30.6.04
Ég er ekki að gera neitt af viti né Guði til dýrðar.
Gölli bað mig að fylla inn á síður VV á meðan hann er hjá fransbrauðunum.
Ekki meira í fréttum.
Kolli ætlar að sjálfsögðu á Landsmót hestamanna á Hellu vegna þess að hann vonast til að sjá centaur. Eitthvað misskilið þetta greyið, nennti ekki að leiðrétta hann á MSN áðan. Svo lengi lærir sem lifir. Sírnir eyðir helginni í að læra á "fram og aftur" stöngina í sporvagni. Ætli ég slappi ekki aðeins meira af. Helgarnar hjá mér eru yfirleitt svefn frameftir og dagur í móki. Ég er soddan aumingi að drekk ekki einu sinni brennivín til að koma mér í þetta ástand. Það er illa komið fyrir okkur.
29.6.04
Leitt fyrir Gallana en gott fyrir Gölla að hann er klifurgöltur en ekki villigöltur. Annars yrði hann snæddur a la Bárðardalur, klaufir, trýni og litli hringaði halinn. Annars veit maður aldrei hvað fransmaðurinn tekur upp á.
Kolli Kóngur er nú kominn með mottó, á frönsku að sjálfsögðu vegna þess að hann er faggi. Það er svohljóðandi: Excrétez à la maison.
Sindri fékk lika sitt sem er þó meira lýsandi og að sjálfsögðu á þýsku þar sem hann er keisari. Það er svohljóðandi ef ég man rétt: Morgen, morgen nür nicht heute sagen alle faulen laute.
28.6.04
Lýðræðið er langt frá því að vera fullkomið stjórnarfar og kosningar helgarinnar leiða í ljós einn aðalakkilesarhæl lýðræðis. Vandamálið sem hlýst af því ef allir atkvæðisbærir menn mæta ekki á kjörstað eða eins og núna, gefa skít í frambjóðendur með því að skila auðu. Fyrir mitt leyti þakka ég fyrir að trúðarnir Ástþór og Baldur eru ekki forsetar. En það verður engu að síður að kyngja því að Óli er réttilega kjörin forseti.
Hið fullkomna stjórnarkerfi er að sjálfsögðu upplýst konungsveldi sem útilokar um leið konunga norðurlanda. Ég legg til að Kolli verði konungur Íslands og ekki af því að hann er svo upplýstur. Heldur vegna þess að hann á Harry Klein jakka sem gerir hann að Kónginum. Sindri er enn formaður og keisari VV sem verður undanþegið gerræðislegum ákvörðunum Kolla enda er nóg að hafa einn slíkan. Lifi Kóngurinn og lifi formaðurinn.
Þessi staðhæfing er jafn gild eða jafn fáránleg og reiknilistir KÍB. Síðan hvenær hafa þeir sem nenna ekki að mæta á kjörstað verið teknir með í reikninginn? Ef svo væri þá getum við séð að núverandi ríkisstjórn er ekki með nema 45,1% á bakvið sig.
Er hægt að segja að forsetinn sé sameiningartákn þjóðarinnar þegar einungis 42,5% atkvæðabærra manna styður hann?
25.6.04
Síðan vill ég bara leiðrétta þennan leiða kavíarsmisskilning. Kavíar er góður og Graðni og Skabbnús eru bara heimskir ef þeir kunna ekki að meta hann. Ef Graðni ætlar að halda því fram að fituslímslufsurnar sem hann mætti með í Djúpavatn hafi verið eins og maturinn okkar þá er hann geðveikari en ég hélt, en það er náttúrulega lýsandi dæmi um fonsku hans að hann er ennþá kvartandi yfir því að fólk fær sér meðlæti með mat sem honum finnst alveg forkastanlegt.
24.6.04
Ef þið eruð að tala um vondann mat í VV ferðum þá á Kolli pottþétt vinninginn með viðbjóðslegu kavíarviðbiti.
Ég kom hins vegar með þær bestu veigar sem sést hafa í ferðum VV eða hina margrómuðu Norðursjávarolíu sem rann ljúft niður. Ef þið farið vel að mér get ég kanski reddað meiru fyrir Kollabúðaferðina.
Að síðustu vantar mig að vita hvar Master-sporvagnabílstjórinn býr í Jamtalandi svo hann geti komið á vagninum í brúðkaupið hennar Önnu.
Eða eruði knaski að reyna að slá ryki í augun á mér og bregða fyrir mig fæti, vitandi það að ég slæ ykkur við í veiðiskap any day of the week. Þannig hæðist þið að eldamennsku minni í því skyni að græta mig svo að ég verði afhuga Kollatrúða ferðinni. HAHAHAHA ykkur verður ekki kápan úr því klæðinu, enda er ég ekki búinn að vera aflakóngur VV frá ómunatíð fyrir ekki neitt. Þið getið étið úldið smér og dálítið af bandi (hommavinurinn andri) alla helgina fyrir mér.
Og þurrkuðu mannaskankarnir sem Hrokafulli vísundurinn keypti í Borgarnesi geta vart talist matur, enda þurfti að marinera hann í sýru til að fólk gæti troðið þessu í sig.
En talandi um þessa ferð þá þarf ég endilega að sýna ykkur myndirnar sem ég tók af rækjutippum Kollum og Fabíans eftir að reynt var að stökkva í hylinn og handveiða fiskinn...
23.6.04
22.6.04
Jójó faggar. Nú er komin tímasetning á Kobbabúðir:
HELGIN 5. TIL 8. ÁGÚST (fimmtud. - sunnudags)
Ég verð fyrir vestan þessa viku og þið mætið svo bara á svæðið. Allir að mæta, þeir sem mæta ekki verða reknir úr klúbbnum. Svo fægiði stangirnar, kastæfingar fyrir vinnu og hamstrið bjór, cause wer're goin west!
...hemm - Frelsi.
Sírnir úlfaperri.
Þess má geta að nýr vefur vísis er hægvirkari en KÍB!
Svo virðist sem einhverjir óprúttnir aðilar hafi stolið nokkrum gömlum myndum af rauðu hættunni í auglýsingaherferð fyrir fyrirtæki hér í bæ. Ein er reyndar nýleg, þar er allt hár farið...

21.6.04
Kíkti aftur með Ásu í hamarinn í kveld. Klifraði Eilífinn tvisvar eða þrisvar í gærkveldi og bara varð að fara og leið'ann. Það tókst með ágætum og gekk bara smoov. Ása fór sömu leið í top-rope, þ.e. Eilífur var ekki hér (5.8), sem hlýtur að teljast nokkuð gott á klifurkveldi #2 hjá henni, þannig lagað. Hún leiddi líka einhverja létta leið sem er þarna lengst til vinstri, kannski 5.4 eða eitthvað.
Fínt kveld í hamrinum.
Annars rakst ég á góða grein eftir Terry Jones um pyntingar á hinu alvitra alneti.
Mér finnst seytjándi júní leiðinlegur. Bestu þjóðhátíðardagarnir mínir í minningunni - eða að minnsta kosti þeir eftirminnilegustu eru: 1)Misheppnuð 6 tíma tilraun til að komast inn að Glymi um gilið í brjáluðum vatnavöxtum, systir hans Rúnars puttabrotnaði og Heiða drukknaði næstum. 2) Jarðskjálftinn, ég var á táslunum í Hljómskálagarði og fann þetta þvílíkt vel 3) Eitthvað minnist ég þess að hafa verið á fylleríi með Kolla og fleiri góðum mönnum að morgni 17 einhvern tíman. Menn geta kannski komið með einhverjar góðar sögur af Sírnismessum og útskriftum, ég er orðinn svo kalkaður að þetta lekur allt út.
Nema hvað, í seinni tíð hef ég yfirleitt verið að rigga tjöld og drekka Magic niðri í bæ á þessum degi. Sem er fínt. Því að hátíðarhöldin eru LEIÐINLEG. Fullt af fólki með barnavagna að kaupa blöðrur og svona. Úbbs - þarna móðgaði ég 90% félagsmanna. Hahahaha.
Þannig að...
...ég drullaði mér út úr bænum að þessu sinni. Bauðst ágætis ferðaplan. Ég, Hemmi og Eva röltum upp á Fimmvörðuháls á fimmtudaginn, sváfum þar og fórum svo yfir á tind Eyjafjallajökuls á föstudaginn, Hámund, sem ég held að sé 1666 metrar. Síðan gengum við niður á Seljavelli og fórum í sund og þannig. Mjög fín ferð.
Svo var maður á leiðinni í byen á föstudagskveldi þegar raðirnar af bílum með skuldahalana aftan í (fellihýsin) streymdu út úr bænum. Skrýtinn fílingur.
Síð-menning?
Kíkti síðan í fínt prattí hjá Braga, sem Kolli mátti víst ekki koma í, með Adda, Sibba og fleiri góðum mönnum. Valli er tekinn við hlutverki Kolla og slær hann gjörsamlega út. Fyllri og skemmtilegri trúð hef ég ekki séð á ævinni. Bland af Lalla Johns og íþróttaálfinum. Snilld.
Síðan kíkti ég á Vegamót í gærkveldi, ekki fara þangað. Félaga mínum var pakkað saman og lúbarinn fyrir að kalla annan rekstraraðilann fífl, sem hann er. Allt löglegt þegar maður ræður yfir nokkrum dyravörðum virðist vera.
Að endingu fórum við Ása með Hrokafulla vísundinum og Súra Svíanum upp í Valshamar í dag. Það var frábó. Ása klifraði fyrstu 5.6 sína, ég klifraði Eilífinn og strákarnir tóku Sumardraum sem er 5.10c og það er bara alveg magnað!
Pics á Aski. Tælenski staðurinn þar sem Stélið var er snilld.
18.6.04
fyrir þá sem ekki voru búnir að sjá þá onaneraði ég vídeó um daginn
blink182ur
downloadið svo Basics.mp4 og spilið í quicktime, annars kemur bara texti, ég veit ekki hversvegna og nekki að laga það.
fígúran í myndbandinu er kópía af köllunum sem Benjamín teiknar, mér finnast þeir svo frábærir að ég bara varð að animera þá.
16.6.04
Eoe er með smá umfjöllun um nýjustu mynd Michael Moore og linkar m.a. á fínan trailer. Ótrúlega fyndið hvað menn eru að eipa af hræðslu við hana.
Þetta stríð er náttúrulega alveg kreisí og ég skammast mín fyrir að okkar ráðamenn ákváðu að hoppa á vagninn. Eflaust einu rökin að halda einhverjum djobbum á Suðurnesjum. Alveg eins og það voru bara hótanir kana um ógnina í norðri sem fengu Japani til að styðja þessa vitleysu. Og ráðamenn í Evrópu voru svo barnalegir að þeir föttuðu ekki hvað var í gangi.
Eru stríð bestu atvinnuskapandi aðgerðirnar sem mönnum detta í hug á "landsbyggðinni" - fyrir utan ál kannski? Vorum við ekki hlutlausir, Íslendingar, hér í denn? Þjóð án hers og það allt. Uss. EES, stríð, öryrkjar, Kárahnjúkar...
Ánægjulegt að þetta ákvæði sé að detta inn í notkun, þrátt fyrir að málefnin hafi oft verið afdrifaríkari. Að afsala hluta sjálfstæðis þjóðarinnar og löggjafarvaldi án þess að greiða atkvæði var skandall.
En ég er kominn út fyrir efnið.
Held að foreldrar ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir senda börn í útilegu með mér.
Litla frænka hennar Ásu var bara venjuleg stelpa en eftir síðustu helgi fílar hún sportklifur og Æjjjjron Maiden.
Stuð.
Ég vissi ekki að Gölli væri í þýska landsliðinu.
Ég skrapp upp í Drelliðavatn eftir leikinn í gær í ca. tvo og hálfan tíma. Talsverð hreyfing í yfirborðinu án þess að neitt liti við mínum flugum. Svo lentu þrír himbrimar á vatninu og hófu þvílíkan kafbátahernað allt í kringum mig og það var eins og allur fiskur hefði synt í felur, sá ekki eina einustu skvettu eftir að þeir mættu á svæðið.
Huggulegt í alla staði enda veður með besta móti.
15.6.04
...og Guantanamo Bay er í boði Amnesty.
14.6.04
1000 HEIMSBORGARASTIG!!!!!!
Ég er upptekinn næstu 4 helgar, fyrsta lausa er 15.-17. júlí. Gaman að því. Þannig að það þýðir kannski ekki mikið að stóla á að ég mæti. Annars finnst mér að Kobbabúðir ættu að vera annaðhvort 15-17 eða 22-24 júlí (veit ekki hvora við eigum) eða eftir Verzlunarmannahelgi.
PS - myndir á askinum frá hnjúknum fyrir þá sem hafa áhuga.
Nú þætti mér fróðlegt að vita hverjir hafa hugsað sér að koma og hvort menn hafi e-a skoðun á því hvaða helgi henti best.
Fór á Hnjúkinn á föstudaginn. Það var gaman. Loksins eftir hrakfarir leiðangranna árið 2000 og 2001 gekk þetta. Stóð reyndar á öðrum og flottari nágrannatindi 2002, sama dag og Skabbi, Retro og Kaur náðu 2.119 metrunum.
Frábært veður, steikjandi hiti og geðveikt útsýni. Fórum Virkisjökulinn sem er náttúrulega mesta töffaraleiðin, yfir 2 þúsund metra hækkun, jöklabrölt, ísbrekkur, meira að segja smá klettabrölt í þetta sinn og sprungur galore. Stuð.
Ása kom svo austur á föstudagskveld með Önnu vinkonu sína og litlu frænku sína líka. Laugardagurinn fór í hangs, sund, grill og chill í rigningu og skemmtilegheitum.
Veðrið var öllu betra á sunnudag, kíktum á Hnappó og klifum einhverjar leiðir. Ég sökkaði.
Fín helgi
11.6.04
later
10.6.04
DR. Jóli says:
ég þarf að skíta
DR. Jóli says:
þarf eiginlega að finna upp afsökun fyrir að fara snemma heim
[delta E] says:
hehehe
DR. Jóli says:
hahahahah
[delta E] says:
geturðu alls ekki skitið í vinnunni?
DR. Jóli says:
nei það er ekki séns
DR. Jóli says:
ég fer stundum heim til að skíta
DR. Jóli says:
og kem svo bara aftur
[delta E] says:
hehehe
[delta E] says:
ég ætla að blogga þessu samtali
DR. Jóli says:
hahahahaha
[delta E] says:
hehehe
DR. Jóli says:
hahahaha
ég þarf að skíta
DR. Jóli says:
þarf eiginlega að finna upp afsökun fyrir að fara snemma heim
[delta E] says:
hehehe
DR. Jóli says:
hahahahah
[delta E] says:
geturðu alls ekki skitið í vinnunni?
DR. Jóli says:
nei það er ekki séns
DR. Jóli says:
ég fer stundum heim til að skíta
DR. Jóli says:
og kem svo bara aftur
[delta E] says:
hehehe
[delta E] says:
ég ætla að blogga þessu samtali
DR. Jóli says:
hahahahaha
[delta E] says:
hehehe
DR. Jóli says:
hahahaha
Það er opinbert - Íslendingar eru orðnar algjörar fitubollur. Kannski er þetta næsta takmark að vera hlunkfeitastir miðað við höfðatölu. RjómaÍsland.
Samkvæmt frétt Mogga er meira en helmingur fullorðinna á höfuðborgarsvæðinu of feitur. Magnað.
Merkilegt líka hvað Vonlausa er undir þessu meðaltali. Það eru í raun engir nema Hrokafulli Vísundurinn og Skötuselurinn sem kljást við offitu.
9.6.04

Getiði hver er forsíðustúlkan á Ísalp í dag? Tjékk (Lifir náttúrulega bara 9. júní, eftir það skjámynd.)
8.6.04
Until the philosophy
which hold one race superior
And another
Inferior
Is finally
And permanently
Discredited
And abandoned -
Everywhere is war
[+]
which hold one race superior
And another
Inferior
Is finally
And permanently
Discredited
And abandoned -
Everywhere is war
[+]
Ef eitthvað af sokkunum sem lesa þessa síðu vantar íbúð til leigu þá er ein fín hérna hjá Brynna:
Björt og falleg tveggja herbergja íbúð í miðbæ Reykjavíkur til leigu frá og með ágúst/september til u.þ.b. tveggja ára.
Íbúðin er í tvíbýli í bakhúsi við Hallveigarstíg. Nýtt baðherbergi og nýleg eldhúsinnrétting; stofa og eldhús sérlega rúmgóð; þvottavél haganlega fyrir komið í skáp í forstofu.
Sjón er sögu ríkari. Myndir er að finna á heimasíðu okkar: www.askur.org/~brynjolf/hallveigarstigur/
Íbúðin er í tvíbýli í bakhúsi við Hallveigarstíg. Nýtt baðherbergi og nýleg eldhúsinnrétting; stofa og eldhús sérlega rúmgóð; þvottavél haganlega fyrir komið í skáp í forstofu.
Sjón er sögu ríkari. Myndir er að finna á heimasíðu okkar: www.askur.org/~brynjolf/hallveigarstigur/
Ok - þetta síson þá. Og hvaða götur?
Annars eiga allir að prófa núna að henda Vonlausa út úr Favorites (ég býst fastlega við því að ALLIR séu með það þar) og setja inn aftur. Loka síðan öllum gluggum og athuga hvort eitthvað gerist. Ef ekki þá er þetta amk. skemmtilegra en að vinna - right?
7.6.04
Hvar skrái ég mig í þessar ferðir? Eru fleirri áhguaverðar götur?
Ég náði þeim áfanga í gær að hafa brettað 21 dag í vetur - eða þrjár vikur. Þetta var nú meiri drazlveturinn.
Ég veit að KÍB, Spunge, samkynhneigða listaspíran, Pilsbury dough flæboj og prelli Pu eru allir týndir og tröllum gefnir. En hvar í fjáranum er Mjöðmin - síðasti móhíkaninn á vonlausa?
Það er orðið óþægilega mikið bergmál hérna.
Kíkti í sumó á föstudagskvel með Ásu til systur hennar, kallinum hennar og stelpunni þeirra. Flókið ekki satt. Kíktum út á bát á Álftavatn, borðuðum góðan mat og svona sumarbústaðaklassík. Sjitt hvað Landsbankinn á rosalega aðstöðu þarna.
Hjóluðum á laugardaginn upp á Úlfljótsvatn í heimsókn til Vesturbæjarskátanna sem voru þar í útilegu. AddiPu og fleiri góðir menn á svæðinu. Trambólín er snilldargræja. Langar í þannig. Og iPod og Canon Rebel og og og...
Snæfó
Síðan var blastað í Borgarfjörðinn, sofið, sólbað á sunnudagsmorgni. Þaðan á Snæfellsjökul því að Ásan var ekki alltof sátt með að hafa misst af snilldarhelginni síðustu. Sem við nálguðumst afleggjarann mættum við sjúkrabíl og nokkrum gaurum úr HSSR og hjálparsveitinni af Skaganum. Strákur sem lenti í því að óversjúta einn af stóru IPP pöllunum (ekki eitthvað sem þú vilt gera - bílív jú mí) og krassaði ansi illa. Fékk fyrirtaks þjónustu hjá strákunum og sjúkrabíl frá Ólafsvík. Var keyrður nokkur hundruð metra á góðan lendingarstað og síðan kom stóra þyrlan og skutlaði honum í bæinn. Vona að hann hafi ekki slasast alvarlega.
Gott að hafa alltaf haug af björgunarsveitafólki við hendina, ha...?
Röltum upp, nú var brettið á bakinu og ég þurfti að troða slóð. Það þýddi að metið síðan um síðustu helgi (60:31) stendur kirfilega óhaggað, var rúman einn og hálfan tíma í þetta skiptið. Færið var snilld, mjög slössí, og sólin alveg steikjandi þegar hún gægðist milli skýjanna. Enda er gölturinn eins og hann hafi gleymst á annarri hliðinni á grillinu í ca. 2 tíma.
Henti síðan brettinu inn í bíl og niðurhlíðaði Jökulhálsinn á hjólinu. Johnny Bob hvað það var rosalegt. Ég var 10 mínútum á undan Ásu niður, hún kom á eftir á bílnum. Rak upp öskur þar sem ég skrensaði við skiltið niðurfrá af einskærri ánægju og horfði svo skömmustulegur í kringum mig en sem betur fer varð enginn vitni af þessu.
Síðan fiskisúpa á Fjöruhúsinu (orðið vikulegt?!?) og brennt í byen. Snilldarhelgi, aftur. Magnað.
PS - hvar er Kolli?
4.6.04
En HÓ! áður en ég fór á tónleikana kíkkti ég í heimsókn til Marco, í nýju íbúðina hans að skoða. Þá tók ég eftir því að það var fáránlega vond lykt af mér, næstum því baklyktin vonda úr Stóru Laxá. Íslendingar eru ekkert búnir til fyrir svona hita eins og er hér (20°C) Ég sé fram á að verða að fara í sturtu 2 á dag í framtíðinni.
Það er leiðinlegt að leita að vinnu.
ég kann ekki á Svenna vonlausakerfið svo ég gef múm: "yeah cool maður" fyrir tónleikana.
Labels: Tónlist
3.6.04
Skellti mér í ræktina í gær með kærunni. Hjóluðum frá West Coast yfir í nágrannabyggðalag að þessu sinni - Kópavog. Stefnan sett á Sporthúsið.
Fer venjulega í Þrekhúsið. Tækin þar eru drazl - búin að vera þau sömu síðan fyrir ca. 4 nöfnum síðan. Amk. tíu ár. En þar er svitafýlan ekki föst í loftinu. Þar þarf maður ekki að bíða eftir öllu. Þar ríkir hómí fílingur. Þar er þolanlegt að vera.
Málið er að fyrir mér er það að fara í ræktina nessisarí ívil. Ég fer og pumpa til að búa mig undir hitt draslið sem ég er að gera. En fullt af liðinu sem er í ræktinni, sérstaklega augljóst þegar maður fer í Sporthúsið, er með þetta sem sína "íþrótt".
Inn vil ek
Þá skulum við alveg láta vera að tala um liðið sem kaupir sér kort, EAS, Rip Fuel, mætir á hlaupabrettið klukkan hálf sex á fastandi maga og hleypur þangað til það ælir. Fer svo og étur búrger, franskar og diet kók í hádeginu. Hættir að mæta eftir 2 vikur. Búið að eyða nógu púðri í þau.
Ekki heldur fólkinu sem spólar á þrekstiganum dáleitt af sjónvarpinu. Hreyfir lappirnar ótt og títt um ca. tommu með svip eins og úr einhverri framtíðarhryllingsmynd. Alveg tómt. Ekki það heldur.
Ég er að tala um gaurana sem mæta þarna til að pumpa dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. Bara til þess að...
...pumpa?
Þetta er ekki svo gaman. Af hverju finna menn sér ekki einhverja skemmtilega íþrótt til að æfa? Kræst. Hanga inni í einhverri svitafýlu tásveppa líkamsrækt allt sumarið og pumpa.
Svo er geðveikt fyndið líka að það er komin upp stór kynslóð af rosa sterkum LÚÐUM. Fullt af einhverju bólugröfnu ógeðspakki sem er greinilega búið að taka ræktina alvarlega. Ætli þetta lið stökkbreytist í bólugrafnar moldvörpur með sortuæxli eftir ljósabekki?
Hvað á þessi leti að þýða?
2.6.04

Í gær var ég búinn að grilla 8 daga í röð (tja, reyndar mínus einn dagur þar sem það má ekki grilla á fæðingardeildinni). Mæli sérstaklega með hamborgurum úr Gallery Kjöt (reyndar er allt þar gott), 110 gr. fyrir börn og 170 gr. fyrir fullorðna. Ekki klikka á hamborgarasósu með hvítlauk, hrein snilld!.
...miðvikudagur.
Skoða eldri færslur >>

