30.7.04

Kisan er á batavegi og líðan hennar er góð eftir atvikum en hún er þó enn í miklu uppnámi.
Hún kann Gölla og félögum miklar þakkir fyrir að ekki fór verr.
::Mósagrís skeit klukkan 14:53 30.7.04 ::

Hér í Svíþjóð tókst fanga sem er dæmdur í lífstíðarmestaöryggisfangelsi að smyggla in vélbyssu og skjóta sér leið út ásamt 4 öðrum háöryggisföngum. í kjölfar þess hefur mikið verið skrifað í blöðin og undarleg þótti mér fyirsögnin "Fangelsi eiga ekki að vera óúrflýjanleg" Ég las reyndar ekki greinina. En ég skil að fangarnir verði svolítið pirraðir í þessum hita sem er hér, hér er ljómablíða og mann langar að vera úti, en þá er svo heitt að það er ekkert hægt að gera, en það er svo heitt að það er ekki hægt að vera bara kyrr, en ég hef ekkert að gera og ekki fer ég að rúnka mér úti á túni, því það er það eina sem mér dettur í hug að gera núna. Ég fer kanski bara út á svalir og rúnka mér þar. Ég vona að kötturinn hafi ekki beðið varanlegan skaða af því að blotna.
::The Satan of Death skeit klukkan 12:39 ::

War is hell!
Sjitt mar.........björgunarsveitin bjargaði þrem úllingum sem voru fastir á umferðareyju í Breiðholtinu, fengu neyðarkall því að gamall maður hafði fest The English Patient í vídjóinu sínu og lítil kisa blotnaði og þurfti aðhlynningu.

Í guðs bænum munið að kaupa flugeldana ykkar af Björgunarsveitunum, það er ekekrt sem býr mann undir þetta!

P.s. ég er búinn að redda kickass díl á flotta flugelda(líka þessa ólöglegu), talið við mig ef ykkur vantar alvöru bombur.
::Mósagrís skeit klukkan 09:28 ::

28.7.04

Je arrete de dance
Finndu muninn á myndunum
::Hívatha litli skeit klukkan 23:22 28.7.04 ::

Hreðavatn
Kíkti í bústað við Hreðavatn. Eftir að hafa horft á vatnið hvítfissandi í þrjá daga lægði í gærkvöldi og ég kíkti út með stöngina. Nokkrir kvartpunds urriðar féllu fyrir Black Ghost, Peter Ross, gylltri púpu með kúluhaus o.fl. flugum. Allt í allt dró ég um 10 fiska á land og fóru þeir flestir beinustu leið aftur út í vatn sökum smæðar. Þó var einn sem var um hálft pund (lesist tæpt pund) sem var flakaður. Ágætis kvöldstund en veiðin hefði að ósekju mátt vera stærri.
::KÍB skeit klukkan 17:44 ::

Gölli er sveittur grís í jakkafötum sem nagar drjóla.

Sjitt hvað ég var orðinn þreyttur á að hafa þetta ömurlega flugeldablogg efst, varð bara að koma þessu frá!
::Mósagrís skeit klukkan 09:24 ::

24.7.04

Kaupiði flugelda af björgunarsveitunum takk - það er ekkert sem býr mann undir svona helvítis rugl.
::Hívatha litli skeit klukkan 03:21 24.7.04 ::

23.7.04

Samsæri
GSM - það er til 3 kynslóð af þeim. Þeir eru óhollir. MSG er líka óhollt, og þar er kallað 3 kryddið. Ég finn lykt af samsæri. GSMSG...
::Hívatha litli skeit klukkan 12:50 23.7.04 ::

Hvernig veit ég samt að þetta sé ekki eitthvað plat þó að það sé mynd af honum þarna?
::Hívatha litli skeit klukkan 09:53 ::

Vá hvað þið eruð lélegir kvikmyndagúrúar. Þessi setning er úr myndinni True Romance, snilldarræmu í leikstjórn Tony Scott eftir handriti meistara QT.

Allavega þá komst ég að því að Kolligölli á sér aðra hlið sem við ekki þekkjum. Hann skrifar undir dulnefninu Guðmundur Svansson á sinni eigin heimasíðu um hitt og þetta. Sjáiði bara sjálfir ef þið trúið mér ekki.
::Mósagrís skeit klukkan 08:00 ::

22.7.04

Er Kolli hættur að vera dorritari?

Meiddist á mjöðm við að detta úr tröppu
Smiður datt úr tröppu niður á steinsteypt gólf einbýlishúss sem er í byggingu í Hveragerði. Maðurinn kvartaði undan eymslum í mjöðm og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um slysið um klukkan tólf á hádegi.

Sjá www.mbl.is
::KÍB skeit klukkan 17:18 22.7.04 ::

Já takk fyrir veglegar veitingar. Kolli er píka og mig langar til að skrifa FISTA það er ekki svo oft sem maður kemur því að en nú þykir mér viðeigandi að skrifa það. FISTA
þetta var gott, ég endurtek ánægunnar vegna. FISTA
og einusinni enn svo að börnin verði ekki hrædd. FISTA
::The Satan of Death skeit klukkan 16:34 ::

Brímbrímbrím endurnýjaði aðganginn sinn undir því yfirskini að hann ætlaði að hrauna yfir Kolla. Nú verður fróðlegt að sjá hvort hann stendur við stórum orðin...
::Hívatha litli skeit klukkan 15:32 ::

Hýenan ólm vill haglara munda
hótar mönnum að skjóta sem hunda.
Runnið er á ræksnið æði
rennt hefur niður of miklu sæði.
::H.H. skeit klukkan 14:16 ::

Snilldarkveld
Gosi í góðum fíling að spjalla við PésúsVil þakka Spunge fyrir algjöran snilldarkvöldverð. Hefði getað étið endalaust af þessum magnaða grillfiski. Svo var algjör snilld að hitta Sírninn aðeins áður en hann hendist til útlanda aftur, líka Bigga og Gosa, sem maður hittir alltof sjaldan.

Líklega er ástæðan fyrir því hversu gaman var að KolliGölli kom ekki enda er hann algjör plága.

Ætlar svo enginn að svara kvikindagetrauninni hans Krumpa? Ég þurfti að svindla. Snilldargetraun.

::Hívatha litli skeit klukkan 09:59 ::

21.7.04

Þið eruð allir aumingjar og sérstaklega kvikindið Minki sem getur ekki skotið neitt. Kannski sjálfan sig í rassgatið. Hann blekkir ekki neinn með þessu Surviving the Game eða Hard target vitleysu. Hann er að hugsa Deliverance og þá sitja allir í súpunni vegna þess að hann á eftir að ríða öllu og öllum á Kollabúðum. Ég hugsa að ég láti ekki draga mig út í þessa vitleysu. Æ eint never líving þe sáþ.
::H.H. skeit klukkan 16:17 21.7.04 ::

Kolli hefur ljóta lund
liggur á og drekkur brund.
Dúndrar menn og drjóla nagar
dæmalaust sér illa hagar.
::H.H. skeit klukkan 14:50 ::

Og ein kvikmyndaþraut í tilefni dagsins:

"If I had to fuck a guy, and I mean absolutely had to.....I´d fuck Elvis."

Hvaða mynd?
::Mósagrís skeit klukkan 14:46 ::

Ég legg til að í Kollabúðaferðinni komi allir með haglarana sína og svo sleppum við Adda uppí dal með nokkurra klukkutíma forskot og förum svo að veiða hann a la Surviving the Game og Hard Target. 
Þar sem Addi er nú enginn Ice-T né Van Damme þá skulum við líka veiða Mittisvaðla til að hafa þetta aðeins fjölbreyttara.
::Mósagrís skeit klukkan 14:14 ::

Ét þú úldin hund og dálítið af trolli.
::H.H. skeit klukkan 13:53 ::

Nennir einhver að draga Adda Pu út á tún og skjóta hann eins og gamlan hund, ég held að allir hefðu gott af því.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:31 ::

Vá - það hlýtur að blæða úr hausnum á KollaGölla því hann var að fá nagla í hann. Bræðurnir bjóra...

Þetta eru svo sannarlega KolliGölli í leðurbuxunum sínum, Lói í batman búningi og Sveppur í kúngfú galla á leið í bryllupið hans Giggúsar. (Svartur klæðnaður eða smókíng sko...)
::Hívatha litli skeit klukkan 13:19 ::

Myndin af Þóri minnir mig á afar lélegu innileggi mínu og félaganna í söngvakeppni MR þar sem ég kunni ekki textann en bætti það upp með að fleyja hárkollunni sem ég bar afturfyrir mig í fallegum boga beint á hausinn á gítarnum hjá Þóri sem reyndi árangurslaust að hrista hárkolluna af. Ég á einmitt frábæra ljósmynd af mér í þvílíkri rokkstellingu, tvíhendi míkrafónsstadífið og lít út eins og ég sé að skíta á mig. Ég hugsa að ég skrái mig utanskóla hjá Mr næsta vetur til þess eins að geta tekið þátt aftur í söngvakeppninni.
::H.H. skeit klukkan 13:16 ::

Þetta er augljóslega ég, Skabbi og Gölturinn á leið í trúðkaup.

Krúmba svar var svo sem ágætt en að halda að ég sé Bruce Dickinson er svoldið langsótt.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:12 ::

Mér fannst mín lausn betri.
::H.H. skeit klukkan 13:08 ::

Hmm - aðferð Krumma að koma með vitrænt svar er mun betri en "allt er afstætt - gefðu mér bjór".

Krummi fær bónusbjór fyrir frábært en rangt svar.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:07 ::

kommon!!!!
Bruce Dickinson, Bruce Wayne og Bruce Lee!!!! Þeir eru að sjálfsögðu allir brúsar
::Mósagrís skeit klukkan 13:05 ::

Þú ert ömurlegur. Þú ert svo anal retentive að þú telur bara eina lausn vera til á gátunni, þín lausn.
::H.H. skeit klukkan 13:03 ::

Þetta er ansi langt frá hinu rétta en kannski svolítið langsótt fyrir þig að fatta þetta. Nú er spurning hvort Lói, Kobbi eða KÍB fattar þetta fyrstur...?
::Hívatha litli skeit klukkan 12:57 ::

Maðurinn lengst til vinstri er greinilega Þór Tryggvason sem var með okkur í MR. Hann hefur búið og starfað í BNA, Batman gerir það einnig, skuggamyndin er greinilega af David Carradine sem lék svo eftirminnilega í Kung Fu sem gerist einnig í BNA. Þannig að þessar þjóðsagnapersónur eiga það sameiginlegt að hafa búið og starfað í BNA. Þú skuldar mér bjór á bar.
::H.H. skeit klukkan 12:50 ::

Gáta dagsins
Hvað eiga þessar þjóðsagnapersónur sameiginlegt? Í verðlaun er bjór á bar í mínu boði...


::Hívatha litli skeit klukkan 12:22 ::

Sjitt hvað þið eruð gamlir og leiðinlegir
Eina sem sést á þessum vef eru einhverjar kellingasögur og hommaklám. Þið eruð ógeð!

I decree að í dag einbeiti sér allir að því að stríða Tóta mittisvaðla vegna þess að hann á mittisvöðlur og finnst gaman að naga drjóla. Þið megið líka stríða Kollagölla því hann nagara líka drjóla og Skabba því hann er skabbi.

Tékkið samt á þessu, nokkuð gott
::Mósagrís skeit klukkan 11:32 ::

20.7.04

Jammsa, fríið nálgast óðfluga eins og óð fluga og það verður sko góð fluga. Ég ætla í menningarreisu norður á Sigló og taka þar þátt í 100 ár afmæli síldarævintýris Íslendinga. Forsetinn og frú koma í heimsókn.
Ætla að gista hjá skyldmennum Línu og hitta ömmu hennar. Svo er annað sem er áhugavert núna. Ólafsfjarðarprestakall hefur verið auglýst. Óska eftir pros og cons frá VV. Einhverjir með góð tips og ráð varðandi pleisið. Þetta gæti vel gerst.´

Frakkland rúlar, hefur bannað Sharon að koma í heimsókn þar til hann útskýrir afhverju hann er svona heimskur. Þetta straff verður lengi.
::H.H. skeit klukkan 16:22 20.7.04 ::

Hvað - ertu einhver þroski? Heldurðu að Vonlausa sé ævisagan þín? Viltu hætta þessu hevítis einkabloggi undir eins!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:13 ::

Ekki allir skrítingjar hrósa og þakka yfirdrullurum að drulla yfir sig. En hér fyrir neðan er komið dæmi þess.

Um helgina hlóð ég garð úr torfi á Úlfljótsvatni og lét börnin leika sér. Mjög gaman og þá vitið þið hvað ég gerði. Gef þessu 5,8.
::H.H. skeit klukkan 15:52 ::

Hmm, reyndar hlýtur Karíus að vera orðinn gamall og mál að pissa á morgnana. Ég myndi klárlega gráða að fara úr rúminu 5.13C.
 
Annars kom Lói með alveg æðislega pælingu í gær. Að hlusta alltaf á New Jack Hustler þegar maður labbar inn í vinnuna. Blasta þetta, labba eins og hómí og hugsa með sér að allir séu algjörir maðkar. Þetta virkar víst fyrir hann. Ímynda sér að maður sé ekki sami nördinn og allir hinir meðan kallinn rappar;
 
Ya don't like my lifestyle? Fuck you!I'm rollin with the New Jack crew.And I'm a hustler.

::Hívatha litli skeit klukkan 14:36 ::

Hehehe - Mjöðmin er has been. Hail to Karíus og Baktus, nýja konungi yfirdrullara.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:01 ::

Ég vaknaði í morgun og steig fram úr rúminu (5,4)
Svo settist ég upp í bíl (5,6)
Svo gekk ég upp stigan í vinnunni (5,5)
Svo for ég upp á fimmtu hæð í mat (5,8+)
Svo tók ég lyftuna niður og fékk mér íste!
::Karius skeit klukkan 14:00 ::

Vil endilega taka fram að við Halldór erum alveg samstiga í málinu.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:13 ::

Valshamar enn á ný
Fór með Lóa í hamarinn og var það þriðji klifurdagur í röð. Fórum;
  • Eilífur er ekki hér (5.8) ég leiddi
  • Puttadjammið (5.8)
  • Slabbið (5.8+)
  • Einhverja útgáfu af leið #1 (sem er fáránleg)
  • Kristján X (5.4) en þar var áskorun. Ég leiddi á gönguskóm og því þurfti Skabbi að gera það á Tevum.
  • Leið hægra megin við Kristján sem vantar bolta í (Bara Skabbi)

Hittum manninn með góðlátlegu augun, Kidda kisu (hann er nýbyrjaður að klifra og gerði góða hluti), Steppo, Andra og Johnny Bob horny dog. Fórum ekki heim eftir miðnættið og morgunkaffið er ekki að virka.

Skyldu klifurdagar verða 4 í röð? Varla...


::Hívatha litli skeit klukkan 09:56 ::

Stórtíðindi í íslenskri tónlistasögu!
 
"We have to think of a name that's witty at first but becomes more annoying every time you hear it.... The B-Sharps!"
 
Sá í Mogganum í morgun að rakarakvartettinn The B-Sharps eru að koma til landsins.  Ég ætla ekki beint að fara á tónleikana enda hef ég verið mikill aðdáandi frá upphafi.  Hómer er náttlega minn maður en það verður líka forvitnilegt að sjá Apu læv.  Djöfull hlakka ég til!
 
"Baby on board, something somthing, Burt Ward." "Hey, this thing writes itself!"
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:29 ::

19.7.04

Ósinn farinn að gefa!
Í Mogganum á laugardaginn er sagt frá því að 12 punda sjóbirtingur hafi veiðst í Baugstaðaós og hér er talað um einn 10 punda.
::KÍB skeit klukkan 14:40 19.7.04 ::

Er Sírnir til í alvörunni eða er hann mýta eins og goðsagnaveran Pésús?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:45 ::

Helgarferð til útlanda
Það er bara ekkert voðalega leiðinlegt að búa á Íslandi þegar veðrið er svona. Þvílík snilld. Fórum til Þingvalla á föstudaginn, burritos og chill. Bleytti aðeins færi og reif upp helling af murtu sem fór sömu leið til baka, nenni ekki að hirða þetta.

Yfir daginn á lau/sun var svo klifrað á hinum frábæra klifursvæði í Stardal. Þar var bara hlýrabolaveður og fínerí. Klifruðum slatta þarna á laugardaginn, í Leikhúsinu og austustu hömrunum. Leiddi aðra 5.3, ónefnda, hélt reyndar svo lengra áfram og endaði í leið sem heitir Einhyrningur. Hjólaði svo til baka á Þingvöll. Í gær leiddi ég 5.4 sem heita Flögurnar. Það var algjör snilld. Freysandi leiddi svo Skrámuna og Lucifer sem eru báðar 5.8. Held að ég geri það ekki alveg á næstunni, nógu snúið að elta upp þær.

Svo var bara tælenskur matur úti á svölum í gærkveldi og enn heitt. Magnað. Algjör útlönd. Tékkuðum líka á Lost in Translation, mæli með henni. Soffía frænka hans Nikka Búrs er bara algjör snillingur. Ekki var Virgin Súisæds síðri. (Hmm - ætli það sé eitthvað skot á bandið hans Sírnis?)

Nema hvað - 1 stigs bruni á öxlum og almenn hamingja með helgina.


::Hívatha litli skeit klukkan 10:27 ::

16.7.04

Gírnir hefur aldrei áður ritað neitt jafn gáfulegt á síður Vonlausa...
::Hívatha litli skeit klukkan 18:29 16.7.04 ::

::The Satan of Death skeit klukkan 16:04 ::

::The Satan of Death skeit klukkan 15:49 ::

Uss, uss. Kallar mig heimskan. Hann belgir sig út Bárðdælingurinn.
 
Vitleysu skrifar í Vamm
vegur að ljótu fóli.
Veit ekki lengur sitt vamm,
varla bjóst'ann við hóli?
::H.H. skeit klukkan 14:33 ::

Krummahlátur? gastu ekki einu sinni hlegið að þessu sjálfur?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:02 ::

Nanana-bubu - Skabbi er í fýlu - hehehehehehe (lesist sem Krummahlátur)
::Hívatha litli skeit klukkan 13:50 ::

Neinei Addi minn, heimska þín er ekkert til að hvá við að þessu sinni. Þessu var frekar beint gegn Geltinum. Búllshitvélin í honum virðist hafa hrokkið í gang þegar þú opinberaðir að ég hafi skrifað gegn sjálfstæðisFÓLI í sorpritinu VAMM (gegn betri vitund, I might ad) og talið að þar með hafi ég ráðist gegn sjálfstæðisFÓLKI og umturnaðist í bræði. Geltinum bendi ég á að fólk og fól þurfi ekki endilega að vera það sama, þó að það sé það svo sannarlega í hans tilfelli. Einnig bendi ég honum á að hyggilegt hefði verið fyrir hann að óhreinka sálu sína með lestri á sneplinum, áður en hann gasprar mjög um innihald þess.

Lítill fugl sagði mér að Sírnir hefði lent í gær, enda fór þá strax að rigna.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:41 ::

*Slef*
::Hívatha litli skeit klukkan 13:17 ::

Hver er vitlaus? Ég er ekki vitlaus.
 
Kolli sagði mér að Gruslan væri mætt á skerið. Hef ekki heyrt hóst eða stunu frá honum. Sennilega er hann að taka bað/grill kombóið í Hafnarfirðinum.
::H.H. skeit klukkan 12:00 ::

Flottur nýi editorinn. Ég vil samt benda mönnum á að það er;
 
Dauðasök að nota fontaskipanir í editornum - hvorki má nota font sé size!
 
Sjitt mar - Osama bin Laden er ekki góður kall. Saddam er leiðindapúki. Kim Jong Il er algjör kretín. Og já, Dabbi hegðar sér eins og fífl þessa dagana. Það hefði ég nú ekki fattað ef Skabbi hefði ekki bent á það. Þvílíkt innsæi.
 
Lói leiðinlegi 2
Talandi um Lóa leiðinlega. Djöfuls drasl er þessi mynd. Mér finnst geðveikt gaman að fara með Ásunni minni í bíó, annars hefði ég verið verulega fúll. Segi bara eins og uppáhalds krakkhausarnir mínir - don't bílív da hype...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:37 ::

vá hvað þú ert vitlaus
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:58 ::

15.7.04

Mikið er ég sammála þér.

Ætli Skabbi dissi ekki Sjálfstæðismenn í skítableðli af því að 1) hann þorir ekki lengur að dissa vini sína á VV því þeir eru alltaf að stríða honum og 2) það er í tísku að sparka í liggjandi mann og 3) sjálfstæðisflokkurinn getur ekki svarað fyrir sig.

Hvað er næst? Dissa framsókn?
::Hívatha litli skeit klukkan 16:57 15.7.04 ::

Íslendingar eru svo skrítnir. Allstaðar í heiminum er golf íþrótt efri millistéttar og auðugra. Að stunda golf erlendis er rándýrt og mikið gert til að halda því þannig svo að sauðsvartur paupullinn (Kolli er gott dæmi) sé nú ekki að skíta út flatirnar. Íslendingar hafa hinsvegar gert þetta að almenningssporti en reyna síðan að kreista upp á lýðinn einhverskonar yfirstéttarklæðnaði. Uppreisn er að fullu réttlætanleg í þessu tilviki. BNAnanar og Ísrael tala um réttinn til að verja sig. Hér eiga sömu rök við að styðjast.

Sem minnir mig á ummæli hans ráðherrans Benjamíns Netanjahú í Ísrael við dómi Haag-réttarins um að það væri ólöglegt að kúga, drepa og fangelsa fólk eins og ríkisstjórn Ísrael gerir. Hann kom með þessar snilldar samlíkingu: "Ef að þeir (Haag-rétturinn) segðu að jörðin væri flöt. Þá væri það ekki löglegt, það væri ekki sannleikur né væri það réttlátt." Þetta er svo heimskulegt að það er ekki einu sinni hægt að kalla það hundalógík. Ætli það sé skemmtilegt að vera svona bilaður?

Að lokum...

Afhverju er Skabbi að skrifa á móti sjálfstæðisfóli í skítableðlinum Vamm?

Johnny Bob?

Mynd af Nils Narby á vef VV?
::H.H. skeit klukkan 16:38 ::

Ég á samt metið. Ég er mest hardcore. Ég hef séð mynd af mömmu og pabba að horfa á Mont Plankann úr fjarska. Jeeessss.

Ég fór líka til Akureyrar í seinustu viku og var það ljúft. Ég slappaði svo mikið af að ég lamaðist hægra meginn.

Munið þið eftir þegar ég lék fatlaða gaurinn í hjólastólnum. Talandi um að lifa í afneitun, ég áttaði mig á því fyrst í gær á því að það er annar búinn að taka krúnuna af mér og "hásætið". Heppinn. Muhahahahahah.
::H.H. skeit klukkan 16:09 ::

Golf
Pælið aðeins í þessu;

Mælst er til þess að kylfingar klæðist snyrtilegum golfklæðnaði. Gallabuxur teljast ekki golfklæðnaður.


Golfari í fullum skrúðaÞað verða allir að vera í skólabúning í golfi. Svo allir séu jafn miklir lúðar. Ok, mér finnst reyndar mjög jákvætt þegar fólk drullast upp úr sófanum og gerir eitthvað, jafnvel þó það fari og fái sér búrger, labbi svo 5 km með golfkylfur, éti snickers og kók á leiðinni, og komi svo við á Olís í bakaleiðinni og fái sér beikonpylsu.

En hvað er með þessa stæla? Þeir eru að reka krakka af æfingavöllum fyrir að vera í joggingbuxum. Það má sko ekki vera í buxum sem eru ekki með vösum eða með rönd. Bara fötum sem krakkar eru barðir fyrir að vera í þegar þau eru í skólanum, þ.e. frútt of ðe lúm bol og sparibuxum. Johnny Bob hvað þetta er glatað. Svo eru einhverjir gamlir skápar þarna að amast við öllum sem eru ekki jafn miklir karlfauskar og þeir.

Af hverju þarf alltaf að skemma það að leika sér með asnalegum reglum og leiðindum? Ég hafði nú alltaf hugsað mér gott til glóðarinnar að tékka á golfinu þegar maður þreytist á klifri, mótorhjólum og þessháttar (nb. þá klifraði afi það fjall sem er lengst frá miðju jarðar, Chimborazo (6310m), þegar hann var 69 ára og sló hæðarmet Íslendinga í leiðinni, þannig að ég á vonandi eitthvað eftir).

En nú hafna ég golfi algjörlega af skítamóralslegum sökum, enda eru sport þar sem þú þarft fleiri en eina kúlu skemmtilegri á allan hátt.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:51 ::

Ekki svona lítillátur, ekki bara Kiddi og Brynni heldur líka Kolli með gerivmjöðm. En hann komst upp öll þrepin kallinn, á pjúra þrautseigju!
::Hívatha litli skeit klukkan 13:17 ::

Ferðasaga Gölla
Ég massaði svona 10 þrep í stigann upp í kláfinn. Síðan þegar upp var komið þá steig ég alveg 30 skref til að komast að útsýnisskífunni og tók þvílíkt framúr blindum manni í hjólastól og sykursjúkum offitusjúkling.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:13 ::

Uss - ekki kjafta ;)

Og það er náttúrulega þess vegna sem afreksmennirnir Kolli Mjöðm, Brynni og Kiddi ætla ekki að massa þetta - því þetta er ekki nógu hardcore?
::Hívatha litli skeit klukkan 12:47 ::

Ég hitti Brynna og Kidda um daginn og þeir sögðu mér að það væri kláfur upp á Mont Blanc og hvaða lúði sem er gæti farið upp á topp.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:44 ::

Svenni og Sindri eiga sína eigin heimasíðu
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:42 ::

Mont Blanc
Myndirnar af Blancnum eru komnar á askinn...

Planið var nú að skrifa einhverja rosa ferðasögu blablabla en ég nenni því amk. ekki enn. Myndatextarnir verða að duga. En MB er hæsta fjall vestur Evrópu, 4810 metrar. Helvítis Elbrus.

Klassaferð!
::Hívatha litli skeit klukkan 12:33 ::

Eftir T in the Park
Þetta var nú aldeilis glimrandi hátíð. T hefur verið haldin 11 eða 12 sinnum og er orðin mun stærri er Hróarskelda en er blessunarlega laus við Íslendinga. Líka gaman að prófa eitthvað aðeins öðruvísi. Svo er þetta bara helgi. Sem er gott.

Magnað samt að skotum virðist hafa verið deilt út botnfallinu á genamenginu, blandað með hráka og vatni úr drullupolli. Johnny Bob hvað þetta er ófrítt fólk. Hrikalega ljótar stelpur. Og þær eru sko ekki feimnar við að hafa svona eins og hálfan metra bert á milli þó að þær séu í yfirstærðum, ónei. Það er svo sem gott fyrir sjálfstraust og andlega vellíðan að vera svona öruggur með sig og líkama sinn en plís - stöffið sem martraðir eru búnar til úr.

Þegar ég var að keyra heim áðan sá ég rosalega mikið af rosalega sætum íslenskum stelpum. Íslenskar stelpur eru æði.

Sá fullt af góðum böndum. Náði eftirfarandi (gæti verið aðeins vitlaust, þekki ekki sum af þessum minni böndum það vel):

Laugardagur
Kasabian
Beta Band
Black eyed peas (Solid band með þeim - ágætis skemmtun - sæt gella - ekki merkileg tónlist)
P!nk (Lét eins og versta skass þarna víst - ekkert spes á sviði)
Faithless (Geðveikir tónleikar)
Starsailor
The Charlatans
The Darkness (Snillingar - sprengjur og eldur - Radiohead cover var snilld!)

Sunnudagur
Scissor Sister (Drulluskemmtilegt hommaband)
Franz Ferdinand (Mjög góðir)
The Thrills
PJ Harvey (Down by the Water var geggjað)
The Killers
Badly drawn boy (Fúlli trúbba hef ég ekki séð - dissaði allt frá auðvaldi til rótara)
N*E*R*D (Slakir læf)
Pixies (Frábær - betri en heima)
Massive Attack (Geðveikir tónleikar! Teardrop og fleiri lög þvílík gæsahúð)

Mánudagur
Dogs die in hot cars (Náðum þeim á 20 manna tónleikum í plötubúð í Glasgow - bónus)

Missti af Chemical Brothers sem var mjög fúlt, þeir byrjuðu meðan Massive Attack voru að spila og fylltu tjaldið sem þeir spiluðu í. Hefði viljað kíkja á Orbital, þetta voru seinustu tónleikarnir þeirra á ferlinum. Wu Tang eru svikarar (slógust í stað Íslandsfarar) og ekki þeir menn sem þeir voru fyrir 10 árum. Það veistu Tóti. Kýs að muna þá eins og þeir voru á miðjum síðasta áratug.

Langar að sjá slatta af böndum fljótlega, Deftones, Tool, Pink Floyd aftur (gerist varla) og að sjálfsögðu snilldarbandið Greyboy Allstars.

Í heildina mjög fínt. Náði fullt af góðum böndum og allt mjög skemmtilegt. Og engir Íslendingar fyrr en á flugvellinum!

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 00:14 ::

14.7.04

56% meira brauð

Við mættum klukkan tíu á mánudaginn og komum okkur fyrir. Mikið áfengi var drukkið kvöldið fyrir veiði sem skilaði af sér passlegu magni af rugl pælingum eins og um Rimm-reipista og hvernig má drekkja flugum (svona "had to be there" sögur sem verða ekki hafðar eftir hér). Ég var sá eini sem var svo í dagdrykkju meðfram veiði daginn eftir og lýsi ég frati í hina varðandi það. Reyndar skil ég 2 sem þurftu að keyra heim um kvöldið en það var eingin afsökun fyrir Drjóla sem er orðin alger kelling.

Tunguá er flott og mjög vænleg en alveg vonlaus þegar hún er jafn vatnslítil og hún var í gær. Það var sem sagt ekkert lífsmark í ánni fyrir utan fiskinn sem Kolli segist "hafa séð" og þennan tuttugupunda sem ég sá (sem reyndist svo vera klessa á veiðigleraugunum mínum ;). Við veiddum því ekki neitt - sem er það sem ég átti von á og því algerlega í takt við væntingar og heiti félagsins. A-TEAM og GAY-TEAM munu því heyja rematch í KOLLABÚÐUM eftir tæpan mánuð.

Veiðihúsið var fínt með 3 svefnherbergjum, svefnlofti og potti. Ég er til í að fara þarna aftur en það hefði verið betra ef við hefðum getað fengið húsið á hádegi og skilað því daginn eftir á hádegi. Þá hefðu allir getað djúsað með veiði fyrridaginn og tími gefist í gott grill og skrall um kvöldið. Kostar reyndar 2 daga í frí í stað eins en alveg þess virði finnst mér.

Ég setti MYNDIR úr ferðinni á netið fyrir þá sem vilja tékka á aðstæðum og loðnu bringunni hans Kolla. Flestar eðlilega af A-TEAM en wtf...
::Karius skeit klukkan 21:49 14.7.04 ::

Hva, enginn veiðisaga? Hvernig var Tunguá?
::KÍB skeit klukkan 13:26 ::

12.7.04

Svo á maður ekki að fara á lélegar hátíðir maður á bara að fara á góðar hátíðir eins og BARA BRA helt gratis, sem verður haldin hér í Fautaborg 21 ágúst
::The Satan of Death skeit klukkan 22:17 12.7.04 ::

9.7.04

Trúi ekki að þú sért með Wu Tang til vara fyrir commercial strákabandið Starsailor. Hvurslags píka ertu? Fyrst þeir eru það æðislegir að þú sleppir Wu Tang... Af hverju fórstu ekki á þá þegar þeir voru á NASA um daginn???

Þykist vera hardcone en ert svo bara plat... eða eins og Wu Tang sagði:

"Don't talk the talk, if you can't walk the walk
Phony niggaz are outlined in chalk"


Sleppa Wu Tang... shame on you !!!
::Karius skeit klukkan 14:31 9.7.04 ::

8.7.04

Valshamar
Freysandi fór memm í hamarinn í kveld. Leiddi flöguna og Eilíf, Freysi leiddi skrýtnu nýju putta-sprunguleiðina við hliðina á Eilífi, held að hún sé 5.8. Ekki alveg að fara að leiða hana en gekk vel. Síðan dótaði Freysi leið sem ég held að heiti Þökin eða eitthvað slíkt og ég elti. Hún er soldið skrýtin og ég held að maður geymi aðeins að dóta hana. Klifraði beint upp þakið og það var stuð.

Rafmagn eða ekki rafmagn
Rafmagnið verður tekið af hérna á eftir og kemur aftur í fyrramálið. FTP serverinn vill ómögulega starta upp með vélinni, því getur verið að ekki verði hægt að pósta nema einhver nenni að kíkja í heimsókn og starta servernum. Geymist allt á blogger samt þannig að vel er hægt að skrifa.

T
Held utan á eftir. Það verður gaman. Planið að sjá eftirfarandi bönd (nokkuð góð vika, Mínus, Metallica, Placebo, Maus);

Dagur 1
Darkness (Muse til vara)
Charlatans (Libertines)
Pixies
Starsailor (Wu Tang)
Pink (Funeral for a Friend)
Black Eyed Peas
Carl Craig
Big Brovaz

Dagur 2
Massive Attack
Chemical Brothers
NERD
PJ Harvey
Franz Ferdinand
?
The Killers
The Thrills
?

Gaman...
::Hívatha litli skeit klukkan 23:20 8.7.04 ::

Ég skal alveg knésetja þig líka ef þú endilega vilt gamla mittisvaðla. Ef hið svokallaða A-team heldur að það eigi einhvern séns á móti hinum reyndu veiðimönnum í gay-team þá skjátlast þeim mjög. Mittisvaðlan fær alla mína samúð að þurfa veiða með rassnagaranum og fiskifælunni Spunge.

Skítblogg
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:13 ::

Rétt er það - þessi keppni verður barnaleikur. GAY - team ber einnig nafn með rentu eins og bersýnilega sést í orðum Drjóla um að hann langi að setja Spunge á hnén. You sick fuck!!!
::Karius skeit klukkan 13:16 ::

Hitti mittisvöðluna yfir fyrirtaks gúllasi og kartöflumús í hádeginu. Hún sagðist myndu valta svoleiðis yfir ykkur að annað eins hefði ekki sést síðan Hinn ástkæri leiðtogi vor, Kim Jong Il, sló heimsmet í golfi sem verður líklega aldrei slegið. [Via eoe]
::Hívatha litli skeit klukkan 12:37 ::

Skabbi verður knésettur á þriðjudag þegar ég mun sýna honum hvernig alvöru veiðimenn veiða.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:24 ::

Laxastríð Aldarinnar rennur upp!!

Staður: Tunguá í Borgarfirði, annáluð laxveiðiperla sem ku krauma af laxi þessa dagana. Ég ímynda mér að hægt sé að ganga þurrum fótum yfir ána á bökum laxa.

Stund: Næstkomandi þriðjudagur

Keppendur:

A-Team; The Spunge og Tóti Ljóti Mittisvaðla. Hrokafulli Vísundurinn ber höfuð og herðar yfir aðra veiðimenn Vonlausa Veiðfjelagsins enda með afbrigðum fiskinn og náttúrutalent þegar kemur að veiðum. Ólíkt því sem margir halda er The Spunge viðurnefnið komið til vegna þessa að hann hreinlega þurkar upp þau veiðisvæði sem bleytir færi í. Mittisvaðlan er child prodegy íslenskra stangveiða sem hleypur kapp í kinn í hvert sinn sem hann kemst nærri vatni. Ef honum tekst að hemja veiðikraftinn sem ólgar í æðum hans er aldrei að vita nema stöngin verð heil eftir daginn og döðlurnar órifnar.

Gay-Team: Kolli Mjöðm & The Kike. Báðir þessir menn eru því marki brendir að vera lífsins ómögulegt að draga nokkurntíman bein á land. Þeir fáu fiskar sem þeir hafa hampað hafa iðulega verið húkkaðir eða sprengdir upp úr vatninu, enda er það lýðum ljóst að þessir vesalingar geta ekki komið út flugu fyrir fimmaur, eins og síðustu ferðir þierra sanna. Þar sem saurlífi og kynvilla eru þeirra ær og kýr verður að teljast ólíklegt að The Gay-team komi nokkurntíman nálægt ánni heldur haldi þeir til við viðbjóðslegu iðju sína í veiðihúsinu allan daginn.

Kíb má ekki fara því hann er með plástur og Gölturinn er að fara á Svínhommahátíðina Gay in the Pork
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:25 ::

Hverskonar rugl er þetta ljóð eiginlega??? Það vita það allir að Gölli er fæddur á Akranesi! Annars verð ég að óska KÍB til hamingju með að hafa bloggað fimmþúsandasta póstinn á Vonlausa. Skítablogg að eigin vali í verðlaun.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:44 ::

Placebo og Maus í Höllinni
Hommapopp
Maus eru bara algjörir fokking snillingar. Þeir voru alveg geðveikir í gær og gáfu Placebo ekkert eftir. Mjög solid tónleikaband og greinilega rosalega vel spilaðir saman. Ég var mest að einbeita mér að trommunum, Danni er alveg frábær, fullt af sniðugum litlum hlutum í gangi og virðist alltaf vera að fíflast með einhverja rafmagnstrommu með svaka effectum sem gefa mjög skemmtilega stemningu. Enda er það líka aðalsmerki hljómsveitarinnar, þeir finna svo ótrúlega ferska og frumlega hluti til að flétta saman í alveg spes Maus sánd. My Favorite Excuse er GEÐVEIKT lag. Brill.

Svo stigu Placebo á stokk með geðveikt solid prógramm. Frábært sánd úr stúkunni en mér leið reyndar eins og ég væri á tónleikum á Grand Rokk eftir Metallica. Allt miklu minna í sniðum, lítið svið, fáir í salnum (glætan að það hafi verið uppselt eins og tónleikahaldarar héldu fram). Aldrei séð einum rótara snýtt jafnmikið út eins og gítarrótaranum fyrir Brian Molko söngvara/gítarleikara. Það var nýr, tjúnaður eftir hvert eitt og einasta lag og effectafikt dauðans. Gaman að því. Mjög solid spilarar. Tóku svo uppklapp og annað uppklapp og allir mjög sáttir held ég. Nancy boy eiginlega hápunktur kveldsins hjá mér, enda minnir það lag alla á Kolla.

VV 3+

::Hívatha litli skeit klukkan 09:38 ::

Sindri er göltur
::Drjóli von Dork skeit klukkan 00:20 ::

7.7.04

Þetta er þó skárra en heimasíðan hans Sissa
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:43 7.7.04 ::

Sjaldan hef ég orðið jafn hissa og þegar ég fann þessa fornu vísu:

Gölli Valdason

Og þó þeir væru að segja
sem sjálfir eitt sinn deyja
hve svakalegur værir þú,
ó Gölli Valdason,
þá vildi ég bara segja
að sumir ættu að þegja
það saknar þeirra enginn
ó Gölli Valdason.

Gölli hann var einn af okkur peyjum
sem aldrei kannski rétta strikið fann
fæddur var og uppalinn í eyjum
og ekki var nú mulið undir hann
og ekki var nú mulið undir hann.

Fimmtán ára af flestum peyjum bar hann
þeir fundust ekki klárari til sjós.
Með aflakóngum eftirsóttur var hann
sem afbragðsmaður hlaut hann þökk og hrós,
sem afbragðsmaður hlaut hann þökk og hrós.

Á meðan aðrir innan dyra dvöldu
og dreymdu um frægð í Cambridge eða Voss
hans skóli var hjá útsynningi og öldu
og oft á tíðum hlaut hann votann koss,
og oft á tíðum hlaut hann votann koss.

Já það er satt þeir sendu honum mínus
sem sjálfir aldrei sprændu á þorskaslóð
því hann var ekki einn af þessum fínu
sem eiga sitt á þurru í sparisjóð,
sem eiga sitt á þurru í sparisjóð.

En þeir sem aldrei girntust glasasyndir
en göfugmennsku tigna allra mest
þeir ættu að birta sinna sálar myndir
og svo skulum við dæma hverjum ferst,
og svo skulum við dæma hverjum ferst

Og seinna þegar hinstu skuggar skella
og skola Gölla upp til næsta lands
þá ætla ég á leiði hans að hella
úr heilli því að ég mun sakna hans,
úr heilli því að ég mun sakna hans.

(tekið af http://mholm.net/htm/Islenskir_textar02.htm)


::KÍB skeit klukkan 14:41 ::

Gamla HÍ heimasíðan hans Kolla
::Hívatha litli skeit klukkan 14:39 ::

Heimasíðan hans KollaGölla er ljót
::Hívatha litli skeit klukkan 14:32 ::

Hvað er að fólki sem skilur eftir stímaða mjólk í stálkönnunni inni í eldhúsi? Hverskonar misguided hjálpsemi/leti er það að skilja allt eftir í drullu svo maður þurfi að þrífa draslið áður en maður getur fengið sér kaffi? Þetta er álíka gagnlegt og að kúka á klósettsetuna fyrir næsta mann.

Gaaaaaaaaa...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:09 ::

Klifurhúsið var það í gær. Öllum til mikillar furðu mætti Kolli Gölli og var í góðum stemmara, tosaði í smá plast og varð þreyttur eins og algengt er þarna. Aðspurður sagði hann að vinur Krumma hefði sagt sér að þetta væri skemmtilegt. Ekki eins og vinir hans hafi reynt að koma því að síðustu árin. Vonumst til að sjá hann aftur með túttur - hahahaha.

Hjóluðum þetta frá Westzide, ég, Ása, Súri Svíinn og Hrokafulli vísundurinn.

Setning dagsins var "I can't belive you've been working in the basement all these years and not discovered that shoebags are the sjiiit."
::Hívatha litli skeit klukkan 09:55 ::

6.7.04

Þvílíkt FM-smápíkusvar hjá Gölla. Hefur þú heyrt að 2+2=4 á tunglinu. Þú ert ekki viss samt? Þú ættir kannski að kíkja þangað, súrefnisleysi ætti ekki að valda neinum heilaskaða í þínu tilfelli.

::H.H. skeit klukkan 16:51 6.7.04 ::

Nei - en ég hef heyrt að 2+2=4 á tunglinu og að þú sért líka algjör speni þar.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:39 ::

Djöfull er Dindrinn fyndinn. Skiljanleg athugasemd hjá honum. Ég var einmitt sjálfur að pæla í því hvort 5.14 væri ef klifrarinn makaði sig í sleipiefni áður en hann byrjaði. Sá varnagli er sleginn í þessari gráðun að hún sé mannanna verk og breiskleiki þeirra geti komið þar fram en almennt séð væru leiðir ekki komnar með marktæka gráðun fyrr en nokkrir hefðu spreytt sig á henni. Það er gott og blessað en ég er með athugasemd við þrjár seinustu gráðurnar þar sem óbeint er sagt að ef nokkur klifrari segist hafa klifrað þær þá er sá hinn sami að ljúga. Til hvers í ósköpunum að hafa þessar gráður með.
::H.H. skeit klukkan 16:30 ::

Gildir sami skali á tunglinu? En neðansjávar?
::KÍB skeit klukkan 16:18 ::

Lesa fyrst - spyrja svo
::Hívatha litli skeit klukkan 16:07 ::

Hver býr til skala sem byrjar í 5.0 og endar í 5.13? Til hvers er þetta 5 eiginlega?
::KÍB skeit klukkan 15:55 ::

The Yosemite Decimal System
::Hívatha litli skeit klukkan 15:37 ::

Litla gula hænan
::Hívatha litli skeit klukkan 15:25 ::

Gölturinn vill ekki útskýra þenna hommaklifurstuðul sem hann er alltaf að kvóta í vegna þess að hann hefur ekki hundsrassgatsvit á því hvað hann er að tala um. Þetta er neblinlega sama gamla saganmeð hann fyrst lærir hann að 'talk the talk' áður en hann lærir að 'walk the walk' og þykist vera aðal spaðinn. Allir aðrir sjá hins vegar að hann er póser.

Svo þykir mér ómaklega að mér vegið ef það á að gera eitthvað sérstakt grín að því að ég sé eitthvað klín frík. Mér finnst það bara ósköp eðlilegt að vilja að menn sem eru að slímast með sínar ógeðslegu lummur geri það á þrifalegan hátt en eru ekki að klína þessu út um allt heima hjá manni.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:18 ::

"Graðni eyddi kvöldinu í að hafa áhyggjur af því í hvað við myndum pissa í brúðkaupinu hans. Ég á ekki smóking eða svört föt þannig að ég get því miður ekki mætt þar"

Var þá ætlunin að pissa í smókingin eða svörtu fötin ef þú ættir þau í brúðkaupinu hans Graðna? Á Akureyri segir fólk að það pissi á sig ekki í sig, enda pissar maður í glas þ.e.a.s. "ofan í eitthvað". En maður pissar á veggi og bíla.
Talandi um hland þá eru ansi margir ef ekki flestir sem ég þekki fólk af því kaliberi og lífsreynslu að maður myndi segja að það hefið "migið í saltan sjó". Það skýrir þá afhverju sjór er svona vondur á bragðið.

Málfarsmínúta VNNN var í boði Kleppsspítalans. Pöknið lifir.
::H.H. skeit klukkan 15:12 ::

Þú getur allavega huggað þig við það að þú gerðir meira en sumir.

KÍB gerði ekki neitt því að hann er búinn að reikna út að orkan (E) úr Gallerý-kjöt hamborgara með muldum gelti nýtist lengst ef hann situr algjörlega hreyfingarlaus í sófanum sínum.

Mjöðmin skúraði og reiddist Haffa þegar hann slefaði á parketið. "Svona gerum við ekki Hafsteinn" sagði hann og dreif sig að þrífa upp slefið með Mr. Proper blautþurrku og bónaði síðan á eftir með Ajax bóni. Síðan fór hann í afainniskóna sína og lagði kapal.

Graðni eyddi kvöldinu í að hafa áhyggjur af því í hvað við myndum pissa í brúðkaupinu hans. Ég á ekki smóking eða svört föt þannig að ég get því miður ekki mætt þar.

VNNN kveður að sinni...
::Hívatha litli skeit klukkan 14:28 ::

... og svo var annað. Skalinn góði í klifri. Flestir íþróttafréttaritarar fara á einhverjum tímapunkti í leiklýsingum að segja frá því hvað fótbolti gengur út á svona fyrir þá allra heimskustu. Nú verð ég að viðurkenna að klifurskalinn sem þú nefnir er mér nokkuð lokuð bók. Ef hann t.d. nær bara upp í þrjá þá hlýtur 5.4 að vera hrikalega erfitt en ef skalinn nær upp í 100 þá eruð þið frekar lélegir. Þá myndi þúfa vefjast fyrir ykkur.

Svenni, þú verður að líka að skýra út fyrir mér hvað hneta er. Annars færðu svipaða spurningu og um eggið þegar ég, þú og Tryggvi vorum að flýja björgunarsveitir í Hvalfirðinum.
::H.H. skeit klukkan 14:20 ::

Heimsótti Grafarvogin.
Fór í Grafarvogin í gær og keyrði alla leið. Tekur um 6 mín. þaðan sem ég vinn en um 20 mín ef ég er heima. Keyrslan er fín, ekki nema fjögur ljós á leiðinni. Samt smá leiðinlegt að þau eru ekki umferðarstillt alla leiðinna. Fínt rennsli alla leiðinna, meðalhraði um 50 km.
Enginn með í för fyrir utan mig.
::H.H. skeit klukkan 14:10 ::

Stardalur heimsóttur
Gerðum góða klifurferð í Stardalinn í gær með allt nýja dótið okkar Freysa. Ég leiddi Stallana (5.3) og Skabbi elti, og er það fyrsta dótaleiðslan mín. Var ekki mjög hress þegar ein hnetan sem ég hafði komið fyrir poppaði út þegar ég var kominn uppfyrir hana og renndi sér niður spottann.

Síðan klifruðum við slatta af leiðum í "Leikhúsinu" sem eru alveg frábærar á bilinu 5.4-5.7. Freysi leiddi upp í 5.7 sem er ansi magnað.

Mættir voru Sissi, Skabbi, Bjöggi, Ása, Anna, Freysi, Hemmi og Eva. Hrein snilld, þurfum að fara meira þarna!
::Hívatha litli skeit klukkan 09:53 ::

5.7.04

Afhverju Guð Drottinn Allsherjarar, skapari himins og jarðar hefur velþóknun á grikkjum er mér algjörlega hulin ráðgáta. Hvaðan kom þeim þessi satanskraftur til að rústa EM? Hmm... her er kannski kominn vísir að svari.

Ég tek undir hjá Gölla að Kolli ætti nú að koma með dóm á Metallica. Enda treysti ég dómgreind hans manna mest.

Nokkuð gott að titla sig drulludreng í atvinnuumsókn. Það er einfaldlega ekki allir jafn harðir og Sírnir sem er ekki einu sinni að reyna. Afhverju kemur Sírnir ekki heim í sumar og vinnur fyrir Norðurljós eins og venjulega? Er Ísland ekki nógu fínt lengur?
::H.H. skeit klukkan 15:15 5.7.04 ::

Metallica
Metal up your assÆtlar enginn að skrifa um Metallica? Mér finnst að Kolli Gölli, nýkrýndur mesti sekkur Vonlausa, eða Hrokafulli Vísundurinn ættu að gera það. Eða maðkurinn, enda vita allir að maðkar eru ekki með lappir og geta því ekki snúið sig.

Mér fannst Metallica geðveikir, kannski 3 bestu tónleikar sem ég hef farið á. Hitinn var rugl, vantaði miklu meira vatn þarna frammi og menn aular að sjá þetta ekki fyrir. Það á ekki að líða yfir stelpur áður en bandið byrjar að spila. Hvaða bull var að kveikja ekki á loftræstingunni fyrr en fólk var farið að líða útaf í hrönnum? Og að hafa 2 hálfslítra plastflöskur til að hlaupa með inn á klósett og að brynna liðinu? Talaði við einn gaur í gæslunni og þeir tóku einn bláan yfir girðinguna sem datt svo bara aftur í gang

Metallica eru solid tónleikaband, gáfu manni helling fyrir peninginn, góðir spilarar, gott sánd (versnaði reyndar þegar við komumst alveg fremst og duttum inn í mónitorana), auðmjúkir gagnvart áheyrendum eins og Skabbi benti á. Hin besta skemmtun og langþráður draumur sem hefði mátt rætast fyrir ca. 12 árum frekar en núna. Glatað að fá Jason ekki.

Ég fílaði best One, Blackened, Fade to Black og fleiri gamla slagara, sem eru klárlega klassík í tónlistarsögunni. St. Anger og það drasl var hvíld fyrir mig en því miður fíla náttúrulega þessir asnar sem voru 90% tónliggagesta Drazl, ReDrazl, Heilaga reiði og kannski Svarta albúmið sem var náttúrulega upphafleg grafartaka hljómsveitarinnar sem stúdíóbands og hefur elst illa. Enda lögðust þeir kirfilega ofan í þá slímugu holu með Load...

...og litlar gelgjur og reið touch-freek eiga ekki erindi á rokktónleika.

Drullugóðir tónleikar í heildina, Metallica fokkuðu reitt. Einkunn: VV 4

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 14:58 ::

VNNN: Breaking news!
Kolli kúkar ekki í vinnunni vegna þess að hann kann ekki að skeina sér.

Göltur sást á toppi Vestur Evrópu í vikunni. Sælkerar víða úr heiminum leita nú flesksins til að snæða.
::H.H. skeit klukkan 14:32 ::

4.7.04

Kolli Schwule ist ein Analferkehrer
af hverju fékk maður aldrei svona texta í þýskum textabókum.
::The Satan of Death skeit klukkan 16:56 4.7.04 ::

Heilagt hjúskaparbrot hvað ég sarn mikið núna. Eins og alkunna er þá er ég að leita mér að vinnu núna og í þeim tilgangi skrifaði ég CV á sænsku og sendi út um allt, en hef bara fengið neitanir hingað til, svo var ég að fara að senda eina umsókn til viðbótar núna og var aðeins að lesa yfir til að muna hvað ég hafði skrifað. Ok hérna sjáið hvað ég skrifaði:

Garçon du Merde, Elliheimilið Grund (gammelhem)
bära mat skräp och kläder till och från avdelningar och kök och tvätthus. Samt tvätt av sängkläder

Fjandinn sjálfur! Ég gleymdi að breyta þessu áður en ég sendi þetta. Mynduð þið ráða mann telur atvinnutitil sinn: Garçon du Merde?
en nú er ég búinn að laga þetta nú stendur Gammelhemsarbetare.

Ég var annars í þungarokkarabrúðkaupi í gær. Spariföt þungarokkara eru Metallica hettupeysur og ekki skítugar buxur. Best var samt hettupeysa trommarans úr The Haunted því á henni stendur " satan death blood " og í neðri línu í miklu stærra letri " FUCK " allt miðjujafnað að sjálfsögðu. Ég var fínasti maðurinn í brúðkaupinu í teinóttu jakkafötunum með gula bindið. Þetta var rólegasta brúðkaup sem ég hef verið í, ekkert áfengi af því að brúðguminn er óvirkur alki, að vísu voru nokkrir sem tóku með sér bjór en það varð enginn fullur. Samt var bara gaman, undarlega þroskuð og fullorðin stemmning. Það var líka kareoke vél, þegar hún fór í gang hurfu allir þungarokkararnir. Ég var að spá í að syngja "stand by your woman" en langaði ekkert að gera það af því að ég á enga konu til að standabæ þannig að ég söng bara "það er ekki mér að kenna að ég sé skotinn í þér" Á íslensku. Ég ætlaði líka þvílíkt að reyna við allar vinkonur brúðarinnar, en þær voru allar fráteknar nema ein, sem vissulega var sæt en vá hvað hún var fúl og ekki bara við mig þegar ég reyndi að tala við hana, heldur við alla. Mikil tillitsemi, ég virði það við hana, að hafa ekki verið bara fúl við mig, líka sniðugt að koma í brúðkaup til að vera í fýlu.

Ég er farinn að snýta mér, fjölskyldan mín var í heimsókn í vikunni sem leið og skildu eftir einhverja djöfulsins karfapest hjá mér.

::The Satan of Death skeit klukkan 09:42 ::

2.7.04

Bloggskröggur skósveinn
Addi Pu hefur tekið við hlutverki Gölla í fjarveru hans og tekist alveg stórskemmtilega til við skítbloggsku. Það verður skemmtilegt að sjá hvað gerist þegar Svínafleskið snýr aftur úr fjallhéruðum Evrópu og vill setja lærling sinn aftur á hliðarlínuna. Mun Pu skósveinn sætta sig við það eða mun nafnbótin bloggskröggur stíga honum til höfuðs. Ég vill sjá blóð.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:08 2.7.04 ::

... og hafið þið tekið eftir því hvað Gölli og Þórmundur Jónatansson eru líkir. Ég reyndar held að hér sé um einn og sama mann að ræða. Tek það fram að þegar Gölli er Þórmundur þá er hann mun viðkunnalegri.
::H.H. skeit klukkan 13:04 ::

Mikið hlýtur annars að vera erfitt að vera Gölli. Fer til frans og þar er hann rekinn upp á eitthvað fjall þar sem er erfitt að anda. Ég dauðvorkenni honum.

Hvað er bloggskrogg annars? Ég veit ekki hvort ég á að vera upp með mér eða sármóðgaður. Hafið þið tekið eftir því að Lars Ulrich og Hannes Jón Lárusson eru tvífarar. Ég reyndar held að þetta sé einn og sami maðurinn.
::H.H. skeit klukkan 12:52 ::

Tollur? Hva, ekkert grill? Það er af sem áður var. Það er sennilega til of mikils ætlast að gufan og sundlaugin verði tilbúin. En hvað sem því líður þá er ég búinn að bjóða fullt af vinum hans Kára í tollinn til þín.
::H.H. skeit klukkan 09:19 ::

1.7.04

Addi Pu er drepfyndinn gaur. Eg utnefni hann her med bloggskrogg vonlausa.

Annars drulladist eg upp a fjall i gaer og i fyrradag og slo haedarmetid, mjog gott. Djofull er erfitt ad anda fyrir ofan 4300 madur er bara alveg orkulaus.

Byd i toll a laugardagskveld theim sem thora og eru ekki algjorir faggar eins og Kolli. En thad eru natturulega allir komnir med born og buru og haettir aeskuglopum a bord vid ad drekka afengi.

C'est la vie...
::Hívatha litli skeit klukkan 18:00 1.7.04 ::

Skoða eldri færslur >>