Vonlausar veiðiferðir > Sumar-Kretinshops 2003
24.-27. júlí 2003 - Kretinbúðir - Scweppes, Mjöðmin, Fasistinn, Pu, Tóti, Minki Lú, Helga Lú, Ása, Lilja, Formaðurinn, Linda, Mini Mac
Scweppes skeit: Allir hardcore veiðimenn Vonlausa lögðu af stað eftir vinnu á fimmtudaginn í sumarferð Vonlausa. Kobbi og ég erum einu hardcore. Fyrsta fréttnæma mómentið var stopp í City Peninsula fyrir hambó. Fuck hvað þeir voru vondir - hvað er maður að gera sér þetta? Við sluppum þó við matareitrun, ælu og skitu eins og þeir sem fengu sér pulsu í Staðarskála um helgina.Komum vestur í frábæru veðri rétt fyrir miðnætti, skelltum rafstöðinni í gang og rúlluðum svo inn á dal að skoða ána, ég á krossaranum og Kobbi á Dummmóbíl. Hrikalega lítið vatn þarna enda enginn snjór þarna í hlíðum eins og er venjulega fram á haust. Fengum okkur bjór og vorum í einhverju tjilli til 4 eða 5.
Föstudagur til fiskjar?
Göltur og french tóst í morgunmat, (reyndar eftir hádegi).Kíktum aftur inn á dal, ég þorði að setja í 3 gír og fór aðeins hraðar. Mjög gaman. Sáum ekki bein í pollunum innfrá og snerum til baka frekar súrir. Ákváðum að kíkja aðeins í Ármótin. Þegar þangað var komið drapst á krossaranum og vildi hann ekki meira í gang þessa helgina.
Merkilegt nokk þá lentum við í twælæt són þarna. Á í hverju kasti. Tókum ca. 10 ágætis fiska. Fórum afar sáttir upp í hús og plottuðum hvernig við gætum logið að Veiðifasistanum að ekkert hefði komið á land. Ákváðum líka að veðja um 1) hvað það liði langur tími frá því að hann kæmi í hús þar til hann kíkti í veiðibókina (15 sek) og 2) hversu langur tími liði frá því og þar til hann væri kominn út að hoppa í döðlurnar (23 sek).
Eftir að strákarnir mættu á svæðið, Fasistinn, Pu, veiðimaðurinn sem var áður þekktur undir nafninu Krumpi Kretín eða hýenan og Taut. Menn veiddu prýðilega niðurfrá þetta kveldið og voru nokkuð sáttir. Síðan bættust Ása og Lilja við seinna um kveldið.
Kvöldmatur ekki af verri endanum, grillsteik, bakaðar töflur og alles. Strákarnir héldu áfram að veiða og Mjöðmin var meira að segja að rífa upp silla á KÍB fluguna.
Laugardagur til leti
Fórum og köstuðum smá á laugardagsmorgninum, strákarnir keyrðu upp á dal. Skelltu sér í hylinn við Gullna hliðið þegar ekkert veiddist. Tóti spyr Skabba: "Varidda kalt?" Skabbi: "Niiii" Tóti hoppar út í - "gaaaaaaaaaaaa" Skabbi: "Reyndu að segja eitthvað - múhahahaha".Addi Pu fór hinsvegar einn í rómantíska göngu upp dalinn, inn á gömlu póstleiðina, yfir á Hvannahlíðarfjall og niður dalinn hinumegin við það. Lagði sig á leiðinni, talaði við fugla og þannig stöff.
Síðan fóru menn að chilla agalega þarna. Ákveðið var að halda Red-neck laugardag. Við sátum úti á verönd í sólbaði, fullt af náhvítum gaurum með sólbrunna hálsa, sígó, bjór og byssu. Auðvitað reyndum við fyrir okkur í skotfimi á pallinum fyrst þetta var red-neck laugardagur. Fólkið sem kom þarna keyrandi að bænum til að tékka hvort vinir þeirra væru þarna fengu smá sjokk þegar náhvítur rauðháls með lafandi sígó, bjór og byssuna tók á móti þeim. "Whut da fuck do ya'll want? Best not mess wit us goddam redneck porch monkeys...!"
Þar sem Krummi var algjör minkur og steindrap allt sem hann tók á land fékk hann nýtt viðurnefni, Minki Lú, en Loo þýðir einmitt klósett og samrýmist arabíska nafni Minka Lú sem þýðir líka klósett. Pu myndi kannski vera svo vænn að skella því hér á síður vefsins.
Helga hans Minka Lú mætti á svæðið en þorði ekki upp að bæ svo hún fór í 2 tíma bíltúr. Mætti síðan upp að húsi en gerði heiðarlega tilraun til að hanga í símanum þar til Minki kæmi.
McRenis (aka Trúðurinn KÍB) og frú + erfinginn kíktu svo á svæðið rétt fyrir kveldmat og dvöldust fram á sunnudag.
Um kveldið var boðið upp á grillaðar kjúllabringur, rauðvín og fínerí. Og að sjálfsögðu Bombay gin. Sagðar stórfenglegar gamansögur en auðvitað endaði þetta með kúk og piss bröndurum. Mjög gott.
Kíktum aðeins niður að á um kveldið og enn var mokveiði. Kolli átti svo lokasetningu dagsins. "Svenni, ef maður ætlar að sofa úti og það fer að rigna, hvað á maður að gera?"
Sunnudagur á sýru
Við reyndar droppuðum ekki sýru en þetta stuðlar bara svo flott.Menn fóru að týnast burt, kretínbræður að sjálfsögðu fyrst en Mjöðmin fær 10 þúsund frípunkta fyrir að hafa nennt að taka krossarann. Krummi er hinsvegar svikari. Síðan beiluðu McRenis og frú, Ása og Lilja. Við þrifum allt hátt og lágt, Addi bónaði meira að segja klósettin með tungunni. Síðan kíktum við niður að á og vorum að taka fína 2 punda silla þar. Frábært veður.
Í heildina endaði helgin í 300 kúkabröndurum, 700 lélegum bröndurum, 1 nýju viðurnefni, 20 þús kr. af mat og 60 silungum þó að slatta af þeim hafi verið sleppt. Heildarþyngd afla hefur sjálfsagt verið eitthvað yfir 30 kíló. Vonlausa hvað? Veiðifélagið aflaklær hljómar bara svo faggalega...
Lordinn Skoða eldri færslur >>

