31.3.05

Hvar er homaerotic frásögn helgarinnar um ferðir Gölla, Tom of Finland og hinna fjallahommana?

Kolli spyrð þú þig spurningarinnar: Afhverju gera allir grín að mér fyrir að kúka bara heima hjá mér en þegar þú reynir að kúka í vinnunni þá æpa allir á þig: "Skíta heima hjá sér"? Er þetta óréttlæti heimsins eða er fólki bara illa við þig?
::H.H. skeit klukkan 12:09 31.3.05 ::

Skatturinn.

Allir borga skattinn nema mjög margir sem gera það ekki. Fólk sem svíkur undan skatti ætti að stinga, skjóta, hengja og flá lifandi fyrir allra augum. Svo eru margir sem telja skattinn ekki ósvipaða meðferð þegar þeir greiða hann þegjandi og hljóðalaust. Til að greiða skattinn með bros á vör þarf ég að búa mér til lífslygi. Ég hef ákveðið eftir að hafa séð tvo róna drekka sitt brennivín á bekk við Austurvöll, syngjandi glaðir og angandi af hlandlykt að skattarnir mínir fari í það að halda þessum tveimur rónum sífullum með bótum og læknishjálp til að halda í þeim lífinu. Nú veit ég nákvæmlega í hvað skattarnir mínir fara og er hæstánægður með það enda þykir mér brennivín gott.
::H.H. skeit klukkan 10:41 ::

30.3.05

Bat-Man er í sjónvarpinu núna. Maður getur hreinlega ekki gert upp við sig hvort þetta sé svo vont að það sé gott eða hvor þetta sé bara vont eða, eða , eða nei þetta er bara Bat-Man teik it or lívit. OOOOHHH nú er það búið og Cagney & Laceyþær örmu lesbíur tóku við.
::The Satan of Death skeit klukkan 22:59 30.3.05 ::

29.3.05

Til hamingju með að vera sniðugasti maður Garðaríkis en aftur og líka með tónleikana. Af mér er náttúrulega ekkert að frétta, gerði ekkert, fór ekkert, sagði ekkert alla páskana. Ekki ein skitin fermingarveisla hjá mér.

Eflaust hafa margir af þessum vef fattað að við eigum 10 ára stúdentsafmæli í ár. Það er verið að skipuleggja gilligogg þann 28. maí í Viðey. Nú er Gölli miklu meira MRingur en Veslingur en honum verður ekki boðið þrátt fyrir það. Eigum við að skilja hann út undan eða smygla honum inn?

Svo vantar mig netfang hjá Gírni Gaulverja, þarf að senda honum drasl.
::H.H. skeit klukkan 13:53 29.3.05 ::


nokkrar sætar myndir af virginstónleikunum
Það má líka finna smá vídjó hér( 12,7MB )
::The Satan of Death skeit klukkan 08:31 ::

27.3.05

Gledilegan Páska faggar!
Ég vona ad allir hafi verid í páskaferdum fjarri interneti thví annars tharf verulega ad fara ad blása lífi í VV. Eda gera svona "who killed VV" thátt thar sem kemur í ljós ad hann drap sig í rauninni sjálfur thví hann var ordinn svo leidur á leidinlegu hversdagslegu bloggfaerslunum um tölvukaup og helgarferdir. Upp med dissid!

Tharf ad redda Páskaeggi núna ... nema ad hér séu bara páskaperur.

Saelir sekkir,
Kári!
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 20:28 27.3.05 ::

24.3.05

Til hamingju Gírnir!

Sindri er örugglega best til þess fallinn að svara spurningum um tölvukaup. Held að flest rafmagnstæki núorðið taki 110/220 jöfnum höndum, þannig er allavega ípoddinn minn. 90 þús væri fínt verð fyrir svona græju hérna heima, ef hún er uppsett (XP, Office og þannig), DVD drif og þessi staðalbúnaður. Líka ansi góður örgjörvi, vinnsluminni og diskurinn er talsvert stærri en það sem er algengast í tilboðum hérna heima, sem er oftast 40-60 GB. Hvernig er tollamálum háttað KíB?

Ef þetta kæmi inn á skikkanlegu verði væri ég alveg til í eina líka ;) Annars býst ég við að þú ætlir að leyfa henni að fljóta memm heim. Þá ertu líklega að fá þetta á innan við 50% af því sem svona græja kostar hér. Sem er gott.
::Hívatha litli skeit klukkan 18:41 24.3.05 ::

gáðu fyrst hvort tölvan (straumbreytirinn) geti tekið 220v.

THE CURSE!!!!

LOXFOKKALOKKALOXINS héldum við The Virgins tónleika í gær. Við storkuðum bölfuninni. Djöfull var það gott, 3af5 gjörsamlega að drepast úr kvefi, þar á meðal söngvarinn og gítarleikarinn var flottur með glansandi grænt lekandi hitlerskegg. En áhorfendur voru ekki sviknir og sögðu "Ýkt" og "Grimmt" og "djöfull eruð þið þéttir" og "þetta swingaði eins og satan". Svo áttum við allir skemmtileg samtöl við fólk sem var að reyna að staðsetja tónlistina í tónlistargeirahólf. Og við seldum 2 af 2 The Virgins hettupeysum sem við bjuggum til og reyndar voru 2 pantaðar, það var reyndar eiginlega slegist um þær þegar fólk komst að því að það voru bara til 2. En það keypti enginn The Virgins bol eða The Virgins G-string nærbuxur.
Næst spilum við á Truckstop Alaska (dagsetning ekki komin) En þið eruð öll velkomin.

Labels:

::The Satan of Death skeit klukkan 08:36 ::

Þið tölvunördar í VV eruð alltaf eitthvað að besservissera. Getið þið hjálpað mér með tölvukaup.
Ég sá HP lappa með pentium 3 gHz, 15" skjá 512 Mb vinslumynni, 100 GB hörðum, DVD skrifara og innbyggðu þráðlausu netkorti á 1500 USD. Getið þið kommentað?

Í staðinn skal ég kenna ykkur að veða lax.
Ef það bítur á þá egið þið að kippa fisknum uppúr ánni þannig að hann kastist í klettana fyrir aftan ykkur og rotist. Þannig missið þið aldrei fisk:)
::Grathni skeit klukkan 01:00 ::

23.3.05

Heheh - flottur! Annars langar mig í vinnu með góðu kaffi, milljón á mánuði og 3 mánaða sumarfrí. Vitið þið um þannig?

Svo finnst mér glatað að Kolligölli þurfi að halda eina matarboð aldarinnar þegar ég kemst ekki, ég er aðalmaðurinn. Þetta verður hjóm eitt aðalmannsins.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:50 23.3.05 ::

Heheh - flottur! Annars langar mig í vinnu með góðu kaffi, milljón á mánuði og 3 mánaða sumarfrí. Vitið þið um þannig?

Svo finnst mér glatað að Kolligölli þurfi að halda eina matarboð aldarinnar þegar ég kemst ekki, ég er aðalmaðurinn. Þetta verður hjóm eitt aðalmannsins.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:37 ::

Snillingur
::KÍB skeit klukkan 09:42 ::

21.3.05

Glatadur göltur
Mér lídur eins og VV sé búid ad gleyma mér buhu ... enginn skrifar í gestabókina á heimasídunni okkar. Enginn ad skoda allar fínu myndirnar? Eda lesa alla alltof löngu pistlana sem ég svitna yfir thví ad skrifa? vorkennid mér!
Annars bard ég grilladan villigölt um daginn. Hann var frekar glatadur og med dósasveppum. Voru samt fínar pínulitlar djúpsteiktar kartoflur med. Eins og kúlufröllur.
Annars er slódin http://nemendur.ru.is/kaha/gringos ef allir eru búnir ad gleyma thví ... og Inga átti ammaeli á fostudaginn.
Og tribute plötur eru alveg fínar ... eins og Black metal Iron Maiden platan ... og Duran Duran tribute platan.
Ég kenndi úllíngi ad margfalda saman fylki í gaer. Any comments?
Keypti páskaegg í dag og aetla ad borda thad í kvold ... hahaha ... engar reglur thegar mamma og pabbi geta ekki nád í mann til ad skamma mann. Their selja páskaegg sem eru staerri en mannshöfud hérna. Og thad eru ekki ýkjur og ekki barnshöfud eda pulsuhaus. Bara fullsize hofud af fullvoxnum manni myndi passa inn í svona páskaegg ... their fíla nammi hérna í Argentínu madur.
Megamassa Southern Season Púdurferd til Bariloche ... og vonlaus veidiferd í votnin. Ég gat tekid myndir af fiskum ofan í á. Hér er af nógu ad taka.
till later,
Kári.
::Skeitari Dauðans skeit klukkan 22:24 21.3.05 ::

Tribute plötur sökka
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:55 ::

Grænn hlunkur
...er það ekki HULK? Annars kíkti ég á Sólheimajökul um helgina með nýliða úr Björgunarsveitinni, markmiðið að kenna þeim fjallamennsku. Ferðasaga (21.03.05) / myndir.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:30 ::

18.3.05

OK, ég náði 27 áður en ég gafst upp. Þegar ég kíkti á svörun kom í ljós að ég hafði 2 rétta þar að auki sem ekki fengust viðurkenndir vegna ágreinings um stafssetningu. Tollur á morgun?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:11 18.3.05 ::

OK, ég náði 27 áður en ég gafst upp. Þegar ég kíkti á svörun kom í ljós að ég hafði 2 rétta þar að auki sem ekki fengust viðurkenndir vegna ágreinings um stafssetningu. Tollur á morgun?
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:11 ::

17.3.05

Þetta er allt úr Adventures of the Invisible Man!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:43 17.3.05 ::

Kvikmyndagetraunin
Sorrí en ég verð bara að eyðlileggja vinnuframlag ykkar í dag. Ef vel heppnast til næ ég vonandi að eyðileggja vinnu sem væri útseld upp á ca. 4 tíma * 10 þúsund * 10 manns = 4.000.000 kr. af vinnu með einu bloggi það er helvíti gott.

En ég kynni: KVIKMYNDAGETRAUNIN (xls 0,7 MB)

Vegleg verðlaun í boði fyrir þann fyrsta sem klárar. Og reynið nú að klára amk. svona 10-20 án þess að gúggla.

Hver skyldi vinna? Krummi? Kolli? Einhver annar? Spennó...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:22 ::

16.3.05

Ég reið þér þrisvar á dag

Ég hélt ég væri ástfanginn af þér

En ég var bar ástfanginn af því að ríða


En það skiptir ekki máli

Því að þú varst bara pönkarahóra


- Pétur Ari Markússon, 1991

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 15:44 16.3.05 ::

15.3.05

Hmm þetta átti að vera 71/29 - en innsláttarvillur breyta því ekki að þú ert heimskur verkfræðingur litli.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:59 15.3.05 ::

Þrátt fyrir að bankastarfsmenn virðast almennt vera vel að sér í málefnum USA þá hef ég meiri áhyggjur af því að þau eigi í erfiðleikum með prósentureikning.

...hér svöruðu 79% með 50 ríkjum en 21% með 52. Úrtakið var 7 manns.

Var sem sagt einn og hálfur aðili sem svaraði vitlaust? Eitt vitlaust svar af sjö jafngildir rúmum 14% og því vandséð hvernig 21% af sjö manns svöruðu vitlaust.
::KÍB skeit klukkan 14:55 ::

Þrátt fyrir að bankastarfsmenn virðast almennt vera vel að sér í málefnum USA þá hef ég meiri áhyggjur af því að þau eigi í erfiðleikum með prósentureikning.

...hér svöruðu 79% með 50 ríkjum en 21% með 52. Úrtakið var 7 manns.


Var sem sagt einn og hálfur aðili sem svaraði vitlaust? Eitt vitlaust svar af sjö jafngildir rúmum 14% og því vandséð hvernig 21% af sjö manns svöruðu vitlaust.
::KÍB skeit klukkan 14:38 ::

Bankabrillíance
Starfsfólk ákveðins banka virðist vera snjallara en starfsfólk ákveðins hugbúnaðarhúss, því að hér svöruðu 79% með 50 ríkjum en 21% með 52. Úrtakið var 7 manns.

Annars virðast fleiri vera villutrúar...
::Hívatha litli skeit klukkan 13:41 ::

Heh - Tóti er bara pissed af því að hann hann sá eftirfarandi kóða;

if (notandi = 'tóti') then
display engaVinningaFyrirDurga.asp;
exit;
end if;
::Hívatha litli skeit klukkan 13:16 ::

Hvað eru mörg ríki í USA?
Afhverju segja margir 52, eins og nánast allir í vinnunni minni, en ekki 50? Var villa í einhverri kennslubók, er fólk að rugla við fjölda vikna í ári eða fjölda spila í spilastokkum. Kannski er nærtækari skýring á þessu.
::KÍB skeit klukkan 12:13 ::

Vá Sveinn hvað þú ert örlátur - 8 risapáskaegg og notendur síðunnar eflaust nokkrir tugir þúsunda. Hvað gerir það vinningslíkurnar mörg prómill eiginlega ? :0) Og jájá það eru líka venjuleg egg í vinning en þó þú deilir með þessum 100 eggjum númer 4 þá eru meiri líkur á að Kolli skíti í vinnunni en að fá vinnig hjá þér.
::Karius skeit klukkan 12:04 ::

14.3.05

Taktu þátt í páskasleik isb.is
::Hívatha litli skeit klukkan 14:48 14.3.05 ::

Ævintýri helgarinnar
Patrol getur flogiðFöstudagskveldið fór í pappírsvinnu dauðans fyrir björgunarsveitina og tékkaði svo á hinni mögnuðu mynd Casshern, sem Kolli lánaði mér. Svona japönsk leikin Manga geðveiki.

Snjóflóðaæfing var þema laugardagsins. Setti gallerý inn fyrir það - ferillinn rakinn ansi vel fyrir þá sem hafa áhuga. Tókum vel á því á laugardagskveldið og ákváðum, sem við vorum á fyllerí, að fara í jeppaferð á sunnudaginn.

Sumir vöknuðu ekki (hóst, hóst, Stæner) en flestir skiluðu sér á Select. Fórum brilliant hring upp á Lyngdalsheiði, inn á Skjaldbreið, niður á línuveg og yfir á Kaldadal. Þaðan aftur niður á Þingvelli. Snilldar dagur. Tóti var víst líka á eðalvagninum sínum á Skjaldbreið. Það er hægt að keyra út um allt hálendi á hvaða slyddujeppa sem er þessa dagana. Því til sönnunar hittum við Porche Cayanne þarna uppi, snobb-tittinn þarna.

Gallerý með þessu á askinum
::Hívatha litli skeit klukkan 09:59 ::

Þú misskilur sírnir, Heimurinn hatar síður en svo framtakssemi. Hinsvegar stendur enn yfir Alheimssamsæri gegn þér. Í því skyni var Kami fenginn til að koma fyrir hrísgrjóni í þvagrás þinni, gagngert með það í huga að fá þig til að sóða út eigið salerni og brjóta þannig enn frekar niður baráttuþrek þitt.

P.S.

Ekki segja Kolla af hverju hann er Kolli Laukur
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:06 ::

13.3.05

Heimurinn hatar framtakssemi

Nú var mér nóg boðið, salernið heima hjá mér var ekki mönnum bjóðandi, tannburstunarslettur á speglinum, skeggbroddar í vaskinum og punghár og gular ýringar í kringum klósettið. Ég bretti því upp ermarnar og skrúbba og skúra þetta allt svo að það verður skínandi eins og í fínustu Ajax auglýsingu. Enda er ég atvinnumaður. Rígmonntinn og stoltur ákveð ég að það sé nú við hæfi að vígja kamarinn eftir endurreisnina. Fullkomlega 90°, bunan klofnaði í nákvæmlega 90°, einn geilsinn beint í frusslausastaðinn í klósettskálinni en hinn beint á stórutánna á mér og þaðan um allt gólf. Ég ætla aldrei aftur að gera neitt.
::The Satan of Death skeit klukkan 20:44 13.3.05 ::

12.3.05

"Democracy means simply the bludgeoning of the people by the people for the people" -Oscar Wilde
::The Satan of Death skeit klukkan 12:02 12.3.05 ::

11.3.05

Þjóðin á Ríkisútvarpið. Þjóðin kýs þing og þingið kýs útvarpsráð. Niðurstöður þess eru lýðræðislegar ákvarðanir þjóðarinnar. Þannig virkar fulltrúalýðræðið okkar - og þykir til fyrirmyndar á heimsvísu.

ps. það er algjörlega siðlaust að láta ræningjan fara á stjá tvisvar í sama turni
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:09 11.3.05 ::

Mér finnst ótrúlegt hvað bruðlið innan Spiladeildar Vonlausa smsf. er orðið víðtækt. Helsta mjólkurkú fyrirtækisins ekki einu sinni dregin fram þegar viðskiptavinir koma saman. Hvernig á þetta að skila hagnaði þegar peningum er hreinlega kastað á glæ?!

Henti inn nokkrum myndum af fylleríisferðinni til Glaskó um síðustu helgi. Tók líka eftir því að sírnir er farinn að troða e-u hommaklámi inn á myndasíðuna.

Svo minni ég menn á ferðasögu Kára og Ingu Hrundar, hvar hlutirnir gerast.

pís

Aflaklóin
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:06 ::

Snilldin ein
Hurra Torpedo er ein magnaðasta hljónst sem ég hef séð. Snilldarvídeó (erlent).

Annars rústaði Krummi Catan í gær með lygum, undirferli og síðast en ekki síst viðbjóðslegu siðleysi og lagaklækjum. Spilið teygðist fram á nótt þar sem Kolli var svo ógeðslega lengi að gera.

Voða gaman...
::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

Ég lýsi hérmeð sjálfan mig Catan-master.
Yfirburðir mínir eru slíkir að Kolli var orðinn tapsár áður en spilið byrjaði því hann vissi að ég myndi vinna.
::Mósagrís skeit klukkan 09:04 ::

10.3.05

Svart apaspil hjá McRenis í kveld.

Nefndin
::Hívatha litli skeit klukkan 17:11 10.3.05 ::

8.3.05

Næsta idol?

Í boði BÍÓ
::KÍB skeit klukkan 16:31 8.3.05 ::

Fleiri myndir af mér að vera svalur bassasteikjari í skautaborg
::The Satan of Death skeit klukkan 15:46 ::

Man hvað ég skoðaði eyrun á þessum gaur ;)
::Hívatha litli skeit klukkan 13:52 ::

O, þeir tóku fyndnu myndina út, nú er ég ekkert fyndinn, bara glataður
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:39 ::

gamli grallari

OK, þetta er alltof fyndið, takið eftir kanínueyrunum á myndinni....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:21 ::

7.3.05

kúúúúúúl! kíkið á galleríið það eru 1111 myndir í því núna, það verður að halda upp á þetta með bjór... ok hei ég á bjór í ískápnum, skál fyrir mér.. já þakka þér, skál fyrir þér líka. Svona nú hættu þessu rausi og skálaðu við mig. Jah! ekki nema að þú skálir við mig líka. Skál, Skál!
::The Satan of Death skeit klukkan 19:30 7.3.05 ::

Jæja strákar - þá er um að gera að fara og æfa sig. En munið - alveg bannað að nota þetta til að veiða !!! Enda myndi enginn láta sér detta það í hug...
::Karius skeit klukkan 16:52 ::

Neonljósin komin á kaggan mar...
Einmitt!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:48 ::

Nýtt nafn
Ég er hættur að sniðugur gaur og orðinn regnhlífarfyrirtæki fyrir almenn sniðugheit og heildarlausnir á skemmtilegheitum.

Því hef ég ákveðið að breyta nafninu mínu í Göltur Group.

Góðar stundir
::Hívatha litli skeit klukkan 10:11 ::

6.3.05

yoyo
Girri Göltur að spila
Ég spilaði í gær á Drum&Bass kvöldi í borg Gautans. Með mér á myndinni er DJ Leaf sem spilaði á Airwaves núna síðast. Það gekk ágætlega, nema ég heyrði ekki nógu vel í sjálfum mér til þess að verða Sírnir súpersjálsftraust og hoppa og fíflast með bassann eins og ég hef stundum gert.

Og viti menn að eftir að ég spilaði þá talaði stelpa, nánast að fyrra bragði, við mig en ég panikkaði bara og hljóp í burtu og faldi mig. þannig að nú má ég ekki tussast yfir kvennmannsleysi í 2 vikur. En undirtektir voru góðar og allir ánægðir með framlag mitt, nema Kami sem sagðist ekki hafa heyrt það sem ég var að spila. Sem þýðir þá að annaðhvort heyrðist ekkert í mér og ég stóð bara á sviðinu og pósaði, eða að ég spilaði svo vel að það féll fullkomlega að tónlistinni, því Kami hafði aldrei heyrt þetta áður. Ekki ég heldur reyndar. Þá er bara að æfa stíft fyrir The Virgins tónleikana 23 mars, ég fer næstumþví að þora að hlakka til.
::The Satan of Death skeit klukkan 22:40 6.3.05 ::

5.3.05

Þetta skíðatréstökk er svo mikil snilld. Þeir eru með heimasíðu og þar er meðal annars að finna snilldar vídeó (2MB útlönd)af þessu...
::Hívatha litli skeit klukkan 11:35 5.3.05 ::

4.3.05

Nýtt áhættusport
Skíðatréstökk
::Hívatha litli skeit klukkan 16:32 4.3.05 ::

Framsókn rúlar!
Góðar svalir
::Hívatha litli skeit klukkan 15:04 ::

Page Rank Google
Var að skoða nokkra síður. Landsbankinn er með 3/10, mbl.is er með 4/10 og snilldarvefurinn Vonlausa.org er að sjálfsögðu með PageRank (...is Google's measure of the importance of this page) upp á 4/10, enda að minnsta kosti jafn mikilvægur, ef ekki mikilvægari, en mbl.is.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:40 ::

Það voru pantaðir 2 dagar í Stóru, svæði 1 & 2. Guðni sagði að hann hefði pantað 2.-4. ágúst þ.e. frá hádegi til hádegis en á vefnum hjá SVFR er þetta merkt eins og veiðin sé frá morgni 2. til kvölds 3.
::KÍB skeit klukkan 10:23 ::

Hmm - nú skilst mér að það sé búið að bóka 2. og 3. ágúst. En hvar? Stóru?

Líklega er hin árlega SBS ferð að enda þarna 1. ágúst þannig að maður gæti baunað beint yfir og síðan beint úr þessu í sumarferðina á Kobbabúðir. Myndum þá mæta þangað á fimmtudegi sem er snilld. Þaggi?

Á ég ekki að reyna að athuga með helgina á eftir veiðinni fyrir wezztan?
::Hívatha litli skeit klukkan 09:34 ::

3.3.05

Var að spá í veiði. Langa ykkur kanski í Þverá eða Sogið?
Ég var að skoða veiðitölur fyrir Stóru- Laxá og þar veiðist frekar illa á þeim tíma sem er laus. Veiðin í Þverá í fyrra var um 170 laxar og 150 urrar sem er töluvert betra en Stóra hefur að bjóða. Húsið er stórt tekur amk. 12 í rúm og verðið er lægra en í Stóru.
Sogið er með betri veiðilíkur en Stóra að mínu mati en þar eru bara þrjár stangir sem dugar víst ekki.
Þið egið svo að ganga í stangó faggarnir ykkar svo við fáum almennileg veiðileyfi en ekki hratið sem hinir vilja ekki.
::Grathni skeit klukkan 15:44 3.3.05 ::

Iron Maiden tækifærið lokast í dag. Djöfull verður gaman.

Tékkað á hvort Fúsa langaði að gerast mega-laxveiðigaur í sumar og kíkja memm í Stóru. Hann var ekki stemmdur en hélt að þetta færi að koma, svona með aldrinum. Eru ekki allir búnir að græja þetta?
::Hívatha litli skeit klukkan 08:36 ::

2.3.05

Bitch I done tole you they ain't no f&%@in' Thelma here!
::Hívatha litli skeit klukkan 10:46 2.3.05 ::

1.3.05

Sko - menning er ágæt en sumt fólkið sem er að fá listamannalaun er fáránlegt. Hef nú á tilfinningunni að sumir þarna séu á fínum launum fyrir að hanga á kaffihúsi. Og aðrir þurfa þetta ekki.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:55 1.3.05 ::

Kolkrabbinn
Sniðugt - en sumt rangt og úrelt. Þetta er líka skemmtilegt.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:14 ::

Iron Maiden
Ef þið viljið gera eitthvað í því máli þurfið þið að tala við mig í dag. Ég, Kolli og Skabbi ætlum að fara. Kostar 7500 kall.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:40 ::

Hvernig væri að KÍB myndi standa upp af sínum lazy butt og bóka Stóru? Hætta þessari leti!
::Hívatha litli skeit klukkan 10:03 ::

Skoða eldri færslur >>