30.11.04
Einar Elí búinn að skella nokkrum myndum inn...
[Uppfært]: Betri upplausn inni á Björgunarsveit.is
Mér voru að berast mögnuð tíðindi, að skítbloggararnir í vonlausa væru í verkfalli til að berjast fyrir Comic Sans letri á vefnum. Þeir eru víst búnir að vera í verkfalli svo mánuðum skiptir og enginn tók eftir því.
Magnað.
29.11.04
Fór með Freyzandi og Hemma að leggja 21 nýliða í flugeldasöluklúbbnum mínum lífsreglurnar í fjallamennsku um helgina. Retro er einn af þeim og mætti í góðum fíling. Stæner
Létum skutla okkur inn að Þórisjökli, inn á Kaldadal, á föstudagskveldið. Þar var talsverð ófærð þannig að við skildum rútuna eftir á vegamótunum í Geitlandinu og selfluttum liðið restina á jeppunum. Gengum svo frá Beinakerlingu, varðan sem stendur þarna við veginn yfir Kaldadal, inn í Þórisdal um nóttina. Hér má finna flottar myndir af svæðinu.
Þar var slegið upp tjaldbúð á fínu harðfenni og farið að sofa, kannski klukkan 02? Við vorum í smá lúxus strákarnir, og Freyzi dró upp smjörköku og 2 jólaöl+appelsín fyrir háttinn.
Ræstum liðið klukkan 7 í frábæru veðri, frosti og stillu. Eftir morgunmat, ég fékk mér núðlumús að hætti norskra - mmmm, hófum við síðan kennslu. Farið í grunnatriði fjallamennsku, ganga á broddum, ísaxarbremsu, snjó- og ístryggingar, snjóflóðaleit, leiðarval í fjalllendi, að ganga á ís og fleira skemmtilegt.
Að því loknu gengum við upp ísfallið og upp á brún jökulsins í 1100 metra hæð. Þar var slegið upp tjöldum og mallað. Eldaði snilldar pasta carbonara fyrir strákana, með 2 pökkum af beikoni útí. Helvíti gott.
Planið var að vakna kl. 5 og dúndra á toppinn, áður en leiðindaveður sem spáð hafði verið um morguninn skylli á. Eitthvað hafði spáin breyst og við vorum farnir að hafa áhyggjur um miðnættið. Þá var skollið á algjört white-out. Ræstum liðið kl. 02 þegar allt var gjörsamlega að fenna í kaf og skyggnið 2 metrar. Hnýttum allt liðið í 2*60 metra línu, mjög skondið. Þræddum okkur svo niður ísfallið nánast með því að þreifa fyrir okkur.
Þetta breyttist svo í viðbjóðsrigningu þegar við lækkuðum okkur, algjör mannaskítur. Vorum komin út á veg um hádegið eftir 7-8 tíma labb. Þar var slegið upp tjöldum og skriðið í blauta gallanum ofan í blautan svefnpoka. Nammi namm.
Bílstjórarnir okkar höfðu séð hvernig spáin breyttist og dúndruðu inneftir á laugardagsnóttina til að tékka hvort við værum í basli. Keyrðu svo niður í Húsafell og mættu aftur uppeftir um morguninn. Komu því fljótlega og tóku fyrsta holl, snillingar. Allt var orðið vaðandi í krapa þarna svo það tók 3 tíma að keyra einhverja 10 kílómetra að rútunni. Komum í bæinn um kveldið.
Snilldarferð í heildina, brot af því besta og versta sem Ísland að vetri til hefur upp á að bjóða.
24.11.04
Saumó fór í gærkveldi að vígja nýju lyftuna í Bláfjöllum. Þetta er alveg ótrúlegt að skoða. Keyrðum upp á topp eftir nýjum vegi sem er kominn upp sunnan megin við Suðurgil og eftir toppnum.
Fyrst blasti við breyting á bílastæðinu í Suðurgili, nú er hægt að leggja við lyftuna sem er mun snjallara. Síðan birtist nýja lyftan í öllu sínu veldi. Toppurinn er eiginlega ákkúrat þar sem við höfum verið að droppa hengjuna í gömlu topplyftubrekkunni. Hægt er að renna sér í báðar áttir, niður í Suðurgil eða niður á öxl.
Búið að gera ótrúlega mikið í jarðvinnu þarna líka, breikka öxlina og gera hallann þar jafnan. Þannig að núna er hægt að krúsa helvíti skemmtilega brekku sem bætist við frá nýju lyftunni og niður öxlina. Bætist aðeins við rennslið þar.
Lyftan verður með 4 manna stólum og 4 klefum. Stólarnir mokast af vírnum ala útlönd. Þegar maður var búinn að skoða þá nýju leit gamla út eins og jöklalyfturnar í Kelló. Munurinn á þessu er alveg ótrúlegur.
Við héldum reisugill þarna uppi í toppstöðinni, klifruðum upp í hana og vorum með fína köku með kertum, kaffi og alles. Mjög gaman...
Þetta verður svooo mikil snilld! Slatti af snjó á svæðinu, það hefur verið fínt færi í síðustu viku.
23.11.04
"þeir eru frábært lævband" já við erum ógeðslega góðir í að cancella giggum. En nú erum við byrjaðir að leita að nýjum gítarista og prófum einn á næstu æfingu. Spennandi.
iiiii lúser, ég var langt á undan mínum samtíma og kom þessari gasgrímutísku á fyrir þúsund árum þegar við spiluðum í Selinu úti á nesi
Fáviti.
Vá hvað ég myndi skammast mín ef ég væri yfirmaður hjá Hringrás í dag. Eldvarnareftirlitið búið að gera skriflegar athugasemdir við draslið hjá þeim, segja að þarna sé eldhætta, þyrfti að rýma ef kviknaði í. Menn hafa yppt öxlum, hugsað með sér að þetta væri bölvuð paranoja og haldið áfram að bæta við dekkjum, rafgeymum og öðrum vibba.
Var kallaður út á háum forgangi um miðnættið í gær, og náði reyndar næstum að stúta mér á leiðinni í hús þrátt fyrir að akstur væri í rólegri kantinum. Mættum á Kleppsveginn í verkefni og ástandið þar var eiginlega helvíti svart. Skyggnið var ansi lítið og þarna lagði yfir þennan líka viðbjóðslega mökk úr dekkjahrúgunni. Endalaust af eiturefnum var víst að brenna líka. Mann sveið í lungum við fyrsta andardrátt.
Aðstoðuðum fólk við að yfirgefa íbúðir sínar, gamalt fólk í nettu sjokki náttúrulega þegar íbúðin var full af reyk og einhverjir gæjar með gasgrímur komu askvaðandi að segja því að fara. Vorum með strætóa þarna til að keyra fólk upp í skóla í nágrenninu þar sem var svefnaðstaða og fínerí.
Þetta var ansi óvenjulegt allt saman, ekki alveg svona dæmi sem við æfum fyrir að öllu jöfnu. Aldrei verið að hlaupa um bæinn með gasgrímu áður. Komst ekki heim fyrr en eftir 8 um morguninn, alveg búinn á því. Stuð.
Vona bara að þessir 600 manns kaupi rakettur á réttum stað ;)
Fullt af fréttum á mogga
Vídeó af brunanum kl. 22 í gærkveldi
22.11.04
Rakst á einhvern sokk sem benti á 42.is, sem er snilldarpæling, og frábært teppi. Mig langar nú eiginlega meira í svona handklæði samt. Það myndi sko redda manni ef einhver ætlaði að búlldósa húsið manns. Eða pláhnetuna.
Hressir þessir Kanar á dádýraveiðum...
Varð vitni af alveg ótrúlega aulalegum árekstri á leið í vinnuna. Kjélling (að sjálfsögðu) sem var að beygja frá BSÍ götunni (Njarðargata?) inn á Hringbraut í vestur. Keyrir bara af stað þegar það kemur grænt eins og hún eigi heiminn, það er ekki beygjuljós sko.
Bílarnir sem koma á móti snarbremsa náttúrulega og hún líka því að þeir eru komnir fyrir akstursstefnuna hennar. Svo kom mesta snilldin. Hún keyrir bara aftur af stað þessa 1,5 metra sem vantaði upp á og inn í hliðina á næsta kyrrstæða bíl. Reynir svo eitthvað að bakka útúr hliðinni en hittir ekki á bakk, fer út og fórnar höndum.
Kræst...
21.11.04
Framleiðendur TB seríunnar, eða Totally Board eins og hún heitir fullu nafni, eru búnir að gefa úr enn eina snilldar myndina, Lost in Transition. Trailer er að finna á síðunni þeirra...
20.11.04
DD er klikkuð mynd, hef reyndar skrifað um hana áður hér.
Íííí dag var opið á Dalvík, ótrakkað púður út um allt var mér sagt. Oooog það er fullt af klaka í Esjunni og Hvalfirði. Eeeen hann fer eftir helgi. Éééég er hinsvegar fokkin veikur heima og er að sturlast.
19.11.04
Í henni verða nokkur svona egg ásamt hefðbundnari stólum.
Ég sé reyndar fyrir mér að leikurinn "Finger of DETHHH!" verði mun skemmtilegri í framtíðinni. FOD virkar í stuttu máli þannig að maður velur sér einhvern ólukkulegan skíðamann ofarlega (helst) í brekkunni meðan maður er á leiðinni upp í stólnum. Bendir síðan á hann, ákveðið, og segir "Finger offf DEATHHHHH!". Síðan er þetta keppni um hver formældi skíðamanninum "sínum" best, þ.e. hvaða skíðamaður krassar flottast á leið sinni niður. Sérstaklega man ég eftir einum sem fór gilið alveg niður af öxlinni, gjörsamlega stjórnlaust, með 2 metra milli lappanna og krassaði með flugeldasýningu á flatanum niðri. Ahhh, good times...
Nema hvað, basúkurnar á hliðinni á eggjunum eiga eftir að gefa þessum leik algjörlega nýja vídd!!!
18.11.04
Nú er afmælistími ársins kirfilega runnin upp. Til hamingju Skabbi, Kolli Gölli, Ása, Baddi, Addi, Hemmi og Sibbi.
Allir sem eiga ekki afmæli á þessum árstíma eru spenar. Og nú eruð þið að komast á þrítugasta árið = fertugsaldur. Hahahaha - gráhærðu feitu gamlingjar.
Þá er hægt að pirra sig á öðrum hlutum. Í framhaldi af kenningum mínum um táknþyrstu nútímamannsins í bloggi um DVL er ekki fjarri lagi að snúa sér að öðru sem hefur verið að ergja mig svolítið og þá aðallega vegna þess að ég skil það ekki.
Þegar ég var að stúdera hin háu fræði í HÍ þá var hugtakið póstmódern mikið notað í hinu og þessu. Ég sótti meira segja stutt fræðsluþing um þetta hugtak. Enn þann daginn í dag hef ég ekki hugmynd um hvað þetta hugtak þýðir. Prófessorar notuðu hugtakið mikið til að sýnast gáfaðri og nemendur öpuðu þessa vitleysu eftir þeim. Eitt það sem einkenndi skýringar fræðimanna á póstmódernisma var að hann þýddi mismunandi hluti á milli fræðigreina en ekki var lifandi vegur að skýra þú út innan einnar fræðigreinar, þ.e. hvað í helvítinu viðkomandi kennari var að segja eða meina innan fræðigreinarinnar sem hann/hún átti að heita sérfræðingur í. Niðurstaðan mín var á þá leið að þetta væri einskonar hikorð í íslensku innan HÍ. Væri þá í staðin fyrir: "umm", "aaaa", "og, og, og". Það væri ekki hægt að tala eins og lýðurinn.
Annað hugtak tröllríður fjölmiðlum þessa daganna og hefur reyndar gert það seinasta árið. Þetta er hugtakið "metrosexual" sem vísun í einhverskonar sjálfsmynd hjá körlum fyrst og fremst. Orðið sjálft virðist benda til þess að viðkomandi stundi kynlíf í neðanjarðarlestum og strætó. En það virðist ekki vera reyndin heldur eigi þetta við lífsstíl þar menn fara í bað, klæða sig snyrtilega og eru í tengslum við kvenlegar hliðar sínar. Hvað í helv.? Þurfti að finna upp nýtt og ljótt orð yfir þetta? Snyrtilegur, þrifalegur, vel til fara ætti að duga en það hrekkur víst skammt þegar sjálfsmynd karla á að fara að byggjast á þessu. Þetta er hreinlega móðgandi og ég segi að hver sá karl sem tekur sér þetta orð í munn og gerir að sínu er heimskari en egg. Að vera í snertingu við sínar kvenlegu hliðar er mér algjörlega óskiljanlegt. Nú hef ég aldrei verið kona og hef því ekki reynslu af því. Ég hef unun að því að snerta og strjúka kvenlegar hliðar en engan áhuga á að vera kona. Afhverju á ég að vera kona, er ekki nóg að vera góður, reyna að skilja og sýna samkennd.
En þetta lepja margir upp og gera að sínu. Hvað er að? Að finna sjálfan sig í því að raka sig og þvo á sér hárið. Hvurslags sjálfsmynd er það? Svo eru allir hissa á þeirri ládeyðu og afskiptaleysi sem ríkir í heiminum í dag. Það eru náttúrulega öllum skítsama vegna þess að þeir eru að klippa neglurnar. Gildin eru hætt að vera samfélagstengd og eru þess í stað sjálfsmiðuð. Ég vil henda út þessu ljóta orði metrosexual og öllu því sem fylgir því. Manngildi fólks fer eftir því hvernig það kemur fram við hvort annað en ekki hárgreiðslu. Maður setur sig í spor fólks, hefur samkennd og sýnir kærleika. Maður fer ekki að finna upp einhverjar kvenlegar eða karllegar hliðar í sjálfum sér. Leiðir bara í ógöngur.
17.11.04
Svo vill til að Gölli er veikur núna og hefur verið í vikunni. Nú þegar er kominn snjór þá að sjálfsögðu fer hann á bretti um leið og hann getur staðið í fæturnar án þess að kast upp. Eftir eina ferð í Bláfjöll verður hann tvo daga veikur heima. Þetta verður vítahringurinn hans næstu vikur, upp í fjall, upp í rúm, upp í fjall, upp í rúm.
Annars hefur hann samþykkt að setja upp vefmyndavél þannig að við getum fylgst með honum veikum. Hann er kominn með stórt safn af skemmtiatriðum eins og sokkaleikhús, stórutáa kung-fu, væl og skæl, frumsamið efni að sjálfsögðu. Svo hefur hann lofað að hafa ælufötuna alltaf í tveggja metra fjarlægð þannig að þetta ætti að verða athyglisvert. Það eina sem þarf að gera er að leggja 28.753,- kr. inn á reikning hjá KÍB sem er umboðsmaður hans og þá verður allt þetta og meira til okkar.
THE BALLAD OF BILBO BAGGINS
(© Leonard Nimoy 1968)
In the middle of the earth in the land of the Shire
lives a brave little hobbit whom we all admire.
With his long wooden pipe,
fuzzy, woolly toes,
he lives in a hobbit-hole and everybody knows him
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Now hobbits are a peace-lovin' folks you know
They don't like to hurry and they take things slow
They don't like to travel away from home
They just want to eat and be left alone
But one day Bilbo was asked to go
on a big adventure to the caves below,
to help some dwarves get back their gold
that was stolen by a dragon in the days of old.
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Well he fought with the goblins!
He battled a troll!!
He riddled with Gollum!!!
A magic ring he stole!!!!
He was chased by wolves!!!!!
Lost in the forest!!!!!!
Escaped in a barrel from the elf-king's halls!!!!!!!
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Now he's back in his hole in the land of the Shire,
that brave little hobbit whom we all admire,
just a-sittin' on a treasure of silver and gold
a-puffin' on his pipe in his hobbit-hole.
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
MP3
(© Leonard Nimoy 1968)
In the middle of the earth in the land of the Shire
lives a brave little hobbit whom we all admire.
With his long wooden pipe,
fuzzy, woolly toes,
he lives in a hobbit-hole and everybody knows him
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Now hobbits are a peace-lovin' folks you know
They don't like to hurry and they take things slow
They don't like to travel away from home
They just want to eat and be left alone
But one day Bilbo was asked to go
on a big adventure to the caves below,
to help some dwarves get back their gold
that was stolen by a dragon in the days of old.
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Well he fought with the goblins!
He battled a troll!!
He riddled with Gollum!!!
A magic ring he stole!!!!
He was chased by wolves!!!!!
Lost in the forest!!!!!!
Escaped in a barrel from the elf-king's halls!!!!!!!
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
Now he's back in his hole in the land of the Shire,
that brave little hobbit whom we all admire,
just a-sittin' on a treasure of silver and gold
a-puffin' on his pipe in his hobbit-hole.
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
He's only three feet tall
Bilbo! Bilbo! Bilbo Baggins
The bravest little hobbit of them all
MP3
15.11.04
Ríkisstjórnin er ekki fyrr búinn að lofa 1% skattalækkun þegar R-listinn hirðir rúmlega 1/3 af henni til baka.
LÍN er ekki fyrr búið að hækka námslán til háskólanema þegar R-listinn hækkar leikskólagjöld á fjölskyldur þar sem annað foreldrið er í námi um yfir 100.000 á ári.
Þegar við notum of lítið heitt vatn þá hækkar verðið bara í staðinn.
Hvaða rugl er þetta?
Skoðum staðreyndir.
Samkvæmt tölum frá Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna eru laun grunnskólakennara:
Dagvinnulaun 222.123.- kr
Heildarlaun 265.325.- kr.
Til að byrja með vil ég taka á nokkrum klisjum. Allir hljóta að vera sammála um það að fólk fái sanngjörn laun fyrir sína vinnu. Hinsvegar skil ég ekki þá afstöðu manna að verkföll kennara í grunnskólum svo vikum og mánuðum skiptir séu í lagi. Það er ekkert í lagi við það. Kennarar og viðsemjendur þeirra ættu að skammast sín.
Það er óásættanlegt að senda grunnskólabörn heim til sín. Það er óásættanlegt þó að það sé ekki nema einn krakki sem fer illa út úr þessu.
Menn geta alveg sagt sér sjálfir að þetta kemur róti á líf krakka, að vera frá sínum "vinnustað" í svona langan tíma. Það er augljóst að einhver prósenta, sérstaklega þeir sem eldri eru, hefur misst það mikið úr að það mun há þeim út þeirra skólagöngu og gera þeim erfitt fyrir. Það er ekki öllum 15 ára unglingum gefið að vinna upp vikur og mánuði af stærðfræði í nokkrum tímum. Ég veit að sumir í VV hafa ekki góða reynslu af stærðfræðinni í MR. Haldiði að slíkt veganesti hefði bætt stöðu ykkar?
Hverjum bitnar þetta þá á? Jú, krökkunum.
Því gef ég lítið fyrir yfirlýsingar um reiði, áfallahjálp og annað kjaftæði vegna þess að kennarar fá ekki 130 þúsund króna eingreiðsluna ásamt 265.000*1,3= 344.500 í heildarlaun. Alveg jafn lítið og ég gef fyrir það ef samninganefnd sveitarfélaganna gæti ekki sofið af áhyggjum.
Tilgangurinn helgar EKKI meðalið.
Þetta er orðin langur og leiðinlegur texti en það væri ágætt að vita eitthvað um hvað maður er að rausa áður en maður tjáir sig. Kennarar eru búnir að bíða eftir nýjum og betri samningum í mörg ár og það vissu allir en enginn gerði jakksjitt.
Skabbi hlýtur að hafa fengið þvílíkan bóner í nótt út af draumnum hans KÍB, þ.e. ef mýeindirnar komast inn í gegnum hans hrokafulla haus.
Í nótt dreymdi mig að ég og Skabbi værum í einhverri veiðibúð sem ég kannast ekki við. Þessi veiðibúð seldi meðal annars fluguveiðistangir á 28.000.000 kr. En það besta var að við Skabbi fengum ókeypis sýnishorn af flugustöng fyrir línu nr. 4.
Mér til mikilla vonbrigða vaknaði ég og flugustöngin var horfin en sem betur fer var Skabbi það líka.
14.11.04
Kíkti með Freysandi í Búhamra á laugardaginn. Fyrir valinu varð leiðin Loki, sem er Gráða 1-2 samkvæmt leiðarvísi Ísalp frá '86. Hún fylgir frekar afgerandi hrygg upp á brún og er ca. 100 metrar.
Ekki byrjaði þetta nú vel. Ég fékk fyrstu spönninni úthlutaðri til leiðslu og klifraði upp á lága syllu, hliðraði yfir hana og byrjaði svo að klifra upp brattann kafla. Barði svona aðeins í tökin til að tékka þetta af, tók svo með vinstri ofan á einhvern gaur og hægri í helvíti góða sprungu. Hallaði mér svo í þetta, smá layback, og skipti engum togum að allt helvítis draslið kom í fangið á mér. Ætli þetta hafi ekki verið einhver 100-200 kg drjóli sem hvarf niður fjallið. Og ég ekki búinn að setja neitt inn. Merkilegt hvernig hlutirnir eru, gat hugsað "ó sjitt" þar sem ég vó salt þarna og svo lá ég bara á bakinu eftir sekúndubrot allt annarstaðar. Hrundi sem sagt niður af syllunni og rann á bakinu niður af niður skriðuna. Stoppaði svo því að línan húkkaðist í eitthvað horn, hefði nú ekki farið langt.
Freysi fékk að leiða þann daginn og ég slapp með skrámur. Leiðin er ansi skemmtileg en nettur vibbi þarna neðst, stóra dótið er líka laust. Held að það hafi ekki farið nema svona 5 millitryggingar inn í allri leiðinni, tveimur löngum og einni stuttri spönn. Algjört brill strompamauv þarna í fullum herklæðum, bakpoka og stífum skóm. Svo byrjaði að rigna á okkur í síðustu spönninni, í svona hryggjarbrölti upp á topp sem gerði þetta ansi sleipt.
Íslenskt skítaklifur/drullumokstur galore!
Síðan var 2 mót vetrarins í Klifurhúsinu í dag, Ása náði 2. sæti og mér gekk ágætlega, fékk að minnsta kosti mun fleiri stig en síðast (vona bara að ég sé ekki neðstur ;)
13.11.04
Ég hef nú séð alvöru launaseðil kennara og ekki fannst mér það góð laun. Djöfull þekkir þú marga fátæklinga, en svo getur líka verið að þessi launatafla sýni ekki alveg rétta mynd.
Þetta svartsýnis scenario þitt er bara bull, það sem grunnskólakennarar eru að fara fram á er einungis svipað og framhaldsskólakennarar fengu.
12.11.04
Og ég þekki fullt af háskólamenntuðu fólki sem er á lægri launum en heildarlaunum kennara samkvæmt töflu í Fréttablaðinu (?) í gær. Fullt.
Núna er staðan þannig að kennarar verða samningslausir fram á næsta ár, verkfallið var algjörlega gagnslaust og þeir hafa ekkert um það að segja hvað gerðardómur ákveður. Þetta er fáránlegt og má segja banabiti kennarastéttarinnar því ekki get ég séð að hæfir kennarar vilji starfa áfram.
Ég segi betri laun til kennara.
Einn auka punktur, ég vill fá til baka það sem ég hef borgað í skatt sem átti að fara í rekstur skólanna. Það er alltaf verið að tala um hvað sveitarfélögin spara á verkfalli en hvaðan koma peningarnir sem er verið að spara?
[Ekki lesa þennan pistil ef þú ætlar að lesa bókina] Jæja, loksins búinn. Verð að segja að ég varð fyrir ansi miklum vonbrigðum. Margir höfðu sagt mér að þetta væri alveg ótrúlega mögnuð bók, þannig að ég straujaði í gegnum hana á frekar skömmum tíma.
Plottið er ekkert spes, í meðallagi í besta falli. Höfundurinn blaðrar um táknfræði í listaverkum og byggingum allan tímann, stundum spáir maður hreinlega í því hvað persóna RL í sögunni er óþolandi helvítis besservisser. Vondi kallinn fellur inn í rammann sem Samuel L. Jackson skellti í kringum vondukalla í Comics í hinni lúmskt frábæru mynd Unbreakable, og er auk þess svona nokkuð augljós mikinn hluta bókarinnar. Þarna kemur fátt á óvart.
Drifkraftur sögunnar er sú staðreynd að Jesús hafi átt krakka. So what? Hverjum er ekki sama? Er hann eitthvað minni Jesús fyrir bragðið? Ekki að mínu mati. Alls ekki. Er þetta eitthvað sem frekar líbó vesturlandabúar kippa sér upp við? Aumt samsæri það.
Og hvað er með það að einhver fullorðin kona getur ekki talað um að hafa séð afa sinn porca hálfa bókina? Ég hélt að hann hefði verið að fórna hreinum meyjum á altari í kjallaranum. En nei...
Það sem fólk hlýtur að vera að fíla við þessa bók eru allar samsæriskenningarnar um kirkjuna og falin skilaboð stóru meistaranna. Í grein Karls Sigurbjörnssonar er vitnað í grein í NY Times. Hann tapar sér reyndar aðeins í guðfræðinni þarna og greinin er ekkert sérlega spennó.
Í grein í New York Times sem nefnist ?Síðasta orðið: Da Vinci svindlið? lýsir bókmenntafræðingurinn, Laura Miller, því hvernig Dan Brown hefur fengið mest að efni bókarinnar úr sögulegum skáldsögum og ?sögulegum? skáldritum sem fræðimenn hafa fyrir löngu afgreitt sem fals.
Eftir stendur að þessi þessi bók getur ekki orðið meira en miðlungs afþreying og klárlega vonbrigði miðað við mínar væntingar.
Hef áður rætt um það hvað Eiríkur Jónsson er óheppilegur maður til að keyra (ekki)viðræður kennara við sveitarfélög. Bíó var að blása aðeins og ég ákvað að berja saman nýjan pistil, sumt stolið frá honum.
Mikið var lúalegt trikk að fresta verkfalli í nokkra daga, hlaða bensíntankana af pjéningum og sparka svo vesalings krökkunum í vesalings foreldrana aftur. Samkvæmt töflu sem ég sá í gær eru heildarlaun kennara nú ekkert hrikaleg. Ef venjulegt fólk telur sig ekki með nokkru móti fá laun við hæfi í sinni vinnu hættir það og finnur sér eitthvað annað að gera.
Síðasta útspil Eiríks er magnað. Í frétt á mogga slær hann fram ótrúlegum fullyrðingum.
Það er deginum ljósara af hverju sveitarfélögin vildu ekki semja við okkur á einhverjum gáfuðum forsendum
Hvað heldur hann eiginlega að hann sé?
Hann vill fá ca. 30% launahækkun og segir svo að aðrir séu klikkaðir. Hann er einfaldlega fáránlegur samningamaður sem veitir kennurum falsvonir um allt annað en er raunhæft (að hluta til að upphefja sjálfan sig sem verkalýðsgoð 21. aldarinnar) og segir svo að viðsemjendur séu ekki með nægilega gáfaðar forsendur. Að lifa í raunveruleikanum og varðveita stöðugleika og kaupmátt er ekki gáfað samkvæmt Eiríki.
Hans scenario: Kennarar fá 30% launahækkun...
-> 80% starfsmanna sveitarfélaga eru með lausa samninga og vilja "leiðréttingu" í samræmi við hækkun kennara
-> Framhaldsskólakennarar eru með lausa samninga og segja að nú séu grunnskólakennarar með sömu laun og þeir fyrir miklu minni vinnu og minni menntun, krefjast "leiðréttingar"
-> Kjarasamningar á almennum markaði verða lausir því verðbólga mun rjúka upp
-> Allt endar í báli og brandi. Skuldir heimilanna rjúka upp vegna verðbólgunnar, krónan fer í rugl og verðbólgan eykst enn frekar. -> Kaupmáttur ráðstöfunartekna rýrnar stórkostlega og og kennarar enda með 5% launahækkun nettó.
Þykir ykkur Eiríkur gáfaður?
Ég lofaði engu en það er satt að Kolli er vondur við mig. En varðandi DVL þá verður að viðurkennast að hrifning mín yfir þeirri bók er ekki sú sama og hjá heiminum. Það er orðið mjög langt síðan ég las þá bók. Ég myndi seint setja þessa bók topp 100 listann hjá mér. Sem spennusaga þá finnst mér hún miðlungsgóð og þar sem mér finnst vondukalla heimsyfirráða samsæri a la James Bond yfirleitt frekar þunnur þrettándi þá var ég ekki að pissa í mig af hrifningu yfir þeim þætti bókarinnar. Sæmsærisplotinn voru full af götum og stundum beinlínis heimskuleg. En sumir virðast gleypa og vilja gleypa við svona samsæriskenningum.
Ef ég man rétt þá fjallar bókin um leynihreyfingu sem hefur haft á sannleikann um Jesús og lausaleikskróga hans á huldu í 2000 ár. Ef það kæmist upp þá væri allt ónýtt hjá kristinni kirkju og vondi kallinn er að reyna að ná þessari vitneskju og drepur til þess verndara leynivitneskjunnar. Hvernig þetta leyndarmál átti að eyðileggja allt skildi ég aldrei og var aldrei skýrt út í bókinni almennilega. Hins vegar var mikið að lýsingum á ýmiskonar arkitektúr til að sannfæra mig um annað. Höfundurinn leikur hins vegar listavel á okkur með því að gefa allskyns táknum nýtt líf og inntak og ég held að þar sé galdurinn í bókinni.
Eitt af því sem hin vestræni nútímamaður hefur hér um bil útrýmt úr tilveru sinni eru tákn og merking tákna. Í kringum okkur úir og grúir af táknum en við áttum okkur stundum ekki á merkingu þeirra (gott tákn hefur kannski þann eiginleika, virkar bara á undirmeðvitundina?). Krossinn sem er tákn þjáningar og kærleika í kristni hefur misst mikið að táknrænu gildi sínu vegna þess að það er ekki unnið í því að koma þeirri vitneskju áfram á milli kynslóða. Krossinn er nú flott fermingargjöf. Coca Cola hefur að öllum líkindum meiri táknfræðilega skírskotun hjá mörgum. Coca Cola stendur þá fyrir: gosdrykkinn Coca Cola, gosdrykki almennt, alþjóðafyrirtæki, kók og prins, lagið á flöskunni, o.s.frv. Mjög sjánlegt tákn um allan heim. MacDonalds þýðir ekki bara hamaborgari hjá mörgum. Ýmsir ganga um í bolum af Che og Castro, tíska?, yfirlýsing?, vinstri-sinnaður?, fíla fjöldamorðingja?.
Höfundur DVL gefur í ýmsum stöðum og táknum nýtt líf og ég held að nútímamanninn þyrsti í slík tákn. Þau gefa lífinu merkingu/innihald/gildi/?. Þótt að það sé kannski rétt á meðan bókin sé lesinn.
Varðandi hinar og þessar leynireglur sem eru nefndnar í bókinni þá efa ég ekki að þær hafir verið til í einni mynd eða annarri. Hvað þær voru að gera get hef ég eki hugmynd um, en í gegnum tíðinna hafa menn ástundað sína kristini á æði misjafnan hátt. Mitt álitt á DVL er að saga kristninnar einfölduð fullmikið og barnalega. Þar eru settir upp tveir andstæðir hópar í Evrópu og búið. Hvað með Afríkur, BNA og Suður-Ameríku og allt það sérhagmunapott sem hefur farið fram þar. Evangilistar og Hvítasunnumenn ekki nefndir í þessu.
Niðurstaðan af lestri DVL er að hún er áróðursbók frá Páfagarði með þann boðskap að Vatíkanið vinnur alltaf hvort sem það hefur rétt eða rangt fyrir sér vegna þess að kaþólsk kirkja er sterkasta afl á jörðu vegna þess að Guð hefur gefið henni valdið. Guð sér um sína (kaþólika). Spurningin sem stendur eftir lestur bókarinnar er því að sjálfsögðu. Afhverjur er ég ekki kaþóliki?
11.11.04
Bað Adda að skrifa um Da Vinci lykillinn smá pistil, satt og logið í DVL eða eitthvað slíkt. En hann segist ekki þora því vegna þess að Kolli sé vondur við hann.
Ég er ekki alveg búinn með bókina en hún er ekki alveg í samræmi við væntingar - allir segja að þetta sé svo voða merkilegt. Nánar síðar...
Svo má benda á að leitarvélartjúningar mínar hafa borið stórkostlegan árangur og er nú hægt að leita í arkævum Vonlausa allt aftur í október 2000.
10.11.04
Ég get nú reyndar ekki ímyndað mér hvílíka kvöl það myndi valda heimaskítaranum okkar ef að klósettið heima hjá honum yrði rifið í burtu af óðum nágranna. Hins vegar er ég alveg til í að hía á hann og hlægja eins og hýena ef svo ber undir.
Varðandi kennaraverkfall þá er augljóst að það leysist aldrei upp úr þessu. Nú tekur við langur tími þar sem almennur skítaplebbi þessa lands mun sveittur borga tap olíufélaganna af sektum sem verður skellt á þau. Augljóst er því að landinn mun ekki hafa efni á því að borga kennurum laun. Olíufélögin verða að skila hagnaði. Kennarar verða í verkfalli til eilífðarnóns.
Pólitísk ákvörðun þess að sekta olíufélögin í stað þess að hengja forstjóranna kemur innan skamms. Þá er náttúrulega lag hjá olíufélögunum að sína mikinn samstarfsvilja og reyna hækka sektir með ýmsum sönnunargögnum um sekt sína og stuld. Þannig geta þeir að sjálfsögðu viðhaldið ógnargreip sinni á landanum og jafnvel svikið ennþá meira út úr okkur á meðan við borgum upp svínaríið. En kennaraverkfall verður áfram.
"Sorrí maður, ég er mjöööög leiður yfir því. Gleymum þessu bara..."
Allt í lagi - en ég vil fá útvarpið mitt aftur samt."
Ágreiningsefni nágrannanna, ákærða og ákæranda, mun hafa verið leki í salernisröri sem gert hafði verið við til bráðabirgða. Sagði ákærði að slælegt viðhald á íbúð ákæranda hefði leitt til stórtjóns á sinni íbúð.
Ennfremur bar ákærði að einn morguninn hafi sér þótt mælirinn fullur: "Um morguninn þegar ég kom fram úr rúminu og gekk fram á salernið ... blasti við mér ófögur sjón. Mannasaur og hland var út um allt, á veggjum og á gólfinu. [Ákærandi] hafði þá sturtað niður um nóttina eða morguninn og því var ógeðið út um allt."
Sagði ákærði að daginn áður hafi ákærandi lofað að sturta ekki oftar niður úr salerninu fyrr en búið væri að laga rörið. Þegar ákærandi hafi síðan enn sturtað niður er leið nær hádegi hafi sér verið nóg boðið: "Ég var svo reiður að ég fór inn á salernið hjá [ákæranda] og kippti því upp úr gólfinu. Ég lagði það á hliðina og fór síðan út aftur."
www.mbl.is
Ennfremur bar ákærði að einn morguninn hafi sér þótt mælirinn fullur: "Um morguninn þegar ég kom fram úr rúminu og gekk fram á salernið ... blasti við mér ófögur sjón. Mannasaur og hland var út um allt, á veggjum og á gólfinu. [Ákærandi] hafði þá sturtað niður um nóttina eða morguninn og því var ógeðið út um allt."
Sagði ákærði að daginn áður hafi ákærandi lofað að sturta ekki oftar niður úr salerninu fyrr en búið væri að laga rörið. Þegar ákærandi hafi síðan enn sturtað niður er leið nær hádegi hafi sér verið nóg boðið: "Ég var svo reiður að ég fór inn á salernið hjá [ákæranda] og kippti því upp úr gólfinu. Ég lagði það á hliðina og fór síðan út aftur."
www.mbl.is
9.11.04
Annars er eitthvað gróflega bogið við réttarkerfið okkar. Ég hef verið að lesa gamla dóma og yfirleitt er fólki ekki sleppt við refsingu þó að það iðrist gjörða sinna. T.d. var Árni Johnsen mjög leiður og margir aðrir ræningjar og morðingjar.
Mikið er ég feginn að framkvæmdavaldið er að sjá að sér og sleppa þeim sem stela pening en eru leiðir. Þeir hafa svo sannarlega hlotið sína refsingu, með því að vera leiðir inn í sér. Kallgreyin, það er ekki eins og það sé tekið út með sældinni að vera forstjóri olíufélags.
Frábær hugmynd líka að sekta bara helvítin og láta þar við sitja. Sá peningur verður að sjálfsögðu dreginn af launum þeirra seku og verðlagningu haldið eðlilegri. Það er ekki möguleiki að slíkt lendi á neytendum.
Ef þið borgið ekki meiri pening fyrir hýsinguna er ég sko hættur að vinna í þessu. Ég ætla bara að vera heima og éta snakk þangað til þið borgið meira. Ég vil fá mannsæmandi laun fyrir hýsingu. Hýsing er mikilvæg. Og ef þið komið með eitthvað 15% bull sprauta ég sinnepsgasi á ykkur.
8.11.04
Hver vill fá skilaboð um "missing dll's from Kernel" á sunnudegi...?
Buhuhuhu...
5.11.04
Hafið eyrun opin fyrir nýrri Burton snjóbrettaauglýsingu á Skjá1 það er lagið Blade of Darkness með The Virgins sem prýðir þessa auglýsingu. Svo er á PoppTíVí til eintak af myndbandi við lagið Basics of a Conversation. úr því að þið eruð alltaf að biðja um óskalög á popptíví prófið þá líka að biðja um Basics of a Conversation.
Rokk on Retron!
Það er komin ný plötubúð í kjallarann á Kjörgarði (undir Bónus á laugarvegi sumsé).
Það verður eitthvað húllumhæ þar milli 5 og 7 í dag (föstudag) og m.a. spilar Retron with full majesty, sjóv og allt.
Spilum líklega um eða upp úr 6 en endilega komið og tékkið á búðinni góðu, það verður eitthvað um að vera alla helgina held ég.
Versta er að maður eyðir meira bensíni á leiðinni í Atlandsolíustöð heldur en maður fær aukreitis þar fyrir peninginn sinn. Pú!
Kári.
4.11.04
Afhverju fær Þórólfur að sitja áfram? Þetta er lýsandi dæmi um íslensk stjórnmál, enginn tekur ábyrgð. Ég vona að allir topparnir verða brenndir á báli fyrir þetta.
Afhverju er samfylkingin á þessari rotturíðírassmynd, ég hélt að þetta væru allt saman sjálfstæðismenn.
Af hverju er þessi auglýsing ekki kominn í loftið?
Hvaða 'hin' olíufélög er verið að tala um? ÓB er tengt Olís, Egó er tengt Esso, Orkan er tengd Skeljungi og var m.a.s. dæmd til sektargreiðslu af samkeppnisstofnun. Er þá ekki bara eitt olíufélag eftir, Atlantsolía?
Og hver kaupir eitthvað annað en bensín á bensínstöðvum?
Já, og Þórólfur verður að segja af sér, því miður, þrátt fyrir að vera eini ljósi bletturinn á r-listanum.
Óendanlega pirraður yfir olíufélögunum og grófasta ráni Íslandssögunnar.
Það á náttúrulega að refsa þessum mönnum, hverjum og einum, persónulega. Fjársekt á félögin skilar sér bara í hærra verði til okkar. Hinsvegar er magnað hvað þessir sokkar hafa náð að beina spjótunum á borgarstjóra vorn, ekki minnst einu orði í fjölmiðlum á þessa háu herra. Málið er tafið þar til þeir sleppa af önglinum vegna fyrningar. Ljóst af rannsókninni frá upphafi að þeir eru sekir.

Varðandi borgarstjórann - auðvitað eiga menn að víkja þegar þeir eru með drulluna lekandi úr eyrunum. Persónulega var ég nokkuð ánægður með kallinn þó að ég þoli ekki R-listann. Maður sem var búinn að gera eitthvað annað í lífinu en að vera fúll á móti og bókasafnsvörður. Svo er hann bara glæpon.
Bottom line - gleymum ekki að stjaksetja höfuðpaurana...
Djöfull er ég líka sammála þessu, sem einn aukalimur VV reit:
Þórólfur segist vera að hætta "án þess að til þess sé raunveruleg ástæða, en hann vilji síður að R-listinn líði fyrir eitthvað sem hann hefur ekki gert". Hann fær góða vinnu hjá Og Norðurljósum, og mun þar m.a. sjá um budgetið sem fer í R-listann og Samfylkinguna. (Auðvitað er samráð milli fyrirtækja og pólitíkusa, það er augljós staðreynd).
Dagur B. verður borgarstjóri næstu 10 árin, því þótt hann sé slæmur kostur, eiga Vil-hjálmur og Gulli Þór því miður ekki séns í hann, hann er bæði sætari, myndin sem birtist af honum við greinarskrif er góð, og hann er vinur Imbu Sollu.
Forstjórar olíufélaganna fá pínulítinn dóm, enda málið fyrnt ...vegna þess að sjálfstæðisflokkurinn stollaði málinu nægilega lengi með því að fresta aukafjárveitingu til Samkeppnisstofnunar. Forstjórarnir skulda þar með Sjálfstæðisflokknum greiða, en það að eiga inni greiða hjá olíufurstunum er afar gott. Jón Steinar lendir í klípu, því hann gæti
raskað þessu karma með því að taka þátt í að dæma olíufurstana í djeilið, hann ætti því að finna ástæðu til að víkja sæti vegna frændskaps við einhvern þeirra eða konunnar hans Kristins.
80% íslendinga mun verða reiður í tvo daga, en halda svo áfram að kaupa ekki bara bensín heldur hamborgara, pulsur, banana, kaffi, smurolíur o.s.frv. af olíufélögunum sem tóku þá í rassgatið, kremlaust. Olíufélögin voru búin að hækka verðin (saman) í vikunni eftir að lögfræðingar þeirra skiluðu inn áliti sem sagði að líklegast myndu þeir tapa málinu og þurfa að borga sektir. M.ö.o. við fáum reikninginn, og borgum hann í hvert skipti sem við kaupum bensín, kaffi og pulsu.
Pólítíkusarnir og dómstólarnir munu ekki refsa þessum köppum af neinu viti. Það eina sem vit er í núna er að brjótast út úr því að vera "venjulegur" íslendingur sem lætur þetta yfir sig ganga, og beina öllum mögulegum viðskiptum frá þessum köppum med de samme. Ég mun héðan í frá leggja mikla áherslu á að kaupa EKKI af þeim vörur, ef þið viljið getið þið borgað minn hluta af pakkanum með því að halda áfram að versla við Esso, Skeljung og Co.
Nú eiga "hin" olíufélögin að sækja fram, og setja fram sterkt slogan til að minna á að þeir voru ekki með í þessu bulli, og reyna að vinna markaðshlutdeild áður en íslendingurinn gleymir hver nauðgaði honum.
...ekki hinsvegar láta ykkur detta í hug að þessir sömu stjórnendur olíufélaganna sem sátu í stjórnum (sömu eigendur í mörgum tilfellum) tryggingafélaganna hafi notað sömu aðferðir við t.d. sölu bílatrygginga! (No shit!!!!!!)
Helvítis!
Dagur B. verður borgarstjóri næstu 10 árin, því þótt hann sé slæmur kostur, eiga Vil-hjálmur og Gulli Þór því miður ekki séns í hann, hann er bæði sætari, myndin sem birtist af honum við greinarskrif er góð, og hann er vinur Imbu Sollu.
Forstjórar olíufélaganna fá pínulítinn dóm, enda málið fyrnt ...vegna þess að sjálfstæðisflokkurinn stollaði málinu nægilega lengi með því að fresta aukafjárveitingu til Samkeppnisstofnunar. Forstjórarnir skulda þar með Sjálfstæðisflokknum greiða, en það að eiga inni greiða hjá olíufurstunum er afar gott. Jón Steinar lendir í klípu, því hann gæti
raskað þessu karma með því að taka þátt í að dæma olíufurstana í djeilið, hann ætti því að finna ástæðu til að víkja sæti vegna frændskaps við einhvern þeirra eða konunnar hans Kristins.
80% íslendinga mun verða reiður í tvo daga, en halda svo áfram að kaupa ekki bara bensín heldur hamborgara, pulsur, banana, kaffi, smurolíur o.s.frv. af olíufélögunum sem tóku þá í rassgatið, kremlaust. Olíufélögin voru búin að hækka verðin (saman) í vikunni eftir að lögfræðingar þeirra skiluðu inn áliti sem sagði að líklegast myndu þeir tapa málinu og þurfa að borga sektir. M.ö.o. við fáum reikninginn, og borgum hann í hvert skipti sem við kaupum bensín, kaffi og pulsu.
Pólítíkusarnir og dómstólarnir munu ekki refsa þessum köppum af neinu viti. Það eina sem vit er í núna er að brjótast út úr því að vera "venjulegur" íslendingur sem lætur þetta yfir sig ganga, og beina öllum mögulegum viðskiptum frá þessum köppum med de samme. Ég mun héðan í frá leggja mikla áherslu á að kaupa EKKI af þeim vörur, ef þið viljið getið þið borgað minn hluta af pakkanum með því að halda áfram að versla við Esso, Skeljung og Co.
Nú eiga "hin" olíufélögin að sækja fram, og setja fram sterkt slogan til að minna á að þeir voru ekki með í þessu bulli, og reyna að vinna markaðshlutdeild áður en íslendingurinn gleymir hver nauðgaði honum.
...ekki hinsvegar láta ykkur detta í hug að þessir sömu stjórnendur olíufélaganna sem sátu í stjórnum (sömu eigendur í mörgum tilfellum) tryggingafélaganna hafi notað sömu aðferðir við t.d. sölu bílatrygginga! (No shit!!!!!!)
Helvítis!
3.11.04
2.11.04
Ég óska Skeini innilega til hamingju með afmælið og veisluna. Mér skilst að flestir, ef ekki allir hafi haft gaman af, að e-u marki.
Ég þvertek fyrir að vera kallaður heimskur. Sá sem kallar mig heimskan misskilur grundvallaratriði orðsins. Í orðabók menningarsjóðs má sjá að orðið heimskur hefur tvennskonar merkingu:
1. Að vera heimakær, hafa aldrei farið að heiman, þekkja ekki annað en það sem heimahagarnir hafa upp á að bjóða, sjá ekki lengra en nef sitt nær, búa ennþá heima hjá mömmu sinni.
2. Að vera Kolli
Það er augljóst að þið eruð allir annað hvort annað eða bæði. Nema við Sírnir sem erum veraldarvanir heimsborgarar.
Og að lokum spurning dagsins:
Á hvað er maðurinn að horfa slíkum girndaraugum?
Góðar stundir
Ha Ha Ha, þið eruð hommar og pungstöppur og þið munuð aldrei fylla flokk okkar sem eru betri en þið, það á líka við um þig sem ert ekki sammála mér. Ha ha ha, skrifað í Mýþríl (sem er ofar ykkar uppfinningum) og ekki hægt að stroka út eða eyða, aldrei nokkurn tíman og heldur ekki hægt að breyta. E he he.
1.11.04
Þið eruð allir lúðulakar með kúk í buxunum.
Enn á ný óska ég svíni til trogningu með galtræðisafmælið, nú er hann galtræður og af orðanna hljóðan er það ljóst að hann
hefur verið galtroðdandáliljaður í görn,
þjappað í eins og kvörn,
út dregin þrútin bjúgu
um gyllinædda lúgu.
hvar eru fleiri myndir?
Ég fatta ekki hvernig þjóð getur verið tekin eins ílla í görnina og brotavilji eins skýr, án þess að nokkuð sé aðhafst.
Gildismat þjóðar ræður því hvernig tekið er á. Að taka þátt í glæp, er þátttaka í glæp. Það skiptir ekki máli hver nýtur ábatans af glæpnum. Burðardýrin eru yfirleitt gripin með dópið og dæmd.
Klárt að það á að segja Borgarstjóranum upp, ef hann telur sig ekki þurfa að gera það sjálfur. Borgin er stærsta fyrirtæki landsins í almenningseign. Borgarar Reykjavíkur eiga fyrirtækið.
Gildismat þjóðar ræður því hvernig tekið er á. Að taka þátt í glæp, er þátttaka í glæp. Það skiptir ekki máli hver nýtur ábatans af glæpnum. Burðardýrin eru yfirleitt gripin með dópið og dæmd.
Klárt að það á að segja Borgarstjóranum upp, ef hann telur sig ekki þurfa að gera það sjálfur. Borgin er stærsta fyrirtæki landsins í almenningseign. Borgarar Reykjavíkur eiga fyrirtækið.
Ég er sammála því að þeir sem eru í útlöndum eru asnar, sérstaklega Skarphéðinn hann er hálfviti. Annars var gaman að sjá KÍBsterinn í trúðslegum gír sem deyr ekki ráðalaus þótt enginn bjór sé til að sindra yfir mann þá finnur hann bara upp á öðrum skemmtilegum hlutum. Vonandi að hann haldi þessum fíling fram yfir árshátíð.
...fór fram með sprengingum og látum um helgina. Held að þetta prattí verði nú í minnum haft lengi. Allir voru rullif og í góðum fíling. Retron rokkaði húsið og Retro fönkaði húsið. Þakka þeim öllum fyrir að nenna þessu. Held að Die Garfünkel hefði nú ekki hoppað heljarstökk með skrúfu í fullum herklæðum yfir því að fá að spila í ammæli.
Nema hvað, fólk fór að tínast inn upp úr átta, flestir hlýddu dresskódinu, nema Kolli Gölli, enda hefndist honum grimmilega fyrir það. Ætli Gölturinn og Rauða hættan endi ekki á að splitta hreinsun á fínu fötunum hans. Talandi um það - Rauða hættan mætti í góóóðum gír, hellti snakki yfir fólk og lét eins og rauðar hættur eiga að láta. Gaman að sjá þann hvíta hrafn.
Mottó kveldsins var svartnætti fyrir miðnætti.
Vonlausa fór yfirum af myndarskap og færði geltinum forláta flugustöng. Papa-Göll missti andlitið bókstaflega af hrifningu, eða svo hélt Gölturinn, er hann barði gripinn augum. Stundi svo upp úr sér að önnur stöng biði heima. Skondið. Gölturinn mun rífa upp laxa tvíhent næsta sumar!
En það voru undrabörnin sem stálu senunni held ég að menn geti almennt verið sammála um. Komu með magnaðan bekk með snjóbrettaplötum fyrir bak og setu, geggjað flottur og verður til sýnis í stofunni á K12, og einnig ansi magnaða danssýningu sem ég held að hafi vakið einhver viðbrögð hjá öllum gestum galtarmessu. Hvaða skoðun sem fólk hefur á gjöfinni er þetta partýsaga aldarinnar og meira að segja Ása á eftir að gera grín að þessu eftir nokkur ár (áratugi). Eða ekki ;)
Anyhow - snilldar Galtarmessa, gaman að sjá alla, gaman að þetta var gott prattí, þakka öllum sem lánuðu dót og hjálpuðu til, þakka öllum vinum mínum fyrir að mæta, þeir sem eru í útlöndum eru asnar.
Takk fyrir mig!
Skoða eldri færslur >>

