31.5.04
Eftir að hafa lagt mikið inn á reikninginn í karmabankanum, t.d. með vonlausu múvi inn að Þumli um páskana, púðurleysi í Norge ofl. ofl. kom loksins snilld um helgina.
Lagði af stað úr bænum á föstudaginn með bretti, sleða og klifurdót ásamt Retro, manninum með góðlátlegu augun og Kidda kisu. Destination Snæfó.
Slógum upp höll og opnuðum bjór (eða pilla) og chilluðum. Þarna var mikið að gerast, Girlie Camp - Johnny Spons var að gæda þær, og IPP - Icelandic Park Project í fullum gangi. Þeir voru með ramp í tjaldi niðurfrá, 2 palla sem litu út eins og blokkir, einn fyrir hugað venjulegt fólk, nokkur rail, corner og wallride meðal annars.
Magnað rennsli
SBS-liðar mættu og á svæðið og var plan þeirra að taka æfingatúr fyrir ferðir sumarsins. Ég skutlaði draslinu þeirra upp á topp, 5 bretti, 5 pör af skíðum og 5 skíðaskór í skrýmsli á bakinu => alltof þungt. Þurfti að standa alla leið og er með allskonar skrýtnar harðsperrur eftir þetta. Þau voru náttúrulega mikið sátt við labbið, útsýnið og rennslið. Kiddi stóð sig ansi vel - fyrsta skipti á bretti og náði smá krúsi inn á milli.
Við Bjöggi tókum tvær þrusugóðar ferðir á laugardeginum, ég kleif hátindinn líka og brettaði niður hann af stakri snilld við mikla hrifningu allra sem voru viðstaddir. Cruxið í leiðinni er upphafið, maður þarf að droppa í rosalega mjótt skarð með frekar leiðinlegu færi og mauva yfir hrygg til að komast í aðal brekkuna. Gilið sem maður byrjar í sturtast svo fram af mjög háum hamri. Og þetta er gróflega bratt. Fannst eiginlega enn skemmtilegra að gera þetta stælí en að gera þetta. Bjöggi lék þetta líka eftir þegar ég var búinn að mana hann smá. En náttúrulega ekki næstum jafn flott, það liggur í augum uppi. Hemm.
dE
Síðan var haldið í grill og chill - allir sáttir við árángur dagsins. Halli varpaði fram setningu dagsins í einhverri umræðu um megrunarkúra (þeir eru honum afar hugleiknir) vs. heilbrigður lífstíll. "Strákar - þetta er bara spurning um orka inn og orka út. Delta E!"
Snilldin varð þó enn meiri snilld. Vaknaði með gamalkunna en ansi skemmtilega tjaldsteikingartilfinningu. Það þýðir bara eitt - skríða út í sólina og halda áfram að sofa. Þvílík og önnur eins bongóblíða að annað eins hefur ekki sést. Ekki ský á himni og 20° hiti.
Við Bjöggi tókum 3 ferðir á kjaft á sleðanum að þessu sinni (eða hvort ég sneikaði þriðju aukalega) og Halli, Kiddi, Brynni og Steppo mættu líka. Stebbi hafði rölt eina ferð kveldið áður er hann mætti á staðinn. Kiddi náði bara að renna sér heilmikið að þessu sinni og hlýtur props fyrir. Allir náðu að mixa sig upp með einum eða öðrum hætti og er það vel. Skutlaði líka Ásdísi og Nonna.
Vélmennaþramm
Við Bjöggi sýndum síðan óskiljanlegan viljastyrk, lögðum sleðanum og tókum síðustu ferð labbandi. Mössuðum þetta á 60 mín og 31 sek frá lyftunni og upp á topp (1448 m.). Ansi gott - pesrónulegt tímamet held ég að hljóti að vera. Geðveik blíða, rölti hálfa leið ber að ofan í góðum fíling. Besta ferð dagsins, slushið uppi aðeins orðið stífara. Geggjað líka að allir voru farnir og við áttum jökulinn alveg sjálfir. Ótrúlega stemning.
Fjöruhúsið og Þórdís vinkona sem er að vinna þar voru algjörlega málið á eftir. Skelltum okkur í bestu fiskisúpu landsins og hún hitti beint í mark eftir þrammið. Chill á Stapanum og síðan meira sof.
Sváfum aðeins fram eftir á mánudeginum og renndum svo í Gerðuberg, sem er klifursvæði / flottir stuðlabergshamrar, rétt hjá Eldborg. Ég var nýbúinn að setja upp línu fyrir okkur Bjögga og Halli kominn upp í miðja dótaleið þegar úrhellisdemba, einhver monsún útlandabomba dundi á okkur. Lítið að gera annað en að flýja.
Fullt af rosa fínum myndum hjá Halla og Kidda á askinum - væntanlega bráðum hjá Brynna líka. Megahelgi - geðveikt sáttur. Þetta er sjittið.
Labels: Bretti
28.5.04
Þynnkutónleikar með Retron í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu lau.29.maí kl. 16.00
Þetta verður það magnaðasta sem gerst hefur síðan Sverrir Stormsker fór með Sókrates á Eurovision! Satan mætir á svæðið!
Hreinar meyjar velkomnar!!!
Sem sagt kl.16.00 laugard. 29.maí
Ókeypis inn.
Kári.
Ps. Kolli Gölli & Svenni Sam, sitting in a tree K-Í-Í-Í-Í-Í-B!
Af hverju skrifa ég þetta? Af því að mig langar að ná öðrum góðum spoiler og af því að þið eigið ekki að horfa á Idol - það er fyrir homma og kjéllingar.
Upphitunarband var Ghostigital sem er eitthvað flipp hjá Bibba og Einari Erni. Bibbi sér um bít (sem voru allt í læ en það tekur 30 sek að mixa eitthvað flott ef maður á góðan trommuheila) og Einar Örn öskraði einhverja vitleysu.
Dæmi 1: "Fluga, 2 flugur [...] 19 flugur, 19 flugur, 2 flugur, 2 flugur
Dæmi 2: "Veik ást, kvefuð ást, hóst hóst, hnerr, astjú, kvefuð ást.
Síðan var einn gaur að spila eitthvað á gítar, ég hlustaði markvisst eftir því en það heyrðist eiginlega aldrei í honum. Svo var líka DJ upp á punt eitthvað að rispa vínyl. Einnig var sonur Einars Arnar þarna að blása eitthvað í trompet (bara bull) sem var á rosa delay. Gerði eitthvað "pppft" og svo endurómaði það yfir gargi föðursins. Gaman að því.
Sökkaði feitt, eitt versta live atriði sem ég hef séð. Ber svona ákveðna virðingu fyrir Einari Erni, lærði að meta hans hlut í Sykurmolunum eftir að þeir hættu. En common - ég trúi ekki að menn fái borgað fyrir svona. Ég held að maður gæti bjargað sér betur þó einhver bæði mann um að spila í Kaplakrika með 5 mín. fyrirvara á spunanum. Þetta er sjálfsagt allt spuni en bara mjög vondur.
Svo var botninn í sándinu gjörsamlega að yfirkeyrast og endaði í einhverjum helvítis drunum sem voru ekki góðar fyrir eyru.
Ghostigital í nýgráðum: VV 0- (verst að það eru ekki til mínusgráður).
Pixies stíga á stokk
Svo komu Pixies og ég var bara ansi ánægður með þau. Tóku fullt af hitturum og það var líka fullt af hitturum sem þau tóku ekki. Skemmtilegast fannst mér að heyra svona lög sem ég hef alltaf fílað en aldrei hafa fengið spilun. Fann smá endur-pirr þegar þau spiluðu "Here comes your man" frá þeim tíma þegar þetta helv. lag kom og Pixies fóru í útvarpið og urðu vinsæl. Þannig að maður "átti" þau ekki lengur. Það er líka úr stíl við allt annað sem þessi hljónst hefur samið.
Gigantic heldur sér ansi vel - eiginlega eina lagið sem Kim samdi og hefur lifað. Það var flott. Kim er orðin kjélling og Black Francis er orðinn massafeitur, eiginlega bara stærsta gerð af Black Toby - hahahahahaha.
Sándið var enn að stríða og botninn datt út í einhverjar drunur. Sem skrifast algjörlega á hljóðkerfið og mixermanninn því að það er fínt sánd í Kaplakrika þegar það er komið fólk í húsið.
Nokkuð traustir Pixies fá VV 3+
Vaknaði með hausverk í morgun, svaf samt ekkert sérstaklega lítið. Ályktaði sem svo að um kaffiskort væri að ræða en eftir stóran bolla af morgundögg var ég ekkert skárri. Nú er ég hins vegar búinn að vera í 5 mín á netinu og hausverkurinn er farinn.
Getur maður fengið fráhvarfseinkenni af of mikilli netnotkun?
27.5.04
A) Aumingjar geta ekki skitið í vinnunni. Kolli getur ekki skitið í vinnunni því honum finnst kúkalykt svo kynæsndi að hann sóðar sig allan út ef hann reynir.
B) Faggar skíta í kvennaklósettið því að; a) þeim finnst túrfýla góð eða b) kallar á vinnustaðnum vilja ekki fá brundfýlu í sitt klósett og banna þeim að skíta þar.
C) Rauðsokkur með loðinn rass eiga ekki að lesa Vonlausa, hvað þá að hafa skoðun á honum.
D) Þeir sem halda úti einsmanns bloggsíðum eru glataðir lúðar sem eiga enga vini. Þeir einu sem lesa síðuna eru ennþá meiri lúðar sem eiga færri vini en enga(akkuru er sveinn skeinn skeinipappír að lesa þetta?!)
E) Guðni er snakkviti sem heldur ekki einbeitingu lengur í 2 mínútur, þann tíma sem það tekur hann að slá inn 5 orð á lyklaborðið.
F) All of the above
G) None of the above
H) Do you really give a shit anyway!?
Metallica á eftir að fokka reitt!
Ég er farinn í frí, við heyrumst aftur þegar ég kem til Íslands þann 10. júní. Þá skal ég kenna ykkur að veiða.
Hrokafulli Vísundurinn
26.5.04
Alltaf hressandi þegar maður nær að skapa stríð út fyrir harða diskinn á Gollum. Langar einhvern að taka upp þráðinn?
Fer ALLTAF á kvennaklósettið í vinnunni. Það er svo sem ekkert rosalega mikið kvennaklósett, bara svona eitt karlaklósett og eitt kvenna við hliðina. Ekki svona básar.
Þau voru bæði hvorugkyns þangað til kjéllingarnar límdu eitthvað dót á hurðina. Það finnst mér fáránlegt. Málið er að karlaklósettið er miklu ógeðslegra.
Mér finnst brjálað ósanngjarnt að kerlurnar skulu með þessum hætti skaffa sér klósett sem er miklu snyrtilegra. Allir eiga að skíta í sömu dolluna og þá fá allir jafn smekklegt / viðbjóðslegt klósett. Það er bara hluti af jafnréttinu - ÞIÐ VILDUÐ ÞETTA!
Ef konur vilja hafa sama rétt á vinnu skulu þær sko by god hafa rétt á sömu skítalykt. Ég ætla að stuðla að því. Því ég er svo mikill jafnréttissinni. Eftir stóran Subway í hádeginu með 100 gr. af jallapenjós táraðist ég næstum því þegar ég uppgötvaði í miðju dömpi hvað ég er að láta gott af mér leiða. Ég er jafnréttissinni í verki. Ég er næstum því gaddem femínisti! Ég er frábær!
Ég bíð enn eftir útksýringu á rakalausum þvættingi galtarins.
Pixies í kveld. Hvar er Skabbi? Og hvar er Sírnir? Mér finnst eitthvað bogið við að sjá svona magnaða hljónst, sem við erum allir að fíla svona mikið, án þess að þið komið memm. Buhuhu.
Annars heyrði ég athyglisverða kenningu í gær. Böddi félagi minn er hálft árið að bransast eitthvað í Kína og Japan. Hann heldur því fram að ástæða tónlistarspreningingarinnar 2004 á Íslandi sé noja í kananum við að fara til Asíu vegna flensu. Segir þá klikk - fleiri drepast úr malaríu á mínútu en hafa drepist samtals úr fuglaflensu.
Þegar ég hugsa til þess eru litlu popphórurnar þarna í litlu fötunum búnar að vera að aflýsa Asíutúrum og eflaust fleiri. Þetta er allt spurning um framboð og eftirspurn krakkar mínir.
Sama hvaðan gott kemur.
25.5.04
Þetta sýnir bara að meira segja maðkar eins og KÍB geta eignast litlar sætar prinsessur.

Hann eignaðist nebbnilega stelpu, 0,5 metra og 3 kíló (ég kann ekki á þessi mörk, nema þýzk mörk og Þórsmörk) væntanlega í nótt bara. Sindra heilsast vel og er Linda bara nokkuð stolt af honum stóð sig vel strákurinn.
Stúlkan er að sjálfsögðu rauðhærð, hvað annað.
24.5.04
Kolli átti mun betri helgi en ég enda afreksmaður á öllum sviðum.
3 punda kuðungableikja tekinn á Peacock nr.12 (fluga og flotholt) af bátatanganum við sumarbústaðinn hennar Ömmu.


Ég var að orna mér yfir minningum síðasta árs og mundi allt í einu eftir því þegar ég KolliGölli og Tóti Tussusnúður tókum morgunbað í ánni. Ætla ég að Tóti lumi á ljósmyndum af tiltækinu sem ekki væri verra að fá á vebbinn áður en afrekið fellur í gleymskunnar dá.
Annars óska ég Tóta Tussusnúð til hamingju með nýju stöngina, kannski við getum tekið kastæfingu þegar ég kem heim, winkwink.
Það er bannað að breyta annarra manna bloggum nema maður sé algjör ***** á borð við mig og KÍB ******* minn. Ég og KÍB ******** minn, ákváðum að þetta væri *********** og við erum svo miklar ******* að við bara urðum. Tíhíhí.
Kyss kyss.
Þau tíðindi gerðust þó í morgun að Kolli og Sindri brutu fyrsta lögmál genfarsáttmálans og breyttu bloggi. Þetta er náttúrulega ótrúlegur dónaskapur og lýsi ég því hér með yfir, sem æðsti kanslari vefs Vonlausa, að öllum er frjálst að fikta í bloggum þeirra næstu 2 vikurnar. T.d. ef Sindri skrifar "ég gerði ekki neitt í dag" er hægt að breyta því í "ég kúkaði í bleyju í dag" eða ef Kolli skrifar "bumban mín stækkaði um 20% í dag" er hægt að breyta því í "bumban mín stækkaði um 20% í dag og ég er ástfanginn af KÍB".
Góðar stundir
Undanfarna viku hefir gengið gríðarlegt kuldakast yfir Noreg. Hitastigið sem var um og yfir 20 gráður fyrir hálfum mánuði seig niðurfyrir 5 gráður bróðurbart síðustu viku. Þessu fylgi geygvænleg úrkoma víða og stór hluti landsins var á kafi í snjó.
Það var ekki fyrr en um helgina sem veður fór að skána þannig að í gær söðlaði ég á mig bakapokann í prýðisveðri og hjólaði uppí skóg. Ég ákvað að reyna fyrir mér í löngu og mjóu stíflunni hvar mér tókst að dýrka upp fisk á durrflugu fyrir hálfum mánuði síðan. Þá var þar talsvert líf eins ég hefi áður sagt frá.
Þegar ég kom á staðinn varð mér fljótlega ljóst að vatnið var lífvana með öllu, að öllum líkindum hefir lunginn af urriðastofninum botnfrosið í kuldakastinu, enda snjóaði í skóginum í vikunni sem leið. Hvað sem því leið var veður hið besta þannig að eins og margoft áður breyttist veiðiferðin í kastæfingu.
Nú verð ég að viðurkenna að þrátt fyrir ítrekaðar æfingar og þrotlausar rannsóknir kasta ég flugu ennþá eins og kretíndvergur. Það má heita hundaheppni ef ég næ að slefa línunni 15 metra út og lendir hún iðulega í einni flækju á vatninu. Sem sannur Vonleysingi hefi ég helst viljað kenna línunni minni um en það er nú allt önnur Ella.
Í öllu falli, eftir að hafa hamast ég við að flengja vatnið í klukkutíma eða svo sé ég mér til mikillar ánægju hvar annar veiðimaður í belgbát kemur siglandi upp eftir lóninu og fer mikinn. Hann strandaði belgnum skammt frá stíflunni hvar ég þanndi köstin, strunsaði í land, skrældi af sér döðlurnar hóf að kasta af sé þvagi af mikilli nautn. Hann hafði greinilega ekki heyrt að alvöru veiðimenn míga í döðlurnar frekar en að koma í land.
Að flóðmigunni lokinni gekk hann yfir til mín og upphófst veiðisamtal á sérkennilegri norsku. Ég skildi lítið af því sem hann sagði og kenndi þess fljótlega að hann var ekki Norðmaður. Í ljós kom að hann var Kani þannig að samtalið færðist yfir á ensku. Verður hann hér eftir kallaður Moli Flugustrákur. Grípum nú niður í smatalið:
Moli Flugustrákur: "You got any cigaretts dude?"
Miltisbrandur Jónsson: "Nope, sorry"
MF: "Oh, 'cause if if you did, I could roll us a big fat joint dude"
MJ: "No shit? I'll make sure to bring cigarettes next time I go fishing, just in case"
MF: "OK dude, but I got a pipe and some great green Maria Juana if you wanna shoot it"
MJ: "Ummmm....xxxxx xxxx x xxxx!"
Eftir hálftíma, eða tvo tíma, sigldi Moli Flugustrákur í burtu á belgnum sínum og við MJ héldum kastæfingunni áfram. Hlustiði nú og þetta er enginn lýgi; Í fyrsta kasti slengdi ég línunni út 20 metra, no problemo og í því næsta 25. Ég hef aldrei á æfinni náð svona löngum fallegum köstum! Og flugan lagðist eins og engill á vatnflötinn án þess að svo mikið sem gára vatnið. Ég held svei mér þá að ég sé að ná tökum á þessu!
Þannig að ef ég á að gefa ykkur góð ráð fyrir næstu kastæfingu Íslandsdeildarinnar:
Prófiði að halla ykkur aðeins til hægri og hægja örlítið á köstunum, það gæti breytt miklu!
MJ
23.5.04
Jæja - hvað gerðu menn af sér um helgina? Sá að Kári var með tónligga sem ég komst því miður ekki á. Gott að fá SMS tilkynningar samt - mun gerast á endanum.
Annars var þetta ótrúlega tíðindalaust hjá mér. Útihlaup á föstudaginn, ræktin og 20 km hjólatúr á laugardag og 45 km í dag. Gríðarlegt stuð. Og ég trúi ekki að Jack hafi drepið Ryan Chapell, þótt að hann sé dick.
Gagnslausir gamlingjar
Löngum hefur verið vitað að gamalt fólk er vita gagnslaust og þvælist fyrir öllum. Þannig hef ég lengi verið á þeirri skoðun að það sé algjört forgangsmál að búa til sérstaka mannasoðspotta og sundlaugar fyrir gamalt fólk og þeirra sýkingar og þvagleka. En ég ætla ekki að eyða bitum í þá umræðu hér, hún bíður betri tíma.
Hinsvegar finnst mér ákveðið áhyggjuefni að samkvæmt auglýsingum VR verð ég orðinn gagnslaus (OK - kannski er ekkert gagn að mér núna - einhver annar þá) uppúr fertugu.
Rosalegar þessar auglýsingar þeirra með kellingunni sem tippexar á skjáinn og kallinum sem notar stimpil (sem er varla mikið eldri en 40 ára). Þau fara síðan í extreme meikóver hjá VR, fá linsur og hárlitun eða mottu og síðan klappa allir fyrir þeim því þau kunna að nota gemsann sinn. Ætlið þið að segja mér að maður verði rekinn um fertugt og fær svo ekki krónu af viðbótarlífeyrissparnaðinum (sem maður er að borga inn á eins og fífl í stað þessa að nota peninginn - ég verð orðinn of gamall til að gera flest sem ég hef gaman að um sextugt) á 20 ára tímabili af gagnsleysi.
"Sjáiði asnalega gaurinn í jakkafötunum - hann getur sko ekki notað hugsanatengsl fyrir fimmaura. Gó hóm geyser!"
Má maður bara búast við einhverju svona? Það eru a.m.k. skilaboðin sem ég móttek úr þessari auglýsingum VERKA LÝÐS (takið eftir - verka - lýðs) Fjélagsins.
Hvað er svo með þennan þátt maður á mann? Mér finnst að það eigi ekki að sýna samkynhneigt klám meðan börn eru enn á fótum.
21.5.04
Ég á 2 miða á Boy-Metalsveitina KORN ef einhvern langar. Info í eista at xy.is
Hér með lýsi ég þennan föstudag mesta föstudag frá upphafi tíma.
Vondúrr hittir þvílíkt naglann á höfuðið með þessa airwick norn. Hver setur leisíbojj inn á klósett? Þetta er bara það alperralegasta sem ég hef séð. Hinsvegar held ég að þessir hommar hljóti að hafa verið laumureynsluhommar. Sé ekki hvernig þetta getur verið eitthvað sniðugt og er ég þó útnuminn í teipfræðum eftir allar útilegurnar með þér.
Tóti greyið heldur enn að við veiðum ekki neitt, en reynsluhommar eru náttúrulega ekki með aðgang að læstu síðu leynilegustu deildar Vonlausa - Frábæra veiðifjélagsins.
Spiladeildin hélt fund í gær og var hið stórsmellna spil Gorgansóla spilað. Það er mjög gott, skemmtilegt, og tekur ekki 5 tíma. Okkur Dindra tókst að komast í gegnum eitt spil með Lindu, án þess að lenda í slag, og tel ég það stafa af því að ég rústaði þessu. Reyndar mjög slæmt að taka Sírninn á þetta og vinna fyrsta spilið sitt - það þýðir væntanlega að ég vinn aldrei aftur.
Svo komst ég að því í gær að ég næ að halda 25 km meðalhraða á hjólinu mínu úr Westurbænum upp í Breiðholt, og get farið yfir 50 km í brekkum. Það er gaman.
Hvað er planið um helgina? Eigum við að spila á eftir eða ekkva?
Ég aftur á móti virðist ekki hafa misst af mikilli veiði á meðan. Hvernig er það annars með þetta veiðifélag. Rífið þið bara kjaft og segið kvikmyndagetraunir? Á ekkert að kasta fyrir fisk bráðlega ???
19.5.04
Og svo heyrði ég sögu. Hún fjallar um tvo homma í Breiðholti. Þeir höfðu þann háttinn á í sínum hommathöfnum að teypa saman á sér typpin, hvor á móti hinum, typpin lögð hvort ofan á annað og teypað utanum þau bæði. Þessi hugmynd hefur haldið mér hugfangnum lengi. Ég hef oft sagt hommabrandra og talið mig útlærðan í hommsku, en þetta ... !!! Var það þessvegna sem Svenni var alltaf með límband í útileigum?
Hmm - það er rétt. Þetta er ansi spes auglýsingaherferð.

Þegar ég var lítill og bjó í Svíþjóð þá framkvæmdi ég skemmtilega froskfræðilega tilraun. Rétt hjá þar sem við bjuggum var vatn sem var bústaður tugmilljóna froska. Einn daginn ákvað ég að veiða svo nokkra tugi af þeim í fötu og búa til froska bio-dome. Ég setti sand,vatn og gras í bala og breiddi handklæði yfir til að þeir slyppu ekki. Nú átti að fylgjast með þróun og uppvexti nýs samfélags. Spurningar eins og hversu hratt fjölga þeir sér, hver yrði froskakonungurinn, mundi verða gerð uppreisn, mundu þeir líta á mig sem guð o.s.frv.
Ég fór að sofa fullur eftirvæntingar og hlakkaði til að sjá þróunina næsta dag í froska samfélaginu sem ég hafði búið til. En því miður var manninum ekki ætlað að leika guð, ég hafði gróflega misreiknað innilokunarmátt handklæðisins, stökkkraft froskana og síðast en ekki síst frelsisþrá þeirra.
Hins vegar læt ég Skabba núna vita af þessari tilraun og vonast til að hann taki upp þráðin og búi til froska bio-dome. Ég er neblinlega svo forvitin að vita hvort froskar hafi kóng (hahaha).
Sunnudaginn síðasta tók ég langan dag uppí skógi. Lagði af stað uppúr hádegi og kom ekki heim fyrr en klukkan að ganga níu. Þó svo að það hafi kólnað hér aftur síðastliðna viku eru vötnin þarna uppfrá að vakna til lífsins hvert af öðru. Nú eyði ég ekki lengur öllum mínum tíma í neðstu forartjörninni sem þangað til nýlega var eini staðurinn sem ég nokkurntíman sá líf. Allavegana, ég prófaði þrjú vötn þann daginn.
Í því fyrsta sá ég dulítið líf í yfirborðinu. Þar er gróður þéttur þannig að veltiköstin voru það eina sem dugði. Fékk fljótlega eina horlontu á ullarorminn. Ullarormurinn virðist vera það eina sem ég næ nokkurntíman að narra þessa fiska með, enda fiskin fluga með afbrigðum. Maður er ansi fljótur að fæla alla fiska burt frá sér með þessum veltibarningi þannig að eftir dálitla stund yfirgaf ég þennan annars líflega stað og prófaði næsta. Það vatn er u.þ.b 50 metrum hærra en hið fyrra og a.m.k. fjórfalt stærra og ku geyma stærri fiska. Skemmst er frá því að segja að eins líflegt og hið fyrra var var þetta steindautt. Ég flengdi þó vatnið í klukkutíma til öryggis en sá ekki titt.
Síðasti áfangastaður minn var langt og mjótt lón, ca í sömu hæð og hið fyrsta. Þar var aldeilis líf í tuskunum, fiskar, sumir hugsanlega stærri en 50 grömm supu pöddur úr yfirborðinu út um allt vatn. Í barnslegri gleði tók ég fram durrflugurnar mínar og bjóst við veislu þar sem hver magnaða yfirborðstakan ræki þá næstu. Þess ber að geta að þurrflugum er ekki hægt að veltikasta svo vel sé þar sem í þeim köstunum er flugan dregin í gegnum vatnið og blotnar því mjög. Bakkast er því algert skilyrði. Sem er ekki hægt í Noregi eins og ég hef áður sagt. Ég var ekki af baki dottinn og reyndi að þvæla hverju bakastinu á fætur öðru inn á milli trjánna. Það hafði ekki liðið löng stund áður en mér tókst að festa svotil allar þurrflugurnar uppi hæstu hæðum. Ég sver upp á æru og trú að trén teigðu sig eftir bakkastinu mínu til þess að grípa flugurnar mínar.
Ég náði þó á e-n óskiljanlegan hátt að slengja út einum brúnum flotdurt og viti menn, einn dvergsilungur réðst á hana og fyrsti durrflugufiskurinn varð þar með að veruleika! HALLELÚJA!!!
Þegar hér var komið sögu hafði tíminn þotið frá mér, ég var orðinn vitstola af hungri og bakkastergju. Svo fór að rigna þannig að ég þurfti að vaða aur og drullu með hjólið í fanginu í gegnum skóginn og heim.
Semsagt, í alla staði mögnuð veiðiferð. Nú fer ég niðrí bæ og byrgi mig upp af nýjum durrflugum til að skreyta norsku skógana með!
Hroki
18.5.04
Átta ára barn lék sér að byssu föður síns
Lögreglan í Reykjavík þurfti að ræða við eiganda skotvopns um helgina eftir að barn hafði verið leika sér með vopnið.
Upphaf málsins er rakið til þess að kona tilkynnti lögreglunni að átta ára dóttir hennar hefði komið heim og sagt sér að vinkona hennar, sem er einnig átta ára, hefði verið að leika sér með skotvopn föður síns. Lögreglan brást við með því að ræða við eiganda skotvopnsins sem var gert að ganga frá byssunni á viðeigandi hátt.
www.mbl.is
Lögreglan í Reykjavík þurfti að ræða við eiganda skotvopns um helgina eftir að barn hafði verið leika sér með vopnið.
Upphaf málsins er rakið til þess að kona tilkynnti lögreglunni að átta ára dóttir hennar hefði komið heim og sagt sér að vinkona hennar, sem er einnig átta ára, hefði verið að leika sér með skotvopn föður síns. Lögreglan brást við með því að ræða við eiganda skotvopnsins sem var gert að ganga frá byssunni á viðeigandi hátt.
www.mbl.is
Í grannlöndum okkar þykir ekki við hæfi að
velta þeim kostnaði sem þungaflutningar á vegum valda, beint yfir á
almenna bifreiðaeigendur. FÍB telur á sama hátt ekki við hæfi að halda
áfram að velta beint yfir á almenna bifreiðaeigendur kostnaðinum af
vegnotkun einstakra hópa eða atvinnugreina. Sé á hinn bóginn almennur
vilji til að styrkja einstaka aðila, atvinnugreinar eða byggðir í
landinu á einhvern hátt, verður að gera það með öðrum hætti en þeim að
senda einfaldlega almennum bifreiðaeigendum reikninginn eins og gert er
í þungaskattskerfinu.
www.fib.is
velta þeim kostnaði sem þungaflutningar á vegum valda, beint yfir á
almenna bifreiðaeigendur. FÍB telur á sama hátt ekki við hæfi að halda
áfram að velta beint yfir á almenna bifreiðaeigendur kostnaðinum af
vegnotkun einstakra hópa eða atvinnugreina. Sé á hinn bóginn almennur
vilji til að styrkja einstaka aðila, atvinnugreinar eða byggðir í
landinu á einhvern hátt, verður að gera það með öðrum hætti en þeim að
senda einfaldlega almennum bifreiðaeigendum reikninginn eins og gert er
í þungaskattskerfinu.
www.fib.is
Ég held að ég hafi náð að slá öll met í nördaskap áðan þegar mér datt í hug að íslenska 404 síðuna á vonlausa.
17.5.04
Sindri says:
Er ekki slæmt að geta ekki skitið í vinnunni?
DR.Jóli says:
Jú, ég er alltaf fullur af skít!
Er ekki slæmt að geta ekki skitið í vinnunni?
DR.Jóli says:
Jú, ég er alltaf fullur af skít!
Ég ætla hérna að pósta smá msn samtali
DR. Jóli says:
hvað ertu
Sindri says:
ég er maðkur
hvað ertu
Sindri says:
ég er maðkur
Á vappi mínu um veraldarvefinn rakst ég á þessa síðu. Ég veit bara ekki hvað mar á að halda um þessa bandaríkjamenn en læt hér fyljga með eina góða bæn til forsetans frá umhyggjusömum og áhyggjufullum krakka.
Dear Jesus,
Please help the president to make the right decisions. Please, Lord, to make him do the right decisions and him to keep loving God. Please help the other kids to pray for the president. Please help President Bush to whenever he goes out to always wear shoes. Make sure he's safe, Lord, and make sure that the Iraq will be free. I know that President Bush doesn't want to get hurt or to hurt other people.
Amen.
14.5.04
NB, gunga, drusla, kjóll eða mittisvaðla koma því miður ekki fyrir í annars ágætum texta.
Ég sá Kolla bráðfrískan að vappa á netinu áðan. Hann getur ekki haft nein lögmæt forföll. Ég hlýt að líta svo á að hann þori ekki ... hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig ... ég hlýt að líta svo á ... og það skal þá standa að Kolbeinn Mjöðm sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig.
Ég tek þetta ekkert til baka. Þú sagðir þetta lygamörður. Svo hringdi forsetinn í mig.
Hver mælti? Einn flöskubjór í verðlaun.
Hvenær sagði ég að Kurt væri dauður? Ég hef aldrei sagt að Kurt sé dauður. Ef þú tekur þetta ekki tilbaka þá munu menn sem eru á mínum vegum lemja litla bróður þinn.
13.5.04
Fyrir stuttu vorum við að tala um snillinginn Kurt Vonnegut og þá besservissaði Pu þeirri falsviksu að hann væri löngu dauður. Í þá daga trúði ég því sem guðræknir menn sögðu, en veit núna að betra er að efast um allt sem þessir kristlingar segja. En viti menn Vonnegut er greinilega að skrifa pistla að handan, því ég fann á alnetinu skemmtilega grein sem allir ættu að hafa gaman af nema kanski andkommúnistinn Sindri dindill.
Staðan:
Addi pu 6 stig
Kári 3 stig
Gölli 1 stig
Leutenöntum Sjálfstæðisflokksins í stjórn olíufélaganna hentar ekki að fara í fangelsi fyrir að hafa svikið milljarða út úr íslensku þjóðinni. Þeim hentar greinilega ekki að lækka eldsneytisverðið á trukkinn þinn. Þeim hentar hinsvegar að refsa þér fyrir að vera til. Haltu þér bara saman og láta þetta yfir þig ganga eins allir hinir. Við brosum bara og biðjum um meira.
Í gamla kerfinu var hvatinn nánast enginn því um helmingurinn af kostnaðinum var fastur óháður eyðslu.
Þess vegna á að vera innbyggð hvatning í kerfinu til að keyra á dísilbílum. Ég sé ekki að það sé í takt við þessa yfirlýstu stefnu stjórnvalda að þyngja skattbyrði stórs hluta þeirra sem í dag aka á dísilbílum.
Og af hverju "á munurinn að vera 10 kall"?
Forsendur
- Bíll eyðir 16l/100km.
- Dísel: 42,3 kr/l (verð á Orkunni Eiðistorgi, skv. www.orkan.is)
- Kostnaður vegna 20.000 km á dísel bíl með mæli: 130.000 kr
- Bensín: 100,4 kr/l Bensín: 100,4 kr/l (verð á Orkunni Eiðistorgi, skv. www.orkan.is)
42,3 kr/l + (130.000 kr / (16l/100km * 20.000 km)) = 82,9 kr/l
Hver lítri af dísel er sem sagt 17,5 kr ódýrari en lítri af bensíni, hins vegar ætti hann ekki að vera nema 10 kr ódýrari. Mismunurinn er 7,5 kr/l eða 24.000 kr m.v. forsendurnar hér að ofan.
Auðvitað má deila um það hvort dísel bílar séu að borga of lítið eða hvort bensín bílar séu að borga of mikið. Mér finnst bíleigendur borga nógu mikið í skatt fyrir og þ.a.l. myndi ég velja að lækka gjöld á bensín. Það breytir ekki þeirri skoðun minni að sama kerfið eigi að gilda um báða orkugjafa.
...og já, ég er þroski.
Diesel olía ætti að vera töluvert ódýrari en þið getið bara farið og kvartað við mennina sem stjórna og sem þið by the way studduð í blindri hollustu.
Síðan ætti olíuverðið að vera mun lægra en þessi fimmkall sem planaður er. Ekki bara ósanngjarnt gagnvart þeim sem eru á mæli heldur þarf meiri hvata svo að fólk fari yfir á fólksbíla með dísilvél. Þeir eru dýrari (mun dýrari mótorar), ekki jafn sprækir osfrv.
Til samanburðar eru Norðmenn mestu olíufasistar í heimi. Samt er munurinn hjá þeim (meðalverð&gengi dagsins 10.7 kr.) 107 kr. blýlaust bensín - 90,95 kr. lítrinn af hráolíu
=> 16,05 kr. meðalmunur á bensín og dísil.
Og athugið að við erum að tala um dýrasta land í heimi og sambærilegt kerfi.
Hópur 1: Smábílaeigendur á mæli. Voru að borga of mikið.
Hópur 2: Allir á föstu gjaldi sem keyrðu meira en 25.000. Voru að borga of lítið.
Hópur 3: Stærri fólksbílar og jeppar á mæli. Voru að borga frekar mikið, t.d. 130.000 kr. á ári fyrir 20 þús kílómetra akstur. Og nú eiga þeir að borga enn meira. Það er bara algjört rugl, þú hlýtur að sjá það.
1) Ódýrara að eiga dísilfólksbíl, hagstæðari bruni, minni mengun. Á að vera hvati fyrir því. Núverandi kerfi ósanngjarnt upp á það að gera með 6,4 kr. km.gjaldi sama hvort bíll er 3 KG eða 5 tonn.
2) Kötta á þetta fastagjaldskrapp.
Hinsvegar ætti það ekki að gera miklu dýrara fyrir þá sem voru á mæli að eiga sinn bíl áfram. Það er bara rugl. Auka skattheimta og ekkert annað.
Jæja kæru áhugamenn um dísilbíla og nýja olíugjaldið.
Ég var að skoða hvernig nýja kerfið, olíugjald, kemur út og miða þá við að olían sé 5 kr. lægri en bensín. Það hefur amk. verið í umræðunni.
*Hægt er að leika sér með þetta að vild. Niðurstaðan er sú að tapið er umtalsvert, fyrir eigendur stærri fólksbíla og jeppa, af nýja kerfinu. Skurðpunkturinn liggur á 12 lítra eyðslu miðað við þessar forsendur. Þ.e. ef þú átt dísil-bifreið sem eyðir 12 L. og varst á mæli ertu á sléttu peningalega.
*Ef þú ert með bíl sem eyðir 16,8 l. á hundraði er tapið 50 þús.kr. miðað við 20 þús.km. ekna á mæli. Á föstu gjaldi miðað við 36 þús.km. akstur er tapið 165 þús.kr.
*Ef þú ert með bíl sem eyðir 8 l. er sparnaður upp á 43 þús.kr. miðað við 20 þús.km. akstur og mæli, en 28 þús.kr. miðað við 30 þús.km. akstur. Ef maður keyrir nógu helvíti mikið á mæli er náttúrulega alltaf tap.
*Bensín er enn dýrasti kosturinn miðað við sambærilega jeppaeyðslu.
*Ef þið prófið að breyta olíugjaldinu í [bensínverð - 10 kr.] í stað -5 kr., kemur í ljós að maður tapar enn 33 þús.kr. (mælir/20 þús.km) og 135 þús.kr. (fast gjald/36 þús.km). Munar ekki svo miklu.
Bottom line => Nýja kerfið er hagstæðast fyrir nanólitla fólksbíla með sem minnstri eyðslu / Töluvert dýrara fyrir jeppa, sama hvaða kerfi þú ert í, sama hver verðmunurinn verður.
Líklega það sem menn vilja ná fram - gera litla dísilbíla hagstæðari í rekstri og græða meira á jeppunum án þess að umhverfissóða-bensínbílar séu hagstæðari.
Samt ótrúlega glatað eitthvað. Verið að tala um að lækka skatta og svo eru hækkaðir skattar á traustustu og mest misnotuðustu skattgreiðendur landsins, bíleigendur.
All to easy.
ps. úr hvaða mynd er þessi setning og hver segir við hvaða tækifæri?
"Rumours of my assimilation have been greatly exagerrated."
John Candy as Gölli
Verne Troyer as Skabbi
Rene Auberjonois as Kolli
Telly Savalas as KÍB
Pu as himself
Tony Sheloub as Krummi
Hvernig væri að fá eina frábæra lokasetningu: "...or maybe it was Utah."
Ef ekki þá asnalega plastrakvélin sem feiti svarti gaurinn var alltaf að raka á sér skallann með.
Hver er þekktari fyrir að segja þetta...? Ætli ég verði ekki að giska á MAMMAÐÍN!!!!
12.5.04
Þvílík snilld mar. [1] [2]
Annars átti ég eftir að gefa Kraftwerk gráðu. Þessir tónleikar voru mikil snilld og það er eiginlega erfitt að skrifa eitthvað um feður teknósins. Bið menn samt að hafa í huga þegar hlustað er á Kraftwerk að þeir voru að mixa þessa snilld í heimatilbúnu dóti meðan aðrir snillingar voru að brenna gítara og safna hári. 30 árum á undan sinni samtíð. Magnað. Forréttindi að sjá þá á sviði. VV3+ jafnvel VV4.
Henti nokkrum myndum frá helginni á askinn fyrir þá sem hafa áhuga.
Og til hamingju með afmælið Trúðurinn KÍB!
Labels: Tónlist
Arnold segir þetta við Appolo Creed þegar þeir eru að ráðast á skæruliða í frumskóginum. Mest áberandi leikhluturinn er bæsepsarnir hans Arnolds.
Sá sem er þekktastur fyrir þessa línu er Svenni þegar hann var í rústabjörgun og yfirmaður hans sagði honum að drepa andstæðinga sína í sveitinni.
Næsta er mjöööög létt fyrst þið klúðruðuð þessari. Þetta er klassísk lína en reyndar betur þekkt í flutningi annars manns en leikarans sem flutti hana upphaflega í bíómynd.
"We are a rescue team, not assassins"
Hver er leikarinn, hver er myndin, við hvaða tækifæri sagt, hvað er mest áberandi leikhluturinn í atriðinu og hver er þekktastur fyrir þessa línu?
Af agn.is:
Getur eikker sagt mér frá góðri ódýrri á???? helst ekki langt frá Reykjavík og það verður að vera búið að oppna?? Endilega segjið mér frá eikkerji á Kv. The Fish
Æska þessa lands... fusssssss!!!!
11.5.04
Það getur ENGINN þetta nema Sírnir. Svo þykist Kolli vita eitthvað um bíó.
"My cousin Walter jerked off in publick once, True story."
hér er gáta í lagi sem allir eiga að geta svarað.
hvaða mynd byrjar svona:"One time my uncle Walter got this cat stuck in his ass..."
nú verð ég að játa á mig hálfsvindl, ég vissi að þetta var gotvater en ekki hvað gaurarnir hétu ég fann þetta svona þegar ég var að doubletékka mig. Nú er spurningin: hefði ég geyst fram sem snnillingur og viti hefði ég haft rangt fyrir mér en séð þetta svar?
Önnur gáta.
Hver sagði við hvern og í hvaða mynd?
'Can you get me off the hook? For old times sake.'
Auðvitað - þú ert alltaf stupid. Spurt var hvaða mynd og hver og ég svaraði rétt. Það skiptir engu þó að þú svarir skóstærðinni á Batman og hvað Joker borðaði í morgunmat - það var ekki spurt um það. Hahahahaha - fáviti.
Joker býður Vicky Vale út að borða í listasafni og kemur inn með orðin "Gentlemen, lets broaden our minds" á vörunum og safnið er lagt í rúst. Síðan sýnir hann Vicky Vale nýjasta listaverkið sitt og ætlar að sprauta sýru úr blómi framan í hana en Batman kemur og reddar því og þegar hann skýtur kaðli niður í aðalinnganginn og rennir sér á honum út með Vicky Vale í örmunum ÞÁ segir joker "Where does he get all those wonderful toys?" !!!
Það fær enginn lítilsvirða þetta stórkostlega quote með óvissu um númer mynda og ágiskanir um óræð stuntapúll!
Ef ekki þá sambærilegt atriði úr sambærilegri mynd.
Beverly Hills Cop 2 er algjörlega fáránleg mynd til að spyrja úr, hvaða fífl man eftir setningu úr þeirri skíta mynd?
En hér kemur ein alvöru gáta, þ.e. mögulegt að vita án þess að svindla.
Hver sagði og í hvaða mynd:
'Where does he get all those wonderful toys?'
Hail to the King baby!
and I ain't falling for no banana in the tailpipe!
Don't think, Axel! It makes my dick itch!
Næsta gáta:
I ain't doing nothing in front of this dude, 'cause this dude is a cop! I know when I can smell a pig inside a room. I used to be a Muslim, man, and I know there's pork over here!
10.5.04
Þetta er í Braveheart þegar þeir eru allir málaðir bláir í framan og William Wallace fer og stríðir herforingja enska hersins til að þeir fari örugglega að berjast.
Þið eruð allir faggar
Snilld. Og Army of Darkness ekki síður.
Ég var líka að átta mig á öðru fyrst maður er að tala um presta. Haffi litli er óskírður, bara nefndur. Þannig að þá má skíra Haffa litla það sem maður vill. Ég ætla samt að láta mér duga að kalla hann litla heiðingjan minn eða Haffa heiðingja. Hætti því þegar barnið getur svarað fyrir sig, annars fer illa fyrir mér.
Annars fer ég að verða til í bjórkvöld. Sötra tvo, þrjá, átján bjóra eða svo. Gæti verið skemmtilegt en verður það sennilega ekki.
A: But what about all those nice things you said to me?
B: Well that's just what we call pillow talk baby!
Hvað eiga KÍB og Sasser sameiginlegt?
Blikur á lofti. Nú ætlar sýningarstjórinn, á sýningunni sem opnar bráðum, kanski að banna mér að sýna verkið sem ég vil sýna. Verkið er endurtekning og umbættar kvennmansnærbuxurnar með tippinu á sem ég sýndi á hafnarbakkanum síðastliðið sumar. Nú er ég búinn að mynda drjóla og undirbúa allt fínt og ætla að prenta á nærbuxur í kvöld. En fæ að vita það áðan að sýningarstjóranum líst ílla á þessa hugmynd og ætlar kanski að neita að sýna verkið mitt.
Hér er á ferð mikil blöndun alheimssamsærissins og tilefnis til knésetninga, þetta getur ekki nema endað sem ægilega skemmtileg saga. "Sírnir, hinn misskildi femínisti og sjálfskipuðu femínistarnir" ... nei ég mydi heldur ekki kaupa þá bók.
Sá sem kvartaði undan hita var svarti gaurinn sem var grillaður í fyrstu skrímslaárásinni. Ég hélt að hann héti Crow en Google heldur því fram að hann hafi heitið Frost.
Svo mörg voru þau orð.
Þetta er alltof erfið getraun hjá þér Krummi, þú mátt bara vera með spurningar sem ég veit svarið við.
7.5.04
Hér er önnur kvikmyndagáta og Gölli faggi má ekki skemma með því að fara á gúgúl og finna svarið.
A: Where are you going?
B: I´m going to pick a fight
A: Well, I´m glad we didn´t get dressed up for nothing
Smá hint: Þetta er ekki dramatíska ástarsagan "Litla stúlkan í mittisvöðlunum"
Annars vil ég lýsa frati á þá sem dissa mittisvöðlurnar mínar. Ég mun hlæja af ykkur í svitavöðlunum ykkar í sumar þegar ég verð eini sem svíður ekki í punginn af hita.
Hver söng um heilaga dýfingarmanninn?
En svona til að svara spurningunni þá er þetta Hudson sem svarar svona snappí og fyndlega þegar einhver annar hermaður sem ég man ekki hvað heitir segir 'It's hot as fuck'n hell in here' þegar þeir eru að fara niður og hitta öll skrímslin.
kvikmyndagetraun: Hver sagði þetta og við hvern í hvaða mynd:
A: It's hot as fuck'n hell in here.
B: Yeah man but it's a dry heat!
Hver braut tvær stangir í Elliðavatni um síðustu helgi og fór heim grátandi?
F. Murray Abraham er vissulega rétt og færðu hrós fyrir það en hann var Salieri heimski haus, ekki Amadeus sem sýnir fram á það að þú veist ekkert um hvað er verið að tala.
Hver drap Moe Zart?
Magnað hvað stóri bróðir Skabba og Kára er líkur þeim. Fjölskyldusvipurinn úr Bárðardalnum skín langar leiðir.

Meeeee
Sumarferðin á heiðinaverður metferð hjá VV, ég finn það á mér.
Skítsteinn er e-ð að agnúast út í göltinn í fluffafréttunum sínum....
Ég er að velta fyrir mér innheimtuaðgerðum á dedbítin sem hafa ekki borgað, Kolla, Krumma og Sírni. Ein hugmyndin er að loka fyrir aðgang fjárglæpamanna í Vonlausa 1. hvers mánaðar hafi þeir ekki borgað. Setja þá í skuldabloggfangelsi. Önnur er að fara heim til þeirra og berja þá með naglaspýtu.
Ég nenni ekki að vera alltaf að eltast við þetta - borgiði skíthórur.
Nú held ég að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær veiðimennskan á Arnarvatnsheiði mun breytast til hins verra. Ég sé fyrir mér herdeildir af lúðum í mittisvöðlum með 10 letingja og maður þarf að berjast fyrir plássi á bakkanum. Takið eftir að núna er kominn veiðitími, 7-13 og 15-21. WTF? Ekki að það verður hægt að framfylgja því en þetta er vissulega vísbending um að þetta er að breytast og eins og allir vita er öll breyting af hinu verra.
Ég hlakka hins vegar til að fara núna í sumar og enn eru nokkur ár í að þetta verði ónýtt.
p.s. Sírnir er ekki að fara veiða ufsa og marra þegar hann segist vera í veiðihug, hann er að tala um að krúsa eftir gaurum í leðurgöllum.
6.5.04
"Skabbi got fingered"
...hahahahahahaha
Skabbi !!!

KRAFTWERK lyrics - "Sellafield 2"
Sellafield 2 will produce 7,5 tons of plutonium every year
1,5 kilogram of plutonium make the nuclear bomb
Sellafield 2 will release the same amount of radioactivity
Into the environment as the Tschernobyl every 4,5 years
One of these radioactive substances
Krypton 85, will cause death and skin cancer
Sellafield 2 will produce 7,5 tons of plutonium every year
1,5 kilogram of plutonium make the nuclear bomb
Sellafield 2 will release the same amount of radioactivity
Into the environment as the Tschernobyl every 4,5 years
One of these radioactive substances
Krypton 85, will cause death and skin cancer
Áfram Vonlausa Veiðifjelagið, besta fjelag í heimi!
Spáð er rúmlega 20 stiga hita í dag, það hlýtur að fara að lifna allverulega yfir öðrum vötnum.
Hvernig var annars á Kraf(vind)werki?
FONzy
5.5.04
Það á að banna gamalt fólk í sundi, jafnvel bara opinberum stöðum. Pirra mig amk. meira en reykingar.
Labels: Hjól
Saumó tók fínan hjólahring í gær, stígarnir í Heiðmörk eru bara snilldar downhill. Reyndar var alveg skítkalt og vatnið mitt krapaði. Tókum síðan Elliðavatnshring og fórum í eplaköku, te og súperkross hjá Kela.
Súperkross er geðveik sjónvarpsíþrótt. Djöfull er þetta skemmtilegt. Og sennilega erfiðasta sport sem hægt er að ímynda sér. Sóðalega kraftmikil hjól og ógeðslega erfið braut. Ég veit ekki hvort maður kæmist einn hring þarna og þeir keyra 20.
Labels: Hjól
4.5.04
Gölli og KÍB í góðum gír.
Ég er líka viss um að það er hægt að finna mun verri orð en þetta á Hlað - það er til dæmis algjör fáviti sem heitir Skarpi sem krafsar stundum þar með skítugri spýtu. Hann er samt minni maðkur en Kolli, Krummi og Sírnir sem eiga eftir að borga.
3.5.04
Er einhver sem langar í Browning A5 2 3/4 orginal Belgísk lýtur mjög vel út, í staðinn fyrir Riffil má vera 222 til 22-250, má vera kýkirslaus PS þarf að líta þokkalega vel út,
www.hlad.is
www.hlad.is
Djöfull eru dvergarnir sem elta Kolla gölla á röndum samt fyndnir, alltaf að henda hártoppnum hans í poll og skalla hann í mjöðmina.
Þessi vonlausasta veiðiferð í sögu félagsins er góður fyrirboði um gott veiðisumar. Verst að ég skyldi brjóta báðar stangirnar mínar en ég átti það skilið. Veiðiguðinn vitjaði mín í draumi um daginn og sagði 'ef þú reisir hana þá koma flugurnar' og átti þá við fluguhnýtingarstofuna. Ég lét þetta sem vindu um eyru þjóta og hnýtingarstofan er óreist og full af úldnum pappakössum. Þessi móðgun við veiðiguðinn var meira en hann gat þolað enda hefnigjarn og skjótur að reiðast. En ekki er öll nótt úti enn. Í bæn minni til veiðiguðsins í nótt reyndi ég að malda í móinn, útskýrði fyrir honum að Róm var ekki byggð á einum degi o.s.fr. Í fyrstu tók hann fálega i orð mín, spurði mig hversvegna hann ætti að líta eftir veiðimönnum sem hafa félagsskap af hrímþursum og hælbítum. En þegar líða tók á nóttina og eftir mikil átök við miðgarðsorm náði ég honum á mitt band með afburða dirfsku og snilldarveiðimennsku. Ég lofaði honum því að láta það verða mitt fyrsta verk að endurreisa hof honum til heiðurs og hnýta flugur sem guðirnir geta verið stoltir af. Þessvegna fer ég nú með sól í hjarta að fá mér nýja SAGE stöng sem ég á rétt á og horfi bjarsýnn fram á veiðiveginn.
Brútusarkvislingurinn Krumpi fær hins vegar 30 silfurpeninga frá mér til að kaupa sér betri græjur, ekki það a' hann muni veiða neitt því hann tilbiður falsguði.
And-anorexíu sjúklingurinn Gölli fær hins vegar ekki neitt nema auka fituslufsu sem hann getur límt framan á sína feitu sístækkandi vömb fyrir heimsku og göslagang. Er eitthvað erfiðara að brjóta stöngina í Drelliðavatni frekar en í einhverri fínni veiði sem hann mætir hvort sem er ekki í. Ú á Gölla og hans skósveina KÍB hornsíli og Tóta murtu, aka Tóti mittisvaðla.
En KÍB - fyrst þetta er svona einfalt - má Sírnir þá vera með?
Skellti sögunum undir ferðasögur. Voru komnar einhverjar fleiri?
Vá, Goggi Haralds bara Íslandsmeistari í lúdó!!! Ég hef ekki fyllst jafnmiklu stolti síðan Siggi Frútella varð Íslandsmeistari í pílukasti!
Íslandsmeistarinn í Carcassonne, Georg Haraldsson, hefur fært formanninum eitt eintak af spilinu að gjöf (sjá www.spil.is) . Þetta er frekar einfalt (Gölli getur verið með) en margslungið spil fyrir 2-5 þátttakendur sem tekur um 45 mín í spilun (ágætis tilbreyting við 6 tíma Risk). Spilakvöld verður haldið bráðlega, nánar auglýst síðar.
Labels: Veiði
Ég og Kolli og tveir aðrir froskar, Sindri og Tóti, fórum í veiðiferð í gær. Þar sem þetta var nú fyrsta veiðiferð sumars þá var töluverður hugur í mönnum og menn tóku allar sínar bestu flugur og stangir og dressuðu sig upp í vöðlur og veiðigalla í fullum felulitum, nú átti sko að sýna fiskunum í elliðavatni í tvo heimana!
Við Kolli mættum í hífandi roki og hitivar við frostmark, en hei, við látum ekki veður spilla góðri veiði. Kolli dró upp flugustöngina sína við bílinn(já, hann á tvær) og hnýtti flotta púpu á endann og skellti bílhurðinni á stöngina. Stöngin fór í tvennt og það komu margar hýenulátursgusur frá viðstöddum. Ein stöng farin og við ekki byrjaðir að veiða.
Eftir að Kolli var búinn að þerra tárin þá dró hann upp hina flugustöngina sína og passaði að halda henni frá bílhurðinni og við komumst útí vatn með heilar stangir. Við reyndum að kasta uppí 22 metra á sekúndu og mér meira að segja tókst að koma flugunni um 2 metra frá mér, í gegn um snjó og vind(já, það var farið að snjóa á okkur).
Þá birtast Tóti og Sindri, veiðifélagar dagsins. Tóti er náttla nýliðinn í hópnum og var með splunkunýtt veiðistöff, nýjar mittisvöðlur(hahahaha) og fokdýra flugustöng úr rúmfatalagernum. Tóti og dindill fóru að kasta og eftir um kortér var Tóti farinn að gráta. Við tékkuðum á hvað var að og viti menn, spánýja flugustöngin hans var brotin, hún brotnaði uppúr engu í öðru kasti. Hver hefði trúað því að veiðistangir úr Rúmfatalagernum væru ekki top-notch? Anyways, hálftími liðinn og tvær stangir brotnar.
Eftir að við vorum búnir að stríða Tóta í smá stund fór hann aftur að gráta og hringdi í konuna sína til að klaga og lét hana sækja sig. Við hinir sem eftir vorum létum mótlætið ekki á okkur fá og færðum okkur um stað þar sem var aðeins meira logn. Við fórum að kasta eins og herforingjar og urðum meira að segja varir við fiska og þetta fór nú að verða spennandi. Ég var í miklu stuði og var handviss um að veiða fisk þegar ég heyri að Kolli er aftur farinn að skæla við hliðina á mér. Hann stóð útí vatni uppað mitti með brotna stöng og grét eins og lítill grís. Ekki veit ég hvernig hann kretaði þessu svona gjörsamlega, en allavega þá var staðan orðin eftir um einn og hálfan klukkutíma í veiði: þrjár stangir brotnar, enginn fiskur og helmingur veiðifélaga grátandi.
Við ákváðum að snúa heim eftir þessi átök, enda var vatnið farið að leggja og við vorum ekki með ísborunargræjurnar okkar.
Dúd hvað þetta var krappí veiðiferð og fer hún í annála Vonlausa Veiðifélagsins sem Vonlausasta Veiðiferð allra tíma.
Ég verð að vera sammála Svenna hérna, eftir þessa veiðiferð hlýtur Kolligölli að fá titilinn yfir-beikon og kretíndvergur félagsins.
Annars krefst ég frétta af fystu kastæfingu Íslandsdeildarinnar. Almannarómur segir að sjaldan eða aldrei hafi viðrað jafnvel til silungsveiða og einmitt í gær.
Aflaklóin setur í fyrsta fiskinn
Til þess að sýna samhug með ykkur hélt ég til silungsveiða klukkan 11 síðastliðin laugardagsmorgun. Þið kapítalistasvínin vissuð það sjálfsagt ekki en sá dagur var einmitt fyrsti maí, frídagur verkalýðsins. Það vildi svo stórkostlega til að í því er ég gekk út og gerði mig kláran til að hjóla upp í Bymarka kom lúðrasveit verkalýðsins strunsandi niður götuna mína með Nallann í fullu blasti, bassatromman á óverdræv og alles. Þar sem hjartað í mér slær svo sannarlega vinstra megin fyllti þessi sjón mig þvílíkum krafti að ég sprautaði eins og ég vær með sinnep í rassgatinu upp brekkurnar sem liggja að skóginum.
Í Bymarka eru mörg sæmileg veiðivötn og hef ég nýlega fjárfest í árskosti með veiðirétt í 20 vötnum. Borgaði ég heilar 250 krónur norskar fyrir, sem gerir ca. 2500kall. Helsti gallinn við að veiða þar er að skógurinn liggur í ca 400 metra hæð yfir sjó og það tekur svo sannarlega á að hjóla upp brekkurnar, sérstaklega þegar veiðihugurinn (og verkalýðssöngvar) keyra mann áfram. Þar að auki er stígarnir oft þröngir og brattir og trjágreinar, rætur og allskyns skógardrasl gera það að verkum að maður fer ekki sérstaklega hratt yfir. En allavegana, eftir klukkutíma puð kom ég að fyrsta vatninu, Lykkjdammen, þar sem ætlaði að byrja yfirferðina. Það var svo til blankalogn og bongóblíða þannig að ég settist niður til StefánJóna, eða Skítsteina eins og sumir kallaða, í smástund.
Að StefánJóna er að vera, eða þykjast vera, svo mikið náttúrubarn að í staðin fyrir að hlaupa út á bakkann og byrja að kasta í gríð og erg um leið og maður kemur að vatninu sest maður niður með spekingssvip, lætur angan náttúrunnar fylla öll vit, tárast yfir mikilfengleikanum og fleira í þeim dúr. Sem sagt, taka sig svo alvarlega að helgislepjan hreinlega drýpur af manni. Þetta hefur þann kost í för með sér að oft á tíðum verða fiskar svo leiðir á að bíða eftir að vera veiddir að þeir taka að hopp upp í loftið til að vekja athygli á sér, þannig að þegar maður loksins dettur út úr StefánJón transástandi veit maður upp á hár hvar í vatninu fiskarnir halda sig.
Þegar ég hafði transað í kortér án þess að sjá svo mikið sem einn hring á vatninu ákvað ég að þetta vatn væri steindautt og hélt ferðinni áfram.
Á leið minni að næsta vatni hitti ég gamlan kall sem sagði að í Holtsdammen væru stórir og flottir fiskar. Hohoho hugsaði ég, ekki þegar ég verð búinn að veiða þá alla! Þegar ég kom að vatninu sá ég tvo aðra veiðimenn þenja köstin og hugsaði sem svo að fyrst heimamenn væru að veiða þarna hlyti að vera fiskur. Veiðimennirnir reyndust vera börn á leikskólaaldri að kasta steinum í vatnið. Þegar ég hafði setið þar á bakkanum í smástund og StefánJónað þóttist ég sjá hreyfingar öðru hverju undir yfirborðinu. Ég setti því saman stöngina og hóf að kasta. Og kasta. Og Kasta. Ég kastaði öllu sem ég átti, púpum, votflugum og straumflugum. Ég var meira að segja farinn að kasta durrflugum þegar norskur kall kom labbandi og sagði mér að það væri vonlaust að fá neitt í þessu vatni, það hefði komið undan ís fyrir viku og það væri ekki séns að fiskarnir væri komnir á hreyfing. Þar að auki væri ég hálfviti að reyna að kasta þurrflugu þegar það væru engar yfirborðstökur í gangi. "En ég sá fisk áðan HA" sagði ég. Þá benti hann mér á að skoða vatnið aðeins betur. Þegar næsta hreyfing kom á vatnið sá ég að það voru fokkíng froskar í vatninu sem ég hafði verði að kasta á allan tíman.
Sneyptur pakkaði ég saman draslinu og hélt af stað í leit að betri veiðivatni. Ég barðist í gegnum skóginn, framhjá tveimur öðrum vötnum sem bæði voru jafndauð og þau fyrstu. Að lokum kom ég að litlu vatni djúpt inní skóginum. Eins og lög gera ráð fyrir Stefánjónaði ég í ca. 10 mínútur. Andstæett fyrri trönsum hjá mér fóru fiskar af stað í þetta skiptið svo ekki varð um vilst. Ekki froskar eða álar eða marbendlar heldur fiskar. Nú var ég svo sannarlega kominn í feitt! Sá galli var þó á gjöf Njarðar að þetta skógarvatn var gersamleg umlukið trjám sem gerði það að verkum að fluguköst, allavega fluguköst með bakkasti voru næsta ómöguleg. Þetta fékk ég að sannreyna þegar ég festi allar mínar bestu flugur hátt uppí trjám. Fiskarnir héldu áfram að hoppa, bara til að ögra mér þannig að ekki gat ég gefist upp. Mér tókst loks að koma línunni nokkra metra frá bakkanum með því að veltikasta. Svoleiðis köst eru tímafrek og asnaleg, allavega þegar maður er jafnlélegur í því og ég. Undrið gerðist engu að síður eftir að ég hafði baxað við veltiköstin í klukkutíma, ég fékk fisk! Yes Ladies, fyrsti norski silungurinn kom á land um þrjúleytið að staðartíma, urriði sem ekki vó meira en 200 grömm. Hann tók lítinn brúnan kúk sem ég hannaði sjálfur á sínum tíma í skúrnum hans kolla. Þið hlóguð að mér en ég vissi að hann myndi virka e-sstaðar! Who´s laughing now!! MÚÚÚhahahahahaha....já,eh. Skömmu eftri að fiskurinn tók var kominn heimferða tími á mig þannig að ég pakkaði saman og brunaði niður brekkurnar í bæinn, ennþá með Nallann sönglandi í eyrunum. Nú hef ég sannað að kommar veiða betur en hommar!
Þar sem fiskurinn var lítill sleppti ég honum aftur. Örugglega gott karma líka. Eða móðgaði ég kannski veiðigyðjuna með því að henda gjöfinni frá henni? Það kemur í ljós á eftir því að úti er 15 stiga hiti og glampandi sól og blíða. Ég ætla að hætta snemm að puða útí skóg! So long Suckers!!
Aflaklóin
2.5.04
Gaman væri að vita hvernig tókst til með fyrstu kastæfingu Íslandsdeildar fluguhóps VV. Ég var reyndar að pæla í því áðan hvað þetta er ótrúlega vonlaust félag, sbr. að brettadeildin er lang flugasti hópurinn og tónlistardeildin tekur veiðideildina meira að segja í þurran, búin að tryggja sér flug og miða á T in the park.
Annars kíkti ég á Hekli í gær. Spáin stóðst ekki frekar en fyrri daginn og þetta var svona lala. Við vorum hinsvegar ógurlega snjallir og tókum með okkur sleða, það voru nebbnilega bara sofnir 3-4 tímar þá nóttina. Vegamót voru skemmtileg. Kaffibarinn er ekkert skemmtilegur lengur.
Í gær heyrðist snilldarsetning á borð við "Við erum hérna við Heklurætur" frá hinum bílnum og svo 3 tímum seinna "Djöfuls þoka - við erum fastir í skafli - hvar er þetta fjall eiginlega?"
1.5.04
...og svo þarf maður greinilega einnig að æfa sig í "Snappy comebacks" listinni og jafnvel einnig "Snappy comebacks to snappy combacks"... samanber svar Göltsins.
Maður á greinilega langt í land...
Skoða eldri færslur >>

