27.2.04
Blogg frá Kára og Tjörva í sömu viku, það getur greinilega allt gerst. Skyldum við fá blogg frá Bjögga líka, eina meðlimi Þöglu Herdeildarinnar sem ekki hefur látið í sér heyra.
Annars er forsíðumynd Ísalp í dag óvenju glæsileg...
26.2.04
Stundum hef ég verið að reyna að breiða út fagnaðarerindið á þessari síðu, og á svörtum apa, um störf björgunarsveita í þessu landi og hvað landar okkar og yfirvöld líta á þær sem sjálfsagðan hlut.
Mér finnst alveg magnað samt að, miðað við hvað maður er að fórna miklu í það starf, að taka sig upp frá vinnunni, fjölskyldunni og öllu og dúndra út til Marakkó. Þar eru meðlimir alþjóðasveitarinnar, aðallega björgunarsveitarmenn sérhæfðir í rústabjörgun, að vinna og vita að hættan á eftirsjálftum er alltaf fyrir hendi. Í dag lenti hópur úr sveitinni í 5,3 stiga skjálfta inni í hálfhrundu húsi. Þá er töluverður ófriður og vesen þarna. Triggerinn er meðal þeirra sem fóru út og fleiri félagar mínir úr Ársæli. Það eru ekki nema 9 mánuðir síðan þeir voru síðast kallaðir út, til Alsír.
Ótrúlegt að fórna sér svona fyrir náungann, vera launalaus þarna niðurfrá að reyna að bjarga Marakkóbúum, í hættu og leggja á sig að sjá allan þennan óhugnað. Alveg magnað.
Kretín 3 er sannarlega alveg eins og kretín 1 og 2 (og kretín 0 líka for that matter). Ef ég vissi ekki hvað Kolli er mikill kretínputti þá myndi ég halda að hann hefði skeytt kjammanum af Krumma inn á þessa mynd.
Svo er líka stórkostlegt að sjá hvernig hann er strax farinn að æfa sig í kretíndansinum sem er stiginn þegar kretín hafa setið of lengi aðgerðarlaus í hægindastólum og vilja reyna að sýna að þau séu ekki þreytt og þeim ekki kalt. Aðstæður gera kretín 3 meira að segja kleift að gera æfingarnar bæði með höndum og fótum í einu enda er hann búinn að sitja aðgerðarlaus í 9 mánuði (utan stöku spassakipp sem er algengur hjá tegundinni) og er því mikið í mun að þykjast ekki vera þreyttur eða kalt þrátt fyrir að hitastigið hafi í skyndingu lækkað um 20 gráður og það viti það hver maður að honum er skítkalt.
Ég óska honum og foreldrunum alls hins besta og veit að það mun ekki væsa um hann enda hefur hann þrjár risastórar tómar stofur til að liggja kjurr á bakinu í (og taka stöku fettu þegar stemmingin virðist vera farin að dala).
Hvenær er kretín 4 aftur due ?
keep it together w/respect yo,
Kári.
Það getur vel verið að Kolbeini takist með þessu að hrista af sér viðurnefnið Kolbeinn Vatspúngur og verður það í fyrsta sinn síðan Guðna tókst að losna við Krulla nafnið sem e-r vinnur viðlíka þrekvirki innan Vonlausa Veiðifjelagsins.
Húrra fyrir KallaKolla KollaGöllasyni, megi hann vaxa og þroskast eins vel og erfðamengið býður honum!
Hrokafulli Vísundurinn
25.2.04
Hlakka til að sjá Kretín jr. (eða er það Kretín 1 jr. þar sem Kretín 2 jr. er víst líka væntanlegur).
Var að heyra að Kolli eignaðist lítinn gaur í gær, tæplega 13 merkur og 50 cm. Algjör snilld. Sá mynd af gaurnum og þó að mér finnist allir litlir krakkar vera NÁKVÆMLEGA eins, krumpaðir og eitthvað, þá verð ég að viðurkenna að þessi er eins og snýtt út úr nösinni á Kolla. Hann er NÁKVÆMLEGA eins og Kolli.
Til hamingju kids!
June 12
Reykjavik, Iceland - Laugardalsholl
Sigurður Líndal sagði einu sinni frá því í tíma að gæði stjórnarskráa ríkja segðu ekki endilega til um mannréttindi. Þannig væru hin vestrænu ríki sem menn tengja venjulega við mannréttindi með frekar lauslega orðaðar og opnar stjórnarskrár. Á móti væru þau ríki sem hefðu hvað ítarlegustu stjórnarskrárnar, teldu upp allt mögulegt sem þegnarnir ættu rétt á, oft mestu harðstjórnarríkin. Þar eru réttindi þegnanna fótum troðin.
Ástæðan er sú að stjórnarskrá þarf að geta þróast með breyttum aðstæðum í átt til aukins frelsis. Tímarnir breytast og lögin, ásamt anda þeirra, með. Túlkunin breytist og réttindi aukast. Aldrei má þó skerða mannréttindi. Harðstjórnarríki hafa stundum nýtt sér gagnályktun til að svína á þegnum sínum, þ.e. sagt að fyrst eitthvað sé ekki tiltekið í stjórnarskrá eigi fólkið ekki rétt á því. Það er hættan við ítarlegar stjórnarskrár.
Hins vegar held ég að ekki einu sinni harðstjórnarríki með sína einræðisherra, pyntingar og mannréttindabrot þori almennt að ganga svo langt að gera stjórnarskrárbreytingu með það fyrir augum að skerða réttindi ákveðinna þjóðfélagshópa. Að leiða misrétti í stjórnarskrá er ótrúlegt og á sér líklega enga aðra hliðstæðu.
Nú gætir þú spurt: "Um hvaða bananalýðveldi er rætt?" Nú auðvitað BNA-lýðveldið.
Finnst öllum í lagi að forseti BNA fari um með stríðsmangi og ofsóknum á hendur þjóðfélagshópa? Hvernig getur þetta gerst á 21. öldinni? Af hverju eru allir svona geðveikir?
24.2.04
Nema hvað - aðal sponsinn þeirra er vodkaverksmiðjan Crystal í Rússlandi. Svo fara þeir bara með marga kassa af vodka, hita létt upp á Ama Dablam (einmitt) og eru í standandi partíi þarna. Svona á að lifa!!!
PS - Addi - ertu viss um að þú viljir koma út að hjóla og drekka bjór? Þú varst eitthvað hálf óánægður með síðustu 2 túra. Verður kannski búinn að gleyma því fyrir næsta...
Ég væri líka til í að blanda saman útivist og fyllerý. Nennir einhver að koma út að hjóla og drekka bjór?
Kannist þið við manninn til vinstri?

Menn að meika það í heimspressuna [1] [2]
23.2.04
20.2.04
Eitthvað planað? Ég er að fara á Ísafjörð á ísklifurfestival Íslenska Alpaklúbbsins, með Halla Guðmunds (mikið rétt, eiganda góðlátlegu augnanna), Stebba og fleiri góðum mönnum.
Svo má geta þess til gamans að nú á að vera hægt aftur að linka á gömul blogg eins og vindurinn.
[Uppfært] Í fyrradag ákvað ég, eftir að hafa verið veikur og hálfslappur svo vikum skiptir, að nú væri fullreynt með að bíða eftir betri heilsu. Fór þess í stað á undanfaraæfingu og labbaði 2 ferðir á Stardalshamar, með börur á niðurleið. Skokkaði síðan á Esjuna í gærkveldi, snéri reyndar við undir klettunum í snjókomu, klaka, myrkri og rugli. Stuð.
19.2.04
Nú er ég búinn að eyða viku í að skrifa vefinn upp á nýtt og það besta er - að þið eigið sjálfsagt aldrei eftir að taka eftir neinum breytingum. Veit ekki af hverju ég er að þessu.
Nema hvað - nú er vonlausa bæði með valid css og valid, töflulausu html 4.0. Dadaaaaaa...
18.2.04
Jæja - nú er fundin óhrekjanleg sönnun þess að Kolli er drjólanagari.
Á þessum degi fyrir 36 árum var Syd Barret lagður inn á geðveikrahæli og David Gilmour tók formlega við stöðu gítarleikara Pink Floyd. Hann samdi síðan flest lög þeirra eftir að Roger Waters hætti. Magnaður gaur.
Á þessum degi fyrir 5 árum rann upp nýtt VISA tímabil.
17.2.04
1) Jæja - þegar þið eruð að setja inn myndir á alltaf að setja alt="" inn - sama þó að það sé skilið eftir tómt.
2) Í staðinn fyrir & í parametrum, t.d. eins og á mogganum og í veftrénu okkar þarf maður að skrifa &
3) Nota strong taggið í staðinn fyrir b (bold).
Má sem sagt hvergi vera img tag án alt, hvergi skrifa & eitt og sér og nota strong.
Svo fyrir makkaþroska klúbbsins, sem geta ekki opnað undirsíðu, þá virkar þetta víst líka í Opera. Náði mér í nýja Opera, gamli var böggaður. Þannig að þetta er bara eitthvað makkaves.
Líka allt nema eitt smáatriði orðið valid á síðunni þannig að þetta er bara browsernum þínum að kenna. Óheppinn. Múhahaha.
Góðar stundir.
Sem sérfræðingur í Sírningum þá finnst mér ómaklegt að væna Skabba um maðxu. Hér er ljóst að Sindri er að reyna að Sírna af sér þessa veltilfundnu nafngift og er svo mikill lúði að hann reynir að syndfæra hana yfir á Skabba, einmitt manninn sem á heiðurinn að þessari nafnbót.
Þótt þeir séu báðir bleikir og hárlausir, þá er Sindri umtalsvert bleikari og hárlausari.
Ég Skírnir nafngefarinn mikli, sem má skíra af því að ég er stundum kallaður Skírnir lýsi því hérmeð yfir að Sindri er Maðkur af því að hann ER maðkur.
Skírnir hefur skírt.!
Það er rétt að eigendur sumra viðurnefna hafa ekki unnið til þeirra. Þessi nöfn eiga það þó flest sameiginlegt að á bak við þau er skemmtileg saga. Þau nöfn sem vísa ekki til fyrri afreka eiganda eða eiga sér sögu að baki gleymast yfirleitt fljótt. Lesendur geta t.d. metið það hvort Kolli gangi frekar undir Mjaðmar nafninu heldur en Lauks nafninu.
Það þýðir ekkert fyrir þig að reyna að Sírna þig útúr því, þú ert og hefir alltaf verið Maðkur!
16.2.04
Ég hef tilnefnt Skarphéðinn Halldórsson til nafnbótarinnar: Maðkur VV og með staðfestingu Mjaðmarinnar er það orðið samþykkt. Ástæður nafnbótarinnar eru augljósar en skulu tíundaðar hér:
- Viðkomandi maðkkennir aðra í þeim tilgangi dylja öðrum eigin maðksku.
- Viðkomandi greiðir ekki í sameiginlega sjóði félagsins og ber fyrir sig bankamistökum. Það mætti segja að hann liggi eins og ormur á gulli sínu.
Á sunnudaginn fór ég síðan í 105 ára afmæliskaffi hjá KR. Þar voru veittar ýmsar viðurkenningar og fékk undirritaður silfurmerki KR í viðurkenningu fyrir 10 ára starf í þágu félagsins. Á eftir voru kaffiveitinar og ógrynni af kræsingum, ekki amalegt það!
Annars heyrði ég "frétt" um daginn að það hefðu verið 300 manns á þorrablóti á Flateyri og að það væri eins og 120.000 Reykvíkingar færu á þorrablót. Með sömu rökum mætti halda því fram að þetta eina "morð" í Neskaupstað sé eins og það væru framin 107 morð í Reykjavík. Maður ætti kannski að forðast þetta Harlem þarna fyrir austan?!?
En hafa þessir gaurar aldrei gert að? Hvað er með að ná ekki í dópið?
Reyndar brá mér svolítið þegar ég heyrði fyrstu fréttir af þessu. Við vorum nebbnilega félagarnir í leit á ágúst 2002 að Ítala á Látraströnd. Síðan í páskaferðinni um síðustu páska kíktum við á bakaleiðinni á þennan blessaða Norðfjörð í heimsókn til Kötu, sem reyndar beilaði þvílíkt á okkur og fór í eitthvað prattí með vinkonum sínum. Eftir að hafa verið fleygt út úr einhverju lókalaprattí sem við reyndum að komast inn í hölluðum við okkur bara á bryggjunni, tjaldstæðið er í útjaðri bæjarins og ekki séns að maður hafi nennt að labba þangað.
Ergó: Fyrsta sem mér datt í hug var að við hefðum sofið ofan á þessum Ítalagaur - efnilegt að við þrír hefðum verið þarna nokkra metra frá honum...
Búinn að redda mér miða á Damien Rice sem er svona frekar mikil chill trúbbi eða eitthvað slíkt. Síðan verður KORN í maí, kominn með miða á þá líka. Vonast eftir ADIDAS og fleiri góðum lögum þar.
Bestu fréttirnar eru þó að Kraftwerk eru að detta inn í maí líka, þar finnst mér harla líklegt að ég og Rúnar verðum í góðum fíling.
Hvar er tónleikadeild Vonlausa núna? Ein fylleríisferð á Hróarskeldu og svo bara búið?
Labels: Tónlist
13.2.04
Var mikið að pæla hvort ég ætti að nota þetta eða REDRUM í fyrirsögn. Nema hvað - var að horfa á The Shining aftur í gær, eftir snillinginn Stanley Kubrick.

Þessi mynd er ótrúlega flott tekin og leikin og magnað handrit, eftir sögu Stephen King. Fyrsta skiptið sem steady-cam var notað minnir mig, skilar sér þvílíkt á göngunum og í völundarhúsinu. Nær líka að byggja upp magnaða spennu án þess að sýna svo mikinn hrylling. Og JN er náttúrulega mesti sækó í heimi.
Svo er náttúrulega snilld að glápa á myndir í DVD, kíkir á "Making of" á eftir og sér hvað Jack kallinn er ótrúlega fucked up og magnaður gaur. Gaman líka að Kubrick var þvílíkt leiðinlegur við Shelly Duvall á tímabili, ýtti henni út á barm taugaáfalls til að gera hana betri í myndinni. Það er alveg að svínvirka, hún er náttúrulega alveg að fara á límingunum í myndinni. En hver myndi ekki gera í brækurnar þegar JN mætir með öxi á svæðið.
Nema hvað - mögnuð mynd. Mæli með henni. VVVV af 5 mögulegum
Síðan vill ég óska Skabba til hamingju með orðuna, hann er vel að henni kominn.
F.h. Orðuveitinganefndar VV
Vá hvað síðasta færsla missti marks! Það er greinilega margt ennþá skrýtnara í galtarhausnum.
Rakst á þessa síðu, gaman að geta séð hvernig veðrið breytist í fjöllunum.
12.2.04
Ég var að lesa afar athyglisverða grein í mogganum í morgun. Þar stóð að allir sem blogga ekki oft, helst á hverjum degi, séu með nanólítið undir sér og séu einnig örgustu laumufaggar hvers orð séu einskis virði.
Svona er margt skrýtið í kýrhausnum...
11.2.04
Ég verð nú að segja að það er mun svalara að vera ákærður fyrir að áreita leiðinlegar kerlingar og gleðja karlmenn í sjónvarpinu en að áreita litla kalla. Hún hefði bara þurft að hafa þennan gaur með
Ég held að Sibbi sé klárlega næstur, Skabbi, svo Addi, svo Giggús með meira...
Tékkið neðst á síðunni - kominn mega-nördafídus.
Hmmm? Veðbankinn er opnaður, hver verður næst óléttur?
Aukameðlimur VV að gera það gott í læknaheiminum:
Verð eiginlega að fara að dæmi Stæners og pósta hérna bolnum sem ég fékk í síðustu viku frá vinnunni. Erum búin að vera að massa síðustu vikur og mánuði og nýr upplýsingavefur isb.is sem fór í loftið á föstudaginn var eiginlega lokapunkturinn á þessu sessioni. Núna rokkum við langmest!
Vefnördar mega sérstaklega taka eftir því hvað allt er orðið æðislega viðmótsfókuserað, aðgengi fatlaðra á borð við Krumma, og þroskaheftra á borð við Sírni (makkanotandi) er tryggt. Þetta er framtíðin gott fólk.
Svona er bolurinn minn:

[Í boði Pu jr.]
10.2.04
Sjálfur er ég að lesa fyrsta bindið í ævisögu Einars Ben. Mæli með þessari bók, stórskemmtileg og Einar er svaðalegur karekter. Svindlari, stórskáld, drykkjumaður, snillingur, heimsborgari. Hann giftisti 34 ára 18 ára daðurdrós. Ótrúlegur maður, sjálfur hafði ég heyrt upp og ofan af honum en að lesa um hvað hann var að gera er afar athyglsivert. Það sem menn gátu leyft sér þegar hann var uppi er með ólíkindum. Mæli með karli.
Byrjaði á athyglisverðri bók í gærkveldi, The Climb, eftir Anatoli Boukarev. Þessi gaur var að gæda á Everest mannskaðaárið 1996 og var hakkaður af ansi frægum penna, Jon Krakauer, í frægri bók hans sem heitir Into Thin Air. Hún er mjög mögnuð, á hana einmitt. Ein mest lesna fjallabók allra tíma, svona bók sem venjulegt fólk les og skilur kannski aðeins á eftir hvað menn eru að vaða upp á fjöll.
Gallinn (Steinríkur - hahahha) er bara að frásagnir af því hvað er að gerast "in the death zone" fyrir ofan 8 þúsund metra eru ekki of ábyggilegar. Krakauer var í ruglinu þarna á tímabili, súrefnislaus. Menn eru alveg heimskir í þessari hæð, svipað og blindfullir. Þannig að maður þarf að setja ákveðinn fyrirvara á þetta allt saman.
Svo er sá tendence hjá liðinu að halda að gædarnir eigi að halda í hendurnar á þeim allan tímann svolítið hættulegt hugarfar. Meirihlutinn af klifrurunum sem Anatoli var að gæda voru reyndar mega-massar en fólk verður náttúrulega að treysta á sig sjálft við svona aðstæður.
Þetta var allt mjög sorglegt, afar slæmt veður sem skall á og umferðarhnútar í fjallinu leiddu að lokum til þess að 8 manns dóu að mig minnir og amk. einn í viðbót var í algjöru hakki eftir nótt á fjallinu. Á meðal þeirra sem létust var Scott Fischer, þvílík kempa og gæd, sem var búinn að toppa Everest, K2 (ekki margir með þetta combó - K2 er mun erfiðara þó það sé minna), Lohtse (fyrsti Kaninn) og fleira.
Mæli með að menn lesi þessar, í þessari röð, ef þið hafið áhuga á fjallaklifri, háfjallamennsku, að skilja af hverju menn eru að þessu eða bara fílið góðar bækur.
9.2.04
Spurning til Hrokafulla Vísundsins:
Stundum þegar maður opnar appelsínur er eins og það sé lítil appelsína í rassinum á henni, svona minni hýðislaus appelsína inní menginu appelsínan sem ég var að borða áðan. Hvaða óskapnaður er þetta? Er appelsínan ólétt? Er hún hommappelsína búin að stinga hamstursappelsínu upp í appelsíngatið á sér? Eða er hún með klofinn persónuleika/appelsínuleika og annar þeirra er farinn að psycosymatíka sér líkama(appelsínu) innan í hýslinum? Getur þetta líka komið fyrir fólk?... þá sérstaklega ef maður borðar tvöfalda appelsínu?
Kæri Hrokafulli Vísundur, viltu svara þessu sem fyrst svo ég fái hugarró.
Steini Pepp? Steini Pepp? Þótt þú sért heimskari en mold þá er þetta tæknilega rétt hjá þér. En það skiptir ekki máli af því að þú ert ljót.
Þá gæti Sírnir ekki gifst Steina Pepp!
7.2.04
nú tókum við upp á því að leggja á netið skemmtileg djömm sem við eigum á æfingum og verða svo að lögum. Nú eru aðeins 2 dæmi þar því við tókum bara upp þessi tvö á síðustu æfingu. Hinsvegar verð ég að monta mig af því að þetta eru hvorutveggja mínar tónsmíðar, nema trommurnar og gítarriffið í "fuckozzy". En "bouncebass" flaug inn í hausinn á mér þegar ég var á leið í æfingahúsið og ég byrjaði að heimta að við prófuðum það og mér finnst það bara svínvirka.
til að heyra herlegheitin smellið þá á þennan grínk(grínkur er grænmetislínkur/ getur reyndar líka verið grilllínkur)
klikkið svo á hlekkinn -musik- þá blasir þetta við hægramegin á síðunni. Vinstramegin er svo platan sem þeir gáfu út, sem ég spila ekkert á.
flott quote:
"The Virgins eru svo harðir að þegar þeir safnast saman er sameiginleg harka þeirra svo mikil að það er engin harka afgangs til þess að neinn í heiminum geti fengið standpínu."
6.2.04
Eins og dyggir lesendur hafa eflaust tekið eftir var vonlausi í einhverju veseni í dag. Ég prófaði að restarta IIS eins og allir dyggir kerfisfaggar gera (og ekkert annað) en ekki gekk það. Restart á serverinn, kíkja á eldvegginn - ekkert gerist. Það skrýtna var að sumar síður úti í bæ virkuðu á báðum vélunum hérna heima en aðrar ekki. Ekki í cache þó.
Eftir 2 símtöl í nethjálpina hjá OgVodafoneLíkaÓliPíka sagði einhver gaur þar að ég ætti að prófa að restarta routernum. Það virkaði. Ég spyr: "Er þetta þekkt issue?" Hann: "Allir routerar frjósa oft."
Þetta vissi ég ekki og vil bara eiginlega helst ekki trúa. Routerinn sem við erum að nota er þráðlaus + 4 port og heitir conexant. Viðmótið á honum er gjörsamlega grillað. Mæli ekki með honum sérstaklega vegna svona ótrúlega fáránlegrar frystingar.
5.2.04
Mér finnst nú frekar að útgefendur séu glæpamennirnir að vera með region kóða. Þetta er ekkert annað en markaðsstýring og ætti að stríða gegn alþjóðavæðingunni sem korporate krakkhausar segjast vera með. Þannig að enginn ætti að hafa samviskubit yfir því að krakka spilarann sinn og í rauninni ættu allir að gera það og spila bara diska sem eru ekki í sínu 'heima' regioni. Fight the power!
Svona getur maður verið aktivisti heima í sófanum og sagt þessum köllum að fokka sér meðan maður fær sér aðeins meira krakk og lætur mata sig af bulli úr sjónvarpinu.
Lét mig loksins hafa það að krakka DVD-spilarann minn. Spilar núna amk. region 1&2 glimrandi fínt. Hér er fín síða fyrir DVD glæpamenn.
Þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera og er búinn að klára Medal of Honor - Frontline, þá lagaði ég íslensku stafina í postinu hans Skabba (ekki einu sinni hægt að nota replace = apavinna) og skellti þessari fyrstu veiðiferð á síður ferðasagna, minna má það nú ekki vera.
Pantaði mér í gær nýjustu myndina frá Standardfilms, White Balance, en það eru snillingarnir að baki TB (Totally Board) myndanna. Það er líka hægt að fá best of TB og allar myndirnar. Ef þetta heppnast vel er ég að spá í að panta allar sem eru til á DVD og þær sem ég á ekki / eru ekki til á DVD á teipi. Það er verið að selja allt niður í TB1 þarna. Skyldueign á hverju heimili. Tékkiði á treilerunum...
...og ég er að verða geðveikur. Veikasti dagurinn hingað til, klárlega. Úti er snjór og fínerí, verður örugglega fínt í fjallinu í kveld.

Hálsbólga er glötuð, spurning um að kanna að láta rífa þetta kirtlarusl úr.
Varðandi lógóið hans Sírnis þá finnst mér að það eigi að vera mynd af honum sjálfum í sparifötum, nær þeirri staðalímynd verður ekki komist.
Þar sem minni Graðna virðist vera orðið frekar gloppótt af því að sniffa úr bensíntankum á Kvistahaganum er mér það bæði ljúft og skylt að rifja upp eina af fyrstu, ef ekki þá alfyrstu, veiðiferðum Vonlausa Veiðifélagsins. Raunar var nafngiftin ekki komin til á þeim tíma en þessi ferð var svo sannarlega til þess fallin að opna augu okkar fyrir því hversu glataðir veiðimenn við vorum (og erum).
Þátttakendur í þessari ferð vorum við Kollum, Pésús og (daddarada) Trilli Trillukall! Ég er ekki frá því að við höfum verið fimm og að Garrison hafi verið fimmti maðurinn, man það samt ekki alveg.
Við Kolli höfðum báðir prófað dorgveiðar áður og haft gaman af. E-ð höfðum við verið að ræða þetta sameiginlega áhugamál okkar þannig að einn kaldan laugardag snemma árs 1994 eða 1995 var ákveðið að renna upp í Borgarfjörð, nánar til tekið að Geitabergsvatni og reyna fyrir sér í dorgveiði. Það hafði verið mjög kalt í langan tíma og þó að það hafi komið smá hlákukafli fyrir helgi gerði það ekkert til þar sem farið var að kólna aftur.
Ég tel það næsta víst að í þessari fer hafi hinn góði og gegni siður að kaupa klámblað þegar lagt er af stað til veiða fyrst verið kynntur til sögunnar. Allavega keyptum við skandinavískt klámblað á Esso uppá Höfða sem kallast Cats og höfðum gaman af. Ég man meira að segja að það var grein um klám og hórur í Lillehammer í tengslum við ólympíuleikana '94 í blaðinu og auglýsing frá tveimur gömlum konum sem vildu komast í kynni við svartan mann með skyndikynni í huga.
Við keyrðum sem leið lá upp í Hvalfjörð og yfir Dragháls. Uppi á Hálsinum sáum við hvar örn þandi vængi sína hátt yfir bílnum og töldum við þetta boða okkur mikla gæfu við veiðarnar.
Nú ókum við áfram inn Svínadal og að vatni sem við töldum að væri Geitabergsvatn en gæti vel hafa verið Þórisstaðavatn (en alls ekki Þórisvatn Guðni speni). Þar sem við vorum ungir eldhugar sem gáfum skít í öll boð og bönn lögðum við bílnum þar sem við töldum að við værum í hvarfi frá sveitabæjum og skunduðum út ísinn. Dummi hafði lánað okkur ísbor einn mikinn og hugsuðum við okkur gott til glóðarinnar.
Til að byrja með ákváðum við að fara ekkert alltof langt út á ísinn. Fyrstu holuna boruðum við bara nokkra metra frá landi og vakti það nokkra furðu hjá okkur hversu fljótlega gekk að bora í gegnum ísinn án þess þó að okkur þætti hann neitt sérstaklega þunnur. Við boruðum nokkrar holur á þessu svæði og tókum fram dorgirnar. Það sem einnig vakti furðu okkar var hversu grunnt vatnið virtist vera og hversu harður botninn var. Þegar maður lét spúninn sökkva til botns lá við að maður heyrði klingja í honum þegar hann snerti botninn.
Þarna dorguðum við í smástund án nokkurs árangurs. Loks kom að því að við reynsluboltarnir ákváðum að gefa skít í allt sem heitir öryggi og skunda út á mitt vatn þar sem við töldum næsta víst að stóru fiskarnir héldu sig. Ég man það mjög greinilega hvað okkur þóttu Tryggvi og Pési miklar kellingar þar sem þeir læddust (leiddust?) á eftir okkur en pössuðu sig að halda alltaf ca. 10 metra fjarlægð frá okkur.
Þegar við vorum komnir kannski 50 metra frá bakkanum fórum við að taka eftir því að ísinn hegðaði sér frekar undarlega. Venjulegur ís á að vera harður eins og steypa en þessi var svona meira dúandi eða seigfljótandi. Okkur var eiginlega hætt að lítast á blikuna og í þann mund að snúa við þegar allt í einu heyrðist "SHLÆNK" og áður en maður vissi af stóðum við báðir í ísköldu vatninu upp í bringu og horfðum undir iljarnar á Pésa og Tryggva þar sem þeir hlupu í land. Manni gafst ekki ráðrúm til að verða hræddur því við fundum strax að það var traustur og góður ís undir okkur. Ég man ekki lengur hvernig við komumst upp en ég man að við vorum fljótir að drulla okkur uppúr baðinu og af ísnum.
Það sem hafði þá gerst var að eftir tiltölulega langan kuldakafla hafði myndast þykkur og góður ís á vatninu. Svo hafði hlýnað og einhvernvegin náð að myndast skál ofaná ísinn þannig að leysingavatnið safnaðist saman á ísnum og þrýsti honum niður. Svo hafði myndast e-r krapadrulla ofaná vatninu sem svo aftur fraus og myndaði þennan "pseudo-ís" sem við svo örkuðum út á algerlega grunlausir. Þangað til hann brast.
Þetta markaði allavega endalok fyrstu og einu dorgveiðiferðar VV enda ekkert að gera en að drífa sig inní bíl, setja miðstöðina á fullt og fletta klámblaðinu til að fá smá hita í kroppinn.
Annars mæli ég með því að þið endurtakið leikinn, er ekki einmitt farið að kólna aftur eftir hlákuna sem kom í kjölfar langa kuldakaflans.....
[Uppfært: Lagaði íslensku stafina - vitið þið afhverju þetta gersist? Hívaþa litli]
4.2.04
3.2.04
Hljónstina The Virgins langar í lógó, nú er sam(kynhneigð)keppni um lógó
sendið till(ana)ögurnar á evilfan@thevirgins.se
2.2.04
Það fyndna er að við vorum með fáránlega lítið af dóti. Addi var á venjulegum skóm og ólabroddum. Við vorum bara með 2 axir, ég þurfti að rigga tryggingu eftir fyrstu spönn, síga niður til hans, slaka öxunum niður síðasta haftið og brölta svo upp í stansinn í klettadrasli/hlíð við hliðina á leiðinni. Við vorum með 5 skrúfur, bara eitt sigtól og allt eftir þessu. Og svo var þetta náttúrulega fyrsta skiptið sem Addi lemur ís. Helvíti gaman samt.
Svo vorum við eitthvað að síga og fíflast í gær, fórum líka inn í Rauðfeldsgjá sem var helvíti flott. Fullt af klaka og fíneríi þar.
Skoða eldri færslur >>

