30.1.04

Fór í fyrrakvöld í göngu með vagninn. Meig í olíutankinn á einhverri jeppatík á Kvisthaganum. Ef hún fer að hósta heldur fíflið sem á hana ábyggilega að það sé vegna gaddsins.

PS. Ef þið eignist barn fáið þið 4539 kr. í skaðabætur frá hinu opinbera.
::Grathni skeit klukkan 22:25 30.1.04 ::

Andskotinn alvöru nafnið mittt er komið aftur á þennann skítavef. Ég segi það enn og aftur tölvur eru drasl og tískubóla.
::Grathni skeit klukkan 18:56 ::

Fréttir af fluguhnýtingarklúbbnum.
Ég gerði eina flotta kafloðna Maríu í gær. Vonadi verður Kolli ekki fúl
::Grathni skeit klukkan 18:53 ::

Sgel rof sgol!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:19 ::

Það var soddan gaddur í gærkveldi að mega-krúser byrjaði að hósta. Renndi inn á bensínstöð og fór að leita að þotubensíninu. Það var bara hvergi að finna! Endaði loks á trukkadælunni og það var helvtítis service dæla.

Kom einhver kallpúngur þarna og ég sagði honum að skella 10L af stenolíu þarna oní. Honum fannst þetta stórskrýtið. Eru allir hættir þessu? Hvað nota menn til að ísverja olíuna í svona gömlum bílum? Núna er hitari fyrir hana í flestum. Olían verður að svona hvítu vaxi í kulda nebbnilega. Hvað er málið - hættu allir dísel-bílaeigendur að eiga heima á Íslandi meðan ég átti bensínbíl?

Svo er annað - olían var á 46 í stað 35 = 770 krónum dýrari. Það er ekki slæmt tímakaup við að dæla sjálfur!
::Hívatha litli skeit klukkan 09:47 ::

29.1.04

Jeeeee - ég negldi þokkalega 720° áðan...

... á skrifstofustólnum!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:07 29.1.04 ::

Gaaaaaaaaa
::Hívatha litli skeit klukkan 15:25 ::

Baugar, um bauga
Skoða á AmazonMcRenis og ég keyptum okkur Silent Hill og Medal of Honor á PS2, platinium útgáfur = ódýrari, um jólin. Silent Hill var svona söguleikur þannig að ég gafst upp á honum eftir 5 mín. Í fyrradag skiptum við og ég er gjörsamlega húkked. Var til 4 í fyrrinótt og 3 í nótt að spila. Þökk sé skilningsríkri konu minni gat ég byrjað kl. 23 í gærkveld í stað þess að horfa á leiðinlegt sjónvarp þangað til að hún fer að sofa. Þannig að mann fór að verkja í augun á aðeins kristilegri tíma.

Hinsvegar er ég að þverbrjóta allar reglurnar sem McRenis fann í bæklingnum, spila þreyttur, spila þegar mann verkjar í hendina, þreyttur í hausnum osfrv. Skv. bæklingum á maður að fara strax til læknis. Svo á maður víst ekki að spila ef maður er flogaveikur eins og Kolli Gölli og Minki Lú.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:42 ::

28.1.04

Afhverju ætti tryggingarfélagið að græja þetta þegar björgunarsveitin er tilbúin til þess.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 20:50 28.1.04 ::

Nema hvað - Mt. Blue þokkalegt í gærkveldi - frekar hart og rosalega hratt færi. Tóti kíkti memm.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:10 ::

Ái - hættu að ýta á takkann á mér...
Annars er þetta fáránlegt - auðvitað á tryggingarfélagið að græja þetta. Ekki hafa björgunarsveitamenn í sjálfboðavinnu á hlaupum á eftir einhverjum helvítis hænsnum. Og eyðileggja matarlystina fyrir þeim í leiðinni ;)
::Hívatha litli skeit klukkan 17:09 ::

já auðvitað, hverjir aðrir ættu að gera þetta?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:05 ::

Er þetta verkefni fyrir björgunarsveit/hjálparsveit?
::KÍB skeit klukkan 16:54 ::

Hættir að éta kjúlla
Jakk!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:17 ::

Kolli gölli er samt speni
Aldrei þessu vant er ég þvílíkt sammála Kolla gölla. Veit reyndar ekki með krakkið...



...en djöfull væri ég til í að fara á námskeið í Lummutrérækt...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:15 ::

Loksins stendur drykkjaframleiðandinn Egill Skallagrímsson undir nafni.

Egill Skallagrímsson lét aldrei vaða yfir sig. Nú hefur samnefnd verksmiðja gefið skít í löggjafann og birt heilsíðu áfengisauglýsingu í Fréttablaðinu. Það besta er þeir vaða yfir samkeppnisaðilann um leið, slá tvær flugur í einu höggi.

Snillingar.
::H.H. skeit klukkan 12:17 ::

Danni og Marri
Ég var að pæla með þetta námskeið í kannabisrækt. Hversu mikill hálfviti þyrfti maður að vera að fara á þetta námskeið. Hann ætlar að rukka 96 þúsund fyrir og það verða ekki einu sinni plöntur eða fræ þarna. Þetta verður sem sagt á fræðilegu nótunum og kanski fær maður að æfa sig á nokkrum túlipönum. Frekar mundi ég bara kaupa mér þessa og fara í svo í blómaval og spurja hvernig maður umpottar.

Fyrir utan það þá er þetta frekar tilgangslaust þar sem það er fullt af marra plöntum hérna, engin ástæða til að þær séu fleiri en hins vegar er ein vara sem vantar hérna. Afhverju er hann ekki frekar með námskeið í krakkgerð, það væru miklu skynsamlegra. Gölli hefði gott af því að geta fengið sér smá krakk í staðinn fyrir þetta munntóbak.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:04 ::

27.1.04

Púður á Akureyri
Skoða myndir úr ferðinni - ekkert rennsli samt ;)
[Sætar systur]
Kíkti á AK um helgina með fríðu föruneyti. Brunað eftir vinnu á föstudaginn, étið á Brú (einu sæmilegu sjoppunni á leiðinni), og duttum inn á AK um 11.30, 6 tíma ferðalag. Skyggni og færð á heiðunum var aðeins farið að versna og endaði svo víst í útkalli 4 björgunarsveita um nóttina.

Síðan var drukkinn einn bjór og farið að sofa. Það var algjört skítaveður á laugardaginn, mikill vindur, snjókoma, ekkert skyggni og eiginlega bara skafrenningur niðri í bæ. Drulluðumst uppeftir um hádegið. Það var mjööög erfitt að koma sér í gírinn.

Skítkalt, lítið skyggni, slatta púður - reddaðist
Rættist ansi vel úr þessu, vorum að krúsa í pistinni og hún var það vel troðin, harðfennið unnið, að þetta var allt í læ. Tókum eina ferð í Strýtuna og sáum ekki neitt, vorum í tómu. Vorum svo eitthvað að krúsa í gilinu við hliðina á stólnum. Það hélt áfram að snjóa og ég kíkti upp í Strýtu seinna um daginn með Ella [1], Sponsa [1] [2] og Alla og þá var þetta bara snilldin ein. Komið endalaust púður og nokkuð slétt undir þannig að maður gat bara neglt niður dalinn án þess að sjá neitt. 2 hengjur á leiðinni sem komu skemmtilega á óvart, ég sá þær nebbnilega aldrei. Geðveikt púður, gusaðist yfir hausinn í tábeygjunum.

Rættist vel úr deginum, kíktum svo í sund til að þíða kroppinn eftir skítakulda og vind, síðan á Greifann í massa búrger. Kveldinu var eytt við chill og bjór. Spáin var ágæt þannig að flestir fóru að sofa á skikkanlegum tíma.

Megapúður, megapúður, megapúður
Gengið frá íbúðinni og mætt í fjallið kl. 11. Ógeðslega kalt, -9° í bænum sem gæti þýtt -15° í strýtunni. Og slatta vindur. En geðveikt færi, algjört rugl. Tók nokkrar ferðir í dalinn og skálina og síðan milli dalsins og pistarinnar - niður stóru hengjuna. Það var rugl, 3-4 metra dropp og maður keyrði fram af á ferð niður í brekkuna og náði að fá góðan fiðring í magann. Svo bara grefst maður í dúnmjúku púðri og finnur ekki fyrir lendingunni. Geggjað.

Þvílíkt sáttur við daginn og helgina. Lögðum af stað í bæinn kl. 16.30 og vorum í bænum um 22. Fór svo beint í vinnuna til að taka þátt í að niðurlægja samkeppnisaðilann og var þar um nóttina.

Helgin = Deftones, skvetta af Tool og Greyboy Allstars...

  • Myndirnar (ekkert úr fjallinu - bara mannlíf)


    PS - Annars er planið að fara í Mt. Blue á eftir - hverjir eru með?

    [Update - maður hálf skammast sín að blogga svona strax fyrir ofan hrakfallasögur Sírnis - þið verðið bara að lofa að lesa næsta póst fyrir neðan líka...]
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:34 27.1.04 ::

    Svívirðileg Svaðilför í Svíalandi


    Ljóta helvítis ástandið. Ég hef núna verið lasinn í meira en viku, og á föstudaginn fékk ég allt í einu eyrnabólgu í hægra eyrað. Djöfulli er það sárt! Ég hef aldrei fengið svona í eyrun áður og þykir það sérstaklega óréttlátt að fá svona rétt um þrítugt.
    En jæja nú í gær var sársaukinn orðinn gjörsamlega óbærilegur og ég gat hvergi komið mér fyrir eða legið, sofið, etið eða nokkuð annað. Svo ég ákveð að nú sé mál að fá læknishjálp, þetta muni ekki jafna sig úr þessu.

    Ég byrja á því að hringja í næstu heilsugæslustöð sem ég veit um, en þar er mér bent á að hringja í aðra sem sér um mitt svæði og er þar að auki staðsett nær mér. Ég hringi þangað og segi þeim vanda minn, en þá er enginn læknir á vakt þar í dag!!!! (ó bíðiði bara vinir, þetta er síður en svo síðasta skiptið sem ykkur rekur í rogastans í þessari frásögn) en ég fæ númerið hjá öðrum læknaþjónustum sem mér er bent á að prófa. Það eru þá ýmist engir eyrnalæknar við eða þá vilja þau hreinlega ekkert annast mig. Þannig að það tók mig 1 og hálfan tíma í síma að komast að því að ég neyðist til að fara á neyðarmóttökuna. Ég mátti ekki fara á spítalana af því að ég var ekki með tilvísun og hvað þá heldur er ég barn.

    -!::::: HA HA HA HA HA HA HA HA HA HA sem ég sit hér heima að skrifa þennan póst þá hringir síminn og það er símasölumaður að reyna að selja mér... SOKKA!!! tvö pör að andvirði 140 Sekr en ég þarf bara að borga 40 kr í póstkostnað!!!. Fyrir 40 kr gæti ég fengið tvö pör af sokkum að andvirði 140 inn um bréfalúguna hjá mér!! Sokkar í símasölu, nei fjandakornið. :::::!-

    Nú jæja ég kem mér niður á neyðarmóttöku. Rétt missi af strætónum, næ meira að segja að banka í hann áður en hann fer en hann fór samt, varð þá að bíða í 10 mínútur eftir næsta. Kemst þá á neyðarmóttökuna. Þar fær maður afgreiðslu í númeraröð eins og í banka, reynar fá börn smá forgang. Ég fékk númer 170 en það var verið að afgreiða númer 135 þegar ég kom inn. Engin laus sæti, nema á einhverjum ísköldum steinbekkjum meðfram veggjum. En um leið og ég sá eitt sæti losna á sófa þaut ég á fætur, hrinti gömlum konum, tróð á ungabörnum og sparkaði í hjólastóla til að ná því og fannst ég betur að því kominn einmitt þess vegna. Á þessari biðstofu beið ég í 3 tíma eftir að kæmi að mínu númeri, gjörsamlega að leka niður úr veikindum. Jæja á þessum þriðja tíma þegar númerið mitt kom til afgreiðslu var ég boðaður að afgreiðsluborði númer 2 þar sem sat þessi líka bráðmyndarlega hjúkka sem spurði mig hvað hrjáir mig og ég segi henni það og hún skrifar eitthvað niður og rukkar mig svo um 200 sænskar krónur. Biður mig svo að bíða aftur í biðstofunni þar til að nafnið mitt verði kallað upp, það gæti tekið nokkra klukkutíma. ... *?*?*?*?*?*?*

    Lengi getur vont versnað því nú varð ég að fara að sækja Benjamin í leikskólann af því að mamma hans var hjá tannlækni akkurat á meðan. En ég gat fengið hjúkkurnar til að muna mig þar til að ég kæmi aftur. En ég skönglast semsagt í gegnum Gautaborg aftur, veikari en ég hef nokkrusinni verið áður. Fólk starði á mig og kaus frekar að standa í sporvögnunum en að sitja við hliðina á mér. Þegar ég kom svo á leikskólann vorkenndu fóstrurnar mér svo mikið að þær gáfu mér verkjalyf og buðust til að klæða Benjamin fyrir mig og meira að segja að skutla mér heim. En úr því að ég var á leiðina á neyðarvaktina aftur afþáði ég rausnarleg boðin. Svo sporvögnuðumst við aftur á neyðarvaktina. Þegar við settumst þar inni var ég alveg úrvinda, en Benjamin er algjör engill og var eins góður og maður gæti best hugsað sér. Ég gaf honum bita af súkkulaðikexstöng og þá fann hann upp orðið "sjoklex". Það var þá sem ég snýtti mér og fékk fossandi blóðnasir. Þá leið mér eins og heimsins vonlausustu sál. En blóðnasirnar jöfnuðu sig fjótt og Zenobia kom að sækja Benjamin og fyrr eða síðar hlaut að koma að mér og nú var búið að kveikja á sjónvörpum svo það var hægt að horfa á eitthvað. En um þetta leyti var ég orðinn svo úrvinda að það hreinlega bara slokknaði á mér.

    Þannig að ég missti af því þegar ég var kallaður upp af því að ég steinsvaf. Svo kom hjúkka og vakti mig og sagði mér að ég hafi sofið frekar lengi og að það gæti verið búið að kalla mig upp, spurði mig að nafni og gáði að þvi hvort komið væri að mér og viti menn það var búið að kalla mig upp tvisvar. Hún lét vita að ég væri ennþá þarna og ég var þá kallaður upp næst. 6. tímum eftir að ég byrjaði að bíða á biðstofunni fékk ég loksins að fara inn í skoðunarklefa. En þar inni beið ég í þrjú korter eftir að læknirinn birtist. Þrjú helvítis korter!!!

    Svo rýkur læknirinn inn tekur í hendina á mér býður mér að setjast, kíkir í eyrað á mér, rekur spaða ofaní kokið á mér og á hlaupum út um dyrnar segist skrifa fyrir mig pensilín og bólgueyðandi. 7 tíma bið eftir 3 mínútna áhlaupi. Næstum því eins og kvennafar. Nú varð ég að bíða eftir reseptinu, en það tók ekki langa stund. Þá var bara að skella sér í apótekið og sækja lyfin.

    Í apótekinu er líka númerakerfi og ég fékk númer 656, flott númer. Nema hvað 600 var til afgreiðslu þegar ég tók miðann minn. Og engin sæti laus þannig að ég sest á gólfið og bíð í einn og hálfan tíma eftir afgreiðslu. Apotekið er í stóru verslunarmiðstöðinni þannig að ég fæ mér MacDonalds áður en ég fer heim.

    Þessu er þó ekki lokið því þegar ég kem út þá standa allir sporvagnar kyrrir og myrkvaðir, það var einhver bilun í rafkerfinu fyrir sporvagnana og þeir stóðu fastir um alla Gautaborg, Þannig að ég varð að ganga óravegu til að komast að stoppistöð þar sem strætó sem fer heim til mín stoppar.

    En að lokum komst ég heim og tók lyfin mín. Þvílíkur léttir, þið kannist við að vera í dynjandi suði og hávaða sem slokknar allt í einu og þögnin er dásamleg, þetta var sama tilfinning, nema hún náði um allan líkaman, það færðist yfir mig yndislegur friður og ég sveif á dúnhnoðra inn í draumalandið.

    Þannig lýkur frásögn minni af fyrirmyndarheilsukerfinu í Svíþjóð og enn einu sönnunargagninu um alheimssamsærið gegn mér. Ég óska þess að enginn ykkar þurfi nokkurntíman að lenda í þessu. En að vísu þykri mér þetta fyndið í dag, og meira að segja var mér farið að þykja þetta hlægilegt í gær, en þetta er einn sá fáránlegasti dagur sem ég hef lifað.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 14:25 ::

    Kennir fólki kannabisrækt
    Kannabisræktun er ólögleg en það er ekki ólöglegt að kenna fólki að rækta kannabis. Þetta hyggst Ólafur Skorrdal nýta sér en hann býður fólki upp á námskeið í ræktun kannabis.

    "Við munum halda námskeiðið á mörgum stöðum. Fólk fær ekki að vita hvar námskeiðið verður fyrr en skömmu áður en það verður haldið," segir Ólafur og segir það gert til að lögreglan sé ekki að hafa afskipti af námskeiðinu, auk þess sem þeir sem sæki námskeiðin vilji væntanlega ekki að fylgst sé með þeim. Hreint sakavottorð þarf til þess að sitja námskeiðið.

    visir.is
    ::KÍB skeit klukkan 10:23 ::

    26.1.04

    Þetta lýst mér geðveikt vel á þessa lyftu. Lets do it.

    Eyðum peningum.
    ::H.H. skeit klukkan 16:53 26.1.04 ::

    Ég var náttúrulega að reyna að finna eitthvað bull til að fylla upp í dótið sem mig langar að fá ;) Ég vil fá kláf í Botnsúlur og fullt af lyftum! Núna!.

    En í prinsippinu er bara svo fáránlegt að það sé mokað undir rassgatið á nokkrum aðilum - sem eru ekki einu sinni góðir...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:03 ::

    Djöfuls lygi...

    þetta var ekkert Gölli. Þetta varst þú og ég vildi ekki kyssa þig vegna þess að þú ert ógeðslegur. Skilaðu hnífnum mínu, þú átt eftir að meiða þig.

    Kannski við ættum að fá þann einfætta til að spila handbolta með íslenska landsliðinu í handbolta. Það er ótrúlegur ótuktarskapur að svína fatlaðan mann niður í handbolta. Spurning hvort sá einfætti gæti ekki alltaf haltrað í gegnum vörn andstæðingsins vegna þess að þeir myndu aldrei snerta hann.

    Skíðasvæði: Ok (með semingi þó). Golfvellir OK. Fótboltavellir: OK. Mótorkrossbraut: OK. Betri sundlaugar: OK (vantar þá áttundu í Rvk.?) Tennisvellir: Hvurslags píka ertu orðinn? Hvað eigum við að gera við fleiri tennisvelli? Það er ekki eins og einhver spili tennis á Íslandi. Gaddem boy.

    Og Illok iggaf þér kemur andskotans ekkert við hvað skattpeningum þínum er varið í. Davíð er búinn að segja þér þetta margsinnis.
    ::H.H. skeit klukkan 15:50 ::

    Gölturinn stelur hnífnum hans Pu
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:50 ::

    Ég vill ekkert að skattpeningarnir mínir fari eitthvað bull eins og mótorkrossbraut sem enginn nema heiladauðir typpleysingjar nota.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:47 ::

    Bolti er bull
    Hvað er alltaf verið að púkka upp á þessa handboltalúða? Svo geta þeir ekki neitt! Eigum við ekki ólympíumeistara í skotfimi? Erum við ekki að rokka á smáþjóðaleikunum? Sýna eitthvað sem við getum þó að það sé krappí.

    Annars kristallast aumingjaskapurinn í því að það kom einhver einfættur spretthlaupari hérna um daginn og rústaði frjálsíþróttamóti. "Með litlum mun..." for kræin át lád - gaurinn var einfættur!

    Ég legg til að það verði hætt að moka pening í þetta boltarugl og notað í staðinn í eitthvað sem fólk notar, skíðasvæði, golfvelli, fótboltavelli sem krakka mega nota (öfugt við í Vesturbænum þar sem KR leggur jarðsprengjubelti utan um hverja grastorfulufsu), mótorkrossbraut, tennisvelli, betri sundlaugar osfrv.

    Ef þessir gaurar væru Kólumbískir ættu þeir ekki von á góðu
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:29 ::

    Gaman í bankageiranum
    Smelltu til að sjá Plan B söluspólurSíðasta föstudag gaf Búnaðarbankinn+hið milda mannúðarfyrirtæki Kaupþing út blað þar sem þeir auglýstu meðal annars að það væri að koma nýr Netbanki í loftið, nýr vefur og netbanki á ensku. Þegar þetta er skrifað bólar enn ekkert á þessu en hinsvegar setti Íslandsbanki nýjan Netbanka á ensku í loftið sem var græjaður í kjölfar þessara frétta.

    Spurning hvort KB banki getur ekki fengið eitthvað netfang bara hjá ÍSB til að láta þá vita hvað þeir ætla að fara að gera án þess að senda það inn á öll heimili í landinu?

    Aular...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:35 ::

    Kannski ekki miðað við öfga-sjónvarpsgláp og öfga-landreksáhorf en þú verður nú að gefa okkur sem þorum ekki í öfga-fluguhnýtingar smá séns þarna Ofur Hugi Mjöðm...

    Annars hlustaði ég á Dazed and Confused live alla leiðina í vinnuna og kom samt bara inn í miðju sólóinu - var ég fljótur eða er lagið ógeðslega langt? Allavega flott!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 09:59 ::

    Ætli það fari ekki mest eftir því hvernig það er stundað...
    ::KÍB skeit klukkan 09:35 ::

    23.1.04

    Er brettarenn sem þið stundið einstaka sinnum flokkað sem x-treme sport?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:58 23.1.04 ::

    Ótrúlegir atburðir í gangi
    Kolli hafði samband við mig áðan og er skiljanlega mjög leiður þessa dagana. Ekki nóg með að hann tapi trekk í trekk í bíómyndaleiknum heldur fær hann aldrei að vera með á bretti. Kallgreyið.

    Nema hvað - nú léttist aldeilis brúnin á kallinum því að ég er búinn að finna X-treme sport fyrir Kolla - tjékk itt
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:10 ::

    Þetta líst mér vel á:

    152 nýir stólar með fagurbláum bólstruðum setum sem halda skíða og brettarössum heitum hanga nú á stólalyftunni. Öll box eru komin á diskalyfturnar svo að nú vantar aðeins ofurlítið meira af hvítu dufti.

    Skálafell
    ::KÍB skeit klukkan 15:04 ::

    Hver er þessi Skarpi eiginlega og hvar er Slugger þegar maður þarf á honum að halda?

    Refir og íslenskir fuglar hafa búið hér samhliða í 10.000 ár. Mér finnst það alltaf hálf fáránlegt þegar menn halda að við mennirnir verðum að halda hlífiskyldi yfir "vesalings smáfuglunum" sem hafa plumað sig ágætlega án okkar aðstoðar í gegnum tíðina.

    Hvað varðar tölurnar frá Áka held ég að erfiðasti parturinn sé að áætla hversu mikið tjónið yrði ef refaveiðar væru engar. Tölurnar sem hanns setur fram eru væntanlega miðaðar við hversu mikið tjónið er í dag. Eða hvað?

    Skarphéðinn Halldórsson
    hlad.is
    ::KÍB skeit klukkan 13:50 ::

    Mér finnst líklegt að veiðileyfin hækki í kjölfarið og eru þau nógu dýr fyrir!
    ::KÍB skeit klukkan 13:05 ::

    Árni Baldursson hefur tekið Arnarvatns- heiðina á leigu!
    Hvað finnst mönnum um þetta? Persónulega held ég að þetta sé óheillaspor. Einhverjar áætlanir eru um að bæta samgöngur og svo sem er ég ekkert að kvarta yfir því þrátt fyrir að partur af sjarmanum er hversu erfitt er að komast þangað. En ég held að það sé ekki spurning um að leyfin eiga eftir að hækka og ef aðgengið verður betra og jafnvel settir upp skálar þá getum við verið að horfa á svipað dæmi og er á veiðivötnum.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:54 ::

    Hahahah, þetta er ein besta tilvitnun sem ég hef heyrt:

    Ég er sæll........ Þú gætur sjálfur verið kelling
    Remington


    Hún kemur sterkt inn á eftir:

    Ég er sammála Slugger!
    ::KÍB skeit klukkan 10:51 ::

    Meeeeeeen, íslenskir refaveiðimenn eru óborganleg skemmtun!!!


    "Eg er sæll........ Þú gætur sjálfur verið kelling
    Já það er kanski ekki skrítið að þú skrifir sem þú sért ekki herna. Heldur kanski að það sé einginn sem þekkir þig.
    Það er ekki nó að gorta sig af því að vera að skrifa á netið undir þessu nafni og kanast svo ekkert við það þegar á hólminn er komið............"


    Ég held að það sé svo sannarlega pláss fyrir dissvef fyrir íslenska refa- og minkabana!!!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:19 ::

    22.1.04

    Kolli Halti sýgur enn SP í bíóleiknum
    [...] says: Evil will always triumph becaus good is dum!"
    DR. Jóli says: jamms
    [...] says: veistu hver sagði þetta bíóleiksfaggi?
    [...] says: EKKI LEITA Á NETINU FAGGI
    DR. Jóli says: nei ég veit það ekki
    [...] says: So, Lone Star, now you see that evil will always triumph because good is dumb
    DR. Jóli says: hmm
    DR. Jóli says: ekki hugmynd
    [...] says: aumingi
    [...] says: dark helmet sagði þetta
    [...] says: fattaru ekki enn?
    DR. Jóli says: éttu skít
    DR. Jóli says: spaceballs
    [...] says: hehehe
    [...] says: þú ert ekkert smá lélegur í bíóleiknum
    DR. Jóli says: það er ekkert hægt að koma með einhverja ófræga setningu úr frekar slakri mynd
    [...] says: þetta er fræg setning úr snilldarmynd
    DR. Jóli says: ok eitt auðvelt
    DR. Jóli says: the chances of anything coming from mars is a million to one
    [...] says: þetta er úr war of the worlds
    [...] says: but still they come...
    DR. Jóli says: jamms
    [...] says: hehhe
    [...] says: ég = snillingur
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:05 22.1.04 ::

    Löggan fláir ekki feitan gölt
    Í greininni var líka talað um að beina föngunum frekar í venjulega líkamsrækt til að auka styrk og þol. Ergó: þegar fangarnir brjóta næst af sér eiga þeir að stinga lögguna af (á hlaupum) þegar hún kemur í staðinn fyrir að búffa hana.
    ::KÍB skeit klukkan 14:23 ::

    Gaui litli stingur engan af á hlaupum
    Ég fór að pæla í fangelsismálum eftir að hafa lesið þessa frétt. Málið er að dönum finnst ótækt að fangar séu að koma í góðu formi út úr fangelsum. Þeir vilja endilega banna lyftingar í fangelsum og jafnvel reyna að koma á einhvern hátt í veg fyrir að fangar séu að pumpa eftir að þeir yfirgefa fangelsin. Mér skilst á greininni að nú sé miðað við 50 kg.

    Mökkspikaður má sín lítils
    Reyndar held ég að það hljóti að þurfa að setja mun fleiri takmarkanir. Þannig er ótækt að fangar séu að lyfta 50 kg með bísepp, þeir geta orðið alltof massaðir á því. Á hinn bóginn er kannski ástæða til að leyfa hlutfallslega aðeins meira í hnébeygju t.d. 100 kg. Einnig tel ég rétt að það sé sérstakur lóðavörður sem myndi fylgjast með þessu. T.d. "Hei - ekki vera að nota hnébeygjulóðin á stöngina - ertu ekki að taka kassann? Lyftingaþrjótur!" Svo gætu þeir skemmt sér við tilheyrandi barsmíðar á fanganum, fangaverðirnir gætu þá kannski tekið 70-80 kílóa sett í bekkpressu og fanginn ætti engan séns.

    Sekkurinn hreyfist ei skjótt
    Svo er þessi bannhugmynd náttúrulega helvíti snjöll. Ef við myndum ekki bara banna líkamsrækt í fangelsinu heldur breyta matarræðinu líka í leiðinni væri hægt að leysa mörg vandamál. Ég sá einhvern tímann megrunarkúr sem hét "Face it". (Í Pondus minnir mig). Hann var stór askja með litlum miða inní sem stóð á "Éta minna - hreyfa sig meira". Ef við snúum þessu við verður strax ljóst að með því að banna æfingar er aðeins hálfur sigur unninn.

    Svínið þrífst á sykri
    Ég legg því til að fangar fái bara snakk og kók og nammi að borða. Í morgunmat verður kókómjólk og snúðar, homeblest og kókómjólk í morgunkaffinu, beikon og spælegg með sírópi í hádeginu og nóg af nammi og snakki milli mála. Svo koma þessir gaurar hlunkfeitir út úr fangelsi, leggjast upp í sófa og panta spólu og pizzu. Ekkert mál.

    Í leiðinni leysum við líka mörg samfélagsleg vandamál á borð við steraneyslu, íþróttameiðsli, húðkrabba vegna ljósabekkja, FM verður lögð niður og einnig staðir á borð við Pravda, NASA og Felix. Losum okkur við hvítt hyski í fjötra sjónvarpsgláps og offitu - ultimate fangelsið!

    Annars hélt ég að þetta væri vandamálið ekki lyftingar...?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 14:01 ::

    ...ég á ábiggilega eftir að seifa þetta...

    Ranger
    veidi.is
    ::KÍB skeit klukkan 10:19 ::

    Magnaðar upplýsingar frá þessum Ranger.
    ::KÍB skeit klukkan 10:14 ::

    Fyrir þá sem hafa áhuga á Tungná/Tunguá/Tungá þá er smá umræða um hana á Veiði.is núna...
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:52 ::

    21.1.04

    Kári er listrænn í kvikmyndaleiknum. Sauðir eins og þú skilja ekki æðri list. Ég las umfjöllun um þennan kvikmyndaleik á virtri síðu á netinu og eins og þið vitið þá lýgur internetið aldrei. Um Skötuna er sagt:

    "Skatan er ofurnákvæmur í endurgerð sinni á þekktum kvikmyndum frá Hollywood og Evrópu. Afarskemmtileg var endurleikur hans á rússnesku myndinni Orustuskipið Potemkin sem jafnframt varpaði skýrari ljósi á samkynhneigð skipverja á dögum fordæmingar á samkynhneigð. Þrátt fyrir mikla nákvæmni í endurgerð þá dettur Skatan ekki í þá gryfju að apa beint upp eftir kvikmyndum. Í hverri endurgerð er að finna endurtekið þema sem er mjög persónulegt fyrir Skötuna. Takið eftir því í næstu uppfærslu Skötuna hvernig allar persónur greiða framan úr sér hártopp. Með þessu er Skatan að segja að persónan er ég og ég er persónan."

    HSP mun aldrei skilja það sem liggur að baki góðum Kvikmyndaleik enda er hann lélegastur í Kvikmyndaleiknum.
    ::H.H. skeit klukkan 16:33 21.1.04 ::

    Göll er enginn Vúlkani
    Röksemdafærsla Gölla er alveg með ólíkindum. Ég fæ ekki betur séð en að hann sé að hommkenna mig á hinn versta hátt. Ég vona bara að í framtíðinni munii hann hætta að opinbera þessar slímugu fantasíur hérna á þessum vettfangi heldur halda þeim fyrir sig. Þar sem Gölli er búinn að vera fabúlera um Pepp hérna í tíma og ótíma er hann greinilega ástmaður hans og að auki er það óvéfengjanleg staðreynd að hann er haltur og samkvæmt mínum kokkabókum þá ætti það að vera hann sem er nefndur Halti Gölli Pepp.

    e.s. Þessi kvikmyndaleikur var riggaður, Kári lék bara fáránlega heimskuleg atriði og þið svindluðuð. Ég er og mun alltaf vera meistari í kvikmyndaleiknum.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:40 ::

    Ef faggar eru bannaðir í Noregi afhverju er þá Gro-Harlem Bruntlandt ekki rekinn úr landi, eða er hann kanski bara klæðskiptingur?
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:28 ::

    HAHAHAhahahaha..... og þið hélduð að ég væri í Noregi!!!!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:53 ::

    Nei, Stiga er sænskt vorumerki og er bannað í Noregi. Svo ertu líka faggi og þeir eru bannaðir í Noregi.
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:46 ::

    Önnur góð saga af Halta Steina Pepp.

    HSP var í góðu gríni í íbúð aumingjans án konu ásamt Hýenunni, Skötunni, Ingu og undirrituðum. Þar var farið í leik sem heitir Kvikmyndaleikurinn. Eins og allir vita þá hefur Hýenan og HSP verið ókryndir og marggagnrýndir meistarar leiksins. Svo var ekki umrætt kvöld. Hýenan var að sjálfsögðu í því að rúlla andstæðingum sínum upp en HSP gat ekki neitt. Tapaði og tapaði og tapaði. Gat eina mynd og svo var ekki meir. Aðrir hlógu mikið af HSP fyrir þetta og þá aðallega Hýenan sem þrátt fyrir það reyndi að hafa kvikmyndirnar auðveldar svo að HSP gæti nú unnið aðeins. Svo var ekki. Kvöldið er skráð á spjöld sögunnar.

    HSP er sem stendur lélegastur í Kvikmyndaleiknum og hefur því tekið titilinn af Gölla.

    e.s. Hver vitnar í framleiðanda varðandi ágæti vöru? Er ekki venjan yfirleitt að vitna til óháðs aðila.

    e.e.s. Ef ég á snjóþotu má ég þá koma með? Þetta er Stigasleði. Gengur það á norsk fjöll?
    ::H.H. skeit klukkan 14:39 ::

    Grínsögur Gölla
    Jæja kæru grísir - hér kemur ein stutt saga. Ekki er það nú grínsaga í þetta skiptið því að hún er sönn.

    Þannig er mál með vexti að Mjöðmin hefur nafngift eina er hann vill eigi að fari hátt. Hann er ætti nefnilega með rentu að vera nefndur Halti Steini Pepp með sömu rökum og vinur hans var kallaður Halti-Bingó hér um árið.

    Merkilegur déskoti!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 13:02 ::

    20.1.04

    Flagð undir slímugu skinni
    Bragð galtarins virðist hafa heppnast. Hann tekur niður Vonlausa í skjóli nætur í nokkra daga, þykist vera í vandræðum og lætur síðan sem svo að hann hafi borgað einhvern pening. Þetta fólskuverk var þó ekki unnið með það að markmiði einu að féfletta Vonlausa þótt það sé þægileg aukaafurð fyrir göltinn heldur er þetta aðallega unnið til þess að öðlast virðingu og skipa sér á hærri stall, þ.e. sýna hver fer með völdin. Þessvegna er sorglegt að sjá hvernig menn glepjast og óhugnalegt að sjá hvernig Pu hyllir fyrrum fjandmann sinn í blindri trú og krýpur á kné. Sem betur fer fyrir ykkur aumu pervisnu dauðlegu verur þá er ég hér til að vaka yfir ykkur og leiðbeina ykkur hverjar hættur internetsins geta verið. Ú á Gölla.

    e.s. Krummi, þú ert heimskur aula dobbúlversion slefberi. Verri afbökun á afbragðs brandara sem ég samdi hefur ekki sést.

    e.s.s. Brettafréttir eru hér með bannaðar, þið getið stofnað www.brettaaumingjaroghommar.org og rúnkað ykkur yfir þessu þar.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 21:13 20.1.04 ::

    Brettafréttir
    Kolli, augaðu í potið á þér.

    Nú er ég orðinn stoltur eigandi Nitro Naturals 161 '03 (síðasta season). Framleiðendurnir segja meðal annars:


    FROM THE WHISTLER BACKCOUNTRY TO CHAMONIX, THE NATURALS ARE THE PROVEN STANDARD FOR HIGH-END BOARDS. A BOARD FOR RIDERS WHO WANT SOMETHING AGGRESSIVE THAT CAN HANDLE A VARIETY OF TERRAIN. THE NATURALS ARE PACKED WITH LOTS OF CAMBER, ARE STIFF ENOUGH TO HOLD AN EDGE AT SPEED AND WON?T FOLD UP ON BIG LANDINGS.



    Skabbs og Kaur festu líka kaup á sama/svipuðu bretti, enda er það umboðsmaður Noregsdeildar brettaarms Vonlausa, Fabían, sem græjaði þetta fyrir okkur.

    Brettaferð
    Brettaferðir Vonlausa verða endurvaktar í vetur og er planið að húkka upp í Osló 28. feb. Í reisuna mæta Skabbi frá Noregsdeildinni, Retro frá Spánardeild, Kári frá Leiserbímdeild og Scweppes, Ása og Anna frá Íslandsdeild. Stefnan er sett á snilldarsvæðið Hemsedal [1], [2], og svo verður hugsanlega kíkt á Åre í framhaldinu. Bæði svæðin eru á lista yfir 100 bestu í heimi.

    Labels:

    ::Hívatha litli skeit klukkan 19:18 ::

    Gleði enn á ný. Gölli er frelsari vonlausa. Sverð vefsins og skjöldur. Ef allir væru eins og hann. Þá væru allir stelpur á túr og nema ég sem væri einhverskonar brjóst sem skoppaði og hoppaði. Eflaust dásamleg veröld.
    ::H.H. skeit klukkan 18:32 ::

    Kolli er vissulega undirförul píka hvers orð eru einskis virði, og hrósa ég gölla fyrir spaklega mælt orð.

    Mig langar reyndar að koma hér með stutta frásögn af Kolla, eða öllu heldur af henni Maríu hans Kolla, en verið óhræddir, Kolli kemur hér mikið við sögu.
    Málið er að María var um daginn í vinnunni eins og endranær og var að fá sér að borða og sat því frammi við dyr Bóksölu Stúdenta. Skyndilega sá hún Kolla þar sem hann var, undarlegt nok, klæddur í krumpuð jakkaföt að tala við mann með míkrafón í hendi og við hlið þess manns stóð annar maður sem hélt á risastórri myndavél. "Hvur andskotin" hugsaði María, "Kolli er í viðtali. Hvers vegna í andskotanum er Kolli í viðtali?".
    María veifaði til mannsins síns, en hann tók ekki eftir neinu og hélt áfram að tala við myndavélina svo Marían okkar varð hálf pirruð og fór að hrópa á hann með nafni. Kolli tók ekki eftir neinu þar til María varð svo fúl að hún óð til hans þegar myndavélin fór niður, greip í bindið á honum og gargaði: "Ertu blindur mannfjandi?"
    María var fljót að sleppa greyið manninum því að hún fattaði skyndilega að þetta var ekki Kolli heldur Gunnar Birgisson.

    Mórall sögunnar er sá að Kolli er ekki bara nauðalíkur Gunnari, þeir eru báðir undirförular píkur hverra orð eru einskis virði.
    ::Mósagrís skeit klukkan 17:47 ::

    Jæja kæru faggar. Eftir miklar tilraunir til að finna hugbúnaðarstuldartól á möskvum alnetsins játa ég mig sigraðan. Prófaði tvö lyklagerðadorrit en hvorugt virkaði. Á endanum keypti ég bara helvítis serverinn á 2.415 kr. íslenskar eða $ 34,95. Græðum smá þar vegna hagstæðs gengis.

    Nema hvað - hefjum þetta nýja og hugrakka tímabil í sögu vonlausa.org með orðunum: "Kolli er undirförul píka hvers orð eru einskis virði!"
    ::Hívatha litli skeit klukkan 17:20 ::

    Svenni píka, lagaðu FTPið
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:10 ::

    19.1.04

    O, af hverju fylgja ekki myndirnar til að skoða vandlega með stækkunargleri?

    Mér finnst að Kolli og Krummi ættu að bjóða Erlingi Gunnarssyni að vera með í Star-Trek klúbbnum sínum.
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:05 19.1.04 ::

    Ég skil ekki seinasta blogg hjá höfðingjanum Sveppa. Það er u.m.þ.b. jafn heimskulegt og þetta og ég eindregið hvet menn til að lesa þessa grein.
    ::H.H. skeit klukkan 11:15 ::

    16.1.04

    Ég veit að ég er ekki stelpa en ég fer samt á túr

    -Addi
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:44 16.1.04 ::

    Híum á alla aumingja, sérstaklega menn um fimmtugt sem hefur verið sagt upp í stjórnunarstöðum. Þeir eiga ekki séns að fá sambærileg störf og eru sjaldan ráðnir í vinnu yfirleitt. Þeir eiga þetta skilið í þessum hagvexti.
    Hyllum konung allra banana. "Áfram Davíð."

    -gaur.
    ::H.H. skeit klukkan 11:25 ::

    Þeir sem eru atvinnulausir í svona hagvexti eiga skilið að vera atvinnulausir

    -Gaur
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:48 ::

    Kíki jafnvel bara við. Annars styð ég það að anal-próba alla kana sem koma hingað í þakklætisskyni fyrir móttökurnar sem við fáum þessa dagana í USA. Böddi félagi er alltaf tekinn í gegn þegar hann kemur út, er mjög mikið á ferðinni. Hérna heima er hann nógu fínn til að éta með Óla Ragga og Forrit en úti segja þeir bara "You fit a profile".

    Leyfum þeim að smakka meðalið sitt...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:23 ::

    15.1.04

    Herra Snakkviti býður heim til sín á morgun.

    Kolli vildi fá rauðvínskvöld með ykkur ræflunum. Og það fær hann svo sannarlega. Mæting heima hjá mér annað kvöld. Látið heyra í ykkur ef þið ætlið að mæta. Nenni ekki að sitja einn uppi með ofdrykkjumanninn.
    ::H.H. skeit klukkan 15:47 15.1.04 ::

    Brassarnir eru að fá mörg rokkstig núna, það er skynsemi að gera alvarlegar varúðaráðstafanir við landið þar sem mesta hættan er að hryðjuverkamenn komi úr. Ameríski flugmaðurinn var bara fúll yfir því að komast ekki í fátækarhverfi borgarinnar til að kaupa sér litla drengi. Því eins og allir vita þá eru amerískir flugmenn pervertar.

    Spurning er að koma Anton á svartan lista hjá Homeland Security stofnun BNA. Þá verður hann tekinn í gegn.
    ::H.H. skeit klukkan 13:36 ::

    Djöfull þoli ég ekki Anton.

    Keyptum einhvern skáp í Ikea í gær og það virðist vera eitthvað dæmi í gangi, 500. hver viðskiptavinur fær eitthvað sem er hrikalegt bögg að setja saman. Venjulega er þetta nú þægjó. Milljón tréskrúfur sem er ekki hægt að koma borvél að og fleira skemmtilegt. Var orðinn illa pirraður á tímabili. Var að spá í að drepa Tona...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:22 ::

    O, ég vildi að íslendingar væru með jafnstóra kahúnas og Brassar. Og þá er sírnir undanskilinn..

    Kanar eru sekkir en Brassar massar
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:01 ::

    14.1.04

    Sindri má líka ekki koma með því það er bannað að veiða með maðk.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:44 14.1.04 ::

    Gölturinn er vangefinn og Pu er snakkviti
    Drjólaskylmingar verða óþarfi, það verður úthlutað samkvæmt virðingaröð. Gölli og Pu mega sem sagt ekki vera með. Þeir mega þó skylmast saman að vild, enda er ekki auðvelt að segja þeim að láta af þeirri iðju.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:31 ::

    Ekki gott (via Retro)
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:54 ::

    Nýtt rúm.

    Keypti mér nýtt rúm í gær og það er ekkert snakk í því. Ekki meira í ekki-fréttum hjá mér.

    Gott framtak að kaupa tvær stangir og láta menn berjast um þær. Typpaskilmingar verða kannski ekkert sérstaklega spennandi í þessum hóp. Er það góð hugmynd að láta tvo menn sem hafa barist með tittlingnum á sér fara síðan eina afsíðis með veiðstöng. Aðeins Kolli og Gölli geta svarað þessu.
    ::H.H. skeit klukkan 15:44 ::

    Sælir sekkir til sjávar og sveita!

    Þá er Thrándurinn kominn á fulla ferð í kulda og skít í fyrirheitna landinu. Af mér er náttúrulega ekkert að frétta, er strax orðinn skítblankur og enginn býður mér að leika hænu mér til framdráttar. En ég bið spenntur eftir að sjá Gírni allsberan með gúmmíhanska á hausnum utaná "Journal of Artsy Fartsy Freaks"

    Ein smurning til vefstjóra; stendur til að setja dissvefsgluggann inn á Vonlausa aftur? Það var mjög sneddí fanst mér.

    Og hér með kunngjörist að VV hefur fest kaup á tveimur stöngum í Tungá þann 13 júlí næstkomandi. Útsláttarkeppni í typpaskilmingum mun skera úr um hverjir það verða sem manna þessar stangir. Sem betur fer er Stefán Jónsson ekki í Vonlausa....
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:55 ::

    Cool hugmynd en ekki alveg nógu vel útfærð:
    Mynthon-Basketball
    ::KÍB skeit klukkan 10:54 ::

    Af hverju var Sindri í fjórhjólaferð með Eskimós?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:44 ::

    Snilldarhugmynd, næsta skref er að hafa þetta innbyggt í iPod og öðrum MP3 spilurum.
    Hópurinn hefur hannað kerfi sem gerir notendum kleift að leita að tónlist í gagnasöfnum með því að söngla, flauta eða syngja brot úr laglínu.
    Frétt á vef HÍR
    mbl.is
    ::KÍB skeit klukkan 10:08 ::

    Þessi gaur fór að drekka 3 bjóra á dag sem líkamsþjálfun - virkar fínt sýnist mér...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:02 ::

    Húff - hrikalegt að vera með svona huuuuuge melónu...

    Smelltu til að skoða stærri melónu
    ::Hívatha litli skeit klukkan 00:59 ::

    Óvissuferð
    Á laugardaginn var óvissuferð í vinnunni. Keyrt var sem leið liggur upp í Skorradal. Þar var farið á fjórhjól (pörin þurftu að tvímenna á hjólin sem var í góðu lagi mín vegna þar sem Linda kom ekki með) og keyrt yfir allt sem á vegi okkar varð. Þrátt fyrir full mikinn halarófuakstur á köflum fengum við að spretta úr spori seinni hluta ferðarinnar, við fundum líka ísi lagða tjörn þar sem spólað var í nokkra hringi (verst að Skorradalsvatn var ekki alveg frosið annars hefðum við tætt út á það). Eftir nokkra hópeflisleiki var farið í sund, spilað sundblak og drukkinn bjór í pottinum. Að lokum enduðum við í bænum þar sem var etið og drukkið fram eftir kveldi. Gríðarlega hressandi dagur!

  • Myndir á Aski

  • Fjórhjólaferðir Eskimós
    ::KÍB skeit klukkan 00:55 ::

    Hmm - ertu í alvörunni svona heimskur eða er loftið bara svona þunnt þarna uppi?
    Híhí - það myndi nú enginn falla fyrir þessu nema þú eftir allan þennan tíma. En jæja, hvað gerir maður ekki til að fá smá líf í vonlausa.

    Og btw. Kári er algjör faggi - múhahaha
    ...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 00:51 ::

    13.1.04

    Þú veist ekki einu sinni hvað úlfaperri er og ert alltaf að blanda móður minni í þetta. Ég hreinlega skil ekki svona hegðun, hver fjandan gengur að þér maður. Kanntu þér ekkert hóf, svín. Þú lætur kjaftinn á þér vaða yfir allt, hugsar þú ekki heila hugsun. Það með ólíkindum drulludelahátturinn og lydduskapurinn í þér geti ekki séð móður mína fyrir utan skítkast á mig. Fyrir utan það þá myndi móður mín snúa litla aumingja eins þig niður í orðaskaki. Alltént þá getur þú skriðið aftur ofan í þá holu sem þú skreiðst upp úr. Sú hola er eflaust sjálfskaparvíti þitt því enginn er það mikil ræfill að geta búið til jafn ömurleg hugafylgsni og búa innra með þér horgemlingur og kolabítur.
    ::H.H. skeit klukkan 17:50 13.1.04 ::

    Hmm - þessi viðbrögð sýna svo ekki verður um villst að þú ert bölvaður úlfaperri og mamma þín er greinilega jafn sjálfhverf og 400 nýgráður.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 16:31 ::

    Heilagur Serðandi Kúkur!
    þetta er það sem mér er svo boðið í skólanum úti!!!!

    SU-EN BUTOH COMPANY WORKSHOP INFORMATION

    THE CHICKEN PROJECT
    This workshop and performance project is open for anyone interested to live as a chicken.
    You will be instructed by SU-EN in the basic condition of the chicken according to the butoh method of SU-EN Butoh company.

    Smelltu til að stækka mynd


    Deadline for application is March 8. Priority is given to people who have worked with
    SU-EN before or people with a special chicken interest. No dance experience is needed but be prepared for very hard physical and mental work!  10 participants will be selected from the applications.

  • DATE: April 7-11, 2004
  • PLACE: Kulturhuset, Stockholm
  • COST: 500 SEK to be paid when you have received confirmation of your participation
  • ACCOMODATION/TRAVEL: at own expense

    PROJECT SCHEDULE:
    April 7 - 9, workshop, intensive studies of chickens and birds
    April 10 - 11, public event at Kilen, Kulturhuset, Stockholm
  • ::The Satan of Death skeit klukkan 16:27 ::

    Enni er matur!
    loxins er farið að kenna eitthvað af viti í háskólanum

    Efna- og eðlisfræði flugelda (13.01.2004)


    Málstofa efnafræðiskorar er á föstudag, 16. janúar 2004 kl. 12:20 í stofu 158, VR II, Hjarðarhaga. Ágúst Kvaran flytur erindið: "Efna- og eðlisfræði flugelda".


    Ágrip: Skyggnst verður í samsetningu og verkan flugelda af ýmsu tagi: Hvað gerist frá því að kveikt er á flugeldi og þar til stjörnur hans birtast? Hvað drífur flugelda á loft? Hvernig myndast stjörnurnar? Hvað ræður lit stjarnanna? Hvernig verka stjörnugos? Hver er samsetning stjörnublysa og hvernig verka þau? Leitað verður svara við þessum og fleiri spurningum með hjálpartækjum efna- og eðlisfræði.
    ::The Satan of Death skeit klukkan 16:21 ::

    Skítugi rassapi. Rakaðu á þér rassinn á éttan sjálfur. Fjandans attaníhossi að tala illa um móður mína. Móðir mín er frábær. Þú ert fokking ömurlegur og allt sem þú gerir er ömurlegt. Það er kúkalykt af þér og þú kannt ekki neitt.
    ::H.H. skeit klukkan 16:17 ::

    Þú ert ömurlegur, MAMMA ÞÍN ER ÖMURLEG!
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:47 ::

    Jamm. Ég er latur, nenni ekki neinu. Man ekki neitt heldur. Ömurlegt líf, ömurlegt blogg.
    ::H.H. skeit klukkan 15:40 ::

    Letingjar
    Jæja - þið eruð svo suddalega latir að skrifa að ég ætla að posta hérna dóti sem ég rakst á hjá eoe.is.

    Helvíti fyndin samkeppni hérna, Bush á þrjátíu sekúndum. [1] [2] [3]
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:21 ::

    Kaffari
    Kíktum á Ölstíu Kormáks og galtar í gær. Kobbi, Sirri, Graðni, Kaur, Inga og ég mættum. Náðum alveg góðum 3 bjórum þar. Sem er mjög gott. Tékkuðum á myndunum síðan í tollaprattíinu hans Gára. Þurfum að koma þeim í loftið, megafyndnar. Survivor my ars - man ekki eftir að þau hafi étið sporðdreka...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:21 ::

    Alltaf lærir maður eitthvað nýtt:
    Einnig segir hann [Logi Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri skíðasvæðanna hjá ÍTR] stórhættulegt þegar brettafólk kemur með handskóflur til að útbúa eigin palla hér og þar í brekkunum án þess að nokkur viti af þeim.
    mbl.is
    ::KÍB skeit klukkan 08:55 ::

    12.1.04

    Helgin
    Eftir (Steina) peppfund sem vinnan hélt milli 5 og 7 á föstudaginn baunaði ég út í Gróu og tók til smá drazl. Stefnan var sett í Bása í Þórsmörk. Ferðin inneftir var frekar viðburðalítil, stoppuðum á Selfossi til að kaupa lottó (sem ég vann ekki í og er BRJÁLAÐUR).

    Eftir miklar tilfæringar komst SÓLÓ olíukyndingin loksins í gang og eftir smá miðnætursnarl var skriðið í djúsí dúnpoka og farið að sofa.

    Mental note: Ekki segja öllum frá tannkremsreglunni. Ég er búinn að vera of graður að monta mig af því hvað er sniðugt að vera afæta í tannkrem, nammi og allskonar dót sem fólk kemur með nægt handa öllum af í útilegur. Núna er þetta orðið vandamál. Ég vona að ég neyðist ekki til að fara að kaupa tannkrem í framtíðinni.

    Fimmvörðuháls
    Stefnan var sett yfir í Skóga. Leiðin nefnist Fimmvörðuháls. Held að það dragi nafn sitt af 5 vörðum sem liggja upp að Útivistarskálanum. Veður þarna verða svo geðveik að gamli skálinn þar sprakk fyrir ca. 10 árum (segir sagan). Enda er loftmassi þarna að streyma í gegnum trekt, skarðið ýtir honum upp, loftið yfir niður, Eyjafjalla- og Mýrdalsjöklar þrengja að. Því er þetta algjört veðravíti. Af nat.is:

    Leiðin frá skála Útivistar í Básum (Þórsmörk) yfir Fimmvörðuháls til Skóga er 22-24 km. Uppi á hálsinum er nýlegur skáli Útivistar, þannig að hægt er að skipta göngunni milli tveggja daga, 5 klst. hvorn dag. Leiðin er vel stikuð, en bæði slóð og stikur hverfa í snjó efst. Nauðsynlegt er að vera vel búinn, því allra veðra er von. Árið 1970 urðu illa búnir göngumenn úti á hálsinum.


    Síðast þegar ég fór þetta, í júlí 2001 var ég 5 1/2 tíma með 15 mín. stoppi. Nú var færið öllu þyngra og tók allt lengri tíma. Gengið í stífum skóm (broddar skyldubúnaður á þessum árstíma), meira dót í bakpoka (skófla, snjóflóðastöng, ísöxi, talstöð ofl.), skyggnið var ekkert yfir hálsinn og færð ansi þung.

    Upp úr Mörkinni og upp Kattarhryggi vorum við í púðri upp að hnjám og hafði frosið skán ofan á því sem maður brotnaði niður úr. Hrikalega þreytandi. Eftir að við kliruðum Kattarhryggi léttist færðin aðeins. Stutt nesti við Heiðarhorn (minnir mig) og síðan er brekka upp á Morinsheiði. Nafnið er alveg eins og beint úr LOTR. Ég heyrði óma í hausnum á mér þar sem maður horfði upp eftir snævi þöktum tindunum sem við áttum eftir að klífa "let's go through the mines of Moria, my cousin Balin will give us a royal welcome", og skyndilega hljómaði ekkert sérstaklega illa að taka neðri leiðina. Laus við snjó, kulda, brekkur og leiðindi. Skildi þessa ákvörðun föruneytisins miklu betur.

    Síðan tekur við Brattafönn upp á Heljarkamb. Hún er nú ekkert sjúklega brött en djöfull skildi ég nafngiftina. Þessi brekka var ferlega strembin. Veðrið var orðið mjög leiðinlegt og við vorum óratíma að mér fannst að drullast þarna upp.

    Síðan tók við labb eftir GPS og leit að stikum sem voru á köflum fenntar í kaf, þrátt fyrir að vera margar 3 metrar á hæð. Eftir alltof langt brölt í nýsnævi, brjótast gegnum hengjur, detta niður hengjur sem maður sá ekki vegna snjóblindu og fleira skemmtilegt sáum við rofa til í smá stund og framundan blasti Baldvinsskáli við (öðru/réttu nafni Fúkki). Settumst aðeins inn í nestispásu en nú var orðið áliðið og þurfti að drífa sig niður. Leiðin minna en hálfnuð í kílómetrum en reyndar meira en hálfnuð í tíma.

    Röltið niður Skógamegin var tíðindalaust, fylgdum stikunum á veginum eftir megni. Komum í Skóga um sjöleytið, 8 tímar og 40 mín í vetrarfæri og leiðinda skyggni. Allir sáttir við það. Síðan beint á Gallerý Pizza á Hvolsvelli. Tókum nokkra bjóra heima um kveldið.

    Fór að sofa kl. 04 um nóttina, Ása rak mig svo á lappir um morguninn, smá P-tex í brettið eftir grjótrennsli síðustu viku og síðan upp í Bláfjöll í prýðilegt rennsli. Vorum þar í 5 tíma þangað til öll orka var búin. Fín helgi

  • Myndirnar
  • Úlli að labba frá Skógum upp í skála - m.a. mynd af Fúkka
  • Sami úlli að labba áfram upp á hálsinn - flottar panórama myndir - ég hef aldrei séð reizgeit þarna
  • Úllinn röltir í Þórsmörk, töff mynd af Morinsheiði og Kattarhryggjum
  • Kort af leiðinni (löbbuðum reyndar veginn síðasta spottann)
  • Leiðarlýsing hjá Útivist
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:58 12.1.04 ::

    9.1.04

    Grenjar yfir grautnum sínum,
    grályndur mjaðmarfjandi.
    Snakki dreifir yfir dýnum,
    dreginn áfram í bandi.
    ::H.H. skeit klukkan 14:48 9.1.04 ::

    Frábær þýðing á orðinu fantur í íslensk-ensku tölvuorðabókinni:
    fantur = storm trooper; scoundrel; ruffian; rogue; rascal; rapscallion
    ::KÍB skeit klukkan 13:04 ::

    Fantar af fanta er fantagott fyrir fanta
    Þá set ég eitur í grautinn, teiknbólur í stólana og myl snakk í rúmið.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:44 ::

    Þú getur bara sjálfur lyktað af kúkafýlu, fanturinn þinn. Þú ert bara með nefið of nálægt munninum á þér. Ég kem bara í heimsókn þegar mér sýnist og þegar ég kem þá ætla ég að borða allan grautinn þinn, setjast í alla stólanna þína og sofa í rúminu þínu. Hlægja síðan af þér þegar þú ferð að skæla. Skilaðu mér síðan eignum mínum, rassapi.
    ::H.H. skeit klukkan 11:49 ::

    8.1.04

    Sindrandi kalkúnagos og NHS
    Þrátt fyrir að þið séuð ekki húsbóndar á ykkar heimilum þá er ég húsbóndinn á mínu og ræð hvað ég geri í mínum fríum. Reyndar er það frekar spúkí að Pu er ekki húsbóndinn á sínu heimili.
    Ástæðan fyrir heimsóknarleysi Pu heim til mín er nú bara vegna þess að hann er ekkert velkominn inn fyrir mínar dyr vegna þess að hann angar af kúkafýlu.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:07 8.1.04 ::

    Kolli verður bara feitari á því að liggja heima hjá sér. En ég er sammála Dindra, njóttu þess að eyða peningunum okkar. Þú átt eftir að hugsa okkur þegjandi þörfina þegar við nennum ekki að koma í heimsókn og glápa á sjónvarpið með þér vegna þess að þú og allt húsið angar af kúkafýlu. Muhahahahaha

    Hversu ægilega vangefinn þarf maður að vera til að kaup þetta?
    ::H.H. skeit klukkan 16:36 ::

    Það var ekkert, njóttu vel. Ég hef það samt á tilfinningunni að þið María hafið mismunandi hugmyndir um hvað þú sért að fara gera í fæðingarorlofinu.
    ::KÍB skeit klukkan 16:03 ::

    Gírnir er úlfaperri
    Þegar ég fer í fæðingarorlof þá mun ég fá laun fyrir að sitja á rassinum heima hjá mér og horfa á vídjó. Ég vil bara þakka ykkur fyrir að láta ykkar skattpeninga renna í minn vasa. Reyndar finnst mér algjört svindl að fá bara 80% af launum. Það er eiginlega algjör þversögn þar sem nú mun ég þurfa að meiri peningum að halda þannig að ég ætti að fá svona 120% af launum í fæðingarorlof, það væri sanngjarnt.
    ::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:19 ::

    Jójó kjéllingar
    Hvað er planið um helgina? Gúddbæ kaffi fyrir Spunge í kveld? Eða eruð þið bara fangar sjónvarpstækisins, heklið og saumið bútasaum meðan horft er á Bachelor og Sirrý?
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:56 ::

    7.1.04

    Brettafréttir (Kolli, potaðu í augað þitt)
    Kíkti í Mt. Blue í gær. Þar voru eiginlega bara fínar aðstæður, þokkalegt skyggni mestan tímann og hart færi undir með aðeins mýkri snjó ofan á. Bara fínt að renna sér.



    Maður gat neglt fram af öxlinni og krúsað mjög hratt niður með viðkomu á 2 litlum pöllum. Ansi fínt. Svo fengu starfsmenn Bláfjalla óvænt rokkarastig, þeir eru nú venjulega mjög súrir, þegar þeir héldu smá flugeldasýningu. Geggjað að sitja í stólnum og horfa á þetta í gegnum smá skýjahulu, mjög súrealískt.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:37 7.1.04 ::

    6.1.04

    Gæsaveislan var um síðustu helgi, þú misstir af henni og við reyndar allir líka!
    ::KÍB skeit klukkan 14:11 6.1.04 ::

    Tvímælalaust. Kaupum okkur allir bíl í BNA núna. Legg til að allir fái sér risastóra svarta Suburban jeppa með skyggðum rúðum. Það hæfir okkur.

    Annað að frétta er að Britney okkar Spear gifti sig á fyllerí í Las Vegas....... og þetta kemur fólki á óvart?! Hvenær verður árshátíð vonlausa? Átti ekki að halda slíkt í kringum áramótin?
    ::H.H. skeit klukkan 13:46 ::

    Ég mæli með www.autotrader.com fyrir þá sem hafa áhuga. Gefa þarf upp póstnúmer t.d. 10025 sem er í NY.
    ::KÍB skeit klukkan 10:51 ::

    Dollarinn er kominn í 69,3. Nú þarf maður að kaupa sér bíl í USA mar...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:31 ::

    5.1.04

    Jamm, nýji vefurinn er flottur, ég hlakka líka til að sjá Gallery-ið hans Kolla (þ.e. ef það verður ekki enn eitt project-ið sem deyr á þróunnarstigi).

    Annars var ég að enda við að taka afrit af Gollum, bara svona ef það klikkar eitthvað. Ætla að reyna að gera það einu sinni í mánuði eða því sem næst.
    ::KÍB skeit klukkan 20:30 5.1.04 ::

    Rosa flottur vefur. Hefði ekki getað gert betur sjálfur. Reyndar tel ég það mikið afrek ef ég get skráð sjálfan mig inná bloggerinn, lít á mig sem tölvuséni eftir slík afrek.

    Ekkert að gerast. Svaf of mikið um hátíðirnar. Það er ekki mjög hollt að sofa of mikið.
    ::H.H. skeit klukkan 16:48 ::

    Ha - nei...
    ::Hívatha litli skeit klukkan 12:49 ::

    Hvað er að þér, ég er búinn að borga fóðurgjaldið!
    ::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:27 ::

    Gaman að þessu Google Press Center: Zeitgeist Archive
    ::Hívatha litli skeit klukkan 11:38 ::

    Jóla-ferðamyndir
    Skellti nokkrum myndum á askinn síðan um jólin. Sleðatúr, Bláfjallalabb og Móskarðshnjúkalabb.

    Rakst á þennan Bömmer inni við Bjallarvað (Sírnir á að hlæja núna) og fannst tilvalið að mynda. Verst að flottasta myndin er ekki sleðamynd...

  • Skoða sleðamyndir


    ::Hívatha litli skeit klukkan 10:15 ::

    Gollum - peningastaðan
    Ég sé að ég og Renis erum þeir einu sem hafa sett Gollumpaun í sjálfvirka skuldfærslu. Hinir eiga eftir að hósta upp deigi fyrir desember.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 00:29 ::

    4.1.04

    Gleðilegt ár faggar.

    Partýið hans Gára í gær var helber snelld og kann ég honum bestu þakkir fyrir afar gott partýhald, veitingar, Orma- og sproðdreka tequila og bjór. Góður siður að byrja snemma, það er miklu skemmtilegra.

    Ef Kolli, sem mætti ekki og er þar af leiðandi algjör faggi, klárar galleríið væri gaman að sjá allar snilldar myndirnar síðan í gær.
    ::Hívatha litli skeit klukkan 15:11 4.1.04 ::

    Skoða eldri færslur >>