30.6.05

Lemme hear ya say: Party over here - fuck you over there!
Jæja - þá er maður búinn að hanga inni veikur í næstum viku. Alltaf frábært að vera veikur á sumrin. Vika er sá tími sem það tók mig að finna eitthvað gáfulegt að koma í verk á meðan maður hangir hérna og færist nær geðveikinni.

Happy happy joy joy...
[Myndin tengist EKKERT efni greinarinnar]

Atferli katta
Fyrst hóf ég atferlislegar rannsóknir á köttunum í garðinum mínum, en sá frumskógur er greinilega allt of góð veiðilenda fyrir húsketti (l. Felis). Einn gaur sem kemur hérna daglega og fær sér skógarþröst í gogginn. En þar sem það eru einhver aula lög á móti því að maður skjóti svona skaðræðisdýr innan bæjarmarka þurfti ég að finna mér eitthvað annað að gera.

Þetta gerist ekki í garðinum mínum
[Af hverju geta þeir ekki bara verið vinir?]

Æm só ripped
Í morgun fór ég svo að týna til diska sem mig langar að rippa. Eftir að ég fékk mér nýju tölvuna fer nefnilega mest öll tónlistarhlustun fram í gegnum tölvu, iPodinn eða shuffle (Ása er reyndar mest með shuffle - enda frábær græja til að æfa með).

Ætlaði bara að rippa þá allra bestu í þessari umferð en endaði með ca. 80 stk. En djöfull er gaman að henda inn svona drasli sem maður hefur aldrei átt í tölvunni. Núna verður sko gaman að hlusta! Eða eftir mánuð þegar ég verð búinn að þessu. Og þá verða bara nokkur hundruð eftir.

Skál í íste!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:26 30.6.05 ::

29.6.05

Djöfull langar mig í Galsa
::Hívatha litli skeit klukkan 16:41 29.6.05 ::

28.6.05

Foo Fighters #2
Dave Grohl og félagar í Riddurum bjakksins (orðskýring) spiluðu síðast á klakanum 26. ágúst 2003. Við Gírnir skrifuðum báðir lærðar greinar um þá frábæru tónleika. Líka hægt að finna setlista, myndir og fleira á vef foo. Nú fer að styttast í tónleikana í næstu viku og ekki seinna vænna en að fara að undirbúa sig.

Rrrrokk!


Þessar tímasetningar eru að sjálfsögðu settar svona til að marka upphaf og endi dvalar hrokafulla vísundarins í austurvegi.

Fann nýlegan setlista á Blackbox vefnum hjá þeim, hann er ágætur. Reyndar er nýi vefurinn í einhverju óþolandi hægu flash drasli :(

The Metro
Sidney, Ástralía
01. júní 2005

The Last Song
I'll Stick Around
Breakout
Learn To Fly
Free Me
Times Like These
My Hero
Best Of You
Generator
No Way Back
Stacked Actors
This Is A Call
Everlong
Monkey Wrench
End Over End
All My Life


Þannig að núna getur maður farið að undirbúa sig fyrir stórtónleika. Reyndar ógeðslega fúll að hafa verið veikur á Megadeth. En Kolli segir að þeir hafi verið magnaðir og ætlaði jafnvel að stinga inn pistli.

Svo er spurning hvort maður nennir að grafa upp eitthvað um Drottningar steinaldar.

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 21:59 28.6.05 ::

Öndin knáaPavlov lætur ekki að sér hæða
Fékk mér kókópuffs og seríós áðan í tilefni þess að ég er veikur heima, en eins og flestir vita var það helsta uppistaða næringar hjá bræðrunum á K12 back in da days.

Nema hvað, ekki hafði ég fyrr skellt mjólkinni út á morgunkornið bragðgóða en þessi þvílíka löngun blossaði upp í mér að lesa Andrés önd.

Já - svona er nú mannsheilinn magnað fyrirbæri.

[Eftirskrift:Þar sem ég leitaði að hentugri mynd fyrir þessa færslu rakst ég á þetta - hvað var maðurinn að pæla?]
::Hívatha litli skeit klukkan 16:45 ::

Fyrstur með fréttirnar
Mér þykir Kollum ekki vera að standa sig í stykkinu sem æsifréttamaður, enda birtist mynd af Grísni á síðum vefsins strax í janúar á þessu ári.

Eins og sést greinilega á myndinni blandaði Hrokafulli vísundurinn eigin genum í pottinn er hann skapaði þetta ógeðfellda tvíhöfða skrýmsli sem lamar Humardrengina með því að klemma þá milli undirhakna sinna!

Þarna sést í aðra klóna á vesalings humardreng
::Hívatha litli skeit klukkan 14:59 ::

Er Grísnir nýjasta afurð Evil Mutant Genetics inc? Ógeðfelld skeppna samsett úr Gírni Grulslu og Geltinum. Skabbi er í þessum töluðu orðum að framleiða heila herdeild af þessum tvíhöfða skrímslum og ætlar að siga þeim á humardrengina til að yfirtaka tilraunastöðina á Keldum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:43 ::

Þér til handa er nýi Foo Fighters diskurinn, In your Honor, kominn á Gollri. Þar er einnig að finna nýja QOTSA diskinn, í boði Grísnirs.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 11:24 ::


Raccoon attack

...the victim, a thru-hiker, was writing in her journal at the picnic table by the Pine Knob shelter at about 10 o'clock on Saturday night, when she heard a screech and a raccoon leaped up and bit her on the back. In the ensuing struggle, the raccoon then bit the victim twice on the ankle and on the hand. The victim said she was unable to shake the deranged animal loose on her own. Fortunately, other hikers came to her rescue and managed to beat the animal off. A father/son team of hikers used a cell phone to call 911 and administered first aid.


Ok, þá veit maður hvernig best er að bregaðst við árásum villidýra...
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:26 ::

27.6.05

B(a)NA(nalýðveldi)
Myndbrot (linkurinn vísar á html síðu) úr The Daily Show um Guantanamo Bay. Ótrúlega eru menn klikk. Búinn að eiga þetta í nokkra daga en var fyrst að horfa núna.
::Hívatha litli skeit klukkan 01:03 27.6.05 ::

26.6.05

Killahhh!Megadeth á mánudag
Jæja, Kobbi var að henda inn öllum diskunum með Megadeth á Gollum ef einhver hefur áhuga (ísl. Skabbi).

Giggið er búið að færast á Nasa, held að ég sé bara sáttari við það. Magnað að sjá þessa gaura í svona litlum klúbbi, eiginlega bara snilld. Held að staðurinn taki um 400 manns.

Trúi varla að fjárhagshliðin á þessu gangi, hafa sjálfsagt aðeins selt um 10% af miðunum. Ná varla að skrapa í 2 mills hugsa ég, það er rétt svo fyrir flugi, uppihaldi og staðnum. Nema þeir séu að gefa vinnuna.

Fann set-lista síðan í febrúar. Samræmist ágætlega því sem þeir voru að spila á festivali núna í júní, nema sá var mun styttri. Þessi listi er einmitt að rúlla á iTunes hjá mér núna;

Megadeth - Manchester Academy 1
-February 7th 2005

1. Blackmail the Universe
2. Set the World On Fire
3. Skin o? My Teeth
4. The Scorpion
5. Wake Up the Dead
6. In My Darkest Hour
7. Something I?m Not
8. Angry Again
9. A Tout Le Monde
10.Die Dead Enough
11.Trust
12.Tornado of Souls
13.Of Mice and Men
14.Kick the Chair
15.Hangar 18
16.Back in the Day
17.Sweating Bullets
18.Symphony of Destruction
19.Peace Sells
20.Mechanix*
21.Holy Wars
22.Paranoid

*Þetta er einmitt sama lag og Four Horsemen af Kill 'Em All með Metallica, en Dave Mustaine samdi það áður en hann byrjaði í Metallica. Hætti svo, þeir tóku það upp aftur með öðrum texta og Megadeth gaf það líka út. Textinn hjá Dave er nú ekki alveg jafn kúl, einhverjar fantasíur í fyrstu persónu frá því að hann vann á bensínstöð. Eins og nafnið bendir til er Metallicu-textinn um hina fjóra riddara endalokanna úr Opinberunarbók.
Gaurinn hafði líka ýmislegt um þá að segja, var helvíti sáttur.

Megadeth took to the stage and all bets were off. Anyone wearing a syrup would also have needed incontinence pants and bicycle clips, because these boys were heavy and loud. I mean, they were L-O-U-D with a wo and an argh and a whole shitload of !!!!!!!!!!!!!!!!s. In almost thirty years of gig-going I have never heard anything so ear-splittingly deafening. And I?ve seen my fair share of heavy bands too: I saw Motorhead?s original line-up; Atomic Rooster were so heavy they almost made me vomit; Maiden, Metallica, UFO, Judas Priest, Purple and Sabbath, amongst the many, were all far from quiet, but Megadeth took it to a whole new level in Manchester.

[...]

Couldn?t finish this review without a Megadeth/Metallica comparison. Having now seen both bands, I have to say that, whilst Metallica were good, and those members of the band that turned up at Donington 2004, together with the stand-ins for the hospitalised drummer, performed their truncated set with aplomb and gusto, Dave Mustaine and co win that battle by a considerable margin.


Ekki slæm umsögn það. Reyndar er það sjálfsagt fúlt fyrir Dave Mustaine að gömlu félagar hans í Metallica seldu 18 þúsund miða hérna í fyrra meðan þeir eru væntanlega í ~400 stk.

Mánudagur: Lítill klúbbur, vonandi lítið af gelgjum og Selfossi, hágæða metall => snilld.
::Hívatha litli skeit klukkan 03:08 26.6.05 ::

24.6.05

Kolli verður þarna!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:34 24.6.05 ::

Smá meiri fróðleikur um Demon Days
With production of all 15 tracks by DJ Danger Mouse, the album is an eclectic blend of beats, rhythm and head nod.... "Dirty Harry" which is a follow up to "Clint Eastwood" (no duh), incorporates the Children's Choir San Fernandez Youth Chorus as well as verse by Bootie Brown...it is a mellow but definitely progressive track that shows how Gorillaz can transfer beats and strings with almost angelic singer with rap verse...


Sem sagt Bootie Brown úr Pharcyde sem rappar í laginu "Dirty Harry" - fróðleikur í boði Brynna sem var svo naskur að fatta þetta. Allir uppáhalds rappararnir manns bara á einum stað (svona næstum því).
::Hívatha litli skeit klukkan 11:28 ::

23.6.05

Tónleikasumar
Eftir gríðarsterkt tónleikasumar í fyrra nær sumarið 2005 ekki að fylgja því eftir, en nokkuð gott engu að síður;

Iron Maiden - 7.jún [Búnir - fokkuðu reitt!]
Megadeath - 27.jún
Foo Fighters - 5.júl
Queens of the Stone Age - 5.júl
Velvet Revolver - 7.júl [Dópistapakk]
Anatony and The Johnsons - 11.júl
Franz Ferdinand - 2.sep

Við Kolli verðum gríðarhressir á Megadeth í næstu viku. Ég hef hafið undirbúning.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:18 23.6.05 ::

Nú er kominn tími á að senda Trúðinn KÍB í smá rannsókn á Trúðageðspítalann Blaftóní. Hann er farinn að tala um sig í 3. persónu og kallar sig Maðkinn?!?
::Hívatha litli skeit klukkan 15:00 ::

Maðkurinn er mættur eftir að hafa ormast á Spáni!
::KÍB skeit klukkan 09:58 ::

22.6.05

Damon Albarn er snillingur
Aldrei hélt ég að ég myndi segja þetta. Damon Albarn er snillingur. Side prójekt eru venjulega dauðadæmd. Sætir tónlistarmenn sökka oft. Plata #2 er oft lélegri en #1. En þrátt fyrir allt þetta er nýi diskurinn með Gorillaz er frábær!

Kapparnir sem studdu DA á frumraun Gorillaz, Dan The Automator og Del Tha Funkee Homosapien, rapparinn knái, eru hættir. Í staðinn vinnur DJ Danger Mouse þessa plötu með honum, en hann þekkja margir, m.a. fyrir Gráa albúmið, þar sem hann mixaði Bítlana og fávitann Jay-Z án leyfis og við litla hrifningu þeirra.

Sem fyrr eru magnaðir listamenn kallinum til fulltingis, til dæmis hetjurnar í De la (ef þú sást þá ekki á Íslandi á sínum tíma gerðir þú stór mistök), Roots Manuva vinur okkar Adda, Shaun Ryder söngvari Happy Mondays og einhver gella (að ég held) sem hefur verið að vesenast með Tricky. Að ógleymdum mögnuðum lestri Dennis Hopper í "Fire Coming Out of the Monkey's Head".

Ég er bara að fíla þessa plötu svo vel að ég varð að skrifa um hana. Skellti henni í emm-pé-þrír möppuna okkar þar sem þið getið nálgast hana. Í leiðinni myndi ég sækja sipp fæl með Bright Eyes, ef þið viljið hlusta á magnaðan listamann sem er ekki enn orðinn almenningseign, en eins og sést á scrobblernum mínum rúllar hann mikið í tækinu.

Svo er líka gaman að skýra frá því að Mjöðmin, og Gírnir eru líka komnir á scrobbler.
::Hívatha litli skeit klukkan 18:45 22.6.05 ::

42 og önnur svör
Búinn að leysa gátu alheimsins. Blogg á Vonlausa verða fyndnari með veldisvexti eftir því sem þau eldast. Þessi þróun virðist vera að hraðast eftir því sem fleiri blogg detta inn á síðuna.

Til dæmis er fyrri partur júní strax orðinn drepfyndinn.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:07 ::

Hjólaði í Klifurhúsið annan daginn í röð, svo upp á Höfða, skutl upp að Esju og skrölti á hana. Núna er ég þreyttur.

Kveðja,
Steini Pepp
::Hívatha litli skeit klukkan 01:29 ::

21.6.05

Frábært búa á Íslandi!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:56 21.6.05 ::

20.6.05

Þér ferst að vitna í tímarit, þú ert beikon sem er vaxið eins og egg.
::The Satan of Death skeit klukkan 22:54 20.6.05 ::

Af mbl.is: Telur mögulegt að rækta egg og beikon úr stofnfrumum
Skarphéðinn Halldórsson sameindalíffræðingur, sem nú vinnur að meistaraverkefni við háskólann í Þrándheimi, segist hafa tekið fyrsta skrefið í átt að ræktun eggja og beikons úr stofnfrumum. Eru vonir bundnar við að slík ræktun gæti nýst vel við veitingarekstur, en skortur hefur verið á eggja- og beikongjöfum í Bretlandi. Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC.

Skarphéðinn greindi frá þessum niðurstöðum sínum á ráðstefnu næringarfræðinga í Evrópu.

Segist hann hafa sýnt fram á, að stofnfrumur úr Sírni vini síðum geti orðið að frumstigseggjum og -beikoni. Í grundvallaratriðum þýði þetta, að það kunni að verða mögulegt að einrækta stofnfrumur úr fólki með risapúng (scrotum gigantus) og breyta þeim í beikon eða egg til morgunverðaráts.

"Þetta verður helmagnað," sagði Skarphéðinn um þessar niðurstöður og fékk sér surströmming.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:18 ::

16.6.05

Virkisdvergarnir gera innrás
Sírnir kemur sterkur inn í íslenska sumarið eftir frækna dvöl í Svíalandi. Byrjar á því að éta Göltinn út á gaddin, gat geymt heila t-bone steik í undirhökunum sínum til að geta kjamsað á daginn eftir, og ætlar svo að vera með mannasoð í kvöld. Greyið Gölli kemst ekki því hann þarf að klífa nöðru dauðans og eitthvað ýmislegt annað sem hann gerir á þessum LSD trippum sínum.
Þrándheims-Skarphéðinn verður líka fjarri góðu gamni fastur í dýflissum Evil Mutant Genetics Inc. upptekinn við að þríklóna gelti og annan óskapnað.

Þetta verður geggjað tekíla-með-mexikanahatts-prattí.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:10 16.6.05 ::

Týndi sonurinn snýr aftur
Loftið var hreint og tært, eins og strax á eftir hitaskúr. Það var vordagur á K12. Rek augun í fætur sem dansa framhjá eldhúsglugganum á litlu kjallaraholunni minni. Sírnir er kominn.

Með okkur takast fagnaðarfundir. Gaman að sjá kallinn! Við skellum búrgerum á grillið, opnum rauðvínsflösku. Njótum hvers bita af frábærum mat og góðra samræðna.

Þegar líður á kveldið kemur Kolli.

"Af hverju fékk Sírnir mat og drykk, þegar ég hef verið hér allan tímann, þín stoð og stytta, meðan Sírnir var að leika sér í útlöndum?"

Ég svara: "Það er af því að þú ert svo helvíti leiðinlegur."
::Hívatha litli skeit klukkan 00:48 ::

14.6.05

Sírnir - þú varst að leita að þessu
::Hívatha litli skeit klukkan 23:23 14.6.05 ::

13.6.05

Hnjúkurinn
Rrrrrokk - enda elskar stelpan bönd á borð við Æron MeidenÁsa fór á Hnjúkinn um helgina í fyrstu tilraun, eitthvað annað en við Vonleysingjar, en ég held að allir í VV sem komið hafa upp hafi þurft 3 tilraunir, þ.e. Skabbs, Siz og aulameðlimurinn G-hári.

Gædaði hóp fyrir Íslenska fjallaleiðsögumenn við sama tækifæri og gekk það prýðilega. Þið sem viljið bæta úr hnjúksleysinu getið haft samband við þá og beðið um ófyndnasta leiðsögumanninn. Dæmi: "Hey - það er allt í einu orðið stjörnubjart!" (Stænerinn í dag að klifra á Hnappó og soldið langt á milli fóta. Margir actually litu til himins og störðu svo á mig með álíka mikil svipbrigði og autt A4 blað. Ég held að þessi fari í bókina.)

Myndir á askinum.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:10 13.6.05 ::

10.6.05

Allir sem fóru á Maiden eru samkynhneigðir hommar

Tyson á morgun... skyldi Lobbi ætla að dusta flösuna af tattúvinu í tilefni dagsins? Hann gæti kannski tattúverað tattúvið svo það fari að nú líkjast skrímslinu aftur.

"Akkuru ertu með nauðgara á handleggnum?"
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:35 10.6.05 ::

7.6.05

Eridda Skabbi?
::Hívatha litli skeit klukkan 16:47 7.6.05 ::

::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:43 ::



::Hívatha litli skeit klukkan 16:33 ::

6.6.05

Sumarferðin
Eftir að hafa kannað hvernig landið liggur ætla ég að panta helgina 11.-14.ágúst (vika 32). Tóti og Sindri komast en Kretín og Skabbi eru að fara í einkamauv. Spurning með Stæner, Sírni og aðra góða menn líka?

Samkvæmt veiðibókum er lítið að gerast á júlí helginni og vorið hefur verið kalt þannig að mér finnst hún mjög óspennandi. Hina helgina er komið haust og sniðugra að fara þá bara 2 vikum seinna í sömu veiði + gæs.

Svo er bara fínt að láta Kolla kenna á því, honum er boðið trekk í trekk í Negra-Nes og Kobbabúðir í gæs, silla, lax og rjúpu og gefur aldrei neitt í staðinn. Ljóti fagginn.

Þannig að sumarferðin verður í góðum fíling á bestu helginni og þeir sem vilja frekar fara í einhver prívatmauv geta bara étið skít.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:42 6.6.05 ::

Sekkjaveiðiferð í Elliðavatn
Skipulögð var kvöldveiðiferð í Elliðavatn og eins og sönnum sekkjaveiðiferðum sæmir beiluðu flestir sekkirnir. The Kike og Kretín bræður gátu ekki slitið sig frá sófanum og því var það hlutverk M&M (Maðkurinn og Mittisvaðlan) að halda upp heiðri VV.

Ég mætti á svæðið í snilldarveðri: 10°C hiti, léttskýjað og logn. Eftir að hafa spjallað við Durrann á Elliðavatnsbænum fór ég að græja mig. Skimaði Helluvatn en það leit út fyrir að vera steindautt á meðan Elliðavatnið sjálft iðaði af lífi. Setti stefnuna á Engin en til að koma blóðinu á hreyfingu tók ég nokkur köst í víkinni við sumarbústaðinn (rauða svæðið á mynd). Þar voru fiskarnir að vaka út um allt en höfðu ekki mikinn áhuga á mínum flugum.


Engin
Ákvað að halda út á Engin og eftir mikið labb og illt augnaráð frá gæsamömmu og álftapari komst ég á áfangastað (græna svæðið á mynd). Byrjaði á því að vaða út eins langt og ég gat. Fiskurinn var hættur að vaka og því setti ég votflugu sem svipar til mýflugu á, enda allt í mýi, og hóf að kasta. Ekki þurfti ég að bíða lengi eftir fyrsta fiskinum, ca. punds urriði beit á og var heldur ósáttur fyrir vikið. Eftir smá barning mundaði ég háfinn en við það datt fiskurinn af og ég satt eftir slippur og snauður. Fékk í kjölfarið nokkrar tökur og missti annan svipaðan eftir stuttan barning en það sem verra var er að hann tók með sér fluguna góðu. Reyndi aðrar flugur en þær gáfu ekki þ.a. ég hélt í land í Mittisvöðluleit.

Helluvatn
Fann Tóta, hann var farinn að pakka saman. Það hafði lítið gengið hjá honum þ.a. hann ákvað að beila. Ég var hins vegar í góðum fíling, klukkan reyndar að verða ellefu, þ.a. ég ákvað að taka nokkur köst í Helluvatni. Setti stefnuna á lækinn sem rennur í vatnið enda hafði Guðni tekið fisk þar fyrr í vor. Þegar þangað var komið var einhver speni á hinum bakkanum, eflaust að potch-a. Mér tókst smátt og smátt að hrekja hann upp með læknum og náði því að taka nokkur köst í lækinn sjálfur. Varð ekkert var og sá ekkert líf, nema fuglalíf. Hélt því heim á leið rétt fyrir tólf, sæll og glaður eftir gott veiðikvöld.
::KÍB skeit klukkan 10:19 ::

4.6.05

Andskotinn, þetta e rétt hjá Guðna, ég er víst að fara á einkagæs með Dumma í Stóru 13-15. hmmm...

Það væri náttlega gaman að heyra í fleirum varðandi þetta mál. Þessi helgi, og reyndar dagarnir á undan hefðu verið nokkuð brilljant. Ég er væntanlega ekki bundinn í báða skó með vinnu hvort eð er á þessum tíma og gæti hæglega komið á fimmtudeginum (eða miðvikudeginum ef því er að skipta) og beilað svo föstudagskvöld.

Hvað hinar tvær helgarnar varðar, þá er ég nokkuð viss um að það sé kominn fiskur á neðstu svæðin og í ósinn um miðjan júlí. Svo er náttleg alltaf hægt að klifra ef veiði er treg...

Veiðilega séð ætti allt að vera á fullu seinnipartinn í ágúst. Bendi á að sumarferðin fyrir þremur árum var farin á þessum tíma og þá veiddist lax og talsvert vænar bleikjur ofarlega í ánni. Þá er fiskur kominn upp um alla á + lax ef hann finnst ennþá, auk þess sem líklegra er að vatnsbúskapur árinnar sé betri en verið hefur í síðustu tveimur ferðum. Þar að auki er gæsin vissulega byrjuð á þessum tíma og ekkert sem segir að hún sé ekki komin í tún, Eina skiptið sem við höfum gert sæmilega gæsaveiði þarna var einmitt á þessum tíma, fyrir mánaðarmót er ég nokkuð viss um.

Þannig að... ég er nokkuð eassy going hvað þetta varðar, Kobbabúðir eru náttlega blátær snilld þannig að ég væri til að fara allar þessar helgar. Ég get klifrað ef veiði er treg í júlí, komið snemma og beilað fyrr ef við tökum 11.-14. ágúst eða veitt eins og vanviti í lok ágúst.

Aðrir með input?

Naflalóin
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 08:39 4.6.05 ::

3.6.05

Á aflaklóin ekki bókað í Stóru IV þessa sömu helgi?
Það eru amk. veðileyfi merkt honum ofaní skúffu hjá mér og hann á auðvitað eftir að borga. Spunge alltaf við sama heigarðshornið.
::Grathni skeit klukkan 12:27 3.6.05 ::

Mér líst vel á þessa helgi, tel líklegt að Herman Munster og Jón Baldvin verði mættir um miðjan ágúst.


Aflaklónninn
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:07 ::

Sumarferð
Jó! Ég hafði nú verið skotnastur í að bruna beint wezztur eftir Stóru en sú helgi er ekki laus og kannski er það full heví prógramm fyrir fjölskyldusekki?

Nema hvað, okkur stendur til boða:

  • Vika 28, helgina 14.-17. júlí (of snemma að mínu mati - ekki komið af stað)
  • Vika 32, helgina 11.-14.ágúst (mitt val)
  • Vika 34, helgina 25.-28. ágúst (of seint til að vera í sumarfílin - taka frekar annan helgartúr um miðjan sept. og taka gæsina líka.

Allir sammála? Kemst ekki um Verzló, verð í labbiferð. Þá eru líka margir með plön.

Þarf að bóka þetta sem allra fyrst. Allir alvöru vonleysingjar taka að sjálfsögðu 3 daga í þetta, sofa á pallinum og éta gölt og bjór í morgunmat. Kindin Einar verður á staðnum og seyðir Tóta með sírenusöng.

...og þeir sem ganga um eins og sóðar, vaska ekki upp eftir sig og þannig fara í ævilangt bann.

Sumarferðanefnd

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 00:50 ::

2.6.05

Þú bendir glannalega og hrópar hátt, en gleymdu því ekki að þú varst í hommasúpunni með okkur, því þú ert brauðið.
Brauð er frauð úr möluðu kornmeti, en samt aðallega loft, yfirleitt með skorpu = Skabbi
Kolli prumpar brauði => Skabbi var í rassgatinu á Kolla => Skabbi faggi
lifibrauð = starf = Skabbi er atvinnunagari
Pulsubrauð = ha ha ha þetta er of auðvelt
::The Satan of Death skeit klukkan 18:36 2.6.05 ::

"Ég var að borða grænmetisborgara og brauð með hummusi."

Grænmetisborgari = Þegn sem einungis neytir grænmetis. Einnig kallaður Vegani

Hummus = Hommi = Sírnir


Semsagt, þið sírnir voruð í kynsvalli með Vegan pöjnkurunum!

Keep it to yourself, viðbjóður!
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:42 ::

Ég fullyrði að þú yrðir fullyrðlingur.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 12:39 ::

1.6.05

Gáta dagsins
Ef þú ert barna-rebbi og dettur í það, hvað ertu þá? (Sírnir má ekki svara því hann er ókind).
::Hívatha litli skeit klukkan 21:49 1.6.05 ::

Þrífarinn

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 16:15 ::

Sírnir er ávallt með manni í anda
Ég var að borða grænmetisborgara og brauð með hummusi.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:00 ::

Skoða eldri færslur >>