Vonlausa Veiðifélagið
Veiðiskapur frá vöggu til grafar
Á árinu 2006 fagnar Vonlausa veiðifélagið
11 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað í eftiminnilegri veiðiferð í Veiðivötn árið 1995 sem kölluð var "Kvaða beit´ertu með?"
Vefur Vonlausa var smíðaður í tilefni af fimm ára afmælinu. Vei. Fyrsta bloggið okkar er frá 14. nóvember árið 2000 og erum við nokkuð snemma á ferðinni í bloggsögu Íslands.
Veiðiferðir eru vandmeðfarið umfjöllunarefni og mikilvægt að sýna viðfangsefninu tilhlýðilega virðingu. Myndir og gamanmál sem hér birtast sýna vonandi að vel hafi til tekist.
Vonlausa veiðifélaginu er sönn ánægja að stuðla að brosandi tilveru í umhverfi bráðar, almennings, bænda og fólks sem heldur að rjúpur vaxi í kjötborðinu í Nóatúni. Félagsmenn vona að framtakinu verði vel tekið. Erum við ekki í lagi? Hvað með þig? Á þessum vefsíðum birtast myndir úr starfi félagsins og helstu upplýsingar. Efninu er skipt í flokka, sem hægt er að velja úr listanum vinstra megin á síðunni. Veiðimaður ársins mun verða kosinn árlega á árshátíð gildra meðlima sem haldin er einu sinni á ári, að hausti. Þá eru étnar nýveiddar gæsir, silungur og fleira gómsætt. Skolað niður með dýrindis rauðvíni, bjór og loks Tequila.
Njótið heil,
Scweppes og Kobbi mjöðm
vefstjórar Vonlausa veiðifélagsins.
(Kobbi hefur aldrei gert rassgat í vefnum eða servernum. Hann er einungis nýtilegur til að drepast snemma á fylleríum og kaupa áfengi sem enginn vill.)Skoða eldri færslur >>

