30.11.03

Fokking glæpamenn!
Mbl.is: Miklar hækkanir á stangveiðileyfum næsta sumar
::KÍB skeit klukkan 15:37 30.11.03 ::

29.11.03

Málinu reddað
::Hívatha litli skeit klukkan 04:54 29.11.03 ::

Nú veit ég að ég kalla yfir mig foráttufúlan áróðursóhróður og óhróðursáróður um að makkaræfilskap og pípirípiríp af því að eins og adminarnir okkar þykjast vera pólitískt réttþenkjandi er það ekki satt því þótt þeir viti að þeir eigi að þykjast skilja og fíla svertingja, júða og homma... jafnvel svarta júða sem eru hommar þá hafa þeir ekki umburðarlyndi fyrir þeim sem hafa meira vit í kollinum en að kúfa sér pc tík af því að allir aðrir nota pc tík og þessvegna sé betra að fá sér pc tík eins og allir hinir. En það er bannað að kaupa sér föt eins og allir hinir eða hlusta á sömu tónlist og allir hinir. þessvegna nota þeir pc tík og þykjast keyra á línux eða eunics en gera það ekki í alvöru því þeir hafa ekki hugmynd um hvað það er, ekki ég heldur reyndar. En þessvegna get ég verið strákurinn sem bendir á nekt keisarans.
Nú er ég kominn langt útfyrir það sem ég ætlaði að impra á.
Af því að ég er makka-róní en ekki PC lúði þá af einhverjum ástæðum þótt að mér skiljist er ekki í kóða síðunnar sé ég alltaf vonlausu síðuna miðjujafnaða. Þetta á ekki við um aðrar bloggsíður. einungis vonlausa.
Nú skora ég á tölvonana okkar að finna á þessu lausn frekar en að hunsa mig af því að ég kýs að nota kynvísar tölvur í stað hommatölvna sem litli örmjúki gleraugnalúðinn ræður yfir. -miklu betra að láta Stebba Starf ráða hvað maður notar
::The Satan of Death skeit klukkan 03:22 ::

28.11.03

Kúl.

Ég ætla að fá að veiða í pollinum með konum og börnum. Afhverju veiða lax ef maður getur veitt konur og börn. Þetta er æðislegur staður. Sveitarvargarnir kunna sannarlega að plata til sín Reykjavíkurpakk.
::H.H. skeit klukkan 13:49 28.11.03 ::

Ég fékk póst frá graðna í dag. Hann ætlar að athuga með Tunguá, hvort þetta sé e-ð sem hentar okkur. Hann taldi sig taka sína konu með og mér heyrist á Kolla að hann taki Ríu með. Svo var hann með eina góða hugmynd, Mýrarkvísl hjá Húsavík. Þar eru seldir 1 1/2 dagur í senn, 3 stangir, veiðihús fylgir + veiði í e-m polli fyrir börn og konur sem ekki nenna að eltast við lax. Tékkiði á þessu og segið mér hvað ykkur finnst. Söngin í 1 1/2 dag var milli 25 og 30 þaus í sumar.

Segiði mér svo eitt. Nú er vefdeildin að hamast (lesist hommast) á hverju kvöldi við vefuppbyggingu að eigin sögn. Samt sér mar engar breytingar. Er þessi vefsíðugerð ekki bara fyrirsláttur svo að þið vefstjórar (lesist fleimerar) getið notið ásta í ró og næði kvöld eftir kvöld?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:59 ::

27.11.03

Vinnukveld .Netnefndar
Meðan Renis þvaðrar um persónunefnd hittust hinir meðlimir vefnefndar og mössuðu. Nú er búið að setja upp php á servernum og setja upp beinagrind fyrir næstu version af vonlausa. Þó á eftir að taka töluverðan tíma að græja allt þar og fullt af vinnu.

Búið að setja upp meira af service pökkum og drasli. Þá fengum við undirlén til að virka og er búið að opna ftp aðgang að því. Kolli og KíB eru komnir með undirlén á vonlausa og þið getið fengið svoleiðis. Athugið þó að vegna smæðar á disknum í Gollum er ekki hægt að geyma myndir, hvað þá tónlist eða bíó á servernum. Ef menn verða duglegir að borga mánaðargjöldin er þó aldrei að vita hvað gæti gerst. 160 Gíga diskur var auglýstur á 13 þaus í dag. Minni diskar hljóta þá að vera á skynsamlegu verði.

Það vantar enn vírusvörn. Svo er næst á dagskrá að mixa vefinn. Þegar það er komið þurfum við að setja upp MySQL og finna síðan eitthvað php myndakerfi sem getur komið í staðinn fyrir gallery.

Mikið stuð!
::Hívatha litli skeit klukkan 23:38 27.11.03 ::

Fréttatilkynning frá Veiðigagnagrunnsdeild Vonlausa:
Óvæntir atburðir hafa sett strik í reikningin við gerð veiðigagnagrunnsins. Landssamband veiðifélaga komst á snoðrið um málið og setti tímabundið lögbann á frekari vinnu við grunninn vegna persónurekjanlegra upplýsingar í honum. Kröfur þeirra voru að veiðimenn veiti upplýst samþykki sitt en ekki ætlað samþykki eins og hafði verið gert ráð fyrir. Einnig krafðist Persónuvernd að allar upplýsingar verði dulkóðaðar með 128 bita dulkóðun. Engu að síður er stefnt að því að veiðigagnagrunnurinn verði tilbúinn í vor um svipað leiti og stangveiði hefst í vötnum landsins.

Hægt er að lesa um kröfur Persónuverndar hér.
::KÍB skeit klukkan 15:29 ::

Því miður lítur allt út fyrir að það verða bara við 4 sem ætlum í megaveiðiferð vonlausa. Ég stefni að því að taka Maríu með en það er erfitt að segja til um það, best að ég taki hálfa stöng þar sem ólíklegt er að við bæði verðum að veiða í einu í einhvern tíma. Graðni segir slíkt hið sama. Þannig að í rauninni erum við að tala um 2-3 stangir. KÍB þvertekur fyrir það að mæta í veiðiferðir í sumar enda er hann óforskammaður graðnagli sem hugsar bara um að fjölga sér.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:48 ::

KÍB á nú að vera búinn að smíða þennan veiðigagnagrunn fyrir löngu.

Svo er eitt sem ég veit að er lúðalegt og óspennandi að hafa en það er linkasafn... gæti verið gagnlegt, eða sniðugt.

Annars bara KÍB up the good work


Með veiðileyfin:

Er svo að skilja að Ég, Graðni, Gölli og KolliGölli séum þeir sem ætla í megaveiðiferð vonlausa? Engin annar hefir allavega sýnt því minnstan áhuga. Þið sem eruð spenntir, ætliði að taka kellingar ykkar með? Bara að pæla hvað við erum að hugsa um margar stangir...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:36 ::

Myndasafn
Mér finnst myndasafn vera mesta vesenið þessa dagana. Við getum náttúrulega ekki keyrt Gallery á Win2K server. Möguleikar;

1) Finna eitthvað annað kerfi sem keyrir á IIS
2) Sindri býr til undirmöppu hjá sér á aski (hvort sem er komið eitthvað af dóti þar.
3) Eitthvað annað?

Svo þyrftum við að reyna að finna orginalana eftir megni og setja allt inn aftur í samræmt myndakerfi og betri gæðum.

Veiðiskýrslur
Það er svona nice to have, einhver grunnaleikfimi og nördaskapur hjá ykkur. Þurfum þá að setja upp grunn.

Annað
Svo væri kannski gaman að setja upp movable og hafa bloggið í því. Býður upp á betri efnisflokkun.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:53 ::

Allir faggar, allir faggar takið eftir
Vinna við uppfærslu er í fullum gangi þessa dagana. Það mun ýmislegt breytast, þó ekki mikið sem þið venjulegir plebbar sjáið en eitthvað þó. Út af þessu þá auglýsi ég eftir óskum og hugmyndum um fítusa og breytingar sem menn vilja sjá. Ég og KÍB getum gert allt en það er samt ekki víst að við nennum að útfæra ykkar aumu og stubbalegu hugmyndir, en allt er tekið til greina. Gölli er grafískur hönnuður, Gírnir er auli sem kann ekki grafík.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:43 ::

26.11.03

Nú er komin alvöru VV mynd á vefinn. White thrash, berir að ofan með byssur, bjór og sígó. Menn meira að segja á nærjunum. Þetta er hinn sanni andi Vonlausa!

[Update] Að ógleymdum hvítum íþróttasokkum, gallabuxum, Séð og fuckin heyrt, Lucky Strike sem enginn reykir nema faggar, rauðum hálsum og náttúrulega Heinz - hvítasta manni vestan Norðurpólsins.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:39 26.11.03 ::

Nú veit ég ekki hvernig ég á að taka þesssum ummælum um að skjóta mig í rassinn. Á að taka þau bókstaflega eða er durrinn að tala um eitthvað allt annað á sinni sveitalýsku. Hvað um það þá kem ég ekki í heimsókn ef að móttökurnar verða svoleiðis.
::H.H. skeit klukkan 15:29 ::

Ef Pu vogar sér að koma nálægt húsinu mínu þar sem ég sit á veröndinni þá skýt ég hann í rassinn með tvíhleypunni minni.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:34 ::

Þessir flutningar hafa farið nokkuð illa í Mjöðmina. Maðurinn er orðinn argasti landsbyggðafjandi og durtur. Lætur móðan mása um veiðar og ár sem hann fékk skyndilega vit á eftir að hann flutti á landsbyggðina. Sennilega er um fyrstu merki þess að Mjöðmin sé að breytast í Unabomber- einbúa - frík sem ætlar sér að lifa á landsins gæðum. Ég segi bara: "Gerðu þér að góðu mold og slor."
Reyndar er landsbyggðasyndrómið komið í gegn strax. Hann er hættur að uppnefna fólk og farinn að kenna það við hitt og þetta. Rétt eins og dreifarinn gerir, kennir fók við annað fólk og/eða staði. En að kenna Svínka Lú við Skrítni er nú alveg út í hött. Þessir dreifarar eru klikk.

Af öðru óskyldu. Var að horfa á fréttir í gær. Ein fréttin var að íþrótta eða fótbolta eitthvað (samband, bandalag) var að gefa út bækling um einelti. Þ.e.a.s. forvarnarpésa einhverskonar. Síðan var viðtal við einn durrann og ég held að sá maður hafi verið vangefinn. Aðspurður hvort það væri einelti í íþróttum svaraði maðurinn að það væri ekki vandamál í íþróttum. Til að gera langa sögu stutta þá neitaði íþróttahreyfingin á Íslandi að það væri einelti í íþróttum. Svo ég leggi durranum nokkur orð í munn (lesist nefmælt og þvoglukennt): "Duh (slef), það eru allir að tala um einelti í samfélaginu, það er ekki vandamál hjá okkur en við ákváðum samt að gefa út bækling vegna þess að allir eru að tala um það." What the fuck. Íþróttafaggar nota hvert tækifærið sem þeir fá til að kúka á alla aðra. Djöfull hata ég þessi fífl.
::H.H. skeit klukkan 13:48 ::

Vinnukveld á K12 og $$$
Sælir sokkar. Ákveðið hefur verið vinnukveld í Gollum annað kveld, fimmutdag. Planið er að setja upp PHP. Býst reyndar ekki við að neinir hafi áhuga á þessu nema Mjöðmin og KíB en Mjöðmin mætir náttúrulega aldrei þegar vinna á í vef- /servermálum.

Þið þurfið að redda einhverjum pakka eða hvað semidda er sem þarf að uppsetja. Einnig vil ég fá dynamic include kóða frá Kolla.

Boðið verður upp á kaffi en þið þurfið að koma með bjór og hommaost sjálfir.

Fyrir brettamenn (Kolli potaðu í augað á þér) má benda á fréttir af skíðasvæðum



Í gærkvöldi var unnið af krafti við að troða þann snjó sem bættist við í gær svo að undirlagið er orðið nokkuð gott. Nú er verið að gera klárar lyftur í Sólskinsbrekkunni á Suðursvæðinu, hengja diskaboxin á og prufukeyra. Önnur undirbúningsstörf eru einnig í gangi enda eru starfsmenn hér fullir af eldmóði og spenningi ...en fyrsta snjóvinnan virkar alltaf eins og vítamínsprauta. Ef fram heldur sem horfir er verulega stutt í opnun, a.m.k. hluta svæðisins.


PS - hvaða fáránlega mynd er þetta?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:35 ::

Uss, enn vellur þvælan upp úr undirförulu píkunni hverrar orð er einskins virði. Ertu að segja að Svíni sé ekki neitt? Að hann sé ekki til? Að hann fyrirfinnist ekki í þessum raunveruleika og tæpast í ímynduðum? Nú hefur þú aldeilis afhjúpað vitleysi þitt, mykjukollur. Heimska þín stendur okkur berskjölduð og varnarlaus eins og kræklingur án skeljar, Þannig lítur þú reyndar einnig út líkamlega.
Eða ertu orðinn svo óforskammaður að þú vísvitandi kallar hann það ekkert sem aldrei getur orðið? Að láta sér detta það í hug að til gæti verið heimskur Sírnir !?!
::The Satan of Death skeit klukkan 07:56 ::

25.11.03

Mér leist ágætlega á Búðardalsá, en reynslan sýnir að þú sért lélegasti veiðistaðafinnari ever þannig að ég vill tékka betur á þessu. En sem sagt þá lítur hún bara nokkuð vel út.

Gölli þetta er til þín, sagt með frönskum hreim 'I fart in your general direction'. Ef mar ætlar að kvóta gerðu það þá rétt heimski Sírnirinn þinn.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:12 25.11.03 ::

OK, sé pointið með að ganga ekki í Stangó núna. Allt í lagi að bíða. annars þegar ég hugsa mig um þá er 30.000 kall fyrir tvo daga í laxveiði fáránlega mikið, gætum þá alveg eins farið í sjóbirting á besta tíma sem er mun betri hugmynd. Engin viðbrögð annars við Búðardalsá? Svo er víst alltaf rífandi veiði í Vola....


vei, sírnir er á lífi eftir alltsaman....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:59 ::

17 Des kemur hann ég til Íslands og hann ég verður í tæpan mánuð að öllu óbreyttu. Sé ykkur á Árshátíð
::The Satan of Death skeit klukkan 14:46 ::

Ástæðan fyrir því að við ákváðum að ganga ekki í stangó er vegna þess að það kostar 14500 kall og við vissum ekkert hvort menn væru til í að fara. Hugsunin er að ganga í félagið eftir úthlutun og þá kostar 8500 og allavega hefur það verið þannig undanfarin ár að td stóra er með fullt af lausum dögum eftir úthlutun. Okkur fannst það bara ekki taka því. Frestur til að skila inn umsóknum er á föstudaginn og það er svoldið erfitt að festa niður einhvern dag núna án þess að heyra í neinum öðrum.
Ef þið hins vegar heimtið að sækja um þá látiði heyrast í ykkur núna faggar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:18 ::

hvernig líst ykkur á þessa? 2 stangir, 160 laxar í fyrra, 19.000 stangardagurinn um miðjan júlí.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:00 ::

Svo legg ég til að það verði haldin sér ferð í Tjörnina eða (Sindra)Reynisvatn eða jafnvel á Þingvelli þar sem þið getið dröslað öllum krökkunum ykkar með. Þetta verður hardcore veiðiferð, veitt frá 06-23, grillað 23-24 og brennivín drukkið frá 24-06 og síðan áfram í veiðinni.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:48 ::

Aflaklóin mætir að sjálfsögðu!

Pæling: Þú segið að þið ákváðuð að ganga ekki í stangó að svo stöddu, samt eru 5 af þessum 7 ám sem þú nefnir hjá SVFR. Hvernig höfðuð þið hugsað ykkur að ná dögum í þessum ám?

Stóra (SVFR): Líst vel á Stóru eftir frábæra ferð í sumar. Það yrði að vera svæði III ekki satt, við náum ekkert að manna 4 stangir? Í öllu falli ódýr kostur og geðveikt umhverfi. Fær hiklaust mitt atkvæði.

Norðurá II (SVFR): Líst svosem ágætlega á ánna en stöngin losar næstum 30þaus í ágúst og uppúr en á móti kemur væntanlega mun meiri laxavon. 3 stangir, við ættum að manna þær nema hvað áð frá miðjum júlí er bara fluga... sama er mér en ég veit ekki um alla aðra. Fær mitt atkvæði ef allir aðrir eru spenntir.

Andakílsá (SVFR): Ekkert rosa spenntur fyrir henni, frekar bragðdauft umhverfi í þéttri sveita/sumarbústaða byggð + slagar hátt í 30 þús fram í ágúst. bara fluga og maðkur.

Á sem rennur í Grímsá heitir Tunguá : Var seld með Grímsá á árum áður en er nú seld sér. veit ekki hvað leyfin kosta en finnst ekki líklegt að við séum að fá okkur leyfi þar. fann smá umræðu um ánna á veiði.is. Ef graðni getur fundið meiru upplýsingar um ánna er ég alveg til í að skoða hana.

Fáskrúð í Dölum (SVFR): Lítil á, 3 stangir, ca 1/2 lax á stangardag, 28 þús á besta tíma. Allt agn leyfilegt. Ef menn eru til í að borga 25 - 28 þús seinnibartinn í ágúst er ég alveg maður. Held reyndar að þetta sé ein af vinsælli ám SVFR þannig að þeg veit ekki hvort þeð er hlaupið að því að fá leyfi.

Langadalsá (Lax-á): 3 stangir, ca 1/3 lax á stangardag, hús fylgir, maðkur, spúnn og fluga. Hljómar alls ekki illa. EN, þá þurfum við að verzla við the Evil Empire og þeir eru svo miklir sekkir að þeir geta ekki sgat hvað áin kostar. Miðað við það sem gengur og gerist hjá þeim myndi ég skjóta á 30 þaus. Sem er frekar stíft satt að segja. Fær mitt atkvæði ef hún kostar ekki mikið meira en 20 þaus.

Sogið (SVFR): Sammála Kolla, er ekkert spes heitur. En ef Vonlaeysingjar þurfa að dröslast með ómegð sína með sér í veiðiferð er Sogið ágætur kostur, lítil svæði, stór hús, stutt frá bænum. Ef það strandar á því að fara í Sogið eða fara ekki neitt er ég alveg til í að prófa.

Ég gæti alveg þrýst mér upp í 30 þaus held ég fyrir tvo daga. samt frekar mikið.


::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:42 ::

Helstu forsendur eru:
  1. Skemmtilegt svæði
  2. Góð veiðivon (mér finnst bara ekkert voðalega gaman að fara eitthvað þar sem eru <10% líkur á veiði)
  3. Verð ekki út í hött - má alveg kosta meira en venjulega samt ef skilyrði 1 og 2 eru uppfyllt
Ég mæti.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:40 ::

HAHAHAHAHA Þetta hlýtur að vera besta færsla Gölla ever.

En að alvarlegri málum. Stangveiðideild vonlausa (ég og Graðni) héldum fund í gærkveldi. Efni fundarins var veiðileyfakaup fyrir næsta sumar. Við pældum í hvort við ættum að fara í SVFR en ákváðum að gera það ekki að svo stöddu. Við veltum líka fyrir okkur ýmsum kostum en eina samkomulagið var að halda annan fund. Það sem stóð aðallega í vegi fyrir ákvarðanatöku var óvissa með þáttöku annarra. Það sem við veltum fyrir okkur var meðal annars:

Taka tvo daga í stóru annaðhvort svæði 3 eða 4, fer eftir hversu margir væru til í að mæta. Það þýðir um það bil 14 þús fyrir hálfa stöng í tvo daga, hús og pottur fylgir með. Þetta finnst mér besti kosturinn en ég veit að öðrum þykir þetta ekkert sérstakt þar sem veiðin er algjört happa glappa.

Fara í efri svæði Norðurár en að mínu mati er það of dýrt.

Andakilsá

Á sem rennur í Grímsá, veit lítið en Graðni var heitur.

Fáskrúð, svoldið dýr en samt alveg viðráðanlegt.

Langadalsá fyrir vestan.

Sogið, en ég er ekki heitur fyrir því.

Svo eru náttúrulega fleiri möguleikar opnir. Það sem við þurfum að vita er hverjir væru til í að fara í eina ferð í sumar og tilbúnir að borga aðeins meira en við höfum gert hingað til. Það er eiginlega ekki hægt að pnatta leyfi og svo mætir enginn nema ég og Graðni.

p.s. Gölli þú ert miklu meiri Sírnir en þig grunar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 09:48 ::

24.11.03

Skilja ekki málið
Húff - nú hef ég ekkert rosalega mikið á móti innflytjendum og stelpum en það keyrir bara um þverbak þegar fólk í þjónustustörfum skilur ekki einu sinni íslenzku.

Ég fór á Nings áðan og keypti mér sushi. Síðan var ég kominn með drazlið í poka og sagði:
"Á ég ekki að Vúlkana þetta?"

Stelpa: "Ha?"
Ég: "Vúlkana - á ég ekki að Vúlkana"
Stelpa: "Ég er ekki alveg..."
Ég: "VÚLKANA MANNESKJA"
Stelpa: "Ööööö..."

Því er skemmst frá að segja að ég rauk á dyr og skildi sushið bara eftir. Það er lágmark að fólk geti skilið ástkæra ylhýra til að ég vúlkani þeim stórfé fyrir nokkur grjón og hráa grásleppu!
::Hívatha litli skeit klukkan 23:35 24.11.03 ::

Kjölturakkinn hans Dabba kóngs var í Kastljósi áðan í góðum fíling. Við það tækifæri náðist þessi mynd af honum.



Svo má einhver kenna Lúlla Bergvins orðið "sniðganga". En hann er náttúrulega rauðhærður og ekki hægt að ætlast til þess að hann kunni svona löng orð.
::Hívatha litli skeit klukkan 19:44 ::

Krapp - ég hélt að ég myndi aldrei viðurkenna það en ég er kominn í skítavítahring ala Kolli. Ég er fluttur á aðra hæð í vinnunni og vinalega fatlaðraklósettið sem enginn vissi um er utan seilingar. Nú er aðeins kústaskápur í boði og það vinna 300 manns á hæðinni.

Svo er náttúrulega ekki séns að skíta almennilega snemma á morgnana áður en maður fer í vinnuna. Ég var að drekka tvöfaldan expresso og ég er að reyna að bíða þangað til ég kem heim með að bomba.

Annars er Mjöðmin algjör helvítis faggi - það er miklu verra að vera Sírnir en ömurlegur. En svona comment hrynja af mér líkt og vatna af vel bónuðum bíl. Ég tek ekkert mark á Austur-Íslendingum, sem eru upp til hópa svikarar og lyddur hvers orð eru einskis virði. Brottfluttir aumingjar sem köttuðu það ekki í Vesturbænum. Segi bara eins og Frakkinn í Holy Grail: "I spit in your general direction."
::Hívatha litli skeit klukkan 17:17 ::

Ég meinti þetta ekki með Gölla, þetta var bara grín mér finnst hann ekkert ömurlegur, en hins vegar er hann dálítill Sírnir.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:02 ::

Djöfull er Gölli ömurlegur.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:36 ::

Gláp í pest
Notaði pestina til að glápa á slatta af vídjó.

X-men II
Bara ágæt. Fínn hasar, skemmtilegar nýjar persónur. Ágætt plott. Bara sæmileg nr. 2 mynd.
Einkunn: VVV

The Ring
Helvíti góð bara. Sniðugt tvist á plottinu. Ekki Hollywood sem er mjög gott. Þýðir "Hringingin" en ekki "Hringurinn" eins og ég hélt. Sem er gott því að hringurinn eini dóminerar náttúrulega hjá manni þessa dagana.
Einkunn: VVVv

Hulk
Mér fannst hún nú frekar súr. Græni kallinn hendir skriðdrekum og dóti út um allt. Enda voru plottin í Marvel ekkert rosalega pæld svona í heildina. Ekkert spes.
Einkunn Vv

League of Gentlemen - III season
Vááá - eiginlega mesta snilldin só far. Þetta eru svo drepfyndnir þættir að það er engu lagi líkt. Sérstaklega skemmtilegt hvernig lokaatriðið er byggt upp í öllum þáttunum. Papa Lazarúúú mætir aftur á svæðið. (Addi kom með pizzu og glápti - auðvitað komu faggarnir sem eru fluttir úr 107 ekki í heimsókn)
Einkunn: VVVVV

LOTR Two Towers Extended Version
Geðveik. Slatti af alveg nýjum atriðum og slatti af atriðum sem er búið að bæta við. Uppbygging sögu og persóna miklu hnitmiðaðri og betri. Slatti af góðu stöffi úr bókinni sem bætist við, svona smáatriði sem eru ekki afgerandi fyrir söguna en mjög góð engu að síður. Þegar álfareipið losar sig, hár aldur dúndana, entamjöðurinn og fleira þessháttar. Þessar löngu útgáfur eru líka svo mikil snilld af því að þetta er allt sérstaklega klippt. Eins og myndin hefði átt að vera ef vondu pródúserarnir skiptu sér ekki af. Einkunn: VVVVV

Svo náttúrulega tók ég hressilega til á vonlausa og skellti inn nýjum menu.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:10 ::

Heyrst hefur að Davíð Oddsson hafi kallað til ríkisstjórnarfundar vegna spiladeildarmálsins og hann hefur tekið allt fé sitt úr félaginu í mótmælaskyni.
::Mósagrís skeit klukkan 14:08 ::

Tilkynning frá stofnmeðlim og stjórnarformanns Spiladeildar VV:
Þegar spiladeildin var stofnuð þá var markmið félagsins að gefa félagsmönnum kost á að spila hin ýmsu spil. Það var ákveðið að RISK 2210 AD yrði fyrsta spilið af mörgum. Það voru þrír tilbúnir til að borga stofnkostnað og fjárfesta í spilinu. Í einfelndi minni hélt ég þá að ég mundi eiga 1/3 í spilinu og við gætum boðið vinum okkar að spila með og maður gæti líka verið með það heima hjá sér ef maður væri stofnmeðlimur til að spila við einhverja skemmtilegri en hálfvitana sem eru í VV.
En í krafti meirihluta þá skemmdu þeir félagar Gölli og KÍB þessa hugsjón með græðgi og yfirgangi. Þeir vilja rukka vini sína fyrir að leika við sig, búa til reglur sem gera stofnmeðlimum ókleyft að vera með spilið og ætla síðan að skammta sér kaupauka í formi nýja LOTR risksins fyrir peningana sem þeir rukka vini sína um. Það er skítalykt af þessu öllu saman.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:07 ::

Tilkynning frá Spiladeild VV:
Nýjum félögum verður boðinn innganga í Spiladeildina á næsta aðalfundi. Inntökuskilyrði er að viðkomandi aðili sé skuldlaus° við Spiladeild VV. Inntökugjaldið er nú 2381*. Fyrir liggur að Spiladeildin hyggst auka við spilakost sinn. Með inngöngu í fjelagið getur viðkomandi haft áhrif á hvaða spil verður keypt. Að auki fylgja fleiri fríðindi svo sem að viðkomandi getur tekið þátt í öllum spilum Spiladeildarinnar án endurgjalds o.fl.

°Eftirtaldir aðilar eru ekki skuldlausir:
  • Spunge, 600kr skuld v/þátttöku í þremur spilum.

*Inntökugjaldið er 2333 kr og er tengt við vísitölu neysluverð með grunngildi 224,7. Fyrir inngöngu í nóvember 2003 er gjaldið því: 2333 * 229,3/224,7 = 2381
::KÍB skeit klukkan 12:30 ::

Og annað, hafiði e-ð rætt um veiðileyfi fyrir næsta ár?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:51 ::

Ný samþykkt Noregsdeildar

Svenni skal troða öllum RISK 2210 AD köllunum upp í rassgatið á sér, ellegar fær hann ekki aðgang að árshátíð Vonlausa.

Þrándheimanefnd Noregsdeildar
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:51 ::

Ný samþykkt spiladeildar
Aðeins skuldlausir félagar í Spiladeild munu fá aðgang á árshátíð Vonlausa.

Laganefnd spiladeildar
::Hívatha litli skeit klukkan 11:21 ::

Tilkynning til Spiladeildar VV:
Risk 2210 AD er komið í vörslu hjá Gölla.

(Ég fór með það til hans í gærkvöldi en las ekki bloggið (um að hann vildi fá það) fyrr en í dag, magnaðar mýeindir í gangi.)
::KÍB skeit klukkan 11:15 ::

Helgin
Skoða myndasafnVar aðeins minna lasinn um helgina og kíkti í frábæra sleðaferð. Fórum á Mýrdalsjökul, tókum af við sleðaleiguna, og héldum síðan norður jökulinn. Síðan Mælifellssand og inn í Skófluklif þar sem skáli Útivistar, Strútur, er.

Snilldarfæri, þurftum reyndar að sigla alveg gróflega mikið. Brennivínskvíslin var mjöööög breið og frekar djúp. Ekki skemmdi fyrir að við vorum fyrstu mennirnir í vetur til að komast þessa leið. Snilldartúr.

  • Skoða myndir
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:05 ::

    Lausn á öllum snjóleysisvanda brettatöffara
    ::The Satan of Death skeit klukkan 09:48 ::

    23.11.03

    Spörning um að skella sér á Tý á morgun? Eða eru engir rokkarar í vonlausa nema ég og Skabbi?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 22:28 23.11.03 ::

    OK, þetta var bara óþarfi. Og ekki harðkóða slóðir speni.

    Annars krefst ég þess að fá RISK 2210 AD afhent nú þegar enda eini meðlimur Vonlausa sem er búsettur í Vesturbænum. Þið eruð kjéllingar og hommar.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 18:52 ::

    Dagur í lífi Reyni Péturs Gölla...


    ::KÍB skeit klukkan 13:49 ::

    22.11.03

    Svo bregðast fokkíng krosstré!!

    Jæja, ég get þó huggað mig við það að verðið á íbúðinni minni hækkar væntanlega þegar þessi kúkafýluKÍB er fluttur úr hverfinu.
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:59 22.11.03 ::

    Það tilkynnist hér með að ég mun flytja í Bólstaðarhlíð 32 þegar dagarnir fara að lengjast á ný. Ég bætist því í hóp brottfluttra vesturbæinga *snökt* (í bili að minnsta kosti).
    ::KÍB skeit klukkan 12:50 ::

    21.11.03

    Geggjaður Benz
    Ansi nettur benzi sem þeir voru að taka upp auglýsingu fyrir hérna í sumar, á veginum við Setrið.

    Skoða stærri útgáfu


    Vélin sem knýr þennan fák er 626 hestafla 8 strokka V mótor. Kemur dollunni í 100 km. á 3,8 sek og 300 á 28 sek.

  • Meira um þennan magnaða bíl
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:58 21.11.03 ::

    Fokk hvað þið eruð glataðir. Kolli og Krummi þykjast vera einhverjir bíó besservisserar en þekkja svo ekki lokasetninguna úr 2. mynd Coenbræðra, Raising Arizona. Ég lýsi því hér með yfir að þið vitið ekkert um bíómyndir.

    3. jan. er fínn - góð rök. Sindri þarf líka tíma til að jafna sig eftir að hann tapar í Púkki á jóladag.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:12 ::

    Sammála KÍB, 3. jan hentar best.
    E-ð heyrst frá grulsa?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:49 ::

    Mér líst best á 3.jan. 20.desverður allt of mikið jólastress og 27.des verður örugglega einhver í jólaboði og kemst þ.a.l. ekki.
    ::KÍB skeit klukkan 10:47 ::

    Þetta er úr myndinni Babe sem fjallar um uppvaxtarár Svenna. Þessi eftirminnilega setning er þegar hann ákveður að gerast mormóni og leggur af stað í mikla langferð.

    Annars var ég að skoða dagatal og fyrir árshátíðina koma 3 dagar til greina að mínu mati, 20. des, 27. des eða 3. jan. Ég vill fá svör sem fyrst hvað ykkur líst best á og hvað mundi henta flestum.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:18 ::

    20.11.03

    Ein létt:

    "Or maybe it was Utah"

    Meira Sierra í boði.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:35 20.11.03 ::

    Jóhanna af Örk var önnur kona Nóa. Hin fyrri hét Tiffany af Örk og var því miður með ofnæmi fyrir dýrum. Segðu hvaða kana sem er þetta og hann á eftir að trúa því.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:23 ::

    Hehe - þetta er úr Honeymoon in Vegas. Nicholas Cage (leikur Jack Singer eða eitthvað þannig) er á flugvellinum og er að tala við starfsmann á tékk-inn borðinu sem segir honum að stíga aftur fyrir línuna. Þá segir hann þetta. Held að þetta sé ekki alveg rétt quote reyndar. Svo leikur Sarah Jessica Parker í þessari mynd sans nosejob. Frekar slöpp one-liner-a mynd minnir mig. Cage er æði mistækur eins mikilli snilld og hann hefur nú leikið í inn á milli.

    Hvað er í verðlaun?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:22 ::

    Anger Management?
    (hef reyndar ekki séð hana en minnir að þetta hafi verið í trailernum)
    ::KÍB skeit klukkan 14:14 ::

    Ok, ein gáta að lokum, og Kolli Gölli má ekki svara.
    í hvaða mynd er þetta:
    A:"Sir, you must calm down"
    B:"Or what? You´re gonna put me in airport-jail???"
    ::Mósagrís skeit klukkan 14:09 ::

    Þetta er rétt hjá KÍB, hann og Gölli mega skipta á milli sín einum hobgoblin.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:52 ::

    Er þetta þegar þeir þóttust vera Storm Troopers og handjárnuðu Chewie?
    ::KÍB skeit klukkan 13:50 ::

    Það er ekkert nóg að segja hvaða mynd þetta er úr, það verður að segja um hvað er verið að ræða. Þið eruð algjörir sekkir ef þið getið þetta ekki!
    ::Mósagrís skeit klukkan 13:43 ::

    Iss - Episode IV - A New Hope
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:36 ::

    Starwars (1977)
    Han: This is not going to work.
    Luke: Why didn't you say so before?
    Han: I did say so before!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:33 ::

    Það er ekkert nóg að vísa í myndina, þú verður að geta sagt um hvað er verið að ræða. Þið eruð algjörir sekkir ef þið vitið þetta ekki
    ::Mósagrís skeit klukkan 13:29 ::

    Þetta er ekki fullnægjandi svar.

    KÍB kann ekki að telja.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:29 ::

    Ekki vera með margar gátur í einu, spenar!
    ::KÍB skeit klukkan 13:27 ::

    Han og Luke - Starwars.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:26 ::

    Þetta eru Kermit og Gonzo í prúðuleikurunum. Ég varð að svindla og nota netið til að fatta því þetta var ómöguleg gáta. Hér kemur ein samt sem þið ættuð að geta og Krumpi má ekki svara því hann veit þetta.

    Hverjir tala, í hvaða mynd og hvað eru þeir að tala um?

    A: This is not going to work
    B: Why didn't you say so before?
    A: I did say so before!

    Í verðlaun er annar hobgoblin bjór.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:21 ::

    Er þetta ekki úr 2001: Space oddisey?
    ::Mósagrís skeit klukkan 13:19 ::

    Nope...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:08 ::

    Góð ágiskun, afhverju fattaði ég þetta ekki? Er þetta rétt?
    ::KÍB skeit klukkan 12:41 ::

    Er þetta potatoehead að tala við einhvern í toy story?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:40 ::

    Jæja, getraun #2. Sá sem vinnur fær stórt staup af dýrindis Sierra með rauðum hatti hér á K12.

    A: B, are you busy?
    B: Yes, A, but I can give you my ear for a moment.
    A: What would I do with your ear?
    B: Van Gogh impressions.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:23 ::

    Svik og prettir
    Þetta var fáránlegt. Ég er fyrst að vakna núna og bjórinn farinn. Mér finnst að Krummi megi ekki vera með enda eruð þið með einhvern síamsbíómyndahuga. Mér finnst að einhver eigi að koma með bjór handa mér því ég er veikur. Mér finnst Skabbi hafa fengið ólöglegt hint.

    Af því að ég veit að þið skiljið ekki að það hafi verið neitt athugavert við þetta þá ætla ég að endurleika atburðarásina með öðrum nöfnum.

    Davíð: Hei, sá ykkar landsmanna sem veit hvað ég og Dóri vorum að gera og hvar fær skattaafslátt út árið!
    Halldór: Ú, ú, ég!!!
    Davíð: Halldór...
    Halldór: Við vorum að kyssast inni á klósetti.
    Davíð: Til hamingju Halldór, þú færð Hobgoblin bjór og skattaafslátt.

    Annars neitar Sírnir speni að gefa upp hvenær hann kemur heim og mun því árshátíð verða ákveðin regardless. Og ég vissi ekki að hann væri að vinna á hestabúgarði?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:07 ::

    Og enn einu sinni: hefir e-r heyrt í þeim auma aftaníossa sem kallar sig Gírni Grulsu upp á síðkastið? Hefir e-r hugmynd um hvort hann kemur heim um jólin eða hvort hann eyði öllum sínum stundum ríðandi eins og rófulaus hundur?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:42 ::

    Helvítis ormurinn þinn, ég ætlaði að skrifa letiánamaðkur og svo snýst það í höndunum á mér. En til hamingju með þetta skíthæll, þú færð bjórinn þegar þú kemur heim.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:28 ::

    og svo ég verði ekki reglisonaður:

    Bashir: "Of all the stories you told me, which ones were true and which ones weren't?"
    Garak: "My dear Doctor, they're all true."
    Bashir: "Even the lies?"
    Garak: "Especially the lies."
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:26 ::

    Þú gafst þetta frá þér með "leitánamaðkur". netið gerir þetta of auðvelt

    http://www.paranoid-kitten.net/startrek/quotes.html

    Star-trek

    sendu mér bjórinn

    lúði
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:24 ::

    Ekki úr bók. Kanski finnst fólki þetta erfitt en ég mundi fatta þetta strax. Ef þið viljið hobgoblin bjórinn þá verðiði að vera snöggir að svara áður en Krúmbi leitánamaðkur vaknar því mig grunar að hann fatti strax.

    Smá hint, þetta er úr sjónvarpi.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:20 ::

    er þetta úr bíó eða bók?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:12 ::

    Nördagáta
    Hverjir eru að tala?

    A: What I want to know of all the stories you've told me wich ones were true and wich ones weren't
    B: My dear doctor they're all true
    A: Even the lies
    B: Especially the lies

    I verðlaun er einn hobgoblin bjór.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:57 ::

    19.11.03

    KÍB á enga vini
    Ég skil það að Addi fyllist hryllingi yfir því að vera kallaður vinur Formannsins. Algjör faggi þessi formaður. En algjörg snilld þessi fyrsti mánuður. Þetta þróaðist fljótt upp í vitleysu með gullmolum á borð við þorskur er villibráð.

    Annars er þessi stjórn félagsins gjörsamlega vanhæf. Formaðurinn situr bara í sínum fílabeinsturni eins og einhver Óli Raggi og veit ekkert um hvað gerist í grasrótinni. Ég hef því ákveðið sem Keisari og veiðikonungur VV að taka inn fullgilda nýja meðlimi. Það eru þeir PrelliPu og Abdullah Mullah Sandnegri Corex.

    Prelli Pu
    ...er löngu þekktur fyrir magnaða veiðihæfileika sína og hefur hann sýnt góða mætingu í sumarferðir klúbbsins. Þar hefur hann skotið eins og geðsjúklingur, af myndavél reyndar, og rennt fyrir silung af krafti. Þá trónir hann í hæsta sæti veiðilistans fyrir haustið ásamt jors trúlí eftir að hafa minkað gæs á Hringbrautinni.

    Minki Mullah Lú
    ...er algjör faggi og ömurlegur veiðimaður. Þá er hann næst leiðinlegasti bloggari vonlausa sem grísinn mósandi. Nær reyndar ekki að slá vælandi kjéllingunni honum Gára við í grát og gnístan tanna. Minki hefur hinsvegar fest sér afar góða konu sem á afar góðan harðfisk. Koddu því fagnandi Minki Lú, bróðir Gogga Lú og Mjaðmarinnar!

    Við bjóðum þessa tvo upprennandi vonlausu veiðimenn velkomna í klúbbinn! Veiiiii!

    Tékkið á limasíðunni til að gá hvort þið eruð fullgildir limir eða bara með lítinn lim.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:42 19.11.03 ::

    Pælið í því hvað vonlausa er vonlaust veiðifélag. Eina gæsin sem veiddist í ár var keyrð niður af ekki-meðlimnum Adda Pu. Sem betur fer getum við samt fengið gæsir gefins þannig að það verður gæsaveilsa.

    Djöfull var gaman að skoða gamlar færslur. Gaman að sjá að okkur hafi tekist að þagga niður í Kára því hann var greinilega með bloggræpu í gamla daga en er annaðhvort orðinn þroska WGOS eða hann er hræddur við Gölla.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:41 ::

    Nei, sko ég átti við að ég myndi bjóða vinum vonlausa að vera með, ekki vinum mínum! Síðan má aftur á móti deila um það hvort þú hafir verið í vonlausa á þeim tíma, ég bara man ekki svo langt aftur.
    ::KÍB skeit klukkan 12:38 ::

    Þvílíkt diss

    Maður er hálf sár eftir svona sendingu. Ég hélt að "vinir" væru einhverjir sem þér þótti fyndnir í vinnunni eða skólanum og ekki vitandi hvert stefndi með Vonlausa ætlaðir að bjóða þeim að að vera með. En svo er ekki. Ég verð víst að prísa mig sælan að hafa fengið að vera með. Bendi samt á að ég er búinn að veiða gæs en ekki þú, þrátt fyrir að það hafi verið slys og að ég minkaði gæsina.
    ::H.H. skeit klukkan 12:36 ::

    Þú þarft nú ekki að horfa lengra en á sjálfan þig til að sjá "vin" sem fékk að fljóta með (og var að lokum innlimaður í félagið að borgskum sið). Einnig má nefna fleiri vini sem eiga það sameiginlegt að hafa sloppið við innlimun:
    • Tjörva
    • Bjögga
    • Rikka
    • Kára
    En vantar þó að Graðni láti sjá sig en vonandi breytist það innan skamms.
    ::KÍB skeit klukkan 12:24 ::

    Til ammingju m'ammlid.

    Skemmtilegt að skoða fyrstu færslunar. Byrjar mjög pent með ávarpi Formanns um að hér eigi að spjalla saman og að jafnvel nokkrir "vinir" fái kannski að vera með. Næsta færsla gefur síðan forsmekkinn að því sem er í dag. 16.11 virðist Gölli (kallaður Schweppes í þá daga) vera nóg boðið og kemur með fyrstu almennilegu svívirðinguna og á beinir henni að sjálfsögðu að Skrítni fyrir sína góðu-pabba-sögu-af-sjálfum-sér. Best er að "vinir" Formannsins hafa ekki látið sjá sig.
    ::H.H. skeit klukkan 12:12 ::

    3 ár á netinu, það er nú bara eins og heil öld skv. venjulegu tímatali. Reyndar finnst mér eins og það sé miklu lengra síðan vefurinn fór í loftið. Ég man alla vega ekki hvernig lífið var fyrir tilkomu vonlausa.
    ::KÍB skeit klukkan 11:27 ::

    Vonlausa.org orðinn 3 ára
    Vá - ég var að fikta eitthvað í vefnum í veikindum mínum, setja inn nýjan ógeðslega flottan xhtml menu og svona, er ég rakst á archive-ið okkar. Vonlausi hóf göngu sína undir einhverju léni, varð svo vonlausa.tripod.com síðan vonlausa.online.is og nú vonlausa.org. Magnað. 14. nóvember áttum við þriggja ára afmæli, en þann dag árið 2000 bloggaði Formaðurinn fyrstu færsluna.

    Til hamingju með ammælið!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 01:23 ::

    18.11.03

    Á Húsavík. [Uppfært] Úbbs - Veiðikofinn á Egilstöðum var það heillin

    Ekki misskilja mig kallinn, ég er í flestu alveg sammála þér með þetta. Hinsvegar hlýtur að vera ákveðin skylda á stjórnvöldum að útfæra þessa hluti þannig að sem minnst tjón hljótist af. Þessi skammi fyrirvari er ekki til þess fallinn og ég efast um að menn hafi skoðað þennan vinkil.

    Þetta er líka leiðinleg þróun fyrir okkur því að sérhæfðar veiðibúðir eru viðkvæmari en Hagkaups-búðir. Mig langar ekki til að kaupa byssu við hliðina á Columbia Sportswear rekkanum með ómögulegu skefti (sem ég hef ekkert vit á) af bólugröfnum hálfvita sem veit hvorki neitt um byssur eða gore-tex, og labba svo með hana til Hagkaupsdömu á kassanum. Við þurfum að halda Jóa skrýtna og þannig köllum í gangi. Þú sérð nú bara hvernig útivistarmarkaðurinn er eftir að sérhæðu búðirnar, þar á meðal Skátabúðin, hættu. Eða þá snjóbrettin, guð minn almáttugur. Ætli GÁP flytji inn eitthvað frá Burton í ár og hversu heimskulegt verður það? Bullet 138?

    Varðandi skaðabótaskyldu þá efast ég um að það yrði auðsótt án þess að hafa kynnt mér málið. Hinsvegar er almenna reglan sú að ríkið verður ekki skaðabótaskylt vegna lagabreytinga sem leiða til tapaðra tekna, enda myndi það setja ákveðna fjötra á löggjafann.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:10 18.11.03 ::

    Hver er annars hin búðin?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:00 ::

    Ekki ætla ég nú að hætta mér í lögfræðiglímu við LagaGölla en ég get ekki ímyndað mér að Títan eða aðrir aðilar sem hafa misst spón úr aski sínum geti farið fram á bætur vegna bannsins. Rjúpan er jú eins og aðrir fuglar friðuð allt árið, ráðherra getur hinsvegar aflétt friðun til lengri eða skemmri tíma. Það hefur ekki kosið að gera í ár. Útgerðarmenn geta ekki að ég held farið fram á bætur frá ríkinu ef aflaheimildir eru skertar eitt árið.
    Burtséð frá því finnst mér þetta í alla staði vanhugsuð aðgerð hjá henni og ég vona svo sannarlega að hún sé ekki búin að bíta úr nálinni með þessa ákvörðun.

    Aftur á móti finnst mér alveg glatað þegar veiðimenn eru að hóta skemmdarverkum á veiðikortakerfinu af því að þeir eru í svo mikilli fýlu út í Siv. Eins og það eigi eftir að gera nokkuð annað en að A) eyðileggja þetta líka fína kerfi og B) koma algeru óorði á veiðimenn sem heild sem geta ekki farið að lögum og reglum. Ég reifst við e-n sekk á HLAÐ vebbnum um þetta í sumar og sé að hann hefur verið að boða eyðileggingu kerfisins aftur upp á síðkastið. Kannski mar skelli sér aftur í djúpu laugina, aldrei að vita nema mar hitti Slugger í pottinum....
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:59 ::

    Amk. 2 búðir loka vegna rjúpnabanns
    Er ekki svolítið hæpið að segjast vera að hætta vegna rjúpnabannsins? Hvað ætli þeir hafi verið að selja mikið af byssum og skotum á hausti? [1] [2] [3].

    Þetta vekur mann hinsvegar til umhugsunar um svona stjórnvaldsaðgerðir. Veiðibannið er sett á með mjög skömmum fyrirvara og ákveðin óvissa ríkti um hvort af myndi verða fram á síðustu stundu. Þetta er mjög ósanngjarnt gagnvart hagsmunaaðilum. Þannig eru þessar búðir líklega að panta skot, byssur, galla og annan varning í janúar. Þeir hafa því verið búnir að kaupa allar þessar vörur og borga. Það er töluverð fjárbinding fyrir litlar búðir, enda dýr búnaður. Síðan stendur bannið yfir það lengi að þeir losna ekki einu sinni við þetta á afslætti næsta ár. Þetta hefði mátt undirbúa betur og með lengri fyrirvara. Einnig tapa aðilar sem hafa verið að leigja út land, gistingu ofl. Undirbúningur bannsins, sérstaklega hvað varðar þessa þætti, virðist hafa verið enginn.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:55 ::

    Þýzkur þriðjudagur
    Congrats Mjöðm. Engin kaka = engir pakkar. Og ég sem ætlaði að gefa þér "Ég er sammála Slugger bol." Svo mættirðu ekki í ammælið mitt bara til að fara í einhverja fagga fjallgöngu á Himmelbjerget.

    Veit mamma þín að þú bloggar?
    Fyndnar pælingar [1] [2]. Gaur sem lenti í því að mamma hans fann bloggið hans. Það væri kannski gaman að benda t.d. mömmu mjaðmarinnar á bloggið hans þar sem hann viðurkennir að hafa drukkið bensín til að reyna að komast í vímu eða bloggið hjá FagIan sem viðurkennir að hafa notið ásta með Sindra Páli þegar hann var í ákveðnum félagasamtökum. Jakk.

    Geðveiki vaxandi
    Annar dagurinn veikur heima. Serverinn var með bögg í morgun bara til að pirra mig. Allt draslið frá IIS heitir einhverjum fáránlegum nöfnum og notar fáránleg port þannig að eldveggurinn þekki það ekki og loki örugglega servernum. Gaaaaa. Setti upp service pakka og það tók 2 tíma. Gaaaaaa. Hljóðið í þráðlausa netkortinu mínu er farið að pirra mig. Gaaaaa.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:38 ::

    Til óhamingju með ammælið, Kolli hörbuxnahommi, sem óskar manni aldrei sjálfur til hamingju, addna!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:41 ::

    Til hamingju með afmælið, Kolli Gölli.
    ::KÍB skeit klukkan 10:35 ::

    17.11.03

    Hmm - ég held nú að náttúruval á vélmennum fari aðallega eftir því hvort þau eru rústfrí eða ekki...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:50 17.11.03 ::

    Vinnandi vélmenni í Japan eru í verkalýðsfélagi og borga lífeyri.
    (reyndar er það svo að fyrirtæki sem nota vélmenni borga lífeyri fyrir vélmennið eins og það væri maður til að nota í samfélagsreikninginn, heilbrigðis- og menntakerfi og atvinnuleysisbætur og svoleiðis. Ekki til að tryggja þeim vélúðlega meðhöndlun) Athygliverð staðreynd en kemur málinu ekki beinlínis við.
    Vélmennin þurfa ekkert að vita hvort "villan" sem verður er góð eða ekki. Ef villan er góð og hún kópíerast áfram þá er það góð þróun en ef hún er léleg (fyrir akkurat það vetfang og vettfang) þá ætti samkvæmt kenningunni því vélmenni að ganga verr að ná sér í varahlutina sína en hinum vélmennunum sem betur eru til þess fallin og þar með hægja á framleiðslunni þar til engin veður eftir af þeirri tegundinni.
    Til þess að verða Kúkíbleyjuguð þá þarftu líka að búa til heim fyrir vélmennin þín annars verða þau bara gestir á hóteli okkar jörð.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 09:52 ::

    14.11.03

    Forrit hljót að njóta forréttinda ekki mannréttinda.
    ::KÍB skeit klukkan 13:33 14.11.03 ::

    Athyglisvert.

    Ég og bróir minn vorum einmitt að ræða um daginn hvort að vélmenni eða dorrit sem hefði gervigreind ætti að njóta sömu mannréttinda og menn. Þá var gengið út frá því að vélmenninu þætti t.d. vont að vera þræll, hefði einhverskonar tilfinningar og ekki síst frjálsa hugsun. Mín skoðun á því er að vélmenni ekki maður og ekki hægt að skilgreina sem mann, vél er vél og maður er maður. Hvort að vélmennið ætti að njóta "mannréttinda" þ.e. njóta þess sem t.d. kristin gildi segja, það þyrfti að vera meðvituð ákvörðun. Þá hefði vélmennið sömu réttindi, virði o.fl. eins og menn. En miðað við hvernig við förum með hvert annað þá er eftir litlu að sækjast. Vélmenni yrðu "drepinn" eins og hver annar.

    Varðandi þróun vélmenna
    Ég er náttúrulega algjör rati þegar kemur að tölvum og tungumáli þeirra. En til þess að vélmennið geti þróast með þeim hætti sem þú lýsir þá verður dorritið að gera ráð fyrir því, ekki satt. Ef ég skil þetta rétt þá er um survival of the fittest. Þannig að góðir róbotar gætu tekið upp á því að nota lélega róbota í vinnslu á sínum eigin "afkvæmum" . Hvort þú ert Guð vélmennanna hlýtur líka að velta á dorritinu, ef þú dorritar róbótann til að líta á þig sem Guð þeirra þá hlýtur það að vera reyndin. Annað mál er hvað í því felst og það er mjög athyglisverð spurning. Ef róbótanir geta síðan þróast með góðum eða slæmum villum í dorritinu þá hlýtur Guðsdýrkuninn einnig að vera undir það sett. Þannig að þróunin getur leit til þess að róbotinn verður fráhverfu Guði sínum eða jafnvel fundið annan Guð.
    ::H.H. skeit klukkan 13:29 ::

    Cyb er guð samkvæmt þessu módeli ekki spurning. Lesiði róbotasögurnar eftir Isaac Asimov þar sem svona pælingum er varpað upp. Bicentennial man er einmitt byggt á sögu eftir hann en ekki láta þann viðbjóð hræða ykkur frá snilld Asimovs.

    KÍB er hnetusmjörsútúrsnúingari af Sírnissort.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:52 ::

    Það væri gaman að heyra álit Prella. Ég held samt að Mjöðmin hafi komist nálægt því með deildarstjóra kenningunni sinni.
    ::KÍB skeit klukkan 12:45 ::

    Pælingin gekk svona meira út á að með tíð og tíma færu vélmennin að þróast í ólíkar áttir, alveg eins og lífið á jörðinni. Hver veit, kannski fá þau frjálsan vilja með tíð og tíma og verða svo að alvöru mönnum! nei bíddu..það var Bicentennial man!!....AAAAAAAARGGGGGHhhhhhhhhhh......WHAT HAVE I DONE!!!! It was supposed to be a thing of beauty, not this monstrosity!!!!!!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:43 ::

    Get ekki séð að það skipti máli hversu hröð þróunin er, ef það er það sem þú varst að hugsa með stærðinni. Auk þess ertu hvorki verkfræðingur né dorritari þ.a. þú getur varla verið Cyb.
    ::KÍB skeit klukkan 12:31 ::

    En þessar pælingar um þróun vélmennanna svara því samt ekki hvort Skarpéðinn Halldórsson súper Cyb sé guð.
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:24 ::

    Í sambandi við þróunina:

    Það geta orðið tvennskonar breytingar á vélmennunum, annarsvegar breytingar í vélvirki og hinsvegar breytingar í hugbúnaði. Ef ef breyting verður á vélvirki hjá vélmenni A sem gerir það að verkum að það býr til annað hvort betri eða fleiri vélmenni án þess þó að hugbúnðurinn breytist er ekki hægt að tala um að eiginleikinn erfist, öll vélmenni sem vélmenni A smíðar eru eins og fyrirmyndin átti að vera, ekki eins og það er. Ef hinsvegar hagstæða breytingin verður í hugbúnaðinum sem segir til um hvernig á að smíða vélmenni eiga "afkomendur" vélmennis A eftir að verða betri en A og eiga eftir að smíða berti vélmenni í framtiðinni. Þá erum við að tala um raunverulegar erfðir.
    Til skýringar mætti halda því fram að Spider-man (skv. nýju myndinni) muni ekki eiga spider-börn, því stökkbreytingin sem gerði hann að spider-man er bara breyting á vélvirki og nær að öllum líkindum ekki til kímlínu hans (brundsins, svo þið skiljið mig).
    Aftur á móti ef genabreytta kóngulóin hefði gert árás neðan frá og bitið hann í eistun er líklegt að börn Peters Parker hefðu orðið Köngulóarbörn sem getið hefðu af sé nýja tegund sem hefði að nokkrum kynslóðum liðnum yfirtekið heiminn.

    Í sambandi við vírusin

    Tölvuveirur virka að grunninum til alveg eins og líffræðilegar veirur, þær smita heilbrigðan einstakling og gabba hann til að fjölfalda veiruna og smita svo aðra einstaklinga. Í líffræðinni er ennþá tekist á um hvort rétt sé að skilgreina veirur sem lifandi verur þar sem þær eru bara forritið án alls vélbúnaðar. Veiran (eins og tölvuvírus) gerir ekkert sjálf, hún smitar bara frumur með erfðaefni sínu og narra þannig frumuna til að smíða veirur í staðin fyrir hvatbera eða grænukorn þangað til hún springur og sullar nýjum veirum yfir frumurnar í næsta nágrenni og svo koll af kolli. Gerir semsagt ekkert sjálf, er bara til. Vísindamenn í dag geta smíðað veiru frá grunni en það er varla hægt að tala um að þeir hafi skapað nýtt líf, eða það finnst mér allavega, ekki frekar en að hægt sé að segja að bólugrafnir lúðar sem búa til nýjan tölvuorm séu að skapa rafrænt líf.

    Dindill, kynslóðabil bakteríu er talsvert styttra en kynslóðabil fíls, af hverju helduru að það sé?

    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:20 ::

    Grísinn sem mósar er á villigötum. Hvernig skilgreiniru frjálsa hugsun? Vélmennið og afkomendur þess munu ekki gera neitt nema það sem það var upprunalega forritað til þess að gera. Hvar eru mörkin dregin hvað er vitsmunalíf og hvað er forrituð hegðun. Við getum alveg látið vírusinn vera meira flókinn og gera fleiri hluti og simulera einhverskonar hugsun en það verður alltaf forrituð hegðun. Ég var aldrei að segja að hönnuðir vírusa væri guðir eða gætu skapað líf, einungis að vélmennin og vírus eru hliðstæða. Þessvegna er hönnuður vélmennisins ekki guð í mínum kokkabókum.

    Þetta með þróunina þá fer það eftir því hvort næsta kynslóð býr til vélmenni. Það var gefið í byrjun að vélmennið gerði ekki alltaf allt rétt og gerði stundum betri og stundum verri. Þá ætti það sama að ganga yfir næstu kynslóð og þau sem eru betri ættu að hafa meiri möguleika á að beturumbæta sig. Þannig erfast eiginleikar foreldris sem gerir það að verkum að þetta verður nokkurskonar þróun.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:42 ::

    Segjum sem svo að stofnvélmennið búi til vélmenni sem er betri en flest önnur. Ef það vélmenni býr bara til vélmenni skv. sömu forskrift og stofnvélmennið gerði þá verður engin þróun. Þróunin verður aðeins ef þetta góða vélmenni býr til ný eftir sinni fyrirmynd (þ.a. eiginleikar þess erfist). Forsenda þróuna hlýtur að vera að hver kynslóð búi til afkvæmi í sinni mynd. Alveg eins og menn fá erðaefni foreldra sinna ekki erfðaefni fyrsta mannsins sem lifði á jörðinni. Það getur ekki flokkast undir þróun að vera betur smíðaur en með sömu eiginleika og allir aðrir, er það?

    Ég breytti ekki neinu, ég bara bætti við. Þú átt bara ekki að vera svona lengi að svara.
    ::KÍB skeit klukkan 11:23 ::

    Ég skil ekki afhverju menn eru að bendla líffræðinni við þetta, ef þið spáið í því þá erum við, líkt og önnur dýr, bara smíðaðir úr ákveðnu byggingarefni og mér finnst alveg að það megi breyta byggingarefninu. Því þarf ekki blóð heldur olíu osfrv.
    Ef að vélmennin hafa sjálfstæða hugsun og geta þróast sjálfstætt þá eru þau lifandi og hönnuðurinn myndi í mínum bókum uppfylla starfsskilyrði Guðs.
    Þetta með vírusinn er ekki alveg útpælt hjá ykkur. Vírusinn getur ekki þróast sjálfstætt. Hann gerir aðeins það sem hann er dorritaður til að gera og mun aldrei breyta útaf þeim leiðbeiningum nema einhver annar dorritari taki upphaflega vírusinn og endurdorriti og er því kominn ný vírus. Tölvuvírusinn getur ekki þróast og getur því ekki talist lifandi og því eru faggarnir sem smíða vírusa til þess eins að skemma fyrir saklausu fólki langt frá því að vera guðir, þeir eru hálfvitar.
    ::Mósagrís skeit klukkan 11:20 ::

    KÍB faggi breytir alltaf skrifum sínum þegar mar er að svara honum.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:19 ::

    Ég er ekki alveg sammála KÍB. Stofnvélmennið er ekki guð heldur hönnuður stofnvélmennisins. Ef ég skildi þetta rétt þá getur næsta kynslóð af vélmennum hannað sín eigin vélmennaafkvæmi og að öllum líkindum munu þau sem eru betri búa til betri vélmenni og svo koll af kolli. Þróun getur alveg átt sér stað án þess að vélmennið þurfi endilega að gera ný eftir sinni eftirmynd.

    En svo að spurningunni hvort hönnuðurinn sé guð. Segjum sem svo að einhver dorritari búi til dorrit eða janfvel vírus sem hefur það hlutverk að búa til ný dorrit. Hlutverk nýju dorritana er tvíþætt búa til tvö ný dorrit og gubba svo út úr sér random texta og/eða hljóð. Er dorritarinn þá guð? Ef ekki þá ætti hönnuður vélmennisins ekki guð heldur. Nema að vélmennin hafi eiginleika lífs sem líffræðingar skilgreina sem ég sé ekki að þessi vélmenni Cyb hafi.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:17 ::

    Þróun getur aðeins orðið ef nýju vélmennin smíða vélmenni eftir sinni eigin fyrirmynd. Ekki nema stofnvélmennið fatti hvenær villa leiðir til betri niðurstöðu og geti hagað sínum smíðum eftir því. Annars verða bara til misgóð eintök af vélmennum þ.e. flest eru eðlileg, sum eru léleg og örfá eru betri.

    Afhverju flýtir það fyrir að hafa aggalítið vélmenni sem sér um smíðarnar?

    Annað ef þetta flokkast undir líf, þá hljóta tölvuvírusar sem fjölga sér með því að taka afrit af sjálfum sér að flokkast sem líf. Oft þróast vírusarnir líka vegna utanaðkomandi aðstæðna (þ.e. forritara breyta þeim og bæta). Alveg eins og maður getur ímyndað sér að maðurinn eigi eftir að þróast þegar farið verður að fokka í genunum á honum.
    ::KÍB skeit klukkan 10:56 ::

    Skapari lífs
    Þetta er geggjuð spurning. Ég treysti mér nú ekki alveg í hana, enda ekki guðfræðimenntaður. Ég myndi samt skjóta á að þú værir allavega guð vélmennanna. En nú viðurkennir kirkjan bara einn guð þannig að það er sjálfsagt bannað að vera guð vélmennanna samkvæmt þeirra reglugerðum. Skapari? En þú ert varla búinn að skapa líf. Hinsvegar ef þú myndir hanna vélmennin þannig að þú myndu líka stunda genarannsóknir, búa til lifandi vef og verða mennsk á endanum væri spurningin enn áhugaverðari. Þá værir þú búinn að skapa líf líka. En væri Guð hans Adda þá samt ekki skapari alls lífs af því að hann skapaði þig og þú mixaðir þetta? Þú gætir kannski verið deildarstjóri eða eitthvað þannig?

    Glitch
    Talandi um það þá lenti ég í dorritunarvillu á leiðinni í vinnuna. Það var einhver kjérling á Benz 190 sem birtist allt í einu við hliðina á mér á Sæbrautinni, var ekki þar áður. Svo leit ég aðeins frá og aftur á hana og þá var hún á ryðguðum Tercel en sama tzjéddlingin. Svo hvarf hún.

    Ef ég hefði smíðað fylkið hefði ég líka búið til falda tanka og svona drazl þannig að liðið gæti verið að frelsa hvort annað á fullu og borða gubb-hafragraut en væri alltaf enn í fylkinu. Jafnvel nokkrar þannig lúppur þannig að þau væru bara að færast upp um möppu, ekki að frelsa hvort annað. Múhahahaha.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:49 ::

    Spurning til prella pu

    Þið kynvillingar megið líka svara ef ykkur svo sýnist

    Segjum sem svo að ég sé heimsins snjallasti verkfæðingur og dorritari. Segjum líka sem svo að tæknin sem ég ætla að fjalla um hér á eftir sé til í alvörunni.
    Sem heimsins snjallasti Cyb (borið fram KÍB, ég er að sletta norsku sko, þýðir vélmennasmíðari) ætla ég að búa til vélmenni sem hefir það eina markmið að búa til önnur vélmenni. Vélmennið verður hannað sem svo að þegar kveikt er á því hefst það þegar handa við að safna efnivið í nýtt vélmenni. Það er einnig forritað til að safna eldsneyti og öðrum þáttum sem nauðsynlegir eru til þess að knýja sig sjálft og þau vélmenni sem það kann að smíða.

    Þar sem ég er svo sniðugur ætla ég að hafa vélmennið mitt aggalítið til þess að smíðar og annað gangi hratt fyrir sig.

    Þar sem vélmennið mitt þarf að fjölfalda alla þættina sem þarf til að smíða nýtt vélmenni geta öðru hverju komið fram villur, bæði í vélverkinu sjálfu og í forritinu sem knýr vélmennið. Í flestum tilfellum verða villurnar slæmar og gallaða vélmennið verður lélegra en fyrirmyndin en öðru hverju koma fram ?villur? sem geta af sér betra vélmenni. Með öðrum orðum, vélmennin mín munu með tímanum þróast.

    Þegar ég verð búinn að smíða fyrsta vélmennið sem svona er út lagt, er ég þá búinn að skapa líf og er þar með orðinn guð (eða Guð)? Ef ég er ekki guð(Guð) af hverju ekki?
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:24 ::

    12.11.03

    Geggjuð íþrótt
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:25 12.11.03 ::

    Djísus ... Gölli nær sér í aðra sekt strax. Hann er greinilega að safna dómum til að komast í fangageymslubrandaralöggunar.
    ::H.H. skeit klukkan 11:29 ::

    11.11.03

    Hvað ert þú - fangageymslubrandaralöggunarvarðstjórinn eða eitthvað?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:58 11.11.03 ::

    Gírnir hálfviti, svaraðu hvenær þú verður á landinu heimski hommi.

    Ég er nú ekki brandaralöggan en Gölturinn á ekki einungis skilið há sekt fyrir þennar ömurlega brandara heldur brandarafangelsvist að auki þar til hann iðrast.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:45 ::

    Hvar er brandaralöggan þegar maður þarf á henni að halda?
    ::KÍB skeit klukkan 11:58 ::

    Sírnir er svo mikill speni að hann var að skoða mjólkurróbót í fjósi og var mjólkaður óvart.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:36 ::

    Þú gleymdir að svara hvenær þú verður á (h)landinu og hvað þýðir nekki? Er 'nenni ekki' = 'nekki' ?
    ::KÍB skeit klukkan 11:26 ::

    Kyngdu kúk!
    Ég laga þessa linka bara þegar ég vil og núna nekki ég því.

    Til Rex Qkuplex hamingju með daginn Skabbi minn. Í refsingarskyni fyrir að gleyma að hringja í þig horfði ég á Crossroads (Britney Spears myndina). Myndin byrjar á því að hún dansar í pínulitlum klaufnærbuxum. Mikið fannst mér gaman að iðrast þá.

    það verður að árétta að það var brot á dreifingar- og höfundarrétti að birta -SKÍRNI- fréttabréf Sírnis hér að dreifingaraðila óforspurðum. Ég hef lagt erindi fyrir laganefnd Gautaborgargautans og þeir sjá enga vankanta á því að línkur sé í hommaísdálkinum. Hinsvegar vara þeir við því að nota þennan texta á nokkurn hátt til hommkenninga eða að ranglega styðja kynóra mjaðmstórra manna, að viðlagðri knésetningu.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 08:49 ::

    10.11.03

    Talandi um Gautaborgargautann þá hef ég smá gagnrýni. Venjulega eru heilræðin hans mjög góð en þetta síðasta er alveg fáránlegt. Afhverju á maður að hægja sér fljótt, það er ekkert annað en Skabbíska.

    Svo er reyndar eitt annað en það kemur manni nú ekkert á óvart þar sem Gírnir sér um þessa síðu að þá eru linkarnir með gömlum gautum allir óvirkir. Ég sem ætlaði að lesa þá alla til að geta loksins skrifað sögubókina mína 'Samkynhneigður Sírnir sýgur sænska skaufa' byggða á þessum heimildabálki sem Gautaborgargautinn er. Ég skipa Sírni hér með að laga þetta hið snarasta og gubba svo út úr sér hvenær hann kemur til gríslands.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:39 10.11.03 ::

    Mér finnst frábært að Þrándurinn hafi klúðrað þessum link. Annars er hann kominn inn núna í hómís. Ég man hinsvegar ekki betur en að allir hafi eipað þegar einhver dirfðist að peista gautanum inn á vonlausa hér um árið. Jæja - spurning um að Þrándur kíki líka í heimsókn til hans og verði Þrándur í Gautu?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:05 ::

    Þér fagginn þinn

    Þó að sírnir sé súr gúrka sem nagar drjóla þá væri ég til í að sjá link á gautaborgargautann í Hommís Vonlausa dálknum
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:56 ::

    ...og hverju ætlar Þrándur að eyða?
    ::KÍB skeit klukkan 15:42 ::

    Rass-afar eða rassa-far - man það ekki...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:41 ::

    Hvaða afar eru þetta?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:36 ::

    Hehe - afar hressandi innkoma Þrándar á nýja serverinn okkar sem hlotið hefur nafnið Gollum.

    Til hamingju með ammælið kallinn minn, þú ert alveg að ná mér. Og mundu að þó þú sért afar skemmtilegur penni er bara einn afar skemmtilegur Svenni.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:38 ::

    ÞrándheimaÞrándurinn; Afmælisútgafa

    ÞrándheimaÞrándurinn varð 28 ára síðastliðin laugardag. Sindri var sá eini sem óskaði mér til hamingju með daginn, þið hinir eruð allir undirförular píkur hvers orð eru einskis virði.

    Í tilefni afmælisins hélt ég matarboð fyrir 5 og var það helst diskafæð sem hindraði það að fleirum væri boðið. Og sú staðreynd að ég þekki ca. 3 í Þrándheimi sem ég kærði um að fá í heimsókn á afmælinu mínu. Hvað um það, ég eldaði úrvals saltfisk handa gestunum sem voru Siggi og frú og Kari, vinkona Karenar. Til stóð að fara á jazztónleika niðrí bæ eftir matinn enda stóð í síðustu viku yfir Trondheim Jazzfest. Eftir að menn og konur höfðu kýlt sig út af saltfiski, kaffi, köku og rauðvíni var ákveðin höfgi farin að færast yfir mannskapin þannig að við fórum hvergi. Þar að auki höfðum við Siggi og Elín kíkt á tónleika kvöldið áður og satt best að segja var mar ekki alveg til í sömu stemmingu.
    Spurning: Ef þið eruð á leið á tónleika með hljómsveit sem kallar sig "Funky Butt" og leikur "New Orleans Funk Jazz", við hverju búist þið? Sveittum reykmettuðum kjallara þar sem hópur blámanna spilar og syngur fyrir eldressa áhorfendur sem svelgja bjór, dansa og klappa og eru almennt í rífandi stemmingu ekki satt!? Kannski í New Orleans en svo sannarlega ekki í Þrándheim!!!!
    Þegar við mættum klukkan 8 þegar tónleikarnir voru að hefjast var varla hægt að komast inn á staðinn fyrir fólki. Við erum ekki að tala um djassgeggjara með hökutopp, stört sólgleraugu og alpahúfur, ónei, þetta var eins og fokkíng hópferð frá Hrafnistu! Eldgamlir frethólkar og tinandi kellingar hátt á níræðisaldri voru búin að troðfylla staðinn. Bjór á öllum borðum sem búið var að taka einn sopa úr hverju glasi. Að sjálfsögðu var bannað að reykja inni því annars hefði helmingur áhorfenda ekki lifað kvöldið af. Þegar bandið byrjaði að spila ríkti grafarþögn á staðnum, nema það var svona kurteislegt golfklapp eftir hvert einasta sóló. Annars var bandið alveg ágætt þó að það væri algerlega náhvítt. Oft í góðum fíling en oft frekar rólegir, ég er ekki frá því að ég hafi heyrt hrotu í e-m ellibelgnum.
    En allavega, Funky Butt voru fyrista númerið í þreföldum tónleikum. Þegar næsta band steig á stokk kom ástæðan fyrir gamla pakkinu í ljós. Það skartaði manni sem hafði spilað á fyrstu Trondheim Jazzhátíðinni sem haldin var 1950....hmmm....ok. Ég er viss um að allir áhorfendurnir hafi verið þar líka. Við vorum e-ð að spjalla saman milli laga, en það má víst ekki á svona tónleikum, það var sussað á okkur fyrir að tala saman á meðan á tónleikunum stóð. Kommon! það var ekki eins og mar væri í óperunni, þetta var á fokkíng bar! Allavega drifum við okkur út fljótlega eftir að gamlingjarnir byrjuðu að spila.
    Þannig voru nú viðskipti mín við Jazzhátíð Niðaróss.

    Á miðvikudaginn í síðustu viku fór ég í fínt kokteilboð á vegum líffræðideildarinnar. Kannist þið við að fara í fínt boð en þegar mar kemur inn líður manni eins og mar hafi farið húsavillt, þekkir ekki hræðu? Þannig var allavega stemmingin hjá mér þegar ég mætti á svæðið. Í ca. tvo tíma ráfaði ég um í fullkomnu tilgangsleysi, gat ekkert gert annað en drukkið eins og hvalur og reykt eins og strompur. Sem ég or gerði. Og annað kom svo að sjálfu sér.
    Í kokteilboði þessu var áfengi ákaflega ódýrt. Líffræðilúðar allstaðar í heiminu eru óvanir ódýru áfengi, kunna hreinlega ekki að fara með það. Þannig að eftir því sem tíminn leið varð ölvun mjög áberandi, fínir prófessorar með bindi á enninu ala Rambó í geggjuðum fíling að breika við calypso útfærslu af "We are the Robots". Mikið gaman.
    Ég naut óspilltrar athygli eftir að upp komst að ég var frá Íslandi. E-a hluta vegna þykir Norðmönnum Ísland og Íslendingar gríðarðarlega svalt. Sem er neyðarlegt því okkur finnst Norðmenn algerir lúðar með hor í rassgatinu.
    Allavega, ég varð ofurölvi, kenndi strákunum að segja "Ég er Drullufullur!!" og glápti á brjóstin á bekkjarsystrum mínum sem fannst það bara í góðu lagi því ég var frá Íslandi. Eða það held ég allavega....
    Dagurinn eftir í skólanum var reyndar enginn dans á rósum en það er allt önnur saga og leiðinlegri.

    Svona er nú lífið í Þrándheimi skemmtilegt strákar mínir!

    Því má svo við bæta að ég kem heim 19 des og flýg út aftur 9. jan. Árshátið hljómar vel en hvað hefur siðameistarinn í hyggju að hafa á borðum? Gæsina sem AP hraunaði yfir á Njarðargötunni?

    Svo að endingu óska ég okkur til hamingju með Vonlausa.org. Gölli og Cyb ( KÍB á norsku) eiga þakkir skyldar en kolli er faggi sem eyddi helginni í að mála sig svo að hann ætti auðveldara með að næla sér í unga reynsluhomma niðrí bæ.

    Og eytt enn; Ég er sammála svenna um að það er löngu orðið tímabært að hýða Pétur, segist alltaf ætla að koma en lætur svo aldrei sjá sig!

    Labels:

    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:28 ::

    Heill sé siðameistara vorum! Niður með formanninn! Lifi keisarinn! Hýðum Pétur og Gauta!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:14 ::

    Furðuhlutir eru að gerast í hringnum K
    Ég var enda við að skipa sjálfan mig siðameistara Vonlausa. Þetta var gert af ítrustu neyð þar sem hinn svokallaði formaður er ekki búinn að því. Sem betur fer verður formannsembættis lagt niður á næstu árshátíð og keisaranafnbótin tekin upp. En að aðalmálinu.
    Stærsta og jafnframt eina skylda siðameistara er að sjá til þess að árshátíðin fari fram og skipuleggja eða skipa í stöður í sambandi við hana. Núna fer að nálgast í herlegheitin og þessvega finnst mér mikilvægt að við neglum niður dagsetnignu sem fyrst. Til að það sé hægt þurfa Gautur og Þrándur koma því á framfæri hvenær þeir komast. Ef við heyrum ekkert frá þeim í þessari viku mun ég bæta við dagskrárliðnum 'Hýðum Skabba'.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:12 ::

    Mozart er ekki popphóra
    Meðan nirðirnir settu upp nýjan server fyrir okkur þá eyddi ég helginni í málun. Það fer að komast mynd á þetta hjá mér og mun flytja búslóðina næstu helgi. Þessvegna skulið þið taka frá næsta laugardag því ég mun hneppa ykkur í þrældóm. Að launum verður bjór og tollur (gin og viskí). Ekkert romm fyrir Svenna þrátt fyrir að það sé hægt að gera svo margt með það.

    Ég gleymdi alveg að minnast á afrek þar síðustu helgar þegar ég gerðist afreksmaður á sviði fjallaklifurs. Eftir mikinn undibúning kleif ég Himmelbjerget og það á aðeins einum degi. Það örlaði aðeins á þynnku þegar ég steig úr bílnum við fyrstu búðir en komst þó klakklaust að róluvellinum þar sem við slogum upp næstu búðum. Við vorum búin að ákveða að komast upp án þess að nota súrefniskúta og eftir smá aðlögun gerði ég atlögu að tindum og það hafðist.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:20 ::

    Mista Server
    Helgin fór í tölvunördun í þágu veiðifjélagsins að mestu. Þetta er farið að virka nokkuð vel allt saman. Náði í fullt af service pökkum og dóti hjá örmjúku.com í gær.

    Núna vantar vírusvörn sem virkar fyrir þetta og er hægt að update-a. Í framhaldinu er svo hægt að fara að bæta við þetta, setja upp php, MySQL ofl. Gallery er því miður ekki hægt að setja upp því að við erum að nota IIS.

    Svo þurfum við að díla eitthvað með peningahliðina á þessu. Við Renis erum búnir að leggja smá út fyrir þessu. Legg til að Sindri drafti upp eitthvað um það.

    Kíkti líka á krossara í fjöru eina á laugardaginn. Það var snilld, ekkert smá gaman að keyra í flæðarmálinu í bullandi brimi. Sírnir hefði getað tekið skim-brettið sitt til kostanna þarna. Síðan voru tónleikar í gær, þið hefðuð nú haft gaman að þeim því að Sissa vinkona var að spila á faggot. En það er einmitt sérstakt áhugamál Kolla. Fyrst var smá Bach, bara hljónstin (sinfonía áhugamanna) og svo flott pís eftir Vivaldi þar sem Sissa spilaði einleik á téðan homma. Geggjað. Nennti ekki að hlusta á Mozart því hann er popphóra.

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:40 ::

    9.11.03

    Kolli heldur uppteknum hætti og gerir það eina sem hann er góður í, þ.e. að rífa kjaft án þess að hafa efni á því!
    ::KÍB skeit klukkan 23:59 9.11.03 ::

    Húðlitaði auminginn hefur talað
    Það fyndnasta erað KÍB yfir sekkur gerir eitthvað einu sinni og þykist þá vera orðinn einhver göltur.

    Hommaparið KÍB og Gölli vissu mætavel að ég komst ekki til þess að gera neitt í þessu núna og var ekki búinn að vera með neinar yfirlýsingar í þá veru, þeir geta bara haldið áfram að ríða hvor öðrum í rass og segja hvor öðrum hvað þeir séu æðislegir. Á meðan skulum við hinir í internetdeild vonlausa halda ótrauðir áfram og berjast.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 22:57 ::

    8.11.03

    Jeahhh!

    Ég verð nú að segja að mér finnst það frekar cool að geta breytt úreltri tölvu í vefþjón. Það eina sem þurfti til var:
    • 1 stk. úrelt tölva
    • Slatti af úreltu minni
    • Stolinn hugbúnaður
    • Fáein heilabrot
    • Fullt af tíma
    • Nokkur símtöl
    Það fyndnasta er að Kolli ætlaði að gera ógeðslega mikið (eins og alltaf) en gerði ekki neitt (eins og alltaf).
    ::KÍB skeit klukkan 00:14 8.11.03 ::

    7.11.03

    Úff, húff, púff
    Jæja. Ætli fyrsta færslan á nýja serverinn virki? Í kvöld er búið að:

    • Bæta minni í vélina - komin upp í ca. 320MB

    • Setja upp nýjan FTP server - IIS er víst drasl

    • Opna fyrir hann og stilla allt

    • Setja upp nýjan eldvegg - IIS er drasl

    • Kaupa vonlausa.org

    • Stilla dns fyrir það - ætti að kikka inn á morgun

    • Færa bloggið yfir á serverinn hjá mér


    Sindri fær props fyrir minnið og að kaupa domain (þið skuldið honum pening) en Kolli er sami fagginn og þegar vefurinn var settur upp í byrjun. All talk og gerir ekki rassgat. Troddu Linux upp í analinn á þér.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 23:41 7.11.03 ::

    Hvað græðir maður á því? Hið minnsta Trix sem var geðveikt gott. Ha, ha, fáviti.
    ::H.H. skeit klukkan 16:11 ::

    Maður er nú seldur full ódýrt þykir mér
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:19 ::

    Hmm - reyndar er Minki Lú Trix pakka lögfræðingur, ég er Trix pakki og þú ert Trix pakka guðfræðingur. Og hvað græðir maður eiginlega á því? Hahaha - fáviti...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:12 ::

    Nafn: Skinki Lú Freysigöltur.
    Nám: Trix pakka lögfræðingur, kann líka að reka sjoppu.
    Atvinna: Vinnur ekkert, þykist bara.
    Annað: Étur allt sem tönn á festir / finnst gaman að klæðast kjólum og raka á sér rassinn.
    ::H.H. skeit klukkan 15:09 ::

    Nafn: Minki Pu
    Nám: Prelli
    Atvinna: Vinn með börnum
    Annað: Kaldrifjaður morðingi / níðist á þroskaheftum vini sínum, Minka Lú, þegar hann kemur að skoða gripinn
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:10 ::

    Til Pumingju með Pubúðina, en ég þakka pent nei takk ég vil ekkert skoða gripinn á þér.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 13:00 ::

    Þið eruð allir drullufaggar klæddir í kjól og rakið á ykkur punginn. Skinki Lú er bara öfundsjúkur vegna þess að ég er búinn að veiða jafnmikið og hann og ég var ekki einu sinni að reyna. Bara vegna þess að Skinki étur upp úr öskutunnum þýðir ekki að ég geri það, glætan að ég éti gæs sem elur allan sinn aldur í vímu af útblæstri bíla og étur hálfétin brauð leikskólabarna með hor í nös og kúk í buxum. Þið getið étið svoleiðis mat ef þið viljið, þriðjaheimsnegrar. Ég tel mig vel að titil minksins kominn, drap og leit ekki við því. Þið eruð slímugir rasspissifaggar.

    Að þessu sögðu þá má að lokum geta þess að ég er fluttur í nýju íbúðina mína og eru allir velkomnir hvenær sem er í heimsókn og skoða gripinn. Alltaf kaffi á könnunni en lítið annað en það.
    ::H.H. skeit klukkan 12:02 ::

    Kolli er faggi og hann er skotinn í Minka Pu morðingja, sem er tíkin hans Minka Lú, sem er afkomandi Jabba the Hut í beinan kvenlegg. Gautaborgargautinn og Þrándheimskþrándurinn eru heimskir faggar. Gári er ehhh - gári.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:30 ::

    6.11.03

    WORD! Þetta er óhugnaleg hegðun hjá Minka Pu.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:24 6.11.03 ::

    Jú það er einmitt ófrávíkjanleg regla sem gerir Pu að ógeðslegum slímugum barbara sem drepur gæsir sér til skemmtunar. Það er svoldið scary að hann sé að vinna með óhörðnuðum úllum og börnum og sé að kenna þeim siðferði þegar hann sjálfur hagar sér svona.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:22 ::

    Var ekki regla í vonlausa að éta þá bráð sem maður væri að drepa?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:17 ::

    Sindri er dindill, Skabbi er rindill, Pu er vindill og Sírnir er hommi.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:44 ::

    5.11.03

    Nördajól
    Vonlausa nýtur góðs af hálsbólgu og kvefskít sem hrjáir mig. Nú er ég búinn að forða gögnum af turnvélinni minni (þó ég sé líka með lappa er ég að spá í að finna annan því þá get ég kallað Lanið mitt Tveggja turna tal) og setja upp Win2K server. Þarf kannski reyndar að gera það aftur því að planið var að strauja vélina í leiðinni en uppsetningin býður ekki upp á það. Væri flott að henda öllu út og búa til sér partition fyrir osinn. Þá getur maður bara straujað það aftur og aftur án þess að restin fari í steik. Svo vorum við Kolli náttúrulega að pæla í að setja upp Linux og Apache í framhaldinu. Tvær tölvur í gangi, Serrano og pepsí á borðum. Mikill nörd í dag.

    Annars eruð þið grútskítugir faggar að gefa mér ekki eitthvað töff í ammælisgjöf. Stænerinn gaf mér fallhlífarstökk. Hversu kúl er það? Það verður sjálfsagt nýtt með vorinu þegar djúpfrysting í lofti minnkar. Ætli ég eigi ekki eftir að stökkva með uppáhalds fyrrverandi löggunni minni, honum Þórjóni...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:54 5.11.03 ::

    4.11.03

    Þegar Siv stal jólunum
    Stæner með sniðugan texta.

    Annars er nú allt í lagi að heimila veiðar á þessum ömurlegu gömlu súru spaugstofuföggum. Það sem þessi fífl eru leiðinleg og maður verður að borga fyrir þá.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:37 4.11.03 ::

    HA!?
    Mjöðmin keypti sem sagt hús uppi á Skaga til að vera nær öllum kvótanum sem hann eignaðist hérna um árið. Segir að það sé ekkert mikið lengra en út á Granda ef maður fer göngin og á ekki von á fækkandi heimsóknum. Villtist á leiðinni þangað á föstudaginn og endaði í Danmörku.

    Graðni er fluttur til Flórdía og setti upp nektarnýlendu þar ásamt búð sem selur íslenska lopa G-strengi, gvendabrunnavatn og hákarl.

    RenisMcPenis er farinn að missa hárið á vinnufélögunum líka.

    Sírnir faggi er orðinn svo mikill faggi að hann býður Julie Delphy í heimsókn og talar bara um hvað hann eldaði handa henni. Gaaaaad. Svo fór hann með henni að velja föt daginn eftir.

    HA!?

    Ég kíkti á Sólheimajökul á sunnudaginn eftir djamm og svo leiddi ég litla ísleið í Búhömrum í gær. Brölt og svo lóðrétt haft en stutt. Það var stuð.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:05 ::

    3.11.03

    Til hamingju með ammælið Schweinn!

    Hvað er eiginlega að frétta af skerinu? Ha? kolli búinn að kaupa hús ha? og farinn Danmerkur ha? og Graðni í amríku ha? og Sindri að verða sköllóttur ha? og sírnir nagandi ítalskar rottur í feneyjum ha? Hvað er að skje? HA?!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:34 3.11.03 ::

    Ammæli og útskrift
    Komnar myndir á askinn, Kolli er ljóti kretíninn að flýja til Danmerkur. Ég er að spá í að setja upp Win2K server í staðinn fyrir Linux og Apache bara til að hefna mín á honum.

  • Skoða
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:28 ::

    Skoða eldri færslur >>