessi kunni að skrifa byssa þá er einn þarna inni (og hér reyndar líka) sem kann ekki að skrifa leita
Ég reikna með því að allir limir VV sem áttu heimangengt í dag hafi farið niðrá Austurvöll til að mótmæla rjúpnaveiðibanninu.
Nú hefur hópur þingmanna með Gunnar "Jabba the Hut" Birgisson í broddi fylkingar borið fram þingsályktunartillögu um að fella bannið úr gildi en leyta í staðin annara leiða, svo sem sölubann. Frekar skondið í ljósi þess að Gunnar Birgisson var einn þeirra sem felldi frumvarpið um sölubann í fyrra ásamt Pétri Blöndal, sem einnig stendur að umræddri tillögu.
Er það harðsvírað lýðskrum eða alger tilviljun um að ÞESSIR menn bera fram ÞESSA tillögu á ÞESSUM degi?
Hún er helvíti góð, þeir eru að rokka þessir púkar. Hvet menn til að kaupa, þó ekki sé nema fyrir málstaðinn.
14.10.03
Kíkti á þessa mynd í gær í kjölfar umfjöllunar Stæners á dögunum.
Djöfuls krapp er þessi gagnrýni. Myndin er um Hrönn og hennar upplifun á keppninni. Hinar beyglurnar eru sáralítið í mynd og yfirleitt blörraðar til helvítis. Hvað er málið, til í að vera á nærjunum fyrir framan Þorgrím Þráinsson en vilja ekki sýna andlitið í heimildamynd?
Annars er þessi mynd stórgóð. Hrönn er töffari, snjöll, skemmtileg og geðveikt sæt. Magnað að sjá hvernig hún tapar sér soldið í þessu og er farin að taka þessu svo alvarlega að hún fer að gráta þegar hún heldur að það eigi að sparka sér úr keppni.
Mæli með þessari þegar menn finna ekki neitt næst á DVD-leigunni. Mæli líka með því að Hassen systkyni (Hrönn og brósi) búi til directors cut fljótlega og gefi skít í feitu fyrrverandi Mrs. Corex og hennar slekti.
Svo er ég að pæla, hvern varstu að fara starfa rétt áður en myndin af þér er tekin?
Ég fann dauða vespu og lék mér svoldið með hana í skannernum, verð með sýningu á þessum myndum eftir að ég kem frá Venedig. Hér er smá sýnishorn
13.10.03
Sindri á laugardaginn => hombre estúpido grande
Sjaldan er ein báran stök!
Casa Grande á laugardaginn => Nokkuð Gott
Sjaldan er ein báran stök!
Steggjun Sibba var snilld á föstudagskveld. Gufan hjá Jónasi heimsótt (ég vann Sindra í skák - vei). Bókmenntirnar eru á bak og burt og ég verð að segja að staðurinn hefur ekki helminginn af aðdráttaraflinu án þeirra. Gunni staðarhaldari reyndi hetjulegt sjálfsmorð með því að spyrja Big Lobbster af hverju hann væri með nauðgara á hendinni.
Síðan var haldið á Casa Grande sem er SNILLDAR staður. Bæði var maturinn SUDDALEGA góður og mjög vel útilátinn. Hjördís, þjónustustúlkan okkar, var sæt og skemmtileg. Hún tróð tequila ofan í mannskapinn og var til í að redda öllu ruglinu í okkar, fór meira að segja og náði í stóran mexíkanahatt og fyllti hann af nachos af því að Lobbi vildi fá Nachoshatt. Props til Casa Grande og Hjördísar. Lobbi átti línu kveldsins: "Senjorita - dos cervesa por favor" "Djöfull ertu steiktur Lobbi" "Hvað er að ykkur - þetta er það eina sem þessar kjéllingar skilja!"
Svo á Sólon þar sem djammið hélt áfram. Kolli, Bragi, Sírnir og Skabbi eru aumingjar og lyddur hvers orð eru einskis virði að mæta ekki.
Fór svo á mótorkrossdæmið á laugardaginn [1] [2]. Þetta var drulluflott, öll trikkin. Annar útlendingurinn slasaðist reyndar daginn áður en kom og tók smá burn-out (spól) og var það ansi nett. Munaði ekkert um að spóla í hringi standandi.
Leikurinn var RUGL. Ég er brjálaður út í þennan Rússa. Og Skari við Neslaug sökkar.
Árshátíð SSÆ um kveldið, maturinn á Lækjarbrekku bliknaði við hliðina á kræsingunum á Casa Grande. Við Addi vorum fyndnastir. "Dónde está el Pollo? Que Pollo?" Múhahaha...
Málaði svo bílasalinn í Gróubúð í gær og kíkti á Bílskúrsbíó í MÍR sem var snilld. Mottan var náttúrulega geðveik, Konur: Skapavandræði var drullufyndin - ekta estrógen kjéllingar, Kafteininn hafði ég séð og prýðileg mynd frá Ragga þar sem your's truly brá fyrir. Nýlendan eftir Ragga Kjartans er reyndar um mál sem ég hef alltaf verið áhugamaður um að halda lifandi, en það er hvernig Danir níddust á Íslendingum, en fyrir utan að vera soldið sniðug var hún ekkert spes.
Búið.
11.10.03
Via K@ - tjékk
10.10.03
Mæta á bíósýningu hjá Lorti í kveld, á morgun eða á sunnudag kl. 19 eða 22.
Mæta á Valsvöllinn kl. 13.30 á morgun (laugardag) og sjá geðveikt góða krossaragaura frá úglandinu stökkva og trikka.
Reyndar fannst mér bakþankar Guðmundar Steingrímssonar miklu fyndnari...
Baksíða Fréttablaðsins
9.10.03
Og hvað er annars með fucking tolla af landbúnaðarvörum og alla milljarðana sem við dælum í þetta helvítis landbúnaðarkerfi?
Hver er annars Æðstiprestur Vonlausa svona ef út í það er farið?
Mér finnst þetta mestu bullrök í heimi að það sé verið að gera gott við fólk með því að halda því í þrældómi, en sumir kanski ljúga þessu að sér til að friða samviskuna.
Miltisbrandur er bara þroski sem vill alltaf hætta leik þegar hann æsist en þó ekki jafn mikill þroski og aumingi eins og Gölli sem setur fyrirvara á allt því hann er hræddur við að vera lögsóttur af æðstapresti Vonlausa.
PS: Ef einhver vill vinna hjá mér fyrir 20 kall á tímann má sá hinn sami senda mér umsókn á kib@sweatshop.is, ég get eflaust fundið einhverja leið til að græða á því.
Það sem KÍB er að segja er að hérna ætti að vera gífurleg stéttaskipting og okkur ætti að vera alveg sama að við séum að notfæra okkur eymd annarra svo lengi sem við spörum pening. Því þessar starfsmannaleigur eru ekki að gera annað en að notfæra sér fátækt og bágt ástand fólks. Að tala um að koma hingað í víking og græða fullt af peningum er þvílíkur þvættingur. Áður en þeir koma hingað þurfa þeir að skrifa undir uppsagnarbréf þannig að þáð má segja þeim upp án ástæðu með engum fyrirvara og þeir þurfa sjálfir að borga fyrir farið heim. Ef þetta væri ekkert mál, við ættum að vera 'samkeppnishæf' við alþjóðasamfélagið þá mundi allir verktakar gera þetta. Verkamenn og iðnaðarmenn mundu þurfa að lækka laun sín eða missa vinnuna.
Það er vissulega slæmt að aðrar þjóðir skuli ekki hafa náð jafn langt og við í að jafna rétt fólks til sómasamlegs lífs en það er eiginlega verra finnst mér að Landsvirkjun skuli notfæra sér það.
Svo vill ég nú bara varla trúa því að KÍB vilji í alvöru borga fólki 20 kall á tímann.
Ég held að það séu frekar ömurleg viðbrögð við harðnandi samkeppni á alþjóðavettvangi að ætla alltaf að níðast á verkalýðnum. Samkeppnin er í mörgum tilfellum hætt að snúast um möguleikana á að framleiða og selja vöru og er farin að snúast um að hámarka allan gróða. Ég held til dæmis að NICE og PUMA séu ekkert að berjast í bökkum og geri allt til að halda verðinu til neytandans niðri, nei, þeir gera allt til að halda framleiðslukostnaði niðri þannig að munurinn milli framleiðslu og sölu verði sem allra mestur => meiri gróði.
Og hver tekur á sig lækkaðan framleiðslukostnað? Verkamenn í S-Amríku og Asíu sem hafa að engu öðru að snúa.
Þú spyrð hver munurinn sé og hann er þessi: við látum peningana ekki beygja okkur gjörsamlega. Verkalýðsbaráttan hefur skilað því að vinnuaflið hefur líka völd og rödd, ekki bara peningaaflið. Því miður er það ekki svo alls staðar annars staðar í heiminum, en það er svo hér og við eigum að fagna því.
Vissulega myndi Impregilo gera það sem þeir eru að gera í Punjab eða Kína ef þeir kæmust upp með það. Verkið er hins vegar þess eðlis að það er bara hægt að vinna það á Íslandi. Því verða þeir bara að sætta sig við okkar reglur og lög. Ef að þeir eru eitthvað súrir og segjast ekki hafa gert ráð fyrir þessu í kostnaðaráætlun þá er það þeirra bad að hafa ekki kynnt sér aðstæður og lagaramma hér á landi nægilega vel.
Staðreyndin er sú að verkalýðurinn hefur ákveðin völd hér á landi og það er af hinu góða að þessi völd verði nýtt til að koma í veg fyrir að erlend risafyrirtæki geti nýðst á starfsmönnum sínum.
Portúgalir lögðu niður vinnu við Kárahnjúka
Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka lögðu niður vinnu á virkjanasvæðinu í morgun til að leggja áherslu á kröfur sínar um að þeir fái skjólfatnað til að verjast íslenskum vetri. Samkvæmt heimildum Fréttavefjar Morgunblaðsins eiga verkamennirnir skv. sérstökum Evrópureglum sem vitnað er til í kjarasamningum rétt á að fá fatnað sem ver þá kulda. Finnst þeim núverandi fatnaður ekki veita nóga vernd gegn íslenskum vetri sem skollinn er á við Kárahnjúka.
Af netmogganum
Loksins komið líf í Vonlausa! Gölturinn gæti verið stoltur af þessu umræðuefni ef hann væri ekki of mikil lydda til að taka þátt.
Ég veit að við getum ekki látið Kínverja vinna í frystihúsi á Íslandi fyrir 20 kall á tímann. En við getum samt látið þá vinna fiskinn okkar. Við einfaldlega leggjum niður frystihúsið hér og kaupum nýtt í Kína. Hver er munurinn? Kínverjarnir vinna fiskinn fyrir 20 kall á tímann, fólkið sem vann í frystihúsinu er atvinnulaust. Sama niðurstaða hefði fengist með því að flytja Kínverjana til Íslands í staðinn fyrir að flytja frystihúsið til Kína.
THE FABULOUS HOGHORNS SÄLJER SIG!
The Fabulous Hoghorns är förmodligen Brax-Tones mest folkkära combo, inte minst sedan sitt direktsända liveframträdande i ungdomsprogrammet Frank i P3. Hoghorns gick in i Brax-Tone Studio One i mitten av mars för att producera ännu en storsäljare där de rider på alla de senaste trenderna.
Þessu svaraði ég með póstinum:
"Ég held að þú sért á villigötum ef þú heldur í raun og veru að meirhluta þjóðarinnar sé skítsama hvernig er farið með verkamenn þarna uppfrá svo fremi sem það spari ríkinu e-r krónur. jafnvel milljarð. Krónur og aurar eru nebblilega ekki settar á hærri stall en siðgæðiskennd hjá öllum."
Svo tókstu þínn póst út þannig að ég er ekki að svara neinu með mínum pósti.
Á ég að þurfa að taka afrit af þínum póstum og pósta þá með mínum til að þú rífir ekki allt úr samhengi eftirá?
Það er vinnulöggjöf á Íslandi sem segir til um kjör og aðstæður vinnumanna og réttindi þeirra. Þessi löggjöf passar mun betur uppá verkafólk heldur en vinnulöggjöf í þeim löndum sem þessir menn eru vanir að fást við. Impregilo verður bara að sætta sig við að þegar þeir eru á Íslandi gilda íslenskar reglur. Það skiptir engu þótt að verkamennirnir séu ekki íslenskir ríkisborgarar, lögin gilda jafnt um þá sem aðra.
Það er t.d. ekki bannað að láta börn vinna erfiðisvinnu í Punjab, en við myndum aldrei leyfa PunjabPower að flytja inn krakka til að vinna í virkjunum, þó að það sé ekkert mál þaðan sem þeir koma. Það verður að fylgja okkar reglum ef þú ætlar að leika þér á okkar svæði.
Lágmarkstaxti í fiskvinnslu er bundinn sömu lögum og reglum og lágmarkstaxti annars staðar á landinu. Málið er bara það að það hefur verið slík uppsveifla á landinu að Íslendingar eru orðnir of vandlátir til að vinna illa lyktandi fiskvinnu fyrir lágmarkslaun þegar þeir geta fengið annað. Þetta er íslenskur taxti og hann er töluvert mun hærri en taxti í vanþróaðri ríkjum. Sem dæmi má nefna að grunnlaun íslensks starfsmanns frystihúss er 34föld grunnlaun sama starfs í Kína. Það þýðir ekki að við getum látið Kínverja vinna fyrir 20 kall á tímann hér á landi.
Ég veit að það eru íslensk kjör (ef það er það sem þú vilt kalla það) í fiskvinnslunni á Íslandi. Hinsvegar vinna sárafáir Íslendingar á þessum kjörum. Því má deila um það hvort þetta sé íslenskur taxti. Hann þyrfti að vera miklu hærri til að Íslendingar væru fúsir til að manna þessi störf. (Þess vegna má deila um það hvort þetta sé í raun íslensk kjör.)
Ég var aldrei að segja að það ætti að lækka einhverja taxta bara að benda á það að flest íslensk fyrirtæki starfa í alþjóðlegu umhverfi og verða að haga sínum rekstri út frá því. Getum við keypt við erlend fyrirtæki sem starfa á láglaunasvæðum eða þurfum við kannski bara að einbeita okkur að öðru?
Ég fæ líka svolítið á tilfinninguna að Impregilo fá öðruvísi meðferð af því að þeir eru útlendingar. Við höfum allir unnið við skítaaðstæður án þess að einhver sé kvartandi á Alþingi fyrir okkar hönd.
Það er rétt eflaust rétt hjá þér að ég yrði seint ríkur á að vinna á "Punjab tölvutaxta" (án þess að ég viti hvað hann sé hár). Hinsvegar er íslenskum fyrirtækjum í lófa lagt að fá PunjabSoft til að forrita fyrir sig. Það er ekkert við því að gera enda engin ástæða til. Ég verð bara að reyna að sannfæra þau um að ég skili meiri gæðum, hafi betri þekkingu á viðfangsefninu eða þar fram eftir götunum. Og ef það klikkar þá verð ég bara að sætta mig við það!
það er líka ógeðslega hommalegt að taka póstana sína út, svoleiðis hefur ekki gerst síðan Gölturinn var með einokun á blogginu.
Hækka launin!
Af því að við höfum vinnuafl sem er til í að vinna á núverandi kjörum. (Auk þess sem fiskvinnslufyrirtæki sem borga Íslendingum íslensk laun geta ekki keppt við fiskvinnslufyrirtæki í Kína sem borga Kínverjum kínversk laun. Ef þau gerðu það færu þau á hausinn.)
En hvað með öll störfin sem íslensk fyrirtæki eru að láta vinna fyrir sig í útlöndum, afhverju gilda ekki sömu reglur um þau? Hver er munurinn?
Það er ekki hægt að bera saman vinnusvæðið við Kárahnjúka og múrara sem vinnur uppí Grafarholti. Múrarinn fer heim til sín klukkan 5, þeir sem vinna við Kárahnjúka fara heim í Impregilo skúrinn sinn. Íslensk fyirtæki sem vina að framkvæmdum útan byggðar þurfa að skaffa mönnum viðunandi húsaskjól jafnt í vinnu sem utan því þeir hafa ekki í önnur hús að vernda. Nær væri að bera saman vinnuaðstöðuna við aðrar íslenskar virkjunarframkvæmdir. Þar held ég að menn láti ekki bjóða sér að þurfa að skiptast á að sofa í rúmunum, standa í röð til að míga og geta ekki þvegið sé um hendurnar áður en þeir éta.
Ef þér finnst í góðu lagi að Impregilo flytji inn erlent vinnuafl til að vinna við framkvæmdirnar af því að þeir eru tilbúnir að þiggja minni laun, hvar dreguru þá mörkin? Hversu langt má Impregilo ganga? Samkvæmt þessu má Impregilo gera hvað sem er við vinnuaflið til að spara, láta þá sofa í tjöldum, vinna 18 tíma vaktir og borða ekkert nema hrökkbrauð, allt í skjóli þess að vinnuaflið er til í það af því að þeir hafa ekki að öðru að snúa.
Það sem hefur gerst í íslensku atvinnulífu undanfarin ár er að íslendingar eru að færa sig smám saman ofar í vinnukeðjunni. Við viljum fá menntuðu, vel launuðu störfin en viljum ekki skúra eða tína upp rusl eða umgangast gamalmenni. Þar sem það fæst ekki innlent vinnuafl í þau störf flytjum við inn fólk til að vinna störfin á sömu kjörum og íslendingar hefðu unnið þau. Ég held að við séum komnir út á hálan ís ef við ætlum að útiloka Íslendinga frá störfum sem þeir vilja vinna með þvi að flytja inn fólk sem er tilbúið að vinna fyrir hvað sem er.
Ímyndum okkur að Landsvirkjun hefði verið að bjóða út smíði á tölvuforriti en ekki vatnsaflsvirkjun. Impregilo hefði boðið lægst og fengið verkið. Nú er forritunarvinna þess eðlis að hana er hægt að vinna hvar sem er. Ítalirnir ákveða því að fá indverska forritara til að vinna verkið á Indlandi, þar sem laun forritara á Indlandi eru mun lægri heldur en gengur og gerist hér á landi..
Spurningar:
- Hefðu aðilar vinnumarkaðarins hér á landi krafist þess að indversku forritararnir fengju borguð íslensk laun?
Ég held ekki!
- Er það eðlilegt að við neyðum fyrirtæki til að nota dýrara vinnuafl en þau þurfa, bara af því að ekki er hægt að vinna verkið utan landssteinana.
Ég held ekki!
- Hvað með allar vinnuvélarnar sem eru notaðar á Kárahnjúkum og voru smíðaðar í Kóreu? Hefði ekki verið eðlilegt að krefjast þess að verkmenn þar fengju borgað samkvæmt íslenskum tata?
Ég held ekki!
- Væri íslenska þjóðin til í að spara fleiri milljarða á því að leyfa Impregilo að not það vinnuafl sem þeir kjósa. (Tilboð Impregilo hækkaði um nokkra milljarða þegar þeim var gert það ljóst að þeir yrðu að borga íslenska taxta.)
Ég held það!
Það er eins í þessu máli og öllum öðrum. Það er þröngur hagsmunahópur sem lætur í sér heyra á meðan fjöldinn nennir ekki að setja sig inn í málin og þegir því þunnu hljóði.
Nú langar mig að fá upp smá spjall um allar fréttirnar um útlendingana við Kárahnjúka.
Sjónarmið íslenskra iðnaðarmanna...
...er upp að vissu marki skiljanlegt. Þeir sjá fram á minni nýbyggingar t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Ég held að eftirspurnin sé 500 íbúðir á ári en það voru byggðar 1000 eða 1500 síðustu ár. Þeir hugsa: "Ef Impreglio getur gert þetta gera íslensku fyrirtækin þetta næst og við missum vinnuna." Menn eru farnir að tala um að þetta sé bara búið og best að fara að læra eitthvað annað. Sem er svo sem ekki alslæmt.
[Fremri-Kárahnjúkur búinn að missa fyrri reisn]
Aðbúnaðurinn
Held að það sé bara eitthvað rugl til að láta þetta líta illa út í blöðunum. Þessir gæjar eru að fá laun sem þeir eru bara helvíti sáttir við miðað við heimaslóðir. Á myndum þarna líta vistarverur bara helvíti vel út og mötuneytið líka. Þetta er uppi á hálendi, athugið það. Miðað við það er þetta höll.
Síðasti punktur sem ég heyrði var að það væri ekki nógu stór aðstaða þar sem menn gætu þvegið sér um hendurnar fyrir matinn. Af hverju er þessi blessaða verkalýðsforysta ekki að sinna sínum mönnum jafn vel og þessum gaurum? Vinir mínir sem eru að smíða eru oft á tíðum ekki með klósett í vinnunni. Ógeðslegur kaffiskúr þykir bara fínn. Af hverju eru menn ekki að berjast fyrir því að þessir innlendu smiðir, rafvirkjar, múrarar og málarar, sem eru kannski að vinna fyrir framan skrifstofuna hjá pabba hennar Bjarkar (rafvirkjaverkalýðsforystumógull), fái jafn góðan aðbúnað og gæjarnir uppi í Kárahnjúkum? Ættu þeir ekki að hafa sama aðbúnað?
Þetta er bara fjölmiðla stönt hjá þessum gæjum til að koma í veg fyrir frjálst flæði á erlendu (ódýru) vinnuafli. Þó að það geti verið sársaukafullt til skemmri tíma leiðir það bara til betri menntunnar, betri starfa og hærri launa fyrir landann. Hvers vegna að sporna við því?
Hvað eigum við að seilast langt?
Hvað með vörur sem við kaupum hingað og eru framleiddar með ódýrara vinnuafli? Eigum við að heimta að verkamenn hjá Skóda séu á íslenskum töxtum að smíða bíla fyrir okkur? Og missi þar af leiðandi samkeppnisforskot sitt (ódýrara vinnuafl framleiðir VW bíla undir öðru nafni) og vinnuna? Er ekki bara fínt að minna af skattpeningunum okkar fari í þetta rugl?
Hvað finnst ykkur?
[Disclaimer: Ég aðhyllist ekki lögbrot og er ekki að lýsa yfir skoðun á þessu - bara spyrja spurninga.]
"The writer was known for approaching bears in the wild."
8.10.03
Lorturinn að meikaða
7.10.03

Annars væri ég til í að eiga bol með þessari áletrun....
"Ég er sammála Slugger!"
Slugger: "Ég held að menn eins og Skarpi viti bara ekkert um hvað þetta mál snýst. Rebbi er náttúrulega skaðvaldur í íslenskri náttúru og ég þarf engar kerlingar til að segja mér að svo sé ekki. "
sako243: "Eg er sammála slugger..... "
REM 870:"Eg veit ekki hvaða kerlingar þú ert að tala umm slugger... En ef kerling byður mig að vinna rebba þá geri eg það... En ef kerlinginn mundi tala um að friða rebba mundi eg salta hana...."
sako243: "Eg er sammála slugger..... "
REM 870:"Eg veit ekki hvaða kerlingar þú ert að tala umm slugger... En ef kerling byður mig að vinna rebba þá geri eg það... En ef kerlinginn mundi tala um að friða rebba mundi eg salta hana...."
Held að REM 870 hafi bara vinninginn...
6.10.03
Aldrei á ævinni hef ég verið jafn illilega BURN-aður og á dissvef HLAÐ. Ég hefði átt að gera mér grein fyrir þvi að ég vissi ekkert hvað ég var að tala um áður en ég rauk af stað opinberaði fávisku mína....díses, svona getur mar verið vitlaus...vona að Slugger finni mig ekki, hann myndi örugglega buffa mig i slag...
Jæja, nú þurfa allir að mæta á Bílskúrsbíó í Mír á föst., lau. eða sun. Húsið opnar á föstudaginn kl. 18.00 með tónleikum. Myndirnar verða sýndar öll kvöldin kl. 19 og 22. Aðeins 300 kall inn. Lortur mun frumsýna nýjar myndir í samstarfi við Bíó Reykajvík.

Meðal annars verður mynd eftir Tinna sem heitir Vandræði Kolbeins Kafteins og er byggð á Hamskiptunum eftir Kafka að mér skilst (án þess að hafa lesið hana). Síðan er snilldarmyndin Grön: Mottan talar, en ég sá eitthvað af skotunum í hana og held að Krissi hafi bara náð að leika eitt mesta fífl sem birst hefur á hvíta tjaldinu frá upphafi tíma.
Á Bíó Reykjavík segir meðal annars:
WELL...HERE THEY GO AGAIN!!!!
These are three of the infamous Lortur Group filmmakers!!! They were voted our UNDERGROUND FILMMAKERS-of-the-YEAR by our beloved audience at last years BEDDA Underground Film Awards. They have won the Filmmaker-of-the-Month four of the five times they screened at OPIÐ BÍÓ (the other time they came in second). They are absolutely crazy and that is why YOU, our beloved audience, love's them.
These are three of the infamous Lortur Group filmmakers!!! They were voted our UNDERGROUND FILMMAKERS-of-the-YEAR by our beloved audience at last years BEDDA Underground Film Awards. They have won the Filmmaker-of-the-Month four of the five times they screened at OPIÐ BÍÓ (the other time they came in second). They are absolutely crazy and that is why YOU, our beloved audience, love's them.
Mæta svo fyrir málstaðinn!
PS
Djöfull er verið að drulla yfir Skabba á Hlaðvefnum...
gautaborgargautinn.tk
þið sem ekki fenguð meil sorrý og kíkkið bara hér tilkynningakerfið er í viðgerð en allir ættu að fá tilkynningu þegar næsti -SKÍRNIR- fréttabréf Sírnis? fer út á netið
Þá held ég að það sé útséð með gæsaveiðar og um leið gæsaveislu á þessu ári (ekki nema Kolli sníki gæsir af pabba sínum). Í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga gæsaveislunni reyndi ég að egna menn til veiða en allt kom fyrir ekki. Gölturinn, Mjöðmin, Graðni og Gilli frændi klikkuðu allir og ég er svo mikill sekkur að mér dettur ekki í hug að fara einn á veiðar. Í framhaldi af því sýnist mér það vera borðleggjandi að ég verði formaður næsta árið þótt þið eigið nú eiginlega allir formannstitilinn skilið.
Helgarprumpið verður í styttri kanntinum núna enda ekki frá neinu að segja. Helgin var tíðindalaus með öllu, engin bjór drukkinn og engin fjöll klifin, bara lærdómur og vídeógláp. Fór reyndar með tölvuna hennar Karenar í skólann og lærði á undur Kazaa, gat skemmt mér tímunum saman við að dánlóda og horfa á gamla simpsons þætti....vei.
Til að bæta mér upp annars átakalitla helgi ákvað ég að hella mér útí sjóðheita umræðu um refaveiðar á dissvef HLAÐ. Ég vænti þess að þið sýnið mér fullan stuðning í þessari deilu nú sem endra nær.
Svo sá ég að djammbeiglan var ekki kosin sem formaður ungra jafnaðarmanna, það verður því e-r bið á að við fáum stjórnmálaskörung á Þing sem finnst skemmtilegast af öllu að ríða. Sem er í sjálfu sér synd, við hefðum getað eignast okkar eigin Chiccolinu...
ÞÞ
5.10.03
Þungt höfuðhögg og blóðmissir getur í verstu tilfellum orsakað Framsóknarmennsku.
besta ástæðan fyrir því að láta börnin vera með hjálm....
4.10.03
Skúmi
3.10.03
Kræst. Ég gæti næstum grenjað, eru þetta stjórnmálin sem bíða okkar þegar Dabbi, Hordy, Össur og Steini J Pepp setjast í helgan stein?
Sandkassleikur Sussarana vs. MomomoMorkna Djammbeigla Dauðans vs. Stebbi Fokking Pje!?!? Afsakaðu meðan ég æli!
Rjúpan í banni næstu árin, nefnið mér eina ástæðu til að koma heim....
1.10.03
Ég fagna, og ég hvet alla and-sjalla til að fagna með mér.
Fagnaðarefnið er það að sjallar hafa loksins komið upp um sig sem valdaklíku sem gerir allt til að réttir menn haldi völdum. Að vísu eru þetta SUS-arar sem hafa tekið af sér grímuna en þetta mun vonandi vekja þau ungu flón sem enn hafa smá vott af réttlætiskennd og hafa fyrir mistök skráð sig í flokkinn og fá þau til að sjá sjallana í réttu ljósi.
Í dag er aðalfundur Heimdallar, SUS í Reykjavík, og var í fyrsta skipti í langan tíma útlit fyrir að fráfarandi stjórn gæti ekki komið sínum mönnum að heldur myndu nýir menn komast að með óháðu framboði. Það hefur alltaf verið í Heimdalli eins og í USSR forðum, menn skipa sína artaka en nú var hætta á að kerfið riðlaðist.
Stjórnarliðar brugðu á það ráð að misnota vald sitt til að bola hinu framboðinu frá og sýndu þar með algera vanvirðingu sína á því lýðræði sem flokkurinn stendur fyrir. Sjá meira um þetta mál hér
Möguleikar.
1. Veiðir ekki neitt. Verður brjálaður. Lofar hefndum sem að felast í því að drepa gæsirnar fyrir að vera svona leiðinlegar að láta ekki drepa sig. Jinx. Veiðir ekki neitt. Verður brjálaður. O.s.frv.
2. Gæti hætt að veiða gæsir (engar líkur á því!) en ... sama niðurstaða, engin gæs.
Gangi þér samt vel. Ég persónulega held að 50 gervigæsir séu ekki nóg, 200 hið minnsta. Prófaðu líka 3D gæsirnar sem eru víst bara mynd af gæs að skíta, 50 stk. ættu að vera nóg.
Af hverju allur þessi útbúnaður, hafið þið prófað að eitra fyrir þeim? Álíka mikil sportveiðimennska og þessar loftvarnabyssur sem þið notið.
Skoða eldri færslur >>

