Ferðasögur > Roskilde Festival 2001

Þriðjudagur 26. júní

Fyrsti dagurinn: dagurinn hófst klukkan 5 um morguninn þegar ég reyndi að koma mér á lappir enda á minni ábyrgð að koma öllum sekkjunum úr rekkjunum og út á flugvöll. Tókst á endanum að komast fram úr með smá hjálp. WBOS komust út á flugvöll á tilskyldum tíma en Skabba tókst að hefja ferðina WGOS enda var það á hans ábyrgð að koma með flugmiðana út á völl! Löng saga stutt: flug til Kastrup - lest til Köben, Fleimerarnir bættust í hópinn - lest til Roskilde - lest á hátíðarsvæðið - labb um tjaldstæðið þar til hið fullkomna pláss var fundið ... CAMP WBOS Founded!!! Tjöldum skellt upp og öllu dótinu dreift inn í þau. Síðan rölt niður á aðalbrautarstöð Roskilde og þaðan lest aftur til Köben - Strætó í Stínu og beint í poolið. Þar renndi ég mér á spýtu sem mest ég mátti fram á kvöld. WBOS létu sig hverfa hressir ( þó að það hafi reyndar verið ábyrgðarleysi af minni hálfu að leyfa þeim að fara einum ) og stuttu seinni kom Hrólfur og renndi sér með mér þar til ég hélt aftur til Roskilde og renndi mér niður á hátíðarsvæði. Komst að því að WBOS höfðu ítrekað villst á leiðinni og voru rétt sestir þegar ég kom eftir óþarflega langa ferð. Ég ropaði eins og risaeðla og hló síðan bjór áður en ég fór að sofa.

Miðvikudagur 27. júní

Hitti Hrólf um morguninn og þau Iðunn fóru niður á strönd. Mæltum okkur mót síðar um daginn en það mót átti eftir að verða afdrifaríkt ... dumm dumm dumm dumm! Fengum okkur Hapsdog "for old times sake" og fleira gott á hróarskeldusvæðinu en almennt tóku WBOS fremur rólegt chill og keyptu sér stóla. Fór síðan til köben að hitta Hrólf. Hittumst í Fredriksburg, nánar tiltekið í aðstöðu "Köbenhavns skater community" eða eitthvað svoleiðis sem er þetta fína pool rétt hjá Zoologiske have. Skeituðum og skeituðum og fórum en þá ver ég ekki lengur með símann minn og krakkarnir sem höfðu verið þarna á bak og burt. Þagar reynt var að hringja í símann var barasta skellt á og síðan var hann utan þjónustusvæðis. Var brjálaður í örskotsstund en tók mig svo saman í andlitinu keypti mér símakort á aðalbrautarstöðinni, hringdi heim ( var einmitt svo heppinn að einhver var heima því fjölskyldan var öll í utanlandsferð ) og lét loka kortinu. Þvínæst dreif ég mig aftur á hróa til að sjá hvort WBOS væru nokkuð WGOS. Það voru þeir aldeilis ekki og við vorum allir í góðum fíling, spiluðum dauðaspaða og fengum Ole nágranna með í leikinn. Skabbi dansaði tvo dvergadansa og Sírnir hljóp út á stíg. Kolli átti sigur kvöldsins og hljóp alla leið út í Service Center East og datt um stag á leiðinni. Ástæðulaust er að taka fram að þeir gerðu þetta allt saman berir, hressandi það. Hitti hressa dani sem fannst mikið til lokahlaupsins koma og hékk með þeim mestallan afganginn af kvöldinu. Sat þó skyndilega upp einn eftir að hafa talað við úllingana í næsta tjaldi og gerði því dauðaleit að fólki sem ég þekkti og vissi nokkurn vegin hvar var. Greinilega ekki nógu vel því ég hitt nokkur sett af íslendingum en engan sem ég þekkti. Fór því niður í WBOS kampið til að búa mig undir svefninn. Fékk símann hans Skabba lánaðan því ekki gat ég látið minn vekja mig, stillti hann á 07:00 og steinsofnaði.

Fimmtudagur 28. júní

Rankaði við mér klukkan að verða hálf átta. Hef þá liklega verið búinn að snúsa 4 - 5 sinnum. Dreif mig fram úr og renndi mér af stað niður í bæ. Tók síðan lest niður á Hovedbanegården og kom mér vel fyrir ofan við brautarpallinn við spor 3 og 4. Beið og chillaði og chillaði og beið. Þóttist síðan eftir doltinn tíma sjá manneskju sem ég kannaðist við. Við gengum frá dótinu hennar Ingu Hrundar í geymsluskáp og héldum inn í bæ. Fengum okkur að borða á Burger King þar sem meirihluti bæði starfsfólks og viðskiptavina virtist vera íslenskur. Ég gat ekki klárað Double Whopperinn minn. Gengum síðan um á strikinu og reyndum öðru hvoru að hringja í Bjarna Vilhjálmsson en hann hefur víst slökkt á símanum sínum meðan hann sefur. Fór í Games og keypti mér tvo Hakki Sekki og vona að þeir endist árið. Skoðuðum margt en keyptum fátt og enduðum á því að ná í Bjarna og fara í heimsókn til hans, fá hjá honum lyklana og síðan drifum við okkur niður á brautarstöð að sækja stöffið hennar Ingu og síðan með lest til Roskilde og með strætó á hátíðarsvæðið. Strax þegar á hátíðarsvæðið var komið hófst sú undarlega hefð að hitta Hrólf og Iðunni á ólíklegustu stöðum reglulega á hátíðinni en þau voru einmitt það fyrsta kunnuglega sem við sáum inni á svæðinu. Heilsuðum og fórum síðan í tjaldbúðina okkar og komum okkur fyrir. Fengum okkur bjór eins og var að sjálfsögðu þegar orðin lenska svona um miðjan daginn og chilluðum og biðum eftir fyrstu áhugaverðu tónleikunum. Klukkan 18:30 stundvíslega: DEFTONES var þar með Skabba og Ingu þangað til um 7. Þá kvaddi Inga og fór til að sjá alla Placebo tónleikana. Eftir að Deftones höfðu lokið sér af fór í Græna tjaldið til að sjá sem mest af Placebo. Eftir þá tónleika var host í WBOS kampinu og drukkinn bjór ( einhver var ekki viss um að hún gæti skemmt sér nóg á næstu tónleikum allsgáð ). 22:30: TOOL. Klikkun! Afgangurinn af kvöldinu eins og gengur: glaumur og gleði í góðra ( og nýrra ) vina hópi.

Deftones

Þó að ég hafi séð þá '98 þá voru þeir eitt af því sem ég hlakkaði mest til að sjá. Og þeir brugðust ekki væntingum mínum! Hráir, harðir og persónulegir tónleikar. Chino fær mann altaf til að líða eins og nánasta vini sínum og hljómsveitin var þétt og í góðum fíling. Stóð líka á góðum stað þar sem allir voru í stuði og gat notið hörkunnar í tónlistinni til fullnustu. Rookfullnæging þegar Maynard kom og tók með þeim Passenger. Djöfull er það gott lag!!! Fyrsta flokks tónleikar!

Placebo

Önnur hljómsveit sem ég var búinn að bíða eftir að sjá. Ég var ekki í sama hardcore stuðinu eins og á Deftones en hljómsveitin var mjög þétt. Sándið súper enda hljóma sveitir oftast betur inni í tjöldunum en úti á stóra sviðinu. Horfði með andagift á þegar þeir spiluðu Every You Every Me, Pure Morning og ( uppáhaldsið mitt ) Special K. Aðrir stórgóðir og ég sáttur!

TOOL

*andi gripinn á lofti* ... það er einhver svo rosaleg útgeislun frá þessari hljómsveit að það er ekki nokkru lagi líkt. Ótrúlegt lúkk á þessu öllu. Maynard bar við skjá sem sýndi groovie myndbönd allan tímann og hljómsveitin var að rokka. Stærðin og útiveran hafði ekki nokkur áhrif á sándið hjá þessum meisturum. Ótrúleg upplifun og ekkert meira um það að segja!

Föstudagur 29. júní

Vöknuðum einhverntíma um morguninn og gerðum mest lítið nema að pissa og borða ( og kannski bursta tennurnar ) áður en við héldum á fyrstu tónleika dagsins. Við Inga fórum í hvíta tjaldið og sáum Briskeby en aðrir WBOS fóru svosem ekki neitt. Eftir Briskeby tókum við stöðuna á vestari hluta tónleikasvæðisins og fengum okkur Nachos á Gringo Bar ( held ég ... nema að það hafi verið seinna, þessu slær öllu saman í teflonheilanum ). Fórum aftur í WBOS kampið og komumst að því að WBOS sátu þar enn að sumbli og ætluðu bara að "heyra óminn" af Hellacopters enda vorum við mjög nálægt græna tónleikatjaldinu. Við Inga héldum ótrauð á Hellacopters og sjáum aldeilis ekki eftir því! Eftir stórkostlega tónleika ákváðum við að kíkja á Madrugada sem við vissum ekki hvað var. Það var leiðinlegt og við fórum. Fórum í WBOS kamp og þar voru enn 1 eða 2 WBOS að "hlusta á óminn" af Burning Spear. Við fórum í sturtu ( minnir mig ... teflon! ) til að vera hrein og strokin fyrir næstu tónleika sem voru mikið tilhlökkunarefni. Eftir sturtu fengum við okkur öllara og chilluðum ( og borðuðum örugglega eitthvað líka ) til ca. 7 þegar við þurftum að drífa okkur á JJ72. Leyfðum JJ72 ekki alveg að klára sig af áður en við fórum enda ekki alveg nógu góður fílingur í gangi. Ákváðum að ná þá í staðinn Beck í heild sinni enda sannur meistari þar á ferð. Eftir Beck vorum við hress og kát og valhoppuðum í grunnbúðir. Hlupum framhjá græna tjaldi og heyrðum Nick Cave kyrja "DO YOU LOVE ME?!?". Settumst niður, fengum okkur bjór og höfðum það gott þangað til Neil Young og Crazy Horse voru búnir að spila í smá stund. Þá fannst okkur ekki seinna vænna að kíkja á hann enda Crazy Horse í góðum fíling og Neil helvíti hress. Þegar Crazy Horse voru búnir að láta sig vanta þónokkur lög í röð og Neil gamli kominn í súran pakka fannst okkur eðlilegt að yfirgefa svæðið. Fórum í grunnbúðir og höfðum það gott. Heyrðum síðan óminn af því þegar Crazy Horse mættu aftur á svæðið og svo tóku þeir að lokum "Keep on Rockin' in the Free World" og síðan mætti Kolli geysilega stoked eftir gömlukallatónleikana. Við fórum í Camp Chaos og hittum fyrir Hrólf og Jóa frænda o.fl. en héldum fljótlega í háttinn. Yay!

Briskeby

Hressilegir popptónleikar. Söngkonan í hevví góðum pakka en gítarleikarinn kannski með taktana aðeins of mikið á hreinu. Hljómborðsleikarinn lét sig ekki muna um að spila á þrjú í einu og alltíallt voru þetta hressilegir norskir tónleikar. Húrra fyrir popptónlist!

Hellacopters

Ekki ósvipaðir taktar á ferðinni og hjá Briskeby gítarhetjunni en hér áttu þeir heima. ROKK, ekkert orð lýsir þessu betur. Sóló á hnjánum og ruslatunnuendir á hverju lagi. Sænskir rokkarar láta ekki að sér hæða. Þetta er sú hressilegasta tónlist sem hægt er að hugsa sér. Fullkomið tónleikaband! Minnir mig stundum á Stillwater úr Almost Famous. Gaman að heyra slagara eins og "Trow Away Heroes" og "Toys and Flavours". Enduðu á crazy tveggjagítara sólói með bakfettum og gítarana upp í loft og klykktu út með lengsta ruslatunnuendi í heimi með vindmyllunni og öllu! Hevví sáttur!

Madrugada

Þetta var bara of súrt fyrir mig. Eða kannski bara of leiðinlegt. Altént fór ég.

JJ72

Gott band sem ég var búinn að hlakka mikið til að sjá. Hljómurinn var góður og allir stóðu sig voða vel en ég fékk á tilfinninguna að þetta fólk á sviðinu væri bara í vinnunni. Söngvarinn fýlupúki sem var allt of svalur fyrir salinn og trommarinn gerði bara það sem þurfti. Bassaleikarinn var sæt (?!?) og brosti einu sinni eða tvisvar. Opnuðu tónleikana með aðal hittaranum, "October Swimmer" en höfðu ekki erindi sem erfiði hvað stuð varðar. Gaman að heyra "Snow" live en eiginlega finn ég kraftinn betur bara í heddfónum. Annars skemmti ég mér vel enda vel undirbúinn fyrir þessa tónleika og hljómsveitin í nokkru uppáhaldi hjá mér. Attitudið þeirra var samt ekkert að hjálpa og þeir náðu salnum aldrei á sitt band.

Beck

Það er ekki að spyrja að þessum. Magnað show með lúðraþeyturum og gógó stelpum, villtum DJ og funky bassaleikara. Af hverju er Beck ekki forseti Bandaríkjanna? Andrúmsloftið á tónleikunum "goes without saying". Yeah!

Neil Young & Crazy Horse

Hressir kallarnir. Crazy Horse voru í geysigóðu stuði framan af en ég þekkti lítið af lögunum. Síðan létu þeir sig hverfa og gamli tók upp kassagítarinn. Ég fór þegar hann var búinn að rymja þar í dálítinn tíma en sé eftir því núna þar sem Crazy Horse áttu eftir að mæta aftur og taka alla slagarana. 10 stig fyrir gamla fólkið!

Ammælið mitt!! ( Laugardagur 30. júní )

Vaknaði hress og 22 ára gamall og fékk ammælisgjafir og ammælisblöðrur sem ég hengdi stoltur utan á tjaldið mitt! Það lá ekkert alveg magnað fyrir strax þannig að við ákváðum að drífa okkur niður í bæ og fara í sund. Nóg að gera í sundi þannig að við þurftum að bíða eftir lyklum en komums þó altént á endanum út í laug ( sem var reyndar inni ). Vorum með hæfilega mikil skrílslæti og fórum í WBOS hoppukeppni sem tókst svo vel til að ákveðið hefur verið að gera hana að reglulegum viðburði. Allir fengu maga- og/eða bakskelli og leiknar voru listir sem verða seint leiknar eftir. Upp úr lauginni og niður í bæ ( Inga Hrund fór aftur á hátíðarsvæðið til að sjá Grandaddy ). WBOS fóru inn í bæinn til að fá sér að borða á Gringos. Við bræðurnir fengum okkur tacohlaðborð sem var vont en fór ágætlega í maga. Hinir fengu sér einhverja rétti sem voru skárri en settust eins og steinar ofan á þarmana. Þegar við vorum komnir aftur á svæðið hitti ég Ingu og við fórum á Karate tónleika. Á leiðinn vorum við dregin í einhverja sjónvarpsupptöku sem var í gangi þarna allan tíman og erum líklega núna ódauðleg. Gleymdi að segja að það væri ammælið mitt buhu. Hittum Hrólf og Iðunni á Karate í eitt af fjölmörgum skiptum og fórum öll saman að leita að allsberuhlaupinu en vissum ekki hvar það var hlaupið og því fór það framhjá okkur ( buhu ). Kvöddum H+I á Bob Dylan og fórum tímanlega á PJ Harvey. Þó ekki tímanlegar en svo að við þurftum að bíða í röð eftir að komast fremst á meðan hún söng 3 - 4 fyrstu lögin en komumst svo inn á besta stað. Við vorum búin að bíða svo lengi í röð að ég var í spreng en mátti ekki fara út fyrir nema að fara aftur í röð þannig að ég pissaði í glas og skildi það eftir framan við sviðið. Allir í góðum fíling þar og Inga Hrund flassaði enda PJ lessa og þætti líklega gott að fá meira af slíku. Eftir þessa tónleika gekk ég þvert yfir svæðið en skildi við Ingu á appelsínugula þar sem Robbie Williams glumdi í eyrum. Fór sjálfur í hvíta tjaldið og sá Basement Jaxx. Fínt að fara á innitónleika enda farið að mígrigna þegar þarna var komið sögu. Skemmti mér konunglega og fékk mér síðan grillpinna og bakaða kartöflu á Guffen áður en ég hélt í græna tjaldið. Þar beið eftir mér frelsari með vatnshelda yfirhöfn enda gaf ég henni síðasta grillpinnann og svo skemmtum við okkur á Serio MC's. Fórum síðan og átum WOK eða eitthvað svoleiðis og líklega 2 kleinuhringi ef ég hef fengið að ráða. Héldum svo áfram að tjútta af okkur rassgötin á Faithless áður en við héldum loks aftur í grunnbúðir. Toppammæli og sannarlega betra en það síðasta!

Bob Dylan

Annað skiptið sem ég sé Dylaninn þarna og hann stendur svo sem enn fyrir sínu. Allir chillaðir í góðu veðri og kallinn rumdi og þusaði eins og efni og aðstæður buðu upp á. Gamla fólkið fær enn stig.

PJ Harvey

Snilldar tónleikar hjá snilldar tónlistarkonu. Ekkert sérstakt um tónleikana að segja enda vel að verki staðið í alla staði. Yay!

Basement Jaxx

Hevví gott stuð og allir að dansa. Gott bít og stanslaust stuð hjá hljómsveit, söngvurum og dönsurum allan tíman. Danskonur sem skiptu um búning nánast fyrir hvert lag. Tónleikar sem ég hefði ekki viljað missa af ( og fínt skjól fyrir rigningunni líka )!

Sterio MC's

Meiri danstónlist og skrokkurinn allur að komast í gang. Aðrir tónleikar þar sem allir dönsuðu og enginn tók beint eftir því hvernig hljómsveitin stóð sig á meðan takturinn hélt áfram að koma. Maður þurfti að komast á meira svona!

Faithless

Enda gerði maður það. Hér gat maður vissulega haldið áfram að dansa af sér rassgatið en þessir tónleikar voru úti og enn rigning þannig að það dró smám saman úr manni. Whew!

Sunnudagur 1. júlí

Dagurinn byrjaði á því að fara á Asylum Street Spankers í Roskilde Ballroom og fá sér svo morgun-/hádegismat á Mama Mombasa. Röltum svo aðeins um áður en við fórum í Camp WBOS til að chilla en runnum síðan á hljóðið frá Feeder í græna tjaldinu. Stöldruðum svolítið við þar en fórum svo á íslensku hljómsveit þessara keldu, Apparat Organ Quartet. Stöldruðum ekki eins lengi við þar heldur settumst í grasið fyrir frama appelsínugula sviðið, hlustuðum á Queens of the Stoneage, keyptum okkur bjór og höfðum það gott. Eftir gott chill í góða veðrinu röltum við aftur í tjaldbúð til að undirbúa okkur undir stórtónleika dagsins, Apocalyptica! Héldum uppteknum hætti og fórum í fremsta hólfið í græna tjaldinu og hlýddum og horfðum á merkilegustu rokkara hátíðarinnar og þó víðar væri leitað. Eftir massarokk fórum við í grunnbúðir og hvíldum okkur og heyrðum óminn af Aqua þangað til við gátum ekki setið á okkur lengur. Tjúttuðum á Aqua og fórum síðan á The Cure en entumst ekki þar nógu lengi til að heyra alla slagarana nema úr fjarlægð. Hittum síðan nokkra meðlimi úr Asylum Street Spankers og tókum mynd. Afgangurinn af kvöldinu var eins og gengur og gerist á þessum sunnudegi, brennur og læti og ryllifí. Egndum gildru fyrir vegfarendur og vorum næstum búnir að láta einhver vesaling missa allan bjórinn sem hann var nýbúinn að kaupa. Hátíðin var kvödd með stæl og svo var víst hlaupið utandagskrár allsberuhlaup eftir að ég var farinn að sofa.

Asylum Street Spankers

Veit ekki hvort á að kalla þetta köntrí eða hvað eiginlega. Allavegana algjörir kanar að spila á allskonar hljóðfæri. Mögnuð og fjölbreytt hljómsveit sem stóð vel fyrir sínu þó að þetta væri ekkert mikið rokk. Stór plús fyrir söngkonu sem spilar á sög!

Feeder

Gott rokk frá hljómsveit sem ég kannaðist hreinlega ekkert við. Reyndar eitt lag sem hafði verið spilað á Xinu en ekki þannig að ég myndi eftir nafninu. hefði eiginlega átt að vera lengur þarna frekar en að fara á ...

Apparat Organ Quartet

Tja ... ekki að gera það fyrir mig. Kannski var þetta dýpri tónlist en svo að maður næði henni við fyrstu hlustun, kannski var hún bara leiðinleg. Altént fór ég.

Queens of the Stoneage

Gott rokk! Söngvaranum var mikið í mun að menn drykkju á tónleikunum og að allir væru með það á hreinu að hann væri drukkinn. Það kom alls ekkert niður á tónleikunum og ég skemmti mér konunglega. Ég þekki þá samt ekki neitt mikið þannig að ég beið spenntur eftir "The Lost Art of Keeping a Secret" og varð ekki fyrir vonbrigðum. Gott rokk!

Apocalyptica

Ætli það séu finnsku gufuböðin sem skemma hausinn á mönnum nógu mikið til að gera svona snilld? Eicca Toppinen og félagar sviku engann með brútal sellórokki enda sungu allir með ( upprunalegu textana ) og pitturinn var harðari en á mörgum gítarrokktónleikunum. Hevví svalir þegar þeir stóðu upp með reiða rokksvipinn á eftir öllum hröðu lögunum. Metalliva lögin voru náttúrulega mögnuð en frumsamda efnið var engu síðra. Klikkað að heyra "Path" live enda snilldarverk. Fá fleiri klikkaða Finna á tónlistarhátíðir!

Aqua

Við hverju var að búast??? Popp á heimsmælikvarða. Hljóðfæraleikararnir stóðu á mörgum pöllum og það voru tröppur á miðju sviðinu ( hringir bjöllu ... bjöllum ). Allir í góðum fíling og þeir tóku "Roses Are Red", "Barbie Girl", "Dr. Jones" og allt hitt líka. Hver getur annað en verið í stuði þá?!?

The Cure

Gamlir rokkarar sem ég því miður kannast ekki nógu vel við. Þeir tóku ekki slagara fyrr en undir lok tónleikana og fram að því held ég að einungis hörðustu aðdáendur hafi verið eitthvað inni í því sem var að gerast. Allavegana ekki ég, því miður!

Mánudagur 2. júlí

Keyptum okkur seinasta matinn á svæðinu og tókum svo saman. Stungum hina WBOS af til Kaupmannahafnar og komum okkur fyrir í íbúðinni hans Bjarna. Fórum í langþráða sturtu og á netið. Þegar búið var að svala netfíkninni fórum við niður í Kristianíu þar sem ég svalaði skeitfíkninni. S'iðan skoðuðum við drasl og ákváðum að lokum að fara og kíkja á litlu hafmeyjuna. Ég keypti mér Hagendaz ( eða eitthvað ) ís og var langt kominn með að koma mér upp enn einni fíkninni! Hafmeyjan var skemmtileg og við tókum myndir og strætó heim.

Þriðjudagur 3. júlí

Ákváðum að fara í Bakken en hittum bandarískan gaur í lestinni sem var á leiðinni á ströndina. Þar sem það er sama stoppið fyrir báða staði fórum við bara með honum á ströndina. Chilluðum þar í góðum fíling og fórum í frisbí og hann tók brjóstamyndir fyrir félagana heima í BNA. Fórum samt að lokum á Bakkann og í vatnsrússíbanann. Keyptum okkur svo síðustu kvöldmáltíðina sem var steik pg rjómapönnuköku í eftirmat. Drifum okkur svo heim til að taka saman dótið okkar og hlupum í strætó. Kvöddumst með virktum þer sem Inga fór út en ég hélt áfram á flugvöllinn. Föttuðum í tékkinninu að ég var búinn að gleyma hvar ég setti "flugmiðann" en sem betur fer fann afgreiðslukonan hann í vegabréfinu mínu, hjúkk! Og nú er ég kominn heim :| Skoða eldri færslur >>