28.2.05
Mbl.is var að missa efsta sætið í vefmælingunni í fyrsta skipti frá upphafi. En þeir taka því að minnsta kosti eins og menn. Eða ekki - hehehe...
27.2.05
KíB, Pési og Giggús komu í heimsókn í gær og drukku smá toll. Það var gaman. Kolli mátti ekki fara út. Pésa fannst það fyndið.
26.2.05
Mér leiðist svo mikið að hanga heima veikur að ég horfði meira að segja á allt aukaefnið, leikstjórinn varð svo reiður af því að endirinn hans var settur út í kuldann að hann hætti í viku að vinna við myndina. Skreið svo til baka og gerði "endann sem allir fíla" fyrir stúdíóið. Myndin hefði verið mun skemmtilegri með hinum endanum. Þá tapaði góða liðið, vonda liðið fagnaði í sló-mó og síðan komu bara credits. Hahaha - þvílík snilld.
En til að leyfa myndinni að njóta réttlætis þá er soldið fyndið að sjá einhvern fá fastan lykil #30 í hausinn.
Sírnir er mamma sín.
24.2.05
Jess - sýklalyf á leið í hús. Þá verður maður kominn á lappir um helgina. Sem er gott.Mikið er gaman hvað menn eru duglegir að skrifa hérna. Ég var einmitt að segja honum Skarphéðni vini mínum í Noregi frá því hvað meðlimir Vonlausa væru ótrúlega hressir og duglegir að gera eitthvað skemmtilegt. Sem dæmi má nefna að hér áður fyrr hefði bjórkassi ekki legið ósnertur svo dögum og vikum skiptir í eldhúsinu mínu, án þess að nokkur kæmi og krefðist tolls síns. Hann tók undir það að það væri eins og allir hefðu sest ofan á tonnatakstúpu í sófanum sínum í einu.
Þið eruð ógeðslega miklir sekkir.
23.2.05
af hverju er sama orðið yfir saur og baklaust sæti; (koll) á ensku? sitja þeir oft í eigin eða annarra saur?
Og af hverju rímar truth og tooth, sönn og tönn. Kabala við bla bla bla og fingur við hringur... þetta eru frímúrarnir, þeir standa fyrir þessu, passið ykkur á gaurum sem bjóðast, í óspurðum fréttum, til að múra fyrir ykkur ókeypis.
22.2.05
OK - hvað gerðuð þið við snjóinn? Maður rétt skreppur og kemur heim í einhvern óbjóð. Og ég sem þarf að komast 8 sinnum upp í fjall í viðbót til að vera á sléttu með árskortið.
Ljóta skítatíðin, lok febrúar og snjórinn og klakinn farinn.
Fríið mitt var sæmilegt, náði að vera í 5 daga í útlöndum áður en ég varð veikur. Þetta er þriðja skiptið í röð sem ég fer með Ásu í frí til útlanda og er meira eða minna veikur.
Því voru lesin ósköpin öll, las A Wild Sheep Chase, sem er algjör snilld, eftir hinn japanska Haruki Murakami. Smá Vonnegut fílingur í henni, stórskemmtileg bók. Síðan tók ég smá Hairy Pothead maraþon, las Prisoner of Azkaban, Goblet of Fire og Order of the Phoenix, rúmar 2000 síður af hinum unga töframanni. Fínar bækur. Horfði svo á Fangann frá Azkaban í gærkveldi og verð að segja að hún virkaði afar samhengislaus og skrýtin þegar maður var búinn að lesa bókina.
Svæðin
Annars er Val d'Isere mjög fínt skíðasvæði, tengist Tignes, risastórt, góðar pistar, sæmilegt park með pipe og super-pipe og fullt af offpiste sem er gott að komast í.
Cham er náttúrulega alltaf toppurinn í backcountry, bilaðar brekkur og geggjaðir couloir-ar, fyrir stóra stráka. En manni léttir líka alltaf aðeins að fara heim í heilu lagi þaðan. En ef maður er að ræda 5 km vertical af ótrökkuðu púðri á einum degi er Cham náttúrulega staðurinn. Líka skemmtilegur bær og við fengum höfðinglegar móttökur í Íslendinganýlendunni.
Dótakaup
Dótakaupum var haldið í lágmarki. Splæsti í Burton P1 HD (Carbon bak) síðan í fyrra. Nokkuð svipað nýju bindingunun hans Skabba, man ekki hvort hann tók plast eða carbon reyndar.
Tollur var að sjálfsögðu keyptur og verður veittur vilji menn hætta sér í pestarbælið á K12.
19.2.05
Nadi 4800 haedarmetrum af pudri i fyrradag. Thad var gaman. Leidinlegt ad Kolla gekk svona illa med trakkada pisst gaurinn. Gengur betur naest.
Hilsen...
15.2.05
Aflaklóin var gerð burtræk frá fyrirheitna landinu í Ölpunum. Í kjölfarið leystist Föruneyti Galtarins upp, Sveinn og Ásan dvelja í góðu yfilæti á Sjammpóní á með BH og hans heittelskaða dvelja í brúðarsvítu í Valdísiri viku í viðbót.
Off-pisstirnir urðu pissed og síðan pissed-off þangað til þeir gengu af trökkunum og trökkuðu hvern þann sem í trakki þeirra varð. Það má því segja að óspjallaða mjöllin hafi á endanum orðið algert rusl. Hvítt rusl.
Aflaklóin náði þrátt fyrir allt að smella af nokkrum myndum, hverjar finna má á hinu geysihaglega Grallaríi
Hvernig gengur að bóka veiði?
el Dudereeno
14.2.05
Allir gladir á http://nemendur.ru.is/kaha/gringos
SD
11.2.05
hverslags constant attention server er þetta sem fonlausi er á? er þetta tölvan í Electric Dreams? hellti Svenni óvart kampavíni yfir hana svo að hún varð ástfangin af sellóstelpunni á efrihæðinni? Og býr sig nú undir að sprengja örbylgjuofninn. Djöfulli er Electric Dreams góð mynd.
10.2.05
9.2.05
Þvílík hneisa, ég get ekki séð annað en að ferðin sé ónýt þegar offpistirnir eru trakkaðir, ég meina hver trakkaði alla offpistina, hver ber ábyrgðina á öllu þessu offpistatrakki? Eru þetta ekki vörusvik eða voruði kanski ekki með trakkaða offpistatryggingu. Jæja þið verðið þá bara pista niður þessa pisttrökkuðu offa og trakkast á offpistum einhverntímann seinna.
8.2.05
Helviti eru menn slakir i bloggun. Madur skreppur fra og ekkert gerist nema Sirnir skrifar eitthvad fylleriisraus.
Vid Asa, Skabbi, Retro og Eva erum i godu chilli herna i Val d'Isere, fint faeri, og mogulegt ad thefa upp nokkrar pudurbeygjur herna i ca vikugomlum snjo, thratt fyrir ad buid se ad trakka offpistina til helvitis, tokum tvo sma haeka i dag og nadum i fint stoff.
Siggi Skarp, Steppo og fleiri godir menn eru einnig a svaedinu og vid drekkum gjarnar bjor med theim felogum herna a kveldin. Mjog gott bara.
Framhaldid raedst svo bara, gamall snjor i Cham en hellingur i Austurriki, spenno.
Seinna faggar...
7.2.05
Þið eruð allir faggar og hommar
En ég er bestastur í öllum víðum alheimi.
Mömmur ykkar skammast sín fyrir ykkur.
Étið skíthórurnar ykkar og ég vona að þær standi í ykkur.
4.2.05
Graðni, ertu til í tékka hvað er laust í hinni Þveránni eða Skógá, just inn case að það sé bannað að veiða á nóttunni í Þverá í Borgarfirði?
3 stangir væri langbest fyrir okkur en 2 sleppa alveg, þá þarf tóti ekkert að stressa sig á að veiða, getur bara þvælst blindfullur í mittisvöðlunum með okkur, skilið stöngina eftir heima.
Ég sá á e-m þræði að í byrjun sept í fyrra hefðu ca. 50 laxar verið komnir á land í Reykjadalsá sem endaði svo í 150. Það segir svosem ekki alla söguna því ef það kemur eitt holl með þvílíkum reynsluboltum geta þeir rótfiskað þó að fluffarnir á undan hafi ekki fengið neitt.
Hvað sem því líður er ég til hvenær sem er, frá byrjun ágúst og út september.
Komasvo!
Svo skiptir ekki máli hve margar stangir eru við kaupum þær bara allar og brjótum þær svo.
3.2.05
Reykjadalsá: veiðin '03: 156 laxar/ 47 sillar. Hús með potti, 2 stangir.
Andakílsá: veiðin '03: 245 laxar/ 210 sillar. '04: 129 laxar/ 200 sillar. Hús með potti, 2stangir í lax, 3 í silla.
Skógá: veiðin '03: 64 lax/ 1440 sillar '04: 281 lax/ 1750 sillar. 4 stangir, Pottlaust hús en hótel við hliðana með sundlaug og potti.
Þverá í Fljótshlíð veiðin '03: 133 laxar/ 129 sillar '04: 174 lax/ 150 sillar. 2 stangir, hús en ekki pottur
Sá ótrúlegan þátt um börn í Palestínu í sjónvarpinu í gærkveldi. Sem endaði með því að leikstjórinn var skotinn í hálsinn meðan þau veifuðu hvítum fána og löbbuðu í áttina að skriðdreka/brynvörðu tæki Ísraela. Þetta er nú meiri vítahringurinn sem fólkið er komið í og eina leiðin sem Palestínsku krakkarnir sjá út er að verða píslarvottur.
Varð hugsað til Adda Pu í Palesínu.
Svo var færsla hérna um enska konu sem þeir keyrðu yfir á beltatæki og einhver færsla frá stráknum þegar hann var úti.
Graðni er limur í SVFR. Ég legg því til að hann kanni möguleika á eftirfarandi ám:
Þverá í Fljótshlíð
Skógá
Andakílsá
Lax-Á og SVFK eru með
Reykjadalsá
og það er talsvert laust í hana.
Þegar við vitum hvað er laust og hvað við verðum mörg/margir ættum við að drífa í að panta. Ég legg til að við miðum á ágústmánuð.
Af undirtektum að dæma eru það ég, kolli, svenni og guðni sem erum heitir. KÍB og TaHaut þegja þunnu hljóði.
KOma svo með smá fídbakk hérna, annað en ; "ok, sjáðu bara umedda, ég mæti, kannski..."
El Dudereeno
Ég skal sjá til hvort það sé ekki hægt að redda einhverju þessara laga í föstudagslagið.
þetta sannar bara að líkur sækir líkan heim, ég lét reyndar alveg vera að tala um Obi-Wan & the Kenobies og okkar eigin hnyttnu lög.
2.2.05
Annars er hér biti úr MSN samtali:
DR. Jóli says:
hey takk fyrir að láta skattana þína fara í bætur handa mér fyrir að eiga barn
[Úr sænum rís - borgin óspjallaða] says:
DEYÐU
hey takk fyrir að láta skattana þína fara í bætur handa mér fyrir að eiga barn
[Úr sænum rís - borgin óspjallaða] says:
DEYÐU
Verðið er reyndar svo lágt að það hlýtur að vera e-ð catch...
Ef ekki þá sting á upp á Vola, hef heyrt að veiðin þar sé mögnuð.
Að Sveinn sé farinn að brýna menn til stangveiða þykir mér sæta tíðindum en er að sjálfsögðu hið besta mál. Við sem köllum okkur hörðustu veiðifastistana höfum algerlega sofnað á verðinum og er ekki seinna að vænna að fara að velta þessum mikilvæga málaflokki fyrir okkur.
Mér líst alls ekki illa á árnar sem kolbeinn stingur upp á. Eru báðar nokkuð stöðugar þannig að það eru ekki líkur á að þær þorni upp eins og Tunguáin í sumar. Og ég held að við séum að verða menn til að blæða 2K á stöngina, er það ekki annars?
Ég var búinn að hamast eins og naut í flagi í fyrra við að finna ár, það má kíkja yfir það í gömlu bloggunum.
Svo þyrftum við helst að komast að niðurstöðu um hversu margir við komum til með að vera. Nú fluguveiðideildin að verða allsráðandi í Vonlausa og ef menn eru flestir spenntir fyrir að mæta þá er tveggja stanga á eiginlega of lítil fyrir okkur.
Ég geri ráð fyrir því að koma til landsins í júní þannig að ég bóka mig hér með í veiði hvenær sem færi gefst í júlí, ágúst og september.
Ég leggst í grúsk við tækifæri og kem með fleiri uppástungur.
Áfram Vonlausa Veiðifjelagið, vonlausasta fjelag í heimi!
Er ekki málið að skella sér bara á eitthvað ASAP?
Skoða eldri færslur >>

