30.12.03
Myndagalleríið er nánast tilbúið, nota morgundaginn til að klára. Þá er bara eftir að fara heim til Gölla og configa php eilítið og allt ætti að vera komið.
Djöfull er ég sammála Svenna, er hann loksins að fatta að bankar eru ívúl.
Það er löngu þekkt dæmi að (nánast) allar flottar auglýsingaherferðir hér á landi hafa verið stolnar erlendis frá, beint eða óbeint.
Menn geta nú samt gerst of grófir. Hvað er með þetta lógó hjá KB banka (nýr Kaupþing-Búnaðarbanki)? Munið þið ekki eftir gömlu Plan B myndunum? Stolið beint. Halda að enginn kveiki ef stolið er úr einhverjum subkúltúr nema nokkrir freðnir skeitarar. Fífl. Dæmið sjálf...

Ekki nóg með það heldur er nafnið KB banki fáránlegt. Ég hef bara hugsað Kaupfélag Borgfirðinga síðan ég heyrði það fyrst. Enda eiga þeir nafnið. Og lénið KB.is sem verður eflaust requestað töluvert af viðskiptavinum KB banka. Hvað eru þeir að pæla? Stolið nafn og stolið lógó. Það er kannski eftir hinu milda mannúðarfyrirtæki Kaupþingi að breyta um ásýnd á þennan máta. Rakst á ágætis tilvitnun sem á kannski við;
"Hierarchy is an organization
with its face toward
the CEO and its ass toward
the customer"
with its face toward
the CEO and its ass toward
the customer"
29.12.03
Jæja - ég ákvað að henda nýja lúkkinu í loftið þrátt fyrir að það sé ekki alveg fullklárað. Þetta er miklu skemmtilegra og þægilegra útlit, að ekki sé minnst á snyrtilegra í alla staði (bæði sýnilega og bakvið).
Kolli er að smíða myndagallerí fyrir allar frábæru myndirnar okkar og síðan munum við skutla þeim inn í sæmilegum gæðum, amk. því sem við eigum í betri upplausn.
Vona að menn séu sáttir, ég og Kolli erum búnir að eyða massa vinnu í þetta.
24.12.03
en þó sérstaklega þú minn kæri þjónn.
Var annars að skoða þessa síðu og þetta er bara alltaf jafn fyndið:
Sírnir
Talið er að nafn þetta sé komið af latneska nafnorðinu "sérus" sem merkir seinn.
Fallbeyging
nf : Sírnir
þf : Sírni
þgf: Sírni
ef : Sírnis
Talið er að nafn þetta sé komið af latneska nafnorðinu "sérus" sem merkir seinn.
Fallbeyging
nf : Sírnir
þf : Sírni
þgf: Sírni
ef : Sírnis
23.12.03
Eg sendi thetta skeyti fra internetveitingastad i San Cristobal de las Casas og er ad bida eftir thvi ad einhver guido touro hefjist. Tha faum vid ad keyra um thorp og gera grin ad frumstaedum hattum Maya en kannski verdur thad bara gert a spaensku og vid getum ekki tekid thatt i grininu. Eins og ad vera gaurinn sem maetir of seint i prattí.
VId erum buin ad skoda fullt af pyramidum og doti og borda spooky tacos og muchos nachos.
Ferdasoguna ma finna a http://www.laserbeamgames.com/mexico og hun er uppfaerd thegar timi vinnst til.
Adios Amigos og Feliz Navidad,
Kári.
22.12.03
19.12.03
Kæri veiðimaður
Endurgreiðsla á veiðikorti 2003 vegna rjúpnaveiðbanns.
Svar hefur borist frá Umhverfisráðuneyti þar sem beiðni um endurgreiðslu er hafnað samkvæmt neðangreindu brefi frá ráðuneytinu.
Svar frá Umhverfisráðuneytinu:
Umhverfisstofnun
Davíð Egilson, forstjóri
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Reykjavík, 15. desember 2003
Tilvísun: UMH02110018/041-1
Ih/--
Vísað er til bréfs Umhverfisstofnunar frá 6. ágúst s.l. þar sem óskað er eftir leiðbeiningum ráðuneytisins um hvernig svara ætti beiðnum sem borist hefðu stofnuninni um endurgreiðslu veiðikortagjalds vegna rjúpnaveiðibanns. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, skulu allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum og músum, afla sér veiðikorts gegn gjaldi, sem skv. 3. mgr. Sömu greinar er 2.200 kr. á ári. Á veiðikorti skal getið nafns handhafa, gildistímabils og þeirrar tegunda sem viðkomandi hefur heimild til að veiða. Sbr. 4. málsl. 1. mgr. 11. gr. Veiðikort veitir handhafa þess rétt til að stunda veiðar á villtum dýrum á Íslandi og íslenskri efnahagslögsögu, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 291/1995, um veiðikort og hæfnispróf veiðimanna. Veiðikort eru ekki bundin við veiðar á tilteknum dýrum eða tegundum ef frá eru talin hlunnindakort til staðfestu á því að ábúendur hlunnindajarða eigi rétt á að nýta sér hlunnindi á jörðinni, s.s. þeir sem stunda æðarrækt. Veiðkort gildir að janfaði í eitt ár í senn frá 1. apríl ár hvert, sbr. 6. gr. framangreindrar reglugerðar. Ljóst er að handhafar veiðikorta eru bundnir af þeim reglum sem gilda um veiðar á hverjum tíma.
Meginreglan samkvæmt lögum nr. 64/1994 er að rjúpan sé friðuð, sbr. 6. gr., en samkvæmt 17. gr. lagana getur umhvefisráðherra að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar aflétt þeirri friðun frá 15. október 22. desember ár hvert. Síðustu árin hafa verið gerðar ýmsar takmarkanir á rjúpnaveiðum innan framangreinds tímabils. Stór svæði hafa verið alfriðuð og það tímabil sem rjúpnaveiðar eru heimilar var stytt árin 1993 og 2002. Handhafar veiðikorta mega því búast við að reglur um veiðar breytist á gildistíma kortsins. Þó að veiðar á rjúpu hafi ekki verið heimilaðar að þessu sinni veitir veiðikort eftir sem áður heimild til veiða á mörgum öðrum fuglategundum í samræmi við ákvæði í 17. gr. laga nr. 64/1994, sbr. reglugerð nr. 456/1994 með síðari breytingum. Með vísan til framangreinds telur ráðuneytið að ekki séu forsendur til endurgreiðslu veiðikortagjalds vegna rjúpnaveiðibanns.
Endurgreiðsla á veiðikorti 2003 vegna rjúpnaveiðbanns.
Svar hefur borist frá Umhverfisráðuneyti þar sem beiðni um endurgreiðslu er hafnað samkvæmt neðangreindu brefi frá ráðuneytinu.
Svar frá Umhverfisráðuneytinu:
Umhverfisstofnun
Davíð Egilson, forstjóri
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Reykjavík, 15. desember 2003
Tilvísun: UMH02110018/041-1
Ih/--
Vísað er til bréfs Umhverfisstofnunar frá 6. ágúst s.l. þar sem óskað er eftir leiðbeiningum ráðuneytisins um hvernig svara ætti beiðnum sem borist hefðu stofnuninni um endurgreiðslu veiðikortagjalds vegna rjúpnaveiðibanns. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, skulu allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum og músum, afla sér veiðikorts gegn gjaldi, sem skv. 3. mgr. Sömu greinar er 2.200 kr. á ári. Á veiðikorti skal getið nafns handhafa, gildistímabils og þeirrar tegunda sem viðkomandi hefur heimild til að veiða. Sbr. 4. málsl. 1. mgr. 11. gr. Veiðikort veitir handhafa þess rétt til að stunda veiðar á villtum dýrum á Íslandi og íslenskri efnahagslögsögu, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 291/1995, um veiðikort og hæfnispróf veiðimanna. Veiðikort eru ekki bundin við veiðar á tilteknum dýrum eða tegundum ef frá eru talin hlunnindakort til staðfestu á því að ábúendur hlunnindajarða eigi rétt á að nýta sér hlunnindi á jörðinni, s.s. þeir sem stunda æðarrækt. Veiðkort gildir að janfaði í eitt ár í senn frá 1. apríl ár hvert, sbr. 6. gr. framangreindrar reglugerðar. Ljóst er að handhafar veiðikorta eru bundnir af þeim reglum sem gilda um veiðar á hverjum tíma.
Meginreglan samkvæmt lögum nr. 64/1994 er að rjúpan sé friðuð, sbr. 6. gr., en samkvæmt 17. gr. lagana getur umhvefisráðherra að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar aflétt þeirri friðun frá 15. október 22. desember ár hvert. Síðustu árin hafa verið gerðar ýmsar takmarkanir á rjúpnaveiðum innan framangreinds tímabils. Stór svæði hafa verið alfriðuð og það tímabil sem rjúpnaveiðar eru heimilar var stytt árin 1993 og 2002. Handhafar veiðikorta mega því búast við að reglur um veiðar breytist á gildistíma kortsins. Þó að veiðar á rjúpu hafi ekki verið heimilaðar að þessu sinni veitir veiðikort eftir sem áður heimild til veiða á mörgum öðrum fuglategundum í samræmi við ákvæði í 17. gr. laga nr. 64/1994, sbr. reglugerð nr. 456/1994 með síðari breytingum. Með vísan til framangreinds telur ráðuneytið að ekki séu forsendur til endurgreiðslu veiðikortagjalds vegna rjúpnaveiðibanns.
Eins og ykkur er eflaust í fersku minni hraktist ég út í drykkju eftir að þið mongólítarnir múnuðuð rúðu úr bílnum mínum og annan óskunda.

Nú get ég glaður tilkynnt að þið eruð orðnir svo gamlir og súrir og glataðir að þið meikið það aldrei í bæinn. Ergó => ég get hætt að drekka aftur. Jei!
18.12.03
Fór á Return of the King í gær og verð að segja að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Meira um það seinna þegar þið suðsvarti almúginn er búinn að sjá hana.
Í sambandi við kostnað á tengingu þá er það bara svona dýrt og þýðir lítið að væla yfir því. Ég er að borga rúman 5000 kall á mánði fyrir mína, þannig að þú ættir bara að vera ánægður með að vonlausi er að chippa allavega eitthvað inn í tengikostnað.
Hilmir Snær aftur?
Af hverju heitir myndi Hilmir Snær aftur þegar Hilmir Snær leikur ekkert í henni, bara Baltasar Kormákur?
Án þess að ég vilji vera að ræða myndina mjög mikið þá verð ég bara að segja að hún er löng. Og norska ról pleyið á undan myndinni var fáránlegt, hvað fær fólk til að vera svona steikt er mér fyrirmunað að skilja.
Semsagt, bíð eftir að pöpullinn hefur séð myndina áður en ég fer að hella úr viskubrunni mínum yfir ykkur.
Sjáumst á morgun
faggar
Þetta er afar spennandi allt saman...
17.12.03
15.12.03
Please select value for Kolli's toilet habits:
Tékkaðu á ísskrúfum fyrir okkur - BD Turbo Express 16cm.
Kosta 10 þús. stykkið hérna heima.
thråndurinn gengur laus!!!
sjåumst a føstudaginn
faggar
14.12.03
Svo höfum við líka XML og XSL.
Tilviljun?
1) Kaffibolli
2) Hallelujah (Buckley) eða Mad World (Jules) á fóninn
3) Kaffibolla í hönd
4) Lesa hverskonar mannlegur harmleikur er innbyggður í kerfið
5) Lofa að gera allt sem í þínu valdi stendur til að hjálpa öðrum*
[*orðrétt úr skátaheitinu]
12.12.03

Strákurinn á bara nokkrar myndir á alnetinu - enda frábært ljósmyndari.
ps. var aðeins að fikta í eldveggnum í gær - þessvegna póstaðist ekki á tímabili í dag...
Þessa dagana sit ég með sveittann skallann daginn út og inn að lesa fyrir próf. Fagið er Efnafræði kúkíns, pissíns og prumpíns. Þar að auki legg ég stund á verklegar tilraunir með því að innbyrða reyðinnar býsn af kaffi sem, eins og allir vita, inniheldur pissín í miklu magni og slæðing af kúkíni. Hitt standa þó enn deilur um, hvort og í hve miklu magni prumpín finnst í kaffi.
Þar sem ég innbyrði mikið af kúkíni á degi hverjum þarf ég vitaskuld að ganga örna minna ótt og títt. Eftir að ég afneitaði staffaranum á Diskóverí '89 of skeit í fötu hef ég svo sannarlega brotið odd af oflæti mínu og læt nú ekki bjóða mér hvað sme er. Sem betur fer hef ég fundið afbragðsgóðan staffara, fatlaðraklósett í fjarlægri álmu sem ég álít að hafi aldrei snert þjóhnappa fatlaðas manns eða konu. Utan minna.
Í gær byrjaði að snjóa í Niðarósi og er nú svo að segja 30 cm jafnfallinn snjór yfir öllum bænum. Það er gaman.
Ég hef átt miða á Return of the King þann 17. í rúman mánuð. Ég er aftur á móti ekki jafnmikið smábarn og Klofbeinn að þurfa að glenna það framaní menn sem ekki eru jafnklókir mér. Hátt hreykir heimskur sér hefir sjaldan átt jafnvel við og um akkúrat áðan.
Eitt að lokum; aldrei þessu vant er ég hjartanlega sammála andríki í dag.
Ég er að fara á Return of the King þann 17. Múhahahahahahahahaha
11.12.03
eruði byrjaðir að skipuleggja hátíðahöld við heimkomu okkar Gírnis Grulsu?
Missti af Mínus, þeir spiluðu víst alveg fáránlega snemma. Skítasánd sögðu menn. Hefði meira verið til í að sjá Brainpolice þarna. Vorum ca. fyrir miðju, sem var mjög passlegt. Fínt sánd, mikill sviti, troðningur án þess að það væri sárt allan tímann. Var með Ásu Lú og gaur úr vinnunni (keypti sko einn miða og grísaði á að hitta lið). 3 bankalúðar sem sagt.
Bandið var snilld. [1] [2] Þeir eru ótrúlega þéttir miðar við 3 manna hljónst. Geðveikur söngvari/gítarleikari/hljómborðsleikari/píanóleikari. Veit ekki hvort Matthew Bellamy er menntaður í klassík en hann hefur amk. vald á ansi flottu stöffi. Kannski er þetta bara eitthvað show í honum. Á stundum var camera á nótunum þegar hann var að spila. Það var geðveikt töff.
Bassaleikarinn (Chris Wolstenholme ) er ansi magnaður, þetta er kannski fæst eitthvað rosa erfitt en hann er líka með kúl sánd í gangi. Trommuleikarinn (Dominic Howard) er drullugóður. Og þeir eru fáránlega þéttir. Sem er náttúrulega aðallega bassi+trommur. Ef það er neglt geturðu prumpað nánast að vild ofaná með öðrum hljóðfærum og það sándar allt vel.
Brjóst
Lagasmíðarnar hjá þeim og frumleiki er upp á tíu. Ótrúlega unique sánd og alveg magnað að pæla í laglínu+bassalínu+gítar/hljómborðum sem þeir eru að leggja saman. Allt úr sitt hvorri áttinni en sándar eins og...
...brjóst? Eitthvað frábært allavega.
Lögin voru bara geðveik. Við vorum hoppandi og öskrandi með 50% af tónleikunum. Sérstaklega var ég að fíla New Born, Space Dementia - brjálað píanó, brjálað!, Plug in Baby - geggjað bassasánd, geggjað! og svo enduðu þeir á Stockholm Syndrome - vááááá!
Gallar
1) Hvað sem Skabbi segir á Hlað mætti gera skurk í því að fella slatta af gelgjum. Hvað er verið að skjóta rebba alltaf? Það eru gelgjurnar sem pirra mig. Ég held að krakkarnir sem voru alltaf að hlaupa í stúkunni og pirra mann á KR leikjum fyrir nokkrum árum séu orðnir ca. 10 ára (fáránlega litlir krakkar þarna) og séu farin að bögga fólk á tónleikum. Þessi fífl hafa sjálfsagt hlaupið maraþon þarna í hringi.
2) Þrátt fyrir að Ívar Bongó stæði í brúnni var ekki næstum nóg keyrsla. Þetta er þvílíkt power tónleika band en það var bara alls ekki að koma í gegn oft á tíðum. Alltof lágt. Veit ekki hvað er málið - fáránlegt! Við Ása vorum að spjalla saman án þess að taka "ýta á eyrað trikkið" og það heyrðist fínt. Þetta skemmdi mikið fyrir fannst mér.
Ergó: Snilldartónleikar - of lítið blast: VVVv til VVVV.
Labels: Tónlist
10.12.03
P.s. K2 og Vertical Limit eru the ultimate fjallamyndir sem sýna fjallgöngu og klifur á trúverðugan og raunsæan hátt. Svenni er bara spældur því hann kann ekki að hoppa á milli jökla og klifra upp úr sprungum og slást við ísbirni um leið.
Ég mundi ekki vilja heita Árni og Árna mér. Af hverju ætli það heiti að Árna sér. Hver er eginlega þessi Árni og ætli hann þekki Ósk?
Annars er ég gríðarleg ósáttur við að fólki er aldrei Guðnað heilla...
...bara Árnað!
Hin magnaða bók Joe Simpson's er orðin að bíómynd sem er byrjað að sýna í útlandinu. Það verður snilld að sjá fjallamynd sem er ekki bullshit, slíkt hefur ekki gerst síðan snilldarræman Eiger Sanction var gerð, með meistara Klístvúdd í aðalhlutverki.
Og ef einhver segir Vertical Limit fær hann Krumma í rúnkminnið í refsingu.
Og étiði svo!
9.12.03

Smá tölfræði: Það eru 2400 vinningar. Hvað haldið þið að séu margir kúnnar í Netbankanum sem geta tekið þátt? Klárlega ekki 240.000. Þannig að vinningslíkur eru miklu meiri en 1/100. Fer ekki nánar út í það en þetta eru miklu betri líkur en í öðrum happdrættum. Svo aukast líkurnar líka ef farið er inn á hverjum degi.
8.12.03
Föstudagur og laugardagur voru frekar tíðindalausir, ræktin, jólaball, mála hjá Tinna og prýðilegt prattí hjá Pu. Afar skemmtilegar umræður.
Síðan vaknað eldsnemma á sunnudag og skrölt á Heklu. Myndir hér
6.12.03
5.12.03
Arnarvatnsheiði, Þokkafokkinglega!
Veiðivötn, varla
Vötn sunnan Tungnár er ég vel til í að skoða
Reykjavatn, ef ég hef ekkert betra að gera í sumar en að hossast í bíl í 10 tíma til að borga 5000kall fyrir að veiða í e-m drullupolli skal ég láta þig vita.
Djúpavatn, 1/2 punda uggalausir eldisurriðar og 10 gramma bleikjur.... ég veit ekki...
Hítarvatn, ok, til í að prófa dagstúr
Hérna eru nokkrar hugmyndir:
Ég hringdi í veiðifélag Tunguár og þar var allt uppselt en hann ætlar að hringja í mig ef eitthvað losnar. Dagurinn kostar 12500 og stangir seldar saman. Hús fylgir.
Mig langar að biðja Pu að geyma saltstangirnar því ég kemst ekki en þakka gott boð. Til hamingju með slotið Pu.
Hugsanlega verður nýr vonlausi sem mætir mönnum í komandi viku og með lækkandi sól. Jeij!
4.12.03
3.12.03
HA HA HA HA.
Eitt sem er að bögga mig geðveikt, fyrir tíu eða fimmtán árum gat ég keypt geðveikt mikið að kúlum á 50 aura stykkið. Ég heimta að fá kaupa kúlur á sama verði í dag vegna þess að ég keypti greinilega ekki nóg þá.
2.12.03
Eins og þið sjáið þá eru smá byrjunarörðuleikar í þessu hjá mér sbr. að fyrstu bloggin mín komu pínu oft. Svo kemur líka mitt eigið alvöru nafn ekki skemmtilega notendanafnið mitt. Gölli segir að það sé stór hættulegt því CIA og LÞÍ fylgist með öllu bloggi. Hvernig í andsk. lagar maður þetta?
Ykkur að segja þá hefi ég sent út fyrirspurnir varðandi Búðardalsá og Laxá í Refasveit. Enn og aftur, ef þið hafið e-r skoðanir (nema KÍB), látiði mig vita. Ég læt ykkur aftur vita ef ég fæ e-r svör.
ú á guðna!
En að öðru:

Tveir kretar eftir að borga.
1.12.03

Snjórinn í Bláfjöllum er líklega meiri en í allan fyrravetur. Hinsvegar voru það ekkert sérlega kræsilegar aðstæður sem mættu mér í Suðurgili á laugardaginn, skítkalt, blint á köflum, grjót víða og stóllinn ekki í gangi.
Var ekki í stuði fyrstu ferðirnar en hitti svo Kela. Skröltum upp á topp 4 ferðir. 3svar í púðurlænu sem er alltaf þarna niður að disknum. Sem var snilld. Í fjórðu ferð renndum við okkur niður gömlu topplyftubrekkuna og niður í Kóngsgil. Sem var þvílík snilld. Gilið fullt af púðri. Jeeee. Vantar bara að hengja stólana.
Ísrúntur
Byrjaði á rosalega kertuðu lóðréttu hafti, síðan þægilegt klifur, síðan frekar trikkí kafli með ofsalega holóttum ís sem molnaði allur niður. Þar gerði Tryggvi millitryggingu og tók mig upp. Ég leiddi síðan lóðréttan kafla sem var alveg fuckin erfiður, missti lappirnar nokkrum sinnum. Síðan var þetta aðeins þægilegra og létt í restina. Gerði tryggingu á brún og tók Tryggva upp og síðan var þetta bara brölt án trygginga restin.
Fyrsta alvöru leiðslan í ís. Held að þetta hafi nú allavega verið WI3+ eða jafnvel WI4 án þess að vita það. Fannst allavega frekar erfitt. Svínslega mikið vesen að koma inn ísskrúfu í aðeins yfirslútandi ís þar sem maður nær varla að standa í lappirnar og hangir á einni exi.
Í tilefni þess að ég hef flutt allt mitt hafurtask (hvað þýðir þetta orð annars) á nýjan stað og ég á afmæli 5.des. þá býð ég ykkur herrunum til að koma næsta laugardag (6.des.) og drekkja sorgum ykkar með víni, klámvísum og almennum ruddaskap í nýjum híbýlum mínum. Mæting er um partýleitið en ekki seinna en eftir að Mjöðmin drepst.
Skoða eldri færslur >>

