30.9.05

Nú þurfa Sindri og hinir kattaeigendur vonlausa að taka mynd!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:53 30.9.05 ::

Bók mánaðarins
Jón Gerald og Jón Ásgeir
::Hívatha litli skeit klukkan 11:44 ::

29.9.05

Pigman

::Hívatha litli skeit klukkan 16:45 29.9.05 ::

28.9.05

Mannakorn

Mannakorn
::Hívatha litli skeit klukkan 18:49 28.9.05 ::

THE WORLD'S SHORTEST FAIRY TALE

Once upon a time, a guy asked a girl "Will you marry me?"
The girl said, "NO!"

And the guy lived happily ever after and went fishing, hunting and
drank beer and farted whenever he wanted.

THE END
::Karius skeit klukkan 15:23 ::

27.9.05

Hehehe

Keyrði á eftir bíl frá þessu fyrirtæki í gær.
Fannst nafnið e-ð skrítið í fyrstu...
...en svo var mér hugsað til ykkar ;)

::Karius skeit klukkan 14:51 27.9.05 ::

26.9.05

Bæjarins bestu bjargað
Mikið er ég feginn að Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur sitt á hreinu. Hún hefur ákveðið að gæta þess að Bæjarins bestu falli ekki í skuggann af nýju tónlistarhúsi. Passa að einhver steinsteypurisi skyggi ekki á það sem máli skiptir, alvöru menningu.

Steinunn segir í viðtali við Fréttablaðið sl. laugardag:

Ég mun beita mér af fullum þunga til að hin menningarlega starfsemi sem felst í Bæjarins bestu verði áfram á svæðinu enda ómissandi þáttur í bæjarlífinu."


Ennfremur segir í fréttinni að Bæjarins bestu sé einn þekktasti og vinsælasti veitingastaður landsins og að viðbúið yrði að einhverjir myndu fella tár, ef ekki ganga af göflunum, ef hróflað yrði við Bæjarins bestu en merkja megi af orðum borgarstjóra að þeir hinir sömu geti andað rólega.

Ég anda því rólega, fyllibyttur að naga rollurassa í brauði munu enn setja mark sitt á menningarlíf miðbæjarins, biðja um extra remúlaði, en ekki verða meint af. Því eins og Guðni Ágústsson segir þá er pulsan alhollasti matur sem börn og fullorðnir geta látið inn fyrir sínar varir. Og ef maður á fyrir Sínalco líka verða stelpurnar vitlausar. Enda er gamli mjólkurbílstjórinn alþekktur sjarmör.

Það er eins gott að stjórnmálamenn þeir, er halda í tauma okkar ágæta lands og borgar, eru með forgangsröðunina á hreinu.

Meira af tónlistarhúsi
Rúnar sendi Birni Bjarnasyni póst fyrir 2 árum. Spurði hvort ekki væri möguleiki á að gera ráð fyrir aðstöðu í þessu fína húsi fyrir tónleikahald á dægurtónlist, einnig þekkt sem popp, rokk, djass og annað slíkt. Björn sá ekki að slíkt gæti farið saman við alvöru menningu. Þarna mun því aðeins pjúra barrok ríða rækjum.

Gaman að því. Þess má geta að konan hans Björns er í hljómsveit sem heitir Sinfó.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:39 26.9.05 ::

22.9.05

Hver átti fimmþúsundfimmhundruðfimmtíugasta og fimmta bloggið?
Ég hef heyrt af því að til sé sértrúarhópur innan Vonlausa sem heldur að heimsendir verði þegar tíuþúsundasta bloggið bloggast.
Þessi sértrúarsöfnuður hefur gengið undir nafninu Hin mikilfenglega templararegla sekks og poka.
Slagorð þeirra er: " Nú skal hvergi hopa, látum okkur leiðast til heimsins endaloka"
::The Satan of Death skeit klukkan 14:16 22.9.05 ::

20.9.05

Einn Baugur til að drottna yfir þeim öllum...
Jón H.B. Snorrason sefur rólega í kvöld, að eigin sögn, þrátt fyrir að hafa klúðrað ákæru í Baugsmálinu.

Jón H. B. Snorrason, saksóknari embættis ríkislögreglustjóra, sagði við fréttamenn að þetta væri ekki áfall og hann hefði búið sig undir að þetta gæti orðið niðurstaðan. Næsta skref væri að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar og krefjast þess að að allir ákæruliðirnir 40 verði teknir fyrir.

Nú get ég skilið það að hann myndi sofa rólegur eftir að hafa tapað efnislegri meðferð málsins, enda ekki hans hlutverk að hengja menn án tillits til sektar eða sakleysis. En að klúðra formsatriðum í ákæru er óafsakanlegt. Sérstaklega þegar það er á okkar kostnað. Þriggja ára rannsókn í vaskinn.

Ríkið greiðir 24,5 milljónir í málsvarnarlaun ákærðu. Ef við gerum svo ráð fyrir því að 10 manns með meðallaun 500 þúsund á mánuði hafi verið í 3 ár að vinna í þessu (eflaust miklu fleiri komið að málinu þannig að þetta gæti verið nærri lagi) þá er launakostnaður 180 milljónir króna.

Þetta bull er því búið að kosta yfir 200 milljónir.

Þá á eftir að taka tillit til skaðabótamála sem Baugur gæti mögulega höfðað á hendur ríkinu.

Segi bara eins og Mr. Burns:

Incompetent baffooooooons!
::Hívatha litli skeit klukkan 10:11 20.9.05 ::

19.9.05

Ég og Skabbi gerðum góða ferð í Kvígindisfellið hér um árið (sjá veiðisögu). Það hefur alltaf heillað mig að fara aftur þangað.
::KÍB skeit klukkan 12:34 19.9.05 ::

Rjúpa
Hvert skal halda? Við Sindri erum heitir fyrir að kíkja eitthvað fyrstu helgina. Held að við eigum ekki þessa helgi fyrir vestan. Hugmyndir?
::Hívatha litli skeit klukkan 11:31 ::

16.9.05

Tilkynning frá Húsdýragarðinum.
Það verða fríir táfýluborgarar á boðstólnum um helgina.
Blessuð sé minning Guttorms.
::zuzuman skeit klukkan 20:11 16.9.05 ::

15.9.05

Guðni var á Michael Bolton tónliggum í baunmörku um daginn með flugvinum sínum. Reyndar ætlar hann aftur en hann er með vip miða þannig að mig vantar einhvern annan (Kofi Annan?) til að mæta með mér.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:36 15.9.05 ::

Hættu að bögga mig með þessum helvítis Mækal Bolton tónleikum Kolli! Ég hef engan áhuga á þeim, hvorki með þér né neinum öðrum. Prófaðu að tala við Guðna.

Ég sá í blaðinu í morgun að Opal eru hættir að framleiða bláan Opal þar sem eitraða bragðefnið sem þeir notuðu er ófáanlegt með öllu. Djöfull langar mig í bláan Opal.....
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:11 ::

Brandaralómarinn læmir þig í lífstíðarfanglesislóm fyrir þennan.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:55 ::

Nú er svo sannarlega kominn...
...LÓMS-DAGUR!

Lómur
::Hívatha litli skeit klukkan 12:13 ::

14.9.05

Það var svo geðveikt einhæft. Tuss-litir eru bara til í einum lit.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:43 14.9.05 ::

Er þetta Goth-leðurfrakki? Svenni er þekktur fyrir að vera smá laumu-gothari, sbr. gaddaarmbandið hans og hann málar sig með tússlitum.
::H.H. skeit klukkan 10:31 ::

13.9.05

Þú færð brandarasekt fyrir þennan.

En í alvöru talað, ertu virkilega í frakka? Ég vissi að þú værir plebbi en kommon þetta er verra en hjá árbæjarblebbanum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:56 13.9.05 ::

Nú er úti veður - ehhh - kalt
Klæddist frakka í vinnuna í fyrsta skipti haustsins í dag. Nota ekki yfirhöfn yfir sumarið. Kolli Gölli klæddist hinsvegar breta, sem er óheyrilega perralegt. Ég meina - það er svo ógeðsleg fýla af þeim.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:35 ::

Það veiðist ekkert í þessum Rangám
Vill líka taka það fram að gölturinn er full of sjitt, en þó ekki jafn lúdikrus og Skabbi skíthús.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 10:28 ::

12.9.05

Ég vil nota tækifærið og óska Kolla til hamingju með að hafa verið 50 daga í Rangánum og ekki veitt neitt.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:57 12.9.05 ::

Tvælæt són
Ég er sammála Krumma. Ég er hræddur.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:48 ::

Mér þótti nokkuð gott að laun bankastjóra seðlabankans voru hækkuð um 27%. Jú, ég meina bankastjórar viðskiptabankanna eru að fá stjarnfræðilega háar tekjur og ekki vill Seðlabankinn missa sitt fólk í einkageirann. Yeeesssss......það er nebbla mikil eftirspurn hjá einkareknum vipskiptabönkum eftir útbrunnum pólitíkusum sem eru álíka jafn hæfir bankastjórar og indverski sundlaugavörðurinn í Vesturbæjarlauginni.
::Mósagrís skeit klukkan 10:19 ::

8.9.05

Barbara van der Kamp
Ég hélt að Kolli væri Barbara Bush?

Kolli er Barbara
::Hívatha litli skeit klukkan 15:06 8.9.05 ::

7.9.05

Fréttir úr einkagæsaferð
Jæja þá er helmingur af Rangár einkagæsinni búinn og ég get ekki sagt að ég sé alltof sáttur.
Rok og skítakuldi en áin var samt stútfull af laxi sem gerði ekki annað en að stökkva upp og ulla á mig. Sérstaklega leiðinlegt var að sá sem kom á eftir mér veiddi tvo fiska úr sama hyl og ég var að berja og ég var bara eins og einhver veiðiþjónn að háfa hann upp fyrir hann.
Þandi reyndar tvíhenduna eins og orkur og það var gaman að prófa það.
Nú er eins gott að ég taki laxa í eystri, ég verð Bree van der Kamp þangað til ég er kominn með lax.

Reyndar var alveg góð sárabót að taka tvo 4 punda urra, en maður er samt algjör lúði ef maður veiðir bara urra í laxveiði.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 18:15 7.9.05 ::

Af hverju ætti Sírnir að vera rekinn af ríkinu og hvernir er hægt að græða rosalega á honum?
::KÍB skeit klukkan 14:05 ::

Vinstrisinnuðu Vígamenn Vonlausa eru of uppteknir í einkagæs í Rangá Eystri til að svara heimskulegum athugasemdum ykkar.

Þess má geta að Kolli er Bree van der Kamp því hann var sá eini sem veiddi engan lax í vinnuferðinni sinni og er þess vegna desperate að veiða í einkagæsinni. Jú hann veiddi reyndar tvo urriða og í tilefni af því mun hann bera titilinn Urri það sem eftir er.
::Mósagrís skeit klukkan 13:50 ::

Ég trúi ekki öðru en að kommarnir í vonlausa séu æfir yfir því að Síminn sé ekki rekinn af ríkinu, sem myndi þá græða rosalega á honum af því að ríkisrekstur er góður rekstur. Þeir bíða líka eftir að risarækjurnar fari að gefa vel af sér. Einnig eru þeir væntanlega hæstánægðir með þær breytingar sem kommarnir í borgarstjórn hafa gert á dagvistunarmálum, til hins betra.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:41 ::

Mér líst rosalega vel á þetta símasöluplan. Það er í raun merkilegt hversu fáir milljarðar fara í eitthvað rugl. Til dæmis er ekkert eyrnamerkt landbúnaði, jarðgöngum eða sértæku kjördæmapoti, reyndar mætti kannski flokka Sundabraut sem kjördæmapot en það er önnur saga.

Annars þætti mér fróðlegt að heyra hvað kommarnir í félaginu hafa um þetta að segja.
::KÍB skeit klukkan 12:34 ::

Sala Símans
Þetta er nú að mestu ágætt. Góðum bita varið til að greiða niður erlendar skuldir, sem er frábært. Minni vaxtabyrði fyrir komandi kynslóðir. Sjúkrahús byggt, sem er frábært.

Vegaframkvæmdir á SV-horninu - betra en jarðgangabull annarsstaðar.

Set svo spurningarmerki við klink - hvaðan komu þessi mál?

En í heildina gott. Ég var smeykur um að þetta færi allt í eitthvað helvítis kjördæmapot og bull.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:42 ::

5.9.05

Netaveiði
Nenni ekki að skrifa einhverja langloku, Gölli getur kannski tekið það að sér, heldur birti ég hér vel valda kafla sem ég hef rekist á undanfarið. Hver, ekki Geysir, verður að dæma fyrir sig.

Frá árinu 1991 hafa til dæmis eigendur stangaveiðiréttinda á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði keypt upp rétt veiðimanna til að leggja net. Þetta hefur minnkað sókn og veiði á vatnasvæðinu og í kjölfarið hefur stangaveiði í hliðarám aukist um 28-35%. Talið er að nú veiðist á stöng um 39-52% af þeim laxi sem var áður veiddur í net.
Tekið úr skýrslunni: "Lax- og silungsveiði á Íslandi - Efnahagsleg áhrif og líffræðileg staða auðlindarinnar", sjá www.angling.is


Hummus, nafn þitt er Kolli!
Heimildmenn okkar segja að um miðjan júlí í sumar hafi netaveiðin þá þegar skilað 20 tonnum af laxi. Og vitað er að mokið í netin hélt áfram eftir miðjan júlí og veiðin í allt sumar því örugglega mun meiri en 20 tonn.
20 tonn af laxi jafngilda 40 þúsund pundum af laxi. Til að einfalda málið enn frekar getum við sagt að um miðjan júlí hafi netin verið búin að veiða 5000 8 punda laxa eða 8000 5 punda laxa. Á þessum mánuði sem netin voru búin að vera niðri um miðjan júlí í sumar voru þau þá þegar búin að veiða þrefalt það magn sem veiddist í Norðurá í allt sumar ef við gefum okkur að meðlþyngdin í Norðurá hafi verið 4,5 pund.
Veiðin í sumar við Iðu er um þessar mundir nálægt 150 löxum. Nýjustu tölur af öllum svæðum í Soginu í dag segja heildarveiðina 181 lax. Veiðin er eitthvað örlítið meiri í Stóru Laxá. Þessi þrjú glæsilegu veiðisvæði líða öðrum fremur fyrir netabrjálæðið í Hvítá og eru ekki svipur hjá sjón miðað við fyrri ár.

Lengstu netin ná 120 metra út í ána og ljóst að þeir eru fáir laxarnir sem sleppa við troll netamanna. Þá ræddum við ekki fyrir löngu síðan við karlmann á miðjum aldri sem á sumarhús á bökkum Hvítár. Það var ekki síður nöturlegt að heyra hann gorta sig af ólöglegri netaveiði og tilkynnti þessi sanni veiðimaður okkur að hann hefði ekki við að losa netin. Þau fylltust samstundis af laxi þegar þau voru komin á sinn stað eftir losun.

www.krafla.is


Sem sagt með því að hætta laxveiði í net væri hægt að auka laxveiði á stöng um 2-5000 laxa árlega. Til að setja þetta í samhengi þá hefur meðaltal stangveiddra laxa verið um 30.000 fiskar á ári. Í ár er metár og líklega munu veiðast um 55.000 laxar. Með því að hætta netaveiði gæti laxveiði á stöng aukist um allt að 10%.

Það eina sem ég sé þessu til fyrirstöðu er að netin eru lögð á staði sem þættu ekki spennandi veiðistaðir, a.m.k. að mínu mati, t.d. Hvítá, Ölfusá og Þjórsá. Tekjumissi netabænda er auðvitað hægt að bæta t.d. með því að tryggja þeim hlutdeild í veiðileyfasölu hliðaránna en þá þurfa menn að semja sín á milli. Ekki er víst að það reynist auðvelt.

Clint [Eastwood] var heillaður af [golf]vellinum og umhverfinu og taldi næsta víst að hann ætti eftir að heimsækja völlinn aftur. Hann var leystur út með loftmynd af vellinum og nýveiddan lax úr Hvítá sem stjórnarmenn sáu um að veiða á meðan hann lék.

www.mbl.is

Hvernig ætli sá lax hafi verið veiddur?

Labels:

::KÍB skeit klukkan 08:53 5.9.05 ::

1.9.05

Þjófóttir andskotar vs. fólk sem kann að bjarga sér
Sírnir er hummus
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:24 1.9.05 ::

Sírnir sbassi er algjört basshole!
::Hívatha litli skeit klukkan 12:52 ::

Jú kommon, þetta er alveg sambærilegt. Það er náttla vitað mál að hver kani er virði 1000 gulra skratta þannig að 100 manns í N´Orleans er alveg jafn skelfilegt og tsunamíið og hirosima og Nagasaki.
Það ætti hins vegar að brenna þig á báli fyrir að dirfast að líkja þessum smávægilegu óhöppum við helförina. Hér eru bara mera mortals að deyja, í helförinni var hin Guðs útvalda þjóð. Smá virðingu hérna.
::Mósagrís skeit klukkan 08:49 ::

Skoða eldri færslur >>