30.9.04
Sírnir hefur ekki lesið bókina þannig að hann hefur ekki rassgats vit um hvað hann er tala þannig að hann getur ekkert sagt til um það hver legend er í I Am Legend. Þessvegna ætti hann að þegja í staðinn fyrir að opinbera hálfvitsku sína. Ég er mjög vonsvikinn yfir því að jafn virtur og fær mýeindafræðingur og mýeindakollegi (haha KOLLegi) minn skuli fipast svona hrikalega og sjá ekki mýeindirnar sem eru á ferð.
Gáta
Hvað þýðir grelli á kretínbræðrsku?
Sindri IS a vampire from the United States ... of Amerika
ekki: Sindri is the only not vapire in the whole world ... of Amerika
Til gamans vil ég rifja tvennt upp.
Fyrst; munið þið eftir Simpsons halloweenspecial þar sem Milhouse hélt að allir fullorðnir væru "reverse vamires", þetta eru sko mýeindir því ég mundi þetta allt í einu í fyrradag og fékk flissukast með sjálfum mér og vissi að ég gæti aldrei útskýrt af hverju ég var að flissa. Mýenidir líka af því að Sindri talar alveg eins og Milhouse
í annan stað:
Sindri is a vampire from The United States ... of Amerika
I see Sindri naked in my bedroom ... of Amerika
ooo Sindri, ææææ Sindri, aaaaah Sindri
Sindri won't you come with me and SHINE all around
Sindri is a vampire from The United States ... of Amerika
I see Sindri naked in my bedroom ... of Amerika
ooo Sindri, He made my mother happy
oooh Sindri, he's my favorite superstar
oooh Sindri, your read hair will take us very far
Sindri won't you come with me and SHINE all around
Sindri is a vampire from The United States ... of Amerika
KíB er vampíra from the united states of America. Nú hefur komið í ljós að hann er einnig goðsögn. Ég legg saman tvo og tvo og fæ út fimm. Ævisaga KÍB kom út 1954 og ég hef lesið hana án þess að gera mér strax grein fyrir því hvers kyns er. Svo segir hrokafulli vísundurinn að mýeindir séu ekki til.
Djísus hvað þetta er stjúpid pæling! Er gölli þá að segja að með ráðningu JS hafi verið að viðhalda jafnvægi í Hæstarétti? En ráðnings Ólafs Barkar, var það líka gert til að snúa á valdagræðgi kallaklúbbsins Hæstaréttar? Staðreyndir málsins eru einfaldlega þær að tvær síðustu skipanir hæstaréttardómara eru pólitískur skrípaleikur. Davíð og hans menn eru að taka yfir Hæstarétt og þannig tryggja sér hagstæðar útkomur úr mikilvægum málum. Verður til dæmis mjög áhugavert að sjá aðra lotu í fjölmiðlamálinu þegar það er búið að rigga dómarana í þetta skiptið. Ég verð bara að viðurkenna að ég get ekki séð fyrir mér Jón Steinar eða Ólaf Börk dæma gegn Davíð og sjálfstæðisflokknum þegar mikið er lagt undir. Það er einfaldlega verið að tryggja sér hagstæða úrskurði með fáránlegum pólitískum ráðningum.
Ég ætla ekki einu sinni að ræða hversu vanhæfur JS er að öðru leyti, en bæði lætin í kringum ráðningu hans, svo og hans fyrri störf gera það verkum að hann er vanhæfur í fáránlega mörg mál.
Sjitt hvað ég er fúll yfir þessu.
Í gær hjólaði Hrokafulli Vísundurinn fram á þrjá Auðmjúka Elgi. Og þótti merkilegt. En hvar var myndavélin góða? Í handfarangri Karenar á leið til Belgíu. o
Spurning; Gengur Sveinn út frá því að umsögn hæstaréttar um hæfni umsækjenda hafi verið byggð á óvild þeirra í garð Jóns? Tók herra Haarde faglega ákvörðun á meðan hæstiréttur lét tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur? Hvaða sjónarmið eru það sem Jón ber með sér inn í hæstarétt sem Sveini hefir þótt vanta?
Það verður ekki tekið af kallinum að hann á áhrifamikla vini.
...and I thougth he was just a wampire from the United States of America. Tjékk
29.9.04
Kallinn er alltént duglegur - það verður ekki tekið af honum.
Er það sem sagt tilfellið að þú getir látið skipa þig í opinber embætti með því að láta vini þína vera með læti í fjölmiðlum?
Nú er kominn annar harður diskur í Gollum sem Sindri dóneitaði af miklum höfðingjaskap. Þetta þýðir að sjóðir Gollums eru óhreyfðir og við erum komnir með tæp 30 gíg í geymslupláss í viðbót.
Ég er búinn að vera að baxa við að setja þetta upp í kveld og allflest á að vera frágengið. Færði vefrót og heimasvæði yfir á nýja diskinn ásamt öllu gallerydjönkinu og kom sér vel að vera ferskur í því.
Þið megið svo benda mér á ef eitthvað er í fokki, það er eiginlega alls ekki ólíklegt að mér hafi yfirsést eitthvað. Sérstaklega væri líklegt að sjá skringilega hegðun á galleríinu.
27.9.04
Um helgina fór ég í skemmtiferð til höfuðborgarinnar. Þar skyldi ég eyða "quality time" með tengdafjölskyldunni og njóta alls hins besta sem Osló hefur upp á að bjóða. Ef ég yrði stilltur og léti ekki glepjast af fagurgala Sírnis um að koma í heimsókn til Gaytaborgar, skyldi mér launað með fer í "Konserthuset" hvar ástralski listamaðurinn Nick Cave træði upp ásamt nokkrum félögum.
Að sjálfsögðu varð ég landi og þjóð til sóma. Ég gapti af hrifningu yfir höll konungsins, réð mér ekki fyrir kæti í skansinum og jós lofi á Akerbryggen. Að því loknu slafraði ég í mig með bros á vör soðið kál með rollu, sem er þjóðarréttur norskra og angar eins og óþvegin tussa. Daginn eftir mátti ég svo strunsa með systur Karenar og fjölskyldu um skógarstíga en göngutúrar í skóginum mun vera þjóðaríþrótt þeirra.
Hvað um það, ég hafði svo sannarlega unnið til tónleikanna. Nú er ég mikill aðdáandi Nick Cave og hef meira að segja séð hann á sviði áður. Það var á Hróarskeldu fyrir nokkrum árum þar sem hann spilaði með hljómsveit sinni, vondu fræin.
Að þessu sinni hafði hann lagt garðyrkjustörfin á hilluna og lék einungis með fiðluleikara, bassaleikara og slagverk sér til fulltyngis á meðan sjálfur handfjatlaði hann slaghörpuna. Því miður verð ég að segja að ég var ekki búinn að læra alveg nógu vel heima fyrir þessa tónleika og þekkti þar af leiðandi ekki hvert einasta lag sem leikið var. Kannski ekki að undra þar sem ferillinn er orðinn ansi langur, auk þess sem hann spilaði nokku rlög af plötu sinni sem kom út fyrir viku síðan.
Engu að síður voru tónleikarnir þrælmagnaðir. Maðurinn er náttúrulega með þvílíka þrumuraust að engu er lík, keyrði mann svoleiðis oní sætið. Og ekki spillir fyrir að hann er svo mikill töffari að mar fær hreinlega stjörnur í augun þegar hann talar. Þó að hann mætti ekki reykja. Hann spilaði í tvo tíma, var klappaður upp tvisvar og tók á þeim tíma flest af mínum uppáhaldslögum. gleðigleði
Your a microscopic speck in his catastrofic plan, disigned and directed by his RED RIGHT HAND!
Labels: Tónlist
Damien Rice var alveg magnaður. Til að gera langa sögu stutta er ég eiginlega sammála öllu sem stendur hjá bíó. Svo sá ég Juliu Stiles í góðu chilli og við vorum líka að spjalla við vinkonu hans Damien. Hún var hress. Þessir tónliggar fá hiklaust VV5+ og ég mæti ef hann kemur enn einu sinni. Fyrstu tónleikar á ævinni held ég þar sem ég speisaði aldrei neitt út frá tónlistinni, fór aldrei að hugsa um annað. Og þó voru þeir langir.
Föstudagur - Gaukurinn
Fór á Manhattan, Solid IV, Drep og Mínus á föstudagskveldinu. Erfitt að vera follow up fyrir bestu tónligga ársins. Manhattan voru ágætir, Solid IV voru ágætir og soldið betri, Drep er svona soldið HAM setup nema enn þyngra, einhverjir massagaurar, soldið fyndið. Mínus er ótrúlega gott tónleikaband, allt pottþétt, rosa fínt sánd, mjög flott. Tóku nýtt lag sem var ekkert sérlega eftirminnilegt en það verður gaman að hlusta á það nokkrum sinnum og athuga hvað gerist. Það er óþolandi að tónleikar á Gauknum byrja alltaf svona seint. Fyrsta band byrjaði eftir hálf eitt og Mínus um þrjú. Óþolandi. Það liggur við að maður sakni gömlu kl. 3 lokunarinnar. Mínus er sönnun þess að þú þarft ekki að kunna að meta persónur til að meta listsköpun þeirra. Fínir (geisp) tónleikar. VV3.
Laugardagur - NASA aftur
Retro seldi mér það að Gus Gus væri orðið T-World aftur og þetta væri kúl stöff. Fórum á Nasa (ógeð) og biðum og biðum. Sama þarna, byrjaði viðbjóðslega seint. Ég verð að viðurkenna að ég hef svolítið annað álit á þeim núna, Urður er bara helvíti flott þarna með þeim og þetta eru ansi solid danslög, mjög töff sándin sem þeir eru að nota og svona. Gamanaðissu.
Entist reyndar ekki út tónleikana, beilaði milli 3 og 4 þar sem æfing var plönuð í gærmorgun. Sigldi á slöngubát í Reykjavíkurhöfn í tilefni öryggisviku sjómanna, var hífður þar úr sjónum upp í TF-LÍF, flaug smá hring og þurfti svo að hoppa út aftur. Það var stuð. Aldrei hoppað úr þyrlu áður.
Það er eins og blaut tuska í andlitið að sjá blautu tuskunni hans Bamba stolið.
Labels: Tónlist
Mér var ílla misboðið þegar ég las þessa fyrirsögn og sá hvernig fleygum orðum Búrjós er stolið til að vinna samúð. Blessaður maðurinn hefði betur gert heimavinnuna sína, þá hefði hann kanski vitað við hvaða tilfelli þessi fyrirsögn var notuð síðast. Án þess að vekja svo mikið sem minningu um samúð.
24.9.04
Hver sagði eftirfarandi í Clerks:
Birti hér samtalið í heild sinni:

Dante: You get me slapped with a fine, you argue with the customers and I have to patch everything up, you get us thrown out of a funeral by violating a corpse, and then to top it all off you ruin my relationship. I mean what's your encore? Do you like anally rape my mother while pouring sugar in my gastank? (pause) You know what the real tragedy about all this is? I'm not even supposed to be here today!
Randal: Oh fuck you! Fuck you, pal! Jesus, there you go: trying to pass the buck! Who closed the store to play hockey? Who closed the store to go to a wake? Who tried to win back his ex-girlfriend without even discussing how he felt with his present one? You want to blame somebody? Blame yourself! (mimics) "I'm not even supposed to be here today" You sound like an asshole! Jesus, nobody twisted your arm to be here - you're here of your own volition. You like to think the weight of the world rests on your shoulder, like this place would fall apart if Dante wasn't here. Jesus, you over-compensate for having what is basically a monkey's job. You push fucking buttons! Anybody could waltz in here and do our jobs. You - you're so obsessed with making everything seem so much more epic, so much more important than it really is. Christ, you work in a convenience store, Dante - and badly I might add. I work in a shitty video store, badly as well. You know, that guy Jay's got it right man, he has no delusions about what he does. Us - we like to make ourselves seem so much more important than the people who come in here to buy a paper or God forbid, cigarettes. We look down on them as if we're so advanced. Well, if we're so fucking advanced, what are we doing working here?
Randal: Oh fuck you! Fuck you, pal! Jesus, there you go: trying to pass the buck! Who closed the store to play hockey? Who closed the store to go to a wake? Who tried to win back his ex-girlfriend without even discussing how he felt with his present one? You want to blame somebody? Blame yourself! (mimics) "I'm not even supposed to be here today" You sound like an asshole! Jesus, nobody twisted your arm to be here - you're here of your own volition. You like to think the weight of the world rests on your shoulder, like this place would fall apart if Dante wasn't here. Jesus, you over-compensate for having what is basically a monkey's job. You push fucking buttons! Anybody could waltz in here and do our jobs. You - you're so obsessed with making everything seem so much more epic, so much more important than it really is. Christ, you work in a convenience store, Dante - and badly I might add. I work in a shitty video store, badly as well. You know, that guy Jay's got it right man, he has no delusions about what he does. Us - we like to make ourselves seem so much more important than the people who come in here to buy a paper or God forbid, cigarettes. We look down on them as if we're so advanced. Well, if we're so fucking advanced, what are we doing working here?
I'm not even supposed to be here today
23.9.04
Like unbeatable is not unbeatable.
Hey, I KNOW THAT NOW, OKAY??!
Hey, I KNOW THAT NOW, OKAY??!
You overreacted???
Ég hitti halta Bingó í gær, ég lýg því ekki. Síðast þegar við hittum hann var fyrir svona 10 árum í Austurstræti og þá var hann með Captin Morgan flösku í annarri og Kaftein Morgan flösku í hinni. Hann mundi eftir því. Hann er kominn í bæinn. Hann langar að hitta gamla crewið (og fá meiri bingó kúlur?). Honum finnst skrýtið að þið eigið krakka, sérstaklega Kolli, því hann hélt að það væru einhver lög gegn því að menn eins og þið mættuð fjölga ykkur.
og enn er spurt:
Hver sagði þetta í hvaða mynda við hvaða tækifæri?
"Well at least I'm house trained!!"
Annað kvót:
"Hey, maybe you haven't been keeping up on current events, but we just got our asses kicked pal!"
Anyways, í hvaða mynd:
"Your great-great-great-great grandmother fucked a nigger, and she had a half-nigger kid... now, if that's a fact, tell me, am I lying?"
22.9.04
Það sjást ennþá merki þess að ég fékk óblandað sódastrím-kóla-þykkni yfir mig þegar Tyrfingur var að hefna þess að ég skírði hann Jabba the Hut í staðinn fyrir Greedo. Þess vegna mun ég aldrei aftur kalla Tyrfing Torfa Traustason annað en Tyrfing Torfa Traustason. Hins vegar er Gölturinn svo mikill aumingi að ég hræðist hann ekki neitt og kalla hann grænan Jabba the Hut þegar mér sýnist.
Svo spái ég því að ég muni veiða flestar gæsir í ár því þið eruð aumingjar. Er einhver að halda því fram að það sé að verða síðasti séns á gæs? Það er algjör galtarþvottur og KÍB-skítur.
Ef gæs borðar íslenzku-korn, er það fá mál-fæða?
væri ekki upplagt að kalla krökkuð forrit Dirk af því að það er búið að dirka þau upp og svo getur maður farið á netið og náð sér í dirk eða dirknúmer.
21.9.04
Gölli er alltaf við sama heygarðshornið og reynir að snúa sér út úr löglegu dissi með aldagamalli litla bróðurs vörn. Í sjúkum hugarheimi Galtar stjórnum við Skabbi litlu ormunum ennþá með sama ægivaldi og þegar þeir voru lítil pervisin peð. En núna stöndum við ráðþrota gagnvart þessum Frankenstein skrímslum sem við höfum í óðagoti gefið of mikið frelsi. Þessvegna neita ég að bera nokkra ábyrgð á gjörðum Kretíns II.
Eftir stendur hins vegar að Gölli er bæði bleikt svín og grænn Jabba The Hut.
Svenni sá sér leik á borði og mætti sem Yoda, málaði sig grænan og krumpaði sig upp. Hann mætti því miður ekki nógu tímanlega og var sjöundi maður í búning. Hann fékk þó mikið hrós fyrir að hafa komið í svona virkilega flottum Jabba De Hutt búning og fékk hann í kjölfarið boð um að mæta sem heiðursgestur á nokkrar Star Wars ráðstefnur í Wisconsin og Bergen.
Mikið óskaplega var það dapur og niðurdreginn Kolli sem stendur einn með engan fisk. Oft verða eftilætisbörn ættarskömm. Það er samt með ólíkindum að Kolli hafi ekki fengið ráðandi minkagenið frá foreldrum sínum. Svona gerist samt, kannski hefði ekki átt að láta eggið sem Kolli klakktist úr liggja svona lengi í stofuglugganum, UV-geislanir hafa stökkbreytt honum.
Jæja - þá eru menn farnir að geta fleygt inn myndum, komnir með meil og heimasvæði auk hins frábæra Vonlausa. Farnir að fá eitthvað fyrir peningana sína. Hvet þá sem gætu haft áhuga á hinu sama (Giggús, Addi, Tóti, Biggi, Retro, fleir?) að hafa samband. Geta þá byrjað að borga í sjóðinn og fengið aðgang að öllu dótinu...
20.9.04
Þvínæst verð ég að óska Krumpa til hamingju með að hafa fellt Alec. Það er þó með halfgerðu óbragði í munni þar sem ég hefði óskað að Alec væri klókari en svo að kjamsa á e-m devon ræfli. Eða kannski er það bara eftir sveppinn. En allaveg, hann um það, enda er hann dauður núna (bæði fiskur og sveppur en ekki krummi). Ég minni samt á að Jón er ófundinn, og heyrst hefur að hann sé jafnvel enn stærri.
Að lokum óska ég okkur öllum til hamingju með galleríið, enda er það blátær snilld.
Komið smá test inn, ein frá Þrándinum meðal annars, en hann er mikill áhugamaður um þessa tæknibyltingu.
Skoða
Team Kretín fór í lokaveiði sumarsins á fimmtudaginn. Ferðinni var heitið í Stóru-Laxá á svæði þrú í versta veðri sem sést hefur á suðurlandi í um hálft ár. Það er ekkert grín hvað veðrið var krappí, hífandi rok og grenjandi rigning og vonir okkar bræðra eftir góðri og skemmtilegri veiði fóru strax dvínandi. Ég gat þó sætt mig við að ég fengi að testa nýja jeppann minn(ok, jeppling) í alvöru veiði.
Gömlu kretín voru saman á stöng og kretínbræður voru saman með hina og þegar við vorum komnir útí á fór að hvessa ennþá meira og rigningin ágerðist. Kolli kastaði flugunni nokkrum sinnum í sjálfan sig og mér tókst að flækja línuna í öðru hverju kasti sem gerði það að verkum að helmingin af tímanum stóð maður uppað mitti útí á, saman krullaður í girni og með spún á bólakafi í rassinum á vöðlunum. Sjitt hvað þetta átti eftir að verða vonlaus veiðiferð. Sem betur fer vorum við Kolli með bjór og Jegermeister svo þetta var ekki alveg vonlaust.
Eftir pott og nokkrar veiðisögur var farið snemma að sofa því að gömlu kretín sögðust hafa séð laxa þar sem við ætluðum um morguninn.
Við fórum frekar seint af stað, enda var veðrið alveg jafn krappí og daginn áður og þegar úrí á var komið byrjaði sagan að að endurtaka sig. Kolli veiddi sjálfan sig, ég flækti devoninn í hettunni minni og nestið mitt blotnaði.
Við vorum orðnir frekar vonlitlir og fúlir þegar það var skyndilega rifið í línuna hjá mér. Upphófst þarna mikill bardagi og var strax ljóst að um mikið skrímsli var að ræða. Stórhvelið reyndi ítrekað að draga mig útí vatnið, en eftir mikið einvígi krafta og sálfræðistríð var ókindin að falli komin. Kolli stökk til og dró drekann á land og eftir að hafa reynt að taka Kolla í bóndabeygju þá veitti ég honum(fisknum, ekki kolla) náðarhöggið með fína rotaranum mínum.
Þegar við höfðum skálað í Jeger og fagnað smá virtum við skeppnunni fyrir okkur og sáum að þarna var enginn annar en Alec Boltwin mættur, enda mældist hann rúm 10 pund.
Brilliant lokapunktur á veiðisumari og sannar enn og aftur að team Kretín ber höfuð og herðar yfir Göltinn og hans ilk.
17.9.04
að mér herðir hugarvíl
því að með rassinum Skabbi múnaði rúðu úr bíl
hvenær verður haldin minningarathöfn um úrmúnuðu rúðuna? Verður stofnaður minningasjóður úrmúnuðu rúðunnar? Eru blóm og kransar velkomnir. En blowjob og Franzar?
En sem ég syrgi úrmúnuðu rúðuna þá hlakka ég jafnframt til að jafnvel verða vitni eða frumkvöðull að nýjum úrmúnunum, því það er ekki hægt að láta það viðgangast að ekkert sé úrmúnað, þó ekki sé nema að einhver múni kaktus út um glugga.
Eins dauði annars úrmún!

Það tók skemmri tíma en síðast að finna Corolluna. Var hún í Heiðmörk við útigrillið í þetta skiptið en síðast fannst hún á Hvammstanga.
Þarna voru greinilega vondir menn á ferð því fyrst voru afturdekkin tekin af og bremsuklossarnir og bíllinn keyrður á malarplaninu á maganum. Síðan þegar frammhjólin voru grafin niður og bíllinn fastur var m.a. vatnskassinn tekinn úr auk annarra hluta úr vélinni. Bensínið sogið upp og olían hafði verið tekin því við bílinn bar olíubrák og skorinn brúsi sem henni hefur væntanlega verið safnað í.
Vaka mætti á svæðið og tók bílinn í pressun. Bað ég um að ég gæti fengið kubbinn sem lyklakyppu. Vonandi gengur það... eða ekki.... Heilt á litið er þetta sorglegur endir á lífi bíls sem hefur reynst hópnum vel gegnum tíðina...
Djöfull er það fáránlega fyndið. Nú vakna margar spurningar. Er bíllinn á Blönduósi? Er bjór í honum? Keyptirðu sónax svo þrjóturinn geti bónað bílinn aftur? Er Fossvogurinn hættulegasta hverfi bæjarins? Ert þú fáránlega óheppinn gaur? Fyrir dygga lesendur - blogg frá því að bílnum var stolið síðast, í ágúst. [1] [2] [3] [4]
Ég og Gölli höfum ákveðið að reyna að setja upp Gallery á vonlausa, ég ætla reyndar að taka æfinga uppsetningu á ónotaðri vél sem ég á heima.
Ef vel tekst til ættum við að geta verið með Gallery upp and running eftir helgi. Í framhaldinu þyrfti síðan að huga að meira diskplássi en meira um það seinna.
Fer ekki að verða kominn tími til að fá sér stýrislás á Corolluna? Það er meira að segja hægt að fá þá með fjarstýrðri læsingu!
Same shit - different day !
Corollunni minni (sem Sissi og Tinni áttu einu sinni) var AFTUR stolið í nótt þannig hafið augun opin fyrir henni á götunni. Hún er rauð á lit, upplitað frambretti og Sessions limmiði á afturstuðara.
16.9.04
Gott comment af ÓL
Tennis commentator: "One of the reasons Andy is playing so well is that, before the final round, his wife takes out his balls and kisses them... Oh my God, what have I just said?"
Miðarnir komnir í hús. Ég á amk.1 ef ekki 2 auka. Miðinn minn er númer 6-66, THE NUMBER OOOF THE BEEEEEAST...
15.9.04
Stíllinn er greinilega að virka, þessir 3 eiga ekki framtíð fyrir sér í svörtum fötum. Hvernig ætli þeim hafi gengið í þrekprófinu? Þetta er eins og að falla á byssuprófinu, já eða bílprófi.
Þess má líka geta að 3%, 3 af 98, gátu ekki skrifað 300 orða stíl án þess að gera 28 villur eða minna.
Hélt að það væri fullt af einhverjum gaurum að fara í þetta sem er búið að dreyma um að vera lögga í mörg ár og hlaupa úti á hverjum degi.
Eru Íslendingar kannski bara almennt í lélegu formi? Kann að vera.

Heldur þykir mér fíkniefnasalar vera farnir að færa sig upp á skaftið, auglýsa sína þjónustu fyrir allra augum á vefnum hjá frændum hans Gölla.
Svo var ég að lesa að vegurinn upp að Úlfsvatni er orðinn greiðfær öllum fjórhjóladrifsbílum. Fljótið er enn sem komið er óbrúað en e-ð hlýtur traffíkin að aukast. Skyldi Vonlausa beila á heiðinni næsta ár líka?
Stangveiði er víst að skila rokna pening í kassann. Bein áhrif ca. 2 millj. og óbein meira. Kannski þessvegna sem við þurfum að borga alltof mikið fyrir veiðileyfi? [Nánar]
14.9.04
Mér verður oft hugsað til línu sem Cate Blanchett sagði í Coffee and Cigarettes. Þegar maður á ekki pening er stöff rosalega dýrt en svo ef maður er ríkur er það ókeypis. Þannig á sá sem átti 10 mills í KAUP fyrir viku tæpum 900 þúsund kalli meira núna. 176% síðasta árið. Það væri gaman að hafa efni á því að leika sér með smá pening.
Það magnaða er að margir eru að gera þetta með 100 mills eða jafnvel 1000 mills.
Gaman.
Er ekki bara málið að banna sölu á rjúpu? Mér finnst þetta sýna svart á hvítu að veiðiálag hefur verið allt of mikið og einu raunhæfu leiðirnar til að minnka veiði er að annaðhvort banna sölu eða banna bara alla veiði.
Hvenær er svo vonlaus gæsaferð? Eða þoriði ekki vegna þess að kretínbræður rústa ykkur eins og venjulega.
Þrándurunn brá undir sig betri fætinum um helgina og skellti sér á túr með Ski&Fjell gruppa. Ferðinni var heitið til Jötunheima sem eru...eh... í Noregi. Lagt af stað um tvöleytið á föstudegi, ekið í sex tíma, þrammað í tvo í viðbót og loks tjaldað í 1400 metra hæð. Afar hressandi. Norðmenn eru e-ð svo rosalega sjóaðir í þessu, Með tjöld og mat handa öllum, ekkert stress, fjúkandi tjöld, gleymdur matur eða e-r asni kaupir kavíar. Ónei, allt smurt. Ég fékk meira að segja að sofa í tjaldi með 3 kellingum...hmmm.. þetta býður uppá að vera kallaður kelling.... Ein þeir rak geðveikt við fyrior svefninn en enginn þeirra hló. Stelpur eru fáránlegar.
Daginn eftir var rjómablíða, stefnan tekin á Skardalstind, sem ku liggja í 2200 metra hæð. Uppferðin var brött en fljótfarinn, þeir eru ekki jafnmikið í þessu lausa hrynjandi drasli þarna í Noregi. Eftir að báðum toppum var náð (sjá myndir) byrjaði að rigna og rigndi svo að segja stanslaust það sem eftir lifði helgar. Hressandi ganga í rigningunni heim í kamp aftur, alls 10 tímar í göngu
Sameiginlegur kvöldmatur aftur um kvöldið, sofið. Engin nennti að ganga á fjöll daginn eftir enda pöseregn. Þrammað í bílana í rigningunni, Þakkaði Satan fyrir að hafa tekið minidiskinn með.
Fantaferð í alla staði.
Myndir úr ferðinni má nálgast hér í uþb viku.
hadebra
Annars er merkilegt að í sömu viku birtast fréttir um stórfellda fjölgun rjúpu og verulega fækkun. Þ.e. 100% fjölgun frá því fyrir ári síðan en samt fækkun frá því fyrir löngu.
Sjá Fækkun rjúpu og Fjölgun rjúpu.
Náttúrufræðistofnun og reiknistofnun segja rjúpunni hafa fækkað voða mikið. Er reiknistofnun ekki bara tölvudeild HÍ? Windows uppsetjarar með plömmer? Eða eru einhverjir reiknarar þar líka?
Nema hvað - frétt á Mogga
13.9.04
Fyrir áhugasama eru 2 lög með Retron hérna;
1) The Wrath of Gymkata
2) Lag 1
Undirspilið er reyndar aðeins með í Lagi 1 - geðveikt flott - mæli með því.
Hmm - ég heyrði að Kolli hefði flassað gæsirnar og þær hefðu dáið úr hlátri. "Ískaldur" - ræt - þú ert alltaf með nanólitla rækju, hitastig skiptir engu máli.
Kobbabúðir gáfu víst fínt um helgina, stappað af gæs og 2 laxar komu á land ásamt tonni af silla.
Fór á svokallaða 'einkagæs' um helgina, þ.e. tók eitt morgunflug á sunnudagsmorgni. Vorum á á fínum en risasórum kornakri. Það var voða lítið að gerast og hefur nú alltaf verið meira líf á þessum slóum þegar ég hef verið þar en fengum einn samt 5 fugla hóp beint inn til okkar og við felldum þær allar, þar af tók ég tvær. Tveir aðrir svipaðir hópar komu nálægt en voru þó rétt úr skotfæri. Ég er frekar ánægður samt með þennan túr og hversu ískaldir við vorum áður en við skutum gæsirnar og náðum þeim öllum þar af leiðandi.
Kretínbræður eru sem sagt enn eina ferðina að rasskella ykkur, ég með tvær og Kretín II með eina. 3-0 fyrir team kretín gegn team gay.
Skítkalt úti í morgun. Það er ekki nema 4 vikur síðan maður var í góðu chilli í Valshamri í lok hitabylgjunnar góðu. Gaman væri nú samt ef þetta væri ávísun á alvöru sumar og alvöru vetur. Það væri afar snjallt.
Tók mikið öryggisuppfærslukveld á föstudaginn á Gollum og svo má bæta við því að allir borgandi meðlimir hafa nú rétt á póstfangi að vonlausa.org.
Fór á tónligga með Retro á laugardagskveldið. Sáum fyrst hljónstina Skáta, mér fannst þeir ekkert spes. Gæti verið ágætt stöff með smá æfingu kannski. Síðan kom núverandi húshljónst Vonlausa, en það er Retron. Þeir voru búnir að útbúa geðveikt flott visual show með og þetta var drullusvalt það sem heyrðist. Því miður gerði biluð snúra þeim lífið leitt og þeir slúttuðu á endanum þegar Kolli öskraði "fokkiði ykkur" og hljóp út. Enda er hann þjáður rokkari. Vona að þeir drífi sig bara að spila aftur því að ég hef trú á þessu stöffi.
Síðan kom Jan Mayen (ágætir) og einhver bresk hljónst (góð en gerði bara sama dótið aftur og aftur).
Horfði á Hafið í gær. Akkuru gera allir íslenskir leikstjórar einhverjar útnára/white trash myndir? Hún er allt í læ samt en ekki of jákvæð. Nína Dögg er sniðug leikkona. Enda leikur hún í Rómeó og Júlíu sem er kúl stykki.
Ég hata OgVodafone.
11.9.04
Djöfull er ég orðinn agalega pirraður á OgVodafone. Viðurkenni að þeir leysa alltaf úr málunum og aðgengið að nethjálpinni þeirra er orðið gott. EN...
...serverinn minn fór niður í gær í 20 klst. og þeir halda því fram að það sé stutt þjónusturof! Eins gott að þeir vinna ekki fyrir netbanka. [Nánar]
10.9.04
Gæsin að koma á Wezzzturland. Nennir einhver í morgunflug um helgina eða fyrir vinnu í næstu viku?
Krummi tók víst 3 í 6 gæsa ferð um síðustu helgi sem Kolli komst ekki í því hann er á túr. Held að það séu fyrstu vonlausa-gæsirnar í haust. Congrats!
9.9.04
8.9.04
Cynics Corner
Know your acronyms and succeed in information systems:
ISDN - It Still Does Nothing
SCSI - System Can?t See It
DOS - Defective Operating System
BASIC - Bill?s Attempt to Seize Industry Control
IBM - I Blame Microsoft
DEC - Do Expect Cuts
CDROM - Consumer Device, Rendered Obsolete in Months
OS/2 - Obsolete Soon, Too
WWW - World Wide Wait
MACINTOSH - Most Applications Crash; If Not, The Operating System Hangs
PENTIUM - Produces Erroneous Numbers Through Incorrect Understanding of Mathematics
COBOL - Completely Obsolete Business Oriented Language
AMIGA - A Merely Insignificant Game Addiction
LISP - Lots of Infuriating & Silly Parentheses
WINDOWS - Will Install Needless Data on Whole System
Know your acronyms and succeed in information systems:
ISDN - It Still Does Nothing
SCSI - System Can?t See It
DOS - Defective Operating System
BASIC - Bill?s Attempt to Seize Industry Control
IBM - I Blame Microsoft
DEC - Do Expect Cuts
CDROM - Consumer Device, Rendered Obsolete in Months
OS/2 - Obsolete Soon, Too
WWW - World Wide Wait
MACINTOSH - Most Applications Crash; If Not, The Operating System Hangs
PENTIUM - Produces Erroneous Numbers Through Incorrect Understanding of Mathematics
COBOL - Completely Obsolete Business Oriented Language
AMIGA - A Merely Insignificant Game Addiction
LISP - Lots of Infuriating & Silly Parentheses
WINDOWS - Will Install Needless Data on Whole System
Svo sá ég þetta fína samsærisvídeo á þessum slink. Hvar er farþegaþotan sem fór á Pentagon? Hmm?
Ég fór á gæs um helgina, túrinn sem Kolli mjöðm þorði ekki í því hann var á túr. Það var reyndar ekkert mikið action í gangi en það féllu sex gúsir og skaut ég þrjár.
Mórall sögunnar er sá að ég er veiðimeistarinn og þið eruð allir litlu veiðiþjónarnir mínir.
Labels: Gæs
7.9.04
Veit einhver hvar það dót er niðurkomið? Ég fer á gæs um næstu helgi, með eða án Vonlausa! Þó að það sé einhvern veginn ekki það sama án þess að Skabbi sé með til að stela gæsunum mínum.
Hér er svo geggjað myndband
6.9.04
Nú er enginn búinn að svara vikugamalli fyrirspurn minni um hvort enginn ætlar á gæsaveiði. Hvaða bölvaður aumingjaskapur er í ykkur rolur?
Kolli ætlaði að læðast með pabba sínum á gæs án þess að segja neinum. Þangað mega ófínu vinir hans ekki koma. Pabbi hans skeinir hann líka, setur duddu uppí Kobba og skýtur gæsirnar fyrir hann. Hann þarf ekkert að gera nema liggja í dúncamósvefnpoka ofan í camó barnavagni og fylgjast með.
Step up og drullisti út á gæs lötu lyddur. Ef það kemur enginn með mér á gæs um næstu helgi segi ég mig úr klúbbnum og legg til að nafninu verði breytt í vonlausi faggaklúbburinn með aðaltilgang að hanga heima hjá sér og safna spiki (hörð samkeppni um besta árángur þar).
3.9.04
Don't be an economic girly man! (lesist með þýskum hreim)
Giggús stóð sig bara ansi vel í kaffigerð, Sindri kaffigerðarmaður gaf honum líka nokkur tips að skilnaði. Gaman að fá skýringu á tilfinningu Kolla fyrir stjórnarskrárbundnum rétti manna til eigna sinna. Það má leggja rafmagnslínur og vegi yfir hús hjá fólki. Nema Hvalnes eða aðrar eignir Kolla. Það má pócha. Nema á Hvalnesi eða öðrum eignum Kolla.
Réttarvitundin er sterk með þessum strák.
2.9.04
Þetta er æðislegt - hvernig díselvélar virka. Sá hjá Stæner.
Samkvæmt þessu er díselbruni mun hagstæðari, bæði vegna þess að meiri orka er í díselolíu en bensíni og vegna þess að þjappan er mun meiri og þar af leiðandi meiri hiti.
Ef við bætum svo við þetta að díselvélar eru umhverfisvænni þá er augljóst að ríkið á að byggja hvata inn í kerfið til að kaupa bíla með díselvélum, þó þeir séu dýrari. Sérstaklega fólksbíla.
Sælir sokkar. Mikið finnst mér gaman að hafa Graðna og ZúZúman hérna að spjalla við, alveg frábó. Ég mæti svo kirfilega til Graðna, pant fá góðan kaffibolla. Latté væri ekki verra.
Er einhver stemmari fyrir því að éta einhversstaðar Skabbi?
Nema hvað - ég var að henda fleiri myndum úr sumarferðinni á askinn, setti klifurmyndir í sér albúm fyrir þá sem hafa áhuga.
Flogaveikur mbl.is
Fyrir þá sem eru að verða flogaveikir á mbl.is er einföld lausn. Náið í css skránna userContent.css (hægrismella og Save As), vistið hana á góðan stað, farið síðan í Internet Explorer og veljið Tools > Internet Options > General > Accessibility (takki neðst) > haka við "Format documents..." og velja stílsíðuna. Browsið svo á mbl.is og voila! Engar flogaveikar auglýsingar...! [Í boði Böðvarsson]
Ath. Smóking/Dökk föt.
1.9.04
Skjár 1 - 21:00 One Tree Hill
Karen situr yfir syni sínum þar sem hann er í dái. Hún hittir kærustu sonar síns. Deb segir henni að hún sé að skilja við Dan. Karen kemst að því að Keith var ölvaður við akstur er slysið átti sér stað. Nathan reynir að fá Haley til að byrja aftur með sér.
Karen situr yfir syni sínum þar sem hann er í dái. Hún hittir kærustu sonar síns. Deb segir henni að hún sé að skilja við Dan. Karen kemst að því að Keith var ölvaður við akstur er slysið átti sér stað. Nathan reynir að fá Haley til að byrja aftur með sér.
Svona getur maður verið áhrifagjarn.
Skelltum okkur á bíó í gær, á ameríska indídaga. Núna sá ég Coffee and Cigarettes, var búinn að sjá Supersize Me og á eftir amk. Ken Park og kannski fleira.
Nema hvað - ég dýrka Jim Jarmusch náttúrulega, Dead Man er ein allra besta mynd sem ég hef séð og ekki var Ghost Dog mikið síðri. Night on Earth þótti mér líka frábær. Þetta eru stuttir sketchar þar sem settingin á það sameiginlegt að vera kaffihús, kaffidrykkja og sígóreykingar.
Fyrsti bitinn var 6 mínútna stuttmynd frá 1986 með Stephen Wright og Roberto Benigni. Annar er frá 1989, "Memphis Version", með Steve Buscemi, Joie Lee, og Cinqué Lee. Algjör snilld er náttúrulega 1993 bitinn, "Somewhere in California", með Iggy Pop og Tom Waits. Síðan má finna Cate Blanchett að leika á móti sjálfri sér, samtal milli Bill Murray GZA og RZA úr Wu Tang og fleira.
Ef ég hefði ekki farið á þessa mynd vissi ég ekki hver Nikola Tesla (telephone repeater, rotating magnetic field principle, polyphase alternating-current system, induction motor, alternating-current power transmission, Tesla coil transformer, wireless communication, radio, fluorescent lights, and more than 700 other patents)væri ;)
Æðislegt líka hvernig ákveðnir hlutir smitast milli atriða, til dæmis pælingin hans Tesla um jörðina sem leiðara fyrir hljóð og gömlu kallarnir sem heyra "I Have Lost Track of the World" hljóma í kaffipásunni.
Fín mynd fyrir þá sem fíla góðar kvikmyndir, ekki bara afþreyingu. Öðrum gæti þótt hún mökkleiðinleg.
Skoða eldri færslur >>

