30.12.05

Kjaradómur - stormur í vatnsglasi?

Erum við að einblína á aurana?Kjaradómur hækkaði laun forseta, ráðherra og fleiri á dögunum. Þetta hefur valdið miklum látum. Þetta er ódýr sjónhverfing sköpuð af fólki sem er í vinnu hjá okkur á Alþingi og skortir gjörsamlega hæfi til að vera þar.

Mestu lætin vegna dómsins stafa jú frá þingmönnum. Þeir vilja telja okkur trú um að þeir séu svo siðvandir og fari svona líka vel með peningana okkar.

Horfum í aurinn - köstum krónunni
Við horfum í aurinn þegar við borgum fólkinu sem rekur stærsta fyrirtæki landsins laun. Fólkinu sem ákveður hvað skattpeningarnir okkar fara í.

Mér reiknast til að útborguð laun þingmanna muni hækka um tæpan 23 þúsund kall, og nú eru þeir í tæpum 500 þúsund krónum á mánuði. Hvaða forstjóri myndi vinna fyrir þá upphæð? Eða millistjórnandi? Samt teljum við þetta í fullnægjandi fyrir að stjórna landinu.

Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé ástæðan fyrir því að þarna leynist misjafn sauður. En þetta er klárlega ástæðan fyrir því að okkar hæfasta fólk kýs ekki þessa leið, að reyna fyrir sér í stjórnmálum. Ávinningurinn er hreinlega of lítill.

Marga þingmenn skortir menntun og reynslu
Hafið þið skoðað reynslu þessa fólks?

Mjólkureftirlitsmaðurinn sem varð svo þingmaður og loks ráðherra. Skuggalegt. Eða kappinn með grunnskólaprófið og 2 ár í Stýrimannaskólanum sem skipti um flokk, fór í fangelsi, reis upp úr öskunni eins og fuglinn Fönix og varð velklæddur þingmaður. Eða ráðherrann sem svindlaði sér í stólinn sinn og dútlar sér við að eyða tugum milljarða af okkar fjármunum í atkvæðakaup/náttúruskemmdir/bruðl í sínu kjördæmi. Og enginn segir neitt. Á meðan fólk deyr í umferðinni þar sem þörf er úrbóta.

Dæmigerður viðskiptabanki myndi ekki ráða helminginn af þessu fólki sem þjónustufulltrúa. Samt kemst það á þing. Okkur vantar klárlega hæfara fólk í æðstu stöður ríkisins.

Kjaradómur fer að lögum
Kjaradómur starfar samkvæmt lögum. Hann er í raun ekki að hækka launin umfram þróun á markaði samkvæmt þeim viðmiðum sem dómnum er skylt að nota. Ef hann gerir þetta ekki er hann einfaldlega að brjóta lög.

Færa má rök fyrir því að í stað þess að vera með þessi læti þyrfti í raun að hækka launin umtalsvert umfram þróun á vinnumarkaði og reyna þannig að losna við góðan skerf af þessu liði. Þannig væri hvati fyrir hæfara fólk að hasla sér völl á þingi.

Til að setja hlutina í samhengi
Fyrir andvirði Héðinsfjarðarganga (að því gefnu að þau standist áætlun) mætti greiða hverjum og einum þingmanni 116.666.667 króna eingreiðslu vs. 23.000 krónur á mánuði með hækkuninni nú.

Ekki kaupa bullið sem þetta fólk er að selja ykkur.

Ítarefni
::Hívatha litli skeit klukkan 17:44 30.12.05 ::

Veit hrokafulli vísundurinn best?

Ég hef aðeins verið að hugsa um Intelligent Design (ID) og þessa fáránlegu rökræðu í USA um að kenna hana í skólum sem alternatíf við þróunarkenninguna. Aðal röksemdarfærsla ID manna er að lífið er of flókið til að röð tilviljana hafi komið þessu öllu af stað og það hljóti að vera einhver alvitur Gasse sem er með puttana í þessu ferli. En einmitt þegar ég er að býsnast yfir því hversu vitlausir þetta fólk er þá laust eldingu í hausinn á mér og ég gerði mér grein fyrir hræðilegri staðreynd. Það er þyngra en tárum taki (wtf þýðir þetta annars?) að afhjúpa þá staðreynd að þetta er nákvæmlega það sem við myéindafræðingarnir höfum notast við til að sanna og útskýra hið stórmerka fyrirbæri.
Þegar ég stend hérna frammi fyrir því að heimsmynd okkar er að hrynja hef ég tekið afstöðu og hafna þróunarkenningunni þrátt fyrir allar staðreyndir sem benda til annars. Ég get bara ekki annað.

Pú á Darwin smarwin og hans kumpána.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:12 ::

Árslistinn 2005 - bestu plöturnar

Jæja - henti saman árslista fyrir rjómann, ég gerði reyndar líka svona lista hér á vonlausa í fyrra og Sírnir tók áskorun og henti saman sínum lista.

Það er búið að koma út fullt af skemmtilegu stöffi. Flokkað í innlent erlent núna

Innlent
#1 Sigurrós - Takk
Magnaður á köflum, nær samt ekki Ágætis byrjun. Frábærir tónleikar í Höllinni.

#2 Hjálmar - Hjálmar
Svipað, magnaður á köflum, restin ekki jafn góð. Kannski 3 lög sem verða klassík í iTunes hjá mér.

#3 Deep Jimi And The Zep Creams - Deep Jimi And The Zep Creams
Er reyndar enn að transa þennan en varð bara að koma smá rokki hérna inn. Styðja við þá sem rokka. Rokk, rokk, rokk er á undanhaldi eins og spunatæki með sama nafni.

Númer 4-8 er ég búinn að hlusta aðeins á en ekki nógu mikið. Leyfi þeim að fljóta með en veit að ég á eftir að fíla þá enn betur eftir smá hlustun í viðbót. Baggalútur er bara svo fyndinn og flott pródúseraður. Emma er æði en soldið *geisp*

#4 Ampop - My Delusions
#5 Baggalútur - Pabbi þarf að vinna
#6 Hermigervill - Sleepwork
#7 Worm is green - Push Play
#8 Emilíana - Fisherman's Woman

Erlent
#1 Bright Eyes - I'm Wide Awake, It's Morning
Sjitt hvað ég er búinn að hlusta mikið á þennan disk. Efst á scrobbler. Hr. Oberst er magnaður leikmaður. Ótrúlegur tónlistarmaður og lagahöfundur.

#2 Foo Fighters - In Your Honor
Herra Gról er fokking rokk goð. Ekki bara nördalegur lúði í blárri rúllukragapeysu fyrir aftan Kúrt. Tónleikar nr. 2 voru reyndar miklu síðri, kannski bara af því að þetta voru tónliggar nr.2. Samt gott. QOTSA fokkuðu reitt.

#3 Gorillaz - Demon Days
Ok - ég hélt að ég myndi aldrei segja þetta en Damon Albarn er snillingur. Hann sannar það - gerir þessa með alveg öðru krúi. Fær De La, Tribe og alla uppáhalds kallana mína til liðs við sig. Einu gallar að sumt er ekkert spes. Fire coming out of the monkeys ass (hehe - djók) er t.d. einnota lag, þrátt fyrir að það sé geðveikt að hafa Dennis Hopper á plötunni sinni. Ég elska Dare, Dirty Harry og fleiri lög.

#4 Bullet For My Valentine - The Poison
HVAÐ Í HELVÍTINU VARÐ UM RIFFIÐ??? Þetta eru snillingar sem eru að taka tæknilega riff-metalinn inn í 21. öldina. Welskir og þeirra fyrsta plata. Bjöggi og Skabbi eiga heiðurinn af þessu. Hittu einhverja útlendinga á Airwaves sem héldu ekki vatni yfir þeim og gáfu mér plötuna í afmælisgjöf.

#5 Queens Of The Stone Age - Lullabies to Paralyze
Einfalt og töff eyðimerkurrokk. Hittarar og sumt verra. Kannski aðeins síðri en Söngvar fyrir heyrnalausa.

#6 Antony an the Johnsons - I Am A Bird Now
Vá. Magnaðir tónleikar líka í Fríkirkjunni. Ég var í leiðslu.

#7 Spoon - Gimme Fiction
Nei - ekki sú spoon.

#8 White Stripes - Get Behind Me Satan
Góð - Elephant er betri. Er Meg Einar Örn? Elska ég hana? Hata ég hana? Ég veit það ekki. Hún er ekki betri trommari en ég. Og ég kann ekki á trommur.

#9 Architecture in Helsinki - In Case We Die
Þau eru skemmtileg. Líka læf á IA.

#10 System of a down - Mezmerize
Gaman að því hvað þeir byggja lögin skemmtilega upp, frekar einfalt og hrátt en ferlega kúl kaflar og klæmöx. Rosa tilfinningaþrungið þungarokk hlaðið merkingu. Þeir eru ekki sáttir við ástand mála - réttilega.

#11 Franz Ferdinand - You Could Have It So Much Better
Æi ekkert spes.

#12 Coldplay - X&Y
Fix you live in Camden skilar þeim 12 sæti. Það finnst mér töff lag.

#13 Bright Eyes - Digital Ash in Digital Urn
Hann gaf út 2 í einu strákurinn. Önnur er klassík. Þessi er ekki klassík.

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 13:39 ::

15% afsláttur

Vonlausa styrkir Björgó


Ykkur til handa, kæru vinir, sem ætlið að vera svo rausnarlegir að styrkja hið góða starf björgunarsveita hér í landi, set ég hér inn afsláttarmiða. Þið fáið 15% afslátt af kílóverðinu ef þið prentið þennan fagra miða út og framvísið honum.

::Hívatha litli skeit klukkan 12:48 ::

Misskilningur eða bull

Tja - nema kannski í Kína. Það eru líka vondir menn sem selja flugelda annarsstaðar. Þeir nenna aldrei að bjarga neinum. Og svíkja svo herlegheitin undan skatti svo að þú fáir engar barnabætur.

Ljótu snakkvitarnir.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:44 ::

Skarnhéðinn og skúnkurinn

En það eru til miklu ódýrari flugeldar annars staðar.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:41 ::

Styrkið Björgunarsveitirnar

Vona að menn kaupi púðrið á réttum stað (ekki af KíB ;) svo við höfum efni á að bjarga fólki og verðmætum á næsta ári.

Takk!
::Hívatha litli skeit klukkan 02:03 ::

27.12.05

Fundur spiladeildar

Snæper - stæner?...var haldinn í gær. Hin besta skemmtan. Spilað var í Casa Lu Kretin, fyrst Trivial Pursuit - nýja útgáfan. Nýja spilið er nokkuð gott, spurningarnar nokkurn veginn af hinum gamla standard, ekki current C myndir og eitthvað kjaftæði eins og síðast. Hinsvegar eru alltof fáar spurningar, aðeins 1800 stykki. Voru 6 þúsund í fyrstu útgáfu að ég held.

Þá skelltu menn sér í létt LAN, reyndar eftir miðnætti, en sjitt hvað það var gaman. Spiluðum Call of Duty 1, meðan Fabían sinnti actual call of duty. Við vorum með honum í anda. Djöfull er þessi leikur magnaður.

Meira svona!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:06 27.12.05 ::

Gamall sannleikur

Byrja á því að taka fram að ég er alveg sammála - en hvað olli þessari skyndilegu hugarfarsbreytingu?
::Hívatha litli skeit klukkan 02:20 ::

Ég er geit

Vil að lýð sé það ljóst að ég er aumasti faggi vonlausa, og algjör lydda. Tapaði líka í Trivial í dag.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 00:58 ::

24.12.05

Gleðileg jó!

Til hamingju með jólin kæru vinir mínir. Þetta er nú búið að vera hressandi ár, túrinn í Stóru var klassi, við Sindri fórum alveg vonlausa ferð í einhvern poll, einhverjar rjúpur tíndust í hús og fínerí.

Mætingin í Sumarferðina var slöpp, lordinn og aulameðlimurinn Stæner. Sem er skítt því hún verður haldin í sunnarlega í Asíu næsta sumar.

Klifurdeildin gerði víðreist í sumar, fór meðal annars í frækilega för í Héðinsfjörð og á Hraundranga, ásamt fleiri og meiri afrekum hérlendis og erlendis.

Næst á dagskrá er að halda 10 ára árshátíðina og skal hún vera sú glæsilegasta hingað til og hananú!

Læt fylgja með þessa fallegu mynd af mér, sem er tekin á Héraði fyrir nokkrum dögum. Maður getur verið í jólaskapi þó maður sé á veiðislóð.

Gleðileg jól elsku vinir.

Take that Mr. Rudolph
::Hívatha litli skeit klukkan 02:40 24.12.05 ::

22.12.05

Gölturinn stígur í eigið beikon

Ef ég man rétt þá sat Gölli einmitt heima hjá sér á fínu laugardagskveldi, spilaði LOTR Trivial og drakk allskonar sortir af brennivíni.

Mjöðmin ætlaði hins vegar að skella sér út á lífið óafvitandi að þetta væri einhverskonar dungeons and dragons sausagefest.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 01:23 22.12.05 ::

Mjöðmin er slímugur njörður

Það gerist ekki mikið verra en að sitja heima hjá sér á fínu laugardagskveldi, spila LOTR Trivial og drekka allskonar sortir af brennivíni.

LOTR Trivialið góða og allskyns brennsi
::Hívatha litli skeit klukkan 01:12 ::

Tónlist - redda

Getur einhver reddað mér Carpet My Apartment með Blinking Numbers, ég er búinn að leita að einu lagi af þessari plötu allstaðar...
::Hívatha litli skeit klukkan 00:54 ::

21.12.05

Góð hugmynd?

MillonDollarHomePage er náttúrlega bara snilld en af hverju virkar þetta. Af hverju vill einhver auglýsa þarna og af hverju datt mér þetta ekki í hug?

Sjá nánar á mbl.is
::KÍB skeit klukkan 13:58 21.12.05 ::

Nú er svo sannarlega kominn dómsDagur

DómsDagur
::Hívatha litli skeit klukkan 13:47 ::

Loksins, loksins

Forritið sem allir voru að bíða eftir: TimeSnapper
::KÍB skeit klukkan 11:51 ::

20.12.05

Xfm Album Cover Quiz jólin 2005!

Nú er vinnudagurinn ónýtur mar - smelltu til að taka þátt
::Hívatha litli skeit klukkan 13:59 20.12.05 ::

Sad story

This is a sad story about four people named Everybody, Nobody, Somebody and Anybody. There was an important job to be done and Everybody was sure that Somebody would do it. Anybody could have done it but Nobody did. Somebody thought Anybody could do it but Nobody realised that Everybody wouldn´t. It ended up that Everybody blamed Somebody when Nobody did what Anybody could have done.

It ends up that Everybody congratulates Somebody when Anybody can do what Nobody could have done before.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:39 ::

Allir eru lúðar nema ég

Ég var að fara nördast big tæm en hætti svo við því þið kunnið aldrei að meta skemmtilega hluti. By the way þá rústaði ég LOTR trivial og sannaði enn og aftur að ég ber höfuð og herðar yfir ykkur alla í öllum gáfumannakeppnum.

KÍB er sviksamur svikari.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 00:54 ::

19.12.05

American Splendor

OK, ég horfði á myndina American Splendor í gær. Hún er stórfín. En það sem er meira um vert er að nú get ég svarað kvimyndagetraun Kára frá 27. október. Tilvitnunin er einmitt úr téðri mynd, American Splendor, þar sem þeir sitja í bíl og ræða um hvort Revenge of the Nerds sé besta mynd í heimi. Sem hún vissulega er.

Kíb er sviksamur svikari.
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:05 19.12.05 ::

17.12.05

Faðir andanna

Faðir andanna

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 20:07 17.12.05 ::

16.12.05

Íslensk fjöll ómerkileg?

Rakst á frétt sem mér fannst mjög fyndin á sínum tíma. Besta línan er;

Aðdraganda ferðarinnar má rekja til þess að í kjölfar göngu Ferðaklúbbs Skýrr á Hvannadalshnúk í júní 2003 þótti hópnum enginn íslenskur tindur nógu merkilegur til uppgöngu og var þess vegna farið að horfa til verðugri verkefna á erlendri grundu.


eða...

Við byrjuðum mismunandi snemma á Diomoxinu. Sumir byrjuðu strax þegar við lögðum af stað en aðrir ekki fyrr en við um eða yfir 3000m.


Ljótt að heyra. Þýðir víst ekkert að klífa fjöll hérlendis. Verst hvað það er dýrt að fara alltaf út.

Fréttin á mogganum
Ferðasaga Team Skýrr
::Hívatha litli skeit klukkan 22:00 16.12.05 ::

Fréttir úr kýrhausnum

Þeim sem hafa efni á að halda sérlegu áhugamáli sínu, sinfóníunni, uppi, var boðið á Sinfóníutónleika á dögunum. Við hin, sem höfum ekki áhuga á Sinfóníunni, en borgum samt líka, var ekki boðið.

Svo er planað að byggja stórt stórt hús undir Sinfóníuna og sambærilegt. En þar má önnur tónlist ekki vera. Eða svo segir ráðherra / eiginmaður eins sinfóníuleikarans.

Í öðrum fréttum sagði framsóknarmaður í fréttum að það þýddi ekkert að lækka tolla og skatta á matvæli, því ríkið þyrfti hvort sem er þessar tekjur. Þær yrðu þá bara teknar annarsstaðar ef álögum á matvæli yrði breytt.

Damn - þar fór það.
::Hívatha litli skeit klukkan 18:26 ::

Fleiri fasistareglur

Núna megið þið líka nota boxið "Title" sem birtist í editornum til að búa til fyrirsögn. Það eykur vellíðan, bætir hressir og kætir.

Góðir fundir.
::Hívatha litli skeit klukkan 16:43 ::

Blogger er þroskaheftur

Varúð - ef þú hefur ekki áhuga á tjúningum á bloggsíðum ættir þú ekki að lesa þessa færslu. Þig gæti langað að deyja á eftir.

Bloggerinn hefur boðið upp á í nokkurn tíma að búa til sér html síðu úr hverri færslu. Slíkt er t.d. sérlega gott ef við viljum linka beint á færslu, það hefur alltaf verið hálf grillað með því að gera það á mánaðar archive síðu. Einnig ætti þetta að leiða til þess að leit á vonlausa yrði öflugri, vefurinn á að indexast miklu betur svona. Núna er sem sagt dagsetningin tengill á permanent URL, sér síða á færslu.

Blogger er hinsvegar algjör þroski. Taggið BlogItemPermalinkURL er notað í þessu samhengi en ég uppgötvaði mér til hryllings að þar inni var full slóð, ekki bara mappa/fæll. Fór eitthvað að grafa og fann út á endanum að þetta tagg sækir upplýsingar í Settings > Publishing > Blog Url, sem er aðal urlið á bloggið. Þeir gera sem sagt ekki ráð fyrir því að menn séu að vesenast með template í slóðinni, líkt og við erum að gera.

Ég þurfti því að subba inn þarna http://www.vonlausa.org/main.php?content_page=/

Ef skástrikið kemur ekki þarna á eftir tekur blogger þessu sem fælnafni og sleppir því. Forritun Mjaðmarinnar leyfir þetta sem betur fer.

Þannig að núna virkar sjálfsagt ekki linkar sem tengjast stjórnkerfinu í bloggernum, svo sem á síðunni þegar maður er búinn að posta og svo framvegis.

Góðar Hrundir.
::Hívatha litli skeit klukkan 14:22 ::

Sírnir vondi

Sírnir keypti klósettpappír til styrktar djöflinum í gær.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:56 ::

Steypa

Skilur einhver hvað Gírnir er að steypa?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:57 ::

Rukníl

rukníl
Tónlistarnördar this!
það fyrsta sem ég sá var að það vantaði "s" í skiltinu þar sem vísað var til hjómsveitarinnar The Virgins.

en tékkið á ruknílnum og veitið sérstaka athygli línunni þar sem nöfnin Omar og John koma saman.

fleira í tónlistarfréttum, það er aldrei að vita nema að það séu nokkur lög af Virgins demóinu tilbúin, ég hlakka til að heyra.
::The Satan of Death skeit klukkan 00:48 ::

15.12.05

Tónlistarnörd allra landa

Behold!

Smelltu til að stækka kvikindið
[Hér eru rúmlega 70 hljómsveitarnöfn falin - smelltu til að stækka]
::Hívatha litli skeit klukkan 19:02 15.12.05 ::

Hvítt rapp?

Geta hvítir menn rappað?
::Hívatha litli skeit klukkan 18:23 ::

Úff, maður

...og ég sem hélt að þessi "brandari" yrði aldrei sagður aftur.
::KÍB skeit klukkan 15:25 ::

Marsípan

Labels:

::Hívatha litli skeit klukkan 14:10 ::

14.12.05

Fleiri sjokkerandi fréttir

Goggi yngri segir að það hafi ekki verið gjöreyðingarvopn í Írak. Hvern hefði grunað...?
::Hívatha litli skeit klukkan 19:05 14.12.05 ::

Sjokkerandi fréttir

Hlutur kvenna við gerð Kárahnjúka er rýrari en karla, samkvæmt nýrri rannsókn. Einnig eru færri konur refaskyttur, færri konur í fangelsum, á frystitogurum, færri strætóbílstjórar, færri svokallaðir "tölvunördar", leigubílstjórar, prestar og loks eru mun færri konur á götunni en karlar, eða "rónar".

Ég skrifa þetta á fegurðarsamkeppnir.

Öll fréttin
::Hívatha litli skeit klukkan 15:02 ::

E-r kretíndvergur sem hvorki kann að skrifa potetmos né Bamsemums
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 14:42 ::

Gáta dagsins

Hver er líklegur til að hafa sagt;

Nudler og potetmus mmmmmmmmmmmmm. Svo skellum við kannski með einum bangsemoms í desert.
::Hívatha litli skeit klukkan 13:54 ::

Hlutgerving á körlum

Perra ÍslandVerkefnastjórar baráttuárs karla 2005 mótmæltu heillaóskaskeyti Halldórs Ásgrímssonar til Ólafs Geirs Jónssonar þegar hann var kosinn Herra Ísland. Eddi Jónsson er einn verkefnastjórinnsem undirritaði yfirlýsinguna. Fréttaritari Vonlausa náði tali af Edda.

Af hverju senduð þið mótmæli við skeyti forsætisráðherra?
"Vegna þess að okkur finnst ekki réttlætanlegt að senda þetta í nafni þjóðarinnar, þar sem skiptar skoðanir eru um keppnir á borð við Herra Ísland."

Af hverju ertu mótfallin keppninni?
"Mér finnast fegurðarsamkeppnir vera hlutgerving á körlum. Verið er að ýta undir að þeir séu fallegir en ekki eitthvað annað."

Hvaða áhrif hefur krýning Ólafs Geirs sem Herra Íslands?
"Ég held að þetta sé ákveðin afturför. Í mínum draunaheimi myndu karlar ekki vilja taka þátt í fegurðarsamkeppni og því væru slíkar keppnir ekki til. Þetta eru slæm skilaboð til ungra karla og kvenna um að meta karla út frá fegurð en ekki út frá því fyrir hvað þeir standa að öðru leyti."

Hvaða áhrif heldur þú að þetta hafi á unga stráka?
"Mér hrýs hugur við að vita af litlum strákum sem vilja verða eins og Ólafur Geir, liggja í krabbameinsbekkjum, slétta á sér hárið, plokka augnabrýrnar og brjóstkassastækkun.Þetta ýtir undir átröskunarsjúkdóma sem hrjá stóran hluta ungra karla, enda ástæða fyrir fjöldauppsögn ræstitækna í framhaldsskólum vegna útældra klósetta.

Þá finnst mér ótrúlegt að Fjölbraut á Suðurnesjum hafi óskað honum til hamingju. Þótti það merki um að sú akademíska stofnun væri að leggjast lágt.

Eitthvað að lokum?
"Mér finnst Herra Ísland frekar ömurleg leið til að ýta undir staðalmyndir sem við karlar erum fæstir færir um að standa undir. Mér finnst full þörf á að reyna halda öðrum gildum að ungum körlum en að upphefja sífellt útlitið."
::Hívatha litli skeit klukkan 12:27 ::

Hah! Ég vissi að þetta hefði bara verið elaborate gabb.

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði að helför gyðinga á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar væri þjóðsaga ein og flytja ætti gyðingaríkið til Alaska.


Loksins þorir einhver óháður að segja sannleikan um málið, góð hugmynd líka að flytja Ísrael á einhvern jökul.
::Mósagrís skeit klukkan 09:55 ::

Jólakveðja

Jólakveðja ala Vonlausa
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 09:47 ::

13.12.05

Ha? ef þú værir að borða sjálfan þig?
::The Satan of Death skeit klukkan 20:34 13.12.05 ::

Kóngur kóngur

Svar 1) Kolbeinn hefur löngum átt samræði og samræður við ákveðinn líkamshluta sinn. Þeir eiga í svokölluðu sadó-masó sambandi. Stundum öskrar Kolbeinn í hita leiksins: "Hver er kóngur kóngur" og svarar hann þá að bragði (ímyndað að sjálfsögðu): "Þú ert kóngur kóngur!".

Síðan gefur Kolbeinn honum raflost, bzzzzzzz, og kúkar í þvagskál. Very twisted kids.

Annað svar, svar 2), með hjálp PSP: Kóngur (e. King / d. Kong) => King Kong, fjölþjóðlegt fjúsjon af spilltum pabbastrák sem selur myglað mjöl verður að stórum loðnum apa sem leikur í vondri bíómynd.

Ef ég væri að borða steik myndi ég segja:

"Góðar lundir"
::Hívatha litli skeit klukkan 20:08 ::

Gáta

Hver er kóngur kóngur?
::Drjóli von Dork skeit klukkan 16:30 ::

Gölli framleiðir tyggjó
::Drjóli von Dork skeit klukkan 12:43 ::

12.12.05

Hnatthlýnun

Hnatthlýnun
::Hívatha litli skeit klukkan 16:07 12.12.05 ::

Reyndu að ljúga aðeins líklegar hálfviti. Allir vita að þetta er eitthvað sem ég mundi aldrei gera enda er þetta ekki heima hjá mér. Djöfull hlakka ég til að komast heim að skíta á eftir.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 14:27 ::

Hei, muniði þegar Kolli kúkaði í pissuskálina á Úlfljótsvatni.
::Mósagrís skeit klukkan 11:36 ::

10.12.05

KK ferðast
Gaman samanKata og Kristín eru að fara í sex mánaða reisu (úff hvað er hægt að misskilja þetta á marga vegu) til S-Ameríku.

Hægt er að fylgjast með þeim og linkur kominn í hómís.

Ótrúlega töff hjá þeim!
::Hívatha litli skeit klukkan 19:06 10.12.05 ::

9.12.05

Kolbeinn er fíbbl og knýtingaskúrinn hans er ljótur.

Þú máttir ekkert eiga flugurnar mínar.

Að öðru. Ég fór í sund í morgun, mér til heilsubótar. Eins og flestir vita er ekkert nema gamalt pakk í sundi á þessum tíma, ráfandi um grunnu laugina og mígandi
í pottana. Allavega, þegar ég var að fara uppúr var krú af gömlum köllum að gera gott grín í búningklefanum, segjandi brandara og svipandi hvern annan í tortuna með blautum handklæðum. Allir í góðu gríni og ég verð að segja að í smá stund kveið ég því ekki jafnmikið að verða gamall, ef mar getur verið í svona góðu gríni þangað til mar verður 110 ára. Svo rann það upp fyrir mér að ástæðan fyrir því að mér þótti þessir gömlu kallar skemmtilegir er náttlega sú að þið, hinir svokölluðu vinir mínir eru svo viðbjóðslega leiðinlegir að prumpandi gamlir kallar í versturbæjarlauginni eru hátíð í samanburði. Þið sökkið, sérstaklega kolli.

Góðar brundir
::Miltisbrandur Jonsson skeit klukkan 16:03 9.12.05 ::

Knýtingarfréttir
Eftir gott session í gær þá eru komnar 10 flæðarmýs, en því miður þarf að halda áfram því flæðarrotturnar hans Skabba komast ekki í gegnum niðurskurðinn. Krummi gerði svo eina ljóta og við ákváðum að segja að hún sé líka verk Skabba til að sverta ekki orðstír kretínbræðra.
Svo er bara að knýta 20 púpur og þar sem ég er púpupabbi þá fer ég létt með það.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 11:32 ::

8.12.05

Kolli - potaðu í augað á þér með glóandi járnfleini
Skabbi penti mér á ógeðslega fyndin viðtöl í podcast, inni á rockclimbing, geðveikt viðtalið við Steve House. Svona fyrir rottur sem lesa þessa síðu. Fílaða!
::Hívatha litli skeit klukkan 15:01 8.12.05 ::

Rölti í smá jólagjafainnkaup niður á Laugaveg áðan, rakst á Kolla og Krumma. Svo sem ekki í frásögu færandi, nema af því að Kolli var í ömmukjól af ömmu sinni og Krummi var í tjull pilsi, einhverskonar ballet dóti. Ég kunni ekki við að spyrja nánar út í þetta, en þeir töluðu fjálglega um handsnyrtingu.

Góðar sprundir!
::Hívatha litli skeit klukkan 13:36 ::

Nú er nóg komið helvítis ódámurinn þinn. Stofnaðu þína eigin síðu ef þú ætlar að halda áfram að vera með svona skít. Vonlausi á að vera vettvangur skitkasts og leiðinda út í aðra, athyglisverðar vísindauppgötvanir okkar og veiðitengt efni. Ég er alfarið á móti því að VVV sé gerður að einhverjum gay Göllavef. Svo á að vera bannað að enda póstana sína á orðunum 'Góðar stundir'

Góðar stundir faggar!
::Drjóli von Dork skeit klukkan 13:24 ::

Baggalútur, baggar á samfélaginu og aðrir hobbitar.
Baggalútur er búinn að gefa út aðventulagið sitt og jólalagið. Aðventulagið í fyrra var náttúrulega mesta snilld í heimi. Held að það verði alltaf á jólalistanum. Frábær live útgáfa í Kastljósi.

Baggar
Horfði á Skuggabörn eftir Reyni Trausta áðan. Fróðlegt að heyra afslappaða dópista segja aðeins frá sinni reynslu, þó grunnt hafi verið. Myndin ekkert spes en contentið ágætt.

Hobbitar
Kíkti á myndasýningu hjá Ívari Finnboga áðan. Hann reyndi við Pumori, sem hefur kostað 3 íslendinga lífið, en þurfti frá að hverfa er leiðangursstjórinn ákvað að aðstæður væru of hættulegar. Ívar fékk þó sárabót, skellti sér á Íslendingafjallið Island Peak, en þar hafa t.d. Himmi, Jón Heiðar og Freyzi stigið fæti. Iceland Peak?

Vinnan = gubb síðustu daga. Einkunnir úr skólahobbý komnar í hús, gekk nokkuð vel. Ef engin klúður verða eftir jól ætti þetta að vera þokkalegt. Mæting var ekki til fyrirmyndar og undirbúningur hefði mátt vera meiri. Núna get ég samt kennt vinnunni um lélega mætingu, ekki bara sjálfum mér. Ég er ekki frá því að mér líði betur með það. Svei mér þá, ég er bara duglegur.

Búinn að komast að því að ég lærði bara að taka próf í Háskólanum. En ég er ágætur í því.

(Þetta er að verða eins og eitthvað jólabréf - hvað er málið?)

Framundan...
Annars er Gígjökull planið á laugardaginn, síðan Afrósýning í Borgarleikhúsinu og ammæli hjá Herman Münster. Gott kvöld.

Síðan er stefnan sett á El Chorro í byrjun janúar, hvar verður klipið í klett.

Góðar stundir.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:55 ::

7.12.05

Að beka horn
Þegar kindur voru leiddar til slátrunar og hausinn tekinn af, voru hornin oft söguð af. Ef hornið var brotið af áður en sögin var komin í gegn, þurfti að sverfa til hornið og var þá talað um að "beka" hornið.

Að beka heimasætu
Áður fyrr fóru ungir menn á milli bæja með grasið í skónum til að stíga í vænginn við heimasætur. Ef þeir settust niður í túnfæti fyrir framan bæinn þannig að lítill hóll eða hátt gras gerði það að verkum að ekki sást til þeirra, sögðu heimamenn oft að verið væri að beka stúlkuna. Ef sást til þeirra frá bænum, á sögnin ekki við.
::Hívatha litli skeit klukkan 12:50 7.12.05 ::

6.12.05

Hriktir í stoðum trúar minnar
Jólasveinninn ferðast um allan heiminn á einni nóttu og færir börnum allstaðar jólgjafir, þetta vita allir og hefur þetta verið marg rætt og flensað. Til þess að ná þessu markmiði sínu beitir hann ýmsum trikkum og þá helst "í kringum heiminn á 80 dögum" daglínu trikkinu, og líka súperman fljúga rangsælis um jörðina til að láta tímann fara afturábak. Allt þetta efast enginn um. Það sem veldur mér hugarvíl eru fulltrúar hans hér á landi, eins og íslendinga er vandi þá mergsjúgum við öll svona samvinnuverkefni og skipum á okkar litla sker 13 fulltrúa, sem sjálfsagt fá sendiherralaun allt árið þótt þeir vinni aðeins 1 dag á ári. En þetta er ekki það sem þvælir mig, jólasveinarnir koma til byggða. Hvar er byggða!
Allt í lagi, gefum okkur að Stórreykjavíkursvæðið sé byggða. Hvað með Akureyri? Eða ísafjörð? Selfoss má fara í rassgat, en Hveragerði og Höfn, Egilsstaðir!!! Nú þykir mér eiga koma til kasta byggðastofnunar hinnar traustu og óspilltu að finna jafnaðarlega lausn á deilingu jólasveina á byggðir landsins. Nóg er komið af frekju höfuðborgarinnar. Ríkisútvarpið á Siglufjörð!!! Alþingi á Stapa í Keflavík. Þetta jólasveinaklúður er upphafið að byltingunni!! Friður, Jafnrétti, mannsæmandi leikskólar svo að við þurfum ekki að ala börnin okkar upp sjálf!!! byltingin BYLTINGIN!!! Og að jólasveinarnir gefi líka fullorðnum í skóinn.
::The Satan of Death skeit klukkan 15:02 6.12.05 ::

Svampur Halldórsson
Bjórinn drakk og áhrif fann,
vínið mér í vitund rann.
Ferskeytlu með rími kann,
kerlingarnar vildu hann.


-Rúnar Ómarsson
::Hívatha litli skeit klukkan 14:53 ::

4.12.05



Skemmtilegu jólakort vonlausa fást nú í öllum betri nýlenduvöruverslunum. Takmarkað upplag.
::H.H. skeit klukkan 20:11 4.12.05 ::

3.12.05

Af útsölu (e. sellout) tónlistarlegs metnaðar
Hver á þessi góðlátlegu rokkaugu?Stóra sellout stundin rann upp í gær. Skrýddist hárkollu, gegnsærri silfurskyrtu, spandex kokkabuxum, ljótasta leðurjakka í heimi, andlitsmálningu eins og um dragsýningu væri að ræða og fleiru skemmtilegu. Spilaði svo lög sem bolurinn fílar.

Spiluðum 24 lög fyrir 500+ manns í helvíti góðu kerfi og sándi. Gekk fínt. Síðan duttum við í afmælispartý meðlims Svartra fata til að kóróna allt og tókum nokkur lög þar. Það var svolítið fyndið að spila Nakinn (nei - ekki allsber) með þá gaurana fyrir framan sig.

Þá var haldið í byen. Það er fyndið að fara á djammið með eyeliner. Fórum inn á nokkra staði, trommuleikari og góður drengur úr vinnunni minni og undirritaður Hívaþa. Kofinn er sniðugur, 22 er skemmtilegur, Pravda er ógeð með ljótu fólki. Starfsfólkið þar eyddi miklu efforti í að passa að við værum ekki með húfur uppi meðan klósettin voru viðbjóður. Fólk spurði merkilega lítið um andlitsmálninguna hjá okkur, bara spurður hvort maður væri hommi af og til. Og svaraði því að sjálfsögðu játandi.

Setlisti (ekki endanlegur reyndar):

1 BÍÓ-lagið
2 Hungry like the wolf
3 Waterloo
4 Call me
5 Ryksugulagið
6 Nakinn
7 Livin' on a prayer
8 Jenny Darling
9 Kósíheit par exelans (Baggalútur)
10 Snjókorn falla
11 Hátíðarskap
12 Ég sá mömmu kyssa jólasvein
13 Ég hlakka svo til
14 I was made for loving you
15 Tequila
16 Blindsker
17 Sódóma
18 Disco Frisco
19 Deililah
20 Orginal
21 Hiroshima
22 Total eclipse of the heart
23 In my dreams

Til samanburðar eru svo 23 lög sem ég hef hlustað mest á síðastliðið ár samkvæmt scrobbler.

Generated: Saturday Dec 3
1 Bright Eyes - From a Balance Beam 51
2 Bright Eyes - Lover I Don't Have to Love 48
3 Hjálmar - Hljóðlega af stað 43
4 Ice Cube - It Was a Good Day 38
5 Hjálmar - Bréfið 35
6 Faith No More - Midlife Crisis 32
7 Zwan - Number of the Beast 29
7 Hjálmar - Borgin 29
9 Coldplay - Fix You 27
10 Gary Jules - Mad World 26
11 Tricky - Black Steel 25
12 Bright Eyes - Method Acting 24
12 Bright Eyes - A Line Allows Progress, A Circle Does Not 24
12 Antony and the Johnsons - Hope There's Someone 24
15 Bright Eyes - Going for the Gold 23
15 Modest Mouse - Ocean Breathes Salty 23
15 The Arcade Fire - Neighborhood #1 (Tunnels)
18 Bright Eyes - You Will. You?Will. You? Will. You?Will. 21
18 The Arcade Fire - Crown of Love 21
20 Megadeth - Back in the Day 20
20 The Arcade Fire - Neighborhood #3 (Power Out) 20
22 The White Stripes - Black Math 19
22 The White Stripes - Seven Nation Army 19
22 Foo Fighters - Monkey Wrench 19

Hmm - ekki alveg eins. Ef iPod væri inni í þessu væru Tool, Deftones, Slipknot og fleiri góðar rokksveitir ofar á blaði.

Góðar stundir.
::Hívatha litli skeit klukkan 19:41 3.12.05 ::

1.12.05

Kolli, Skabbi og hinir knýtararnir á góðri stundu að knýta
::Hívatha litli skeit klukkan 16:13 1.12.05 ::

Skabbi er hér með rekinn með skit skömm úr knýtingarklúbb vonlausa. Það er engin eftirsjá af þeim arma knýtara sem dró okkur hina niður með illa knýttum og foxljótum flugum.
::Drjóli von Dork skeit klukkan 15:01 ::

Viltu vinna kúl sjitt?
Jóladagatal ÍSB komið í loftið. Fullt af iPod Nano og ferðavinningum með Icelandair. Þeir sem eru í viðskiptum við þrjóta og bófa geta bitið í analinn sinn og borgað Krumma laun næstu 8 mánuði.
::Hívatha litli skeit klukkan 10:19 ::

Magnað lineup, farðu á midi.is kl. 10 og keyptu miða!

Ekki á hverjum degi sem HAM, Sigurrós, Damien og Lisa, Damon Albarn og fleiri góðir gestir spila saman - gaman.
::Hívatha litli skeit klukkan 00:58 ::

Skoða eldri færslur >>