31.1.05

Veiðiferð í sumar
Er engin stemning fyrir að fara í einhverja sniðuga á í sumar? Nú veit ég að Kolbeinn lydda og svikari mun ekki hafa sig neitt í frammi við að rigga því að hann er að fara í ókeypis ferðir með papa-mjöðm og svíkur vini sína umsvifalaust og brennir á báli fyrir ókeypis brauðsneið eða tvær.

Því þurfa menn nú að drullast til að koma með einhverjar hugmyndir áður en allt verður upppantað.

Ég vil fara og næla í eins og einn lax, slaka á í heita pottinum, fá mér smá birra og muna eftir því að Tóti drapst í bílnum þegar við komum á staðinn - eitthvað þannig. Eru menn ekki memm?

Og litli fagginn sem felur sig í döðlunum hans pabba síns má ekki koma!
::Hívatha litli skeit klukkan 22:35 31.1.05 ::

Nei hinn - ég gleymdi honum í partýi á Arnarnesinu og man bara að klósettið þar leit út eins og Tyrkneskt baðhús...?
::Hívatha litli skeit klukkan 15:15 ::

Meinaru leðurjakkan með hommaspjaldinu? Nú væri nær að spyrja hvort nokkur hafi séð minn leðurjakka, þótt Kíb sé stórlega grunaður um að hafa stolið honum og saumað forhúð framaná ermarnar.
::The Satan of Death skeit klukkan 13:35 ::

Í dag sekkur Ísland í sæ

Guðni Ágústsson er starfandi forsætisráðherra OG utanríkisráðherra..

oj
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:05 ::

Hefur einhver séð leðurjakkann minn?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:03 ::

Eddie er á leiðinni!!!!
Eddie ætlar að éta svín og auðvitað er eddie dauður en svínið lifandi.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:59 ::

28.1.05

Þetta er lord of the lambs. Í þessari senu er Gollum búinn að loka Frodo í kjallara hjá sér og ætlar að flá hann því hann stal hundinum hans, Precious, sem gerði fólk ósýnilegt.
::Mósagrís skeit klukkan 19:24 28.1.05 ::

"...or else it get's the hose again."
::Hívatha litli skeit klukkan 15:29 ::

Barmur frægðar
Jack off
Ég var að hlusta á gallsúra útvarpið hér um daginn. Á kemur lag sem ótrúlegt nokk ég hafði ekki heyrt trilljón sinnum áður. Frekar súrt, e-r kelling að syngja á lélegri ensku e-ð prump. Lagið var svo afkynnt sem nýjasti hittarinn með hinni upprennandi stórsveit Jack. Við að heyra þetta fór um mig notarlegur hrollur, enda ónuðum við dansgólfið á súra diskótekinu í Hemsedal fyrir réttu ári þar sem stórsveitin Jack var eimmitt að spila.

Nú líður mér eins og ég eigi, og Bjöggi, Gölli og Kári (og Ása) inni drátt hjá Jack, því án okkar hamslausu hvattningu er deginum ljósara að þau hefðu aldrei náð svona langt. Pant Birgittu.

Nú líður senn að megamassapúðurferð aldarinnar hjá brettadeild Vonlausa. Til að koma í veg fyrir að ferðin verði megamassapúðurferð dauðans höfum við verið að reyna að hafa uppá guido til að lóðsa okkur hættulaust um brekkurnar. Meðal annars sendi ég fyrirspurn á Misty Fly snjóbrettabúðina, sem mun vera með e-n dúdda á sínum snærum sem guidóar.

Nema hvað, á rápi mínu um snjósíður netsins rakst ég á Þessa frétt.

Mér finnst ólíklegt að ég vilji láta gædana frá Misty Fly finna öruggustu leiðina fyrir mig...

Úr hvaða mynd:

"It rubs the lotion on it's skin..."
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:59 ::

27.1.05

Og Vodafone með ömurlega þjónustu enn eina ferðina
Og Vodafone sýndi enn og aftur hvað þeir rokka í dag. Misstu niður allt netsamband í 4-5 klukkutíma. Æðislegt. Fullt af fyrirtækjum misstu niður vefi, meil and the works. Enn verra - vonlausa fór niður. Og póstþjónninn okkar.

Miðað við að 20 tímarnir sem þeir misstu vonlausa niður um daginn voru "stutt þjónusturof" þá tekur því reyndar varla að æsa sig vegna svona lítils tíma eða hvað?

Framhaldssagan heldur áfram...
::Hívatha litli skeit klukkan 20:15 27.1.05 ::

26.1.05

Tónlistarskúbb dagsins
RrrrrrrrrrokkHeyrst hefur að búið sé að bóka Egilshöll fyrir Iron Maiden!!! Ekki leiðinlegt að fá kappana hingað til annars en að fljúga flugvél.

Á að vera staðfest og alle græjur. Djöfull verður þetta mikil snilld! Ætli ég fái gaddaarmbandið mitt með öngvum göddum aftur í tæka tíð síðan það var gert upptækt á Metallica?



Viljug ríki
Hmm - er Ísland sem sagt bara tálsýn á þessum lista?
::Hívatha litli skeit klukkan 14:39 26.1.05 ::

r-listinn dró hækkunina til baka þ.a. hún er óbreytt 0,32%. Eftir stendur að fasteignamatið, sem skatturinn er reiknaður af, hefur hækkað um tæp 20% og þ.a.l. hækkar fasteignaskatturinn, í krónum talið, um sömu prósentu.
::KÍB skeit klukkan 14:30 ::

Þetta bað Kolli um...
Þá hefur þú kannski gaman að því að vita að fólkið sem þú kaust samþykkti á fundi borgarstjórnar í nóvember að hækka bæði útsvar og fasteignaskatt borgarbúa. Hækka átti fasteignaskatt upp í 0,345%.

Þá hækkaði fasteignamat umtalsvert á dögunum þannig að skattstofninn stækkar = meiri skattur. Þannig að þetta er tvöföld skattahækkun.

Á Seltjarnarnesi ákváðu menn að hafa fasteignaskatt óbreyttan og lækkuðu því skattprósentuna í takt við hækkun á fasteignamati. Þar er nefnilega snjallt fólk að stjórna.

Til hamingju með 2xaukaskattinn þinn!

::Hívatha litli skeit klukkan 11:59 ::

Ég hata fasteignaskatt
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:57 ::

Ég hef verið að fá einhvern hallærislega anti-hjartaáfallspóst undanfarið(það er miklu meira kúl aða fá hjartaáfall eins og maður!) en málið er að það er mun þarfari viðvörun og leiðbeiningar sem alltof fáir fá sökum samsæris neo-con og zionista stjórnarinnar í BNA.
Here goes:

Neyðarástand:
Þú situr og horfir á Buffy the vampire slayer á góðum sunnudegi. Þú ert búinn að hakka í þig súkkuaðiköku, kók, hálfan snakkpoka(KÍB sturtaði hinum helmingnum yfir þig) og þrjár kókosbollur.
Skyndilega finnuru undarlegan verk í líkamanum, neðarlega í kviðarholinu. Aukinn þrýstingur veldur þér sársauka og þú tárast og ferð að stynja. Þér líður eins og þú sért að springa og það sem þig vantar er neyðaraðstoð nema að KÍB er of mikill sekkur til að hjálpa þér, nú getur enginn bjargað þér nema þú sjálfur!
Þar sem þú ert ekki búinn að lesa þessar leiðbeiningar þá veistu ekki hvað skal gera, þú færð þér fjórðu kókosbolluna til að lina sársaukan og skyndilega heyrist hár hvellur og þú springur og ert veggfóðraður um allt herbergið.
Hvað skal gera til að forða slíku óhappi:
Þegar þú ert búinn að borða fullt að drasli og finnur að það er farin að myndast þrýstingur, farðu á klósettið og kúkaðu. Að skeina sér er optional but recomended
::Mósagrís skeit klukkan 09:05 ::

Wankerar
Skil hreinlega ekki fólk sem velur þetta helvítis dimma, blauta skítaveður umfram gott vetrarveður. Kjéllingar í vinnunni og jafnvel veðurfréttakonur þusa um að það sé nú svo æðislegt að hafa svona hlýtt. Hvað er að? Þetta er ömurlegt. Blautur klaki, glatað að keyra, varla hægt að labba á milli húsa, drungalegt. Sé bara ekki hvað er svona æðislegt.

Það á bara að vera sumar á sumrin og vetur á veturna. Það er klassi. Núna ryðga axirnar inni í skáp og árskortið í fjöllin hótar að borgast ekki upp. Buhuhu.

Mér finnst þetta svo heimskuleg pæling að ég verð pirraður í hvert skipti sem einhver segir svona bull.

Sá grein í blaðinu í gær að einhverjir vísindamenn hefðu verið að pota fram pælingunni um aukið ferskvatn í sjónum vegna bráðnunar Grænlandsjökuls -> golfstraumurinn hættir -> Ísland verður vetrarparadís (óbyggilegt segja þeir). Verð nú að segja að ég var ansi ánægður með veðrið í sumar og vetur, þar til það fór að rigna.

En nú er maður bara orðinn eins og gamall fauskur í heitum potti og talar um veðrið tímunum saman. En hei - þú last þetta fífl.
::Hívatha litli skeit klukkan 08:33 ::

25.1.05

Bora sora úr Tora Bora
Ég horfði á helvíti góða BBC heimildarþætti í gær sem heita The Power of Nightmares. Hvet vonleysingja til að verða sér úti um þá á hinu almáttuga interneti eða fá lánað frá mér og horfa hvort sem þið eruð nýfrjálshyggjumenn eins og Gölli og KÍB, trúarnöttarar eins og Pu og Guðni, hnetuselir eins og ég og Skabbi, veganpönkarar eins og Gírnir grulsa og Kári eða bara pjúra hálfvitar eins og Tóti og Krummi.

::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:08 25.1.05 ::

24.1.05

Skrýtinn texti
Hafið þið tekið eftir því í KoRn laginu þegar gaurinn segir:

You all wan't a single say pottþétt, pottþétt, pottþétt.


Takið eftir þessu næst þegar þið heyrið það.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:15 24.1.05 ::

Polo...
...small but tough.

Svo rakst ég á fyndna færslu (djöfull er gaman að skoða gömul blogg):

.


Svo er gaman að þessu og þessu og þessu og þessu.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:53 ::

Ég átti mjög fyndna og skemmtilega 2daga djammhelgi. Ég fór á föstudeginum út með gaur sem er vinnufélagi Kims, en ég hef hitt hann áður. Þannig er með hans mál farið að hann var að hætta með kærustunni sinni til margra ára og býr nú í gestaíbúð í blokkinni þar sem Kim býr. Við fórum á stað sem heitir Skål! þar voru öll sæti upptekin, en mér tókst að orma okkur inn á borð með nokkrum stelpum sem við förum svo að tala við. Ljómandi nokk, þá virðist Magnus (vinnufélagi Kims) og ein stúlknanna ná ósköp vel saman. Sem var mjög gaman af því að við vorum nýbúnir að ræða hversu lengi eftir breikup maður á að bíða. Ég sagði honum vitaskuld að bíða ekki rassgat, nema hann ætli sér að byrja aftur með gömlu kærustunni. Og að kynlíf sé hvorki ást né virðing, en að ást og virðing geti verið kynörfandi. Verslings maðurinn fékk einn góðan Sírnisfulla fyrirlestur, sem kom sér vel því að gamla kærastan hringdi í hann klukkan 1 um nóttina til að gá að honum. Í það minnsta var okkur svo boðið í eftirpartý með vinum hennar, hverjar því miður voru allar fráteknar, nema ein en það gekk ílla, en ég reyndi að passa að Magnus yrði ekki vinkonaður. Svo nánast rak ég Magnus út með stelpuna áður en allir yrðu of fullir og þreyttir. En sat eftir sjálfur og reyndi aðeins meira við vinkonuna... árangurslaust. En ég var samt mjög stilltur og móðgaði engan. Fór svo heim, reyndar kom þessi vinkona með mér út, en það var held ég bara til að finna til falsks öryggis þegar hún var að panta leigubíl, ég reyndi að lesa hvort ég væri velkominn í bílinn með henni, en sýndist á öllu að það væri ekki. Svo ég ákvað að halda stolti og keypti mér appelsínudjús og nýbakaðan snúð í búðinni áður en ég tók strætó heim og var kominn þangað kl 6.
Um hádegi hringir Kim og nú er hundur í honum, svo hann býður okkur í gufu. Þar sitjum við Magnus aftur, af því að hann býr í sama húsi, nema í kjallara með glugga á jarðhæð. Gefur að skilja rekjum við úr honum garnirnar varðandi stelpuna, og þá kemur í ljós að hann var 2D2F og þau knúsuðust bara, Svíarnir kölluðu hann aumingja, en ég sagði honum að hann væri snillingur, því nú héldi hún að hann bæri virðingu fyrir sér. Við það snérust svíarnir og voru mér sammála. En þau voru búin að ákveða að hittast í herberginu hjá honum seinna um kvöldið. Svo að hann yfirgaf okkur til að sinna stelpunni. En þegar þau voru búin að vera í svona klukkutíma einn og hálfan þá var skyndilega bankað á gluggan hjá þeim og við blöstu 3 skínandi hvítir rassar á glugganum og öskurskellihlátur. aaaaahhh ég hlæ ennþá.
Svo fórum við á tónleika, og það var drullugaman, því þar voru fullt af fólki sem ég þekki, sem ég gat talað við, svo fékk ég bootysms frá Lenu og hún kom líka á tónleikana og svo fórum við og fengum okkur kæk.
glimmrandi helgi. Og besta mún í mörg ár.
::The Satan of Death skeit klukkan 11:18 ::

21.1.05

Spírur koma - spírur fara
Talsverðar fjárfestingar í vikunni. Keypti LC 60 vél, 4L túrbó, í vikunni á 150 spírur. Keyrð 200 þús. Vona að hún hrynji ekki daginn eftir að hún fer í kaggann. En það kæmi nú ekkert sérlega mikið á óvart miðað við mína heppni í þessum málum. Tók líka Intercooler sem var búið að mixa á hana fyrir 20 þús auka. Smá mix að koma því í hjá mér. En það ætti að hlífa mótornum eitthvað og menn hafa verið að tala um talsvert meira tog og jafnvel 15% aflaukningu. Tökum því með fyrirvara.

Stefnan er sett á Haukadalinn í kveld með Sigga Tomma og Robba HSSR köppum og Tryggva hinum litla úr Ársæli. Ætti að verða gott geim á morgun við klefur. Við Tryggvi ætlum svo að blasta í bæinn og taka þátt í "Íslenzku ullinni" á sunnudaginn.

Heitt sumar / kaldur vetur = Gott. Það er gaman að ís og snjó!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:40 21.1.05 ::

20.1.05

Pissblogg
Yellow snow
::Hívatha litli skeit klukkan 20:54 20.1.05 ::

Hrokafulli ónytjungurinn
Ef Fabían væri ekki svona ÖMURLEGUR vísundur gæti hann kannski fundið út eitthvað svona sniðugt...
::Hívatha litli skeit klukkan 20:35 ::

Tónleikar á ellefunni, Laugarvegi 11, annað kvöld.



Kári.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 17:59 ::

Til umhugsunar
Má nú bara til með að pósta þessum link

Athugið - Þessi færsla tengist því að dveljast í fortíðinni og vera á móti lýðræðisuppbyggingu þannig að Gölli og Kíb og aðrir frelsissinnar vinsamlegast potið í augun á ykkur.


::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:19 ::

Til umhugsunar
Má nú bara til með að pósta þessum linkum frá Skabba, lesist í réttri röð...

Athugið - þessi færsla tengist snjóbrettum og fjallamennsku og því er æskilegt að Kolli og aðrir sambærilegir poti í augað sitt.

::Hívatha litli skeit klukkan 13:23 ::

Mún rétt og tröllarass skal hún heita!
::Hívatha litli skeit klukkan 11:51 ::

19.1.05

Fjandakornið! hvað geymist svonalagað lengi?
::The Satan of Death skeit klukkan 23:44 19.1.05 ::

Myndavélabrandarinn hans Kolla var glataður. Það sem uppúr stóð var augljóslega vandaður húmor galtarins og þá sérstaklega hnitmiðuð og vel tímasett herramannsmatar sagan og svo óaðfinnanlegt Guðna Ágústsson impression.
::Mósagrís skeit klukkan 20:23 ::

Betra er manninum að hugsa háleitar hugsanir við grútartýru heldur en að flatmaga í rafmagnsljósum og verða flón.

- Þórbergur Þórðarson
::Hívatha litli skeit klukkan 11:22 ::

Skabbi: "Hvar er myndavélin mín?"

Kolli: "Er þetta falin myndavél?"

Þú ert útskrifaður með sóma sonur sæll.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:13 ::

Marsipan brandarinn var nú hátíð miðað við herramannsmats rantið. Það sem stendur uppúr er sem sagt að myndavéla brandarinn minn var lang besti brandarinn sem var sagður þetta kvöld.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:03 ::

18.1.05

Sammála KÍB og þó þeir skiljist þá eru þeir ofursúrir. Ég tek sem dæmi "Pétur Pan - Marsípan" branndarann hans Gölla frá árshátiðinni. Once again mátti heyra saumnál detta eftir brandarann meðan enginn hló.
::Karius skeit klukkan 13:40 18.1.05 ::

Ég skil ekki brandarann. Og ef ég hugsa út í það, þá skil ég sjaldnast brandarana hans Gölla. Og ef ég hugsa út í það, þá held ég að það sé góðs viti.
::KÍB skeit klukkan 13:38 ::

Í gær lærði ég að nota transpose fallið í Excel. Mér finnst Excel skemmtilegur. Í tilefni af þessu samdi ég Excel brandara;

"Hei - farðu nú að bylta þér á fætur."

Hahahahaha...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:06 ::

HA HA HA nú hljóp á snærið hjá frumgeltinum.
En það er nokkuð ljóst að ég verð að láta mér vaxa einn vænan Jón Sigurðsson til að fela þennan belg sem hangir í andlitinu á mér.
::The Satan of Death skeit klukkan 01:16 ::

17.1.05

Gróf fölsun!
Girri Gölli og Sköllótti viðbjeðurinn á góðri stund

Það er nú allt í læ að vera ekki að falsa þetta...
::Hívatha litli skeit klukkan 20:24 17.1.05 ::

Mýeindir - bileindir
Talandi um þetta bilerí sem hefur verið að hrjá Göltinn. Þá lenti ég í miður skemmtilegu tölvubileríi í síðustu viku. Harði diskurinn í tölvunni minni hrundi. Það ætti ekki að vera stór mál því ég var með tvo diska í vélinni þar sem annar var hugsaður sem back-up. Eini gallinn var að back-up diskurinn hrundi um leið og aðal diskurinn. Enginn sem ég hef talað við kannast við að tveir diskar í sömu vél hrynji á sama tíma en ég skellti þriðja disknum í og hann svínvirkar. Sem betur fer var ég paranoid android og var með back-up á server út í bæ líka. Það er greinilega aldrei of varlega farið.
::KÍB skeit klukkan 20:05 ::

Göltur og FON á góðri stundu



Gölli
KolliGölli
akfeiti KÍB
Graðni mörtunna

og loks sírnir kominn í hóp ykkar akfeitu offitusjúklinga

viðbjóður!

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:19 ::

16.1.05

Vesen á Gollum
Var eitthvað að pirra mig á hægu gengi við að lóda gallery-inu og fór að skoða Gollum aðeins. Kemur í ljós að hún er á 90-100% CPU stöðugt, spike-ar uppi í 100 stanslaust. Prósessin sem veldur þessu heitir McShield.exe og er hluti af McAfee vírusvörninni, sér um live scan sem er alltaf í gangi. Fann eitthvað af efni um að 1) þessi prósess væri í lagi og 2) um að þetta væri þekkt vandamál, amk. á Win2K.

Það var ekkert að gera í stöðunni nema slökkva á vírusvörninni. Spurning hvort að þið nennið að athuga málið? Í versta falli þyrfti einhver að redda vírusvörn á 2000 server, eina sem ég hef aðgang að er þessi.

Kallar þú nafn mitt...?
Annars var helgin bara fín, fór í smá klaka í Búhömrum á föstudagseftirmiðdag, innflutningsprattí hjá Steppo með Retro um kveldið. Það var mikið stuð og var hámarkinu náð er stöðurafmagnsblúúúús var sunginn.

Laugardagur fór í leiðinlegt félagsstarf, fundarhöld útaf björgunarsveitinni. Þoli ekki fundi. Fundir eru rugl. Sérstaklega á laugardögum. Rugl. Ég tapaði fyrir Hemma í sjómann og sit uppi með þetta. Rugl. Bjórkútur um kveldið og allstíf drykkja, aftur með Retro, á Ölstíu Kormáks og Galtar.

Fjallið var mjög íslenskt í dag, íslensk extreme-skíðamennska. Hún felst í því að 1) nenna upp í fjall þegar stóllinn er lokaður og skítaveður 2) sjá varla lappirnar á sér 3) vona að þú lendir ekki á klakastykkjum og skurðum á leiðinni niður. Nenntum samt að hanga í rúma 2 tíma.

Rappanúí!
::Hívatha litli skeit klukkan 22:13 16.1.05 ::

15.1.05

Hvenær fór Kolli síðast á bretti?
::The Satan of Death skeit klukkan 21:18 15.1.05 ::

14.1.05

Afhverju er Sírnir alltaf svona reiður?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:33 14.1.05 ::

Þá eru allar Vonlausu myndirnar sem ég hef tekið komnar inná galleryið ásamt nokkrum stuttum videoum sem ég tók á árshátíðinni.
::Karius skeit klukkan 09:44 ::

13.1.05

Ef einhver skyldi hafa velkst í vafa um það þá er kúkalykt ekki kynæsandi. Uoóv maður, Sírnir stígur metorðastigann: í dag var ég að skúra á elliheimili og ellimorkið fólk skítur á sig í svefni. Nú var ég einusinni Garçon du Merde og bar þá margann mannssaurinn út í ruslagám, en sjaldan varð ég hans jafn fersklega var eins og í dag þegar eitt gamalmennið skeit í bleyjuna sína meðan ég var að skúra i sama herbergi. Þá hugsaði ég með sjálfum mér (eins og flestir hefðu sjálfsagt gert) "dísus ég vona að ég verði dauður áður en svona verði komið fyrir mér". Svo fór ég að velta því fyrir mér hversvegna maður hugsi svona. Er virðing dýrmætari en líf, og fæ ég að vera með fartölvuna mína og IPoddinn með mér þegar ég fer á elliheimili... ekki það að ég eigi Ipod. Er þetta hroki æskunnar að horfast ekki í augu við hrörnun holdsins? Hvar eru aparnir sem voru í Eden? Er betra að burna út heldur en að feida avei? Ég á afa og ömmu sem eru að fara að detta inn á þennan aldur eftir nokkur ár, ekki vil ég þau feig af því að þau skíta í buxurnar, og ætli það sé það versta við að vera cenatus; að maður haldi ekki saur? Eða að maður er látinn borða urmul af sveskjum (af því að meltingin er ónýt) til þess að maður geti svo skitið á sig

Að léttara hjali.
Ég held að X-ið hafi verið rekið með tapi af því að dagskráin þar át úldinn brallost. Í mínum stuttu heimsóknum á farsældaFrónið hef ég yfirleitt stillt á X-ið þegar ég hef verið að keyra og æfinlega orðið fyrir vonbrigðum. En þó mest með hinn svokallaða Freyza sem ég hef áður tussast yfir, vegna mál-, tal- og vitsmunafötlunar hans. Ég býst við að enn sé markaður fyrir "jaðartónlist" því skoðum bara hvað er heitast og fínast í íslenskri tónlist í dag. Sem gerir að verkum að nú hlýtur að vera tóm fyrir slíka stöð á markaðnum. En vitið það að um leið og slík stöð fer eitthvað að ganga mun ÍÚ aftur fara með slíka stöð í loftið. Hinsvegar myndi ný "jaðarstöð" með metnaðarfullu starfi (meiri tónlist og færri fífl sem vita ekki hvað þeir eiga að segja) vinna samúð útvarpshlustenda. Því ég held að þessi lokun stöðva sé niðurstaða markaðskönnunar sem hafi sett hlustendur x-ins og hlustendur FM í sama auglýsingamarkhóp. Og það vitum við mæta vel að þó við séum kanski sami auglýsingamarkhópur, þá hlustum við ekki á útvarpið auglýsinganna vegna. Í það minnsta vona ég að sérþættirnir finni sér aðra staði til að breiða boðskap sinn.
Þetta er kanski pet project fyrir ykkur viðskiptafræðinganna. Hugsið ykkur, þið mynduð hafa áhrif á það hvaða tónlist væri vinsæl og þá hvað þið væruð líklegir að heyra í partýum. Carpe Diem gæs. Útvarp Ufsi FM 666.
með innihaldsríka útvarpsþætti eins og tíðarandinn sem skúlason helgason skúli helgi eitthvað var með. Þetta er mér mikið hjartansmál og við hefðum átt að taka þetta upp í heitapottspallborðseldhúsdagsumræðum. Nú er ég farinn að sofa til að halda sálarþreki fyrir morgundasins kúkaloftsskúringar.
...
það er bara eitt sem ég skil ekki hvað var Sindri að gera þarna á elliheimilinu hjá mér?
::The Satan of Death skeit klukkan 21:24 13.1.05 ::

Hvaða helvítis holdbera rúnk í rassgati er þetta!!!
Hvar eru góðu myndirnar? Myndirnar sem Tóti lagði myndavél sína að veði í úðagufu sem og nístingsfrosti. Er einhver gúmmíhjúpur utanum þær eða utanum siðferðis og blygðunarkennd utanum þá sem setja myndirnar inn?
mér þykja 20 mínútur af háhægðar nettíma mínum sóað, ég hlakkaði allur til að sjá myndir af vitleysunni í okkur, ekki kurteisinni. Eina svæsna myndin er af gaystædinu hans sindra.
nei nú ýki ég það var drullugaman að skoða þessar myndir, ég er bara fúdl að sjá ekki hinar.
::The Satan of Death skeit klukkan 15:43 ::

Radíó Reykjavík kemur vonandi aftur, lögbannið var sett á út af stefgjöldum. En hins vegar er þetta bara einfalt dæmi, ef eitthvað stendur ekki undir sér er ekkert annað að gera en loka sjoppunni. Lögmál markaðarins. Eldheitur markaðsbúskapsmaður eins og þú hlýtur að skilja það.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:42 ::

Allt gott í útvarpinu hætt
Buhuhuhu. Hvað eru menn að pæla? Loka X-inu? Hvar á maður að heyra gott rokk? Eða nýtt og gott stöff. Hvar eiga framsæknar íslenskar hljómsveitir að láta spila stöffið sitt? Hvar verður Tvíhöfðinn sinn? Eða Freyzinn sinn? Síðan segjast þeir ætla að opna kjaftæðisútvarp Illuga og efla Bylgjuna (fyrir gamalt fólk) og FM (fyrir Selfoss). En hvað eiga Reykvíkingar að hlusta á?

Nú erum við í sömu sporum og fyrir nokkrum árum, það er engin útvarpsstöð sem spilar tónlist, enda hætti Radíó Reykjavík líka á dögunum (vegna lögbanns?)
::Hívatha litli skeit klukkan 08:04 ::

12.1.05

Afturhaldskommatitturinn Hjölli kicks ass. Nú þurfa Börkur frændi og Jón Steinar að kippa þessu í lag áður en allt fer í óefni.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:02 12.1.05 ::

Voó-ó voó-ó voó-óóó...
::Hívatha litli skeit klukkan 14:50 ::

Neverending uppvask
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:40 ::

Enn af biliríi
Í framhaldi af færslu minni "Ekki er ein bilunin stök" má bæta því við að ég dúndraði fína Nitro brettinu mínu sem ég keypti í fyrra á stein og eyðilagði það, boginn kantur, opnaðist, bólgið upp og niður, beint undir hægri löppinni backside :(
::Hívatha litli skeit klukkan 13:58 ::

Lýðræðsiuppbyggingin sem við viljum ekki taka þátt í samkvæmt Dabba og Dóra.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:37 ::

Snjór, snjór skín á mig...
Loksins almennilegur snjór sunnan heiða. Ekki nóg með það að við séum komin með klassa grunn á svæðin hérna (7-9-13) heldur var svona líka surprise púður í Skálafelli í gær, alveg góðir 20 cm að minnsta kosti. Dýpsta og léttasta púður sem hefur komið í mörg ár.

Snjóaði ekki korn í bænum, og maður var þarna í svona frekar stífu færi á sunnudaginn, þannig að þetta kom á óvart.

Sá Sigga Skarp krúsa á telemarkinu eins og vindurinn.

Það er svo mikill snjór að stóllinn rekst í jörðina neðst niðri og innan við 2 metrar í jörð á nokkrum stöðum.

Gvöð minn góður þvílíkur vetur!
::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

Helvítis gátan...
Búinn að pæla ansi mikið í þessu. Var á því að þetta væri bara 50/50 val í síðara skiptið, þ.e. ef þú breytir ekki "velur" þú sama kostinn, og líkt og í teningakasti væri þetta bara "nýtt kast", þar af leiðandi væru jafn miklar líkur.

Hið rétta er samt að það eru 2:3 að þú hafir valið ranga hurð upphaflega og því er betra að skipta.

En ef maður setur dæmið upp með 100 hurðum, þú velur eina og síðan eru 98 fjarlægðar sést að yfirgnæfandi líkur eru á að þetta sé hin hurðin.

Lausnin er hér
::Hívatha litli skeit klukkan 08:38 ::

11.1.05

Mig minnir að skv. líkindafræðinni eigi maður að skipta.
::KÍB skeit klukkan 15:26 11.1.05 ::

Gáta
Ef þið eruð staddir í einhverskonar 'game-show' þar sem þið megið velja eina hurð af þremur, og bakvið tvær eru skítugir geltir en bakvið eina er fullt af pening. Þáttastjórnandinn veit hvað er á bakvið hverja hurð og þegar þið eruð búnir að velja eina þá opnar hann eina af hurðunum sem þið völduð ekki sem með gölt á bakvið og segir að þið megið skipta og velja hina lokuðu ef þið viljið. Hvort haldiði ykkur við þá sem þið völduð upphaflega eða skiptið?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:44 ::

KÍB it real
::Hívatha litli skeit klukkan 13:25 ::

Það sem fiskarnir sjá ekki...
Veit ekki með ykkur en mér fannst ósýnilega albúmið Mittisvöðlunnar gríðarlega skemmtilegt!
::Hívatha litli skeit klukkan 11:10 ::

myndir væntanlegar á galleryið - læt vita þegar þær eru komnar. Hefði sett þær á netið í gær ef það hefði ekki verið gúmmíhjúpur fastar utan um þær.
::Karius skeit klukkan 11:01 ::

10.1.05

Óskað er eftir...
...myndum og ferðasögu. Ef einhvern vantar gallery aðgang má hafa samband við mig. Skabbi á að skrifa ferðasögu með áherslu á gúmmíhjúp, varmatap. Vona samt að hann fái sér eitthvað að borða því drengurinn er ekkert nema lifur og bein.

Kolla vil ég þakka sérstaklega fyrir að hafa lokað glugganum, án þess hefði tiltektin aldrei gengið. Sérdeilis öflugur alltaf strákurinn.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:47 10.1.05 ::

Þjónusturof á vonlausa frá 9-12 í boði Don Alfredo og Orkuveitunnar...
::Hívatha litli skeit klukkan 09:34 ::

9.1.05

Gúmmíhjúpur
::KÍB skeit klukkan 11:49 9.1.05 ::

7.1.05

Halldór þroski?
Hversu klikkaður þarftu að vera til að lesa út úr könnun sem sýnir að 84% Íslendinga vilja af lista yfir "staðfastar þjóðir" (heitir reyndar "willing nations" á ensku = vilja fara í stríð), að fólk hafi einfaldlega misskilið spurninguna og allir séu memm? Koma svo með stjórnmálamannaútúrsnúning og segja að fólk vilji varla vera á móti lýðræði í Írak? Af hverju gekk hann bara ekki skrefinu lengra og sagði: "Nei, nei, þetta er misskilningur. Spurningin er rangt orðuð. Íslendingar vilja varla vera barnaníðingar, morðingjar er trúleysingjar - er það?"

Hálfviti.
::Hívatha litli skeit klukkan 08:37 7.1.05 ::

6.1.05

Pétur og Páll
Pétur og Páll að meikaðaStænerinn og Palli á góðri stundu.

Stænerinn á byssu og lætur stráka sleikja sig.

Hversu metro er það?



::Hívatha litli skeit klukkan 11:08 6.1.05 ::

5.1.05

Hei, vissuð þið að Framsóknarflokkurinn býður uppá að mar skrái sig í flokkinn á netinu. Anyways, ég skráði Svenna og hakaði við að hann gæfi kost á sér í hitt og þetta sjálfboðastarf fyrir flokkinn, þ.á.m. hringja í fólk fyrir kosningar og taka þátt í alls kyns uppákomum fyrir hönd framsóknar.
Ég held að gölli verði góður framsóknargrís.
::Mósagrís skeit klukkan 20:28 5.1.05 ::

Þetta kusuð þið...
Lagt verður fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag að hækka verð á raforku til almennra neytenda um 3,89% frá og með 1. febrúar.

[...]

...að áætlaður hagnaður Orkuveitunnar fyrir afskriftir og fjármagnskostnað væri tæpir 5 milljarðar króna. Sagði Guðmundur aðspurður, að þessi hagnaður væri m.a. forsenda þess að verðhækkunin nú væri ekki meiri en raun bæri vitni.

[...]

Er kostnaðurinn [við byggingarnar] alls 4257 milljónir. Aðalbyggingin kostaði 3264 milljónir á verðlagi hvers árs en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 2676 milljónir [22% framúr áætlun].

Fermetraverð [...] í aðalbyggingunni er 225 þúsund krónur.


Við eigum sem sagt að vera þakklát að þetta hækkaði ekki meira. Svo náttúrulega hækkaði heita vatnið af því að fólk fór ekki nógu mikið í heita sturtu í sumar. Svo hækkaði útsvarið, sem Reykvíkingar borga af tekjum sínum, upp í leyfilegt hámark eða í 13,03% úr 12,7%. Jafnframt verður fasteignaskattur hækkaður úr 0,320% í 0,345%.Þetta er vegna þess, að sögn Steinunnar Valdísar, að það er svo dýrt að hafa fötluð börn á frístundaheimilum. Mikið er hún góð kona.

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1119184
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1118916

[Uppfært: Svo má geta þess að matur í skólum og dagvistun hjá ÍTR hækkar líka. Einnig að nú er verið að skipta um klæðningu á nýja orkuveituhúsinu því að hún var var ekki nógu flott. Og Don Alfredo er með skrifstofu þar (hvaða stjórnarformaður er með skrifstofu?) með raf-plasmagleri til að hann þurfi ekki að draga gardínur fyrir ef það er sól. Ég held að einkafyrirtæki hafi ekki einu sinni hugmyndaflug í jafn mikið bruðl og þessir snillingar]
::Hívatha litli skeit klukkan 14:35 ::

4.1.05

Hmm - hvað nákvæmlega er að því að láta okkur hafa þetta blessaða lag fyrst það er í lagi að láta rokk.is fá það? Jæja, maður er alltént búinn að ná í það núna og getur farið að hlusta á þessa hressu listamenn sem treysta ekki vinum sínum en greinilega hlustendum rokk.is til að vera nógu hardcore til að verðskulda hlustun.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:17 4.1.05 ::

Hey Retron eru með tvö lög á rokk.is
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:10 ::

Ekki er ein bilunin stök
Um daginn steikti ég MD spilarann í labbiferð. Þá hafði sjónvarpið hegðað sér einkennilega í talsverðan tíma, var alltaf að slökkva á sér. MD-leysið átti ekki að koma að sök því að nýr iPod lenti í húsinu fljótlega eftir. En þegar ég ætlaði að fara að setja upp krassaði tölvan og þurfti að strauja. Síðan steiktist síminn minn eitthvað.

Fór með sjónvarp í viðgerð og tölvuna líka. Fékk sjónvarp og tölvu til baka. Sjónvarpið entist í 2 daga áður en það bilaði aftur og tölvan krassaði aftur. Það þarf líklega að strauja hana aftur og ég náði ekki einu sinni að backup-a dótið sem náði að bjarga síðast. Svo fór eitthvað í vélinni á bílnum núna milli jóla og nýárs sem gæti orðið úberdýrt.

Mórall sögunnar: Ef maður fer með eitthvað í viðgerð bilar bara meira dót!
::Hívatha litli skeit klukkan 08:14 ::

3.1.05

Ó Dabbi
-Palau
-Costa Rica
-Iceland
-Romania
-Morocco

Þessi lönd eru talin upp sem "Hinar staðföstu þjóðir" í Fahrenheit 9/11. "ICELAND" birtist með risastöfum yfir svarthvíta mynd af víkingum meðan MM talar um hvað við erum miklir mongar. Ég hef alltaf verið stoltur af því að við erum herlaus þjóð og höfum ekki farið í stríð við einn eða neinn. Núna erum við talin upp sem ein af vanþróuðum og illa upplýstum smáþjóðum sem Goggi Bush þvingaði til að skrifa undir stríðið við Írak. Sem er ansi nálægt sannleikanum. Gegn vilja þjóðarinnar.

Dabbi - hvað varstu að pæla?

Áramót, helgin, rennsli
Mig langar að skrifa um síðasta ár, gera árið upp ef svo má segja. Mest sem mér dettur í hug er tengt útivist. Spurning hvort maður nennir að kíkja í excel skjalið góða og henda einhverju upp. Væri kúl að koma því upp í vana - að menn gerðu upp árið. Yrði eflaust gaman að skoða það síðar meir. En miðað við undirtektirnar með topp 10 listann er ég ekki viss um að menn séu til í slíkt. Sírnir var eini sem tók áskoruninni.

Nema hvað - klassa prattí á gamlárs, héldum flugeldasýningu kl. 3 um nótt hjá Retro sem verður eflaust lengi í minnum höfð. Síðan var ammæli og innflutningsprattí hjá Heiðu og Rúnari í gær, algjör klassi. Og í dag var opið í fjallinu, þó það væri skítkalt, bara opið í Suðurgili, 1200 kall, frekar blint framanaf og færið bara í lagi í pistinni var helvíti gaman að komast aftur í gang. Með góðum félögum og Ásunni. Gaman að fá Þrándinn og þann hvíta hrafn Gautann í hliðarrennsli.

Svo er verið að tala um að flýta árshátíðinni fram á föstudag. Við þurfum eiginlega að fara að halda undirbúningsfund. Og hringja í alla. Ætli Sibbi komist jafnvel bara ef þetta verður föstudagur? Hmm - margt að skoða...
::Hívatha litli skeit klukkan 01:15 3.1.05 ::

2.1.05

Vögguvísa
Sofðu nú svínið þitt,
svartur í augum.
Farðu í fúlan pytt,
fullan af draugum.
-HK Laxnes
::The Satan of Death skeit klukkan 19:56 2.1.05 ::

Skoða eldri færslur >>