Vonlausar veiðiferðir > Kollabúðir

Helgin 7. september til 9. september - Sóló Svenni og Eyvi bróðir hans

Schweppes skrifar: Um helgina kíkti ég vestur og veiddi aðeins þar. Mætti á svæðið eftir brilliant innflutningspartý hjá Johnny Spunge á föstudagskveldið (þar sem hann meðal annars braut vaskinn sinn með rassgatinu þannig að vatn sprautaðist út um allt).

Við Ása komum þarna um 4 leytið. Þá voru á að giska 150 stykki af gæs (kannski fleiri) í túninu fyrir innan húsið. Ég startaði rafstöðinni og henti dótinu inn og rúllaði svo inn í dal. Veiddi 3 silunga á veiðistaðnum við Selið (litla kofann) af klöppinni á mjög stuttum tíma. stærsti var 2 pund. Vildi ekki eyðileggja staðinn þannig að ég hætti eftir það. Þarna er oftast silli en gaf sig samt ekkert um síðustu helgi. Veiddist reyndar ekkert þá. Það sem af er hefur komið 1 lax og tæplega 100 silungar. En áin byrjar náttúrulega ekki fyrr en í byrjun ágúst. Síðan tíndum við slatta af bláberjum sem eru hlunkstór þarna.

Síðan var grillað og ég grillaði 2 af silungunum. Henti út gervurunum og svo var náttúrulega farið alltof seint að sofa.

Eftir ca. 2 tíma svefn drullaðist maður á labbir með hausverk og magaverk osfrv. Eyfi opnaði hurðina fram á gang um leið og ég - 5.000 frípunktar til hans fyrir að vakna. Skabbi lánaði galla og rússneska einhleypu svo að hann gæti gerst aukameðlimur í vonlausa. Síðan röltum við út í bunker.

Félagarnir eru búnir að byggja snilldarbunker þarna. Hann er niðurgrafinn með þaki og er það tyrft. Pallettur í gólfinu svo að það lofti undir. Þarna er algjör snilld að vera, enda var ég algjör veiðifasisti og húkti þarna í 5 klukkutíma.

Veðrið hafði breyst til hins verra, orðið lágskýjað (hálfgerð þoka) og rigndi. Við komum okkur fyrir og biðum. Ekkert gerðis fyrr en amk. eftir 6.30. Þá fór einhver hreyfing að koma á liðið. Quickening varð ekki hjá öllum hópunum sem voru þarna en það var ágætis hreyfing í gangi á tímabili. Það var frekar seint. Það lítið var í gangi að nýjasti aukameðlimurinn í Vonlausa náði góðum lúr og sýnist mér að hann sennilega verða eftirsóttur veiðifélagi af McRenis.

Skemmst er frá því að segja að einhverra hluta vegna voru gæsirnar bara á flakki í hlíðunum sitt hvoru megin í dalnum á berjamó. Höfðu greinilega engan áhuga á að fara í túnið. Við náðum að plata tvær gæsir til okkar (með vinkilbeygju og öllu) en þær komu bara í frekar leiðinlegt færi. Ég stökk á fætur og pundaði á þær en hef líklega hrætt Eyfa meira en þær. Þær flugu allavega í burtu. Vona bara að þær hafi sloppið ómeiddar.

Síðan tók mikið af gæsunum sig upp úr hlíðunum eftir að lítið akjsón hafði verið og flugu upp á heiði. Eftir það var eiginlega bara njónaraumferð og stöku flækingur. Einn slíkan náði ég að gabba eftir að Eyfi gafst upp og gat þá drullast heim. Þá var klukkan orðin 10 en við vorum mættir í byrgið kl. 5. Þessi var bara eitthvað ein að dúlla sér og ég kallaði á hana. Hún kom og lenti beint fyrir framan mig. Hún hafði verið á blindu svæði, þ.e. var að fljúga á svæði sem ég sá ekki út úr byrginu en ég var að kvabba á móti henni. Svo birtist hún bara allt í einu eins og þyrla fyrir framan mig. HLUNK. Mér fannst eiginlega hálf asnalegt að skjóta hana svona á jörðinni. Fannst eins og það hefðu liðið 5 mínútur meðan ég var að miða á hana og allt það (þó að það hafi sennilega verið nær 5 nanósekúndum). Hún var ekkert að kveikja á aðstæðunum.

Það sem eftir var dags var nánast ekkert um gæs í dalnum. Þær hafa skellt sér í berjamó upp á fjall. Enda var mjög milt veður. Þarf sennilega bara smá frost. En staðurinn er hreinasta snilld. Gæsirnar eru orðnar vanar að sjá bunkerinn og svo sest maður þarna í myrkri - engin breyting fyrir þær.

Aðeins 1 silungur kom á land þennan dag þrátt fyrir að margir væru að reyna. Það var Dagur sonur hennar Evu Eyfa. Nokkrir laxar sáust á efra svæðinu og ég held að við þurfum að drulla okkur og tékka aðeins á þeim og gæs. Nú fer bestasti tíminn þarna í hönd. Skoða eldri færslur >>