Vonlausar veiðiferðir > Borgarfjörður

15. september til 16. september - Scweppes, McRenis og Veiðifasistinn

Schweppes skrifar:

Vonlaust mauv í Borgarfjörðinn

Þið vitið hvernig það er að vaknaaf einu af þessum djömmum þar sem tekið var ótæpilega á og Sírnir er heima hjá ykkur þegar þið vaknið. Þetta var þannig laugardagsmorgun. Svo þurfti ég að fara og skátanördast. Maður er nú eiginlega aldrei súr, sérstaklega ekki miðað við suma aðra limi vonlausa, en eftir miðjan dag fór að síga á ógæfuhliðina. Sírnir hætti að vera fullur og ég fór að éta paratabs eins og ópal (ekki afsprengi Tjörva þó.)

Gummi spottaði okkur líka strax úti í heimili, enda hlaut hann nafnbótina Navy Seal í þessum málum áður en hann fór á eftirlaun. "Hnuss - hnuss - Af hverjum er kaupstaðarlykt hérna?"

Ergó: Maður var semsagt ekkert stórfenglega upplagður en illa graður að fara í veiðiferð.

Lagt í ´ann

Veiðifasistinn var tekinn að æsast mjög og hafði ég aðeins um 5 mín til að bakka áður en hann var mættur í innkeyrsluna að býsnast yfir því hvað ég væri með mikið drasl. Hehe.

McPenis var líka kominn yfir. Fínt að ferðast með svona drífandi mönnum sem þarf ekki að bíða eftir! Nema hvað - Giggús var svo þunnur að við þurftum að keyra vískípela heim til hans svo hann gæti afrétt sig fyrir partý kvöldsins. Hann kom semsagt ekki með.

Kolli sem oft hefur nú kallað aðra tzjéllingar fyrir að beila á veiði beilaði. Hmmm... tveiiiiiir plús tveeeiiiiir eru jafnt og TZJÉLLING! Þóttist ætla að fá að vita hvort eitthvað væri í túnunum og hringja seinna...?!? Ömurleg afsökun fyrir því að mega ekki fara út. Hann hringdi náttúrulega aldrei.

Sekkur

Sem Skarphéðinn var að býsnast yfir því að hafa misst af geðveikum mat hjá mömmusinni í Applehúsinu mundi ég að m+p voru uppi í Borgarfirði, thus Sekkur. Hringdi og þau höfðu ekki séð tangur né tetur af neinum fiðurfénaði. Þá fór matarástin í veðifasistanum að ná yfirhöndinni og hann lángaði ósköp mikið heim til mömmum. Við Renis náðum þó að plata hann með svona casual "okkur er svosem alveg sama en höfum svosem ekkert betra að gjéra en að fara í veiði" attitúdi. Veiðifasistinn náði fyrri veiðisannfæringu, sagði fokkitt og keyrði beint á KFC í Mosó. KFC ERU FÍFL AÐ TAKA EKKI MAESTRO. Og það er vond lykt, læti og tægjur í kjúllaborgurunum þeirra. Samt verzlar maður þarna. DJöfull getur maður verið mikið fífl. Þetta lið er að casha inn á því að skyndibitamatur er svo ómerkilegur að minningin um hann fer beint í ruslið. Maður er eins og gúbbífiskur á skyndibita. Syndir alltaf á glerið. "DJöfull er þetta ógeðslegt, aldrei hingað aftur." Labbar út og allt er samstundis farið. "Stoppa í Borgarnesi? Fá okkur einn grísí táfýlubúrger?"

SKABBI ER ÖMURLEGUR Í RISK

Keyrum uppeftir og hendum gervurunum út á tún. Sáum ekki JónSkít á svæðinu. Pabbi talaði þó um að hafa séð nokkrar á bænum við hliðina eftir að hann talaði við okkur. Húsið þarna er orðið steikt flott, ógeðslega næs að vera þarna. Pottur og allt, þó að verkfræðingnum tækist ekki að koma honum í gang.

SKABBI ER ÖMURLEGUR Í RISK - var ég búinn að segja ykkur það? Ég viðurkenni reyndar fúslega að ég tapaði fyrra riskinu vegna eigin heimsku þegar ég gleymdi að ég þarf að hafa 2 kalla á hverju af 18 löndum til að vinna, tók bara 24 og sagði hehehe. Fífl.

En hinu klúðraði veiðifasistinn fyrir mér og ekki síst sjálfum sér þegar hann ákvað að McRenis Penis með N- og S- Ameríku og Evrópu væri nú miklu minna threat en Svenni Nasisti með Afríku. UURRRGGHHH. Ég býst ekki við að maðurinn eigi nokkurn tíman eftir að viðurkenna að innri röksemdafærslan hafi hlotið eitthvað skammhlaup þarna en það bara var þannig.

...ég hefndi mín á honum með því að hrjóta svo mikið að hann svaf ekki alla nóttina :p

Veiðin

Við heyrðum í nokkrum gæsum um kvöldið, sennilega niðri við á og náðum að smeygja inn nokkrum bjartsýnisstigum við það og dissa Kobba smá. Morguninn eftir duttu allir í gang á réttum tíma og við vorum komnir út í first light. Veðrið var ótrúlega fallegt, kalt, og sólarupprásin ein sú flottasta sem sést hefur. Ætli maður sé oft úti að horfa á sólarupprásina kl. 5 á morgnana venjulega reyndar? Jæja, við sáum ekkert aksjón lengi vel. Fengum reyndar nokkur álftaflug. Djöfull eru þetta ótrúlega mikil flykki. Þær eru eins og flugvél. Þvílík læti í vængjatökunum líka. Þær sáu okkur engan veginn þannig að við þóttumst ágætlega camóbúnir.

Bíða og bíða og bíða og bíða. Veiðifasistinn er farinn að ókyrrast. Við löbbum þangað sem við sjáum vatnið og heyrum þá í gæsum niðurfrá svo greinilega að ekki verður um villst. Hröðum okkur út í skurð. Svo er aftur beðið. Veiðifasistinn fer í annan labbitúr. Við Renis setjumst upp á skurðinn og fáum okkur kanilsnúð og kókómjólk en eins og allir vita er það öflugasta tálbeita veiðimannsins. Nema hvað, þá sjáum við 2 gæsir á hraðflugi töluvert í burtu og hoppum oní skurð. Þær láta þvílíkt gabbast og sem betur fer var veiðifastistinn með á nótunum og hafði leitað skjóls. Þessar tvær tóku stóran sveig og renndu sér inn til lendingar hjá okkur. Við felldum þær í einu skoti á mann. Sindri þurfti svo reyndar að plamma á eftir sinni eftir að hún var komin niður. Skabbi kom til baka og var reyndar ekkert brjálaður yfir að hafa misst af þessu. Hann er náttúrulega með fulla frystigeymslu af þessu niðri við höfn og ætti eiginlega að vera rekinn úr Vonlausa fyrir of góða veiðimennsku.

Við biðum aðeins lengur, dottuðum smá, og fengum svo loksins að líta dýrðina. Á sama tíma tóku sig upp ca 150-200 stk frá ánni. Himinninn var svartur af flugum. Öll voru þau á straujinu upp að vatninu. Þær voru allt of snjallar að taka Exodus pakkann á þetta því að þá hafa geltir á borð við okkur aðeins eitt tækifæri. Eitt kom sæmilega nálægt okkur. Þær sáu okkur um leið og við stóðum upp og bremsuðu með fullum loftbremsum. Þetta var alltílæ færi, ekkert spes, ca 8 stk. Nema hvað, við klunnuðum þessu allir. 3 á kjaft og öll geiguðu. Við Gabbi vorum meira að segja að hlunka á sama fuglinn. Enda tókum við skotæfingarnar í sumar ekki jafn mássívt og sum hinna fyrri ára og áttum þetta bara skilið. Eftir þjóðflutningana miklu var lítið að gerast og við ákváðum að kalla þetta dag.

Ég og Gabbi lögðum okkur aðeins en nú bar svo við að fótboltafasistinn var kominn upp í McRenis og rændi hann svefni svo hann fór að skrúfa saman borð. Síðan var bara tekið saman og mauvað. Fín ferð. Rosa gaman og þeir sem mættu ekki eru tzjéllingar. Seinna... Skoða eldri færslur >>