Vonlausar veiðiferðir > Skýrsla Veiðideildar - Sumarferð í Þroskafjarðará
5-8 ágúst '04 - Kretinshops - Charles Le Göll, Mittisvaðla, Mjöðmin, Spunge, Minki Lú, Freyzandi, Hemmi, Ása, Anna, Una Margrét, Helga Lú með innlit
Spunge skeit: Við Kolbeinn Mjöðm lögðum af stað upp úr hádegi á föstudeginum til að ná einni veiðivakt með Geltinum og Tóta Vöðlu. Þegar við komum á staðin og hittum þá félaga kom í ljós að Tóti Murta hafði fyrr um daginn veitt hornsíli og drukkið heila koníaksflösku til að fagna fengnum. Þegar við Mjöðm ákváðum að ganga til veiða drapst Tóti og Sveppi varð eftir til að rimma Tóta þar sem hann gat enga björg sér veitt.Áin var frekar vatnslítil og virtist fiskur bunka sig í gríðarlegu magni í nokkra hylji. Þeir voru þó grimmir til tökunnar og ekki sérlega vandfýsnir, allavega í byrjun. Flestir voru í smærri kantinum, hálft til eitt pund en inn á milli voru stærri fiskar, sá stærsti sem kom á land um helgina vó heil 2 pund. Við teljum okkur hafa séð Herman Munster í einum hylnum en svo virðist sem stærri fiskar hafi almennt verið tregari til töku en þeir smærri.
Þegar við komum í hús aftur eftir fyrstu vakt var Tóti að vakna, skelþunnur og Sveinn líka, sem hafði kúrt með honum. Fólk fór að tínast í hús og tekið var til við beinstífa drykkju fram eftir kvöldi. Um miðnæturbil var haldið til veiða. Lordinn stakk af í fyrsta hylinn og vildi ekki vera ónáðaður, Tóti klæddi sig í mittisvöðlurnar, slangraði af stað og drapst milli þúfna en ég leiðbeindi Ársælsmönnum í góðu veiðisiðferði, Jägermeisterdrykkju og kúkabrandörum. Svo jarmaði sauður og vakti Tóta af ölvunarsvefni í annað sinn á sex tímum. Þegar komið var í hús aftur reyndist Kolbeinn ósjálfbjarga sökum ölfunar og einn og einn fóru menn sömu leið í sortann.
Tóti var fyrstur á fætur enda þurfti hann að drífa sig í bæinn og í leðurbrókina fyrir Gay-Pride skrúðgönguna. Kretínbræður og ég héldum til morgunveiða inná dal en Björgunarsveitin hélt til fjalla (sjá neðar). Fáum sögum fer af veiði þangað til við komum upp að Selfljóti sem geymdi mýgrút fiskjar nú sem endra nær. Í þann mund sem við komumst í fisk helltist þynnka dauðans yfir Kolbein af fullum þunga, veiðifélögum hans til ómældrar kátínu. Ekki spillti fyrir að hann gleymdi vöðlunum sínum og þurfti að vaða ána á strigaskóm. Fiskur var sem fyrr grimmur til tökunnar, hvort sem kastað var púpum eða þurrflugum en allir sem tóku voru litlir. Eftir Selfljótið var haldið heim í hús, hvar feitur göltur var fleginn og étinn.
Eftir mat fórum við aðra umferð um neðstu hylina. Veður var með besta móti nú og sáum við að fiskur var í miklum yfirborðstökum. Skemmst er frá því að segja að þurrflugur svifu nú út á hylinn og voru nær undantekningalaust negldar á svipstundu. Óhemju skemmtileg veiði og tveir Baldwinar komu á land innanum smáfiskinn, þeir Alec og Steven. Jón lét hinsvegar ekki blekkjast í þetta skiptið. Til að hvíla hylinn gengum við niður að ós og urðum heldur en ekki spenntir þegar þrír laxar sáust hringsóla þar um. Öll leynivopn voru dregin fram og þrusað út en ekki vildann taka. Við þess vonbrigði var sem mesta veiðiharkan rynni af mönnum og héldum við heim til að undirbúa silungaveisluna. Um kvöldið var þrírétta silungaveisla á boðstólnum sem innihélt hráfisk í einfaldri mynd, hvítlauksgrillaðan silung með steinselju og unaðslegan mangómaríneraðan hnetusilung sem Kolbeinn "Madhúr Jaffrey" Guðmundson töfraði fram. He's so particular! Ammínamminamm! Kvöldið var í rólegri kanntinum þar sem menn settu upp spekingssvip, drukku Laphroag og rauðvín og spiluðu Risk.
Daginn eftir var bongóblíða. Fjallamenn héldu til fjalla á meðan veiðimenn héldu til veiða. Heimahylirnir voru aftur teknir í þeirri vona að þar mæti töfra upp Herman Munster eða Jón Baldwin. Fiskur tók enn en tökur voru mun grennri í þetta skiptið og fáum fiskum var landað. Teljum við að í það minnsta þrír vænir fiskar hafi fengist á færið sem allir sluppu af. Laxarnir sáust ekki lengur í ósnum og var því lítið reynt þar. Eins og venjan er stakk Minki Lú af úr tiltektinni. Við Kolbeinn pökkuðum saman föggum okkar, lögðum af stað en gerðum eina árangurslausa lokatilraun við Herman Munster en uppskárum ekkert nema liberal wieners.
Toppferð í alla staði, svo lærir sem lifir og ég er ekki frá því að bæði Herman og Jón eigi eftir að liggja eftir næstu ferð.
HÚRRA FYRIR SUMARFERÐ VONLAUSA!!!
Skoða eldri færslur >>

