29.10.04

Chicken Street - Shit happens
Nú er ég ekkert ofsalega hrifinn af því að Íslendingar séu í hergalla með vopn í útlöndum. Ísland er (var?) herlaust land. Ætli það sé ekki hægt að taka þátt í uppbyggingu án þess að vera gallaður eins og her? Ef ekki þá er spurning hvort við eigum ekki að beina hjálpar-kröftum okkar annað.

En einum punkti er ég gáttaður á. Þessir ágætu kappar eru í bolum sem stendur á "Chicken Street - Shit happens" og eru þannig að gera grín að atburðinum og hugsanlega að skjóta á yfirmann sinn. En nú dó þarna einhver bandarísk kona að mig minnir og einhver(jir) slösuðust. Það er þeim að kenna sem eru í hergöllum þarna, á heitu svæði sem var búið að vara við.

Þannig get ég ekki dregið aðra ályktun af þessu en svo að Íslendingarnir hafi með óbeinum hætti drepið/slasað fólk í Kabúl. OK - kannski langsótt og ófyrirséð afleiðing teppaferðarinnar miklu.

Alltént næg ástæða til að segja ekki "Shit happens" og velta sér upp úr einhverju sjokki eða hvað?
::Hívatha litli skeit klukkan 18:42 29.10.04 ::

Ha Ha Ha í mogganum í dag stendur ígrein um kennaraverkfallið,"ræða við sitt bakland" ha ha ha ég get aðeins skilið þetta á einn veg ha ha ha.
::The Satan of Death skeit klukkan 07:01 ::

Til hamingju með skítugs-afmælið Sveinn. Ég er mikið krumpaður yfir að missa af Sveinsmessunni þinni, ég finn það á mér að vofveiflegir (hvernig er vofveivlegt stafað?) hlutir muni gerast. Sjálfur mun ég troða fram með KimL í kvöld, nánast ósofinn, ég hef ekki fengð að sofa almennilega síðan daginn áður en ég kom aftur hingað. En það er þá bara kúl, vona ég, að vera syntari með úfið hár, gulu af þreytu og fjólubláa bauga í stíl. Svo ætla ég að æla á hljómborðið mitt girða niðurm mig og reyna að skola ælunni af því með því að míga á það en detta þá yfir það og hanga á því með rassinn upp í loftið og sprauta okkurgulum ræpugosbrunni yfir allt sviðið. Að lokum bendi ég dömunni á fyrsta bekk kurteisislega á að hún sé með eitthvað í munnvikinu.

Mér finnst líka gott að þú skulir verða þrítugur, það er miklu betra en að verða Gunnlaugur, sem er aftur á móti miklu betri en Þorvaldur. Viltu lofa þvi að fara aldrei frá mér burt, ó ó ó Rögnvaldur.
::The Satan of Death skeit klukkan 06:43 ::

28.10.04

Ráðgátan um uppruna Skabba loksins leyst.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:26 28.10.04 ::

Don Alfredo
Mér gremst ruglið í Alfreði Þorsteinssyni og Orkuveitunni óstjórnlega. Þarna er verið að pissa skattpeningunum okkar algjörlega niður um vaskinn.
  • Risarækjueldi?

  • Orkuveituhúsið

  • Tetra Íslandi - (á hvínandi kúpunni)

  • Lína.net - kræst

  • Áformuð kaup á Símanum / í heilögu samkeppnisstríði við Símann sem við eigum nb. líka

  • Greiða niður fjarskiptarekstur með tekjum af orkusölu

  • Hækka orkuverð af því að það er hlýtt úti

  • Doninn með skrifstofu þar sem m.a. er hægt að skyggja rúður með rafgasi.(Stjórnarformaður með skrifstofu?)
Greinar og fínn sjónvarpsþáttur:
-Risarækjueldi er bull
-Fín grein eftir Brynna
-Pressukveld síðan í mars með fíflinu (3. mín og áfram)
::Hívatha litli skeit klukkan 01:30 ::

27.10.04

Þumall á þrjá vegu
Fyndið hvernig fólk upplifir hlutina á mismunandi hátt. Ferðasagan mín af Þumli, ferðasaga Dísu ljósálfs, ferðasaga Höllu...

Ég fíla svona veður.

Prattíið verður skemmtilegt.

Ipod photo er kúl.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:44 27.10.04 ::

26.10.04

Allir góðir hálfvitar eru eyðilagðir af útfærslum á hugmyndum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:19 26.10.04 ::

Allar góðar útfærslur eru eyðilagðar með hálfvitalegum hugmyndum.
::KÍB skeit klukkan 10:00 ::

Af hverju hef ég á tilfinningunni að þessi færsla tengist fyrrverandi vini þínum og símafyrirtæki sem jók virði sitt með því að kaupa ryðgaða nagla og útrunninn dósamat fyrir hundruði milljóna?
::Hívatha litli skeit klukkan 09:57 ::

Allar góðar hugmyndir eru eyðilagðar með hálfvitalegum útfærslum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 09:55 ::

25.10.04

Airwaves #3 og #4 og vitleysa helgarinnar
Jæja - þetta var bara ansi gott í heildina. Gott value for money, ekki spurning.

Föstudagur
  • SIGN - drullugóðir, fíla þá. Enduðu á lagi eftit NIN sem var massaflott.

  • Forgotten Lores - voru algjörir snillingar. 4 rapparar, 2 DJ's, bassi, trommur, gítar hljómborð. Allt á íslensku, geðveikt flott, góðir spilarar. Fylgist bókað með þeim í framtíðinni

  • Kid Koala - kom skemmtilega á óvart. Besti DJ sem ég hef séð. 3 spilarar, bítaði allt á heddfóna, lúppaði endalaust, tók trompetsóló yfir djasslög og gerði snilld sem ég hefði aldrei ímyndað mér að væri möguleg. Snillingur!

  • Hjálmar - hefur langað að sjá þau í soldinn tíma. Gerði m.a. misheppnaða tilraun til tónleikafara á Stúdentakjallarann um daginn. Þetta er ísl. reggí. Mjög góðir, en smá vonbrigði. Rosalega vel spilað, en rosalega rólegt og söngkonan þeirra er soldið frosin á sviði. Flottir samt - fylgist með þeim.
Laugardagur
  • Mugison - er mesti snillingur í heimi!

  • Maus - er frábært band

  • Keane - eru vælukjóar

  • Unsound - ágætt rafflipp, einn gaur

  • Quarashi - geisp

  • NLO - smá byrjunarerfiðleikar, vegna heyrnarleysis mixermanns, en voru drullugóð. Retro er managerinn þeirra og þau státuðu Toggapop þarna. Fylgjast með þeim. Raf/live dansskotið og geggjuð söngkona.
Þórisjökull
Helgi Borg Ísalpari tók þessa mynd af ísklifurleiðinni Birkitré í Þórisjökli. Stolið af isalp.isVaknaði kl. 6.30 á laugardagsmorgun til að fara í Ísalp ferð að ísklifra í Þórisjökli.
Mættum upp á Select á einhverjum óguðlegum tíma, eftir fínt kvöld á Airwaves. Fallegt veður á fjöllum. Þoka í Þórisjökli þannig að við vorum komnir alveg upp að Birkitrénu þegar við loksins fengum staðfestingu á því sem allir óttuðust: að Angelina Jolie er maður. Grín - það var sem sagt ekki arða af ís í leiðinni.

Nema hvað, menn hressir á því og var því brölt upp gilið við hliðina. Fyrst brölt upp drasl gil. Síðan fínt 3 gráðu brölt kannski með einu hafti, ágætlega langt, ca. 50 metrar, og góður ís/snjór. Ég, Freysi og einn til bröltum síðan upp á topp.

Þetta var hálf skrýtið, nokkrir einstaklingar sem hefðu eiginlega ekki átt að vera þarna sökum reynsluleysis. Svo var einn þarna rétt búinn að klúðra sér endanlega með aulaskap, sem ég hef ekki húmor fyrir.

Útlandafílingur á tímabili, hanga fyrir neðan haft meðan spindrift (íslenskt orð einhver?) helltist yfir mann á fullu og ekkert sást. Svona laus snjór, ekki snjóflóð en samt flæðandi snjór.

Allir bara nokkuð sáttir held ég, betra en að hanga heima. Síðan var útskrift hjá Evu hans Bíó's beint eftir þetta.

Haustferð Saumó
Aftur þurfti að vakna um sjöleytið á sunnudeginum. Stefnan sett á Úthlíð í haustferð Saumó. Hjóluðum frá Úthlíð, vestur fyrir Miðfell og síðan upp á Rótarsand, sem er rétt fyrir sunnan Hlöðufell. Síðan í suðvestur, og gönguslóðann niður Brúarárskörð. Athugið að leiðin er ekki alveg rétt á kortinu, cirka bara. Geysiskemmtileg 4,5 klst leið í frosti og stillum. Algjör snilld. Síðan í nautasirlong og tilheyrandi, gott rauðvín og heita pottinn í Úthlíð.Massa helgi. Minni svo á að mullet er óafsakanlegt við ALLAR aðstæður. Hvað er að fólki?
::Hívatha litli skeit klukkan 14:30 25.10.04 ::

22.10.04

Íslenskar loftbylgjur #3
Óskalistinn er svohljóðandi;
Gaukurinn
22:00 Sign
00:30 Mínus

Nasa
21:15 Dáðadrengir
(22:00 Skytturnar)
00:15 Hjálmar
02:00 Jagúar

Listasafn
21:00 Bang Gang
::Hívatha litli skeit klukkan 13:44 22.10.04 ::

Icelandic Airwaves / Íslenzkar loftbylgjur
Kíkti á Airwaves í gærkveldi. Fór fyrst á Slowblow í Listasafninu. Þar er nett að hlusta á tónligga, ágætt sánd, bergmálar ekki jafn mikið og maður hefði kannski haldið. Slowblow voru fín, skemmtileg chilltónlist. Skipta líka um hljóðfæri nánast eftir hvert lag. Svolítið eins og blaklið.

Síðan kom Four Tet, einhver sóló raftónlistargaur sem ég var búinn að heyra góða hluti um. Hann var ekki beysinn. Alltof sýrður eitthvað. Held að menn þurfi ógrynni fíkniefna til að fíla þetta. Því var haldið á NASA.

Úlpa var fín. Heyrði fræga lagið þeirra. Ég er búinn að heyra fræga lagið þeirra ansi oft live þegar ég fer að hugsa um það. Það er gott. Móment kveldsind átti Sækó Bob sem stóð við hliðina á mér og engdist líkt og hann væri að fjarstýra bandinu. Gaf þeim merki á fullu, thumbs up og svona. Gaman.

Svo kíkti ég með Bíó og fleiri nördum á kaffara í smá chill meðan Ensími væru að koma sér fyrir. Þegar við komum aftur var 3 km röð. Glatað. Mér finnst Ensími geðveikt hljómsveit. Sauður getur maður verið.

Síðan á Gaukinn á Non Phixion. Voða týpísk rapphljónst. Menn mættu nú alveg brjótast aðeins út úr formúlunni. Það var meiri fjölbreytni í rappi '90 en '04. Hvað er með það?

Beilaði síðan en Bíó komst inn á NASA og sá Sahara Hotnights. Helvítis.

Kveld #2 (#1 hjá mér) => Nett klúður og engin snilld.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:32 ::

Afhverju er Svenni með Mcdonalds merki á enninu?
::Mósagrís skeit klukkan 08:40 ::

21.10.04

Ójei Ójei
Kretín blæs til mikillar veislu í hvíta kastalanum (honum finnst blár reyndar betri) á sunnudagskveld. Hann ætlar að elda þvílíkan gúrmei mat í tilefni þess að týndi sauðurinn ætlar að týnast aftur til borgar gauta.

Heyrst hefur af nöktum meyjum að æfa fyrir þennan viðburð, og Sírnir er að æfa sig í að opna rauðvínsflöskur á tíma meðan þetta er skrifað.

Rokk!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:04 21.10.04 ::

Photoshop stríðin
Sveppi sprengir heimaplánetu Stæners;

Skalli

...og Stæner hendir húfunni hans Sveppa í poll.

Þroskalýsi
::Hívatha litli skeit klukkan 10:47 ::

19.10.04

Kerry í skrýtlum síðan '71
::Hívatha litli skeit klukkan 15:26 19.10.04 ::

Lítil djammsaga
Eftir að hafa ekki sofið af viti í einhverja 39 tíma ákvað ég að sjálfsögðu að skreppa á djammið í stað þess að fara að sofa. Reyndum að kíkja á reggíhljónstina Hjálma en það gekk ekki. Fullt á Stúdentakjallara???

Síðan prattí, síðan leiðinlegt prattí þar sem öllum var hent út eftir 3 mín. Nýtt met.

Bærinn (sökkar), Brennslan, Celtic Cross virðist vera orðinn vinsæll því þar var troðfullt af einhverju pakki, röð allstaðar. Fólkið endaði á Hressó (McDónalds). Þar sagðist ég draga mörkin og gekk á braut. Vissi ekki fyrr en Stæner var kominn með mig í hálstak og segir "hvaða helvítis kjaftæði er í þér - VÍST ferðu inn á Hressó". Síðan dregur drengurinn mig fram fyrir alla röðina og að dyraverðinum. Í stað þess að stoppa okkur opnar gaurinn keðjuna og segir "gjörið svo vel". Ég hef aldrei verið dreginn inn á skemmtistað í hálstaki. Ég hef aldrei verið dreginn fram fyrir röð í hálstaki. Af hverju stoppaði þessi maður okkur ekki? Best að hleypa 2 skrýtnum gaurum í slag fram fyrir allt ljósabekkjapakkið? Magnað.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:48 ::

18.10.04

Það fer að bresta á !!!

http://www.esso.is/Forsida/Vefmyndavelar/Akureyri/view.aspx
::Karius skeit klukkan 10:36 18.10.04 ::

Verkfall kennara
Verkföll voru vopn verkamanna til að berjast gegn ómannúðlegum aðstæðum, til að fá þokkalegt vinnuumhverfi og greidd lágmarkslaun fyrir vinnu sína.

Verkföll eru ekki tól til að semja um laun.

Samninganefndir kennara og sveitarfélaga eru asnar. Eiríkur, forvígismaður kennara, hefur ekki gert mikið fyrir þeirra málstað. Maðurinn er greinilega fífl. Kennarar ættu að vanda val sitt á PR manneskju betur.

Af hverju í ósköpunum getur ein stétt ákveðið að setja þjóðfélagið í gíslingu? Er það kannski af því að þessi stétt getur það? Fyndist einhverjum eðlilegt að bankalúðar lokðuð RB og færu í verkfall? "Þið getið ekki borgað reikningana ykkar fyrr en við fáum hærri laun". Góðan dag Hr. Dráttarvextir.

Það er óeðlilegt að menn séu að nota þetta verkfallsvopn í launabaráttu á 21. öld. Menn eiga bara að semja um þetta eins og allt annað. Kennarar og sveitafélög eiga að hætta þessum helvítis fornaldarhugsunarhætti. Og menn eru enn ekki að gera neitt til að leysa þetta.

Fyrir nokkru sá ég rannsókn þar sem kom fram að launþegar eru svo lengi að ná sér eftir löng verkföll að launahækkunin er yfirleitt étin upp.

Ég er með tillögu; (Tillögur kennara + tillögur sveitarfélaga)/2
::Hívatha litli skeit klukkan 10:23 ::

15.10.04

Nördaskapur á síðkveldi
Var eitthvað að laga lappann í gær og ákvað að laga nokkra hluti sem ég punktaði hjá mér á ráðstefnu í síðustu viku. Þar var Shari Thurow frá Grantastic Designs að þusa yfir okkur hvernig við ættum að tjúna fyrir leitarvélar. Maður verður nú að hafa Vonlausa optimized fyrir leitarvélar ekki satt ;)

Þannig að komin er - custom 404 síða í réttu útliti - veftré sem er allstaðar linkað í - robots.txt sem undanskilur allar möppur sem á ekki að indexa (cgi, javascript, php ofl.).

Síðan tók ég lesréttindi af skrá í gallery sem átti ekki að vera opin, Stæner benti mér á það. Hann er reyndar með sitt gallery á bakvið windows logon OG gallery logon. Kannski full mikið.

Nördabarnið hefur lokið máli sínu.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:10 15.10.04 ::

14.10.04

Tótheppinn
Tóti þú ert náttúrulega að grínast. Er þetta hverfi bara í tómu eða ert það þú? Kræst.

Hressandi samt að vita til þess að þegar það er sjóvdávn í ízlenska wezztrinu tekur glæponinn upp swiss army hníf, opnar hann með skjálfandi hendi og öskrar "látið mig vera". Lögreglumennirnir draga þá upp hvítar plastkylfur með bandi í og segja yfirvegað "viltu hafa þetta svona vinur?". Þá leggur glæponinn hnífinn rauða á jörðina og segir "ég hefði ekki átt að þiggja hnífinn tarna að gjöf - það boðar aldrei gott að þiggja hníf að gjöf".
::Hívatha litli skeit klukkan 09:49 14.10.04 ::

Þumall - myndirnar
Myndirnar frá Þumli eru komnar inn á bjorgunarsveit.is. Tjékk...

::Hívatha litli skeit klukkan 09:38 ::

Innbrot í bíla - Kafli 4

Jæja bræður. Þá er mánuður liðinn og tími kominn á að brotist sé inn í bíl í eigu meðlims VV. Fjórða skiptið í röð féll það í minn hlut. Húrra!!!!

Eins og glöggir lesendur VV muna þá var brotist inn í Rauðu Þrumuna um miðjan júlí, henni stolið og fannst á Hvammstanga um miðjan ágúst, henni stolið aftur og rústað í Heiðmörk um miðjan september og svo í nótt.... brotist inn í nýja bíl konunnar.

Þegar út var komið í morgun var búið að smalla afturrúðunni en þjófavarnarkerfið gerði það að verkum að maðurinn flúði með þessum afleiðingum:

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1107031

Þetta er nú farið að vera frekar súrt... Ég gruna Kolla um þetta því hann er ennþá fúll eftir að ég Rimmreipaði hann í Tunguá!
::Karius skeit klukkan 09:33 ::

Nú þá er það ljóst að miltisbrandur jónsson er mesta skækjan í hópnum, hann hefur bersýnilega ekki aðeins sængað með flestum í vonlausa, sem og tottað þá, heldur hefur hann tekið þá í manngreinarálit og haldið um það bókhald. Þetta viðukennir hann og staðfestir sjálfur í síðasta pósti. Þar með sagt verð ég jafnframt að gefa honum mitt atkvæði til mesta hommatitilsins.

Ég er annars á klakanum núna í skotstund, við sjáumst, nema Hommabrandur Faggson sem er í noregi að breiða út Faggnagarernidið.
::The Satan of Death skeit klukkan 09:15 ::

13.10.04

Íslensku hommaverðlaunin

Ég til nefni Kolla sem besta atvinnufaggann, AddaPu fyrir besta viðmót og KÍB sem besta íslenska nagarann.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:11 13.10.04 ::

Íslensku vefverðlaunin
Allir að tilnefna eitthvað sniðugt á vefsýn.is - Íslandsbanki á náttúrulega að vinna besta fyrirtækið, besta viðmót og besti íslenski vefurinn. Tilnefna hér
::Hívatha litli skeit klukkan 11:23 ::

Svenni er spunge
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:54 ::

12.10.04

Kolli er speni
::Hívatha litli skeit klukkan 18:27 12.10.04 ::

Þumall #2
Þumall er 180 metra klettadrjóli uppi í Skaftafellsfjöllum, í raun uppi á Vatnajökli, sem sést jafnvel neðan frá Þjóðvegi á góðum dögum. Hann var talinn ókleifur til '75 eða '78 þegar einhverjir snillingar frá Vestmannaeyjum tróðust þarna upp eftir nokkur misheppnuð mission. Held að þeir hafi eytt nokkrum tilraunum og loks tekið heila viku í þetta. Leiðin þarna uppeftir er nefnilega svolítið tricky.

Þumall gaf okkur löngutöng um Páskana, þegar við þurftum frá að hverfa vegna snjókomu og leiðinda. Það var gríðarlega leiðinlegt að labba í 12 klukkutíma fyrir ekki neitt.

Lítið sofið
Þumallinn birtist loksins þegar komið er upp skriðu dauðans. Nafnið meikar sens frá þessu sjónarhorniLentum í Skaftafelli, átta undanfarar og -rennur, (þeir sem eru að æfa með okkur í þeirri veiku von að komast einhvern daginn í þennan hóp fyrirmenna og snillinga) og héldum af stað út í myrkrið kl. 01 á föstudagsnótt. Töluvert frost og mjög fallegt veður, alveg logn, og rosalega stjörnubjart. Gengum yfir Skaftafellsheiði (4,5km), inn Morsárdal og inn í Kjós (5,5km) eftir hausljósum. Vorum komin þangað um 04 leytið. Hentum upp tjöldum (og bívökum) og fórum að sofa. Ég tók of léttan poka með mér, -2°C þægindamark, og þar sem frostið var töluvert meira var þetta ekki - ehhh - þægilegt. Vöknuðum eftir 2 tíma dorm og gúffuðum smá morgunmat. Í mínu tilfelli var það hálfur núðlupakki með kartöflumús útá, norskt trikk sem Siggi Skarp kenndi mér. Það var næringin fyrir helgina ásamt nammi. Vei.

Síðan var dúndrað upp í Hnútudal en þarna ofarlega kom sólin upp og vermdi mann. Snilld. Fallegt á fjöllum. Eftir ansi langt þramm, meðal annars skriðu dauðans og síðan þverun dauðans í einhverju of lóðréttu, hörðu rusli, birtist Þumall loksins. Þá tók við nýtt vandamál. Jökullinn, sem þarf að ganga yfir til að komast að byrjun leiðarinnar, var gjörsamlega krosssprunginn. Við örkuðum af stað að tékka á þessu og náttúrulega enginn jöklabúnaður með í för, utan einnar ísaxar. Venjulega er nefnilega farið þarna í júlí og þá er þetta allt lokað.

Loksins...
Eftir nokkuð hopp úr hliðarhalla yfir á ís, yfir of djúpar sprungur og þræðinga um völundarhús, komumst við fjórir að leiðinni. Hinum 4 leist ekkert á þetta og snéru við. Ákváðu að freista þess að fara sunnan megin við Þumalinn að leiðinni. Nú var klukkan orðin rúmlega eitt eftir allt þetta vesen og við ákváðum að dúndra upp. Enginn var búinn að skila sér þegar síðasti maður lagði af stað þannig að restin missti af klifrinu.

Fyrsta spönn byrjaði á soldið trikkí hreyfingu, miðað við að ég klifraði í hönskum og mjúkum Scarpa gönguskóm amk. Svo laust brölt upp í stans undir monster stórri flögu. Síðan er klifrað á bakvið hana og strompað upp í annan stans sem er efst í flögunni. Frekar löng spönn og eiginlega skemmtilegasta klifrið. Síðan eru tvær spannir upp hálfgerða hryggi og eitthvað drasl sem er frekar létt brölt. Síðasta spönnin var svo bara stutt upp á háhrygginn. Jíha. Hafði reyndar skriðið einhver skýjadrulla þarna yfir meðan við klifruðum en við sáum aðeins yfir Vatnajökul, Grímsfjall að ég held, og svo niður í Kjósina og Morsárdal. Wicked. 300 metrar öðrumegin og 1200 metrar hinumegin.

Sigin niður gengu vel, tókum þetta í 4 sigum. Geðveikt vesen reyndar að línan var að klemmast hér og þar og við þurftum að klifra nokkrum sinnum aðeins upp aftur til að ná henni til baka. Erfiðleikarnir í þessu felast aðallega í því hvað þetta er laust helv. rusl, fjölspanna leið og löng aðkoma. Klifrið sjálft er létt, kannski 5.3-5.4 í erfiðustu höftum, en annars bara brölt.

Gangan langa
Hóðurinn á röltinu til baka á sunnudeginum í grenjandi rigninguSíðan tók við ferðin langa niðureftir með allskonar skemmtilegheitum. Lentum í myrkri, smá fjallabjörgun er 2 stelpur sem lögðu af stað á undan voru komnar í rugl, rigningu dauðans og svona. Skriðum í mjög blauta svefnpoka klukkan 10 um kveldið og röltum svo í Skaftafell snemma á sunnudagsmorgni í grenjandi rigningu meðan örn hnitaði tígulega (vá hvað mig langaði að skrifa tígullaga) yfir okkur.

Klassaferð. Djöfull er skrýtið að skipta svona yfir í weekend warrior mode. Ganga 40 km og taka 2320 metra hækkun (Stæner trakkaði ALLA leiðina og fær nördaverðlaun ferðarinnar), sofa lítið, vera á ferðinni í 3+14+3= 20 klst, borða bara nammi og vatn og skella sér svo beint í bindisfötin. Mér finnst allt í kringum mig vera einhver slómó þoka í dag í vinnunni.

Have you ever heard of a weekend warrior? They are employees who sit in cubicles and relax at a coffee station weighed down with donuts all week long. Then on the weekend they rip off their suits bearing their Reebok gear underneath and spend the entire weekend playing basketball, hang gliding, and mountain climbing.

What happens? They break their knees, pull a dozen muscles, and are hospitalized on Monday.


Eða jafnvel;

Layered in twisting color tones
Of uncompromising monotony
Eruptions of rock formations
Pinnacled in spectacular outgrowths

Eagles soared in the skies above
Circling atop the rock cliff
The craggy wilderness imposed itself
Upon the arid plains of India

The gypsy free wind blew hard
The sun was setting in the background
Challenged by sheer dizzying drop
He held close to the naked rock

In the silent forests of dawn
Voices of intense pain echoed
Of a lonesome climber
Pursuing the ultimate search.

With sweat dripping on his face
Blood on his fingertips
Body pushed beyond the limits
Of human courage and edurance

He was living in his domain
Where his heart ruled forever
And mind searched endlessely
A measure of a man insane

While he knew what a fall could do
He knew what the summit could bring
It was the price he was willing to pay
To be the weekend warrior.....

-Somit Doshi is a mountaineer and keen rock climbing enthusiast who enjoys penning his experiences in prose and verse.


Svo mætir maður í vinnuna í bindisfötunum og ég tók meira að segja lyftuna upp á 3.hæð - hehehe.
Uppfært:
::Hívatha litli skeit klukkan 14:04 ::

11.10.04

Ferð Þrándar til Tröllheima

Eins og svo oft áður var Þrándur á farandsfæti um helgina. Að þessu sinni var ferðinni heitið að landsvæði sem þeir norskir nefna Trollheimen eða Tröllheima. Hópurinn að þessu sinni var ekki stór, einungis níu manns.
Lagt var af stað frá Þrándheimi með síðari fallinu á föstudeginum og til stóð að slá upp stóru tjaldi við bílastæðið í Tröllheimum. Var það og gert, myndarlegu "lavvo"i hent upp og hafist handa við eldamennsku að vanda. Mér líkar ágætlega vistin í lavvóum, sem eru eiginlega það sem við myndum kalla indjánatjald. Þar er vel rúmt um menn og því þægilegra að ganga um en tjald. Aukinheldur er hægt að opna toppinn þannig að vel lofti um, ef svo ber undir. Þó taka þau á sig talsverðan vind og henta því varla vel við íslenskar aðstæður, fykju út í hafsauga med det samme.

Allavega, að málsverði loknum var gengið til náða. Til að sýnast stórkallalegur hafði ég pakkað niður nokkrum bjórum og hafði svælt nokkrum í mig fyrir svefninn. Sem aftur gerði það eitt að verkum að ég vaknaði alveg í spreng um miðja nótt en nennti engan vegin út. Næst ætla ég að sofa með tóma tveggja lítra flösku oní svefnpokanum sem ég get notað sem náttgagn í aðstæðum sem þessum.
Risið var á fætur árla á laugardeginum. Heldur var veður þungbúið en annars meinlaust. Verkefni dagsins var að arka upp í skála er nefnist Kammtjönnkoia hvar við skyldum gista um nóttina. Jafnvel yrði gengið á e-n fjallstopp ef svo bæri undir. Fljótlega eftir að lagt var af stað vorum við komin upp í snjó og vorum við ofar snjólínu það sem eftir lifði helgar. Heldur var skyggnið takmarkað á uppleiðinni og lítið sást af stórfenglegum fjallgarðinum sem ku umlykja svæðið.

Eftir ca 3 tíma göngu komum við á leiðarenda. Skálinn virtist vera agnarsmár en skyldi þó hafa svefnpláss fyrir 8 manns með góðu móti. Okkur hafði verið tjáð að tveir rjúpnaveiðimenn hefðu og bókað pláss í skálanum og höfðum við því tjald meðferðis ef svo færi að e-m okkar yrði úthúst. Svo fór þó ekki sem betur fer enda var ekki veður kræsilgt til tjaldbúðalífs. Þess í stað tvímenntu menn í kojurnar eða fleigðu sér flatir á gólfið. Veiðimönnunum var skúbbað útí horn.

Þrátt fyrir að veður væri í súrari kanntinum var ákveðið að taka smá hring um svæðið eftir að við höfðum komið okkur fyrir og etið hádegisverð. Lítið var að sjá í gönguferðinni, utan að veiðigarpurinn ég kom auga á stóran hóp rjúpna og einn snæhéra. Hann áttum við reyndar eftir að sjá aftur.

Eftir að heim var komið úr göngunni var hafist handa við eldamennsku. Þrándurinn aftur á móti var gerður út til að sækja eldivið í stabba í kílómeters fjarlægð frá skálanum. Þegar ég kom klifjaður heim voru veiðimennirnir að koma í hús, rjúpnalausir en annar þeirra hafði rekist á hérann og náð að senda haglavönd í rassgatið á honum. Í alla staði var gott að koma heim í kofann og og fá heita kjúkklingakássu og rauðvín. m m mmmmm....!

Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur. Það hafði snjóað talsvert um nóttina, síðan létt til og nú hreyfði heldur ekki vind. Maður heyrði rjúpur ropa um allan dal og ég taldi líklegt að veiðimenninirnir, sem drifu sig út í birtingu kæmust í feitt. Svo var þó ekki, þeir skriðu í hús um 9 leitið þegar við vorum að leggja í hann allslausir eins og fyrri daginn. hahaha lúðar!

Nú gegnum við þungklyfjuð upp á Blåhøj sem mun vera hæsta fjallið á svæðinu, 1671 metri. Brast á með bongóblíðu þannig að vel sást til allra átta. Gengið var yfir fjallið svo að segja með viðkomu í myndarlegum íshelli. Í næsta dal gekk ég fram á gríðarstóran rjúpnahóp sem hljóp um hlíðina. Ég kom auga á þær úr talsverðri fjarlægð og sá líka hvar tveir veiðimenn komu traðkandi án þess að taka efti rneinu, fældu upp allan hópinn án þess að koma á þær skoti. hahahaha lúðar.

Var svo gengið sem leið lá til baka í bílana og þangað komuð um klukkan 18. Ekki laust við að ég hafi verið orðinn verulega pungsveittur af göngunni auk þess sem rassfrunsan var farin að herja á mig af fullum þunga. Skyldi það vera illa séð að taka með sér vaselín til rjóða á sér klofið og rasskinnar?

Myndum úr ferðinni hef ég komið fyrir á okkar ástkæru myndasíðu.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:55 11.10.04 ::

8.10.04

Ávarp Formanns VV
Með von um að Kolbeinn sýni áður óþekkta framtakssemi og að Gæsaveislan 2004 standi fyrirrennurum sínum eigi að baki veiti ég Kolbeini vald til að undirbúa og skipuleggja Gæsaveislu VV 2004. Þó með þeim annmörkum að allar ákvarðanir verða bornar undir mig til samþykktar eða synjunar.

Skulu laun Kolbeins vera ævarandi aðdáun Galtarins fyrir góða veislu en háðung ella.

Formaðurinn
::KÍB skeit klukkan 14:05 8.10.04 ::

Húrra, ég mæti í gæsaveisluna, bý til sósu og stjórna málfundi í pottinum!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:56 ::

Gammorean Guard
::KÍB skeit klukkan 13:35 ::

Gæsaveisla 2005
Nú er að duga eða dreapast. Ef það verður engin gæsaveisla núna þá getum við alveg eins hætt að vera í VV. Þessvegna hef ég ákveðið að bátasofa veislu og skipa því sjálfan mig æðstaprest og yfirsiðameistara vonlausa tímbabundið þangað til veislunni er lokið.
Stefnt er að því að hafa veisluna föstudaginn 7. janúar, helst í efranesi en annars heima hjá einhverjum. Vill helst fá fídbakk sem fyrst.
Allar hugmyndir eru vel þegnar en ég mun troða þær í svaðið og neita þeim en varpa þeim síðan fram sem mínar eigin hugmyndir ef þær eru góðar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:20 ::

Gúrt þýðir bjór, ég trúi því ekki hvað þið eruð fattlausir að fatta þetta ekki. Ég vona að það verði nóg af gúrt í ammælinu hjá húðlitaða gammorean guardinum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:05 ::

7.10.04

Göltur í tilvistarkreppu
Nokkrar leiðir til lausnar:
  • Skipta um vinnu
  • Vera í sömu jakkafötunum þangað til að einhver segir, "Ok, þú mátt koma í venjulegum fötum..."
  • Spyrja PSP af hverju hann þurfi ekki að vera í suit-i.
  • Kaupa bankann og breyta reglunum.
  • Stofna ehf. og setja jakkafatakostnað á rekstur.
  • Láta Heiðu búa til Atikin jakkaföt sem halda þínum sérkennum.
Það eru breyttir tímar, áður fyrr voru menn drepnir fyrir minna en að nefna Týnda og Smash í sömu setningunni.
::KÍB skeit klukkan 08:42 7.10.04 ::

6.10.04

Jakkaföt
Nafnið er strax fáránlegt. Af hverju ekki buxnaföt? Bindisföt væri klárlega meira lýsandi. Ég þoli ekki að þurfa að vinna í bindisfötum. Enn meira þoli ég ekki að þurfa að greiða fyrir helvítis bindisfötin sem ég nota einungis í vinnunni. Ég reyni að komast hjá því að fara í þetta helvíti við hátíðlega viðburði líkt og afmæli, veislur og þessháttar.

Myndir þú treysta þessum manni fyrir peningunum þínum?Annað skil ég ekki. Það er fullt af karlmönnum sem fara í þessu fangelsi í formi fata á djammið? Hví? Þetta er eins og einhver helvítis skólabúningur. Af hverju halda karlar að ef þeir henda eins miklu og þeir geta af einstaklingseinkennum sínum yfir borðstokkinn sé eitthvað líklegra að drukknar yngismeyjar láti gabbast upp í rúm til þeirra?

"Hei - ég er eins og allir hinir. Sleep with me!"

...og hvað er að þeim stúlkum sem láta glepjast og kynda undir þessa vitleysu.

Ef maður ynni t.d. á McDonalds, væri þá ekki hálf kjánalegt að mæta í byen með grænu svuntuna? Ég efa að það yrði líklegt til árangurs. Hvað þá ef ég ynni EKKI á Mc - þá væri maður fávit-INN að mæta með grænu svuntuna. Þetta er gjörsamlega ofar mínum skilningi.

Treystir þú manninum á myndinni?
Ég vinn í fyrirtæki sem þarf að njóta trausts. Þessvegna þarf að vera í bindisfötum í vinnunni, til að allir séu eins-maðurinn, maðurinn sem þú treystir fyrir flest öllu.

Eeeeen - nú mega utanaðkomandi ekki fara inn á hæðina mína. Við erum leyni leyni. Þó þurfum við að vera í bindisfötum. Ég neyðist til þess að álykta sem svo að það sé einungis vitneskjan um að allir séu í bindisfötum sem vekur þessa hlýju og mjúku tilfinningu sem við köllum traust. Ekki að díla beint við mennina í bindisfötunum. Merkilegt.

Subcúltúr
Í leiðangri mínum (ca. árlegum) í leit að sæmilegum en ódýrum bindisfötum skellti ég mér inn í furðubúðina Herrafataverzlun Guðsteins áðan. Þar koma feitir kallar í röðum að kaupa hvítar nærbuxur, dópistar að kaupa baðsloppa og 100 ára gamalmenni að kaupa peysur og flókainniskó. Annar hver maður er með hækju og hinn í hjólastól.

Ætli lufsurnar á Thorvaldsen hafi ekki farið heim með svona gamalmennafötum án þess að gera sér grein fyrir því? Ég trúi ekki að Jói drullumokari meiki að kaupa sér föt í Boss á 80 þaus frekar en ég. Eða kannski tók hann húslán fyrir nýju íbúðinni sem kom í Innlit/Útlit/Yfirborðskennt og smá extra fyrir Imrezunni og Boss fötunum. Skal ekki segja.

Hann er svalur...
Er kannski töff að vera í jakkafötum þegar maður er ungur en gallabuxum þegar maður er gamall? Slæ botninn í þetta með snilldarlínu úr snilldarlagi eftir hljónstina Búdrýgindi sem ætti að vekja einhverja til umhugsunar um hversu normið er nú - ehh - normal;
Hann er svalur - þessi gamli kall...
...hann verslar - í Týnda hlekknum og Smash.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:14 6.10.04 ::

Ykkur til ánægju og yndisauka hefi ég bætt við albúmið mitt á gallerínu garpslegum myndum af sjálfum mér. Fariði hægt í sakirnar og ekki slefa.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:53 ::

Kooontrí drepur þig
Rakst á afar skemmtilega rannsókn via bíó, sem er illa við að láta linka á sig:

"The Effect of Country Music on Suicide", rannsókn eftir Steven Stack og Jim Gundlach frá Auburn University. Fyrst birt í Social Forces, vol. 71, # 1, September 1992, pp. 211-8. Hann óskar þeim innilega til hamingju með IG Nóbelsverðlaunin í læknisfræði.

The results of a multiple regression analysis of 49 metropolitan areas show that the greater the airtime devoted to country music, the greater the white suicide rate.


Ég ætla ekki að reyna að halda því fram að þetta komi mér á óvart...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:25 ::

Þetta er náttlega ótrúlega ósanngjörn gáta gagnvart kolla og gírni enda takmarkast þeirra þekkingarheimur einvörðungu við homma****.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:09 ::

Mér sýnist það vera nokkuð ljóst hver er mesti ****hundurinn í Vonlausa!
::KÍB skeit klukkan 08:47 ::

5.10.04

Ætli næsta eignarhaldsfélag muni heita Jameson eða Silvia?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 17:16 5.10.04 ::

Kommon - félögin heita Carrera, Amber og Samson. Prófiði að slá þessu upp í google ****hundarnir ykkar.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:41 ::

Ég held að þegar þú segir að einhver sé gúrt þá sértu að meina að hann líkist Yoda. Jógúrt er yogurt á ensku sem er náttúrlega nauðalíkt Yoda.
::KÍB skeit klukkan 15:17 ::

Ég skil ekki gátuna hans Gölla.

Grelli er meiðyrði sem er tekið úr enska orðinu mongrel. Skabbi er algjör grelli. Þetta er nú frekar augljóst.

Gáta : Hvað þýðir gúrt á kretínbræðrsku?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:07 ::

Hint: Tengist ákveðnu schema á eignarhaldsfélögum þeirra feðga þó að ég efist um að sá eldri hafi átt hugmyndina.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:35 ::

Nú verður fróðlegt að sjá hvort eitthvað verði gert til að koma í veg fyrir magnveiði (og þá aðallega sölu). Ef ekkert verður gert þýðir það væntanlega eilíft hringl með friðunaraðgerðir.
::KÍB skeit klukkan 13:24 ::

Rjúpnaveiðibannið stytt um eitt ár
Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur ákveðið að stytta þriggja ára veiðibann á rjúpu um eitt ár og verður því aflétt næsta haust, að því er kom fram í fréttum Bylgjunnar og Ríkisútvarpsins í dag. Sigríður Anna hefur boðað til blaðamannafundar eftir hádegi vegna málsins.

Sjá www.mbl.is
::KÍB skeit klukkan 13:13 ::

Detti mér allar dauðar lýs úr höfði!!

Ekki nóg með að Sveini hafi þótt við svo lélegir veiðimenn að hann stofnaði sitt eigið veiðifélag heldur hefur helvítis fagginn hann Kolbeinn líka svikið lit og er búinn að stofna veiðifélag með fínu vinum sínum!!! Djöfull ertu glataður! Legg ég hér með hiklaust fram að Kolbeinn verði buffaður, hvar sem til hans næst.

og hvað er grelli?

og hver er spurningin í gátuleik Galtarins?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:51 ::

4.10.04

HA HA HA HA í framhaldi af googlepostinum hans svínka ákvað ég að gera eigin vísindalega könnun á því hvar í röðinni vonleysi birtist ef leitarorðið væri "fista". Ég fann svo margt skemmtilegt að ég tapaði þræðinum og fékk enga niðurstöðu í rannsókn minni. En ég fann fista.com með slagorðið what you need, when you need it ha ha ha og þar frameftir götunum (þeir eru reyndar svo kurteisir að þeir eru með link á algengar fistingasíður fyrir þá sem urðu vonsviknir). Sem leiddi mig svo aftur að gamalgrónum þanka. Merkingarfræði, ef við gefum okkur að cyber þýði hommi og net þýði í raun kúkur þá getum við hlegið okkur máttlausa svo vikum skiptir. dæmi: net-þjónn, net-verji, netasokkabuxur, net-áskrift og svo framvegis. En látum það ekki trufla okkar daglegu störf.
::The Satan of Death skeit klukkan 20:55 4.10.04 ::

Gáta dagsins
Verðlaunin eru bjór á bar í boði Sveppa.

#1
Carrera, félag í meirihlutaeigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, og fjárfestingarfélagið Advent International fara fyrir hópi fjárfesta sem hefur náð samkomulagi um kaup á 65% hlut í Bulgarian Telecommunication Company, BTC, af búlgarska ríkinu, fyrir jafnvirði 24 milljarða króna. Stefnt er að undirritun samnings þann 20. febrúar n.k.


#2
Samson Global Holdings Ltd., sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar, hefur keypt 6,45% hlut Tryggingamiðstöðvarinnar í Eimskipafélaginu og á nú alls 16,84% eignarhlut.

Tryggingamiðstöðin tilkynni í morgun að félagið hefði selt hlut sinn í Eimskipafélaginu og að söluhagnaður hefði numið 1350 milljónum.

Þá hefur Samson eignarhaldsfélag aukið hlut sinn í Landsbankanum um 240 milljónir að nafnverði og á nú 3,56 milljarða að nafnvirði en hlutafé bankans er samtals 8,1 milljarður.


#3
Givenshire Ltd., eignarhaldsfélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur keypt öll hlutabréf Bell Global Ltd., eignarhaldsfélags Björgólfs Guðmundssonar, í Amber International Ltd. Amber er stærsti hluthafi í Pharmaco hf. Félög í eigu Björgólfs Guðmundssonar eiga ekki lengur hlut í Pharmaco og mun hann ganga úr stjórn félagsins. Þá hefur Bell Global keypt af Givenshire 8,55% í Samson eignarhaldsfélagi ehf. sem er kjölfestufjárfestir í Landsbanka Íslands hf. Er eignarhlutur beggja félaga eftir viðskiptin 42,5% í Samson. Með þessum breytingum munu þeir feðgar skipta með sér verkum og mun Björgólfur Thor beina kröftum sínum að Pharmaco hf. á meðan Björgúlfur Guðmundsson mun einbeita sér að starfi sínu hjá Landsbanka Íslands.

::Hívatha litli skeit klukkan 17:45 ::

Ferð Þrándar til Rondane

Enn einu sinni brá Þrándurinn undir sig betri fætum og lagðist út með Ski & Fjell. Að þessu sinni var ferðinni heitið til Rondane þjóðgarðsins sem er.... hef ekki hugmynd. Lagt af stað frá Þrándheimi hálftvö á föstudeginum, keyrt í hásuður í ca 4 tíma, svo upp e-n fjallveg, bílum lagt og strunsað út í myrkrið í einn og hálfan tíma. Tjaldbúð var slegin upp við Rondavannet. Af eintómri ævintýramennsku kaus ég að sofa í kommúnutjladinu sem er e-skonar indjánatjald, stórt og botnlaust. Þar var nóg pláss en skítkalt um nóttina. Að sið þeirra norskar var sameiginlegur kvöldverður sem að þessu sinni samanstóð af viðbjóðslegum bjúgum og kartöflumús. oj. Til náðar var gengið og risið úr sekkjum árla laugardags, með það að markmiði að klífa Rondeslotted með stuttri viðkomu á Vinjeronden, báðir eru þessir tindar í yfir 2000 metra hæð, og þykja gæjalegir.

Skömmu eftir að lagt var af stað varð ljóst að útsýni af tindunum yrði takmarkað. Eftir því sem ofar dró í hlíðina jókst vindur, snjór og ís til muna og sáu konur og aðrar kellingar í hópnum sér ekki annað fært en að snúa við. "Det er ingen skamm at snu"- YEAH RIGHT! Þrándurinn lét slíkt tal sem vind um eyrun þjóta enda garpur af bestu gerð að eigin mati og hvatti menn óspart til dáða.
Áfram var því barist í gegnum storminn. Eftir klukkustundarbarning var Vinjeronden fótum troðin og hálftíma síðar Rondeslotið sjálft. Grenjandi blindbylur var á báðum tindum og sást vart spönn frá rassi. Ægilegt útsýnið var því ekkert og skelvilega spöngin sem liggur milli tindanna fór gersamlega framhjá mönnum þegar þeir tróðust yfir hana. Á Rondaslotinu mættum við tveimur þjóðverjum sem voru í geðveikri heimskautastemmingu, hrópandi á hvern annan ACHTUNG, ACHTUNG í öðru hverju skrefi eins og þeir væru í baráttu uppá líf og dauða. Þeir fengu að fylgja okkur niður en þegar við stoppuðum á leiðinni var bara annar þeirra með okkur, hinn hafði gefist upp og félaginn bara skilið hann eftir. Það var lagið strákar! "Leave me, save yourself, tell mom I love her!!" Einn af okkur snéri því við til að ná í hinn þjóðverjann og hjálpa þeim niður á meðan við hinur drifum okkur niður í kamp.

Um kvöldið var elduð kássa og farið í varðeldaleiki, jej.
Nóttin í indjánatjaldinu var köld og blaut enda slyddubylur fyrir utan. Það flæddi inn í tjaldið en til allrar hamingju hafði Þrándurinn staðsett sig hyggilega á hæsta punkti og slapp því að mestu við vatnsskemmdir.

Daginn eftir var stefnan sett Storronden sem ku vera 2138 metra hár en þægileg ganga. Eins og fyrri daginn var skyggni ekkert en vindur var heldur stilltari. Komust allir nema tveir á toppinn og gekk ferðin í alla staði klakklaust fyrir sig.

Þegar niður var komið var drifið í að skófla holdvotu draslinu saman og í pokana, strunsað í bílana og ekið heim.


Blaut og köld helgi en gríðarskemmtileg. Allar græjur stóðu sig með prýði á raunarstund, meira að segja compressorinn. Þó hafði ég gert BIGTIME byrjendamistök, skóflað í mig kássu áður en ég lagði af stað en gleymdi að skíta. Ég held að ég þurfi að finna skrúfjárn.....

Fyrir þá sem hafa áhuga eru hér fleiri myndir sem e-r lúði tók.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:25 ::

Góða veislu gjöra skal...
Haldið í hattana ykkar því að slegið verður upp mikilli veizlu laugardaginn 30 október í tilefni að komu hrekkjavöku og stórafmælis galtarins.

Teiti þetta mun ekki gefa stórafmæli Bilbós Bagga eftir á neinn hátt, þarna verða kátir kretíndvergar og sveittar skutlur. Gandálfur mætir á svæðið og böstar rímur.

Annars standa líka yfir samningaviðræðum við eina mögnuðustu hljónst norðan Andesfjalla um að troða upp. Einnig hefur DJ Retro verið bendlaður við þennan viðburð.

Meira síðar...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:17 ::

2.10.04

Sjóbirtingur
Mér voru að berast þær gleðifréttir að við megum fara í sjóbirting í Þverá til 10. október. Kolli má samt ekki koma því hann býður mér aldrei neitt. Aðrir eru velkomnir.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:53 2.10.04 ::

1.10.04

Það er alveg dásamlegt að skoða leitarorðin sem fólk er að detta inn á vonlausa eftir frá gúggúl.


Ath - aðeins leitað á íslensku eftir sumu...

::Hívatha litli skeit klukkan 23:05 1.10.04 ::

Miðað við að neddi þýðir sjónvarpsfjarstýring og flestar ykkar tilvitnanir eru í star-treck eða megasúran sci-fi metal held ég að maður haldi sig frá því að rýna of djúpt í freakish afdala málýsku ykkar.

Þið eigið eftir að fýla Alien vs. Predator
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:47 ::

Er Grelli gælunafn fyrir Göltinn?
::KÍB skeit klukkan 09:21 ::

Skoða eldri færslur >>