31.8.05

Bilaðir, einfaldlega bilaðir
Ótrúleg comment höfð eftir mönnun í sambandi við New Orleans rok og flóð.

"...Ég get ímyndað mér að svona hafi Hiroshima litið út fyrir 60 árum síðan,? bætti ríkisstjórinn við."

Úr frétt á mbl.is


"We need to recognize we may be about to experience our equivalent of the Asian tsunami, in terms of the damage and the numbers of people that can be killed," said Ivor van Heerden, director of the Louisiana State University Public Health Research Center in Baton Rouge."


Nú er hvert mannslíf ómetanlegt og eignatjónið óumdeilt, en að vera að bera þetta saman við mestu hörmungar sögunnar er rosalegt. Ætli það verði ekki helförin næst? Nei - alveg rétt - það er það hræðilegasta sem hefur gerst, EVER, sbr. miðarnir sem maður þarf að fylla út áður en maður kemur til USA.

Common.

Fleiri kreisí fréttir.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:11 31.8.05 ::

Afar skemmtileg tilgáta. En rétta svarið er að Dreki er heilastöð í randkerfinu.

Þekktasti sjúklingurinn með heilaskemmd í dreka var H.M. Skottulæknir klauf heilahvelin í honum til að lækna hann af flogaveiki. Það virkaði en hann missti hæfileikann til að vista í langtímaminni. H.M. var kveikjan að söguþræði Memento, það er þekking sem ætti að geta nýst kretínbræðrum í kvikmyndasnobbi.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:23 ::

Þegar við vorum litlir var Andri með e-skonar búlemíu, sem fólst í því að alltaf þegar við duttum íða þurfti hann að æla útum allt. Einnu sinni ældi hann eins og dreki í garðinum hjá Gosa/Pésa. Sjónarvottar segja að hann hafi hreinlega spúið yfir garðinn þveran og endilangan. Svo fór hann inn og flamberaði á sér trýnið með sambúka. Í annað sinn ældann á glugga á strætóskýli á meðan við hinir stóðum flissandi hinummegin við rúðuna. Sick.

Reyndar held ég að þar sem Kolbeinn og Gandri voru elskhugar þá hafi hann smitað kolla af þessu ælufetishi sínu. oj. kolli og andri nýældir í sleik, ullabjakk.

Eða ert þú, kæri göltur, drekinn?

Afaklóið, sem böttar ykkur alla í bleikjuveiðikeppni helgarinnar
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:05 ::

Nálægt en enginn vindlingur. Hvað segir hrokafulli vísundurinn um þetta? Já, eða Bilbó Briem? Þetta er nú eitthvað sem þeir ættu að þekkja síðan í dennnn.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:37 ::

Hmmmm......I smell a trap. Jæja, ætli það sé ekki best að demba sér í hana...

Dreki er skrímsli í ævintýrum sem iðulega spúir eldi. Reyndar er til alvöru dreki, nema hann er eignilega ekki dreki heldur stór eðla og hann spúir ekki eldi heldur sýklum og vísindamenn eru að pæla hvort blóðið í þeim innihaldi kannski lækningu gegn aids, svennisma og öðrum skelfilegum sjúkdómum.
::Mósagrís skeit klukkan 08:42 ::

30.8.05

Gáta dagsins
Hvað er dreki?
::Hívatha litli skeit klukkan 23:00 30.8.05 ::

Þríkúkahellir
Þríkúkahellir er rassinn á Svenna. Hann er opinn almenningi og tekur um tuttugu mínútur að júmma sig inn og úr honum.
Myndin að neðan er af marfló sem fannst í hellinum.


::Mósagrís skeit klukkan 13:51 ::

Þríhnjúkahellir
Þríhnjúkahellir er hraunhellir staðsettur í þríhnúkahrauni NV af Bláfjallasvæðinu. Gengið er upp á einn af hnúkunum og sigið niður um op á toppnum. Sigið er um 120 metrar niður á botn hellisins. Meirihlutinn í frjálsu sigi og eru engir veggir til að styðja sig við.

Úr ferð minni í Þríhnjúkahelli hér um árið. Þarna uppi sést hausljós á manni sem er að júmma sig upp og opið, í forgrunni er steinn á botninum


Frá botninum er hægt að ganga niður að berggöngum sem liggja lengra niður í iður jarðar. Niðurferðin er nokkuð létt, en vel scary, enda vinnur aðdráttaraflið með manni. Uppferðin er öllu erfiðari, því að þá þarf að júmma sig upp á línuklemmum.

Nú er búið að stofna félag um að gera hvelfinguna aðgengilega almenningi. Þessi vídeóklippa síðan í fréttum í gær er ansi flott.

Ég fór þarna niður með Flubbunum Jökli Bergmann, Friðjóni, Ása og Rúnari félaga árið 2000. Það var ansi magnað. Ótrúlegt að standa þarna niðri. Júmmið upp tók góðar 40 mín. og var alveg ágætlega erfitt. Myndin hér að ofan er úr þeirri ferð og sýnir hausljós á manni sem var að júmma sig upp, opið lengst fyrir ofan og stein í botninum í forgrunni.

Það væri mjög töff að gera þetta aðgengilegt, enda skilst mér að þetta sé stærsta eða næststærsta hraunhvelfing í heimi og algjört jarðfræðiundur.
::Hívatha litli skeit klukkan 11:03 ::

29.8.05

Rauða hættan sýnir sig
Tinni hélt upp á 27 ára afmælið á laugardaginn. Þar hitti maður helling af skemmtilegu fólki sem maður hefur ekki séð lengi. Margir að gera mjög spennandi hluti. Magnað þótti mér þó að hitta mann sem hefur síðustu árin verið settur í flokk með þjóðsagnarpersónum á borð við Pésús, menn farnir að halda að hann hafi aldrei verið til.

Rauðahættan á góðri stundu


Rauða hættan mætti á svæðið í góðum gír með hjólkopp undan gömlum benz í afmælisgjöf. Það var því ekki um að villast hver maðurinn væri, hress OG með eitthvað stolið.

Gaman að Rauðu hættunni.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:47 29.8.05 ::

dynkur fyrir Kolla
::The Satan of Death skeit klukkan 11:43 ::

26.8.05

::Hívatha litli skeit klukkan 11:25 26.8.05 ::

25.8.05

Á þessum degi fyrir ári
::Hívatha litli skeit klukkan 14:30 25.8.05 ::

Bókahornið - Potter og Angels and Demons
Kláraði loks í nótt nýjustu bókina um háruga fíkniefnaneytandann, Hairy Pothead. Gat ekki slitið mig frá henni, ansi spennandi. Helvíti skemmtilegar bækur, eins og áður hefur komið fram. Verst að þurfa að bíða ár eftir næstu. Mæli með'enni.

Angels and Demons
Þetta er bók sem Dan Brown skrifaði, höfundur Da Vinci Code, sem ég hef líka skrifað um hér. Fjallar um mökkleiðinlega rúllukragapeysu-besservisser-harvard-asna sem sósast í gegnum hverja lífshættuna á fætur annarri vegna þekkingar sinnar á arkitektúr og af einskærri heppni. Leysir svo samsærisgátur í leiðinni.

Þessi bók er skrifuð á undan Da Vinci Code, og er næstum eins og sama bókin með öðrum nöfnum á sömu karakterum og öðru sögusviði. Það er eiginlega pínlegt hvað beinagrindin er nákvæmlega eins og margir karakterarnir nákvæmlega eins, í sama hlutverki. Mér þótti DVC ofmetnasta bók sem ég hef lesið og þessi er álíka leiðinleg. En kannski skárri að því leiti að ég hafði engar væntingar. Dan Brown er algjör sokkur og ég væri til í að eignast tölvuleik þar sem maður getur skotið Robert Langdon.

Sjö bræður borða saman
Gerðum góða fer á Indjánafélagið í gær. Þetta var algjör snilld. Sírnir pantaði halta-mongólassa handa öllum og var það hápunktur kveldsins. Síðan var haldið í öllerA á Celtic. Menn eru virðast vera að undirbúa sig undir fertugsaldurinn, tala bara um stjórnmál og einhverjar glyðrur sem þeir riðu fyrir milljón árum. Gaman að því.

Endað á sumbli heima hjá Skabba. Það væri nú gaman að fá sagnir af stemmingunni seinnipart nætur hjá letingjum sem þurfa ekki að vinna.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:31 ::

24.8.05

Át
4drykkur verður eigi. Mæting á A-indí kl. 20.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:33 24.8.05 ::

Einkagæs
Fór ásamt McRenis junior og senior í einkagæs í gær. Haldið var í Hólsá í boði Gilla McRenis.

Skemmst er frá því að segja að þetta er svipað því að veiða í mjög skítugri sundlaug og urðum við ekkert varir. Fínt samt að taka smá kastæfingu. Höldum að minnsta kosti uppi nafni Vonlausa með því að koma heim með öngulinn í rassgatinu.

Svo er út-að-éta-og-verða-sér-til-skammar í kveld. Addi ætlar kannski að kíkja memm. Ætlar Giggús að hafa 4drykk?

Annars er ég hérna með gott ráð til að kljást við Strákana þarna á stöð 2 ef þið lendið í þeim. (vídjó - erlent)
::Hívatha litli skeit klukkan 09:48 ::

23.8.05

Þú ert nú meiri hamsturinn. Telur upp hinar og þessar gay cruises og labbitúra en minnist ekki einu orði á mesta snilldarveiðitúr sumarsins í Stóruna.

En annað, hvað segir jarlinn um silla, lax og gæs í Kollabúðum um helgina?
::Mósagrís skeit klukkan 14:40 23.8.05 ::

22.8.05

ADHD
Nú er ég ekki lærður á þessu sviði en ADHD kemur strax upp í hugann.
Attention-deficit hyperactivity disorder (ADHD) consists of a persistent pattern of abnormally high levels of activity, impulsivity, and/or inattention that is more frequently displayed and more severe than is typically observed in individuals with comparable levels of development.
::KÍB skeit klukkan 16:28 22.8.05 ::

Þétt sumar
Hljóp í 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina, þrátt fyrir að hafa ekkert hlaupið í sumar og vera tognaður í löppinni. Það virðist borga sig að æfa ekki því tíminn síðan í fyrra var bættur aðeins, tók þetta á 51:10 núna.

Annars er ferðasumarið búið að vera ágætt. Það hófst í byrjun apríl. Þetta leit svona út:

  • Tvær vor-brettaferðir í Svarfaðardalinn í röð sem voru snilld
  • Tindur í Tindfjöllum - fjallganga og vetrarbrölt
  • Heljargnípa og Þuríðartindur - 4 daga ferð þar sem við klifruðum m.a. Heljargnípu, 600 metra alpaleið með gráðuna D, hún hafði aðeins verið klifin tvisvar áður, fyrst '85
  • 3 helgar á Hnappavöllum í röð í klettaklifri
  • Skaftafell - öryggisnámskeið hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, skylda fyrir gæda hjá þeim
  • Gædaði ferð á Hvannadalshnjúk fyrir fjallaleiðsögumenn, klifraði á Hnappó
  • 3 daga ferð á Vestfirði þar sem ætlunin var að klifra bergganginn Streng
  • 2 flensuhelgar í bænum :(
  • Klettaklifur við Munkaþverá fyrir norðan - með Skabba meðal annars
  • Skotland - klifruðum Observatory Ridge sem er gæjaleg 400 m. VDiff klettaleið á Ben Nevis, hæsta fjall Bretlandseyja. Eitthvað dótaklifur líka
  • Klettaklifur á Hnappó - sumarferðin okkar Ásu
  • Labbiferð úr Núpstaðaskóg í Skaftafell
  • Héðinsfjörður og Hraundrangi - við Skabbi veiddum í Héðinsf. og klifum Hraundranga í Öxnadal, mjög töff tindur
  • Sumarferð Vonlausa - Kollabúðir
  • Reykjavíkur maraþon - hljóp og var í bænum

Mjög ásættanlegt ferðahlutfall í sumar, 16 helgar af 19 út úr bænum.

::Hívatha litli skeit klukkan 15:20 ::

Stóra Laxá - myndir - loksins!
::Karius skeit klukkan 12:20 ::

19.8.05

Dýr er dropinn
EOE linkar á frétt hjá CNN um dýrasta bensín í heimi. Að sjálfsögðu er bensín talsvert dýrara á Íslandi en í dýrasta landinu á þessum lista, Hollandi.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:46 19.8.05 ::

18.8.05

Hmm - síðast þegar ég hitti Hauk var hann í hamstrabúri í búð á Laugaveginum að drekka stelpubjór (svona bríser) úr hamstra-vatnsskammtara. Hann er náttúrulega bara 3 kíló.

En ég meina hei - ég er til í að drekka hvern sem er undir borðið. Rifja upp taktana síðan Bjarni færeyingur tapaði fyrir mér í einsbjórþambi.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:35 18.8.05 ::

NOW THEM'S FIGHTING WORDS!
Haukúkur hommalegi vegur að karlmennsku okkar og heiðri. Látum við svona krúnkhommaskap viðgangast?
Er Vonlausa Veiðifélagið Vonlaust?


Ég vill hér opinberlega mana Vonlausa Veiðifélagið til að taka þátt í Ölympics 27 ágúst. Þeir hafa löngum kennt sig við drykkju og get ég staðfest að sú er raunin oft, en ég hef ekki séð það lengi.
Engin af keppnisgreinunum felur í sér að hengja upp smokk fullan af pissi svo ég get ekki séð neina ástæðu fyrir þá, að vera ekki með í þessarri frábæru keppni sem svo skemmtilega vill til að er haldin á Íslandi í ár.

Jú kannski eru þetta ástæðurnar:

Eru þeir hættir að drekka?
Eru þeir allir AA?
Eru þeir pussy-whipped?
Þora þeir ekki í keppnir?
Eru þeir allir hommar?
Er Elvis á lífi?

What do you say gay's?



hommalegasti línkur í öllum alheiminum
::The Satan of Death skeit klukkan 11:42 ::

Sonic Youth

Ég var við það að fara ekki og vonaði hreinlega að það væri uppselt, svo að ég þyrfti ekki að vega við mig hvort ég tímdi á tónleikana. Þá segist vinnufélagi minn vera að fara og ég læt hann kaupa miða fyrir mig líka. Við gættum þess ötullega að missa af Curver/GhostDigital en náðum samt lokalaginu þeirra.
Hver skipuleggur þessa tónleika? Dúkkubrúðulísubandið og Curver/GhostDigital i upphitun? ég er reyndar svo mikill Bernardo Gui að ég fordæmi brúðarbandið án þess að hafa í þeim heyrt. En ég veit það fyrir víst að til eru mun verðugri hljómsveitir til að hita upp og mynda forstemmningu en þetta?


Sonic Youth voru einfaldlega drulluhelvíti góð og spörkuðu grimmilega í rass. Það var auglóst að þau skemmtu sér nokkuð vel við þetta, nema bassakonan ( hefði sagt bassastelpan en hún hefur þroskast yfir stelpuþröskuldinn ), sexý engu að síður, petítar stelpur sem rokka á bassa eru sexý. Ég tilnenfi og veiti SY hérmeð Nóbelsverðlaunin í ruslatunnuendi. Nú er ég ekki að tala um feedbackveisluna sem þau enduðu tónleikana á, heldur ruslatunnuendi í miðjum tónleikunum. Þau "gítarhömpuðu" (samfarahreyfingar með gítarinn í milli) veggjum og hverju sem er og svo rétti einn gítarleikarinn gítarinn yfir fólkið og leyfði því að fikta í honum. Stökk svo sjálfur út í þvöguna og maður gat séð gítarinn krádsörfa fyrir framan sviðið.
Hart keyrt, stuttar sem engar pásur milli laga eitt eða 2 stutt en svöl kjaftabreik, annað þeirra um hve hot Scarlet Johanson er. Eitt faul af því að gítar var vitlaust stilltur, en hann náði að stilla hann áður en maður varð pirraður og baðst auðmjúkur afsökunar á mistökum sínum og vann fyrirgefningu okkar með byljandi rokki.
Þau spiluðu hvorki Sugar Cane né Bull on the Heather, sem eru lögin sem ég á til á playlistanum mínum, en það kom mér töluvert á óvart hvað ég þekkti samt mörg laganna. Hin sem ég þekkti ekki eru samt svo flott að það kom ekki að sök að ég þekkti þau ekki fyrir.
Ég sé ekki eftir þessu.

Labels:

::The Satan of Death skeit klukkan 10:33 ::

17.8.05

Éta saman - gaman
Planið er að fara út að éta saman, næstkomandi mánudag 22. ágúst. Kveðja plebbana sem eru að fara til útlanda.

Líklegast verður Austur Indíafélagið fyrir valinu. Þeir sem ætla að mæta þurfa að melda sig inn hjá mér, í síðasta lagi á föstudaginn, svo hægt sé að ganga frá pöntunum.

Hilsen,
Sveppi
::Hívatha litli skeit klukkan 20:47 17.8.05 ::

Hahahahahaha Sem gefur orðinu "Svínabóndi" nýtt spinn
::Mósagrís skeit klukkan 10:55 ::

Ohhh....ég sé ekki fram úr svartnættinu því ég missti af bændadurgadögum.

Hei, þú verður að vera bóndadurgur til að eiga bændadurgadaga, ergo Svenni er bændadurgur.
::Mósagrís skeit klukkan 10:52 ::

Ég á bændadaga í Þverá núna í byrjun sept. Tvær stangir up for grabs sem Steini Pepp og Garrison eru búnir að festa sér.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:18 ::

Einkagæs í Stóru-Laxá rokkaði feitt. Fjórir laxar voru teknir á land og tveir sluppu. Áin var smekkfull af fiski og var hægt að sjá risastór skrímsli sigla um djúpa hyljina, en ekki létu þeir gabba sig af flugum okkar og spúnum.
Laxarnir sem komu á land voru á bilinu 5 til 8 pund og voru ýmist teknir á flugu eða devon. Ég tók einn á devon og missti annan í löndun, og dem hvað það er fúlt að missa laxinn við fæturnar á sér, horfa á hann sigla rólega í burt og það er ekkert sem mar getur gert. Sux, en hei, ég náði öðrum stuttu seinna svo ég og Stóra erum kvitt. Þess má geta að Kolli veiddi ekki neitt og er núna veiðiþjónninn minn.

Ég verð að viðurkenna að ég er soldið meira en ögn spældur að hafa misst af Kretínbúðum þetta sumarið, hef alltaf litið á þá ferð sem ákveðið highlight Vonlausa sumarsins. En einkagæsin er svosum til að bæta það upp og svo er líka önnur einkagæsaferð núna í september.

Le familié Kretín er með fjórar stangir í Eystri Rangá í byrjun sept, 8-9 minnir mig, og voru tvær stangir upp for grabs núna. Kike og Spunge náðu snemma að festa sér þessa einkagæs og núna bætast við Mittisvaðli og KÍB. Þetta eru kannski ekki Búð Kollanna, en verður eflaust skemmtilegt og talsverð veiðivon.

Labels:

::Mósagrís skeit klukkan 09:50 ::

16.8.05

Magnað
Töffari, þetta eru 200% fleiri litlar stelpur en ég á. Congrats bæði tvö!!!
::Hívatha litli skeit klukkan 14:31 16.8.05 ::

Hey, ég var að eignast litla stelpu á laugardaginn var. Nú á ég tvær.
::Edilon táfýla skeit klukkan 14:28 ::

15.8.05

 Ég er að drepast úr leti, eina ástæðan fyrir því að ég hreinlega dey ekki er sú að ég nenni því ekki
::The Satan of Death skeit klukkan 19:35 15.8.05 ::

Sumarferð Vonlausa 2005
Skemmst er frá því að segja að ENGINN mætti í sumarferðina utan skipuleggjanda. Vitað var fyrir að einkagæsarfarar myndu beila en engu að síður bókað vegna mikils áhuga annarra meðlima. Þeir sviku lit. Lordinn hafði barist með kjafti og klóm fyrir góðri helgi, hrakið foreldra og bróður+fjölskyldu hans af staðnum. En það er bót í máli að bílskúrar eru orðnir fínir og fjölskyldubönd hafa verið ræktur. Verst með að TUCAS ætlar aldrei að linna.

Nema hvað, átta manns fóru westur og dvöldu þar í góðu yfirlæti alla helgina. Eins mikill silungur var veiddur eins og menn nenntu, hátt í tvö dúsín, mest á flugu. Voru í þessari týpísku stærð 1-2 pund. Prófaði laxaflugurnar líka í von um að hafa stærri en sillinn réðst á þær líka. Enginn lax kom á land í þessari ferð, en 5-6 punda lax sleit sig af færi gest síðastliðinn fimmtudag í Ármótum við löndun.

Hellingur af gæs í túnum, en hún fékk frið. Aðeins voru skotnar dósir á 150 metra færi með mögnuðum riffli Stæners.

Anyhow, snilld, enda laus við alla leiðindapúkana sem fylgja þessari ferð venjulega. Hvernig skyldi hafa gengið í einkagæs í Stóru-Laxá?

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 14:33 ::

Ég skora á ykkur:
Áskorun til stjórnvalda um lækkun eldsneytisskatta.
::KÍB skeit klukkan 09:21 ::

12.8.05

Tilkynning vegna tilkynningar um tilkynningu
Mittisvaðlan hefur ekkert efni á að vera með kjaft, þar sem ferðin var bókuð á grundvelli samþykkis hans og KÍB á fyrirhugaðri tímasetningu, loforð gefin, hús pantað og fleira. Um þetta má lesa í færslu síðan 6. júní. Það að beila með skömmum fyrirvara er glatað.

Einkagæsarfarar ætluðu hinsvegar aldrei í þessa ferð og eru því stikkfrí.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:49 12.8.05 ::

Tilkynning vegna tilkynningar

Þegar skipuleggjandi Kobbabúðaferðar ákveður að plana ferðina þá helgi sem hann vissi að meirihluti meðlima sé upptekinn útaf því að hann er sár yfir að vera ekki boðinn með í eiknamauf, fyrirgerir hann sér réttinn á því að grenja yfir lélegri mætingu.
::Karius skeit klukkan 14:43 ::

Tilkynning
Því miður komast KÍB og Mittisvaðlan ekki með í Sumarferðina. Kemur þar margt til. Þeir töldu sig fá að fara með í einkagæsina en var hafnað. Þeir eru að vonum eyðilagðir.

Þá kom skyndilega upp fjölskylduboð sem Mittisvaðlan þarf nauðsynlega að mæta í. Eins og allir vita eru óskráð lög meðal meðlima VV að fjölskylduboð skal halda í heiðri.

Í tilfelli KÍB kom sú staða upp í gærkvöldi að ef hann tekur ekki til í bílskúrnum hjá sér mun hann springa í miklu eldhafi og líklega eyðileggja húsið hans KÍB eftir helgi. Því verður KÍB að taka til sinna ráða og koma stóra bílskúrsmálinu í höfn um helgina.

Þá má loks nefna að fyrirvari vegna sumarferðar var alltof stuttur, ekki var tilkynnt um endanlega dagsetningu fyrr en 6. júní. Við biðjumst afsökunar á óþægindunum.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:09 ::

Hagfræði Plebbans
Sífellt dynja á landanum ýmiskonar gylliboð, útsölur og hvað-ekki. Innan þessara boða leynist áhugaverður flokkur, nefnilega tilboð og gjafir fyrirtækja sem menn eru í föstu viðskiptasambandi við og félaga sem þeir tilheyra.

Starfsmannafélögin eru gott dæmi í þessu samhengi. Þannig er að stærstur hluti félagsgjalda fer í ýmiskonar uppákomur fyrir félagsmenn. Til þess að dagskráin falli í kramið er farin "örugga leiðin". Ekki er boðið upp á neitt spennandi, nýtt eða öðruvísi. Þannig er nægt framboð á bingókvöldum, golfmótum, tónleikum með Stuðmönnum og Eyfa, óspennandi sumarkofum, fuglaskoðunarferðum og öðru samskonar bulli.

Plebbi á golfmóti


Í víðara samhengi má skoða tilboð frá fyrirtækjum. Þar er boðið upp á merkta boli*, handtöskur, bolla, jafnvel líkjöra og vond tónlist er aldrei langt undan.

Af þessu leiðir að nýti einstaklingur sér alla möguleika sem í boði eru sparast umtalsverðar fjárhæðir í skemmtanir, mat, fatnað og ferðalög.

Smekkur mann er hinsvegar æði misjafn. Fyrir sæmilega eðlilegt fólk er álíklega líklegt að finna eitthvað við sitt hæfi eins og að sjá fálka taka létta salsasveiflu með uglu uppi í Heiðmörk meðan kvartett skipaður leikskólabörnum af Grænuborg heldur uppi suðrænni sveiflu.

Af þessu leiðir að menn hagnast á því að vera Plebbar og tapa á því að vera ekki Plebbar. Því ættu menn "plebba sig upp" og byrja að græða.


*Kenningin um hagfræði Plebbans byggir að hluta á rannsóknum sænska vísindamannsins Bo Hall á "Bolnum" svokallaða, sem gefnar voru út í greininni T skirten, 1987, Kommuneforlaget, Stokkholm.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:41 ::

11.8.05

Alheimssamsæri
Samtökin EinkaKretín og SamsærisGæs Group hafa með víðtæku samsæri hrætt líftóruna úr Kíb, Mittisvöðlunni, RisaScrotum, Prella Pu, ZíbaDjíba og fleiri limum Vonlausa. Síðast sást til þeirra í Krísuvík þar sem Maðkurinn öskraði "TO THE KÍB-MOBILE!!!"

Gölturinn mun engu að síður veiða hvern stórlaxinn á fætur öðrum um helgina með veiðiþjóninum sínum, morðóða Pésa.

Aðrir geta étið Mjöðm.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:50 11.8.05 ::

Sumarferðin
Ég ætla að rúlla vestur annað kveld, ekki í kveld eins og planað var.

Lord Porc
::Hívatha litli skeit klukkan 14:31 ::

10.8.05

Ég er búinn að vera í smá tölvufokki heima þannig ég er ekki ennþá búinn að smella StóruLax myndunum í galleryið... en læt vita þegar þær detta þangað inn.
::Karius skeit klukkan 09:41 10.8.05 ::

9.8.05

Ævintýri Budget Boy
Frá leikstjóra Spy Kids myndanna kemur stórkostleg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna!

Myndin fjallar um ungan dreng sem á ekki pening fyrir sleikjó. Líf hans breytist skyndilega þegar Budget Boy kemur til sögunnar og kennir honum að njóta lífsins fyrir næstum ekki neitt. Hvern hefði grunað að þari grillaður á pústgrein bifreiðar nágrannans væri slíkt lostæti? Eða Starrasleikjó?

Myndin er sýnd í 1vídd: Budget boy - ekkert bruðl!!!

::Hívatha litli skeit klukkan 10:41 9.8.05 ::

Verðlagning í veiði
Frekar súrt að vera venjulegur jói sem finnst gaman að veiða. Svo sem ekki nýtt af nálinni en sífellt eru fleiri og fleiri spenar sendir með leigðan útbúnað í hendinni í laxveiðiár. Bráðum höfum við ekki efni á neinu nema KÍBstaðaós.

Fyrirtæki kaupa dýrustu veiðileyfin
Íslensk fjármálafyrirtæki kaupa í auknum mæli dýrustu dagana í laxveiðiám landsins en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er það ein af ástæðum þess að verð á laxveiðileyfum er svo hátt sem raun ber vitni. Þannig eru dæmi um að fyrirtæki kaupi heilu vikurnar í ám þar sem hver stöng kostar um hundrað þúsund krónur á dag. Þess ber þó að geta að heimildir blaðsins herma að leigutakar hafi dregið úr álagningu sinni.

Heimildamenn blaðsins segja að aukin umsvif fyrirtækjanna komi niður á þeim veiðimönnum sem þurfi að greiða leyfin úr eigin vasa enda sé þeim ómögulegt að keppa við fjársterk fyrirtæki. Þannig megi í raun ekkert út af bregða hjá þeim sem bjóða slík leyfi til sölu en hætti þeir fáu fjársterku aðilar sem kaupa muni engir koma í þeirra stað.
::Hívatha litli skeit klukkan 09:33 ::

8.8.05

Ferskar myndir úr Stóru komnar í gallery-ið.
::KÍB skeit klukkan 14:36 8.8.05 ::

Skoða eldri færslur >>