Vonlausar veiðiferðir > Ferðir 2000

Föstudagurinn 20. okt til 22. okt - Norðurland - Fabian, Kobbi, Giggús og Krummsi

Webmaster bárust 2 bréf með tillögum um breytingar á þessari ferðasögu;

1) "Svenni, þú þarft að breyta textanum þannig að allstaðar þar sem stendur Guðni á að standa ´The Kike' og allstaðar þar sem skabbi talar um sig í fyrstu persónu á að standa 'The Spunge' afþví að Skabbi var algjör afæta í þessari ferð.(eins og alltaf)"

2) THIS MEANS WAR! Ef við ætlum að hafa þetta svona heimta ég að kretínbræður komi fram undir þeim nöfnum sem foreldrer þeirra gáfu þeim, þe kretíndvergur 1 (kolli) og kretíndvergur 2 (krumpi). Þeir eru svo ljótir að það tók því ekki að gefa þeim alvöru nöfn. Þeir eru bara kallaðir kolli og krummi svo að þeir fatti sjálfir hvor er hvað.

Fabian skrifar:

"Öndvegisferð mar

Það fengu allavega allir fugl þó svo að þeir hafi ekki verið margir á hvern. The Spunge trónir með höfuð og herðar yfir aðra í ferðinni með tvo fugla, tvöfalt á við alla aðra. En The Spunge heldur að við getum ekki verið annað en sáttir, miðað við fjölda fugla sem við urðum varir við.

Við vorum náttúrulega svo ótrúlega skynsamir að við hrundum íða með The Kike á föstudagskvöldinu, létum eins og fífl í bænum af því að við héldum að enginn myndi þekkja okkur. Hittum Jón Teit og Sylvíu inni á stað þar sem við vorum alveg að eipa í einhverjum fáránlegum viðreynsluleik, allir flissandi og garrandi. Mjög sniðugt. Kretíndvergur 1 og The Kike fóru svo á strípistað hvar The Kike fékk sér 12.000 króna lappdans hjá svartri kellíngu. Gerðum árangurslausa tilraun til að halda uppi einhverju kvennafari á Dátanum. Við féllum ekki í góðan jarðveg. Fórum allir að sofa milli 5 og 6, vökknuðum klukkan 8. The Kike var svo þunnur að hann þurfti að stoppa á leiðinni til að æla. Kretíndvergur 1 var líka að drulla á sig af þynnku og hausverk allann daginn. Hehe.

Fyrri daginn keyrðum við að xxxfjalli sem er skammt frá xxx. Við ætluðum að fara á staðinn þar sem The Kike fór um síðustu helgi og sá fullt af fugli en hann var of þunnur til að geta keyrt lengur. Þar skutu kretínbræður einu fuglana sem við sáum lengi vel. Að auki var svo einn fugl sem stökk upp hjá þeim bræðrum og flaug í burtu, fram hjá okkur The Kike, sem hefði fræðilega verið hægt að skjóta ef við hefðum allir verið tilbúnir.

Annars var ekkert um að vera þar. Um kvöldið keyrðum við svo í xxxdalinn til afa og ömmu þrátt fyrir að amma hefði sagt mér að ekkert hefði sést þar af fugli allt haustið. Við byrjuðum sunnidaginn á hálftíma hæki upp á dalsbrúni sem gekk næstum fram af mönnum. Þegar upp var komið skaut The Kike einn sitjandi fugl. The Spunge skaut skömmu seinna einn fugl sem gægðist upp bak við stein. þá flaug annar upp sem hafði verið alveg í hvarfi en ég hitti hann ekki í seinni skotunum. The Kike klunnaði svo einum sitjandi fugli sem var reyndar að mestu í hvarfi bak við stein.

Svo sáu Kretíndvergur 1 og Kretíndvergur 2 (Krumpi) tvo fugla miklu seinna niðri í skóginum sem voru ljónstyggir og flugu lengst í burtu. Undir lok dags fældi The Kike upp einn fugl sem flaug framhjá The Spunge og The Spunge skaut. Þegar The Spunge skaut sáu strákarnir tvo fugla fljúga upp e-sstaðar á bak við mig og beila í burtu. Annars sáum við ekkert af fugli. Og þykir það sæta tíðindum á þessum slóðum. En veðrið var brill báða dagana og gangan skemmtileg.

Vorum komnir í bæinn um 2 í nótt. Þannig fór um sjóferð þá"

Laugardagurinn 14. okt til 16. okt - norðvesturland - Svep/Fab/Renis

"Viðgerðir og veiðiskapur"

Mættum galvaskir á laugardagskveldi. Komnir út í birtingu. Frekar súrt veður. Við göngum í fjóra tíma án þess að sjá kvekindi. Svo er ákveðið að færa sig um set. Á leiðinni brotnuðu 4 af fimm felguboltum á vinstra framhjóli. Þetta þýddi 4 tíma viðgerð í leðju, bleytu, slyddu, rigningu, kulda og viðbjóði. En allt gekk þetta að lokum og við keyrðum restina af helginni með 3 felgubolta hvoru megin að framan. Þegar við komum á staðinn sem við ætluðum að veiða á voru 3000 manns þar. Þetta er inni á eignarlandi og það voru milljón kallar að veiða þarna í óleyfi. ÞEIR SEM VEIÐA Í ÓLEYFI ERU FÁVITAR. ÞETTA ER ALLT MERKT Í BAK OG FYRIR. FÍFL. Svo mætir maður á staðinn og getur ekki einu sinni veitt á sínum veiðistað því það eru svo margir þar. Hvað er að fólki. Svo náðum við ekki rassgati en sumir kallarnir voru að taka helling inni á okkar landi.

Um kvöldið fórum við í sundferð sem var í stíl við restina. Kellingin á fyrsta staðnum nennti ekki að opna sundlaugina fyrir okkur. Þá var keyrt 50 kílómetra í hina áttina. þar var enginn pottur en við létum okkur hafa þetta. Síðan var brunað heim og grillað. Vegna vonskuveðurs ákvað Skabbi kokkur að nægilegt væri að snúa lærinu á 15 mín. fresti. Sem er rétt ef þú fílar KOL.

Mánudagurinn heilsaði okkur með ógeði. Við sváfum frameftir vegna veðurs. Svo lagaðist þetta og við fórum út. Sama sagan - fullt af köllum og fáar rjúpur. Sveppes tók eina á flugi sem Renis spottaði en labbaði of nálægt. Svo fréttum við af fugli í nálægri hæð og keyrðum þangað Fabian var gríðarlega æstur að stökkva út á leiðinni. Afráðið var að við hittum hann uppi á hæðinni, ca 4 km í burtu. Síðan keyrum við þangað en nennum ekki að sitja í bílnum. Löbbum af stað með ekkert dót, skildi meira að segja skotin eftir. Eftir nokkra metra sjáum við 2 fugla. Skjótum á þá og minn liggur. Skjótum báðir á hinn þegar hann flýgur í burtu. Hann lendir skammt frá og Sv nær honum þar. Renis fær svo 2 en þegar Fab kemur í bílinn er hann ekki með neitt nema hælsæri. Verðlaun Schweppes fyrir fyrstu veidda rjúpu voru restin af Coco Popsinu og fyrir flestar rjúpur restin af ísnum (sem bráðnaði á leiðinni í bæinn). Mjög skemmtilegur túr samt þrátt fyrir alla óheppnina.

Föstudagurinn 29. sept til laugardags - Fabian, Sveppi, Kobbi og Giggús.

Borgarfjörður

Fullt af gæs en vildi bara ekki láta skjóta sig.Eina almennilega flugið kom í kaffinu. Fjórir helsingjar læddust upp að okkur hljóðlaust og voru alveg að koma yfir okkur þegar Sveppi "hawk-eye" spottar þá og segir "FUCK" í stað þess að gefa greinarbetri lýsingu á aðstæðum. Kleinuhringirnir og kaffið fara í skurðinn. F&S ná að skjóta, F yfir Kobba sem fær sjokk, en ekki vill betur til en þeir skjóta báðir sama fluginn. (S aðeins á undan). Kobbi missti líka kaffið sitt og kleinuhringinn, situr í skurðinum og reynir að átta sig á aðstæðum. Afraksturinn ein gæs, betra en að koma með hólkinn heim í rassgatinu.

Laugardagurinn 23. sept - Fabian og Giggús.

Suðurland

Drengirnir fela sig í hrossastykki inni í stafla af rúlluböggum. Það er ekki mjög snjallt því þeir heyra stanslaust í gæs en geta ekki gáð. Ákveða á endanum að færa sig og sitja í móanum. Þeir fá flug og F nær að hamra eina niður. Giggús ákveður að hreyfa sig lítið. Svo lendir hópur 100 metra í burtu. Þeir sitja grafkyrrir í klukkutíma meðan gæsirnar rölta nær og nær gervurunum þeirra. Ná tveimur þar. Spurning um að henda þeim úr klúbbnum fyrir að veiða eitthvað í gæsatúr.

Helgi fyrst í september - Fabian, Sveppi, Giggús.

Miðhálendi Íslands

S&F mæta í hús á föstudagskveldi, sjá dótið hans G sem kom að norðan og hamra út að leita gæsa. G hafði farið í langan labbitúr um svæðið, kemur til baka og sér ekkert af dótinu okkar. Við keyptum matinn - hann var orðinn svangur. Svengdin hlýtur að hafa verið mikil því í stað þess að hinkra rýkur kappinn í höfuðstaðinn, étur köku þar og fer að sofa. Án þess að segja okkur. Þegar við komum í skálann aftur er bláókunnugt fólk í herberginu þar sem draslið hans G var. Við öskrum: "Hvað gerðuð þið við vin okkar, ha? Morðingjar!" Nema hvað - hann kemur svo á laugardeginum sem við notum til að skópa svæðið. Tökum tíðindalaust kveldflug. Morgunflug - þá situr hópur 200 metra frá allan morguninn og loks þegar við missum þolinmæðina og reynum að læðast fljúga þær strax. Svo fórum við í langan labbitúr um svæðið og fengum eina sæmilega færið í ferðinni í honum en náum engu. Rosa skemmtileg ferð samt.

Mánaðarmótin júlí/ágúst - Scwepp, Kobbi, Ría - seinna mættu McRenis, Brynni, Fabhéðinn, Gírnir, Daníel Atli, Þóra og Tjörvi.

Silungaferð fyrir vestan

Áttum snilldarkvöld þrjú - frábært veður. Síðan var farið að veiða um morguninn. Ekki leið á löngu fyrr en þvílíkt skemmtileg 4 punda bleikja tók á hjá S, Ría setti líka í hefðbundna silunga. Síðan mættum við F&B á fæti á leiðinni upp með á. Höfðu komið með McRenis en hann ákvað að fara að sofa úti á verönd í sólinni (og svefnpokanum sínum) í stað þess að veiða. Hann svaf restina af ferðinni og segir ekki meira af honum.

Restin af ferðinni einkenndist af helling af fólki, Daníel hans Gírnis, að Fab 5 Skabbi kom ekki með mat og át silunginn hennar Ríu, miklu stuði og GRÍÐARLEGA góðum kvöldmat - rauðvín og alles, lítilli veiði, og ótímabæru beili flestra úr tiltektinni. Sannir sgádar. Frábær ferð samt, gott veður, góður matur og félagsskapur.

1999 - Fabian, McRenis, Giggús, Scwepp

Gæsaferð vestur

Ég man ekkert rosalega vel eftir ferðinni. Gæsin var ekki komin í túnin og við vorum eitthvað að reyna hér og þar. Borgaði sig á sunnudagsmorguninn þegar Giggús (að ég held) lá undir algengri flugleið sem við vorum búnir að spotta. Náði einni þar. Góður matur. Skoða eldri færslur >>