30.11.05

Ég er takmarkaðu illi

Af hverju eru kvikmyndagetraunir á Vonlausa svona léttar en ég get aldrei kvikmyndagetrunina í Fréttablaðinu. Líklega vegna þess að ég er takmarkaður hálfviti.

Hópknýtingar í skúrnum hjá Kolla á morgun.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:01 30.11.05 ::

Þetta er hlægilega einföld þraut að það er fyrir neðan mína virðingu að svara þessu.

'Oh that's really easy for you to say, you're Mr. White. You gotta cool-sounding name. So tell me, Mr. White, if you think "Mr. Pink" is no big deal, you wanna trade?'
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:49 ::

Foookk - þetta voru einhverjir gaurar að plana rán. Kannski hann þarna gaur við Keanu Ríves í Point Brake? Hann þarna Dirty Dancing - ööö - Patrick Sveisí?
::Hívatha litli skeit klukkan 15:47 ::

Smá kvikmyndaþraut

Hver segir í hvaða mynd:
"If somebody thinks he´s Charles Bronson, break his nose with the butt of your gun."
::Mósagrís skeit klukkan 15:43 ::

Gölli fær mongaverðlaunin fyrir að kalla Killgore Trout "æi þarna Trout gaurinn".
::Mósagrís skeit klukkan 09:41 ::

29.11.05

Hvaða spassadjús ertu búinn að vera drekka Gölli?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 21:03 29.11.05 ::

Avoiding the touchAnsi mögnuð frásögn af ferð vinnumanns sem villtist suður yfir hálendið rétt fyrir 1900. Avoiding the touch gæti myndin heitað.
::Hívatha litli skeit klukkan 18:07 ::

Skoðaðu þetta
::Hívatha litli skeit klukkan 15:36 ::

Æi er þetta þarna Trout, gaurinn í Vonnegútt bókunum?
::Hívatha litli skeit klukkan 15:14 ::

Íslensku vefverðlaunin
::KÍB skeit klukkan 14:36 ::

Drepablóðlifrar Urriði er einn af mínum uppáhalds rithöfundum. Hver sá sem ekki þekkir nafnið er þroskaheftur mongólíti.

Þar sem ég veit að Gölturinn er þroskaheftur mongólíti sem ekki kann annað en að Googla, þá læt ég smá hint fylgja.

"Question: What is the white stuff in bird poop?
Answer: That is bird poop, too."
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:14 ::

Sírnir.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:26 ::

Gáta
Hver er Drepablóðlifrar Urriði?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 09:30 ::

28.11.05

Vonlausa raðar inn vefverðlaunum
Vonlausa - smíða bestu vefi í heimiFulltrúar vonlausa eru ráðandi afl í vefheimum eins og allir vita.

Meðlimir eiga 2 vefi í besti íslenski vefurinn, 2 í besta útlits- og viðmótshönnun, 2 (3 með sjóvá) í besti fyrirtækisvefurinn, penna á besta afþreyingarvefnum en því miður engan á besta einstaklings. Við bætum úr því næst. Skil reyndar ekki af hverju vonlausa er ekki þarna.

Gaman
::Hívatha litli skeit klukkan 12:33 28.11.05 ::

Ferðin sem aðrar ferðir verða miðaðar við
Team Kíb (Gilz + veiðiþjónn) skelltu sér inn á Kaldadal á laugardaginn. Planið var að kíkja aðeins í kjarrið og halda síðan inn á Eyfirðingaleið með það fyrir augum að komast á Skjaldbreið.

Fasismi - en ekkert hardcore
Nettur fasismi um morguninn enda getur það skipt sköpum að vera fyrstur á svæðið þegar haldið er á fjölfarnar veiðislóðir. Það átti líka eftir að koma á daginn því þegar við lögðum bílnum snarstoppaði bíllinn á eftir okkur og snéri við.

Á veiðislóð
Rjúpnaspor, mynd af vef Útivist og Veiði.Bjarminn af tunglinu lýsti okkur leiðina enda varla farið að birta þegar við lögðum af stað. Héldum inn með ánni og ætlum að þræða kjarrbrúskana einn af öðrum, nýfallinn snjór var yfir öllu og stillt veður. Rebbi hafði greinilega verið á ferðinni um nóttina því sporin eftir hann voru út um allt. Fljótlega eftir að við komumst í kjarrið sé ég tvær rjúpur, þær forða sér þó áður en við komumst í færi. Góður fyrirboði og veiðieðlið tekur völdin. Áfram höldum við inn með kjarrinu, Skabbi fælir fyrst upp eina staka og síðan 15 fugla hóp án þess að skotum sé hleypt af. Við fylgdumst með hópnum á flugi töldum okkur hafa góða vísbendingu um hvert hann hefði farið. Eftir smá leit sé ég hvar þær eru og kalla Skabba til mín. Við læðumst að þeim, komumst í dauðafæri án þess að þær verði varar við okkur og fellum sitt hvorn fuglinn. Þrátt fyrir mikla leit finnum við ekki hópinn aftur og var það miður.

Gil dauðans
Áfram höldum við inn að gili sem er innst í dalnum. Skabbi sér fljótt tvo fugla ofan í gilinu og fellir annan, hinn flýgur inn eftir gilinu og við á eftir. Fljótt er ég þó stoppaður með þeim fleygu orðum: "Komdu hérna mannfjandi!" Skabbi hafi séð hóp og fannst ég eitthvað seinn að bregðast við. Ég klöngrast ofan í gilið til hans. Rjúpurnar sýna á sér fararsnið, við skjótum á þær sitt hvoru skotinu þrátt fyrir langt færi en með litlum árangri. Hópurinn skiptir sér í tvennt, annar hlutinn flýgur út í buskann en hinn flýgur inn eftir gilinu. Við ákveðum að elta þann síðar nefnda. Röltum af stað á sitt hvorum gilbarminum og ekki líður á löngu þar til við sjáum hvar hópurinn hefur komið sér fyrir ofan í gilinu. Styggð kemur þó að þeim og þær setja stefnuna út gilið. Skabbi fær ágætt flugfæri en ákveður að skjóta ekki þar sem hann hefði örugglega hitt... mig (þar sem ég stóð hinum megin við gilið)! Ég ákveð að athuga hvort þær hafi allar flogið af stað, og viti menn, ein eftirlegu kind situr ofan í gilinu hreyfingarlaus. Ég miða lengi og vel á hana en kann ekki við að skjóta svona bara til öryggis. Klöngrast niður gilið í átt að henni en þegar ég er kominn hálfa leið sprettur hún af stað. Hún komst þó ekki langt og var felld á flugi.

Skabbi var farinn að ókyrrast og hélt af stað niður með gilinu á eftir hópnum, ég fylgi í húmátt á eftir. Þrír fuglar sitja í makindum sínum hinu megin við gilið. Skabbi klöngrast ofan í gilið og nær að fella tvo fugla í samam skotinu, þrátt fyrir að hafa bara séð annan þeirra að eigin sögn. Sá þriðji flýgur enn á ný inn gilið og ég á eftir honum. Á meðan Skabbi gengur frá sínum fuglum og talar við tvo gamla karla finn ég fuglinn sem slapp. Hann hafði flogið og sest á sama stað og hópurinn hafði verið á áður. Ég sé hann, hann sér mig. Ég byrja að klöngrast ofan í gilið, hann byrjar að klöngrast upp úr því. Allt í einu flýgur hann af stað en kemst ekki langt.

Sjö fuglar komnir í hús og varla komið hádegi. Á sama tíma og við höfðum verið í fugli nánast allan morguninn var lítið sem ekkert um skothvelli í nágreninu. Gömlu karlarnir sem Skabbi talaði við höfðu til að mynda bara séð þrjá fugla.

Á leið í bílinn
Upp úr þessu setjum við stefnuna á bílinn. Skabbi fælir upp eina en hittir ekki. Stuttu seinna fæli ég upp aðra og hún sleppur ekki. Við komum í bílinn með fjóra fugla hvor og ekki er hægt að segja annað en að við séum alsælir með það.

Bílastæðið
Við höfðum ekkert kíkt í kjarrið við bílinn um morguninn og ákváðum því að gera það. Hendum bakpokunum af okkur og höldum af stað. Allt í einu fælir skabbi upp þrjár, býr sig undir að skjóta en, úpps, gleymdi að taka öryggið af. Það kemur ekki að sök því tvær þeirra fljúga í átt til mín, önnur er tekinn á flugi en hin sitjandi stuttu seinna. Ótrúlegt, allt í einu komnar tvær rjúpur í viðbót. Skabbi röltir af stað til mín og fælir þá upp stakann fugl. Hann flýgur af stað en sest ekki langt frá mér. Ég hendi frá mér hinum tveimur fuglunum, elti hann og felli. Þrír fuglar komnir og það ekki nema 100 m frá bílnum. Skabbi spyr hvort ég þurfi ekki að fara með aflann í bílinn, eflaust nett pirraður á að hafa ekki fengið neinn af fuglunum sem hann jú fældi upp. Ég byrja að ganga frá fuglunum en hrekk allt í einu upp við tvo skothvelli. Skabbi fellir tvo fugla og setur stefnuna á bílinn með aflann. Ég æsist upp og held aftur af stað. Í þetta skipti fæli ég upp fjóra fugla án þess að ná neinum þeirra. Þeir fljúga frekar stutt en lenda nánast á veginum. Að svo stöddu ákváðum við að láta þetta gott heita enda hættulegt að leyfa minkseðlinu að ná völdum.

Fallegt veður, góður félagsskapur, 13 rjúpur í hús, er hægt að biðja um meira?

Labels: ,

::KÍB skeit klukkan 09:17 ::

Sveinn þróast á sterkum öðrum vef sínum. Skrif í hæsta klassa ásamt metnaðarfullu málfari gerir hann að tíðum gesti í mín augu.
www.rjominn.is
::KÍB skeit klukkan 09:05 ::

27.11.05

Ég fór á einkagæs í dag og skaut átta rjúpur. I rock, Kolli sökkar. I hereby decree að Kolli er veiðiþjónninn minn því ég skaut tvisvar sinnum fleiri rjúpur en hann.

Djöfull var þetta samt gaman, labba í hrauni og kjarri, leita í sköflum og rjúpa útum allt. Hún var heví stygg og erfitt að komast að henni. Hrikalega fínt að ljúka tímabilinu svona og aðeins bjarga andlitinu eftir slælega framistöðu hingað til.

Kolli er samt veiðiþjónninn minn. Sem veiðiþjónn fær hann að halda á nýju SAGE XP stönginni minni sem ég ætla að smíða á stangarsmíðinámskeiðinu.

Labels:

::Mósagrís skeit klukkan 20:46 27.11.05 ::

Núna er Vonlausa farið að skrifa tónlistargagnrýni á hinn stórmerka vef rjóminn.is, sem er einmitt tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna. Fyrsti dómurinn er um Hjálma. Í því tilefni er kominn banner hér til hliðar. Gaman.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:34 ::

26.11.05

Jól
JólabeibGott skap í dag. Ekki skemmir fyrir að ég er eiginlega ekki búinn að rekast á neitt jólalegt enn. Ekki heyrt nein jólalög heldur í útvarpinu. Ég þoli ekki jólalög. Jólalög eru vond. Þoli ekki jólaskreytingar og jóladrasl fyrir 1. des. Fer í fýlu.

Eru Íslendingar að batna hvað þetta varðar? Mér finnst eins og síðustu árin hafi jólin byrjað í lok október. Eða er skýringin sú að ég sé bara vinnuna, gymmið og framrúðuna á bílnum og heyri bara í iTunes og XFM?

Smá innskot: Ekki hlusta á X-ið, svikarana sem lokuðu og ætluðu að láta okkur hlusta á FM, með orðunum "Mér er skítsama þó að einhverjir unglingar reki svona úr bílskúr í Hafnarfirði". Opnuðu svo aftur þegar þeir sáu að þeir náðu ekki til okkar með auglýsingar lengur. Ekki gleyma svona framkomu gott fólk.

Nema hvað - ég er ánægður með þessa þróun. Jólin eiga að vera á jólunum. Hmm - þetta er massa leiðinlegt blogg. Núna er ég kominn í fýlu.

PS - hvar er skemmtilega tuðið frá vísundnum og prellunum um hvað ID er heimsk kenning? Skemmtileg tölfræði um USA og Creationism
::Hívatha litli skeit klukkan 13:36 26.11.05 ::

25.11.05

Sko - búið að afsanna bullið í Skabba um þessa bjána þróunarkenningu. Hún er líka bara KENNING.
::Hívatha litli skeit klukkan 15:41 25.11.05 ::

24.11.05

Þetta er ógeðslega leiðinlegur linkur
::Hívatha litli skeit klukkan 13:48 24.11.05 ::

22.11.05

Ykkur til handa, hefi ég lagt myndir úr afmæli mínu á grallaríið. Fallist á kné, ákallið mig sem frelsara ykkar og njótið.

Hor
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 18:40 22.11.05 ::

Spurning um að fá sér hjólhýsi?
::Hívatha litli skeit klukkan 12:08 ::

Bévítans andvaka, í tilefni hennar býð ég upp á tvær þjóðlegar skrýtlur:

Skósmiðurinn: Hér eru stígvél úr egta kálfskinni fyrir að eins 50 krónur.

Kaupandinn: Hm, hm! Þá held eg að ódýrara verði að kaupa kálfinn.
-----

Maðurinn: Eg ætla að skreppa snöggvast út í Café Iðnó. Ef eg verð eigi kominn heim kl 10....

Konan: Vertu bara rólegur! Þú ert kominn heim. (Hún aflokar).
::The Satan of Death skeit klukkan 05:42 ::

21.11.05

Sellout
Sellout
::Hívatha litli skeit klukkan 14:38 21.11.05 ::

Myndir úr Ásu afmæli á askinum.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:50 ::

Hvítar strípur - White Stripes
Jack og Meg...áttu Laugardalshöllina í kvöld.

Jakobínarína hitaði upp fyrir þau, einstaklega vel valið, enda völdu Jack og Meg þá sjálf. Snilldarunglingaband, ótrúlega góðir í raun og veru. Mjög catchy og flott lög hjá þeim, ansi vandað og frumlegt, mjög góðir spilarar miðað við aldur og sánduðu flott. Skemmtileg framkoma líka. Fengu mjög góða dóma á Loftbylgjum. Ég ætla að redda mér meiru með þeim. Gúd sjitt.

I don't really care cause Jack really bugs me...
WS, óbojj, þvílíkur kraftur og keyrsla. Hófu leikinn á Blue Orchid og sigldu beint áfram í gegnum cirka fjögur lög. Ég nennti ekki að taka glósur á símann minn eins og venjulega því að Ásu finnst það svo gay.

Snilld
Þetta voru frábærir tónleikar, best að stimpla það inn strax. En merkilegt umhugsunarefni engu að síður. Þau eru nefnilega ekkert frábærlega spilandi. Meg heldur sig við rosalega beisik takta sem svona týpískur gítarleikari úr Vesturbænum myndi spila þegar hann stelst í trommusettið í æfingarhúsnæðinu. Jack er með allskonar skemmtilegt dót í gangi, fléttar saman blús og kántrí áhrifum, en er samt í grunninn ótrúlega messí. Svona líkt og annar magnaður spilari, Jimmy Page, sem sökkaði stundum live og maður þarf hreinlega að ráða í hvað hann ætlaði að spila áður en hægt er að pikka það upp.

Lærdómur sögunnar er að tæknin er oft ofmetin. Þarna mæta þessi tvö á svið og RÚLA. Brjóta öll lögmál með því að vera svona svínþétt tvö, yfirleitt á trommur og gítar. Hverjum dettur það einu sinni í hug? Lagasmíðarnar eru hreint út sagt geðveikar, magnað hvernig maðurinn kemur með hvert einstaka snilldarlagið á fætur öðru, og allt sándar þetta öðruvísi en allt annað.

Með því að taka þetta á fílingnum og spilagleðinni komu Jack og Meg, sáu íslenskt félagsheimili í Laugardal og áttu pleisið. Frábærir tónleikar, fá V4.

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 00:14 ::

18.11.05

Qwerty logandi?
Haldiði að Mjöðmin eigi ekki bara heiðurinn af skoðanakönnuninni hjá Katrínu.is, þriðja mesta uppáhalds baddíntonnspilara vonlausa.öskur.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:46 18.11.05 ::

Til hammara með ammæra Collie! Núna þurfum við að fjárfesta í svona fyrir kallinn.

Í tilefni þess að Mjöðmin er komin á fertugsaldur ætla ég að lýsa orð dagsins, honum til heiðurs sem;

NETÞJÓNN

Þetta er orð sem mér hefur lengi þótt fáránlega fyndið, en eins og við vitum öll er Kolli netþjónn.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:31 ::

17.11.05

Veiðisaga

Við fórum á rubba í gær, ég, Kolli Fredo, Skabbi Spunge og Guðni Kike. Við fórum í Víðiker í góðu veðri og fengum að vera að mestu í friði, rétt sáum í einhverja lura í fjarska en voru of hræddir við okkur til að koma nær, sem var mjög gott.
Kolli byrjaði strax að gráta því eins og vanalega kom hann bara með byssuna sína og John Wayne stígvélin sín og sníkti af okkur skot, nesti og húfu. Skabbi var frekar fúll því að þá var minna eftir fyrir hann að spunga, en það reddaðist og Kolli fór af stað í gallabuxum og leðurjakka.
Eftir smá bix og rökræður var ákveðið að splitta liði í byrjun, Fredo og Spunge saman og ég og Kike. Eftir smá stund var team Kike búið að splittast upp þar sem að Guðni misskildi eitthvað samkomulagið sem hljóðaði svo:"Förum sitt hvoru megin í gilið og hittumst í dalnum" og tók því sem:"Þú labbar í gilið og ég fer og labba eitthvað lengst uppí rassgat".
Eftir smá rölt sá ég rjúpu í topp færi, tók minn tíma í að miða, bráðin og ég vorum eitt......og ég william tellaði og rjúpan flaug í burtu. Crap es drasl byssa.......
Ég sá Guðna Cougar í einhverju klettaklifri og fann því Fredo og Spunge þar sem Fredo hafði fundið eina ellidauða. Eftir smá kaffidrykkju og hommasögur um Guðna Kúk splittuðum við liði þar sem Skabbi benti okkur Kolla að fara á staði sem hann teldi að væri mest af rjúpu. Yeah right, eftir tvær mínútur heyrði ég Spunge hlamma skotum á fullu og féllu fimm stykki. Massa gott og túrinn orðinn nokkuð góður.
Við fundum Cougar aftur á leiðinni í bílinn og hafði hann náð einni háfjalla rjúpu. Góður túr, sjö rjúpur og einn veiðiþjónn(moi). Ég var meira að segja svo mikill veiðiþjónn að ég hélt á öllu stöffinu fyrir Fredo og tók rjúpuna hans því að hann var ekki með bakpoka og hengdi hana upp fyrir hann.

Yours truly,
Jeeves

Labels:

::Mósagrís skeit klukkan 13:32 17.11.05 ::

16.11.05

"An Excercise in Impossibility says: rístart"

...og hver sagði að makkar krössuðu aldrei?
::Hívatha litli skeit klukkan 13:54 16.11.05 ::

Full létt sem kvikmyndagetraun en bara of fyndið
::Hívatha litli skeit klukkan 01:00 ::

15.11.05

"Það eina sem ég hef lært í skóla er að taka próf."

-Sviðrik Frankenstein Eydal
::Hívatha litli skeit klukkan 23:41 15.11.05 ::

Get lost fucktard!
::Hívatha litli skeit klukkan 16:59 ::

14.11.05

"Perhaps the most valuable result of all education is the ability to make yourself do the thing you have to do, when it ought to be done, whether you like it or not; it is the first lesson that ought to be learned; and however early a man?s training begins, it is probably the last lesson that he learns thoroughly."

? Thomas H. Huxley, scientist, educator
::Hívatha litli skeit klukkan 22:05 14.11.05 ::

Dans kretíndvergsins
Jæja skúbbar og sýruhausar þá er komið að því að ég verð 30 ára gamall kreti. Af því tilefni ætla ég að bjóða til veislu á laugardaginn næsta. Mæting er frekar snemma til að fólk hafi tóm til að mæta í eitthvað annað ammæli ef því finnst einhver annar vera merkilegri en ég. Léttar veitingar (þungar fyrir Skabba) verða í boði t.d. kokteilpulsur (sem Skabbi heldur að séu hrossabjúgu), sardínur (sem Skabbi heldur að séu túnfisksflök), rækjur (sem Skabbi heldur að séu risahumrar), snittur (sem Skabbi heldur að séu risalanglokur), grænar baunir (sem Skabbi heldur að séu grasker) ofl.
En öllum er nú skítsama um það því það verður líka frítt bús og dómsdagsvél sem verður ræst um sex leytið.

Geggjað stuð!!!Dómsdagsvélin


Ég segi því eins og hinn mikli Zurra sagði eitt sinn : "You dare address me? I was ancient when your ancestors were naught but protoplasmic slime!". Þessi ummæli eiga svo sannarlega við á þessum tímamótum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:05 ::

Vizzini: HE DIDN'T FALL? INCONCEIVABLE.
Inigo Montoya: You keep using that word. I do not think it means what you think it means.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:28 ::

Sagan af Sir KÍBalot og SpungeBoB III, esquire

Við Kíbster kíktum upp á Kaldadal á rjúpi eldsnemma á laugardagsmorgun. Kolli ætlaði að koma með en hann vildi ekki neitt "hardcore". Hvað sem það nú þýðir. Allvega, við renndum útúr bænum um hálfátta á Babe the Blue Ox eftir stutt stopp í Select, hvar saman voru komnir allir flóðar borgarinnar að byrgja sig upp af kaffi og kleinuhringjum.

Við vorum blessunarlega með fyrstu mönnum á svæðið, kortéri eftir að við lögðum bílnum var vegurinn orðinn eins og miklabraut, grínlaust.

Sindri var að vígja forláta tvíhleypu sem hann fastnaði sér í síðustu viku, eftir stífar bréfaskriftir og símafundi við skeggjuðu kellinguna á löggustöðinni. Og það er ekki hægt að segja annað en að vopnið hafi byrjað vel. Ca. mínútu eftir að við lögðum af stað flaug fugl undan barði fyrir framan Sindra og af alkunnri snilli negldi hann rjúpuna á flugi með fyrsta skotinu út nýju byssunni.

Við héldum göngunni áfram í gegnum kjarrbrúsk við veginn án þess að sjá fleiri fugla. Héldum svo inn lítið dalverpi. Skömmu eftir að við gengum inn dalinn gengum við framhjá einni sitjandi rjúpu. Sú var ekki allskostar sátt við að vera ekki virt viðlits og stökk upp á þúfi og baðaði út vængjunum. Kíberinn snéri sér við og steindrapana. Tuttugu mínútur, tvö skot, tveir fuglar. Ég var farinn að sjá hvert mitt hlutverk yrði í þessum túr...

Við héldum áfram inn eftir dalnum, sáum spor hér og þar en aldrei fugl. Innar í dalnum sáum við smá kjarr og ákváðum að þangað skyldum við stefna. Á leiðinni þangað var þó smá hóll, og eins og venjulega ákváðum við að ganga sitt hvorum meginn við hólinn, Sindir ofanvið og ég neðanvið. Þegar ég hafði gangið spölkorn sá ég glitta í Sindra, þá kominn hringinn. Ég rölti í áttina til hans og hóaði á hann en hann svaraði ekki kallinu heldur hleypur af stað með byssuna á öxlinni niður að kjarrinu. "Djöfussins frekja" hugsa ég, "Ekki nóg með að hann sé kominn með tvo fugla en ég engan heldur ætlar hann að sneika mig í kjarrið líka!" Ég reyndi að fylgja honum en hafði ekki í við hann, slík var yfirferðinn. Þá áttaði ég mig á að þetta gæti tæpast staðist, Rauði Snigillinn fer aldrei svona hratt yfir! Og viti menn, langt fyrir aftan þann sem ég taldi vera Sindra sá ég e-n þumbast niður hlíðina. Silalegt göngulagið þekkti ég um leið.

Það kom því í ljós að e-r hommi hafði keyrt upp fjallshlíðina hinummegin, lagt uppá dalbrún, séð brúskinn sem við stefndum á og ákveðið að stinga sér inn á milli okkar! Ekki nóg með það heldur var það hans fyrsta verk að fæla upp tíu rjúpur úr kjarrinu, freta útí loftið og strunsa svo áfram inn dalinn. Ég ákvað að kíkja í annan kjarrbrúsk og fæla upp mínar eigin tíu rjúpur, en þar sem ég er einungis veiðiþjónn en ekki veiðimaður hafði ég ekki einu sinni fyrir því að hólka út í loftið á eftir þeim.

Sindri sniglaðist niður dalinn á eftir Ben Johnson. Asinn á hlaupagikknum hafði verið svo mikill að það voru enn nokkrar rjúpur eftir í kjarrinu sem sindri fældi af stað, elti svo upp gil og drap aðra þeirra. *groan*. Ben Johnson hélt skemmtiskokki sínu áfram inn eftir dalnum án teljandi skothvella. Við Sindri hittumst aftur, átum nestið og vorum farnir að hugsa okkru til heimferðar. KÍB undirstrikaði veiðiþjónshlutverk mitt með því að heimta af mér helming skota minna, enda var hann að verða búinn með sín en ég hafði ekki svo mikið sem hleypt af einu skoti. "Jeeves, hand me your cartridges!" "Yes mylord"...

Á leiðinni til baka var ég að klöngrast upp á gilbrún þegar ég leit niður og sá rjúpu fljúga svo gott sem uppúr fotsporinu mínu. "Andskotinn, næsti fugl sem gerir svona gys að mér fær haglavönd í rassgatið, þó að hann sé á 300 metra færi". Ég hélt göngunni áfram og viti menn, þar sem ég gekk eftir barði flaug upp rjúpa sem ég hef örugglega gengið framhjá áður. Til að standa við orð mín fýraði ég á eftir henni án þess að henni þætti mikið til þess koma. Ég taldi mig þó sjá hana lenda nokkur hudruð metra í burtu og skokkaði af stað á eftir henni. Þar sem ég kem yfir urðarhollt sé ég að skyndilega er allt vaðandi í sporum. Eins og sannur indjáni rek ég nefið oní jörðin og reyni að fylgja sporunum. Sem endar náttlega með því að ég fæli upp hóp sem setið hafði kyrr ca fimm metrum fyrir framan mig og ég með nefið oní jörðinni sá ekki neitt fyrr en allt var um seinan. Svo hitti ég náttlega ekki skít. Ég sökka.

Ekki rákumst við á fleiri fugla þann daginn, sáum þó Ben Johnson freta eina niður.

Þegar við vorum komnir niðrí bíl renndi til okkar maður til að spyrja hvaða beitu við værum með og svona. Hann sagðist hafa talið 18 bíla í vegkanntinum fyrir ofan okkur. Auk þess væri Kíb aflahæstur af þeim sem hann hafði talað við, var sjálfur með eina eftir daginn.

Þannig fór um sjóferð þá, Kíbhjálmur Tell veiddi fuglana, ég bar skot og nestið.

Labels:

::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:21 ::

Skemmtilgt bíósamtal sem ég fann á netinu, enda sameinar það nördaskap og klifur:

I: Hello there. Slow going?

W: Look, I don't mean to be rude, but this is not as easy as it looks. So I'd appreciate it if you wouldn't distract me.

I: Sorry.

W: Thank you.

I: I do not suppose you could speed things up?

W: If you're in such a hurry, you could lower a rope, or a tree branch, or find something useful to do.

I: I could do that. In fact, I've got some rope up here. But I do not think that you will accept my help, since I am only waiting around to kill you.

W: That does put a damper on our relationship.

I: But I promise I will not kill you until you reach the top.

W: That's very comforting. But I'm afraid you'll just have to wait.

I: I hate waiting ... I could give you my word as a Spaniard.

W: No good. I've known too many Spaniards.

I: You don't know any way you'll trust me?

W: Nothing comes to mind.

Þykist nú svosem viss að kretínbræður þekki þennan hið snarasta, en samtalið er gott engu að síður.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 13:18 ::

Skrýtið, þetta er nákvæmlega það sem mig langaði til að segja við þig eftir að hafa lesið brandarann.
::KÍB skeit klukkan 13:16 ::

13.11.05

Brandari dagsins
Veistu hvað viðskiptabréfskrafan sagði við fölsuðu undirskriftina?

Þú ert meiriháttar!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:59 13.11.05 ::

12.11.05

Kofi annan í jólum

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 21:25 12.11.05 ::

Annar dagur í bizzarró world
Lenti í skemmtilegum mýeindum á Vegamótum í vikunni. Freyzi var að spá í að aflita varanlegað sitt (e. permanent) og fara í sprautubrúnku, hætta að borða og drekka vatn og gerast strippari. Haldiði ekki að eftir smá stund höfum við heyrt stelpurnar á næsta borði vera að ræða um strippara með aflitað hár. Úr varð hið skemmtilegasta samtal milli borða.

Sírnir veit hinsvegar ekkert um mýeindir, enda les hann ekki Andrés Önd.
::Hívatha litli skeit klukkan 17:11 ::

11.11.05

Seta fyrir Zorglúbb
Zeta fyrir Zorglúbb

Fróðleikur um setur.
::Hívatha litli skeit klukkan 22:10 11.11.05 ::

10.11.05

Mér finnst nú líklegra að þú hafir lesið þetta í einhverju andrésblaði svo heimskuleg er þessi skíta kenning þín. Þetta kemur mýeindum ekkert við enda ætti ég að vita það því ég er aðal mýeindavísundurinn. Þessi kenning þín er bara aumt yfirklór til að reyna útskýra það fyrir okkur hvers vegna þú talar alltaf eins og Mer-Man
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:32 10.11.05 ::

Hvenær fórst þú eiginlega síðast á snjóbretti?
það er augljóst að þú hefur ekki 2000's vit á mýeindum. Ég byggi mína lærðu kenningu á styrkum stoðum bókarinnar Lögmálin 7 um velgengni eftir Depak Chopra í þýðingu meistara Gunnars Dal. Þessi bók er biblía mýeindafræðinga og allt sem í henni stendur er satt.
Þú ert bara afturhaldshommatittur.
::The Satan of Death skeit klukkan 14:13 ::

Og Kolli heitir Mörður (í höfuðið á uppáhalds stjórnmálamanni sínum), sem sagt bræðurnir Hörður og Mörður Dummasynir.
::KÍB skeit klukkan 13:19 ::

Afar athyglisverð kenning með Voodo-Sex hjá Sírni en ég sé ekki alveg hvað mýeindirnar koma inn í þetta. Er Gírnir ekki bara að svennskilja mýeindir. Munum við þá bráðum heyra hann kalla Skabba skúm og hreykja sér af því þegar hann múnaði rúðuna bílnum hans Gölla og spurja hvort það verði einhverjir frændar í einhverju prattíi.

Aðöðrum málum. Hér með skjalfesti ég það að Krummi heitir hér eftir Hörður.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:08 ::

Æ garra hev more cowbell!
::Hívatha litli skeit klukkan 11:15 ::

Ok, nú er það vísundalega sannað að mýeindir eru til og þær séu mannshugans að beisla. Betri not en þessi hafa mér ekki ennþá dottið í hug, en hér kynni ég aðferðina. Meðan maður rúnkar sér, einbeitir maður sér af lífs og sálar kröftum að einhverri manneskju, sem þá verður var við það sem hlýju í klofinu eða hreinlega fær fullnægingu, það fer allt eftir því hversu næm sú manneskja er og hversu öflugur mýeindasendir rúnkarinn er. Þetta kallast Voodoo-Sex. Þessu má náttúrulega misbeita og er býsna óþægilegt þegar einhver tekur sig til og Voodoo-Fistar mann. En hugið helst að því að fáið þið hixta, þá er einhver að Voodoo-Ríða ykkur í kjaft.

Hinsvegar hefur ennþá ekki verið sýnt fram á ( með óyggjandi hætti ) að mýeindir geti flutt efni á milli staða. Þannig að ef þú ert blautur á milli rasskinnanna, eru meiri líkur á að þú hafir prumpað blautu en að einhver sé að Voodoo-Sleikja á þér rassgatið


Einusinni var Svenni með eitthvað fáránlegt Steina Pepp fetish og kom honum að í bröndurum eins og sinnepi í rjómatertu. Svo að hann gerðist fornleifafræðingur og fór til Ítalíu í fornleifauppgröft og gróf upp steingerða pepperónípulsu og stakk henni svo upp í rassgatið á sér, því hann vildi svo mikið hafa Steina Pepp þar.
::The Satan of Death skeit klukkan 01:55 ::

9.11.05

"Ég er í sjöunda himni"
Gullna sturtan
"Ég er í sjöunda himni með þessi verðlaun," sagði Kolbeinn Guðmundsson, veiðiþjónn, í samtali við fréttavef Morgunblaðsins um fimmleytið í dag, og var þá nýbúinn að veita Gullnu sturtunni, verðlaunum samtaka breskra veiðiþjóna, viðtöku. Hlaut Kolbeinn verðlaunin fyrir þjónustu sína við Steina Pepp fram á mitt síðasta ár, og var staddur í Lundúnum þar sem verðlaunin voru afhent í gömlu brugghúsi. Segir Kolbeinn að þar hafi saman komið fjöldinn allur af veiðiþjónum og -trúðum.

"Þessi verðlaun hafa gríðarlega þýðingu fyrir mig persónulega, sem veiðiþjón á Íslandi. Þetta hefur líka mikla þýðingu fyrir íslenska veiðiþjónustu, að vita að þó þú komir frá litlu veiðisvæði þá getirðu náð lengra en þú getur ímyndað þér. Síðan er þetta fyrir birgja mína hér í Bretlandi einhvers konar hjálpartæki til þess að finna nýjan þjón á mjög erfiðum markaði," sagði Kolbeinn.
::Hívatha litli skeit klukkan 01:33 9.11.05 ::

7.11.05

Kveiiiiiiisí, lagið er helvíti catchy líka!
::Hívatha litli skeit klukkan 22:35 7.11.05 ::

Ég heyrði því fleygt að það hefðu verið 3 kolsvartir apar í stofunni hjá Skabba á sunnudagsmorguninn. Gott prattí!

Kolli hefur sjaldan verið jafn skemmtilegur.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:33 ::

4.11.05

Versti karlsöngvarinn
Versti söngvarinn - Bob (Sírnir manstu eftir þessu djóki hjá Chad í RHCP? Geta má þess til fróðleiks að Chad sá hefur leikið á slagverk á yfir 100 plötum, án þess að Red Hot séu taldir með!) Damn - ég var að lesa frétt á Mogganum áðan um MTV-tónlistar verðlaunin (ís. PSV eða Poppsjónvarpið).

Fyrst sá ég að Gorillaz var valin besta hljómsveitin. Það er allt í læ, fínn diskur og skemmtilegt concept. Coldplay fékk verðlaun, fínt. Svo las ég að Robbie (Bob) Williams og Shakira voru kosnir verstu söngvararnir í karl og kvenhlutverkum. Fínt.

En svo sá ég myndirnar af þeim. Þau voru brosandi. "Vá" hugsaði ég, "djöfull taka þau þessu vel. Fara bara upp á svið og taka brosandi við skammarverðlaununum."

Mér til hryllings fattaði ég að þau voru kosin BEST.

*Andvarp*
::Hívatha litli skeit klukkan 01:00 4.11.05 ::

1.11.05

Flott auglýsing
GamanHvað gerist ef þú nærð þér í 250.000 skopparabolta, 23 camerur, óeirðabúninga á jafn marga kvikmyndatökumenn, nokkra bíla sem mega eyðileggjast og lokar heilu hverfi í San Fran?

Nú - þú færð flotta auglýsingu.
::Hívatha litli skeit klukkan 23:59 1.11.05 ::

Af gefnu tilefni

Nýlega hefur verið staðfest af merkilegu fólki að ég er meistari ykkar. Ég skipa ykkur því hér með að mæta í þrítugsafmæli mitt næstkomandi laugardagskvöld, þann 5. nóvember. Hátíðahöld og ræður verða fluttar á heimili mínu, Meistaravöllum.

Ef e-r svíkst undan þessu boði verður það túlkað sem yfirlýsing um eigin samkynhneigð. Ef bræður boða forföll getur það ekki þýtt annað en að þeir séu að fara á gate-8, sem er viðbjóður.


Lifið heil

He who masterbates Buffaloes
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 10:42 ::

Þið eruð fávitar
DR. Jóli says:
takk fyrir
DR. Jóli says:
skattarnir þínir eru að fara í barnabætur handa mér
::Hívatha litli skeit klukkan 10:24 ::

Myndefni á mán... ehh... þriðjudegi
Rauða hættan mættiSkellti nokkrum fartý myndum á askinn úr afmælinu.

Hér má svo sjá skemmtilegt myndbrot (vídjó-erlent) af Dan Osman, sem sumir kannast við úr TB myndunum. Hann sýnir hvernig menn klifra 400+ fet (122+ metra) af 5.7 klettaklifri (ágætlega erfitt) á 4 mín. 25 sek. Það er ansi magnað.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:51 ::

Skoða eldri færslur >>