31.8.04
Nú heldur Spunge fljótlega á vit argra fagga í Norvegi. Eitthvað var rætt um að kveðja kallinn og þykir mér það ekki úr vegi. Grill væri gaman. Kaffi væri ágætt líka. Býður einhver sig fram til að hósta slíkt á fimmtudagskveld?
30.8.04
Fyrir rúmum 2 vikum var hitabylgja. Núna er skítabylgja. Bömmer.
Gaman að sjá Briem Briem Briem, velkominn á alnetið félagi!
Trúðkaup var fínt. Svo var ég að þvælast uppi í Hvalfirði á æfingu, það var ágætt.
Hrókur alls fagnaðar var hinn síkáti Ariel Sharon sem lék á alls oddi. Meðal annarra gesta voru Al Capone, Bush-fjölskyldan frá Texas og Pési.
Vona að brúðkaupsferðin á landnemabyggðirnar á Vesturbakkanum verði skemmtileg.
Shalom
B
27.8.04
- Þú sóttir um vinnu fyrir mig á McDonalds - fyndið
- Ég skráði þig í Idol - hefnd en ekki dobbelversjon
- Þú skráðir mig í Idol - dobbelversjon, þrátt fyrir að vera hefnd
26.8.04
Krumpi: Dobbúlversion apply-ar ekki nema djókið sé glatað, say að setja bleyju á hausinn á sér. Að prumpa á kveikjara er ávallt óborganlegt skv. skilgreiningu.
Sírnir: Þú ert heimskur.
"Skjóttu þig upp í rassinn." ha ha ha varðstu svo vondur að þér datt ekkert betra í hug... þú ætlaðir að skrifa "hoppaðu upp í rassgatið á þér" en áttaðir þig á því að það er lame og reyndir að krydda það með skotvopni, býsna vel til fundið á síðu sem þessari en ég hía samt á þig.
HÍÍÍÍÍÍ
Ég held að þú sért eitthvað að misskilja doubleversjon. Kannski er best að taka dæmi til að útskýra það nánar:
- Þegar ég skráði þig í Idol - ekki doubleversion.
- Þegar þú skráðir mig í Idol í kjölfarið - doubleversion!
Á árdögum Vonlausa wezztur í bæ var ungur maður er nefndist Garrison og vildi fá að vera memm. Garrison þessi hafði frekar morkinn húmor og fór mikinn með eina brandaranum sem hann kunni. Brandari sá var frumsaminn.
Á vídeókveldi Vonlausa var verið að horfa á Fistful of Dollars. Garrison spyr hversu langt sé eftir. Einhver sagði 10-30 mínútur. Garrison svaraði þá að bragði: "Ha - 5-100 mínútur."
En hann lét ekki staðar numið og hélt áfram: "Ha - 5 mín - 100 ár? Hahaha!", "Ha - 5 mín - 1000 ár? Hahaha" og svo framvegis.
Vegna afleitrar brandarakunnáttu ákvað Garri þarna að segja sama brandarann, sami maður, oft, við sama tækifæri. Þetta er upphaf doubleversion í mannkynssögunni.
Sindri sagði (gerði) sama brandarann, á sama stað, sami maður á mismunandi tíma. Hann fylgir því doubleversionstaðlinum betur en flest doubleversion sem eru breytingar á bröndurum annara.
Við þig kæri Sírnir segi ég því: Skjóttu þig upp í rassinn.
25.8.04

Muniði eftir þættinum þarna sem var einu sinni í sjónvarpinu sem hétu Hvar er Kolli?
Þvílík skemmtan, maðurinn fór algjörlega á kostum.
1. Lét hringa sig fimm sinnum.
2. Er bastú.
3. Át heilan chilli og gat ekki borðað besta réttinn á Stokköndinni (lesist Ban Thai).
4. Fór í hefnileikinn sinn.
Þegar hér var komið var ég búinn að hlægja svo mikið að ég fór heim.
Framhaldið...?
Myndirnar eru komnar á gallery.
23.8.04
það var frábær stemmning allir í gúddí fíling og það kom kássa af fólki, miklu fleiri en við áttum von á í ljósi þess að þetta var dagurinn þar sem allir ákváðu að halda hátíðir og tónleika. Þið getið bráðlega skoðað myndir á heimasíðu barabra. ég pósta og monnta það seinna. The Virgins spiluðu ekki... Gítarleikarinn okkar er í einhverri tilvistarkreppu og ég ætla að berja hann með alkulnum járnstöngum sem frjósa við húðina á honum og tæta hana í hvert skipti sem ég slæ hann. Svo ætla ég að úða vatni á hann úr úðabrúsa, nema ég ætla að úða framhjá alkulnu járnstöngunum svo að úðinn breytist í ísnálar sem meiða mikið. En ég spilaði með KimL en við vorum lélegastir því Kim varð allt í einu stressaður og óöruggur svo að hann söng eins og stelpa á söngvakeppni framhaldsskólanna. En svo fórum við út að djamma og dansa nokkrir hljómsveitaguttar úr KimL og FibiFrap og þar hittum við eina stelpu sem er líka í FibiFrap ooooohhh hvað hún er sæt, það væri svo auðvelt að verða skotinn í henni, namm namm namm. En hún á heima í Stokkhólmi og svo framvegis. En það endaði með því að hún svaf heima hjá mér, í gestaherberginu, því miður, ég gat ekki reynt að plata hana að "sofa" í rúminu mínu af því að Kim drapst þar og hinn FibiFrapparinn fékk að sofa í sófanum mínum, en ég skreið bara upp í rúmið mitt og voldtóg Kim og brundaði í hárið á honum. morguninn eftir vaknaði kim við síman sinn og konan hans var ekki par sátt við að hann væri týndur útí bæ og börnin þeirra að tryllast. En við baxið í honum þegar hann var að fara vaknaði sætastelpan og trítlaði inn í herbergi til mín. Alklædd því miður en hún settist á rúmkantinn og við spjölluðum saman í nokkra klukkutíma meðan ég eldaði handa henni morgunmat og svo vöktum við gítarleikarann hennar og hann fékk engan morgunmat af því að hann er grænmetisæta.
en skemmtileg helgi í alla staði. Jú á föstudeginum horfðum við Lena á allar 3 LOTR myndinar í röð á svefnherbergisveggnum úr vídjóvarpa. Og þá urðu nokkrir kækir. Góð helgi í alla staði. Ég er fullkomlega blankur, en það splæstu allir bara á mig bjór og T.U.C.A.S tók sér bara smá hlé þarna, fyrir utan að The Virgins gátu ekki spilað. En við sjáum hvað setur þegar við verðum búnir að flá gítaristann.
Labels: Tónlist
Tónlistardeildin fylkti liði í Höllina á föstudagskveldið í boði Retro sem hafði grætt nokkra miða. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir það. Væntingar til tónligga eru ekkert að þvælast fyrir þegar maður skorar miða með 3 mín fyrirvara. Soldið leiðinlegt að vera ekki með heimavinnuna á hreinu. Kallinn tók líka lítið af Velvet Underground og svona dóti sem maður á.
Þetta eru prýðilegir spilarar en mér þóttu lögin sem mig hlakkaði til að heyra ekkert geðveikislega spennó, t.d. Take a walk on the wild side og Perfect Day (sem er eitt flottasta lag í heimi) voru ekkert að gera það fyrir mig. Flottastir voru eiginlega einhverjir sýru sólókaflar þar sem trommuleikarinn og bassaleikarinn voru að gera góða hluti. Einnig einhver sellópía sem rúlaði. Ágætt sánd, ekki blastað of mikið, snilld að hafa skjái til beggja hliða.
Einkunn: VV
Reykjavíkurmaraþon
Gekk bara nokkuð vel, það var bara helvíti gaman að hlaupa. Munaði ekki nema 19 sekúndum á mér og AÚ sem hefur verið að æfa með mér í sumar. Þó sáumst við ekki allt hlaupið. Skondið. Góður stemmari, var 52 mín, stefni á 45 mín næst eða bara að hlaupa 21 km þar sem fjallaþolið fer virkilega að kikka inn. 10 km er frekar stutt vegalengd svona samanborið við mörg mauv í sumar.
Menningardagur / nótt
Rölti með Skabba og Bjögga um bæinn, sáum nokkrar sniðugar hljónstir, m.a. er Óttarr Proppé kominn í eitthvað band aftur sem var nett. Síðan sá ég Úlpu og Mínus á Dillon um kveldið. Við áttum fuckin' bæinn um nóttina!
"Are you some kind of celebrity or something man? Why do all those people wanna hang out with you?"
20.8.04
Hafði það eftir ónefndum að Gölli ætlaði slá metið grísins Badda í hjarðmennsku. Gölli ætlar nefnilega að reka tugi manns í einni hrúgu um 10 km. leið um götur Reykjavíkur á morgun. Búist er við harðri keppni við gaurinn í hjólastólnum sem hingað til hefur massað þessa leið. Stuðningsmenn og velunnarar munu standa við endamarkið til að fagna Gölla þegar hann kemur í mark. Frítt popp og kók fyrir þá sem mæta í "Ég er sammála Slugger"-bol.
Subject: Good morning Mr. Hunt, this is your mission if you choose to accept it: - Travers Duguarry (ED4)
Djonns!!!
Þið hafið verið boðaðir til leiks í mikla hættuför - Travers Duguarry, sem heitir eftir frægri kroppatraversu í sumarbústað Ólafs G, en það er nú önnur saga...
Tími: laugardagsmorgun nk. kl. 09:00 punktlich!
DropZone Location: 64,13.420,-21,33.074 (þangað á að mæta kl.09:00)
Mission: komast óhöldnu eftir þessari runu
64,13.420,-21,33.074
64,13.869,-21,30.875
64,14.214,-21,31.194
64,14.672,-21,31.028
64,14.603,-21,31.760
64,14.577,-21,32.232
64,14.589,-21,32.827
64,14.681,-21,33.409
64,14.962,-21,33.853
64,15.273,-21,35.384
64,15.147,-21,36.834
64,14.716,-21,39.338
64,14.465,-21,42.229
64,14.320,-21,43.731
64,14.175,-21,44.599
64,14.218,-21,45.244
64,14.202,-21,45.641
64,14.202,-21,45.889
64,14.035,-21,45.715
64,13.857,-21,45.542
64,13.598,-21,45.605
64,13.291,-21,45.643
64,13.184,-21,45.965
64,13.114,-21,46.411 -> Pickup zone
Rules of Engagement: "Light is right"
Gear: Nauðsynlegur búnaður til að geta ferðast hratt og örugglega yfir hrjóstruga náttúru Íslands, nesti til 8-10 klukkutíma og bardagarenndur möglunarlaust...
Samþykkið eða synjið fyrir kl. 1900 annað kvöld, engum spurningum svarað fyrr en eftir það.
This mail will selfdestruct in 5 seconds...
10-4, Alfa-Zulu-Tango, over and out
Gumeisen & KristBiggýBiggý
Djonns!!!
Þið hafið verið boðaðir til leiks í mikla hættuför - Travers Duguarry, sem heitir eftir frægri kroppatraversu í sumarbústað Ólafs G, en það er nú önnur saga...
Tími: laugardagsmorgun nk. kl. 09:00 punktlich!
DropZone Location: 64,13.420,-21,33.074 (þangað á að mæta kl.09:00)
Mission: komast óhöldnu eftir þessari runu
64,13.420,-21,33.074
64,13.869,-21,30.875
64,14.214,-21,31.194
64,14.672,-21,31.028
64,14.603,-21,31.760
64,14.577,-21,32.232
64,14.589,-21,32.827
64,14.681,-21,33.409
64,14.962,-21,33.853
64,15.273,-21,35.384
64,15.147,-21,36.834
64,14.716,-21,39.338
64,14.465,-21,42.229
64,14.320,-21,43.731
64,14.175,-21,44.599
64,14.218,-21,45.244
64,14.202,-21,45.641
64,14.202,-21,45.889
64,14.035,-21,45.715
64,13.857,-21,45.542
64,13.598,-21,45.605
64,13.291,-21,45.643
64,13.184,-21,45.965
64,13.114,-21,46.411 -> Pickup zone
Rules of Engagement: "Light is right"
Gear: Nauðsynlegur búnaður til að geta ferðast hratt og örugglega yfir hrjóstruga náttúru Íslands, nesti til 8-10 klukkutíma og bardagarenndur möglunarlaust...
Samþykkið eða synjið fyrir kl. 1900 annað kvöld, engum spurningum svarað fyrr en eftir það.
This mail will selfdestruct in 5 seconds...
10-4, Alfa-Zulu-Tango, over and out
Gumeisen & KristBiggýBiggý
...and business is goooooood
19.8.04
...hefjast í Háskólabíói 25. ágúst næstkomandi. Meðal annars myndin Súpersæs mí
Why are Americans so fat? Find out in Super Size Me, a tongue in-cheek - and burger in hand -- look at the legal, financial and physical costs of America's hunger for fast food.
Ominously, 37% of American children and adolescents are carrying too much fat and 2 out of every three adults are overweight or obese. Is it our fault for lacking self-control, or are the fast-food corporations to blame?
Filmmaker Morgan Spurlock hit the road and interviewed experts in 20 U.S. cities, including Houston, the "Fattest City" in America. From Surgeon Generals to gym teachers, cooks to kids, lawmakers to legislators, these authorities shared their research, opinions and "gut feelings" on our ever-expanding girth.
During the journey, Spurlock also put his own body on the line, living on nothing but McDonald's for an entire month with three simple rules:
1) No options: he could only eat what was available over the counter (water included!)
2) No supersizing unless offered
3) No excuses: he had to eat every item on the menu at least once
It all adds up to a fat food bill, harrowing visits to the doctor, and compelling viewing for anyone who's ever wondered if man could live on fast food alone.
The film explores the horror of school lunch programs, declining health and physical education classes, food addictions and the extreme measures people take to lose weight and regain their health.
Super Size Me is a satirical jab in the stomach, overstuffed with fat and facts about the billion-dollar industry besieged by doctors, lawyers and nutritionists alike. "Would you like fries with that?" will never sound the same!
Maður sér þessa - ekki spurning. Gluggar svo í Fast Food Nation í hléinu.
Restin af fréttinni og sýningarplan á vísi.is
Skilavefur veiðistjóra - það er ekkert grín að finna þetta helvíti.
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir hefur tíðahringurinn eitthvað verið að stríða Spunge upp á síðkastið. Mér fannst þó botninn taka úr á mánudaginn þegar gaurinn skallaði gamla konu í götuna!!!
Ég lýg því ekki - maðurinn er klikkaður. Það á að loka hann inni.
18.8.04
1.21 gigawatts
17.8.04
Kíkti í klifurhúsið með Spunge og Retro í gærkveldi og gekk helvíti vel, síðan hjóluðum við Elliðavatnshring á eftir. Sem er ekkert sérlega merkilegt í sjálfu sér nema fyrir þær sakir að það voru sætari stelpur í Klifurhúsinu í gær en á Sirkus og KB samanlagt um helgina. Enda skiljanlegt þar sem þær hafa kannski ekki alveg aldur til að sækja þessa staði. OG þær voru að massa. Ég er ekki frá því að menn hafi sjálfir massað örlítið meira í gær en venjulega.
16.8.04
REAGAN REDUX
In a spurious email attributed to Newsweek which denigrates President Bush, he is purported to have said at a right-to-life rally in Florida, "We must always remember that all human beings begin life as a feces."
In reality, the inspiration for this slur comes from an amusing incident reported by Edmund Morris in "The Unknowable: Ronald Reagan's Amazing Life" from the June 28th issue of The New Yorker.
The then-President was honored at a dinner in Manhattan by the Knights of Malta, and the m.c., a prominent lay Catholic somewhat befuddled by booze, topped Reagan's keynote speech by announcing that Mr. Reagan, a fighter for the rights of the unborn, "Knew that all human beings begin life as a 'feces' -- You, too, Mr. President," he concluded, "You were once a fece!"
On Air Force One, heading back to the White House, Reagan remarked, "Well, that's the first time I've flown to New York in formal attire to be told I was a piece of sh*t."
In a spurious email attributed to Newsweek which denigrates President Bush, he is purported to have said at a right-to-life rally in Florida, "We must always remember that all human beings begin life as a feces."
In reality, the inspiration for this slur comes from an amusing incident reported by Edmund Morris in "The Unknowable: Ronald Reagan's Amazing Life" from the June 28th issue of The New Yorker.
The then-President was honored at a dinner in Manhattan by the Knights of Malta, and the m.c., a prominent lay Catholic somewhat befuddled by booze, topped Reagan's keynote speech by announcing that Mr. Reagan, a fighter for the rights of the unborn, "Knew that all human beings begin life as a 'feces' -- You, too, Mr. President," he concluded, "You were once a fece!"
On Air Force One, heading back to the White House, Reagan remarked, "Well, that's the first time I've flown to New York in formal attire to be told I was a piece of sh*t."
NEWSWEEK reports that President Bush, appearing before a Republican rally in Tampa, Florida on June 17, stated:
"We must always remember that all human beings begin life as a feces. A Feces is a living being in the eyes of God, who has endowed that feces with all of the rights and God-given blessings of any other human being. We must protect our feces. Our feces is important to the future of our country."
The Republican audience listened in disbelief and embarrassment as the President repeated his error at least over a dozen times, before someone called out "It is FETUS, not FECES" and thus correcting him. Even after realizing that he had used the word "feces" when he meant to say "fetus" Bush still did not offer an apology for his mistake.
Og fyrir þá sem ekkert skilja þá er feces sem sagt saur.
"We must always remember that all human beings begin life as a feces. A Feces is a living being in the eyes of God, who has endowed that feces with all of the rights and God-given blessings of any other human being. We must protect our feces. Our feces is important to the future of our country."
The Republican audience listened in disbelief and embarrassment as the President repeated his error at least over a dozen times, before someone called out "It is FETUS, not FECES" and thus correcting him. Even after realizing that he had used the word "feces" when he meant to say "fetus" Bush still did not offer an apology for his mistake.
Gaurinn var búinn að taka hátalaranna úr bílnum sem hefur eflaust ekki tekið langan tíma því það var brotist inn í Corollunna fyrir um mánuði og allar græjur losaðar en ekki teknar. Við það var lásinn bílstjóramegin skemmdur þannig það var eflaust ekki erfitt að komast inn í bílinn. Gaurinn var svo með eigin lykil til að starta honum sem virkar líklega á fimmtu hverju Corollu bæjarins eldir en 15 ára.
Ég græddi samt nett á þessu sökum þess að gaurinn var búinn að bóna bílinn með bóninu sem var í skottinu... vel gert :0)
Sneddí - ég fékk mér lítið plugin í WMP og logga núna allt sem ég er að hlusta á hér.
Fróðlegt að sjá hvað maður er að hlusta mest á, þetta verður orðið sæmilega marktækt eftir nokkrar vikur. Svo læt ég það sem ég spila heima líka loggast. Síðan getur AS bent mér á fólk með svipaðan tónlistarsmekk þegar ég er búinn að hlusta meira og mælt með einhverju sem ég er kannski að gleyma.
Töff.
Landssöfnunin gekk mjög vel og söfnuðust tæp ein og hálf milljón króna til styrktar Tóta. Nú gerist það hinsvegar að ég sé bílinn hér úti á plani. Mittisvaðlan viðurkennir að hann hafi fundist fyrir utan heima hjá honum. Hann segir allt dótið hafi verið í honum. Ég er farinn að efast um að þetta rán hafi átt sér stað.
Tóti hinsvegar þrætir og neitar að skila peningunum til þeirra sem styrktu hann á raunarstundu. Hann heldur því fram að þetta hafi verið gríðar mikið tilfinningalegt áfall og hann þurfi þessvegna þennan pening.
Maðurinn er glæpon. Ég vona bara að hann hafi efni á að borga þennan ca. þúsundkall á mánuði sem heimilistrygging kostar, en ég býst fastlega við að hann sói þessu í DeCode.
15.8.04
13.8.04
Tóti félagi okkar í Vonlausa varð fyrir því óhappi að bílnum hans var stolið. Í bílnum hans var fartölvan hans, allir geisladiskarnir, hann var að fara með sjónvarpið í viðgerð daginn eftir þannig að það var í skottinu, mikið af fötum sem hann var að ná í úr hreinsun og síðast en ekki síst hlutabréfasafnið.
Tóti er ótryggður fyrir þessum áföllum og hefur því verið opnaður söfnunarreikningur í útibúi Íslandsbanka við Kirkjusand, 515-26-80085 (BOOBS). Kennitalan er 300976-3659
Flykkjum okkur nú að baki stráknum og hjálpum honum út úr þessum óförum. Margt smátt gerir eitt stórt!
Þú ert þroskaheftur fábjáni
"Þú ert Tóti Tussusnúður, rassnagarinn þinn"
svo mörg voru þau orð
A: "Damn it´s hot here"
B: "Yeah, but it´s a dry heat"
Annars ætla ég að henda bjór á kvikmyndagetraunina til að hvetja ykkur. Bara af því að það er svo fyndið að Mjöðmin er lost.
"Enginn er verri þó hann sé Tussusnúður!"
Mission kveldsins í hamrinum hjá undirrituðum, Retro og Spunge var metnaður eða bust. Hækka um gráðu. Gekk ekki hjá neinum en helvíti erum við allir nálægt því.
Sniðug setning frá síðustu helgi kom upp: "Kökur sem eru ekki löðrandi í brennivíni eru lítils virði".
Það er sannleikur í þessu!
12.8.04
Kretín 2 (Minki Lú) klikkaði bigtime á kvikmyndagetraun dagsins. Ég var nú að vonast til að einhverjir myndu kveikja á þessu í fyrirsögn minni hér að neðan og posta svari, en þið eruð nú ekki gáfuðustu skepnur sem gengið hafa uppréttar á jarðkringlunni.
Því spyr ég, úr hvaða mynd er eftirfarandi setning:
Weikí weikí, eggs and beikí
Góðar stundir...
Kíb er snakkviti.

Annars var ég að sjá frétt á mbl.is um að hitamet hefði verið slegið í Bláfjöllum, en þar mældist mesti hiti frá upphafi mælinga, 24°C. Áður hafði mælst þar 23,8°C 27. janúar 2004.
Haldiði ekki að gömlu Corollunni hans Tóta (áður Tinna, áður minni) hafi verið stolið. Magnað.
Þannig að ef þið sjáið svona eðalvagn á ferðinni (ekki sami), með samlitum stuðurum, óhefðbundnum koppum fyrir Toyota, Sessions límmiða og fleira brettaskrauti aftaná, má alveg hafa samband við löggumanninn. Jafnvel bara skutla smá rauðvíni í Halla Jó og spyrja hvort hann sendi ekki einhverja bolabíta á viðkomandi.
Pæling: Er Þórjón þá Hack núna?
Skv. úrinu mínu eru
Það er gaman að keyra nýju Reykjanesbrautina. Ef þingmenn Reykvíkinga (líta bara á sig sem þingmenn) væru jafn duglegir og þingmenn landsbyggðarinnar (líta á sig sem Hróa hött, stela frá Reykjavík og byggja vegi, asnalega ferðaþjónustu og púkka undir rassinn á rollum) væru skínandi fínar hraðbrautir hér út um allt SV-horn.
Í staðinn er vegurinn um Djúpið (ég hef keyrt hann fram og til baka án þess að sjá annan bíl) orðinn geðveikt flottur en Vesturlandsvegur eins og einhver slóði í Nam, en þar deyja einmitt flestir í umferðinni. Svona er nú margt skrýtið í kýrhausnum.
Blönduós
Hvað er með það? Vísa í fyrri umræðu.
Kjéllingar eru aldrei ánægðar
"Oooo - það er svo kalt." "Oooo - það er alltof heitt."
Sumir eru aldrei ánægðir. Ákveðið ykkur - kræst! (Nb. í mínum huga er ástandið kjélling ekki aldurstengt heldur áunnið viljandi/óviljandi)
Skokk
Prófaði að hlaupa verkefni þarnæstu helgar í gær í fyrsta skipti á ævinni, 10K. Það var ekki svo mikið mál en hinsvegar er reynsluleysi að há manni. Ýmiskonar helvítis nudd eitthvað að plaga mig svo mikið í dag að það er fáránlegt. Búinn að hlaupa 5-6K nokkrum sinnum og þá var þetta ekki issue. Magnað.
Hafði ekki hlaupið síðan í Verzló (jakk) þar til í vor. Nú eru komin 16 útihlaup í sumar, 1,1 skipti á viku (of lítið), 5,2K á viku að meðaltali (líka of lítið). Vona að þetta gangi. Hljóp á 58 mín í gær, rólega þó. Það er hinsvegar of mikið. 55 væri skárra. 50 væri gott, en óraunhæft miðað við æfingar. Kemur bara næst.
Eftir hlaup kom ég heim og hafði ekkert að gera í eina kvöldstund í fyrsta skipti í nokkrar vikur. Það er ekki gaman. Það er hinsvegar gaman að geta hlaupið 10K án þess að vera slefandi.
11.8.04
...forsætisráðherra myndi ég beita ofurkröftum mínum hárfínt, ekki til þess að fara í stríð, rim-reipa alla sem heita Jón, kyssa rassinn á Bush eða troða mannréttindi lýðsins fótum, heldur til þess að taka upp 15% tekjuskatt, setja á sumartíma og banna vinnu á dögum eins og í dag.
Hallelúja!
Ljósmyndari Vonlausa var á ferðinni á Manhattan og náði að smella af þessari ótrúlegu mynd. Þarna sést Köngulóarmaðurinn í baggy fötum (á hans mælikvarða) stunda aðaláhugamál sitt, ljósmyndun. Hugsanlega að stilla upp þegar hann stöðvar mink við viðbjóðslega iðju sína.
Húrra fyrir Lóa!
Introducing, the man who puts the FUN, to Satan and Son!
Myndir hér: http://www.fiski.net/~toti/gallery/Kollabudir2004
Klukkan hálftólf í gærkvöldi var 22 stiga hiti í mosó og 21 stigs hiti á mælinum við kringluna.
ALDREI FLEIREN EINN Í BÍL, MEIRI GRÓÐURHÚSAÁHRIF!!
Í gær fórum við Sveinn að klifra sem er ekki frásögum færandi, nema hvað við sáum tvo gaura með leðurgauntlet búa sig undir að dobbúlpenetreita akfeita kellingu. Sérkennileg sjón í alla staði.
10.8.04
(SA%GE)*2 + (CORT%LAND) = MJÖÐM
Formúla dagsins;
(SA%GE)*3=MJÖÐM
9.8.04
Vísindamenn hjá Sagnfræðideild Hásklóla Íslands telja sig hafa fundið heimildir fyrir tilvist 14. jólasveinarins. Þeim til mikillar furðu virðist jólasveinninn, sem gengur undir nafninu Stangarbrjótur, vera mest megnis á ferðinni á sumrin. Ólíkt bræðrum sínum (hinum jólasveinunum) virðist Stangarbrjótur vera alls ófeiminn við myndavélar og hafa fjölmargar myndir náðst af honum við iðju sína. Það sem af er sumri er vitað til að hann hafi brotið þrjár stangir en þó gætu þær verið mun fleiri.
Sumarferð
Við Kolbeinn Mjöðm lögðum af stað upp úr hádegi á föstudeginum til að ná einni veiðivakt með Geltinum og Tóta Vöðlu. Þegar við komum á staðin og hittum þá félaga kom í ljós að Tóti Murta hafði fyrr um daginn veitt hornsíli og drukkið heila koníaksflösku til að fagna fengnum. Þegar við Mjöðm ákváðum að ganga til veiða drapst Tóti og Sveppi varð eftir til að rimma Tóta þar sem hann gat enga björg sér veitt.
Áin var frekar vatnslítil og virtist fiskur bunka sig í gríðarlegu magni í nokkra hylji. Þeir voru þó grimmir til tökunnar og ekki sérlega vandfýsnir, allavega í byrjun. Flestir voru í smærri kantinum, hálft til eitt pund en inn á milli voru stærri fiskar, sá stærsti sem kom á land um helgina vó heil 2 pund. Við teljum okkur hafa séð Herman Munster í einum hylnum en svo virðist sem stærri fiskar hafi almennt verið tregari til töku en þeir smærri.
Þegar við komum í hús aftur eftir fyrstu vakt var Tóti að vakna, skelþunnur og Sveinn líka, sem hafði kúrt með honum. Fólk fór að tínast í hús og tekið var til við beinstífa drykkju fram eftir kvöldi.
Um miðnæturbil var haldið til veiða. Lordinn stakk af í fyrsta hylinn og vildi ekki vera ónáðaður, Tóti klæddi sig í mittisvöðlurnar, slangraði af stað og drapst milli þúfna en ég leiðbeindi Ársælsmönnum í góðu veiðisiðferði, Jägermeisterdrykkju og kúkabrandörum. Svo jarmaði sauður og vakti Tóta af ölvunarsvefni í annað sinn á sex tímum.
Þegar komið var í hús aftur reyndist Kolbeinn ósjálfbjarga sökum ölfunar og einn og einn fóru menn sömu leið í sortann.
Tóti var fyrstur á fætur enda þurfti hann að drífa sig í bæinn og í leðurbrókina fyrir Gay-Pride skrúðgönguna. Kretínbræður og ég héldum til morgunveiða inná dal en Björgunarsveitin hélt til fjalla (sjá neðar). Fáum sögum fer af veiði þangað til við komum upp að Selfljóti sem geymdi mýgrút fiskjar nú sem endra nær. Í þann mund sem við komumst í fisk helltist þynnka dauðans yfir Kolbein af fullum þunga, veiðifélögum hans til ómældrar kátínu. Ekki spillti fyrir að hann gleymdi vöðlunum sínum og þurfti að vaða ána á strigaskóm. Fiskur var sem fyrr grimmur til tökunnar, hvort sem kastað var púpum eða þurrflugum en allir sem tóku voru litlir. Eftir Selfljótið var haldið heim í hús, hvar feitur göltur var fleginn og étinn.
Eftir mat fórum við aðra umferð um neðstu hylina. Veður var með besta móti nú og sáum við að fiskur var í miklum yfirborðstökum. Skemmst er frá því að segja að þurrflugur svifu nú út á hylinn og voru nær undantekningalaust negldar á svipstundu. Óhemju skemmtileg veiði og tveir Baldwinar komu á land innanum smáfiskinn, þeir Alec og Steven. Jón lét hinsvegar ekki blekkjast í þetta skiptið. Til að hvíla hylinn gengum við niður að ós og urðum heldur en ekki spenntir þegar þrír laxar sáust hringsóla þar um. Öll leynivopn voru dregin fram og þrusað út en ekki vildann taka. Við þess vonbrigði var sem mesta veiðiharkan rynni af mönnum og héldum við heim til að undirbúa silungaveisluna.
Um kvöldið var þrírétta silungaveisla á boðstólnum sem innihélt hráfisk í einfaldri mynd, hvítlauksgrillaðan silung með steinselju og unaðslegan mangómaríneraðan hnetusilung sem Kolbeinn "Madhúr Jaffrey" Guðmundson töfraði fram. He's so particular! Ammínamminamm!
Kvöldið var í rólegri kanntinum þar sem menn settu upp spekingssvip, drukku Laphroag og rauðvín og spiluðu Risk.
Daginn eftir var bongóblíða. Fjallamenn héldu til fjalla á meðan veiðimenn héldu til veiða. Heimahylirnir voru aftur teknir í þeirri vona að þar mæti töfra upp Herman Munster eða Jón Baldwin. Fiskur tók enn en tökur voru mun grennri í þetta skiptið og fáum fiskum var landað. Teljum við að í það minnsta þrír vænir fiskar hafi fengist á færið sem allir sluppu af. Laxarnir sáust ekki lengur í ósnum og var því lítið reynt þar.
Eins og venjan er stakk Minki Lú af úr tiltektinni. Við Kolbeinn pökkuðum saman föggum okkar, lögðum af stað en gerðum eina árangurslausa lokatilraun við Herman Munster en uppskárum ekkert nema liberal wieners.
Toppferð í alla staði, svo lærir sem lifir og ég er ekki frá því að bæði Herman og Jón eigi eftir að liggja eftir næstu ferð.
HÚRRA FYRIR SUMARFERÐ VONLAUSA!!!
Labels: klifur, Silungur, sumarferð vonlausa, Veiði
Spörning um að einhver fiskikall taki að sér að smyrja saman eiginlega ferðasögu fyrir sumarferðina, en þar sem ég var búinn að svala veiðiþorsta ágætlega fór helgin í klifur. Mætti vestur á þriðjudagskveld, veiddi í Langadalsá á miðvikudag og síðan á KB á fim og fö.
Smá pistill um klifrið fyrir klifurrottur innan raða Vonlausa (Kolli potaðu í augað þitt / Krummi er eflaust með puttann í ****gatinu).
Kíkti í Vaðalfjöll [1] [2] [3] með Freyza (leiddi allt) og Hemma, klifruðum í þilinu sem snýr í austur, hægra megin í því, en þar eru lengri leiðirnar.
Stiginn og Nestispokinn
Á laugardaginum fórum við fyrst mjög greinilegan stiga ca. fyrir miðju sem var 5.létt, um 30 metrar. Bröltum síðan þaðan upp á topp án línu og sigum aftur niður þilið. Síðan fórum við magnaða leið sem hlaut nafnið Nestispokinn (5.8) ca. 35 metrar. Aðeins hægra megin við áberandi skoru í þilinu. Síðustu 10 metrarnir eru á mjóum stuðli sem er að losna frá og er sprunginn báðum megin. Smá hræðslufaktor í honum. Frábær leið. Auðvelt að spotta þennan gaur neðan frá, liggur alveg utaná með góðar sprungur báðum megin.
Mordor
Á sunnudeginum klifruðum við svo fyrrnefnda skoru og var það ansi spúkí. Mjög laust inni í henni og slepptum við alveg að koma við það drasl. 40 metra spönn upp í stans. Seinni spönnin er svo léttara brölt en alveg hrikalega laust og stór stykki þar. Stansinn mjög exposed fyrir hruni. Leiðin er ca. 80 og endar rétt fyrir neðan toppinn. Hlaut nafnið Mordor (Let us hope that our presence may go unnoticed) og fær gráðuna 5.6 þó að pissa-í-buxurnar-faktor sé aðeins meiri.
Þetta er gríðarskemmtilegur klifurstaður en smá galli að það er greinilega mikið hrun þarna. Mikið af nýju bergi í molum fyrir neðan vegginn og greinileg sár á mörgum stöðum. Nestispokinn er fyrir neðan yfirhangandi þak af stuðlum sem eru að hellast þarna niður hægt og rólega. Hjálmurinn fór strax á haus og tryggt vel til hliðar.
Mæli meðissu.
Labels: klifur, sumarferð vonlausa
4.8.04
3.8.04
Ég fór daginn eftir í Refsveinu (sem sumir kalla Refsvinu: vinur refsins) og þar má segja að ég hafi átt góðan dag í ósnum þar sem hún rennur í Stóralón. Í frekar "ómerkilegum" hyl fékk ég 35 bleikjur flestar í kringum 1 kg og eina sem var 2.1 kg. Þær hafa líklegast leitað upp í ósinn í hitanum og verið í einhverju æti. Svona er heiðin, Góða skemmtun
Af veidi.is
Af veidi.is
Í framhjáhlaupi má svo segja frá því að Ása frænka fór í Hítarvatn með Stebba He Who Must Not Be Named og reif upp 1,2 og 4 punda silla á flugu og flotholt. Hjaltested fékk hinsvegar ekkert á spún.
1.8.04
Ég vildi bara tilkynna að ég varð mér ekki til minnkunnar, því það kom aldrei til stækkunar. Svo ég vitni í George Constansa "The water was cold, and there was some shrinkage".
En nú er ég rauður og fínn á öxlunum en maginn alveg jafn neonnæpugrár, ég held að hann kunni ekki að taka lit.
Seinna smeinna. Hei ég er að fara að stofna fyrirtæki fyrir DVDgerðina fyrir The Haunted, eruð þið með tillögur að nafni fyrir fyrirtækið? .. hafið ekki áhyggjur, þetta verður svona samhlutaeitthvað blah þannig að ef það fer a hausinn þá er það bara fyrirtækið sem fer á hausinn. ekki ég. "DVDGerðin" gæti verið ágætt, nema þá gætum við ekki haldið áfram að gera DVD af þvi að allar gerðir gera aldrei það sem þær heita. samanber Rammag...
Ég er farinn út í fjöru til að vera með störu á hana Klöru og Söru og borða brauð með Smjöru og kúka einhverju sem líkist tjöru, veiða héra í snöru og grilla hann í hjólböru og baða mig í þöru(ngavatni).
Skoða eldri færslur >>

